Hætta á að fullkominn stormur skelli á heimshagkerfinu!

Stóru hætturnar tvær eru, evrukrísan - og verður að segjast - bandaríkjaþing. En meðan evrusvæði er í vanda, sem erfitt verður úr að komast. Þá er krísan á bandaríkjaþingi pólitísks eðlis, en getur verið fullfær um að búa til nýja kreppu í Bandaríkjunum. Ef þær tvær kreppur skella á samtímis - þá myndi fullkominn stormur hefjast í heimshagkerfinu. Skellur samtímis í Evrópu og Bandaríkjunum.

 

Ný hagspá AGS!

Það merkilega við spá AGS, er hve ótrúlega bjartsýn hún enn er! Þetta sést best, ef hin nýja spá er borin við spá AGS frá því í janúar sl., en þá var AGS í nokkru svartsýniskasti - en hífði svo spá sína upp allnokkuð snemma í vor, einungis miðað við þá spá er hin nýja svartsýnni. Sjá umfjöllun mína um spá AGS frá jaúnar: Dökk hagspá AGS fyrir Evrusvæði!

Mín skoðun er einfaldlega að, það hafi í reynd engar forsendur verið fyrir því að hífa upp spána frá sl. janúar - rámar í apríl/máí.

Það reyndar kom tímabundin lægð í evrukrísuna - en hún hefur svo sannarlega gosið síðan í júní upp á ný af krafti, og er ástandið síst betra en í janúar.

Eins og sést hefur AGS kosið að gera í reynd litlar breytingar á grunn spá - en eins og fram kemur í texta, hefur ógnunum við jákvætt framhald vaxið ásmegin.

Bæði vaxandi hætta á evrusvæði en AGS vonaðist eftir fyrr á árinu, og erfiðari aðstæður hagvaxtarlega í Bandaríkjunum - en AGS taldi áður líklegast.

En AGS ákveður a.m.k. enn sem komið er, að halda sig við það - að reikna með því að aðstæður á evrusvæði muni smá skána þrátt fyrir allt á seinni hluta árs, að það muni ekki hægja frekar á vexti í Bandaríkjunum - að Asíulönd muni nokkurn veginn halda dampi.

"“More worrisome than these revisions to the baseline forecast is the increase in downside risks,” said Olivier Blanchard, the IMF chief economist and director of the IMF’s Research Department, which prepares the WEO."

"The IMF emphasized that the relatively minor setback to the global outlook under its baseline projections is based on three important assumptions:

  • that there will be enough policy action for financial conditions in the so-called euro area periphery, which includes Greece and Spain, to ease gradually through 2013;
  • that U.S. fiscal policy does not tighten sharply in 2013; and
  • that steps by some major emerging markets to stimulate growth gain traction."

Það sem er í gangi - er að vandinn á evrusvæði er að drepa hagvöxt í heiminum.

Að skapa vaxandi hættu á viðsnúningi til baka - í heimskreppu!

"The IMF said the most immediate risk to the global recovery is that delayed or insufficient policy action will further escalate the euro area crisis. “Simply put, the euro periphery countries have to succeed,” said Blanchard."

Svo eru það fíflin á bandaríkjaþingi, á meðal Repúblikana - sem virðast beinlínis ætla sér að búa til efnahagslegar hamfarir, í hreinni blindri trú á að það verði einmitt nú að skera harkalega niður. 

Það áhugaverða er, að þarna hugsa haukarnir meðal Repúblikana ótrúlega svipað, og haukarnir í flokki Angelu Merkel kanslara Þýskalands, sem hafa verið að þvinga á Evrópu harkalegan útgjaldaniðurskurð nánast samtímis í öllum meðlimaríkjum evrusvæðis.

Sá samræmdi niðurskurður, er að þrísta hagkerfi Evrópu dýpra inn í kreppu.

En sambærilegur skellur getur nú átt sér stað sinni part þessa árs í Bandaríkjunum.

"The WEO update also cited the possibility that growth in the United States would stall...“In the extreme, if policymakers fail to reach consensus on extending some temporary tax cuts and reversing deep automatic spending cuts,” the U.S. economy could face a steep decline of more than 4 percent of GDP in its fiscal deficit in 2013."

"Growth has slowed in a number of major emerging economies, especially Brazil, China, and India...Overall, though, emerging markets have weathered the crisis well."

Það er veruleg hætta á því, að útgjaldahaukar meðal Repúblikana - framkalli svokallað "fiscal cliff" sem margir hagfræðingar eru að vara við - en þeir hafa verið að spila með þá staðreynd, að þ.e. bandaríkjaþing sem skaffar alríkinu peninga - þ.e. heimildir til að verja fé skattgreiðenda.

Sl. ár neiddu þeir upp á Obama samkomulag, um minnkun hallareksturs alríkisins. Skv. lögum sem voru samþykkt, mun algerlega sjálfvirkt koma til mjög harkalegs niðurskurðar - "tightening of $600bn or 4pc of GDP" - nema samkomulag náist milli Demókrata og Repúblikana um einhvers konar millilendingu.

En þ.e. fyrirsjáanlegt - eins og AGS segir - að ef ekkert slíkt samkomulag næst, og útgjaldahaukarnir meðal Repúblikana láta drakonískann niðurskurð útgjalda alríkisins gerast - að þá detti bandaríska hagkerfið inn í sambærilegann niðurspíral - - > og sá sem S-Evrópa er nú stödd í.

En sá niðurspírall verður þá algerlega búinn til, af þinginu sjálfu. Pólitísk framkvæmd. En ef það gerist, á sama tíma og ástand mála er slæmt og versnandi í Evrópu.

Er alvarleg hætta á að - FILLKOMINN STORMUR SKELLI Á HEIMSHAGKERFINU, Á SÍÐUSTU MÁNUÐUM ÞESSA ÁRS.

 

IMF World Forecast

.......................................2012...2013....2012.....2013

World Output......................3.5.....3.9......–0.1......–0.2

Advanced Economies...........1.4.....1.9......–0.0......–0.2

United States......................2.0.....2.3.......-0.1......–0.1

Euro Area..........................–0.3.....0.7.......0.0........-0.2

Germany.............................1.0.....1.4.......0.4.......-0.1

France................................0.3......0.8......-0.1.....–0.2

Italy.................................–1.9.....–0.3......0.0.......0.0

Spain................................–1.5.....–0.6......0.4.....–0.7

United Kingdom...................0.2.......1.4......–0.6.....1.4

Central and Eastern Europe...1.9.......2.8.......0.0.....–0.1

Russia................................4.0........3.9.......0.0.....–0.1

Canada...............................2.1.......2.2.......0.1......0.0

Japan.................................2.4.......1.5.......0,4......-0.2

China.................................8.0.......8.5......–0.2.....–0.3

India.................................6.1........6.5......–0.7.....–0.7

ASEAN-5............................5.4........6.1.......0.0......–0.1

Brazil.................................2.5.......4.6......–0.6......–0.5

Mexico...............................3.9........3.6.......0.3........0.0

Middle East and North Africa.5.5........3.7......1.3........0.0

Sub-Saharan Africa..............5.5.........5.3......–0.3.....–0.2

 

Niðurstaða 

Það má ekki milli sjá hvort snillingarnir í ríkisstjórn Þýskalands, eða útjgladahaukarnir á Bandaríkjaþingi, eru hættulegri. En báðir hóparnir þ.e. útgjaldahaukarnir í flokki Angelu Merkel, og útgjaldahaukarnir meðal þingmanna Repúblikana. Eru í aðstöðu til að búa til heimskreppu.

Og hættan er einmitt að þeir það geri.

Þá skellur hún á af krafti undir lok þessa árs.

 

Kv.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Gíslason

Þetta er ekki björt framtíð - á meðan pólitíkin ræður öllu ef hún þá ræður.

Annar vinkil á evrópu vandanum. Segjum að esb fellur alveg og evran heyrir sögunni til. Vandi Kína gæti þá orðið gífulegur, því að ég held 40% útflutnings Kína eru til landa esb ríkja. Þá gæti hreinlega komið upp borgarastyrjöld í Kína vegna þess ástands sem skapaðist. Kínverski Kommaflokkurinn réði ekki við ástandið í landinu.

Er ekki þetta sem Kínverska stjórnin er að gera í esb löndum og evrópu að starta fyrirtækjum til að reyna að örfa hagkerfið og komast hjá þessu stóra falli? Annað stærsta hagkerfi heims þar þurfa menn að fá leyfi til að fjárfesta utan Kína.

Ómar Gíslason, 17.7.2012 kl. 10:29

2 Smámynd: Einar Björn Bjarnason

Ég held að kínv. stjv. geri sér grein fyrir hættunni. Ég held að flokkurinn muni beita ítrustu úrræðum til að halda velli, þar á meðal hernum. Hugsa að þeir muni ekki hika við að gefa skipun um að segja hernum að skjóta, ef ástandið verður svo desperat að um víðtækt uppreisnar og upplausnar ástand er að ræða.

Kv.

Einar Björn Bjarnason, 17.7.2012 kl. 12:11

Bæta við athugasemd

Nauðsynlegt er að skrá sig inn til að setja inn athugasemd.

Um bloggið

Einar Björn Bjarnason

Höfundur

Einar Björn Bjarnason
Einar Björn Bjarnason
Stjórnmála- og Evrópufræðingur. Áhugi á stjórnmálum, Evrópumálum, alþjóðamálum, málefnum Miðausturlanda, trúmálum, vísindum og tækni, og margt fleira.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Eldri færslur

2024

2023

2022

2021

2020

2019

2018

2017

2016

2015

2014

2013

2012

2011

2010

2009

2008

Nýjustu myndir

  • Mynd Trump Fylgi
  • Kína mynd 2
  • Kína mynd 1

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 13
  • Sl. sólarhring: 33
  • Sl. viku: 499
  • Frá upphafi: 847154

Annað

  • Innlit í dag: 13
  • Innlit sl. viku: 475
  • Gestir í dag: 13
  • IP-tölur í dag: 13

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband