Staðfest gegnumbrot Úkraínmanna, á Varnarlínu Rússar No. 2 -- Zaporizhia svæðinu Úkraínu, hinn bóginn hafa Rússar 3ju varnarlínu - gegnumbrot Úkraínu er enn afmarkað!

Bendi á mjög áhugavert viðtal við úkraínskan hershöfðingja: Ukrainian forces have broken through in Verbove, top general says. Þar fyrir utan á umfjöllun, Institute for Study of War: RUSSIAN OFFENSIVE CAMPAIGN ASSESSMENT, SEPTEMBER 23, 2023

Video sagt sýna úkraínsk brynvarin tæki á svæði handan við Verbove!

Bendi á, Rússar hafa sjálfir birt mjög svipað myndband, þeir segjast eyðileggja úkraínsk tæki í grennd við Verbove: Hlekkur á rússneskt videó

Google Translate á rússn. texta:

Battles near Verbov: an armored group of the Ukrainian Armed Forces was ambushed by the Osman special forces

Northeast of the village. Verbovoe, together with the Osman special forces group, we caught and destroyed an American MRAP armored car and a BMP-2. Enemy losses amounted to about a platoon of infantry.

Skv. því eru Rússar sammála því, að Úkraínumenn hafa náð - inn fyrir varnarlínu Rússa No. 2 - við Verbove. En til þess að vera Austan við Verbove, kemur ekkert annað til greina.

  1. Varðandi rifrildi um varnarlínur - bendi ég fólki á að það tók Úkraínu, 4 mánuði að ná í gegnum 1. varnarlínu Rússa - síðan er liðinn nú liðlegur mánuður, m.ö.o. Úkraínumenn náðu í gegnum 2. varnarlínu Rússa, á 1. mánuði.
  2. Þessi punktur ætti að enda rifrildi um það, hvort varnarlínan Úkraínumenn náðu í gegn fyrir rýflegum mánuði, hafi verið - einhver auka eða varalína; vs. að lína 2 hafi í reynd verið, meginlínan.
  • Bendi aftur á, að það var greinilega miklu mun erfiðara fyrir Úkraínumenn, að ná því að komast í gegnum -- fyrri línuna. Fyrst að það tók heila 4 mánuði.
  • Það ætti að endanlega að undirrstrika að, sú lína sbr. hvað úkraínskur hershöfðingi sagði fyrir mánuði, var megin-varnarlínan.

Endurbirti viðtal við, Olexandr Tarnavisky - þ.s. fram kemur lýsing á 1. línunni.

Viðtal við, Brig Gen Oleksandr Tarnavskiy: When we started the counteroffensive ... we spent more time than we expected on de-mining the territories, - In my opinion, the Russians believed the Ukrainians would not get through this line of defence. They had been preparing for over one year. They did everything to make sure that this area was prepared well. - As soon as any equipment appeared there, the Russians immediately began to fire at it and destroy it. That’s why de-mining was carried out only by infantry and only at night. - Now that the minefield has been breached, Russians have lost much of their advantage. - We are now between the first and second defensive lines,

1. varnarlínan - skv. lýsingu hans, var röð af steynsteyptum skotvirkjum - þetta kemur fram ef allt viðtalið er lesið - skotvirkin að sjálfsögðu sett þannig upp, að skothríð frá þeim - nær alltaf saman, að sjálfsögðu voru þau sett þannig upp, að skotlínan beindist að jarðsprengjusvæðinu fyrir framan -- meginvarnarlínuna.

1. Varnarlínan, þurfti ekki að vera algerlega samfelld - m.ö.o. bil voru milli skotvirkjanna, þ.s. skothríðin náði alltaf saman; og þykkt jarðsprengjusvæði gerði það að verkum, að ómögulegt var fyrir nokkurn að komast að virkjunum -- nema með gríðarlegum erfiðismunum.

  • Ég hugsa að misskilningurinn - að þetta hafi ekki verið megin-línan, byggist á því að - þ.e. bil milli virkjanna - m.ö.o. ekki samfelld lína.
    Það hafi skapað þá hugmynd, þetta væri ekki - eiginlega varnarlínan.
  • Varnarlína 2, aftur á móti, sé venjubundin - niðurgrafin, og samfelld.
    En, ekki með sambærilegum, steyn-steyptum vígum.

Fyrir leikmenn - en flestir sem tjá sig um stríðið á t.d. Youtube, eru amatörar - hefur það virkað flottari lína -- með því að rýna í loftmyndir.

En þá leiða menn hjá sér, hvað greinilega gríðarlega erfiður farartálmi, lína 1. greinilega var -- með því, að setja upp, rammgerð skotvirki - fyrir aftan mjög víðfemt jarðsprengjusvæði.

  1. Bendi aftur á, að það tók Úkraínumenn 4 mánuði að komast gegnum þann tálma.
  2. Meðan, þeir ná í gegnum - Línu 2, á liðlega mánuði.
  3. 3ja línan er enn eftir.

Úkraínumenn eru m.ö.o. ekki að storma beint til Azovshafs strax.

 

Það flækir mál fyrir Úkraínu enn frekar!
Að gegnumbrotið er enn á - takmörkuðu svæði. M.ö.o. Rússar halda enn löngum köflum á Línu 2. Og hafa meira segja ekki enn, hörfað frá mörgum svæðum á Línu 1.

Þar fyrir utan, eru Rússar að endurtaka leikinn, að hermenn taka sér stöðu - milli varnarlínanna, eins og er Úkraínumenn þurfti að berjast um hvern metra - milli Varnarlínu 1 og Varnarlínu 2 -- eru rússn. hermenn, strax búnir að koma sér stöður á milli.
--Þó það þíði, að þeir berjast þá nokkurn veginn fyrir opnu, við Úkraínumenn.

Þetta er greinilega gert til að tefja fyrir Úkraínuher, til að Rússa-her hafi meiri tíma til að undirbúa varnir á -- Línu 3. Hinn bóginn, má reikna með því, að Rússar lendi í meira mannfalli - er þeir láta hermenn taka sér stöður, á smáhæðum og smálautum, í sérhverju smáskjóli af gróðri -- á svæðinu á milli. Þ.s. rússn. hermennirnir eru eðlilega, verr varðir á tiltölulega opnu svæði, en ef þeir væru í niðurgrafinni línu.
--Spurning hvernig það kemur út fyrir Rússa.

  1. Úkraínumenn, virðast sækja fram fyrst og fremst, með fótgönguliði.
  2. Þeir virðast, almennt séð, spara brynvarin tæki - í þessum hernaði.

M.ö.o. virðast Úkraínumenn, líta svo á -- þeir geti frekar tekið mannfall, en tjón á tækjum.
Áhugavert, að Rússar hegða sér eins - þ.e. þeir virðast einnig mæta með fótgönguliði.

  • Þessi átök líkjast m.ö.o. meir átökum í -- Fyrra-Stríði, en því Seinna.
  • Fyrir utan, að báðir herir -- beita, drónum.

Forvitnilegt að sjá hvernig þessi hernaður er að þróast.

 

Oleksandr Tarnavsky herhöfðingi -

Oleksandr Tarnavsky is pictured during an interview with CNN.

sagði í viðtali CNN - að haustrigningar mundu ekki hafa nokkur veruleg áhrif á sókn Úkraínuhers -- vegna þess að, sóknin færi fram með þeim hætti lýst að ofan.
En haustrygningar gera beitingu vélknúinna tækja erfiða, er landið verður að forarsvaði.
Þ.s. Úkraínumenn, beittu fótgönguliði - hvort sem er - mundi sóknin halda áfram af fullum þunga í gegnum haustrygningarnar. Hann taldi einnig ekki vandamál að halda henni áfram, inn í veturinn. En ef frostin eru nægilega mikil, frýs jörðin -- þá er aftur hægt að beita vélknúnum tækjum.

Skv. þessu, er það hugsanlegt - að hershöfðinginn hagi sókninni með ofangreindum hætti.
Vegna þess, að hann veit af reynslu sem Úkraínumaður, að tækin verða fljótlega ónothæf hvort sem er -- er landið breytist fljótlega í ófæru fyrir tæki hvers konar.

 

Niðurstaða

Skv. Tarnavsky hershöfðingja, verður ekkert stopp á Suður-sókn Úkraínuhers. Fyrir mánuði, lýsti hershöfðinninn hvernig Úkraínuher komst í gegnuum 1. línuna, með því að beita fótgönguliði í litlum hópum, er unnu allt verkið -- í myrki yfir nætur.
Sem er reyndar merkilegt, því það bendi til skorts á - nætursjónaukum hjá Rússum.

Vandinn hafi verið sá, að skotvirkin á 1. línunni, hafi gert það ómögulegt að vinna að degi til, að auki hafi þau eyðilagt tæki nánast um leið, ef Úkraínumenn reyndu að nota tæki.
Mér virðist skiljanlegt því, að Tarnavsky hafi því leiðst til að beita fótgönguliði.

Varnir Rússa á svæðinu virðast enn töluvert öflugar vera, videóin að ofan sýna greinilega að notkun hertækja - er erfið. Þ.e. kannski af hverju, hershöfðinginn, kýs áfram að halda tækjum til hlés meðan fótgöngulið taki verkið.

Hinn bóginn, get ég ekki efað að - fótgönguliðs aðferðin sé nauðsynleg í gegnum haustrygningarnar, meðan landið allt er forarsvað.

  • Það verður að koma í ljós á nk. vikum, hvernig Úkraínuher - gengur í því verki að þvinga sér fram að -- Varnarlínu 3.

En ef Úkraínuher nær í gegnum 3ju línuna. Væri hann líklega kominn alveg í gegn.
Kannski tekur það -- 1. mánuð.

Kannski að þeim mánuði liðnum, er loksins hægt að senda - megin-vélaherdeildirnar fram.

 

Kv.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Birgir Loftsson

Góðan dag. Þannig að þú heldur að Úkranía vinni stríðið?

Birgir Loftsson, 24.9.2023 kl. 17:51

2 Smámynd: Lárus Ingi Guðmundsson

Ukrainu menn eru verileika firtir i alla stadi, enda er sagt ad kokain notkun skemmi folk. 

zelensky þekkir efnið. 

sonur Joe Bidens líka. 

Einn maður kom fram i fjolmiðlum um daginn sem að sýnir hvað fólk er grandvaralaust, en ekki heimskt heldur líka saklaust. 

Einn maður kom fram um daginn og talaði um það í fjölmiðlum, að Ukrainu menn væru svo góðiir að reyna að SAFNA ÖLLUM LIKUNUM SAMAN af Ukrainskum hermönnum. Hann sagði að Russar, i hans augum vonda fólkð gerðu það ekki, heldur létu líkin eiga sig. 

Staðreyndin að i Ukrainu er bullandi LÍFFÆRA SALA i gangi, þar sem að líffæri úr Ukrainsum hermönnum eru tekin og þau seld til VESTURLANDA, þar á meðal.  

það er áæstðan fyrir þvi að Ukrainumenn reyna að taka látna strax og hægt er, þvi að líffæra sala er orðin GROÐRA HÍT OG iðnaður i þessu stríði þarna i Ukrainu. 

kv

LIG

Lárus Ingi Guðmundsson, 24.9.2023 kl. 19:52

3 Smámynd: Einar Björn Bjarnason

Birgir Loftsson, það að Rússar hafa snúist í vörn, minni einnig á sýningu á Rauðatorginu svokallaður 'Sigurs-dagur' fyrir nokkrum mánuðum er einungis einn skriðdreki var í hersýningu T34 -- bendir til að Rússn. herinn hafi líklega eytt upp, stórum hluta birgða sinna. A.m.k. var afar sérkennilegt, að sýning haldin ár hvert, hafði ekki venjubundna sýningu á fullkomnari gerðum skriðdreka Rússa - heldur einungis flaggað, eldgömlum T34. Maður verður að spyrja sig - af hverju, einungis T34 þann dag á Rauða-torginu, og af hverju vörn? Þetta eru vísbendingar þess, að vopnabirgðir Rússa séu -- greinilega ekki þær sem, Rússa-sinnar hafa staðhæft. Frekar, að þetta bendi til þess, að skortur sé greinilega farinn að há þeim.
En það getur skýrt varnarstöðu, því Rússa skortir ekki fólk - tæknilega geta þeir sent mun flr. í herinn en Úkraínumenn geta, en á móti gagnast ekki að senda fólk á svæðið, nema Rússar hafi næg vopn fyrir það. Þarna grunar mig að sverfi að Rússum. Tómahljóð í vopnageymslum, líklega skýri -- af hverju vörn, af hverju tilraunir til að kaupa af Norður-Kóreu, og af hverju einungis T34.
--Munu Úkraínumenn vinna? Ekkert víst um það. Hinn bóginn er rússn. herinn akkúrat núna greinilega veikari aðilinn. Helsta von Rússa gæti verið sú, Kína fari að aðstoða þá. Það getur enn gerst. En án utanaðkomandi aðstoðar -- held ég að staðar þeirra sé erfið orðin.
Kv.

Einar Björn Bjarnason, 8.10.2023 kl. 21:27

Bæta við athugasemd

Nauðsynlegt er að skrá sig inn til að setja inn athugasemd.

Um bloggið

Einar Björn Bjarnason

Höfundur

Einar Björn Bjarnason
Einar Björn Bjarnason
Stjórnmála- og Evrópufræðingur. Áhugi á stjórnmálum, Evrópumálum, alþjóðamálum, málefnum Miðausturlanda, trúmálum, vísindum og tækni, og margt fleira.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Eldri færslur

2024

2023

2022

2021

2020

2019

2018

2017

2016

2015

2014

2013

2012

2011

2010

2009

2008

Nýjustu myndir

  • Mynd Trump Fylgi
  • Kína mynd 2
  • Kína mynd 1

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 85
  • Sl. viku: 439
  • Frá upphafi: 847086

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 416
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband