Bloggfærslur mánaðarins, júlí 2021

Um 70% Indverja hafa COVID mótefni -- önnur könnun áætlar allt að 4,9 milljón Indverja geti hafa látist af COVID á einu ári!

Nýjar rannsóknir sýna að tölur indverskra stjórnvalda um kófið eru víðsfjarri lagi.
Flestir er telja sig hafa vit á hlutum hafa talið það fullvíst.
Enda tölur indverskra stjórnvalda lengi virst afar grunsamlega lágar!

Two-thirds of Indians have Covid antibodies, government study shows: ...seroprevalence study was carried out by the Indian Council of Medical Research in the last 10 days of June and the first week of July -- Overall, more than two-thirds of Indians have antibodies, it concluded...

Líkbrennsla einhvers-staðar á Indlandi!

Mass cremations as India faces a tsunami of Covid-19 deaths

Það er alveg augljóst - einungis út frá útbreiðslu-tölum á mótefnum -- að miklu fleiri hafa látist en stjórnvöld segja.

India's excess deaths during pandemic up to 4.9 mln, study shows:

  1. India's official tally of more than 414,000 deaths is the world's third highest after the United States and Brazil...
  2. We focus on all-cause mortality, and estimate excess mortality relative to a pre-pandemic baseline, adjusting for seasonality,
  3. ...the report said, estimating between 3.4 million and 4.9 million excess deaths during the pandemic

How Did India's COVID-19 Crisis Become a Catastrophe? | Time

Hlekkur á skýrsluna sjálfa: Working Paper 589 July 2021Three New Estimates of India’s All-Cause Excess Mortality during the COVID-19 Pandemic.

Þeir segja látna e-h í kringum 10-falt það sem ríkisstjórnin heldur á lofti.

  • Íbúa-tala Indlands auðvitað nálgast 1,4 milljarða.
  1. Í þeim samanburði -- er þetta sjálfsagt í kringum 0,5% per íbúatölu.
  2. Það sem þetta segir okkur er auðvitað.

Að tölur yfir COVID heiminn vítt eru auðvitað miklu mun hærri, en opinberar tölur.
Að sennilega verður dánar-talan og tölur yfir sýkta, langsamlega hæstar.
--Í 3ja heims löndum, og svokölluðum - ný-iðnaðar-löndum.

Hvað sem menn segja um það -- þá er þetta klárlega langsamlega stærsta einstaka áfall á Indlandi mælst í dauðatölum sem yfir Indland hefur gengið í áratugi.

 

Niðurstaða

Líklega munu aldrei þau kurl koma til grafar hve margir látast af kófinu heiminn vítt - nýjar upplýsingar frá Índlandi líklega staðfesta þann ótta, byggður á rökstuddum grun. Að tölur yfir kófið séu í háu margfeldi miklu hærri heiminn vítt, en opinberar tölur sýna. Það auðvitað þíðir að látnir heiminn vítt eru miklu mun fleiri en opinberar tölur sýna.
Líklega er misræmið langsamlega verst í 3ja heims löndum, og ný-iðnvæðandi löndum, þ.s. skipulag sé mun lakara en í best settu löndunum, og opinberar tölur líklega afar lítt nothæfar sem viðmið.

 

Kv.


Trump er líklega á leið í forsetaframboð 2023! Augljós þrautskipulögð yfirtaka á Repúblikanaflokknum, finnst mér benda til þess! Liz Cheney og Adam Kinzinger baða sig í peningum á sama tíma!

Las áhugaverða greiningu á Politico vefnum um, skipulagða yfirtöku Trump-ara á Repúblikanaflokknum í héröðum -- formennsku-stöðum virðist oftast nær ekki hafa verið beitt sem valdatækjum.
Hinn bóginn virðast Trumparar ætla sér að nota -- formennsku-stöður í héröðum og fylkjum, sem tæki til valda!
--Eitt sem þeir virðast gera, vísvitandi blokkera áhugasama einstaklinga er hafa hug á framboði, ef þeir þykja ekki vera nægilega auðsveipir Trumparar.

Former U.S. President Donald Trump prepares to speak.

Get on the team or shut up: Virðist sem þeir geti, hafnað viðkomandi um þjónustu á vegum flokksins. Hafna venjubundnum stuðningi við einstaklinga! Ef sá telst ekki njóta trausts - Trumpara-armsins.

  1. In red states, blue states and swing states, these leaders — nearly all of whom were elected during Trump’s presidency or right after — are redefining the traditional role of the state party chair.
  2. They are emerging not just as guardians of the former president’s political legacy, but as chief enforcers of Trumpism within the GOP.

Landon Brown, a Republican state lawmaker from Wyoming: It is purity tests, 100 percent, - When it comes to the party, what I have started seeing, especially in the past four to five years … it is much more a hard-line, defined, -If you do not vote this way, you are not a Republican.-

Allen Weh, a former chair of the New Mexico Republican Party and a Trump ally: The party has been taken over by people who have been elected since he became the president who in effect said, -Get on the team or shut up,-

  1. The chairs have significant latitude in their states — from candidate recruitment, to deciding which candidates to invite to plum speaking engagements, to how to allocate money for voter registration and other programs.
  2. Several state Republican parties canceled their presidential nominating contests entirely in 2020, insulating Trump from long-shot challengers, including in South Carolina. There, the state’s former two-term governor, Mark Sanford, could not even get a hearing.

John Thomas, a Republican strategist:

  1. Party chairs, that is one of their main jobs to recruit candidates, so oftentimes party chairs will recruit them in their image or ideological worldview, -- So I think it is safe to say, like in Oklahoma, they are not going to be recruiting candidates that look like [Utah Sen.] Mitt Romney.
  2. Party chairs can decide where to invest in things like voter registration and all that. So, if they have a particular incumbent they do not like that does not line up with the Trump world view, they can penalize incumbents and potential challengers as well.

Ef maður hefur í huga allar þær formennsku-stöður sem Trumparar hafa yfirtekið!

Þá geta þeir formenn gert sérhverjum sem ekki er Trumpari - afar erfitt fyrir.
Þeir yrðu eiginlega að hafa afar digra vasa eða vera búnir að útvega sér stuðningsmannahóp utan flokks-maskínunnar. Það ætti að leiða til þess, að Trumparar eigi auðveldar uppdráttar í framboðum á vegum flokksins hvort sem er til fylkisþinga eða landþings Bandaríkjanna.

Þar fyrir utan, má væntanlega treysta því - að formennirnir á svæðum og fylkjum, geri sérhverjum þeim sem hafi áhuga á forseta-framboði; sem ekki er Donald Trump.
--Lífið afskaplega leitt!

  • Yfirtaka maskínunnar -- auðvitað auðveldar Trump sjálfum til muna.
    Þegar kemur að því að hann -- tilkynnir sitt eigið framboð.
    Þá fer allt það afl, þeir peningar, sá mannafli - er maskínurnar í héröðum og fylkjum ráða yfir; að vinna fyrir framboð Trumps.
  • Þ.e. allur þessi undirbúningur, þ.e. er virðist þrautskipulögð flokks-yfirtaka.
    Það hve augljóslega sú yfirtaka eflir möguleika Trumpara til framboðs.
    Meðan að, öllum anti-Trumpurum er gert erfiðar um vik.

Matt Moore, former chair of the South Carolina Republican Party:

  1. It is a huge advantage to have a network of support of state party chairs
  2. State party chairs have huge megaphones. They choose annual dinner speakers, who gets highlighted in such small things as weekly newsletters. They have a lot of power.

Drew McKissick, the current South Carolina GOP chair, who was endorsed for re-election this year by Trump not once or twice, but three times:

  1. Trump is certainly in a position, because of his experience and the new people and manpower that he brought into the party, to have an incredible number of people support him.
  2. He understands the importance of the actual party structure.

Sem mér virðist allt þetta afskaplega góð vísbending þess, að Trump ætli í framboð.

Pelosi's 'Playbook': Cheney, Kinzinger Help Nancy's Push to Divide GOP

More money, more problems: Cheney and Kinzinger feel Trump effect

Cheney, who lost her slot as House GOP conference chair in May, hauled in close to $1.9 million in the last quarter, bringing her to nearly $3.5 million total this year.

Kinzinger, who represents a deep-red district in exurban Chicago, never raised more than $350,000 in a single quarter during the 2020 cycle. But during the first three months of 2021 — after his support for the second Trump impeachment — he skyrocketed to $1.1 million.

Þetta bendi til þess að Cheney og Kinzinger hafi orðið nokkurs konar fókus fyrir þá sem telja sig Repúblikana - en ekki eru hrifnir af Trump-isma.
--En þetta sé greinilega þ.s. sérhver sá sem er anti-Trump innan Repúblikana-flokksins þarf að hafa; þ.e. nægt aðgengi að peningum.

Umfjöllunin hefur auðvitað vakið á þeim athygli.
Þó hún sé væntanlega afar neikvæð meðal margra Repúblikana.
--Þá er það frægt, að Trump sjálfur hefur oft notfært sér neikvæða umfjöllun.

Eins og einn frægur eitt sinn sagði: Það er bara til umfjöllun!
--Allt snýst um athyglina, að vera umfjallaður.

 

Niðurstaða

Enn sem fyrr þá er það mín tilfinning - að Trump með því að þvinga flokkinn inn á sína línu.

  1. Geri flokknum a.m.k. eins mikinn ógreiða.
  2. Og hann geri honum greiða.

Trump m.ö.o. samtímis laðar að -- og hrekur frá.

Veikleiki Trumps í samhenginu er sá, að hans afl byggir á hræðslu.
--Sú aðferð að beita ótta, er alltaf veikleiki einnig - þó hún einnig geti verið styrkur.

  • Það er alveg hugsanlegt: Liz Cheney og Adam Kinzinger haldi velli.

Ef þau fá næga peninga áfram - neikvæð athygli virki fyrir þau sem, athygli.
--Þannig að þau fái næga kynningu, hafi næga peninga til að standa í eigin framboði.

Þá er það alls ekki neitt útilokað að þau bæði nái framboði til þings.

Það er enginn vafi í mínum huga, mikið er um Repúblikana sem ekki eru Trumparar.
En þeir séu hljóðir, nú þegar hræðslan og ógnanir ráða ríkjum innan flokksins.
--Hættan fyrir Trump, er auðvitað ef einhverjum tekst að sína honum fingurinn - halda velli.

  • Þess vegna sé væntanlega nauðsynlegt fyrir hann, að tryggja að þau Cheney og Kinzinger - falli í framboði fyrir alla muni.
    --Gæti verið skárra fyrir hann, að Demókratar taki þeirra þingsæti.

Málið er, að ef mundi skapast - sterk andhreyfing jafnvel þó hún gæti ekki ógnað stöðu hans.
--Þá gæti slík and-hreyfing samt tryggt gersamlega, að Trump geti ekki mögulega náð kjöri 2023.

  • Ímyndum okkur er 10% skráðra Repúblikana-kjósenda, sitja heima.

Það þegar - munur upp á 3-4% í fylki skiptir máli, gæti verið meir en nóg til að tryggja tap.
--Trump mundi einhvern veginn þurfa að sameina flokkinn að baki sér.

Hinn bóginn, hvernig sérhver sem ekki er honum þægur -- er uppnefndur RINO (Republicans in Name Only) þá auðvitað skapa slíkar uppnefningar reiði og sárindi.
--Síðan er keyrt yfir fólk án miskunnar.

Þá er dálítið erfitt að sameina sætta er menn skapa sárindi reiði með þess lags aðferðum.

Flokkurinn er síðan gerður miklu miklu muna rótækari en hann hefur nokkru sinni verið.
Það getur einmitt leitt til þess, að flokkurinn fari það langt út fyrir -comfort zone- sumra hefðbundinna Repúblikana-kjósenda, að það leiði til heima-seta.
--Endurtek, það þarf líklega ekki meir en ca. 10% skráðra Repúblikana að sitja heim.

Til að gera sigur Trumps 2023 fullkominn ómögulegleika.
--Þetta er þ.s. meina með veikleika Trumps, þ.e. hann hrekur samtímis frá og hann laðar að.

  • Hann sannarlega laðar að -- en samtímis gæti hann einnig fælt nægilega marga frá.
  • Hann m.ö.o. gæti þrengt skírskotun flokksins svo mikið, að flokknum yrði nær ómögulegt að hafa sigur í landskjöri.

 

Kv.


Trump hefur málsókn gegn; FaceBook - Twitter - Google, segir fyrirtækin hafi brotið hans stjórnarskrárvörðu réttindi! Trump virðist aftur á móti fullkomlega misskilja 1st amendment, því líklegast vísa dómarar máli hans fljótlega frá!

Sá stjórnarskrárvarði réttur sem Trump vísar til er svokallað - First Amendment:

First Amendment: Congress shall make no law respecting an establishment of religion, or prohibiting the free exercise thereof; or abridging the freedom of speech, or of the press; or the right of the people peaceably to assemble, and to petition the Government for a redress of grievances.

Takið eftir að bann á ritstýringu -- beinist að US Congress.
M.ö.o. því er bannað að setja á ritstýringu.
Ég get ekki séð að 1st. Amendment - feli í sér bann við því að fjölmiðlar ritstýri sínu efni. Þar með efni einstaklinga til birtingar hjá sér.

  1. Réttur einstaklinga er sem sagt til tjáningar, að lesa þ.s. þeir vilja.
  2. Réttur fjölmiðla til að - birta þ.s. þeir vilja.

Takið eftir að -- réttur einstaklinga og réttur fjölmiðla er settur hlið við hlið.
--Stjórnarskráin ver sem sagt, samtímis -- rétt einstaklinga og fjölmiðla.

  • Hingað til verið litið svo á, að reglan að ofan þíði - að fjölmiðlar megi hafna birtingu á efni --> Að reglan á móti feli í sér bann við ritstýringu af hálfu ríkisins.
  • Þannig að ríkis-fjölmiðla hafi almenna birtingar-skildu.
  • En ekki einka-miðlar, m.ö.o. einka-miðlar eru gjarnan settir upp til að styðja sjónarmið - en einnig gegn sjónarmiðum, þarna vísa ég til pólitískrar fjölmiðlunar

Ég eiginlega reikna með því að máli Trumps: Verði vísað frá!

Trump filing class action suits against Twitter, Facebook and Google

Trump sues Facebook, YouTube and Twitter over ‘censorship’

Claiming censorship, Trump sues Facebook, Twitter and YouTube | The Seattle  Times

Það gæti verið áhugavert að íhuga þann heim, ef engir fjölmiðlar mættu ritstýra sínu efni til birtingar, þ.e. allir miðlar yrðu að birta allt!

Ætla að gamni að íhuga - ef svo afar ólíklega færi, Trump mundi vinna málið!

  1. Þá greinilega gilti það um alla miðla -- þeir yrðu að birta allt efni sem þeir fengu til birtingar óháð uppruna - óháð pólitík.
    --Sjálfsagt litist ýmsum vel á þá aðferð.
  2. En samtímis, hlyti það að gera það ómögulegt fyrir fjölmiðil.
    --Að reka tiltekna pólitíska ritstjórnarstefnu.

Eiginlega yrði það fullkomlega ómögulegt að stýra innihaldi að nokkru leiti.
--Þetta væri drauma-veröld marga er stofnuðu - internetið á sínum tíma.

Nema að nú gilti sú regla jafnt um alla miðla.
--Þetta yrði afar áhugavert kaos.

En það þíddi ekki einungis, að allt yrði að birta óháð pólitík.
Heldur allt yrði að birta - óháð gæðum!
--Bullið yrði jafngilt til birtingar öllu öðru.
--Eins og verið hefur á netinu.

  1. Það yrði afar erfitt að dreifa upplýsingum.
  2. Því jafn-harðan yrði andstæðum sjónarmiðum gert jafnhátt undir höfði.
    --Þau gætu mjög auðveldlega verið að draga fullkomlega í efa, þ.s. yfirvöld vildu koma á framfæri.

T.d. hvort fólk ætti að yfir-gefa hús sín, ef mengun fer yfir -- skilgreind hættumörk.
--Ég meina, það yrðu rökrétt engin mörk á því, hvað væri birt - hverju væri hægt að halda fram.
**Þannig að við hlið aðvörunar frá ríkisstjórn um að -- rýma hús vegna snjóflóðahættu.
**Gæti staðið hvatning frá - ónefndum er skilgreindi sig sérfræðing án þess að hægt væri að staðfesta að hann væri það -- að fólk ætti að halda kyrru fyrir og hundsa aðvaranir.
--------
M.ö.o. algert upplýsinga-kaos yrði.

Ríkið m.ö.o. gæti ekki lengur tryggt að -- mikilvægar upplýsingar fengu þá athygli sem nauðsynlegt væri.
--Það stæði t.d. ekki beint við hlið birtingar ríkisins, staðhæft að aðvörun ríkisins væri bull.

  • Líklega mundi fólk verða nánast fullkomlega ómögulegt að vita hverju það ætti að treysta.

 

Niðurstaða

Sannast sagna á ég von á að máli Trumps verði fljótt vísað frá - ekki tekið formlega fyrir.
Vegna þess að það gengur gegn öllum túlkunar-hefðum um ritfrelsi vs. birtingar-frelsi.
--Þar fyrir utan, að hvergi stendur í -1st Amendment- að einka-miðlar megi ekki ritstýra efni til birtingar, m.ö.o. ákveða hvað er birt og hvað ekki.

  1. Takið eftir að texti 1st. amendment hefst á orðunum -Congress shall make- m.ö.o. það bannar bandaríska þinginu - að lögsetja ritstýringu á efni einstaklinga og fjölmiðla.
  2. En þar með, bannar -1st. amendment ekki fjölmiðlum sjálfum- að ristýra efni einstaklinga.

Ég held að dómarar muni að sjálfsögðu taka strax eftir þessu atriði.
Og snarlega vísa máli Trumps frá!

 

Kv.


Ásakanir gegn, Allen Weisselberg, framkvæmdastjóra Trump-samsteypunnar um svindl - varða allt að 15 ára fangelsi! Stuðnings-menn Trumps hrópa, pólitískar ofsóknir - fullyrða málið snúist eiginlega ekki um neitt, eða enginn sé dæmdur fyrir svona lagað!

Við skulum skoða - akkúrat hverjar ásakanirnar eru: Indictment charges against Trump Organization and its CFO. Þó þetta sé birt á vef CNN, þá getur fólk leitað uppi sama skjal á öðrum fjölmiðli - ef það tortryggir CNN.
--Þetta er sem sagt, formlega ákæru-skjalið sjálft.
Hvet fólk til að lesa!

Donald Trump og Allen Weisselberg, sem er 73 ára!

Allen Weisselberg, Top Trump Organization Official, Was Granted Immunity  for Testimony - The New York Times

  1. Það sem ákærendur í New-York segja, að Trump-samsteypan hafi haft 2-falt bókhald.
    Ég á ekki við það - venjulega 2-falda bókhald sem fyrirtæki viðhafa.
    Heldur að, samsteypan hafi haft:
    --Opinbert bókhald, sem var sýnt skatt-yfirvöldum. Allt látið líta rétt út.
    --Leynilegt bókhald, er innihélt upplýsingar um margvísleg fríðindi.
    Sem haldið hafi verið leyndum fyrir skatt-yfirvöldum.
    **En sem starfs-mönnum ber að borga skatt fyrir.
    **M.ö.o. ásökunin er um, þraut-skipulagt skatt-svindl.
  2. Að sjálfsögðu er - stjórnarformaðurinn undir smásjánni, enda skrifar hann fyrir öllu.
    Hann er persónulega ásakaður fyrir - að hafa svikið: $1.7m.
    Sl. 15 ár í formi fríðinda, sem hann hefði átt að hafa greitt skatta fyrir persónulega í New-York.
  • Carey Dunne, a top assistant to Cyrus Vance, the Manhattan district attorney, told reporters:  This is not a standard practice, - This was a secret and audacious illegal payment scheme.
  • Daniel Hemel, a law professor at the University of Chicago, who specialises in tax issues, also saw heft in Vance’s case: The fact that the Trump Organization was maintaining two sets of separate books — that’s pretty close to a smoking gun,
  • Adam Kaufmann, another veteran of Vance’s office ow in private practice: It’s almost like a playbook on different ways to commit tax fraud,
  • Mark Zauderer, a defence lawyer: It is easy to lose sight of the fact that these are serious charges with significant penalties, and the supporting facts alleged in the indictment are easy for jurors to understand, -- And they are likely to generate resentment in the hearts of jurors who don’t benefit from the kind of tax schemes alleged by the district attorney and the grand jury.

Lögfræðingurinn sem FT ræðir við í restina, bendir á að - kviðdómendur - mundu líklega ekki hafa mikla samúð með framkvæmda-stjóranum -- ekki sjálfir vanir að hafa aðgengi að slíkum bitlingum. Að þeir ættu að geta skilið mæta vel hvað ákæran snýst um.
--M.ö.o. svik undan skatti.

  • Hámarks refsing fyrir að svíkja yfir 1,5 milljón Dollara undan skatti -  ásamt öðru því sem Weissman er ákærður fyrir, 15 ár í fangelsi.
  • Það þíðir ekki að 73 ára Allen Weissberg fái svo harða refsingu.

En þetta sé alvöru-mál.
Ef sannanir saksóknar í New-York borg, eru eins góðar og New-York borg segir.

  1. Rétt að benda á, að saksóknarinn í New-York hefur haft fullt aðgengi að skjölum Trumps samsteypunnar nú í yfir ár.
  2. Það mál fór alla leið fyrir Hæsta-rétt-Bandar. er dæmdi saksóknara í vil.

Ég eiginlega á mjög erfitt með að trúa því, að New-York saksókn fari fram með málið.
Ef New-York hefur ekki þær sannanir sem saksóknari þar telur sig hafa.

 

Ef maður gerir ráð fyrir að þetta sé allt satt og rétt?

Að sjálfsögðu ekki smá-mál, m.ö.o. e-h sem enginn sé kærður fyrir.
Þarna er þá til staðar - afar vísvitandi skatt-svik.
Og upphæðir hljóta að vera miklu hærri en sú 1,7 millj. Dollara sem framkvæmda-stjórinn einn er ákærður fyrir.

Spurning um Donald Trump, þ.e. vitað að hann hefur alltaf verið mjög mikið tengdur sínu megin einka-fyrirtæki -- erfitt eiginlega að trúa hann hafi ekki vitað nokkuð um málið.

Hinn bóginn, er hann hefur verið snjall -- þá er ekki nokkurt skjal, né undirskrift - sem sannanlega tengi hann við málið.

Það getur auðvitað verið hlutverk Weissberg, að vera - fall maðurinn fyrir Trump.
--Weissbert væntanlega er í öllu formlega ábyrgur, hans undirskrift alls staðar.
--Hann sem sagt samtímis að njóta svindlsins og einnig að skipuleggja það.

Sem stjórnarformaður eigi hann örugglega ekki þá leið að látast ekki vita neitt.

 

 

Niðurstaða

Eins og mátti við búast, er pólitíkin í kringum umfjöllun um málareksturinn -- eitruð. Önnur pressan hamast á því, að málið sé eiginlega ekki neitt - enginn sé ákærður fyrir svona lagað; tja eins og að svíkja stórfé undan skatti - sé eðlileg starfs-aðferð.
--Ef það væri rétt, væri spilling - venjuleg viðskipta-aðferð í Bandaríkjunum.

Hinn bóginn, þá ætla ég ekki að trúa því að svo spillt sé viðskipta-lífið í Bandar. að slíkt sé standart praxis að -- svindla undan skatti.
--Sannarlega beita fyrirtæki öllum tiltækum ráðum - hinn bóginn sé svo margt sem er löglegt.

Af hverju þá að vísvitandi svindla? Og taka áhættu á mörgum árum í fangelsi?
--Bandar. skatt-yfirvöld eru einmitt alræmd fyrir, að ef þau komast um snoðir um skatt-svindl, geta aflað sér nægilegra sannana -- þá bregðist þau afar hart við.

 

Kv.


OECD segir, 130 þjóðir hafa samþykkt nýjan sáttmála um skattlagningu alþjóðafyrirtækja! Fljótt á litið virðist 15% lágmarks-skattur stórt framfara-skref sbr. oft virðast þau greiða nær engan skatt!

Yfirlýsingu OECD má sjá hér: 130 countries and jurisdictions join bold new framework for international tax reform. Yfirlýsingu í fullri lengd: Statement on a Two-Pillar Solution to Address the Tax Challenges Arising From the Digitalisation of the Economy – 1 July 2021

Frétt: World’s leading economies agree global minimum corporate tax rate

Eftirfarandi lönd höfnuðu þátttöku í yfirlýsingu:

  1. Ireland
  2. Estonia
  3. Hungary
  4. Barbados
  5. Kenya
  6. Nigeria
  7. Sri Lanka
  8. St Vincent & the Grenadines

Af þeim eru 3-meðlima-lönd ESB.

15% lágmarks-skattur!

Er augljós framför, flestir ættu að þekkja - hvernig t.d. Apple inc. er þekkt fyrir að skatt-leggja í gegnum skatta-paradísir.
Fyrir nokkrum árum, komst upp að Írland - leyfði fyrirtækinu að komast upp með aðferð, er virtist hafa skilað á bilinu 1-2% raunverulegri skatt-heimtu.
--Sá skattur greiddur í írska lýðveldinu.

Fyrirtæki borga einnig skatta þ.s. þau stunda sölu á sinni þjónustu/vöru!

Fyrirtækin geta ekki lengur - hafnað kröfum um greiðslu skatts, vegna þess að þeirra starfsemi er ekki skráð í landinu.

These companies will have to allocate for taxation 20—30 per cent of their profits in excess of a 10 per cent margin to the countries where they operate based on their sales. 

Þannig að kröfunni - um að dreifa skatta-hagnaði af starfsemi þeirra, er mætt. Evrópuríki, skv. samkomulaginu -- fella niður tilraunir sínar til að, skattleggja hagnað bandar. risafyrirtækja með hætti, sem ekki rúmast innan þessa samkomulags.

Með þessu, hefur Joe Biden sett niður deilu er hefði getað orðið erfið milli Bandar. og ESB.
Þar fyrir utan eru öll stór hagkerfi með í för - get ekki ímyndað mér að slíkt hefði verið mögulegt að ná fram - - undir Donaldi Trump.

Joe Biden: With a global minimum tax in place, multinational corporations will no longer be able to pit countries against one another in a bid to push tax rates down and protect their profits at the xpense of public revenue.

A.m.k. hafandi í huga að þáttöku-ríki samanstanda af vel yfir 90% af heims-framleiðslunni.
Þá er erfitt að sjá annað en að fyrirtækin -- þurfi að borga!

Kevin Brady, the top Republican on the House of Representatives: .. a dangerous economic surrender that sends US jobs overseas ...

Segir Repúblikana-þingmaðurinn, eiginlega ætti þetta hafa - þver-öfug áhrif.
Að fyrirtæki hafa mun síður skattalegar ástæður til að.
--Skrá sig annars staðar en í Bandaríkjunum, sama gildi um að starfa þar innan.

Hinn bóginn, væntanlega vísbending þess - þingmenn Repúblikana muni þvælast fyrir.

Stefnt að því samkomulag taki gildi 2023!
Biden þarf þá að fá Bandar.þing til að staðfesta það!
--Ekkert augljóslega ómögulegt við það, því málið er klárlega líklegt til vinsælda!

 

Niðurstaða

Ég get ekki ímyndað mér að Trump hefði náð þessu fram - en nú 6 mánuðum eftir valda-töku hefur Joe Biden náð þessu afar víðtæka samkomulagi - um skattlagningu alþjóða risa-fyrirtækja. Með því ætti vera tryggt að deilur um þeirra starfsemi, er kemur að skatta-lagningar þættinum, eru settar niður. 
Þar fyrir utan, minnka með þessu mjög mikið möguleikar svokallaðra skatta-paradísa.
Til að soga til sín, hagnað risa-fyrirtækja.

Tek fram, að þetta snertir í engu á skatta-paradísar-meðferð einstaklinga.
Samt sem áður, hlýtur þetta teljast stórt skref í því -- að draga úr skatta-flótta.

Almennt séð -- risastórt framfaraskref.

 

Kv.


Um bloggið

Einar Björn Bjarnason

Höfundur

Einar Björn Bjarnason
Einar Björn Bjarnason
Stjórnmála- og Evrópufræðingur. Áhugi á stjórnmálum, Evrópumálum, alþjóðamálum, málefnum Miðausturlanda, trúmálum, vísindum og tækni, og margt fleira.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Eldri færslur

2024

2023

2022

2021

2020

2019

2018

2017

2016

2015

2014

2013

2012

2011

2010

2009

2008

Nýjustu myndir

  • Mynd Trump Fylgi
  • Kína mynd 2
  • Kína mynd 1

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 268
  • Sl. viku: 354
  • Frá upphafi: 846995

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 336
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband