Bloggfærslur mánaðarins, júní 2023

Er ríkisstjórn Pútíns að falla í dag sunnudag? Fregnir herma að Vagner liðar séu innan við 500km. fjarlægð frá Moskvu borg!

Í morgun urðu fréttamenn Reuters þess vitni, að rússneskar þyrlur skutu á Vagner liða, nærri rússnesku borginni Voronesh.

Voronesh, er einungis liðlega 500km. frá Moskvu -- nýjustu fregnir benda til þess, að farið sé að víggyrða M4 veginn, í grennd við Moskvu borg.

Russian soldiers have set up a machine gun position on the southwest edge of Moscow, according to photographs published by the Vedomosti newspaper.

Photographs also showed armed police gathering at the point where the M4 highway – which mutinous Wagner mercenaries are moving along – reaches the Russian capital.

Nýjustu fregnir benda til þess að Vagner liðar sú nú - ca. 400km. frá Moskvu.

Lipetsk governor Igor Artamonov: I urge residents not to leave their homes and refuse to travel by any means of transport.

Þetta virðist staðfesting þess, að Vagner liðar séu í - Lipetsk héraði.
Ca. 400km. frá Moskvu.

Political Map of the European part of Russia

Átök Yevgeny Prigozhin og Vladimir Vladimirovich Putin skekja nú Rússland!

Comp Photo.Yevgeny Prigozhin and Putin

Þessir tveir menn berjast nú um völdin yfir Rússlandi!

  1. Skv. fregnum, féll Rostov An Don í SA-Rússlandi þegar í gærkveldi til Vagner liða -- sú borg er auðvitað, ca. 1.100km. frá Moskvu.
  2. Blaðamaður Reuters, varð vitni þess að rússneskar herþyrlur skutu á Vagner her, í grennd við borgina, Voronesh. Á laugardags morgun.
  3. Nú berast fregnir um það, að hafin sé uppsetning víggirðinga - við M4 veginn til Moskvu, en Vagner liðar - fregnir benda til - nálgast nú borgina eftir þeim vegi.

Miðað við þetta, ef hægir ekki á sókn Vagner liða, gæti Vagner herinn náð að borgarahliðum Mosvku, áður en Sunnudagur er úti.

  • Hafið í huga, að á einum degi tekur vagner herinn, Rostov An Don - virðist nú á laugardag ekki einungis hafa, Voronesh.
  • Vagner herinn, virðist einfaldlega storma áfram - beint til Mosvku.
  • Það þíði, að Vagner herinn ekur einfaldlega pent eftir rússn. vegum, að virðist mestu án nokkurrar minnstu mótspyrnu -- fyrir utan, stöku loftárás.

Þetta er hvað er möguleiki  Prigozhin til sigurs!

  1. Af kænsku, var  Prigozhin búinn fyrir 7 vikum að -- hverfa frá Úkraínustríðinu, búinn að draga Vagner herinn til búða, innan Rússlands.
  2. Það virðist ljóst, að Vagner herinn - fór á laugardag þaðan, og hóf síðan sókn sína í átt að Mosvku.

Mistök Pútíns auðvitað eru fjölmörg, en ekki síst þau að hafa fært nær allan rússn. herinn til Úkraínu -- er líklega útskýrir algeran skort á mótspyrnu, Vagner herinn nú mætir innan Rússlands.

Auðvitað getur blandast við, að Prigozhin hafi nú verulega samúð aðila innan rússn. herja, að jafnvel hafi hann samið á laun við - aðila, að skipta sér ekki af.

Sergey Surovikin í gærkveldi gaf út tilfinningaríka yfirlýsingu!

I’m addressing the leadership, commanders and fighters of Wagner. Together with you, we have traveled a difficult and hard path. We fought together, took risks, suffered losses and we won together.

We are of the same blood. We are warriors. I urge you to stop, the enemy is only waiting for the internal political situation to worsen in our country,

You can’t play into the hands of the enemy in this difficult time for the country.

While it is not too late, please obey the will and the orders of the Russian Federation’s president that was elected by the masses,

Stop the columns, bring them back to the points of permanent dislocation and communication areas.

Solve all the problems peacefully under the leadership of the Commander in Chief of Russian Federation.

 

Yfirlýsing Surovikin - staðfesting þess, að raunverulegt stríð væri hafið í Rússlandi.
Það stórmerkilega er það, að Vagner herinn mæti að virðist, nánast engri mótspyrnu.
Það fer enginn her - meira en 500km. á einum degi, án þess að mótspyrna sé ca. engin.

 

Niðurstaða
Það ótrúlega virðist blasa við að Pútín stjórnin er að hrynja. Þ.e. ekki síst, alger skortur á viðspyrnu gegn Vagner hernum, sem bendi til yfirvofandi falls Mosvku stjórnarinnar. Fregnir um, víggirðingar nærri Mosvku borg - gefa ekki vísbendingu um, alvarlegar varnir.

Skv. þessu, gæti Vagner her einfaldlega tekið Mosvku borg.
Áður en dagurinn er úti.

Að sjálfsögðu vekur það spurningar um stríðið í Úkraínu.
Snöggt hrun - valdstjórnarinnar í Mosvku.

En líklega tekur það Prigozhin - vikur að ná fulli einingu innan Rússlands um nýja valdstjórn undir hans stjórn.
Á meðan, gæti töluvert kaos ríkt í Rússlandi.

Auðvitað getur slíkt ástand haft áhrif á stríðið í Úkraínu, með hætti er gagnast stjórnvöldum Úkraínu - þá daga og vikur sem það tekur, nýja valdstjórn í Kreml, að ná fullum tökum á Rússlandi.

Nk. dagar og vikur geta því reynst örlagaríkir.
------------

Ef marka má nýjustu fregnir, hefur Prighozhin - hætt við árás á Moskvu, einungis 200km. frá Moskvu: 

We set off on June 23 on our march for justice. In 24 hours we moved 200km to Moscow. During that time we didn’t spill a single drop of blood of our fighters. Right now the moment has come when blood could be spilled. Therefore, understanding all the responsibility for the fact that Russian blood will be spilled n one side, we are turning our convoy around and going back to our basecamps, according to the plan.

Það virðist að, Rússneskur varnarher hafi náð að koma sér fyrir - við brú, þ.s. Vagner herinn hefði þurft að fara yfir, til að ná til nágrennis Moskvu. Þannig, að bardagi blasti við - varnarherinn hefði örugglega sprengt brúna. Þannig, Vagner herinn, hefði væntanlega þurft að - hafa bráðabirgðabrú meðferðis. En, punkturinn er, hefði þurft að brjótast yfir ána, undir skothríð. Verulegt mannfall augljós afleiðing.

Kannski var hann ekki viss að hafa sigur í þeim bardaga. Hver veit.


Kv.


Um bloggið

Einar Björn Bjarnason

Höfundur

Einar Björn Bjarnason
Einar Björn Bjarnason
Stjórnmála- og Evrópufræðingur. Áhugi á stjórnmálum, Evrópumálum, alþjóðamálum, málefnum Miðausturlanda, trúmálum, vísindum og tækni, og margt fleira.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Eldri færslur

2024

2023

2022

2021

2020

2019

2018

2017

2016

2015

2014

2013

2012

2011

2010

2009

2008

Nýjustu myndir

  • Mynd Trump Fylgi
  • Kína mynd 2
  • Kína mynd 1

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 9
  • Sl. sólarhring: 68
  • Sl. viku: 444
  • Frá upphafi: 847091

Annað

  • Innlit í dag: 9
  • Innlit sl. viku: 421
  • Gestir í dag: 9
  • IP-tölur í dag: 8

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband