Bloggfærslur mánaðarins, desember 2017
15.12.2017 | 00:49
Sendiherra Bandaríkjanna hjá SÞ - kallaði eftir samræmdum aðgerðum þjóða heims að bregðast gegn hnattrænni vá, Íran
Það hefur verið ljóst síðan Trump í samsæti með samtökum gyðinga rétt fyrir forsetakosningar í Bandaríkjunum haustið 2016 og sagði Íran helsta útbreiðsluaðila hryðjuverka í heiminum -- að Donald Trump tæki algerlega hlið Saudi Arabíu, Persaflóa Araba og Ísraels í deilum þeirra landa við Íran.
--Þar með að hann kysi að standa með Súnní Arabaríkjum gegn Shítum í trúarstríði sem hefur vaxandi mæli skekið Mið-Austurlönd.
--Megin fókus þeirra átaka hefir verið átök Írans og Saudi Arabíu - og proxy átök bandamanna Írans ásamt Íran - við bandamenn Saudi Araba og Saudi Arabíu.
--Kalt stríð sem samtímis er trúarstríð.
In first, U.S. presents its evidence of Iran weaponry from Yemen
Missile debris 'proof' of Iran's UN violations
Nikki Haley sendiherra Bandaríkjanna hjá Sameinuðu Þjóðunum
Haley var með fréttamannafund í flugskýli bandaríska flughersins rétt utan við Washington DC
Þar hvatti hún þjóðir heims til sameiginlegs átaks gegn Íran. Að baki henni mátti sjá málmhluti sem hún sagði leyfar margvíslegra íranskra vopna. Sem Íran hefði dreift m.a. til Húthí hreyfingarinnar í Yemen. En nýverið hafa Saudi-Arabar tvisvar skotið niður flugskeyti sem stjórnvöld í Riyadh hafa sagt hafa verið sköffuð Húthí hreyfingunni af Íran.
Íran hefur alltaf hafnað slíkum ásökunum!
- "Under a U.N. resolution that enshrines the Iran nuclear deal with world powers, Tehran is prohibited from supplying, selling or transferring weapons outside the country unless approved by the U.N. Security Council."
- "A separate U.N. resolution on Yemen bans the supply of weapons to Houthi leaders."
Haley er að vinna því fylgis innan Sameinuðu Þjóðanna - að samþykktar verði nýjar alþjóðlegar refsiaðgerðir gagnvart Íran.
Ég er viss að hún verður daufheyrð - en Rússland mundi án nokkurs vafa beita neitunarvaldi gegn ályktun af slíku tagi. Kína mundi sennilega einnig það gera!
Ég efa fremur en hitt að Evrópulönd - fyrir utan hugsanlega Frakkland undir Macron og Bretland undir May - taki undir slíka kröfu. Enda Saudí-Arabía ekki endilega vinsæl í Evrópu. Og ríkisstjórn Trumps er það ekki heldur.
Fyrir utan það, að í 3-ár hefur Saudi-Arabía háð mjög blóðugt stríð í Yemen þar sem gríðarlegt tjón hefur verið unnið með loftárásum á menningarverðmætum þar á meðal verðmætum á lista SÞ-yfir alþjóðlega mikilvæg fyrir mannkyn allt, söguleg menningarverðmæti.
Fyrir utan að manntjón almennra borgara í þeim loftárásum hefur verið mikið.
- Hafandi í huga að ekkert manntjón hefur enn orðið í Saudi-Arabíu af völdum þeirra flugskeyta - þá er samúð mín með kröfu Nikki Haley ekki gríðarleg.
- Auk þessa sé ég ekkert gott líklegt hafast upp úr því, ef Evrópa mundi eins og ríkisstjórn Trumps greinilega er að gera.
- Taka hlutdræga afstöðu með öðrum deiluaðilanum - í trúarstríði innan Mið-Austurlanda.
Hættan á hryðjuverkum í Evrópu er næg fyrir - svo menn fari ekki að tryggja óvináttu Shíta gagnvart Evrópu af óþörfu. Ég er ekki að tala um - að styðja frekar Íran.
Heldur hlutleysi - að halda sér frá öllum beinum afskiptum af trúarátökum milli Múslima á svæðinu. Nema hugsanlega að bjóða - milligöngu ef möguleiki til þess gæti skapast.
- Síðan auðvitað er enn til staðar töluvert vantraust gagnvart slíkum sönnunarfærslum af hendi Bandaríkjamanna - í minningu fullyrðinga Bush stjórnarinnar á sínum tíma, ófrægir fréttamannafundir Powells koma upp í minningunni.
Ég er ekki að segja að þetta sé allt örugglega lýgi.
Það geti vel verið að Íran sé að senda vopn til Hútha - ekki endilega ótrúlegt.
En ég get ekki séð það sem verri glæp - en stríðsglæpi Sauda og bandamanna Sauda í Yemen.
--M.ö.o. sé ég ekki meintar eða raunverulegar vopnasendingar Írana sem næga ástæðu til að taka undir kröfu Haley, alls ekki.
Niðurstaða
Trump hefur endurvakið stöðu Írans sem óvinar númer 1 - í samhengi Mið-austurlanda, sem viðhöfð var í forsetatíð George Bush. Ekki virðast miklar líkur á beinni hernaðarárás gegn Íran. En mjög greinilegt er þó hvernig Trump tekur algerlega án sjánalegs fyrirvara undir málstað Saudi Araba og Ísraels gegn Íran. Að ríkisstjórn Trumps virðist miklu mun líklegri til að kynda undir - trúarstríðinu innan Mið-Austurlanda, en að gera tilraun til þess að settla málin; sem virtist vera langtíma stefna sem Obama vildi stefna að.
Þetta gerir auðvitað að engu þann möguleika er virtist til staðar um hríð í forsetatíð Obama - að Vesturlönd og Íran, gætu sæst.
En eina leiðin til að binda endi á átökin er skekja Mið-Austurlönd, er stór sátt milli megin fylkinganna.
--Að taka gagnrýnislaust upp málstað annarrar fylkingarinnar gegn hinni, hefur þveröfug áhrif að kynda undir þeim átökum.
Trump er greinilega ekki sá friðarins maður sem sumir stuðningsmenn hans sögðu hann vera!
Kv.
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 21:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
13.12.2017 | 23:03
Skattalækkanir Trump stjórnarinnar líklega munu auka verulega viðskiptahalla Bandaríkjanna - gæti aukið líkur þess að Trump skelli á einhliða verndartollum
Málið er að "Trump team" er svo arfa vitlaust í hagfræði að Hollywood handritahöfunda mundi líklega skorta ímyndunarafl til að skálda upp þá vitleysu - sem er hagstjórnarsýn "Trump team."
En skv. nýjustu fréttum bendir flest til þess að Repúblikönum muni takast ætlunarverk sitt að innleiða verulegar skattalækkanir fyrir árslok - þar á meðal bendi flest til að skattur á fyrirtæki verði settur í 21% í stað 35%: Congress secures tax deal, Trump backs 21-percent corporate rate.
Í fréttum alþjóðafjölmiðla er einnig frétt þess efnis að "US Federal Reserve" eða seðlabanki Bandaríkjanna - fyrirhugi þrjár vaxtahækkanir á nk. ári: Fed flags three more rate rises in 2018.
Til viðbótar er rétt að nefna að núverandi hagvaxtarskeið í Bandaríkjunum - hófst 2015, þó hagvöxtur það ár hafi verið mjög hægur - hafi það verið fyrsta árið eftir kreppuna sem hófst lokaár Bush stjórnarinnar þ.s. hagvöxtur mældist alla mánuði ársins.
Lokaár Obama við völd eða 2016 fór þessi hagvöxtur að kippa við sér, sú hagsveifla hefur síðan haldið áfram - eftir að Trump tók við. En loforð um skattalækkanir hafa aukið bjartsýni atvinnulífsins, þó að eðlilega hafi loforð ein og sér lítil áhrif umfram það.
Jafnhliða hefur dregið úr atvinnuleysi og er það nú orðið -- mjög lágt, miðað við það sem Bandaríkin eiga almennt að venjast: United States Unemployment Rate | 1948-2017 | Data | Chart.
"The US unemployment rate held at 4.1 percent in November of 2017, the same as in October and in line with market expectations. It is the lowest jobless rate since February of 2001."
- Höfum í huga að atvinnuleysi var þegar komið í 6% 2016 - hefur síðan haldið áfram að lækka. Þetta er lítið atvinnuleysi miðað við - mjög stórt iðnríki.
- "US FED" mun því rökrétt óttast yfirhitun hagkerfisins - á nk. ári af völdum skattalækkananna.
--Það má því reikna með því að vaxtahækkanir "US FED" geti orðið hressilegar.
--Sem rökrétt orsakar þá samsvarandi gengisris dollarsins gagnvart öðrum gjaldmiðlum.
--Sem þíðir að sjálfsögðu, bættan kaupmátt dollars gagnvart innfluttum varningi.
Þar með, veruleg aukning viðskiptahalla fullkomlega óhjákvæmileg!
Þetta gæti samt aukið tímabundið hagvöxt, því vaxandi kaupmáttur og innflutningur þíddi líklega -- veruleg neysluaukning innan Bandaríkjanna.
Stærsti einstaki þáttur bandaríska hagkerfisins -- er neysla.
--En nýr "ofurdollar" mundi að sjálfsögðu draga enn frekar mátt úr bandarískum útflutningsfyrirtækjum.
--Þannig vega harkalega að grunn stefnu Donalds Trumps -- sbr. loforð hans um verksmiðjurnar heim.
Hann stendur í margvíslegum deilum við önnur ríki, akkúrat í tilraun að draga úr viðskiptahalla.
Á sama tíma er stefna Donalds Trumps að draga úr viðskiptahalla!
Líkur þess að Donald Trump og "Trump team" átti sig alls ekki á ofangreindu samhengi - að skattalækkanir sem líklega leiða til þess að fólk heldur eftir meira af eigin peningum -- mun líklegast leiða til verulegrar aukningar viðskiptahalla; virðast mér yfirgnæfandi.
- Viðbrögð Trumps og samningateymis Trumps um viðskiptamál - hafa fram að þessu öll verið á þeim tón; að kenna viðskiptalöndum Bandaríkjanna um viðskiptahallann.
- Það virðist því sennilegt að í þeirra hugarheimi - muni þeir líta á gengislækkun annarra gjaldmiðla gagnvart Dollar; af völdum vaxtahækkana "US FED."
- Sem sönnun þess, að erlend viðskiptalönd -- séu með "currency manipulation" í gangi, sér í hag. En það virðist alltaf viðkvæði "Trump team" að kenna öðrum löndum um sérhverja þá þróun - sem þeim líst illa á.
- Það mun líklega engin áhrif hafa á þá, þó þeim verði bent á hið rétta orsakasamhengi - enda virðist skilningur "Trump team" á efnahagsmálum - hafa sáralítil veruleikatengsl almennt, þeir vera staddir í eigin hugarheimi.
Líklegt virðist að "Trump team" verði sífellt reiðara eftir því sem 2018 vindur fram, er vaxtahækkun eftir vaxtahækkun - hækkar dollarinn stöðugt meira gagnvart öðrum gjaldmiðlum.
Trump team, muni líklega telja sér trú um - að það þurfi að bregðast við þessari "currency manipulation" viðskiptaþjóða Bandaríkjanna; með því sem "Trump team" líklega mundi álíta - réttmætar varnaraðgerðir.
Ég er að tala um - viðskiptastríð!
Rétt að nefna að viðræður milli samningamanna Trump stjórnarinnar, og Kanada og Mexíkó - hafa staðið mánuðum saman; verið ákaflega eriðar.
Enda "Trump team" með uppi öldungis fáránlegar hugmyndir!
- Fyrirtæki hafa t.d. bent á að krafan um 51% "US content" þ.e. íhlutir yrðu meirihluta vera framleiddir í Bandríkjunum -- mundi leiða til þess að mörg fyrirtæki mundu kaupa íhluti frá löndum utan við NAFTA.
- Slíkt tel ég trúverðuga hótun, vegna þess mikla eftirlitskostnaðar sem hugmynd "Trump team" mundi fela í sér - en væntanlega treysta þeir ekki fyrirtækjunum að framfylgja þessu án reglulegs eftirlits -- en fyrirtækin mundu sleppa við þann kostnað, ef verksmiðjur í þeirra eigu t.d. í Kína mundu fá íhlutaframleiðslu til sín.
- Hugmynd um endurskoðun NAFTA á 5-ára fresti, er sprenghlægileg. En skv. kröfu "Trump team" mundi NAFTA leggjast af - nema þjóðirnar samþykktu á 5 ára fresti.
- En slíkt mundi skapa slíka óvissu, að ekkert fyrirtæki mundi þá fjárfesta hvorki innan Bandaríkjanna né í Kanada eða Mexíkó - á grunni NAFTA.
Eðlilega var þeirri hugmynd einfaldlega hafnað. Síðast er ég vissi hafði "Trump team" þá ekki gefið hana upp.
Ríkisstjórn Trumps virðist þegar svo "hostile" gagnvart gildandi viðskiptasamningum.
En "Trump team" kennir viðskiptasamningunum um - viðskiptahallann.
--Þó sannleikurinn sé í reynd sá að viðskiptahallinn sé raunverulega fyrst og fremst, neysla.
--Almenningur velji ávalt ódýrari varninginn - því hærri sem hagvöxtur er innan Bandaríkjanna, því hærri eru seðlabankavextir í Bandaríkjunum.
--Þá verður ódýri varningurinn alltaf sá innflutti.
Með öðrum orðum, bandarískur viðskiptahalli hefur nær eingöngu orsakasamhengi innan Bandaríkjanna sjálfra.
Með því að kenna um slæmum útlendingum sé "Trump team" að hengja bakara fyrir smið.
Niðurstaða
Mín skoðun á ríkisstjórn Bandaríkjanna er sú - að sú ríkisstjórn sé sennilega sú allra heimskasta sem við völd hefur verið innan Bandaríkjanna; síðan ríkisstjórn Hoovers forseta 1929-1933 var við völd.
Rétt að ryfja upp að Hoover setti einmitt á verndartolla sem meirihluti hagfræðinga eftir Síðari Heimsstyrrjöld hefur kennt um - hversu slæm heimskreppan á 4. áratugnum varð.
En rökrétt mundi sambærileg ný verndarstefna Bandaríkjanna, einnig hafa bælandi áhrif á hagvöxt í heiminum - og auðvitað samtímis innan Bandaríkjanna.
En einmitt vegna þess, að hagvöxtur í Bandaríkjunum sé stærstum hluta neysludrifinn - þá gæti verndartollastefna snúið hagvexti við í samdrátt á skömmum tíma -- en þá mundu verð á innfluttu hækka í takt við þá tolla.
En vandinn er sá að önnur lönd mundu setja tolla á móti á Bandaríkin -- þannig mundi neysla og útflutningur dragast saman samtímis; alveg eins og gerðist í kjölfar ófrægrar lagasetningar í tíð Hoovers, sbr. SmootHawley Tariff.
Kv.
Utanríkismál/alþjóðamál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
13.12.2017 | 00:05
Trump leggur mikið undir í stuðning við Roy Moore - er sætir harkalegum ásökunum fyrir kynferðisáreiti, en kosið er um sæti Öldungadeildarþingmanns í Alabama
Roy Moore virðist eins og sniðinn fyrir Donald Trump - en eins og Trump sætir Moore nú ásökunum hóps kvenna, það sama gildir um ásakanir þess hóps kvenna á Moore og um sumt svipaðar ásakanir annarra kvenna á Trump; að meintir atburðir fóru fram fyrir mörgum árum.
--Moore hefur brugðist svipað við og Trump við keimlíkum ásökunum gegn sér persónulega, að þverneita og kalla lygar!
Fyrir utan þetta er Moore óskaplega íhaldssamur - eiginlega afturhald.
Þar um passar hann væntanlega einnig við Trump.
- Trump vill banna Transfólki að starfa við bandaríska heraflann.
- Moore vill banna hjónabönd samkynhneigðra - er eiginlega andvígur samkynhneigð, vill einnig banna hana.
Fyrir utan þetta er Moore þekktur fyrir að tvisvar hafa verið dæmdur frá embætti sem saksóknari í Alabama af Hæstarétti Bandaríkjanna -- fyrir að neita að framfylgja réttindum samkynhneigðra skv. lögum.
Alabama voters choose senator in race with high stakes for Trump
Prayer, principle guide women voters in Roy Moore's Alabama hometown
Roy Moore race tests Trump appeal as Alabama prepares to vote
Trump hefur undanfarna daga ítrekað Twítað stuðningsyfirlýsingar við Moore - auk gagnrýni á mótframbjóðanda Moore:
Trump: "Roy Moore will always vote with us. VOTE ROY MOORE!"
Um mótframbjóðandann - sagði Trump:
"Doug Jones is Pro-Abortion, weak on Crime, Military and Illegal Immigration, Bad for Gun Owners and Veterans and against the WALL," - og síðan - "VOTE ROY MOORE!"
Doug Jones er þekktastur fyrir að hafa átt þátt í því að saksækja tvo fyrrum meðlimi Ku-Klux-Klan fyrir sprengjutilræði í kirkju í Birmingham 1963 er varð fjórum svörtum stúlkum að bana.
Það langt sé þó um liðið að líklega sé það mál ekki ferskt í augum kjósenda.
Á meðan er Moore vægt sagt umdeildur innan Repúblikanaflokksins, sbr:
"Richard Shelby, a popular Republican who holds the other Alabama Senate seat, has said he would not vote for Mr Moore and urged backers in the state to write in another prominent Republican rather than vote for either partys nominee."
Bannon fann sig knúinn til að tjá sig vegna fjölda þekktra Repúblikana er hafa opinberlega lýst yfir andstöðu við Moore:
Bannon - "Theres a special place in hell for Republicans who should know better,"
Út af klofningnum gegn Moore -- virðist skv. könnunum Doug Jones eiga raunverulega möguleika á sigri.
"A Fox News Poll conducted on Thursday and released on Monday showed Jones potentially taking 50 percent of the vote and Moore 40 percent."
Sú könnun getur vart talist hlutdræg gegn Moore.
Niðurstaða
Mín persónulega afstaða er á tæru - að það sé mér gersamlega hulin ráðgáta að nokkur maður kjósi á 21. öld mann - sem vill banna aftur hjónabönd samkynhneigðra og vill helst ganga enn lengra, banna samkynhneigð einnig með öllu.
--Það sé ofstæki Moore sem kljúfi Repúblikanaflokkinn að þessu sinni.
--Mannréttindasinnaður lögfræðingur virðist mun skárri kostur vægt sagt.
- En það segir óneitanlega sögu um Trump - hvaða fólk hann styður.
- Verk segja meira en orð.
---------------------
Ps: Democrat wins Senate seat in Alabama in blow to Trump - Skv. nýjustu fréttum fór Doug Jones með sigur og meirihluti Repúblikana í Öldungadeild er þar með minnkaður niður í - tvo. Þetta sýnir ef til vill að það séu einhver takmörk á því hvað kjósendur í Suðurríkjum Bandaríkjanna eru til í að kjósa yfir sig.
Kv.
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 08:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
11.12.2017 | 23:39
Stefnir í Trump verði að sætta sig við transfólk innan hersins
Í júlí á þessu ári sendi Donald Trump frá sér tilskipun þar sem svokölluðu - transfólki, var bannað að starfa innan hersins. En bann tilskipunin gekk það langt, að ekki átti að vera nóg að banna transfólki að vera hermenn - þeir áttu ekki fá að gegna nokkru starfi á vegum hersins.
Sjá umfjöllun mína: Donald Trump forseti Bandaríkjanna - bannar transfólk í bandaríska hernum.
Tilvitnun - Donald Trump: "After consultation with my Generals and military experts, please be advised that the United States Government will not accept or allow transgender individuals to serve in any capacity in the U.S. Military," - "Our military must be focused on decisive and overwhelming victory and cannot be burdened with the tremendous medical costs and disruption that transgender in the military would entail,"
Þetta er auðvitað alger þvættingur -- tilskipunin mætti tafarlaust víðtækri andstöðu innan hersins - og það voru hermenn sem komu fram til að óska eftir lögbanni.
U.S. military must accept transgender recruits by Jan. 1, judge rules
Justice Department reviewing options after ruling on transgender recruits: White House
Innan bandaríska heraflans hefur lítill fjöldi hermanna síðan Obama heimilaði formlega transfólk í hernum 2016 - starfað fyrir opnum tjöldum!
Mótbáran að það sé sérstaklega erfitt - kostnaðarsamt, að hafa slíka hermenn.
Að það skapi vandamál tengd móral innan hersins.
Eru sömu mótbárur og heyrðust á sínum tíma, þegar rætt var að heimila konum að vera hermenn.
--Þetta er mjög einfalt, þ.e. ekki stærra vandamál.
--Meint vandamál í tengslum við móral reyndust ekki vera fyrir hendi.
--Og kostnaður að sjálfsögðu langt í frá vandamál, enda bæði kyn þá lengi búin að starfa innan hersins.
Að sjálfsögðu að nokkur fjöldi hermanna koma fram 2016 - sýni að nokkur fjöldi transfólks hefur starfað árum saman innan hersins, án vandamála sem nokkur hafi veitt athygli.
- Eins og kemur fram í frétt, gaf Obama út 2016 tilskipun um formlega innskráninu nýrra yfirlýstra transhermanna -- James Mattis hafði frestað dagsetningunni til jan. 2018.
- Skv. úrskurði Colleen Kollar-Kotelly alríkisdómara í Washington, skal herinn standa við jan. 2018, m.ö.o. fylgja fyrirframgerðri áætlun um að veita móttöku transfólki sem yfirlýstir trans einstaklingar hefðu áhuga á herþjónustu.
Colleen hafnaði því að bann tilskipun Trumps fengi að standa meðan verið væri að fjalla um hana á æðra stigi innan bandaríska dómskerfisins.
Annars vegar skv. þeim rökum að herinn hefði haft nægan tíma til undirbúnings.
Og hins vegar að líklegt væri að bann við transfólki teldist mismunun skv. bandarískum lögum og stjórnarskrá - því væntanlega brot á hvoru tveggja.
Skv. Sarah Sanders er ríkisstjórn Trumps alls ekki á þeim buxunum að gefast upp í baráttu sinni fyrir því að - fá bann við transfólki innan hersins í hrint í framkvæmd:
"The Department of Justice is currently reviewing the legal options to ensure the presidents directive is implemented,"
Niðurstaða
Það er mjög greinileg staðfesting þess hversu fullkomlega forpokaður Donald Trump er, auk þess að dómsmálaráðherra Bandaríkjanna virðist í engu skárri hvað það varðar; þessi barátta ríkisstjórnar Trumps fyrir því - að fá svokallað transfólk bannað við öll störf hverskonar innan bandaríska heraflans, ekki einungis sem hermenn.
Afstaðan er að sjálfsögðu fullkomlega úrelt.
Og í engu samræmi við þekktar staðreyndir.
En greinilega i samræmi við þekkta fordóma!
- Á 21. öld er algerlega það algerlega úrelt hugsun, að banna einstaklinga á grunni þess hvað þeir eru.
--Slíkt að sjálfsögðu flokkast undir mismunun, augljóst brot á prinsippinu, allir séu jafnir fyrir lögum.
Kv.
Utanríkismál/alþjóðamál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
11.12.2017 | 00:45
Ný ríkisstjórn Nýja-Sjálands ætlar að snúa við þeirri þróun að Nýsjálendingum er búa í tjöldum fjölgar sífellt
Áður nefndi ég baráttu Vancouver borgar við vaxandi húsnæðisvanda í Vancouver: Getur Reykjavík beitt lausn Vancouver borgar til lausnar skorti á leiguhúsnæði?.
Skv. frétt Financial Times, virðist afskekktasta milljónaþjóð í heimi, Nýja-Sjáland eins og Ísland, búa við hratt vaxandi húsnæðisfátækt: New Zealand looks to ban foreigners from buying houses.
Nýja-Sjáland er sennilega það land með yfir milljón íbúa sem er í mestri fjarlægð frá öðrum milljónaþjóðum!
Skv. OECD er um 0,9% Nýjasjálendinga á húsnæðishrakhólum!
Eða m.ö.o. um 40.000 Nýjasjálendingar án húsnæðis.
- Þetta kvá skv. OECD vera hæsta hlutfall húsnæðisleysis í þróuðum iðnríkjum.
Höfum í huga að Ísland er í OECD - þannig að fullyrðing OECD gerir örugglega ráð fyrir Íslandi, þó að ofangreind mynd sýni ekki Ísland.
"The price of land and building has been increasing exorbitantly while the level of building of affordable homes has dropped off enormously."
The market for housing in New Zealand is completely broken,
"The big change in homelessness is the number of working families struggling to find homes and pay rent,
- Þetta virðast vera vandamál sem komi Íslendingum kunnuglega fyrir sjónir - þ.e. húsnæðisverð og leiga hafa samtímis rokið upp.
- Verkafólk á lægstu launum á í hratt vaxandi vanda því sífellt aukið hlutfall fólks í lægri launaþrepum - hafi ekki efni á eigið húsnæði, né því að greiða leigu.
Þegar sami vandi birtist í Vancouver - London - Reykjavík og Auckland.
Er greinilega í gangi - hnattrænn vandi.
- Skv. fjölda hagfræðinga - að sögn FT - tengist þetta útbreiðslu lágvaxtaumhverfis á Vesturlöndum.
- En að sögn þeirra ónefndu hagfræðinga sem FT sé í tengslum við, leiði lágvaxtaumhverfi til hækkunar eignaverðs - þ.e. landverðs sem og húsnæðisverða, þar með einnig að auki leiguverðs.
Vegna þess að fjársterkir aðilar í leit að -rentum- leita í eignir í vaxandi mæli.
--Í samræmi við slíka greiningu, hyggst ný ríkisstjórn Nýja-Sjálands, banna útlendingum kaup á fasteignum og landareignum í Nýja-Sjálandi.
--Auk þess, ætlar ríkisstjórnin að - skattleggja "húsnæðispekúlanta" á þann veg, að leggja sérstakan skatt á -- ef húsnæði er selt innan 5-ára.
"Like many countries in the aftermath of the 2008 financial crisis, the former New Zealand government sold off state housing and has failed to build enough affordable homes. The number of social houses owned by Housing New Zealand peaked at 68,148 in 2011, compared with 61,323 in 2017."
--Það minnir einnig á vandann hér - að það skorti félagslegt húsnæði.
- "As well as banning foreigners from buying existing homes,"
- "the coalition plans to build 100,000 affordable homes,"
- "stop sell-offs of state housing,"
- "and provide more funding for homeless initiatives."
- "It also wants to tax housing speculators, who will be defined as anyone who sells a house within five years of buying it."
Þetta eru töluvert aðrar aðgerðir sem rætt er um í Vancouver.
Hinn bóginn þá er Vancouver borg - ekki ríkisstjórn lands.
- Það sem samt sem áður áhugavert að horfa á aðgerðir Vancouver borgar, og Nýja-Sjálands í samhengi.
- Augljóslega getur Ísland ekki bannað - - landkaup og húsnæðiskaup útlendinga.
Reykjavíkurborg getur sannarlega aukið framboð af lóðum.
Ríkið og borg getur lagt meira fé til þess að berjast við húsnæðisfátækt.
Hvort sem ríkið og borgin, geta staðið fyrir byggingu ódýrs húsnæðis.
--Svo hugsa sé að aðgerðir Vancouver borgar séu virkilega verðar athygli.
Niðurstaða
Það sem sést á umfjöllunum mínum um hugmyndir Vancouver borgar að lausn húsnæðisvanda.
Og um vanda Nýsjálendinga þegar kemur að lausn húsnæðisvanda.
--Að Ísland og Íslendingar standa langt í frá einig í þeirri glímu.
Hinn bóginn þá verða lausnirnar væntanlega að spretta fram innan hvers lands.
Það er þá áhugavert að sjá hvaða leiðir önnur lönd ætla að fara.
--Þarna eru a.m.k. 2-nokkuð ólík dæmi um leiðir til lausnar sama vanda.
Mér virðist sannarlega unnt að skoða leið Vancouver borgar, og baráttu Nýsjálendinga.
Og beita því í leit að nothæfum lausnum hér á Íslandi.
Kv.
Utanríkismál/alþjóðamál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
9.12.2017 | 01:02
Bretland og ESB virðist hafa náð mikilvægu áfangasamkomulagi um BREXIT - eftir að lausn á deilu um landamæri N-Írland náðist
Í mörgum mikilvægum atriðum virðist Theresa May hafa gefið töluvert eftir gagnvart ESB, þó Bretland hafi þó náð fram þrem mikilvægum atriðum.
Brexit divorce deal: the essentials
- Það fyrra, er sjálfsögðu það að áfangasamkomulagið tryggir að BREXIT ferlið heldur áfram á næsta stig.
- Annað atriðið, er að Brussel féllst á kröfu Bretlands - að breskir dómstólar, í stað svokallaðs Evrópudómstóls, úrskurði innan Bretlands þegar deilur rísa um túlkun á samkomulagi sem náðist um gagnkvæm réttindi þegna Bretlands í ESB löndum og þegna ESB landa í Bretlandi.
- Þriðja atriðið er að Bretland náði fram formlegri tryggingu frá Brussel um það að engar nýjar fjárhagslegar kröfur á Bretland verði lagðar fram - til viðbótar þeim sem Bretland hefur nú samþykkt.
Hinn bóginn, koma á móti nokkrar mikilvægar eftirgjafir ríkisstjórnar Bretlands.
- Sú mikilvægasta er án vafa sú að Bretland hefur samþykkt að greiða inn í sjóði ESB sem væri Bretland fullur meðlimur ESB - út fjárlagaárið 2019-2020.
- Til viðbótar samþykkti Bretland að taka þátt í öllum kostnaði sem aðildarríkin samþykkja sameiginlega að leggja á öll aðildarríki, út fjárlagaárið 2019-2020.
--Sem þíðir fjárhagslegir baggar geta bæst við sem Bretland hefur ekkert um að segja. - Engin lokasumma verður möguleg í langan tíma - þ.s. Bretland hafi samþykkt greiða áfram sinn hluta lífeyrisskuldbindinga starfsm. ESB -- sem væri samþykktur hlutur Bretlands sem aðildarríkis.
--Áætlun bresku ríkisstjórnarinnar er þó sú að heildarsumman verði á bilinu 40 - 45 milljarðar.. - Varðandi landamæri N-Írlands við Írland - veitti Theresa May forsætisráðherra Írlands algera tryggingu þess, að það mundu ekki myndast "hörð" landamæri milli N-Írlands og Írlands; hvernig sem að öðru leiti samningar um BREXIT munu fara.
--Skv. því lét May það eftir, að ef viðræður Bretlands og ESB fara á endanum út um þúfur, og ekkert frekara samkomulag náist m.ö.o. þar á meðal um N-Írland; að þá gildi sú trygging sem May veitti - þ.e. að N-Írland mundi að öllu leiti fylgja lögum ESB.
--Þó restin af Bretlandi gerði það ekki endilega síðar meir í slíku tilviki.
--Þannig að N-Írland fúnkeraði áfram sem hluti af hagkerfi írska lýðveldisins. Auk þess að May hafi veitt þá tryggingu að staðið yrði áfram við öll atriði friðarsamkomulags sem gildi í N-Írlandi. - Skv. samkomulagi um gagnkvæm réttindi þegna - fá borgarar ESB landa áfram full atvinnu-réttindi í Bretlandi, og á móti breskir þegnar í ESB.
--En tryggt sé þó að réttindi ESB þegna í Bretlandi til að fá til sín ættingja sem ekki séu þegnar ESB aðildarlands séu ekki meiri en breskra þegna í ESB löndum um það sama.
--Bresk lögregla má láta þegna ESB landa í Bretlandi sæta reglulegu eftirliti varðandi tengsl við glæpi.
--Og eins og ég sagði áðan, breskir dómstólar úrskurða hvort samkomulagi sé rétt beitt innan Bretlands. - Bretland gaf það eftir, að túlkun breskra dómstóla á reglum um réttindi þegna aðildarlanda ESB í Bretlandi -- verði að taka mið af dómsniðurstöðum svokallaðs Evrópudómstóls.
- Að lokum, neitaði ESB að tryggja að breskir þegnar haldi óhjákvæmilega öllum sínum réttindum í 27 aðildarríkjunum --> Hinn bóginn, getur það hugsast að Bretland nái því atriði fram síðar.
Það verður áhugavert að fylgjast með umræðunni í Bretlandi um þetta samkomulag. En það getur vel hugsast að einhver óánægja meðal BREXITERA rýsi - vegna þess hve mikið hafi verið gefið eftir.
Niðurstaða
Það að May náði mikilvægu samkomulagi við Írland, og tókst að pressa flokk Sambandssinna til að sætta sig við það - hafi verið ákveðinn sigur fyrir May, eftir þá gagnrýni sem hún fékk fyrir klúður einungis nokkrum dögum fyrr: Theresa Mays team worked through night to secure border deal.
Ef maður leitast við að sjá jákvætt úr þessu, þá má vera Bretland nái fram einhverjum góðvilja við samningaborðið í framhaldinu; eftir að hafa formlega samþykkt þá bitru pyllu að borga að fullu inn í sjóði ESB úr fjárlagaár 2019-2020.
Hvort að svo verður á auðvitað eftir að koma í ljós.
--Það að Bretland virðist ætla að halda í opinn vinnumarkað við ESB lönd, getur verið stærsta fréttin í þessu eftir allt saman!
- Það á eftir að koma í ljós - hvaða önnur atriði svokallaðs 4-frelsis Bretland á endanum sættist á.
- En það heyrast raddir sem æskja þess að Bretland verði áfram í innra markaðnum, fylgi reglum ESB um innra markaðinn í hvívetna --> Eftir BREXIT.
Kv.
Utanríkismál/alþjóðamál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.12.2017 | 01:00
Verðbólga 1.369% í Venezúela - kínverskt risafyrirtæki krefst fyrir dómi greiðslu inn á skuld
Ég virkilega held að stjórnin í Caracas sé komin á lokasprettinn. En eftir yfirlýsingu um gjaldþrot liggur fyrir - ca. mánuður liðinn. Þá hefur maður verið að bíða eftir því að einhver mikilvægur kröfuhafi mundi láta til skarar skríða.
--Kínverskt risafyrirtæki hefur höfðað mál fyrir rétti í Houston Texas.
Chinese firm sues Venezuela as crisis tests ally's patience
Lawsuit shows China losing patience with Venezuela
Venezuela inflation reaches quadruple digits, hitting 1,369 percent
Aðgerðin sem ég er að bíða eftir, er þegar einhver stór kröfuhafi krefst lögtaks í einu eign þeirri sem skiptir nú orðið nokkru máli í Venezúela!
Kínverska fyrirtækið Sinopec seldi 13þ. tonn af stálbitum til PDVSA ríkisolíufélags Venezúela. Salan fór fram 2013 og Sinopec krefst 23$ milljóna í skaðabætur frá PDVSA fyrir - vanskil á greiðslum.
Þetta mál er miklu stærra en þessar upphæðir gefa til kynna - en skv. frétt Financial Times skrifaði Sinopec undir 14 milljarða.$ samning árið 2014 - sem átti að fela í sér meiriháttar kínverska fjárfestingu í olíuiðnaði Venezúela m.ö.o.
Þetta er lítil summa í samanburði við 62 milljarða.$ sem Kína lánaði til Venezúela, og eru litlar líkur á að Venezúela muni yfir höfuð endurgreiða.
- Það sé sem sagt óhætt að kalla málið sem Sinopec hefur höfðað út af tiltölulega lítilli summu --> Einhvers konar, loka-aðvörun frá Kína.
En þ.e. hægðarleikur að krassa því sem eftir er af ríkinu í Venezúela - með því að krefjast lögtaks á olíuförmum frá PDVSA, og öðrum eignum PDVSA sem finnanlegar eru utan Venezúela.
Ég á nákvæmlega von á því að akkúrat slík atburðarás hefjist innan tíðar.
Einungis spurning um hvenær ekki hvort.
--Það gæti verið Kína sem ákveður með slíkum hætti, að formlega afskrifa stjórnina í Caracas.
--Þ.e. ekki langt síðan Kína - afskrifaði Robert Mugabe.
Landið yrði þá að alþjóðlegu hamfarasvæði - hjálparstofnanir yrðu að koma á svæðið, líklega einnig friðargæsluliðar SÞ.
--Fyrirmynd, Haiti fyrir ekki mjög löngu síðan, en á mun stærri skala.
--Líklega yrði friðargæsluliðið stærstum hluta skipað, herliði nágrannalanda.
Ég er að tala um, eftir hrunið.
Og ég meina þá, algert hrun.
--Landið falli í óreiðu eða kaos.
Niðurstaða
Flest bendi til þess að ótrúlegum upphæðum hafi verið stolið í spillingarhýt af ótrúlegum skala er virðist hafa myndast í ríkisstjórn Venezúela - en mjög lítið virðist hafa verið framkvæmt af nokkru tagi fyrir þá peninga sem landið hefur tekið af láni sl. 10-15 ár.
Ég er m.ö.o. segja að vaxandi líkur virðast á að stærstur hluti þess fjár hafi verið stolið.
Staðan sé líklega sú að í Caracas sé hreint ræningjaræði - eins og kemur fram í frétt að ofan fellur olíuframleiðsla stöðugt, hefur gert í um áratug en minnkunin hefur verið með vaxandi hraða -- að sjálfsögðu vegna skorts á fjármögnun í innviðum.
--Slík ráðsmennska er einungis rökrétt í einu samhengi sem ég kem auga á, að verið sé að stela öllu steini léttara -- þeir sem stjórna hugsi einungis um að maka krókinn persónulega.
--Og þegar hrunið loks komi, hverfi margir þeirra væntanlega til leynireikninga í skattaskjólum.
Á endanum sé landið skilið eftir rúið inn að skinni, þjóðin háð mataraðstoð og neyðarlæknisþjónustu hjálparsamtaka - auk herliðs nágrannalanda með bláum hjálmum SÞ.
--Þetta virðist mér líkleg enda útkoma, fullkomið hrun.
Kína getur verið aðilinn sem ákveður að taka tappann endanlega úr þessu baðkari.
Kv.
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 01:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.12.2017 | 00:52
Ég held tilfærsla sendiráðs Bandaríkjanna frá Tel Aviv til Jerúsalem hafi í raun og veru ekki nokkrar dramatískar afleiðingar
Ég er búinn lengi álíta 2-ja ríkja lausnina dauða, sjá blogg frá 2012: Er friður í Ísrael mögulegur?. Skoðanir mína á því hver sé rökrétt endalausn, hafa ekki breyst síðan.
--M.ö.o. að eina raunhæfa endalausnin, sé lausn er byggi á einu sameiginlegu ríki.
Ég held að allar aðgerðir Ísraela samfellt síðan Ariel Sharon hóf uppbyggingu hins fræga veggjar - í tengslum við svokallað "Second Intifada" þegar Palestínumenn voru að beita sjálfsmorðssprengjuárásum innan Ísraels.
--Stuðli að þessum rökrétta endapunkti.
Ákvörðun Donalds Trumps sé þá einungis - enn ein litla flísin.
Valdi þetta kort því það sýnir landslagið!
Mikilvægt að skilja hvar hæðir og lægðir í landinu liggja svo unnt sé að skilja af hverju enga líkur séu á að Ísraelar gefi upp Vesturbakkann nokkru sinni!
- Meginmálið er að Vesturbakkinn er hálendur - fyrir 6-daga stríðið, gátu Palestínumenn mjög auðveldlega skotið af kraftlitlum sprengjuvörpum yfir byggðir Ísraela á láglendinu við ströndina.
- Síðan liggur hann að eina ferskvatnsforðabúri landsins sem máli skiptir, þ.e. Jórdanánni sem fræg er aftur á daga Gamla Testamentsins, er rennur frá vatninu sem Jesús er sagður hafa gengið á.
- Lægðin sem áin liggur um - er mikilvægt "killzone" þ.e. opið flatlendi þ.s. lítið skjól er að finna, á móti hæðunum á Vesturbakkanum - ef maður ímyndar sér ísraelskan her þar staðsettan, í vörn gegn innrás.
Öryggis Ísraela sjálfra vegna - er grundvallaratriði algert að stjórna hálendinu um mitt landið. Þannig sé einfaldlega barasta það!
Það má líta á "settlement policy" sem vísvitandi stefnu til að tryggja tilvist vaxandi íbúafjölda í hæðunum - er líklegur væri að vera ætíð vinveittur IDF "Israeli Defence Forces."
Það þarf í raun og veru ekki að nefna til fleiri atriði -- það sé nánst ekki hægt að verja landið, án þess að her Ísraels hafi fulla stjórn á hálendinu um miðbik landsins.
Það hálendi, var einnig kjarnasvæði hinna fornu gyðingaríkja Gamla Testamentsins - þ.s. í hálendinu gátu þau betur varist innrásum.
Í grundvallaratriðum hafi varnarhlutverk hálendisins ekki breyst.
Um ákvörðun Donalds Trumps!
Fullur Texti formlegrar ákvörðunar Trumps!
Viðbrögð voru öll fyrirsjáanleg - þ.e. Evrópuríki hörmuðu ákvörðuna, sögðu nauðsynlegt að ákvarða framtíð Jerúsalem í friðarsamningum.
Öll Múslimaríki á Mið-austurlanda-svæðinu Súnní sem Shía - fordæmdu ákvörðunina nokkurn veginn einni röddu, þó með mismunandi harkalegu orðalagi.
Og aðalritari SÞ var einnig fremur fyrirsjáanlegur: U.N. chief says no alternative to two state solution in Middle East.
Eins og fyrirséð var fordæmdu hreyfingar Palestínumanna ákvörðunina - Abbas sagði Jerúsalem órjúfanlega framtíðarhöfuðborg Palestínu: Abbas says Jerusalem is eternal Palestinian capital, dismisses U.S. peace role - Hamas urges action against U.S. interests over Trump's 'flagrant aggression' - Senior Palestinian figure Dahlan urges exit from peace talks over Trump's Jerusalem move.
Vandi fyrir Palestínumenn er augljóslega sá, að ekki nokkur skapaður hlutur þrýstir á Ísrael að gefa nokkuð eftir sem skiptir máli.
Í seinni tíð hefur dregið úr svæðisbundinni einangrun Ísraels - eftir því sem fjöldi Arabaríkja hefur í vaxandi mæli einblýnt á átök við Íran.
En vaxandi kaldastríðs-átök hóps mikilvægra olíuauðugra arabaríkja við Íran - hefur skapað þá áhugaverðu stöðu; að Ísrael er ekki lengur - óvinur nr. 1. Heldur lítur í vaxandi mæli út sem hugsanlegur bandamaður - þeirra sömu arabaríkja.
- Írans - Araba öxullinn er hratt vaxandi mæli að verða megin átakalínan.
- Meðan - Arabaríki hafa affókusað á Ísraelsríki.
Fátt bendi til samkomulags til að binda endi á þau átök.
Stjórn Donalds Trumps virðist líklegri að kynda undir þeim frekar en hitt.
Með eindreginni afstöðu um stuðning samtímis við Saudi-Arabíu og bandalagsríki Saudi-Arabíu, í átökum þeirra ríkja við Íran -- og eindregnum stuðningi Trumps við Ísrael.
--Meðan hatrið vex milli Araba og Írana.
--Bendi fátt til þess að meiriháttar þrýstingur á mál Palestínumanna og Ísraels rísi upp þaðan á næstunni.
Niðurstaða
Framtíðarlausn á deilum íbúa -landsins helga- eins og það svo lengi hét í Evrópu, verður mjög líklega að bíða mörg ár enn. En þær viðræður sem voru í gangi milli Ísraels og Palestínumanna, voru í raun og veru ekki á leið til nokkurs. Það skipti sennilega ekki íkja miklu nk. nokkur ár - þó viðræður leggist af; því fátt bendi til þess að átök þau sem nú skekja Mið-Austurlönd taki enda í bráð.
En meðan megin átakalínan eru Arabar vs. Íran þ.e. Súnní vs. Shia. Íran m.ö.o. óvinur nr. 1.
Þá sé ég ekki nokkurn umtalsverðan þrýsting á lausn langrar deilu Ísraela og Palestínumanna rísa.
Meðan smám saman halda byggðir Ísraela áfram því ferli að umkringja byggðir Palestínumanna á Vesturbakka. Þar með smám saman með vaxandi öryggi að tryggja það að engin raunverulegur möguleiki verði á að aðskilja íbúana er byggja - landið helga, frá hvorum öðrum í aðskildum ríkjum.
--Lausnin rökrétt hljóti að vera - eitt ríki.
--Bendi á gömlu færsluna mína að ofan - en 2012 viðraði ég hugmyndir um, eins ríkis lausn.
Ég hef fáu við þær pælingar að bæta. Í eðli sínu sé sú þróun sem ég ræði þar skýrari en þá.
Kv.
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 11:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
6.12.2017 | 00:05
Robert Mueller, sérstakur saksóknari Bandaríkjaþings, virðist farinn að rannsaka fjármál Donalds Trumps forseta Bandaríkjanna
Rétt að nefna það strax að einn af lögfræðingum Trumps, Jay Sekulow - hefur hafnað því sem ósönnu að Deutche bank hafi afhent til Roberts Mueller - persónuleg fjárhagsgögn er tengjast Trump.
Trump lawyer denies Deutsche Bank got subpoena on Trump accounts:"We have confirmed that the news reports that the Special Counsel had subpoenaed financial records relating to the president are false," - "No subpoena has been issued or received. We have confirmed this with the bank and other sources."
Aðspurðir segjast talsmenn Deutche Bank ekki tjá sig um mál einstakra kúnna - en að Deutche Bank svari alltaf opinberum erindum og uppfylli ætíð lögmætar opinberar kröfur.
Mueller Subpoenas Trump Deutsche Bank Records, Source Says:"Deutsche Bank always cooperates with investigating authorities in all countries."
Sem er -- hvorki já - né - nei.
Mueller's Trump-Russia investigation engulfs Deutsche
Robert Mueller sérstakur saksóknari Bandaríkjaþings
Fréttaveiturnar - Der Handelblatt, Bloomberg, Reuters - segjast hafa tengla meðal starfsmanna Deutche sem staðfesti að bankinn hafi fengið - kröfu um upplýsingar "subpoena"
Á móti höfum við neitun eins lögfræðings Trumps - og að Deutche neitar að tjá sig um mál tiltekinna kúnna/skjólstæðinga -- en segist sinna öllum löglegum opinberum erindum.
Deutche m.ö.o. hvorki neitar né játar.
Sem sjálfsagt er eðlileg opinber afstaða risabanka vs. hagsmuni mikilvægs kúnna.
- Persónulega trúi ég því ekki að þessir 3-fjölmiðlar mundu senda þessar fréttir frá sér, ef þær væru algerlega tilhæfulausar.
Það þíði ekki að þó svo að Robert Mueller sé farinn að rannsaka fjárhagsmál Trumps, að það þíði óhjákvæmilega að þar sé eitthvað að finna.
En höfum í huga, að þetta gerist í kjölfar þess að -- tveir fyrrum samstarfsmenn Trumps hafa gert samning við Mueller; þ.s. þeir játa á sig - smábrot gegn vægð og að þeir sýni fullt samstarf við Mueller.
Og að þriðji fyrrum samstarfsmaður Trumps hefur verið formlega ákærður af Mueller -- fyrrum stjórnandi framboðs Trumps.
Rás atburða er nú greinilega á auknum hraða hjá Mueller!
Að hann sé að rannsaka Trump í kjölfar játningar Flynns sl. föstudag - er risastórt mál.
Niðurstaða
Mueller væri ekki að rannsaka fjármál Trumps, nema að hann teldi sig hafa ástæðu að ætla að eitthvað sé þar að finna. Höfum í huga - plea bargain - Flynns er í skamma hríð var þjóðaröryggisráðgjafi Trumps, og var mjög ákafur stuðningsmaður Trumps í kosningabaráttunni.
En þ.e. greinilegt að Flynn samþykkti að játa á sig tiltölulega smávægilegt brot - gegn vægð, er ljóst virðist að Mueller getur ákært Flynn fyrir verulega verra brot.
Að Mueller hafi sent kröfu til Deutche Bank um fjármálaupplýsingar tengdar viðskiptaveldi Trumps og aðila er tengjast fjölskyldu Trumps - þetta kemur í ljós skömmu eftir að "plea bargain" Flynns hefur formlega opinberast.
Getur einmitt bent til þess að Flynn sé farinn að aðstoða við rannsókn Muellers. En þ.s. hann var mjög virkur í framboði Trumps og þar í innsta kjarna. Er talið hann hafi hluti að segja. Mueller hefði vart samþykkt "plea bargain" nema þegar ljóst væri að Flynn gæti veitt Mueller hugsanlegt tangarhald á sér til muna - mikilvægari manni.
--Eins og ég hef oft sagt, algerlega óvíst að Trump klári sitt kjörtímabil.
--Ég hef einnig sagt, að alls óvíst sé að hann endist út sitt annað ár í embætti.
Kv.
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 11:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (23)
5.12.2017 | 01:53
Saudi-arabísku plotti kollvarpað í Yemen af bandamönnum Írans
Fyrir 1990 var Yemen skipt upp í Suður-Yemen eða Alþýðulýðveldið Yemen annars vegar og hins vegar í Arabalýðveldið Yemen eða Norður Yemen -- sjá kort:
Norður Yemen vs. Suður Yemen - skipting landsins til 1990
Dramatísk atburðarás hófst fyrir sl. helgi, þegar bardagar hófust milli fylkinga sem hafa barist í 3-ár gegn bandalagi Saudi-Araba við önnur Persaflóa Araba furstadæmi; þ.e. hersveitir hollar Ali Abdullah Saleh fyrrum forseta sameinaðs Yemen, í 30 ár "de facto" einræðisherra landsins og hersveitir hollar fylkingu svokallaðra Hútha sem hafa risið frá fjölmennum minnihlutahóp Shíta í því sem áður var -- Norður Yemen, eða Arabalýðveldið Yemen.
Þessi atburðarás náði hápunkti með yfirlýsingu, Ali Abdullah Saleh sl. sunnudag, sem ekki varð skilin með öðrum hætti - en að hann ætlaði að söðla um; segja skilið við bandalag sitt við Hútha.
- Atburðarásinni lyktaði síðan á mánudag - með dauða, Ali Abdullah Saleh.
Fregnir benda til þess, að hersveitir Saleh hafi verið ofurliði bornar af hersveitum Hútha í höfuðborg landsins -- Sana. Virðast hersveitir Hútha hafa tekist að ná svæðum í Sana áður stjórnað af hersveitum er hollar voru, Ali Abdullah Saleh.
Skv. fréttaveitum Hútha - var bílalest Saleh stöðvuð í fyrirsát rétt fyrir utan Sana, ráðist síðan að henni - Saleh að lokum drepinn.
Það bendi til þess, að Saleh hafi gert tilraun til flótta! Líklega til fæðingabæjar hans, þ.s. hann kvá hafa átt virki undir stjórn eigin hersveita.
Vígstaðan við upphaf ársins, þ.s. stríðið er í pattstöðu líklega lítt breitt
Bendi fólki á að skoða kortin -- en ég hef veitt því athygli sl. 3. ár síðan Saudar og bandamenn þeirra hófu þátttöku í átökum -- að þ.e. eins og að gamla skiptingin sé að rísa upp að nýju.
- En bandalag Saleh og Hútha hefur ráðið þéttbýlasta hluta landsins fram að þessu, og hersveitum studdum af Saudum og bandamönnum Sauda - lítt gengið í um 3 ár að breyta stöðunni úr ca. þeirri sem sést á kortinu að ofan.
- Eftir lát Saleh - er komin upp óvissa!
En spurningin sé væntanlega hvað þeir hópar sem voru í kringum Saleh, ákveða að gera.
En hann hafði stuðning nokkurra Araba-hópa sbr. "tribes."
Former Yemen president shot dead during heavy fighting in Sanaa
Ex-president Saleh dead after switching sides in Yemen's civil war
Ali Abdullah Saleh, varð forseti Arabalýðveldisins Yemen eða Norður Yemens 1978. Meðan Suður Yemen fylgdi Sovétríkjunum að máli - fylgdi Norður Yemen Vesturlöndum að máli. Samskipti Yemen ríkjanna tveggja voru vægt sagt stirð - borgarastríð í S-Yemen 1986 líklega veikti það ríki verulega. 1990 eftir eiginleg lok Kalda-stríðsins komust ríkisstjórnir landanna tveggja að samkomulagi um sameiningu. Aftur á móti risu upp deilur í tengslum við sameininguna, og stutt borgarastríð 1994 lyktaði með sigri ríkisstjórnarinnar í Sana - m.ö.o. Saleh.
Ali Abdullah Saleh, ríkti yfir sameinuðu Yemen til 2012, er hann var hrakinn frá í kjölfar margra mánaða innanlands ólgu og mótmæla gegn stjórn hans.
Þær ríkisstjórnir sem sátu í Sana eftir það - má kalla handbendi Saudi Arabíu. Saleh hafði fengið að halda öllum sínum eignum, var áfram áhrifamikil persóna í Yemen.
Fyrir þrem árum, tók Ali Abdullah Saleh þátt í uppreisn gegn ríkisstjórn landsins í bandalagi við Shíta sértrúarhóp (Zaidis sect) sem er fjölmennur minnihluti í Yemen -- svokölluð Húthí fylking er hernaðarhreyfing þess trúarhóps.
Framanaf gekk því bandalagi mjög vel í átökum, og höfðu um skeið meira en helmings landsins á sínu valdi - þar á meðal borgina Aden. En í kjölfar ákvörðunar Saudi Araba og bandamanna Saudi Araba um þátttöku í stríðinu.
Þá fljótt urðu Arabahersveitir Saleh og Shíta hersveitir Hútha - að hörfa inn á sín kjarnasvæði; þ.s. þeir hafa sameiginlega haldið velli í 3 ár.
- Nú er það spurning, hvort atburðir þeir sem lyktuðu með dauða - Saleh.
- Hafi opnað stöðuna að einhverju verulegu leiti?
- Það virðist a.m.k. ljóst, að Ali Abdullah Saleh hefur reynt sitt hinsta plott, og tapað.
En það blasi við að hann hafi náð samkomulagi við Saudi Arabíu - enginn veit um hvað. En það hljómar sem svo að það hafi verið nægilega gott það tilboð - að hann ákvað að taka þá áhættu; að stynga rítingnum í bakið á þeim sem hann hafði barist við hlið á, í rúm 3 ár.
- Dauði Saleh - hljóti að vera áfall fyrir þessa saudi-arabísku tilraun, til að umbylta stöðunni í Yemen; eftir 3 ár af pattstöðu.
- En það virðist sennilegt, að það bandalag sem Saleh hafði byggt upp utan um sjálfan sig, og haldið honum mikilvægum svo lengi.
- Geti verið í hættu á að sigla sinn sjó í kjölfarið.
--Það sé þá samt spurning, hvort að það geti samt verið smá tími þegar Húthar séu þannig séð - úr jafnvægi, sem hugsanlega Saudar og bandamenn, geta nýtt sér til - áhlaups.
--Það væntanlega kemur í ljós á nk. dögum.
Niðurstaða
Það kemur í ljós á nk. dögum hvort að Saudar geta að einhverju leiti nýtt sér atburðarásina í Yemen sl. daga sér til tekna. En fljótt á litið virðist sem að bandamenn Írans í Yemen, Húthar, með snöggum og að því er virðist - algerum sigri yfir hersveitum Ali Abdullah Saleh í Sana borg; hafi möguleika til þess að ná aftur fullu jafnvægi á sína vígsstöðu.
En það virðist blasa að Saudi Arabía hafði gert samkomulag við gamla bragðarefinn Saleh í von um að umbylta víggstöðunni í Yemen sem í 3. ár hefur verið pattstaða - þrátt fyrir mikinn kostnað Saudi Araba og bandamanna þeirra, og stöðugar loftárásir.
En nú eftir drápið á Saleh, og fullkominn sigur að því er virðist yfir hersveitum Saleh a.m.k. í Sana borg. Þá virðist a.m.k. að Húthar hafi sýnt fram á að því geti fylgt veruleg áhætta; að gera tilraun til að rísa upp gegn þeim.
Saleh virðist hafa haft utan um sig bandlag margvíslegra "tribal" Araba hópa í norðurhluta Yemen - - þeir hópar væntanlega velta fyrir sér sinni stöðu. Virðast a.m.k. síður líklegir til uppreisnar gegn Húthúm eftir lát Saleh og afhroð hersveita Sale í Sana borg.
Það sé þar með alls óvíst að nokkur veruleg breyting verði á vígsstöðunni í Yemen.
--Það geti verið áhugavert að veita athygli fréttum nk. daga frá Yemen.
--M.ö.o. hvort frekari atburðarás fer af stað, eða að mál snúi til baka til fyrri pattstöðu.
En sumir fréttaskýrendur velta því fyrir sér, hvort hersveitir studdar Saudum og bandamönnum Sauda -- geti tilraun til áhlaups á víglínur; í von um að víggstaða Hútha sé ekki í fullu jafnvægi akkúrat á þessum punkti.
Kv.
Utanríkismál/alþjóðamál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Einar Björn Bjarnason
Nýjustu færslur
- Mögnuð atburðarás hefur leitt til falls, Bashar al-Assads, fo...
- Þorgerður Katrín í oddaaðstöðu! Hún líklega algerlega ræður h...
- Sigur Donalds Trumps, stærsti sigur Repúblikana síðan George ...
- Ef marka má nýjustu skoðanakönnun FoxNews - hefur Harris þokk...
- Kamala Harris virðist komin með forskot á Trump í Elector-Col...
- Það að Úkraínuher er farinn að sprengja brýr í Kursk héraði í...
- Úkraínuher hóf innrás í Kursk hérað sl. mánudag! 5 dögum sein...
- Möguleikar Kamölu Harris til hugsanlegs sigurs á Donald Trump...
- Leiðir ris J.D. Vance - til fullkominna yfirráða milljarðamær...
- Er fall bandaríska lýðveldisins yfirvofandi - vegna ákvörðuna...
- Sérfræðingar vaxandi mæli þeirrar skoðunar, 2025 verði lykilá...
- Rússar hafa tekið 8 km. landræmu síðan sl. föstudag í NA-Úkra...
- Rússland getur hugsanlega haldið fram Úkraínustríði, allt að ...
- Rússland ætlar að hætta stuðningi við uppreisnarmenn í Súdan ...
- Gríðarlega mikilvægt að Úkraína fær bráðnauðsynlega hernaðara...
Nýjustu athugasemdir
- Mögnuð atburðarás hefur leitt til falls, Bashar al...: Margar þjóðir eru tibúnar að hjálpa til við uppbygginguna en sú... 9.12.2024
- Mögnuð atburðarás hefur leitt til falls, Bashar al...: Grímur Kjartansson , Sýrland er efnahagslega rjúkandi rúst - ei... 9.12.2024
- Mögnuð atburðarás hefur leitt til falls, Bashar al...: Mér skilst að al-Jilani hafi keypt sér liðveislu USA með því a... 9.12.2024
- Þorgerður Katrín í oddaaðstöðu! Hún líklega algerl...: Ásgrímur Hartmannsson , grímur -- Viðreisn er hægri flokkur. Ha... 8.12.2024
Eldri færslur
2024
2023
2022
2021
2020
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
Bloggvinir
- eyglohardar
- bjornbjarnason
- ekg
- bjarnihardar
- helgasigrun
- hlini
- neytendatalsmadur
- bogason
- hallasigny
- ludvikjuliusson
- gvald
- thorsteinnhelgi
- thorgud
- smalinn
- addabogga
- agnarbragi
- annabjorghjartardottir
- annamargretb
- arnarholm
- arnorbld
- axelthor
- arnith2
- thjodarsalin
- formosus
- birgitta
- bjarnijonsson
- bjarnimax
- westurfari
- virtualdori
- bookiceland
- gattin
- davpal
- dingli
- doggpals
- egill
- jari
- einarborgari
- einarsmaeli
- erlaei
- ea
- fannarh
- fhg
- lillo
- gesturgudjonsson
- gillimann
- bofs
- mummij
- kallisnae
- gp
- gudmbjo
- hreinn23
- gudrunmagnea
- gmaria
- topplistinn
- skulablogg
- gustafskulason
- hallurmagg
- haddi9001
- harhar33
- hl
- diva73
- himmalingur
- hjaltisig
- keli
- fun
- johanneliasson
- jonsullenberger
- rabelai
- jonl
- jonmagnusson
- jonvalurjensson
- thjodarskutan
- gudspekifelagid
- juliusbearsson
- ksh
- kristbjorg
- kristinnp
- larahanna
- leifurbjorn
- lifsrettur
- wonderwoman
- maggij
- elvira
- olafureliasson
- olinathorv
- omarragnarsson
- ottarfelix
- rafng
- raksig
- redlion
- salvor
- samstada-thjodar
- fullvalda
- fullveldi
- logos
- duddi9
- sigingi
- sjonsson
- sigurjons
- stjornlagathing
- athena
- stefanbogi
- lehamzdr
- summi
- tibsen
- vala
- valdimarjohannesson
- valgeirskagfjord
- vest1
- vignir-ari
- vilhjalmurarnason
- villidenni
- thjodarheidur
- valli57
- tbs
- thorgunnl
- thorsaari
- iceberg
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.12.): 0
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 31
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 28
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar