Donald Trump forseti Bandaríkjanna - bannar transfólk í bandaríska hernum

Óhætt að segja að þetta bann gangi þvert á þróun mála í langflestum vestrænum löndum, þar sem réttindi samkynhneigðra og fólks sem telur sig af öðru kyni en það fæddist sem skv. litningagreiningu -- hefur fengið í vaxandi fjölda landa að starfa fyrir opnum tjöldum í samræmi við sína hneigð, án tillits til tegundar starfs.

Trump to ban transgender military personnel, reversing Obama

Transgender soldiers, veterans shaken by Trump's ban on their service

Trump bars transgender people from military service

http://img.thedailybeast.com/image/upload/v1491941164/articles/2017/02/22/bully-trump-s-new-target-transgender-students/170222-Trump-Guidance-on-trans-rights-tease_arrzac.jpg

Óhætt að segja bann Trumps stílbrot við þann farveg sem þróun mála hefur verið á Vesturlöndum sl. 20 ár!

Donald Trump:

  1. "After consultation with my Generals and military experts, please be advised that the United States Government will not accept or allow transgender individuals to serve in any capacity in the U.S. Military,"
  2. "Our military must be focused on decisive and overwhelming victory and cannot be burdened with the tremendous medical costs and disruption that transgender in the military would entail,"

Sanders: "This was about military readiness," - "This was about unit cohesion. This was about resources within the military, and nothing more."

Þetta virðist afar stórt bann - þ.e. bann við því að starfa innan hersins, óháð tegund starfs. M.ö.o. hvort viðkomandi vinnur á skrifstofu hersins - eða eldhúsi t.d.

Það fylgir ekki sögunni, hvort að þeir sem nú eru starfandi innan hersins - verða þá reknir, eða mega reikna með brottrekstri í framtíðinni.

Fram kemur hjá Sanders - að ákvörðunin hefði verið tekin á þriðjudag, og helstu yfirmönnum hermála innan Bandaríkjanna, verið tjáð ákvörðun Trumps.

Ekki kem ég auga á það, hvernig þetta getur skipt máli fyrir bardagahæfni hersins - en yfirlýst transfólk kvá vera milli 4-5þ. innan hersins, síðan Obama formlega heimilaði þeim að koma opinberlega fram sem slíkir.

  1. Eina sem gæti verið "medical cost" er ef herinn væri beinlínis að borga fyrir kynskipta-aðgerðir, það þekki ég ekki.
    --Ég efa að slíkt sé "covered."
  2. Að auki fyrir mitt litla líf - sé ég ekki hvað það hefur áhrif á "unit cohesion" -- en þetta sé svipuð ásökun og heyrðist á árum áður, er umræðan um að heimila konum að vera hermenn var í gangi.
    --M.ö.o. vitneskjan að einn hermanna sé transpersóna - ætti að hafa svo stuðandi áhrif á hina hermennina, sömu rök og kona væri meðal þeirra á sínum tíma.

--Mér virðist m.ö.o. þarna blasa við skýrir fordómar!

 

Niðurstaða

Þá vitum við það, að Donald Trump hefur ákveðið að opinbera eigin fordóma gagnvart sokölluðu transfólki - með ákvörðun sinni um bann við því að slíkir einstaklingar gegni störfum hvers konar innan bandaríska hersins.
--Slík viðhorf á 21. öld séu fyrst og fremst - sorgleg.

 

Kv.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þróun mala á vestur löndum hefur verið neikvæð. Decadant og gengið þvert á hagsmuni Evrópu. Sem dæmi má nefna nýjustu reglugerð bandaríska þingsins um refsingu gegn Rússum. Þessi skríll her hefur aldrei gert sér grein fyrir því, eins og þú sjálfur, að þessar aðgerðir hafa lítil sem engin áhrif á Rússa. En hafa gífurleg áhrif a EU.

Evropa er akotmarkið og markmiðið er að gera Rússa sjálfstæða og óháða. Ef Evrópa hefur eitthvert vit eiga þeir að mynda sterk bönd við Rússa, þvert a vilja Bandarikjanna.

slagorð flestra þeirra hopa sem eru hinsegin er "Make love not war". Þeir eiga ekki heima í her, svo einfalt er málið.

Bjarne Örn Hansen (IP-tala skráð) 27.7.2017 kl. 07:19

Bæta við athugasemd

Nauðsynlegt er að skrá sig inn til að setja inn athugasemd.

Um bloggið

Einar Björn Bjarnason

Höfundur

Einar Björn Bjarnason
Einar Björn Bjarnason
Stjórnmála- og Evrópufræðingur. Áhugi á stjórnmálum, Evrópumálum, alþjóðamálum, málefnum Miðausturlanda, trúmálum, vísindum og tækni, og margt fleira.
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Eldri færslur

2024

2023

2022

2021

2020

2019

2018

2017

2016

2015

2014

2013

2012

2011

2010

2009

2008

Nýjustu myndir

  • Mynd Trump Fylgi
  • Kína mynd 2
  • Kína mynd 1

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 27
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 26
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband