Ef marka má fregnir er jörð að frjósa í Úkraínu, eftir tímabil er jörð hefur víða verið rök leðja - skv. því gæti fljótlega aftur færst fjör í leika í Úkraínustríði!

Leðjan í Úkraínu er þekkt eða alræmd - í Seinna-Stríði lenti her Nasista í vandræðum sem til eru margar myndir af, þ.s. farartæki urðu föst, það varð að meiriháttar vanda að koma hernum úr stað, því landið varð um hríð -- nánast ófært yfirferðar.
--Undanfarið hefur þetta -leðjutímabil- staðið yfir, því ekki undarlegt að tiltöluleg ró hafi verið yfir Úkraínu-stríðinu í nokkrar vikur.

Skemmtileg mynd úr Seinna-Stríði!

No photo description available.

 

 

 

 

  1. En þegar jörð hefur náð almennilega að frjósa, er góð spurning hvor herinn græðir meir á því.
  2. Þegar Rússland hóf innrás í febrúar, þá var það mitt í kaldasta hluta vetrar, þegar jörð er best yfirferðar -- fyrir innrásar-her.

Önnur skemmtileg mynd frá Seinna-Stríði

r/Colorization - Column of Tiger I Tanks Bogged Down in Mud. Ukraine, 1943.

Rússneskir skriðdrekar geta einnig orðið fastir í úkraínskri leðju

A Russian tank stuck in the mud in Zavorychi, outside the Ukrainian capital of Kyiv, in early April.

Leðjutímabilið alræmda ætti að verða búið fljótlega!

  • A Russian milblogger claimed on December 3 that the ground has frozen along the Kreminna-Svatove line and that he expects that Ukrainian forces will likely increase the pace of their counteroffensive operations in the area as a result.
  • Luhansk Oblast Head Serhiy Haidai also stated on December 2 that weather is finally changing on the Kreminna-Svatove line and that he expects that Ukrainian forces will soon be able to improve their counter-offensive maneuver operations as mud in the area fully freezes.

Svæðið umræmda, Kreminna-Svavtove, er beint framhald af bláa-svæðinu!

Ef marka má ofangreint -- reikna hvorir tveggja!

  1. Rússneskir bloggarar ...
  2. Úkraínskir aðilar er gegna svipuðu hlutverki.

Með því, að jörð verði nægilega frosin fljótlega í norðanverðri A-Úkraínu.
Að stríðið fari að nýju í fullan gang í N-hluta A-Úkraínu.

M.ö.o. að leðju-jörð, hafi verið að hamla sóknar-aðgerðum Úkraínu-hers.
Nú um hríð, en fljótlega verði jörð frosin!
--Þannig, að sókn Úkraínu í Luhansk héraði, geti farið aftur á fullt.

  • Ég get að sjálfsögðu ekki - fullyrt neitt sjálfur.
    Einungis, vísa í skoðanir umræddar aðila.
  • Hinn bóginn, getur þetta vel staðist hjá þeim.

Rússar á hinn bóginn, halda enn uppi stöðugum árásum í Donetsk!

Leðja gæti útskýrt áhugaverða breytingu á tjóns-tölum Rússa!


En ég sá nýlega áhugaverðar tölur: Hlekkur

 JulyAugustSeptemberOctoberNovember 
Personnel52807320112601286016970Personnel
Tanks191229357344217Tanks
APV275334604552376APV
Artillery136183282333174Artillery
MRLS1328494712MRLS
AA1236232113AA
Aircrafts61130124Aircrafts
Helicopters41521314Helicopters
UAV91115158406147UAV
cruise missiles312250151134cruise missiles
ships00010ships
vehicles302327547357298vehicles
special equipment212227239special equipment
  1. Takið eftir, í nóvember er tjón Rússa á tækjum minna, en mánuðina á undan.
  2. Samtímis er manntjón þeirra meira.

Það gæti þítt, vegna leðju í nóvember, hafi þeir beitt - farartækjum síður.
Í staðinn, beitt hermönnum á hlaupum í meira mæli!

  • Hlaupandi hermenn, hafa ef til vill - síður verið hindraðir af leðju.
  • Rússn. yfirmenn, hafi því ákveðið - til að halda árásum áfram, að beita hermönnum, án stuðnings farartækja.

Þetta útskýri, af hverju mannfall sé meir í þeim mánuði!
Samtímis, og tjón á farartækjum í nóvember sé minna en mánuðina á undan.

Ef marka má þær tölur, er mannfall Rússa í 2 mánuði: Nær 30.000.

Síðan Rússar hörfuðu frá Kherson, hafa litlar hreyfinga orðið á víglínum!

Rússar hafa samt allan tímann, beitt stöðugum árásum í Donetsk héraði.
Þær árásir, hafa á hinn bóginn -- ekki skilað nema litlum árangri.

Sannarlega hafa nokkur þorp fallið til Rússa, þá 2 mánuði þær árásir hafa staðið yfir -- en Úkraínumenn, halda enn öllum mikilvægum stöðum sem barist hefur verið um þar.
Og það virðist ekki sennilegt að Rússar nái þeim stöðum!

  • Mannfall hefur verið talið verulegt hjá Rússum, út af þeim árásum.
  • Það hefur þó vantað tölur yfir þær mannfall.

Ég get alveg trúað því að mannfall, í þeim árásum, nálgist 30.000.
Eins og tölurnar að ofan, benda til.

Ekki síst, þar eð þær árásir, eru á því tíma þegar aðstæður til stríð, eru einna erfiðastar í Úkraínu -- þ.e. í miðju leðjutímabilinu.

  1. Ef Úkraína, ætlar að hefja aðra stór-árás, meðan vetur stendur enn yfir.
  2. Verður það væntanlega, í janúar - til - febrúar.

Einmitt, þegar veturinn stendur hæst - því þegar kaldast er, er landið frosið.
Sannarlega kunna Rússar einnig að nýta sér, hávetur.
Hinn bóginn, virðist eitt og annað benda til þess.
--Að Úkraínumenn, græði frekar á frosinni jörð, en Rússar -- a.m.k. nú.

Í sl. febrúar var það öfugt, því þá var innrásarher Rússa -- óskemmdur.
Og með yfirburði í hertækjum, því hreyfanleika!
--En síðan þá, hefur Rússa-her orðið fyrir það miklu tækja-tjóni, að talið er sennilegt, nú hafi Úkraínu-her yfirburði í, mögulegum hreyfanleika.

Það auðvitað kemur allt í ljós -- á nýárinu!

 

Niðurstaða
Ef einhver bendir á Seinna-Stríð, þá bendi ég viðkomandi strax til baka á.
Að Úkraína er í því hlutverki að verjast innrás á heimavelli, í þetta sinn.
Úkraínumenn, hljóta að þekkja sinn heimavöll betur, en innrásarher.
Og Úkraínuher, samtímis nýtur þess -- að hafa stuðning fólks er býr á svæðinu.

Sovéski herinn, sannarlega naut alls þess sama í Seinna-Stríði.
En í dag, þá er Rússa-her í hlutverki innrásar-liðs.
Þannig, að notkun á líkingu við nasista gengur ekki upp.
Né heldur, að nota líkingu við innrás Napóleóns.

Nema -- Pútín sé Napóleón, eða Hitler.
Bendi fólki á þetta, ef einhverjum dettur í hug að beita líkinga-máli.

  1. Ef menn nefna, Íraks-stríð 2003, þá sannarlega réðust bandar. með ólöglegum hætti á Írak það ár, og orsökuðu mikið mannfall.
  2. Hinn bóginn, gengur það ekki upp að nefna það stríð -- sem réttlætingu fyrir innrás Rússa í Úkraínu; nema þeir viðkomandi -- séu að segja innrás Bamdar. í Írak, hafi verið réttmæt.

Hinn bóginn, var ég andvígur 2003 ævintýri Bush, og sannarlega er og mun alltaf verða, andvígur innrásar-hernaðarævintýri Pútíns, árið 2022.
Ég lít á hvoruga innrásina sem réttmæta, þ.e. hvorki 2003 né 2022.

Það þíði því ekki að benda mér á 2003 atburðinn, né að halda því fram við mig innrásin í Úkraínu, réttlætist af einhverjum meintum aðgerðum NATO.
Ég kaupi ekki nokkrar slíkar skýringar!

Það kemur síðan í ljós á nýárinu hvort Úkraínustríð fer aftur í fluggýrinn.

 

Kv.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Nauðsynlegt er að skrá sig inn til að setja inn athugasemd.

Um bloggið

Einar Björn Bjarnason

Höfundur

Einar Björn Bjarnason
Einar Björn Bjarnason
Stjórnmála- og Evrópufræðingur. Áhugi á stjórnmálum, Evrópumálum, alþjóðamálum, málefnum Miðausturlanda, trúmálum, vísindum og tækni, og margt fleira.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Eldri færslur

2024

2023

2022

2021

2020

2019

2018

2017

2016

2015

2014

2013

2012

2011

2010

2009

2008

Nýjustu myndir

  • Mynd Trump Fylgi
  • Kína mynd 2
  • Kína mynd 1

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 22
  • Sl. sólarhring: 49
  • Sl. viku: 262
  • Frá upphafi: 847344

Annað

  • Innlit í dag: 22
  • Innlit sl. viku: 258
  • Gestir í dag: 22
  • IP-tölur í dag: 22

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband