Ljóst megintilgangur Úkraínu í átökum í Luhansk, að hindra Rússa í að komast yfir Sieviero Donets ána, ein af þverám Don! Orrustan hefur þegar fengið nafn, nefnd :Orrustan við Sieviero Donets! Manntjón Rússa virðist - óþekkt, almennt talið stórfellt!

Tölur um mannfall Rússa eru gríðarlega háðar óvissu, Úkraínumenn telja yfir 1000 hafi farist í átökum er stóðu yfir dagana 5. - 13 maí, við bæinn Bilohorivka. Sögur segja að Rússar hafi misst yfir 80 brynvarin hertæki í tilraun til að komast yfir, Siverskyi Donets.

Loftmynd er sýnir leyfar af bráðabirgðabrúm og eyðilögð tæki við Siverskyi Donets á!
Hópur eyðilagðra skriðdreka liggur eins og brak er hafi flotið að bakka neðst á mynd!

Debacle On The Donets: How Russian Forces Got Obliterated Trying To Cross A River

Hér er mjög ítarleg umfjöllun um orrustuna: Debacle On The Donets: How Russian Forces Got Obliterated Trying To Cross A River.
Áin virðist einnig gjarnan kölluð - í stuttri mynd: Donets!

  • Skv. þessari frétt, sjást 73 eyðilögð tæki á myndum.
    Myndirnar sýna stóran val af eyðileggingu!
  • Það virðist því ljóst, að Rússar hafi tapað a.m.k. hundruðum.
    Ef ekki svo hátt sem 1þ. sem Úkraínumenn staðhæfa.

Það sé þó á tæru, þessi orrusta hafi verið töluvert áfall fyrir Rússa:
Rússneskir bloggarar hafa þorað að gagnrýna rússn. her-yfirvöld!

Yuri Podolyaka - The last straw that overwhelmed my patience was the events around Bilohorivka, where due to stupidity — I emphasize, because of the stupidity of the Russian command — at least one battalion tactical group was burned, possibly two.

Starshe Eddy - called the actions of the commanders not idiocy, but direct sabotage

Vladlen Tatarski - Until we get the last name of the military genius who laid down a B.T.G. by the river and he answers for it publicly, we won’t have had any military reforms.

Skv. þeim er telja sig hafa vit á -- hafi tilraun Rússa, ekki verið vel útfærð.
Hinir rússn. bloggarar sem gagnrýna eigin herstjórn - virðast a.m.k. sammála því.
--Þó þeir og Vestrænir skoðendur séu að sjálfsögðu fullkomlega ósammála um réttmæti innrásar í Úkraínu.

Eftir að sú tilraun mistókst, var ljóst að Rússum mundi ekki takast að umkringja her Úkraínmanna, sem verst árásum við Sieviero-Donetsk (Severo-Donetsk) borg, og Lysychansk borgin beint á móti handan við Siverskyi Donets ána!
Rússar sem sagt, brugðu á það ráð, að ráðast að Sieviero-Donetsk borg, án þess að geta umkringt her Úkraínumanna, sem þíddi að Úkraínumenn gátu stöðugt flutt vopn, vistir og liðsauka til þess liðs, er hefur fram á þennan dag -- enn varist í rústum Sieviero-Donetsk borgar.

  • Ath. tvær stafanir á nöfnum í gangi: Sieviero-Donetsk - er Úkraínsk mynd nafns/ meðan Severo-Donetsk virðist rússnesk mynd sama nafns.
    Fjölmiðlar nota báðar myndir nafnanna til skiptis.
  • Rússn. útgáfa nafnanna er þekktari.

Bloody river battle was third in three days - Ukraine official - BBC News

Orrustan um borgina, Sieviero-Donetsk/Severo-Donetsk - stendur enn yfir!
Ef marka má fregnir, þá hófu Úkraínumenn gagnsókn í borginni sl. föstudag, þá höfðu Rússar áætlað ca. 70% hennar -- í dag sunnudag, virðist að Úkraínumenn hafi ca. helming, þannig staðan sé 50/50 ca.
Úkraínumenn, staðhæfa manntjón Rússa, af gagnsókn Úkráinu-hers í borginni, hafi verið mikið, en eins og allt slíkt, þá er engin leið að staðfesta nokkurt.

  1. Það sem er áhugavert við þessa bardaga er það -- Rússar virðast lítt hafast að á öðrum víglínum, eins og þeir hafi dregið allt nothæft lið, til bardaganna á Luhansk svæðinu þ.s. Sieviero Donets eða stutt mynd, Donets - áin flæðir um.
  2. Borgirnar sem barist eru um, eru sitt hvorum megin ár.
    Megin orrustan um borgina, þeim megin ár þ.s. megin-her Rússa er staddur.
    Úkrínumenn handan ár, í Lysychansk -- virðast sæmilega öruggir.
    Og vera enn mögulegt, að færa lið yfir á, til að styrkja og styðja við eigið lið.
    Í borginni handan ár, þ.e. Sieviero-Donetsk.
  • Og orrustan heldur áfram af miklum krafti eins og sl. -- 2 vikur.
  • Þetta gæti verið á leið að verða, stærsta orrusta stríðsins til þessa.

En Rússar virðast hafa nær allt tiltækt lið hers þeirra í Úkraínu, í henni.
Sem þíðir, að orrustan er einstakt tækifæri einnig fyrir Úkraínu-her.
Að hugsanlega brjóta hinn Rússnerka her í beinum átökum, hugsanlega endanlega!

  • Málið er að sl. 3 vikur hafa komið fram skýrar vísbendingar um vandræði hjá Rússum!
  1. Fyrir Rúmri viku, afnám ríkisstj. Rússl. efri aldursmörk í hernum. Þíðir, að Rússa-her getur kvatt eldri hermenn en áður til herþjónustu. Líklega er hugsunin að sækja gamla reynslubolta. Því er þetta líklega skýr vísbending um skort á reyndum hermönnum, í Úkraínu. Er aftur virðist staðfesta mikið manntjón Rússa.
  2. Fyrir rúmri viku, hóf Rússl. beitingu T62 í Úkraínu, og í sl. viku, var tilkynnt að Lukahensko væri að senda skriðdreka til Rússlands, frá takmörkuðum birgðum hins Hvít-Rússn.-hers. Þetta virðist afar skýr vísbending um skort á skriðdrekum. Er virðist staðfesting þess, Rússa-her hafi greinilega beðið mikið skriðdreka-tjón.
  • Harðar orrustur nú nærri samfellt í mánuð í Luhansk, hljóta að gera skort á hæfum einstaklingum, og skort á tækjum -- verri!
    Enda getur vart annað verið en að Rússar hafi misst mikið af hvoru tveggja.
    Þið getið auðvitað litið á myndirnar að ofan þ.s. mikið af eyðilögðum tækjum eru.

Þess vegna held ég að þetta geti verið síðasta stóra sóknar-tilraun rússn. hersins!
Eftir hana virðist mér sennilegt að rússn. herinn verði hreinlega útbrunninn!

Mig grunar, Úkraínumenn sjái nú tækifærið -- er liggi í að halda orrustunni áfram.

INTERACTIVE Russia Ukraine War Who controls what in Ukraine Day 102

Árás Úkraínuhers nærri Kherson hefur vakið mun minni athygli!
Úkráinu-her hóf þá árás fyrir rúmri viku, hefur síðan tekið þunna landræmu - sbr. blár litur á mynd.
Her Rússa á Suður-svæðinu, virðist hafa grafið sig niður.
Engin sókn, hafi hafist þar, í kjölfar falls Mariupol.
Heldur hafi lið verið sent til Luhansk, til að taka þátt í árásum þar.

  • Úkraínuher hafi talið sig sjá tækifæri, í því að lið hafi verið fært af Suður-svæðinu, er hann hóf tilraun til að -- prófa þolryfin í varnarlínu Rússa þar.
  • Spurningin er um gæði þess hers er ver hana, en ef það eru fyrst og fremst - óreyndir conscript - er óvíst að slíkir verjendur hafi mikið þan-þol.

Enn liggur ekki fyrir að Úkraínuher, nái þar eiginlegu gegnumbroti.
Sá her hafi samt komist yfir á, á svæðinu - er getur skipt máli síðar meir.
Og lið Úkraínu, sé nærri vegi er Rússar nota, geta líklega skotið á umferð - með stórskota-vopnum.

Þetta er dálítið eins og Rússar og Úkraínumenn, séu -- boxarar.
Annar boxar með öðrum hramminum, meðan hinn verst þeim höggum -- meðan að hrammurinn á hinni hendi sé notaður til að ráðast að hinni hlið mót-aðila.

  1. Spurningin sé, því að línur Rússa eru nú langar orðnar í Úkraínu.
  2. Hvort -frumkvæðið- gæti færst yfir til Úkraínu?

En ef Rússar hætta geta sóknt fram, verður það hlutverk Úkraínu, að prófa varnir Rússar hér og þar, í leit að veikum hlekkjum til hugsanlegs gegnumbrots.
Það hefur einmitt verið spurningin, hvenær til-færslan á frumkvæðinu verður.

Mig grunar að sá tími sé nærri!

Russia-Ukraine war: day 102

understandingwar.org - Ukraine Conflict Updates

Oryx - Documenting Russian Equipment Losses During The 2022 Russian Invasion Of Ukraine

Tölur Oryx yfir tjón Rússa á hertækjum eru stöðugt áhugaverðar!

Oryx - Documenting Ukrainian Equipment Losses During The 2022 Russian Invasion Of Ukraine

Á móti, tölur Oryx yfir tjón Úkraínu á hertækjum!

  • Oryx - birtir einungis staðfest tjón, sbr. skv. gerfihnatta-greiningu!
    Alltaf mynd við sérhvert -claim.-

 

Niðurstaða
Orrustan á svæðinu nærri Sieviero Donets ánni, eða Donets á -- heldur áfram. Orrustur á því svæði hafa nú staðið yfir samfellt nær mánuð.
Og eru líklega á leið að verða hörðustu orrustur stríðsins, mannfall er óþekkt.
En þó augljóslega mikið -- staðfest t.d. mikið manntjón Rússa, er Rússar reyndu að brjóta sér leið yfir - Donets um miðjan maí.
Augljóslega, hefur mannfall haldið áfram, og þ.s. Rússar sækja fram, hlýtur þeirra manntjón áfram að vera mikið.

Augljóslega er manntjón Úkraínu, einnig töluvert, hinn bóginn hefur Úkraína -- kosti þess að vera í vörn, auk þess vopna-búnaður Úkraínu nú sumpart er betri.
Það sem Rússar hafa á móti, er yfirburðir í stórskota-liði, þ.e. flr. fallbyssur.

Hinn bóginn, þíða yfirburðir Úkraínu í skriðdreka-flaugum.
Að sérhvert sinn, Rússar beita bryn-vörðum tækjum, þá bíða Rússar stórfellt tjón!
--Að sjálfsögðu hafa Úkráinumenn yfirburði þar, eftir gjafir NATO á yfir 30þ. slíkum flaugum.

Ég tel mig hafa ástæðu að - gruna - að her Rússa sé að blæða út.
Þ.s. hann sé sl. mánuð, eingöngu með sókn í Luhansk héraði.
--Þ.s. núverandi orrustur og orrustur undanfarins mánaðar hafa staðið yfir.

Eina orrustan önnur, sé atlaga Úkraínumanna nærri Kherson.
Er enn veki litla atygli, þ.s. sú sókn hafi ekki enn náð stóru gegnumbroti.
Hún hafi þó greinilega þrýst á varnarlínur Rússa þar!
--Þarna eru Úkraína og Rússar -- eins og boxarar með 2 hramma.

Slá til hægri eða vinstri!
Nú er eins og báðir boxararnir - standi nokkuð jafnt að vígi.
--Ég held samt, að rússn.boxarinn sé farinn að þreitast, meðan að Úkraína sé að styrkjast, sérstaklega gríðarlega auknar vopnasendingar.

Samtímis sé mjög greinilegt að Rússa-her lýði versnandi skort á tækja-búnaði.
Auk augljóss skorts á þjálfuðum einstaklingum!

  • Tjónið í átökum, hljóti að vera auka við þann skort!
  • Samtímis, og Úkraína hafi framleiðslu allra Vesturlanda sem - bakland.

Þess vegna tel ég ljóst, að það sé farið að halla á Rússa.
Og héðan í frá líklega í auknum mæli, verði sú staða skýrari og skýrari.

Þess vegna grunar mig að Pútín eigi eftir að óska eftir almennu vopnahléi innan 2ja til 3ja vikna!
En reikna með því, að Úkraína hafni því boði!

 

Kv.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Borgþór Jónsson

Það er kaldhæðni örlaganna að á meðan þú varst að skrifa þessa lofgrein um Úkrainska herinn þá fór rússneski herinn yfir Donets ánna við bæinni Svyetagorsk og tryggði sér aðstöðu þar og eyðilagði stóroskoralið Úkrainu sem varði ána á þessu svæði.
Liðsafnaður Úkrainumanna sem hafði haldið nokkrum bæjum austan við ána lagði á flótta og skildi eftir öll þungavopn sem þeir höfðu á svæðinu ,enda var búið að sprengja upp einu brúna sem tiltæk var.
Það furðulega er að Úkrainumenn höfðu sjálfir sprengt upp brúna
Að sjálfsögðu varð mikið mannfall í röðum Úkrainumanna á flótanum og margir voru teknir höndum að auki.
Þetta gjörbreytir stöðunni á vesturbakka Donets og nú er leiðin nokkuð greið fyrir Rússneska herinn til Slavyansk þar sem aðalstöðvar Úkrainska hersins á Donbass eru til húsa.
Jafnframt gefur þetta sóknmöguleika til að koma aftan að hernum sem heldur aftur af því að Rússar komist yfir ána við Severodonetsk.
Donets er því ekki lengur farartálmi fyrir Rússneska herinn.
Það virðist sem tjón Úkrainumanna hafi verið mikið ,bæði í mannafla og sérstaklega vopnabúnaði,enda var þessi árás algerlega óvænt.
Þegar það brestur á flótti í her, eins og gerðist þarna er tjónið alltaf mikið.
Það er ekki nóg með að vígstöðvar Úkrainu austan árinnar hafi þurrkast út, heldur þurfa Úkrainumenn líka að endurskipulegja varnirnar vestan við ána ,af því að enginn reiknaði með sókn Rússa úr þesari átt.
Þetta er stóráfall fyrir Úkrainska herinn að missa þessa náttúrulegu hindrun.
.
Það er ekki að sjá að Úkrainumenn hafi neina burði til gagnsóknar .
Þeir tapa stöðugt landsvæði og hermönnum hvern einasta dag.
Stundum lítið en stundum mikið eins og í gær.
Allar gangsóknir sem Úkrainumenn hafa reynt hafa farið út um þúfur og hafa kostað þá mikið ,ekki síst hersýning þeirra í Severedonetsk sem fór fram í tilefni komu Zelensky á svæðið.
Þeir töpuðu ávinningnum strax og guldu afhroð.
.
Það eru ekki miklar líkur á að vopnasendingar til Úkrainuu skili miklu.
Þær vega aðeins upp lítinn hluta af þeim sambærilegu vopnum sem þeir hafa misst nú þegar.
Það er ekki eins og að það sé verið að senda þeim einhver töfravopn sem þeir hafa ekki haft ráð yfir áður.
.
Vörn Úkrainu líkist sífellt meir vörn Þýskalnands Nasisita á síðustu vikum seinni heimstyrjaldarinnar og loftkastalarnir sem stjórnvold eru að útvarpa til almennings eru svipaðir.
Úkrainumenn verjast vel þegar þeir hafa fyrirframgerðu víglínurnar ,en þess á milli hörfa þeir hratt.
Þeir geta heldur aldrei haldið þessum víghreiðrum til lengdar. Þeir þurfa alltaf að láta undan síga fyrir eða seinna.
Úkrainumenn eru að tapa stríðinu á Donbass svæðinu og það er ekkert sem getur snúið því við.




Borgþór Jónsson, 8.6.2022 kl. 09:39

2 Smámynd: Einar Björn Bjarnason

Boggi minn, eins og alltaf þá er megin-partur þess þú skrifar, tómt bull og kjaftæði, það virðist á hinn bóginn, Rússar hafi náð þann 9/6 minni-háttar sókn í átt að Slovyansk; ég að sjálfsögðu tek í engu mark á því sem þú hefur upp úr rússn. fjölmiðlum - að taka mark á rússn. fjölmiðlum, er ca. eins og taka mark á pressu Nasista í Seinni-Styrrjöld - Rússland er í dag hinir eiginlegu Nasistar, og sorglegt hvernig þú fylgir að málum nasistum seinni tíma. Að sjálfsögðu bíð ég eftir því, að aðilar í engum tengslum við Rússl. - staðfesti það, að ef það gerist, að rússn. her nái að þvinga fram - yfirráð yfir nokkrum fer-metrum að landi til viðbótar, væntanlega sérhvert sinn borgað með enn einni ánni af rússn. blóði. En þú virðist fullkomlega blindur á það, að sá maður sem þú dýrkar, húsbóndinn í Kreml, er nú skrímsli -- sem ber nú alla ábyrgð á mannfalli hugsanlega svo mikið sem 30K af Rússum, og hugsanlega svo mikið sem 50K af Úkraínu-fólki -ef maður telur líklegt mannfall almennra borgara- þú ert orðinn svo steingeldur -- að þú kóar með skrímslinu og glæpum hans.
Kv.

Einar Björn Bjarnason, 12.6.2022 kl. 19:44

Bæta við athugasemd

Nauðsynlegt er að skrá sig inn til að setja inn athugasemd.

Um bloggið

Einar Björn Bjarnason

Höfundur

Einar Björn Bjarnason
Einar Björn Bjarnason
Stjórnmála- og Evrópufræðingur. Áhugi á stjórnmálum, Evrópumálum, alþjóðamálum, málefnum Miðausturlanda, trúmálum, vísindum og tækni, og margt fleira.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Eldri færslur

2024

2023

2022

2021

2020

2019

2018

2017

2016

2015

2014

2013

2012

2011

2010

2009

2008

Nýjustu myndir

  • Mynd Trump Fylgi
  • Kína mynd 2
  • Kína mynd 1

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 32
  • Sl. viku: 467
  • Frá upphafi: 847118

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 443
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband