Tyrkland á leiðinni að verða mjög nauðsynlegt ríki fyrir Evrópuþjóðir

Samningar Tyrkja og Evrópusambandsins virðast virkilega spennandi, en það virðist bersýnilegt að flóttamannakrísan er að auka mjög vægi Tyrklands -- góð fréttaskýring tæpir á meginatriðum, sem ef ná fram, munu gerbreyta samskiptum Tyrklands og ESB.
Gera það samband miklu mun nánara en áður!

EU set to postpone decision on Turkey migrant plan

http://www.lib.utexas.edu/maps/middle_east_and_asia/turkey_physio-2006.jpg

Forsætisráðherra Tyrklands lagði fram á fundi með leiðtogum ESB aðildarríkja mjög djarft tilboð

  1. "Turkish Prime Minister Ahmet Davutoglu told the 28 EU leaders that Ankara was willing to take back all migrants who enter Europe from Turkey after a set date, as well as those intercepted in its territorial waters..."
  2. "In exchange for stopping the influx, Davutoglu demanded a doubling of EU funding through 2018 to help Syrian refugees stay in Turkey..."
  3. "...and a commitment to take in one Syrian refugee directly from Turkey for each one returned from Greece's Aegean islands."
  • "He also sought to bring forward visa liberalization for Turks to June from late this year and to open more negotiating chapters in Turkey's long-stalled EU accession process."

Davutoglu er í reynd að heimta það að aðildarviðræður ESB við Tyrkland - sem hafa verið í frosti um árabil, verði hafnar að nýju.

Tyrkneskir ríkisborgarar mundu fá sömu heimildir til ferðalaga um ESB aðildarlönd - og Íslendingar í dag hafa.

  1. En án vafa, er mikilvægasta tilboðið -- að samþykkja að taka aftur við öllum flóttamönnum sem koma til ESB aðildarlanda í gegnum Tyrkland.
  2. Hugmyndin virðist vera sú -- að binda endi á ferðir flóttamanna á skriflum yfir á tvær grískar eyjar nærri ströndum Tyrklands.
    "Davutoglu's spokesman said..." - "Our aim is to go further with game-changing ideas," ... "end the tragedy in the Aegean".
  3. Það sé mikilvægur þáttur í þeirri áætlun -- að aðildarlönd ESB, samþykki að taka á móti út flóttamannabúðum, sama fjölda af sýrlenskum flóttamönnum og Tyrkir taka aftur við frá Ítalíu eða Marmarahafi.

    En með því virðist hugmyndin að senda þau skilaboð til flóttamannabúða -- að flóttamenn frá Sýrlandi, fái landsvist í Evrópu -- þeir þurfi ekki að fara í þessa hættuför.

Einn helsti veikleiki áætlunarinnar -- er sjálfsagt vilji aðildarþjóða ESB, að veita þeim fjölda sem Tyrkir fara fram á af sýrlenskum flóttamönnum hæli.

Og þ.e. auðvitað umtalsvert fé sem Tyrkir fara fram á sem stuðning við milljónir flóttamanna innan Tyrklands.
En kannski ekki ósanngjörn krafa.

 

Niðurstaða

Ég geri ráð fyrir að af þessu samkomulagi verði, í þeim meginatriðum sem eru nefnd, þannig að við taki nýtt tímabil miklu mun nánari samskipta Tyrklands og ESB aðildarlanda. Ég á þó ekki von á aðild Tyrklands að ESB - en vandinn við það fyrir aðildarþjóðir ESB er ekki síst --> Stærð og umfang Tyrklands, þ.e. skv. reglum ESB - fengu Tyrkir líklega flesta þingmenn á Evrópuþinginu og að auki a.m.k. eins mikil áhrif og Þýskaland innan stofnana m.a. ráðherraráðsins - útkoma sem mundi mjög verulega breyta valdajafnvæginu innan sambandsins.

Það sé alveg burtséð frá öðrum atriðum, sbr. átökum tyrklandsstjórnar við Kúrda, og spenna í samskiptum milli Tyrklands og Rússlands, og ekki síst - aðför Erdogans að frelsi fjölmiðla.

Það verði þó a.m.k. ljóst - að ESB taki ekki afstöðu gegn Tyrklandi í deilum við Rússlands, ef af þessu -bandalagi- Tyrklands og ESB verður; sem mér virðist sennilegt úr þessu.

  • Þetta sé mikilvæg ákvörðun aðildarþjóða ESB - sem muni skipta verulegu máli fyrir áhrif Tyrklands út á við, örugglega til eflingar þeirra áhrifa.
  1. Hvað sem má segja um Erdogan, þá hefur hann staðið sig í uppbyggingu efnahags Tyrklands, en sl. 15 ár hefur verið miklu meiri hagvöxtur í Tyrklandi en í nokkru ESB aðildarlandi -- í Tyrklandi hafi kjör fólks verulega batnað á þeim árum.
  2. Að auki, er þetta ekki -einnar víddar hagkerfi sbr. Rússland Pútíns- heldur er um að ræða nútíma vestrænt hagkerfi með áherslu á viðskipti - verslun - þjónustu og að auki, framleiðslu.
  • M.ö.o. ber ég verulega mikla virðingu fyrir þeirri uppbyggingu sem hefur átt sér stað í Tyrklandi -- sem ef hún heldur áfram, stefnir í að gera Tyrkland að efnahagsveldi innan nk. 20 ára -- án gríns.

Ég held að Tyrkland hafi miklu meiri möguleika en Rússland - sem virðist eingöngu stara á útflutning á olíu og gasi, vera eins háð því í dag og fyrir rúmum 20 árum.

En með þessu áframhaldi verður tyrkneska hagkerfið innan ekki margra ára -- miklu mun stærra hagkerfi en það rússneska.

  • Þá spái ég því að menn fari að tala um nýtt --> Tyrkjaveldi.


Kv.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sama gamla kjánaspáin ... gersamlega blindur, fyrir Rússagrílunni.  Fer sömu leið, og spárnar um Ukraínu, og Rússland í Sýrlandi.

Samþykktir Tyrklands og Evrópu, eru gerðar af örþrifaráðum. Pólitískt sjálfsmorð af hálfu Evrópu, svipað eins og þegar Merkel bauð alla flóttamenn velkomna.  Tyrkland er ekkert framleiðsluland og hefur littla framtíð, en minna sem eitthvað stórveldi.  Tyrkland mun upplifa að stjórnar andstaða þar verður vopnuð, frá Armenum, og Kúrdum ... sem mun gera Tyrkland enn valtara í sessi en áður.  Það sem Evrópa hefur fyrir stafni, mun skapa enn meiri óánægju en áður, og enn meiri spennu milli Evrópu búa og mið-austurlandabúa, eða flóttamanna.  Tyrkland mun spila sama "vafasama" spil og áður, sem er fyrst og fremst spil glæpaklíku sem er að hagnast á því að fá þvingunarpeninga úr Evrópu.  Evrópa hefur engin efni á því, og er á hausnum.

Framtíð Evrópu er "fall" ... og Framtíð Tyrklands, er ríkjaskipting, og nýskipulag.

Og þessar breitingar, bæði hjá Tyrklandi og Evrópu gerist ekki sársaukalaust.

Bjarne Örn Hansen (IP-tala skráð) 7.3.2016 kl. 23:21

2 Smámynd: Einar Björn Bjarnason

Bjarne, LOL, nei ég stend við það - að nútíma Tyrkland standi Rússlandi Pútíns langtum framar hvað efnahags uppbyggingu varðar -- í sbr. er uppbygging Pútíns gersamlega misheppnuð, og eiginlega - lokað sund.

Findið eiginlega að halda því fram, að hin bláfátæka Armenía geti verið ógn fyrir Tyrkland - Kúrdar eru klofnir í fylkingar þ.e. Peshmerga gætir þess að halda Tyrkjum góðum, meðan að staða sýrl. kúrda á landamærunum er mjög viðkvæm - tyrkneski herinn geti hvenær sem er tekið þau landamærasvæði, og það án þess að Rússl. eða sýrl. eða Íran - hafi mikla raunhæa möguleika til afskipta þar um.

Rússland í hraðri hnignun - getur ekki lengi haldið uppi núverandi stefnu.

    • 2-framtíðar lönd í Mið-austurlöndum, þ.e. Tyrkland -- sem í framtíðinni nái sennilega Kákasus af Rússlandi, þó ekki nk. 20 ár -- Rússl. þarf að hnigna meir.

    • Og Íran, sem líklega verði eins og í gamla daga, einnig Kákasus veldi - þannig að það verði eins og í tíða Osman veldisins á hátindinum og Írans á hátindi Shíta ríkisins þar að þau skipti Kákasus sín á milli.

    Rússland í framtíðinni - muni án efa, tapa miklum landsvæðum.
    Það sé söguleg og mjög mikil hnignun þar framundan.

    Stórum hluta Pútín að kenna, að hafa gersmlega klúðrað uppbyggingu þess lands, og nú þeirri stefnu - að í stað þess að byggja landið upp, hefur hann átök af fyrra bragði við Vesturlönd -- og við þau eyðir stórfé sem aldrei mun nýtast Rússlandi, samtímis og hnignun þess heldur samhliða áfram, þannig flýtir hann fyrir hnignung þess í stað þess að sporna við henni eða hægja á.

    Til lengri tíma litið - verði það megin áhrif þeirra átakasyrpu, að auka hnignunarhraðann.

    Kv.

    Einar Björn Bjarnason, 8.3.2016 kl. 00:17

    Bæta við athugasemd

    Nauðsynlegt er að skrá sig inn til að setja inn athugasemd.

    Um bloggið

    Einar Björn Bjarnason

    Höfundur

    Einar Björn Bjarnason
    Einar Björn Bjarnason
    Stjórnmála- og Evrópufræðingur. Áhugi á stjórnmálum, Evrópumálum, alþjóðamálum, málefnum Miðausturlanda, trúmálum, vísindum og tækni, og margt fleira.
    Maí 2024
    S M Þ M F F L
          1 2 3 4
    5 6 7 8 9 10 11
    12 13 14 15 16 17 18
    19 20 21 22 23 24 25
    26 27 28 29 30 31  

    Eldri færslur

    2024

    2023

    2022

    2021

    2020

    2019

    2018

    2017

    2016

    2015

    2014

    2013

    2012

    2011

    2010

    2009

    2008

    Nýjustu myndir

    • Mynd Trump Fylgi
    • Kína mynd 2
    • Kína mynd 1

    Heimsóknir

    Flettingar

    • Í dag (7.5.): 1
    • Sl. sólarhring: 55
    • Sl. viku: 274
    • Frá upphafi: 847496

    Annað

    • Innlit í dag: 1
    • Innlit sl. viku: 271
    • Gestir í dag: 1
    • IP-tölur í dag: 1

    Uppfært á 3 mín. fresti.
    Skýringar

    Innskráning

    Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

    Hafðu samband