Grikklandi settir þeir úrslitakostir að uppfilla allan óskalista kröfuhafa fyrir fimmtudag, svo til greina komi að ræða 3-Björgun Grikklands

Reuters birti aðgerðalista þann sem aðildarlönd Evru, AGS, Seðlabanki Evrópu og Framkvæmdastjórn ESB - - hafa sett ríkisstjórn Grikklands fyrir. En þetta er enginn smáræðis pakki, sem þarf að klára að lögleiða á nk. miðvikudag - svo fundur aðildarlandanna og annarra kröfuhafa á nk. fimmtudag, sé tilbúinn að taka mál Grikklands fyrir.

Greece must do more to earn rescue

Ef Grikkland uppfylli ekki öll skilirðin - - fái landið ekki frekari fyrirgreiðslu. Síðan bætast við -styrkjandi aðgerðir- sem hugmyndir um má sjá í plaggi sem birtist á síðu Reuters. En vandi er að Grikkland hefur greinilega orðið fyrir verulegu viðbótar efnahagstjóni undanfarið. Sem þíðir augljóslega - - að greiðslugeta landsins hefur minnkað. Í þessu plaggi má sjá hugmyndir sem lágu fyrir fundinum, um það hvað sé hugsanlega unnt að gera í framhaldinu:

Eurogroup proposal on Greece

Þetta tiltekna skjal - - er uppkast er lág fyrir fundinum.

Ekki endanlegt form þess m.ö.o. Svo ekki má taka það of hátíðlega.

  1. Það virðist aftur á móti ljóst, að Grikkland verður að uppfilla öll skilirðin áður fram sett.
  2. Annað sem nefnt er í skjalinu, virðast ófullmótaðar hugmyndir, um það - hvað Grikklandi mun verða sett fyrir í framhaldinu.
  3. En reikna má fastlega með nýjum skilirðum - - það má sennilega lesa út úr þessu plaggi, hvað sé sennilegt form slíkra viðbótarkrafna.

En hugmyndin um sölu ríkiseigna upp á 50ma.€ kom fyrst fram, rámar mig - 2011. En reyndiast langt í frá framkvæmanleg þá. Líkur á að svo stórfelld sala komist til framkvæmda, virðast ekki betri í dag.

Þarna er sennilega komin krafa ríkisstjórnar Þýskalands - - sem virðist vilja að grískar ríkiseignir verði í hlutverki -veðs- á móti nýju láni, sem gæti orðið svo hátt sem 80ma.€.

 

Það verður forvitnilegt að fylgjast með viðbrögðum ríkisstjórnar Grikklands

Annars vegar er um að ræða, að hrinda í gegn niðurskurðaraðgerðum sem fyrri ríkisstjórn tókst ekki að hrinda í framkvæmd. Síðan liggur þegar fyrir, þó ekki sé enn ljóst - - akkúrat hverjar viðbótar kröfur til Grikklands verða; að mjög erfið fyrir Grikkland viðbótar kröfugerð mun birtast á fundi aðildarlandanna á nk. fimmtudag - ef við gerum ráð fyrir að gríska ríkisstjórninni takist að lögsetja þann lagabreytingarpakka sem grísku ríkisstjórninni hefur verið sett fyrir að klára í síðasta lagi nk. miðvikudag.

  • Miðað við hugmyndir sem sjá má í plagginu hlekkjað á að ofan, er ljóst að kröfuhafar eru með þeim hugmyndum - - að leitast við að verja sig fyrir frekara tapi.

Ég velti fyrir mér hvað er í gangi í Aþenu, en ef ríkisstjórnin er raunverulega tilbúin að mæta kröfum aðildarlandanna fyrir nk. fimmtudag - - þá er það mjög veruleg viðhorfsbreyting innan Syriza flokksins.

Nema auðvitað, að Alexis Tsipras - hafi tekið þeirri áskorun frá stofnunum ESB, AGS og aðildarlöndum - - að kljúfa sinn eigin flokk, þ.e. vinna með þeim sem vilja styðja þær lagabreytingar sem kröfuhafar krefjast að verði lögsettar síðasta lagi á miðvikudag, þ.e. þeim þingmönnum eigin flokks sem eru tilbúnir að styðja þann lagasetningarpakka + hverja þá aðra þingmenn frá öðrum flokkum, til vinstri og hægri.

  1. En ef Tsipras gerir þetta.
  2. Þá líklega eyðileggur hann sinn eigin flokk.
  3. En á sama tíma, stórfellt efa ég að hann verði að hetju í augum almennings.

En hann yrði að hetju í augum allra forréttindahópanna í landinu. Og auðvitað, kröfuhafa.

M.ö.o. þá sé ég ekki að Tsipras geti framkvæmt þetta, án þess að leggja sinn eigin flokk í rúst. Kannski er hann tilbúinn til þess núna.

En ég er mjög efins, að hann lifi það af í pólitískum skilningi.

En sá harði niðurskurður sem verður þá framkvæmdur, mun að sjálfsögðu - dýpka frekar kreppuna í landinu. Og fjðlga atvinnulausum - og skerða kjör þess stóra hóps sem er á bótum.

M.ö.o. væri þetta beint framhald af niðurskurðarstefnunni - sem haldið hefur verið í gangi samfellt sk. 5 ár, skv. kröfu kröfuhafa.

  • Gríska hagkerfið gæti sigið 10% til viðbótar við þau nærri 30% sem það var þegar búið að síga.
  • Svo mundi hellast yfir Grikkland frekari lánapakki, svo landið geti haldið fyrri lánum gangandi - - og krafa um bruna-sölu ríkiseigna, virðist líkleg.

Á þessari stundi treysti ég mér engan vegin að vita - hvað Tsipras mun gera.

En suma dagana talar hann á þann veg, að hann hljómar eins og hægri krati - - svo hnippa bersýnilega róttækir vinstri mennirnir í hann, og þá allt í einu heldur hann ræður þ.s. hann hljómar eins og einn af þeim.

En hver er - - Alexis Tsipras? Er hann kannski eins og vindhandi, sem sveiflast eftir því - hver hastar á hann síðast?

 

Niðurstaða

Syriza flokkurinn hefur fengið nýja úrslitakosti - - að hrinda í framkvæmd öllum þeim niðurskurðaraðgerðum og lagabreytingum, sem hugsað er að auki skilvirkni gríska hagkerfisins - í síðasta lagi nk. miðvikudag. En fyrir fund aðildarlandanna nk. fimmtudag, ef ríkisstj. Sýriza mætir úrslitakostum kröfuhafa frá fundinum á Sunnudag -- > liggja fyrir hugmyndir að - næsta aðgerðapakka sjá plagg hlekkjað á að ofan.

En ljóst er, að Grikkland mun fá strax annan aðgerðapakka - og sá líklega a.m.k. hálfu erfiðari en sá fyrri. En þá hefjast samningar um "Björgun-3" - - þannig að Syriza flokkurinn stendur frammi fyrir því; að ofurselja landið vilja kröfuhafa - nk. ár.

Ætlar Syriza flokkurinn að éta ofan í sig, alla sína fyrri gagnrýni?

Ætlar hann að ganga í sama hlutverk og fyrri ríkisstjórnir Grikklands, síðan kreppan hófst 2010; sem hefur að því er best verður séð verið að framkvæma fyrirmæli kröfuhafa, þegar þau fyrirmæli koma fram.

Höfum í huga - að kröfuhafa eru að hugsa um sína hagsmuni.

Sem ekki endilega eru það sama og hagsmunir landsins.

 

Kv.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Nauðsynlegt er að skrá sig inn til að setja inn athugasemd.

Um bloggið

Einar Björn Bjarnason

Höfundur

Einar Björn Bjarnason
Einar Björn Bjarnason
Stjórnmála- og Evrópufræðingur. Áhugi á stjórnmálum, Evrópumálum, alþjóðamálum, málefnum Miðausturlanda, trúmálum, vísindum og tækni, og margt fleira.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Eldri færslur

2024

2023

2022

2021

2020

2019

2018

2017

2016

2015

2014

2013

2012

2011

2010

2009

2008

Nýjustu myndir

  • Mynd Trump Fylgi
  • Kína mynd 2
  • Kína mynd 1

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 33
  • Sl. sólarhring: 50
  • Sl. viku: 312
  • Frá upphafi: 847305

Annað

  • Innlit í dag: 32
  • Innlit sl. viku: 303
  • Gestir í dag: 32
  • IP-tölur í dag: 30

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband