Ný innrás Rússlands fyrirhuguð í Úkraínu? Liðssafnaður á stærð við liðssafnað Bandaríkjanna er ráðist var inn í Írak 2003, vekur spurningar! Munu fundir Bidens við Pútín skipta koma í veg fyrir stríð?

Besti tími til innrásar væri snemma á útmánuðum 2022 þegar kaldast er í ári, jörð frosin - þannig skriðdrekar eigi hvað auðveldast með að far um. Ef Rússland fyrirhugar innrás á annað borð, væri það hagstæðast í janúar eða febrúar nk.

The Ukrainian army has got better at fighting Russian-backed separatists: Besides, the 100,000 Russian troops massed near the border are more than mere theatre; Russia is setting up field hospitals and calling up its reserves.

Á gerfihnatta-öld er ekki hægt að fela meiriháttar liðssafnað -- það sé enginn vafi að hann sé þegar ca. á þeim mælikvarða, er Bandaríkin réðust inn í Írak -- þegar menn sjá að verið sé að hrófla upp, spítulum - birgðastöðum, ekki einungis liðssafnaði.
Þá lítur þetta eins og undirbúningur fyrir innrás.

Bandaríkjaher, sagðist hafa upplýsingar um fyrirhugaða aðgerð með 175þ. manna liðsafla, í Janúar 2022. Jafnvel þó að - megi deila um trúverðugleika þeirrar fullyrðingar - sést vel frá gerfihnöttum að stöðugt er verið að bæta í.
Þannig að langt í frá sé augljóslega útilokað að það sé einfaldlega rétt.

Í annan stað, er úkraínski herinn miklu mun betri en hann var 2015 - með aðgengi að 300.000 bardagaþjálfuðum mönnum; en á móti kemur að sá her er gíraður til að eiga í skæru-átökum, ekki meiriháttar landstríði.

Rétt þó að nefna, að Úkraína ræður yfir mörgum samskonar vopnum og Rússland notar, þ.e. sambærilegir skriðdrekar -- þó öðruvísi uppfærðir með vestrænum tölvum. Rússneski herinn auðvitað, ræður yfir miklu fleiri skriðdrekum.
Engin leið er fyrir leikmann að ákveða hvernig fer -- hvernig svarar maður fullyrðingum að Rússneski herinn færi í gegn eins og hnífur í gegnum smjör.
--Einfaldlega óþekkt.

Ég væri a.m.k. hissa, að ef Úkraínski herinn, hafi ekki a.m.k. undirbúið sig fyrir mögulega innrás; en til að mæta innrás af slíku tagi - þarf djúpar varnarlínur og mikið magn sérstaklega af skriðdreka-eldflaugum, og auðvitað loftvarnarflaugum.
--Og auðvitað beita eigin skriðdrekum, þegar það á við.

  1. NATO gæti bætt stöðu Úkraínu, með því að afhenda -- betri skriðdreka-flaugar, og loftvarnarflaugar.
  2. Og auðvitað dróna - svo unnt sé að fylgjast með öllum hreyfingum á bardagavelli.

Mjög margir sem ræða um hugsanlegt stríð - eru skeptískir að Rússland standi í þessu.
Því að Rússland sé veikt land efnahagslega - segjum t.d. ef mikill fjöldi úkraínskra hermanna, mundi beita skæru-hernaði í stað þess, að standa beint á móti rússneska hernum?
--Þannig mætti hugsa sér að, Rússland næði svæðum -- en stæði í stöðugum afar umfangsmiklum skæruhernaði, meðan íbúar hjálpuðu úkraínskum skæruliðum.

Úkraína pent hafnaði þeim afarkostum sem Pútín heimtaði að Úkraína skrifaði undir.
Og berðist áfram, þannig þvingaði Rússland í að leita leiða til að sækja stöðugt fram, þá samtímis þurfa að glíma við stórfelldan skæruhernað á sífellt stærra landsvæði.
--Það má alveg hugsa sér, að fyrst her Úkraínu sé gíraður frekar til að berjast við skæruliða, þá sé hann samtímis skipulagður fyrir skæruhernað.

  • Rússland m.ö.o. gæti lent í því, að efnahagslega ráða ekki við slíkan hernað til langs tíma, og þá standa frammi fyrir erfiðum valkostum!
  • Auðvitað mundu stórfelld átök í Úkraínu, gera refsiaðgerðir mun grimmari en áður -- og ég mundi ætlað, að samúð með Úkraínu í Evrópu, mundi þíða að Úkraína fengi nóg af vopnum til að viðhalda átökum.

Stríðið yrði þá að -proxy war- fyrir NATO, en heitu stríði fyrir Rússland.
Ég á erfitt með að trúa því að Rússland hefði úthald til langs umfangsmikils skærustríðs.

Putin’s choice: Hot war or a deeply frozen conflict

Pútín hefur tekist að gera Úkraínu heilt yfir -- afar hlynnta vesturlöndum.
Þó að er dregur nær landamærum Rússlands, þynnist sú afstaða út.

58% back Ukraine's accession to NATO, 62% want Ukraine to join EU

Ekki virðist líklegt að Biden forseti geti veitt Pútín það sem Pútín líklega vill.
En NATO vill ekki t.d. skrifa undir það, að Úkraínu sé bönnuð aðild um alla framtíð.
Samtímis, er aðild að NATO ekki sennileg í nærtíma.
--En sú pólitíska afstaða gæti tekið breytingum síðar.

Efnahagslega séð er Úkraína sterkara landa en 2014, og samstaða íbúa virðist hafa vaxið.
Bendi á, það þarf ekki að fara saman, að rússnesku mælandi hluti Úkraínu -- vilji endilega búa undir Pútín. Eftir allt saman, hafa þeir miklu meira frelsi í Úkraínu.
Og efnahagsleg framtíð Úkraínu er ekki endilega neitt augljóslega slæm.
--Mörgu leiti er Úkraína öfugt byggð upp við Rússland, þ.e. mun veikara ríkisvald og verulega til muna veikari miðsstýring - ásamt miklu meira athafnafrelsi íbúa.

  • Mig grunar hreinlega, að það sé -- frjáls Úkraína, sem Pútín óttast svo.
    Óttinn um að, frjáls Úkraína -- einfaldlega gangi upp.

 

Niðurstaða

Í mínum augum væri stór innrás sambærileg mistök og fyrir Bandaríkin það var að ráðast inn í Írak -- jafnvel þó að Úkraínski herinn - kannski - ætti ekki roð í beinum stórátökum við Rússlandsher, þá tæki - tel ég víst - við í framhaldi stórfellt skærustríð, við bardagareynda Úkraínu hermenn - vel þjálfaða, og vopnaða.
Og ég mundi ætla, að innrásin mundi leiða til slíkrar samúðarbylgju í Evrópu og í Bandaríkjunum, að Úkraínu-mönnum væri alltaf tryggð næg vopn til að halda baráttunni áfram.

M.ö.o. sé ég ekki slík átök enda vel fyrir Rússland. En það má alveg sjá fyrir sér svipaða útkomu, er átök í Afganistan a.m.k. áttu hlut líklega að hruni Sovétríkjanna.

Veik efnahagslega, entist getan til að halda áfram líklega ekki mjög lengi.
A.m.k. ekki mjög mörg ár.

Í kjölfarið væri Rússland síðan búið að tapa Úkraínu fyrir alla framtíð.

 

Kv.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Þórhallsson

Hvernig er með NEITUNAR-VALDIР

sem að þjóðirnar í ÖRYGGISRÁÐINU hafa

er það alveg marklaust fyribæri?

Jón Þórhallsson, 5.12.2021 kl. 22:01

2 Smámynd: Borgþór Jónsson

Rússar eru ekki að íhuga innrás í Úkrainu,enda hafa þeir engann haga af því.
Þó að núverandi staða sé ekki sú besta fyrir Rússland er hún samt ekki á neinn hátt óbærileg fyrir þá.
Tíminn vinnur með þeim.
Það er hinsvegar alveg ljóst ,og Rússar fara ekki í laukofa með það , að Úkrainska hernum verður eytt ef hann ræðst á Donbass.
Lavrov hefur einnig sagt að ef sú staða kæmi upp mundi Úkraina hætta að vera til í núverandi mynd.
Það sem hann á væntanlega við er að rússar muni taka yfir allt landsvæði austan Dnépr og loka aðgangi þess hluta Úkrainu sem eftir er að sjó.
Þá verða væntanlega set upp landamæri við Dnépr.
Líkurnar á að íbúar þess svæðis leggist í skæruhernað eru nálægt því að vera núll.
Möguleikar Úkrainu til að helda úti skæruhernaði þvert á Rússnesk landamæri við Dnépr eru nánast engir.
Hafa ber í huga að Úkraina sem hefur misst megnið af iðnhéruðunum auk aðgengis að sjó er ennú veikara ríki en núverandi ríki ,sem er þó ekki beysið.
Úkrainuher er í engum færum til að veita Rússumm andspyrnu vegn illa búins og gamaldags hers, auk þess sem herinn er í móralskri lægð eftir níu mánaða veru í skotgröfum við frumstæðar aðstæður.
.
Vesturveldin eru hinsvegar í standandi vandræðum með þetta afkvæmi sitt.
Bæði er það að Úkraina er á hraðri leið í þrot,höktir einungis áfram að´sífelldum innspýtingum frá Vesturlöndum.
Til að  bæta gráu ofan á svart óttast forystumenn NATO að Úkraina muni ögra Rússum með því að hefja árás á Donbass.
Vesturveldin hafa enga möguleika á því að skerast í leikinn, af því að það mundi einungis þýða auðmýkjandi ósigur.
Jafnvel þó þau skerist ekki í leikinn þýðir það alvarlega auðmýkingu fyrir Neoconana sem hafa marg lýst yfir afdráttarlausum stuðningi við Úkrainustjórn.
Það er ekki beint sannfærandi fyrir aðra skjólstæðinga þeirra ef NATO bregst þessum skjólstæðingum sínum með þessum hætti.
.
Þá er eftir síðasta haldreipið sem er efnahagsþvinganir.
Gallinn við þær að það er þegar búið að leggja allar viðskiftaþvinganir á Rússa sem hægt ar,án þess að valda Evrópu stór tjóni.
Eins og staðan er í dag mundi Evrópa án efa verða mun verr úti í slíku stríði heldur en Rússland.
Vissulega eru Bandaríkjamenn tilbúnir til að fórna Evrópu í slíku stríð en það er með öllu óvíst að Evrópubúar séu til í svoleiðis sjálfsmorð.
Putin er afburða stjórnmálamaður og undirbýr sína leiki vel.
Til dæmiis þá er Rússland að mestu orðið óháð SWIFT kerfinu.
Afleiðingarnar af því að reka Rússa úr því kerfi yrðu fyrst og fremst þær að Evrópuríkin og Bandaríkin mundu ekki geta átt viðskifti við þá.
Ríki sem vilja áfram versla við Rússa,svo smm Kína,Indland ,Íran, Víetnam svo eitthvað sé nefnt mundi einfaldlega halda því áfram með því að nota kerfið sem Rússar hafa sjálfir útbúið.
Reyni Bandaríkjamenn að beita þessi ríki samskonar refsingum mundi viðskiftakerfi heimsins hrynja.
.
Þetta mun vera ástæðan fyrir að Bandaríski forsetinn reynir nú að ganga til samninga við Putin.
Að venju fylgja allskonar skilyrði og hótanir með í kaupunum an allir vita að það eru innantóm orð.
Gremja sumra Bandarískra þingmanna af Haukaætt er komin á það stig að þeir eru farnir að hóta hernaði gegn Rússum og þar með talið beitingu kjarnorkuvopna.
Það sýnir kannski betur en flest annað hversu getulausir þeir eru til að fást við ástandið og ná sínu fram.
Það er kannski ekki skrýtið af því það er án efa þrúgandi fyrir stjórnendur þessa stórveldis að vera þvingaðir að samningaborðinu með þessum hætti.
Það er ekki langt síðan að herra Stoltenberg hafði eftirfarandi að segja.
And the message is that it is only Ukraine and 30 NATO Allies that decide when Ukraine is ready to join NATO. Russia has no veto. Russia has no say. And Russia has no right to establish a sphere of influence, trying to control their neighbours.
Fyrir stuttu var Biden á videofundi þar sem ákveðið var að setja upp vinnuhópa til að semja við Rússa um hvernig ætti að ráða fram úr Úkrainumálinu.
Það er ekki nema von að Neoconarnir séu æfir.
Þeir halda ennþá að Bandaríkin séu eina stórveldið og þurfi ekki að spyrja neinn álits á hvernig þeir haga sér.
Rússar hafa sett fram sínar kröfur.
Engin NATO aðild fyrir Úkraninu, Gerorgú eða Moldóvu.
Enginn NATO eða Bandarískur her í Úkrainu.
Engin frekari eldflauga uppbygging í A Evrópu.
Og þér er óhætt að bóka að svona verður þetta. Ekki strax,en svona verður þetta. 


 

Borgþór Jónsson, 9.12.2021 kl. 22:09

3 Smámynd: Birgir Loftsson

Ég sakna greiningu þína á bandarískum stjórnmálum. Hver staða Joe Bidens er, staðan í efnahagsmálum landsins og hvernig þú sért fyrir þér midterm kosningarnar. 

Birgir Loftsson, 16.12.2021 kl. 22:54

Bæta við athugasemd

Nauðsynlegt er að skrá sig inn til að setja inn athugasemd.

Um bloggið

Einar Björn Bjarnason

Höfundur

Einar Björn Bjarnason
Einar Björn Bjarnason
Stjórnmála- og Evrópufræðingur. Áhugi á stjórnmálum, Evrópumálum, alþjóðamálum, málefnum Miðausturlanda, trúmálum, vísindum og tækni, og margt fleira.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Eldri færslur

2024

2023

2022

2021

2020

2019

2018

2017

2016

2015

2014

2013

2012

2011

2010

2009

2008

Nýjustu myndir

  • Mynd Trump Fylgi
  • Kína mynd 2
  • Kína mynd 1

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 27
  • Sl. sólarhring: 33
  • Sl. viku: 271
  • Frá upphafi: 847385

Annað

  • Innlit í dag: 27
  • Innlit sl. viku: 268
  • Gestir í dag: 27
  • IP-tölur í dag: 27

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband