Mótmæli í Ungverjalandi um helgina yfir því sem kallað eru - lög um þrældóm

Sjálfsagt veit einhver að Victor Orban hefur verið ráðamaður Ungverjalands um nokkurt árabil, sakaður af sumum um einræðistilburði - hvað sem satt er þar um, þá hefur frumvarp til laga fyrir þingi landsins vakið óskipta athygli, og reiði einkum verkafólks.

En ef ég skil málið rétt, þá er breytingin eftirfarandi: Hungary set to pass widely criticised overtime bill

  1. Heimild vinnuveitanda til aukningar yfirvinnu - er hækkuð um 8klst. per viku.
  2. Það sem verra er, frestur um að greiða unna yfirvinnu sem hefur verið í Ungverjalandi 1 ár - tja, ég væri ekki par ánægður ef ég fengi yfirvinnu borgaða ári síðar; sá frestur verður skv. breytingunni -- 3 ár.
    --OK, ég get alveg skilið að það valdi nokkurri óánægju, að vera líklega skildaðir til aukinnar yfirvinnu - en fá það sennilega ekki borgað fyrr en 3 árum síðar.
  3. En það sem hugsanlega er versti hluti lagabreytingar fyrirhugaðrar, sbr: "would leave negotiations about overtime work to individuals and their employers, bypassing labour unions."
    --M.ö.o. til stendur að halda verkalýðsfélögunum utan við samninga um þessa viðbótar eftirvinnu-tíma, þegar vinnuveitandi gerir kröfu um slíkt.
  • Við vitum alveg hvað þetta þíðir, menn verða skikkaðir í þetta.

Eins og vænta mátti, eru vísbendingar uppi að þessi breyting sé fremur óvinsæl: "a recent poll by the Budapest-based think-tank Policy Agenda found that 83 per cent of Hungarians oppose the law."

'All I want for Christmas is democracy,' say Hungary protesters

Haft eftir mótmælanda á sunnudag.

 

Nokkuð fjölmenn mótmæli voru í Budapest á sunnudag, þó engan veginn það fjölmenn að ríkisstjórn landsins væri hætta búin

Image result for riot budapest sunday 2018

Það þyrftu að vera sennilega yfir 100þ. að mótmæla - ekki kringum 20þ. 
Miðað við það að mótmæli helgarinnar voru í raun og veru ekki það rosalega fjölmenn, þó vísbendingar séu um verulega óánægju kraumandi undi -- virðist fátt benda til annars en að lögin verði samþykkt.

Hvað sem segja má um Orban, sem gjarnan kallar sig bjargvætt landsins.
Þá virðist hann ekki vera maður verkamannsins.

--Það verður að koma í ljós hvort þessi hreyfing óánægju verði að stærri bylgju, eða ekki.
--En miklu mun meira þarf en þetta sem sást um helgina, ef mótmæli ættu að hafa raunveruleg áhrif.

 

Niðurstaða

Mér virðist lagasetning svo klárlega líkleg til óvinsælda, sýna að ríkisstjórn Ungverjalands lítur sig örugga í sessi -- mótmæli helgarinnar duga hvergi nærri sem sönnun þess að svo sé ekki. 

Hinn bóginn, virðist mér þessi lög ákaflega ósanngjörn fyrir verkafólk.
Það þíddi ekki að bjóða íslensku verkafólki upp á kjör af þessu tagi.

Besta von þess að stjórnin veikist, gæti einmitt verið - hennar eigin hroki.
M.ö.o. ef hún yfirspilar sín spil.
--En núverandi mótmælahreyfing þarf þó að blása mikið út áður en hún sé nokkur ógn.

 

Kv.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Borgþór Jónsson

Það er allavega eins gott að skatturinn sé ekki reiknaður fyrr en maður fær útborgað.

Þetta eru vægast sagt einkennileg lög svo ekki sé meira sagt.

Borgþór Jónsson, 17.12.2018 kl. 20:02

2 Smámynd: Einar Björn Bjarnason

Satt segirði Boggi -- og auðvitað talsmaður Orbans fullyrti að augljóslega væru mótmælin Soros að kenna -- ha, ha, ha, ha.

"...Balazs Hidveghi, a spokesman for Mr Orban’s Fidesz party, said on Monday that it was “quite obvious” that “the Soros network” is behind the protest,..."

Þetta er eins og nasistar einu sinni kenndu gyðingum um allt á milli himins og Jarðar.

Orban virðist hafa tekist að loka á næstum alla andstæðinga-fjölmiðlun í landinu. Þannig að út af fyrir sig er merkilegt að nærri 20þ. séu nú að mótmæla í Budapest hvern dag.
--En vegna hindrana á fréttaflutningi, þarf fólk greinilega að nota skilaboð með símum eða í gegnum net til að senda boð sín á milli.

Ef Orban gætir sín - gæti honum tekist að skapa raunverulega andstöðuhreyfingu. Hann getur þá engum um kennt en sér sjálfum.

Kv.

Einar Björn Bjarnason, 17.12.2018 kl. 23:11

Bæta við athugasemd

Nauðsynlegt er að skrá sig inn til að setja inn athugasemd.

Um bloggið

Einar Björn Bjarnason

Höfundur

Einar Björn Bjarnason
Einar Björn Bjarnason
Stjórnmála- og Evrópufræðingur. Áhugi á stjórnmálum, Evrópumálum, alþjóðamálum, málefnum Miðausturlanda, trúmálum, vísindum og tækni, og margt fleira.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Eldri færslur

2024

2023

2022

2021

2020

2019

2018

2017

2016

2015

2014

2013

2012

2011

2010

2009

2008

Nýjustu myndir

  • Mynd Trump Fylgi
  • Kína mynd 2
  • Kína mynd 1

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 48
  • Sl. sólarhring: 130
  • Sl. viku: 400
  • Frá upphafi: 847041

Annað

  • Innlit í dag: 44
  • Innlit sl. viku: 378
  • Gestir í dag: 44
  • IP-tölur í dag: 42

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband