Tyrkland ræðst á liðsafla sendur af Assad til Afrin héraðs

Sjálfsagt veit einhver af því að nú í nokkrar vikur hefur Tyrklandsher haldið uppi árásum á stöðvar liðssveita Kúrda í Afrin héraði í Sýrlandi - fyrir rúmri viku bárust fréttir af því að kúrdar í Afrin hefðu skorað á Assad að verja Afrin hérað, að senda þangað liðssveitir.

Það áhugaverða er, að Assad virðist nú hafa gert einmitt það - fyrstu viðbrögð tyrkneskra stjórnvalda voru á þá leið, að ef liðsveitir á vegum Assads ætluðu að hreinsa Afrin hérað af liðssveitum Kúrda; þá mundu Tyrkir fagna þeirra veru.

En ef liðssveitir á vegum Assads, mundu gera tilraun til að verja sveitir Kúrda í Afrin héraði gegn árásum Tyrklandshers - mundi her Tyrklands refsa þeim liðssveitum svo um munaði.

  • Virðist nú koma á daginn að Tyrkir ætla að standa við þau stóru orð!

Syria pro-government forces enter Afrin to aid Kurds against Turkey

Image result for Gulsen Solaker, Ellen Francis  6 Min Read  ANKARA/BEIRUT (Reuters) - Pro-Syrian government forces entered Syria’s northwestern Afrin region on Tuesday to help a Kurdish militia there fend off a Turkish assault, raising the prospect of a wider escalation of the conflict.  Soon after the convoy of militia fighters - waving Syrian flags and brandishing weapons - entered Afrin, Syrian state media reported that Turkey had targeted them with shellfire.  The confrontation pits the Turkish army and allied Syrian rebel groups directly against the military alliance backing the government of President Bashar al-Assad, further scrambling northwest Syria’s already messy battlefield.  Turkish President Tayyip Erdogan described the convoy as being made up of “terrorists” acting independently. He said Turkish artillery fire had forced it to turn back, although the Kurdish militia denied this.  A commander in the pro-Assad military alliance told Reuters the forces had turned back after coming under fire, but then resumed their progress and were now in Afrin.  Syrian television had earlier shown the group of fighters passing through a checkpoint that bore the insignia of the Kurdish security force, some chanting “one Syria, one Syria”, and driving further into Afrin.  Ankara’s month-old offensive is aimed at driving the Kurdish YPG militia, which it sees as a big security threat on its border, from Afrin.  The YPG hailed the arrival of the pro-government forces - which included militias allied to Assad but not the Syrian army itself - and said they were deploying along the front line facing the Turkish border.  It made no mention of a deal that a Kurdish official said on Sunday had been struck with Assad’s government for the Syrian army itself to enter Afrin.  Erdogan said he had previously reached an agreement with Russian President Vladimir Putin and Iran’s President Hassan Rouhani, Assad’s main international backers, to block Syrian government support for the YPG fighters.  The commander in the pro-Assad alliance said Russia had intervened to “delay the entry of a large (number of) Syrian army forces” into Afrin.  Erdogan described the pro-government fighters coming to the YPG’s aid as Shi‘ite militias, and said they would pay a heavy price.  YPG media adviser Rezan Hedo denied Erdogan’s assertion that the convoy had turned back under Turkish artillery fire, but he gave no details on its size or composition. A Britain-based monitoring group, the Syrian Observatory for Human Rights, said one convoy had entered Afrin while another turned back. RUSSIAN ROLE  Turkish markets faced a broad sell-off in response to news seen as indicating that a swift victory for the Turkish campaign in Afrin could be more difficult than Ankara had expected, and that battle there could unsettle relations with Russia or Iran. Turkish-backed Free Syrian Army fighters are seen near the city of Afrin, Syria February 19

"Turkish-backed Free Syrian Army fighters are seen near the city of Afrin, Syria February 19, 2018. REUTERS/Khalil Ashawi"

 

  1. Ef marka má fréttina, réðist her Tyrklands á bílalest liðssveita Assads með stórskotaliði - tvennum sögum fer síðan af því hvað síðan gerðist!
  2. Skv. tyrkneskum yfirvöldum sneri bílalestin við.
  3. En því hafna Kúrdar í Afrin og "pro Syrian militia forces."

--Erdogan kallaði liðssveitir stuðningsmanna Assads - hryðjuverkasveitir og sagði að þær mundu gjalda dýru verði.
--Um er að ræða svokallaðar "pro Syrian militia" þ.e. ekki formlegar liðssveitir Sýrlandshers, heldur nokkurs konar skærusveitir skipaðar stuðningsmönnum Assads.
--Íran kvá hafa séð um þjálfun þeirra!

Erdogan hélt því fram að þær væru Shítar -- en mun sennilegar eru þetta sveitir skipaðar Alavi fólki. En hugsanlega er Erdogan að uppnefna Alava Shíta þó þeir séu það ekki.

Áhættan sem fylgir því að ráðast að liðssveitum stuðningsmanna Assads, skapaði óróa á hlutabréfamörkuðum í Tyrklandi og tyrkenska líran féll nokkuð.

En þessi atburðarás að sjálfsögðu vekur stórar spurningar um það, hvað akkúrat vaki fyrir Erdogan forseta Tyrklands.

En með átökum við liðssveitir Assads, þó það séu stuðningshersveitir Assads frekar en formlegur stjórnarher Sýrlands -- vekur að sjálfsögðu eðlilegar spurningar um það, hvort að Tyrkland sé að hætta á átök við helsta stuðningsaðila Assads, Íran.

  1. Þrátt fyrir allar árásirnar, virðast liðssveitir Kúrda halda velli - skv. fréttum hafa þær hörfað hægt og rólega, en halda þó enn helstu þéttbýlissvæðum.
  2. Tyrklandsher er þó að þrýsta víglínunni hægt og rólega að Afrin-borg, og stefnir að óbreittu að því að barist verði þar.

Litlar fréttir hafa borist af mannfalli meðal liðssveita sem berjast með Tyrkjum. En það mannfall hlýtur að vera nokkuð umtalsvert - einnig spurning hvaða mannfall hefur orðið í her Tyrklands.

 

Niðurstaða

Ég ætla mér ekki að gíska á það hve langt Erdogan er tilbúinn að ganga. En greinilega hikar hann ekki að ráðst að liðssveitum sem Damaskus hefur sent á vettvang. Það að Kúrdar og Assad náðu saman um það atriði - er eitt og sér áhugavert. En það að Erdogan hafi fyrirskipað að því er best verður séð Tyrklandsher að líta á liðssveitir fylgismanna Assads nú komnar til Afrin sem óvinveittar - er ekki síður athyglisvert.

Þetta bersýnilega eykur flækjustig átakasyrpunnar í Sýrlandi.
Tyrkland greinilega ætlar að hertaka Afrin hérað hvað sem tautar og raular.
--Eða nánar tiltekið Erdogan virðist stefna að þeirri útkomu.

En með liðssveitir stuðningsmanna Assads nú einnig á vígvellinum, hefur áhætta Tyrklands aukist mjög greinilega!

 

Kv.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Örn Einar Hansen

Gamalt kort, síðan fyrir áramót ... síðan var Erdogan varaður við því, að ráðast á Kúrda á þessu svæði.

Örn Einar Hansen, 21.2.2018 kl. 15:28

2 Smámynd: Snorri Hansson

Ath. að Tyrkir,Rússar og Iranir, auðvitað með tengingu við Assad hafa fundað mikið undanfarið. Hugmynd  US/Nato o.f. er að stofna 30.000 manna her Kúrda sem á að mynda belti meðfram Tyrknesku landamærunum.

 Erdogan fullyrðir að vegna tengsla  innan Kúrda við pólitískan arm í Tyrklandi verði slíkur her ógn við Tyrkland.

Ég held að þetta sé leikrit:

 Rólegheita árás á Afrin hérað. Mótmæli Assads. Kúrdar kalla á Assad  um aðstoð !!? Hans menn koma og er fagnað af Kúrdum. Erdogan  verður voða reiður  og ætlar að skjóta allt í klessu !?

Þetta leikrit heldur ef til vill áfram austur eftir landamærunum. Einfaldlega til þess að sýna US/Nato o.f. að þeir séu algerlega valdalausir á svæðinu og þurfa vinsamlega að koma sér í burtu.

Snorri Hansson, 21.2.2018 kl. 15:59

3 Smámynd: Einar Björn Bjarnason

Snorri Hansson, hafðu í hugaErdogan er ekki vinur nokkurs sérstaks, ekki Pútíns frekar en nokkurs annars - - > Erdogan virðist líta stórt á sig þessi misserin, sbr. farinn að skipa Bandar. fyrir verkum - hann hélt nýverið bandar. sendiráðsstarfsmönnum í gíslingu. Mér virðist Erdogan vilja hafa Bandaríkin í vasanum - klár ofmetnaður, sbr. Erdogan vill greinilega halda í NATO - en einungis ef NATO fer að hans vilja, og Bandaríkin einnig.
--M.ö.o. held ég að Erdogan stefni að því að vera kóngurinn á svæðinu - hann vilji Bandaríkin líklega í burt úr Sýrlandi vegna þess að hann ætlar Tyrklandi þetta tiltekna umdeilda svæði.
--Hann ætli sér sennilega að stækka sneið Tyrklands af Sýrlandi og það verulega - það sé af hverju ég held hann vilji Kana burt, því hann álíti þetta réttmætt áhrifasvæði Tyrklands.

En taktu eftir að Erdogan hefur ekki verið í illindum við Kúrda í Írak almennt séð. Hefur heimilað þeim útflutning olíu gegnum Tyrkland -- m.ö.o. virðist hann umbera þá Kúrda sem séu honum þægir - hann hafi einungis steitt fram hnefann er þeir voru með hugmyndir um fullt sjálfstæði um hríð er nú virðast í baklás.
--Ég sé ekki fyrir mér Erdogan viljugan að lúta Pútín frekar en hann virðist vilja lúta Bandar.

Ég held að Erdogan haldi hann geti endurreist a.m.k. einhverjum hluta - svæðislegan "dominance" Tyrklands.

--Þetta er auðvitað kenning.

-------------------

"Hugmynd  US/Nato o.f. er að stofna 30.000 manna her Kúrda sem á að mynda belti meðfram Tyrknesku landamærunum."

Sannast sagna líst mér mjög vel á þá hugmynd - styð hana eindregið. Það þíði að ef Kanar halda því til streitu, að Kúrdar á því svæði eins og Kúrdar í Írak nú nærri 20 ár fái þá stjórna sér sjálfir stærstum hluta.
--Lít það sem upphafið af því að Kúrdar fái loksins sinn draum uppfylltan, þó það geti tekið 20 ár til viðbótar.

En þeir séu líklegir að vera góðir bandamenn. Eftir allt saman væru Bandar. þeirra eina von að hugsanlega einhverntíma fá sína drauma uppfyllta.
--En Rússland hefur aldrei stutt þá tilburði - rökrétt er Rússland á móti draumum Kúrda.

Það gæti orðið upphafið af því að skapa eitthvað smá meira réttlæti í Mið-Austurlöndum.

Kv.

Einar Björn Bjarnason, 21.2.2018 kl. 23:42

4 Smámynd: Einar Björn Bjarnason

Einar Björn Bjarnason, 21.2.2018 kl. 23:43

Bæta við athugasemd

Nauðsynlegt er að skrá sig inn til að setja inn athugasemd.

Um bloggið

Einar Björn Bjarnason

Höfundur

Einar Björn Bjarnason
Einar Björn Bjarnason
Stjórnmála- og Evrópufræðingur. Áhugi á stjórnmálum, Evrópumálum, alþjóðamálum, málefnum Miðausturlanda, trúmálum, vísindum og tækni, og margt fleira.
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Eldri færslur

2024

2023

2022

2021

2020

2019

2018

2017

2016

2015

2014

2013

2012

2011

2010

2009

2008

Nýjustu myndir

  • Mynd Trump Fylgi
  • Kína mynd 2
  • Kína mynd 1

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 40
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 33
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband