Viðskiptahalli Bandaríkjanna hverfur af sjálfu sér á nk. 20-40 árum

Afleiðing tækniframfara en svokallað "additive manufacturing" eða "3D printing" er talið að verði praktísk aðferð í fjöldaframleiðslu -- margvíslegs neytendavarnings.
--Eftir því sem framleiðsla á varning breiðist út með þeirri aðferð.
--Muni þörf iðnríkja fyrir innflutning dragast saman.

Starfsmenn ING tóku saman eftirfarandi skýrslu: 3D Printing: Threat to global trade.

Þessi mynd er tekin úr henni -- Financial Times fjallaði einnig um málið:

3D printing to wipe out 25% of world trade by 2060 – report.

http://einarbb.blog.is/users/72/einarbb/img/additive_manufacturing.png

Tvær sviðsmyndir eru dregnar upp!

Sérfræðingar ING segja að miðað við núverandi hraða á þróun þrívíddar-prenttækninnar, þá áætli þeir að 2060 muni útbreiðsla fjöldaframleiðslu með þeirri tækni - minnka alþjóðaverslun um 25%. Helmingur alls fjöldaframleidds varnings verði þá framleiddur með þrívíddar prentun.

Ef fjárfesting í þrívíddar prenttækni 2-faldaðist hver 5 ár mundi hraðinn á þróuninni aukast og sbr. sviðsmynd 2 á myndinni að ofan -- mundu sömu áhrif koma fram 2040.

  1. Fyrir iðnríkin þíði þetta að innflutningur minnki, að stórfelld aukning verði í varningi sem framleiddur sé í landinu sjálfu.
  2. Hinn bóginn sé aðferðin ekki mannaflafrek - tækin verði tölvustýrð og algerlega sjálfvirk.

Þannig að þó framleiðslan flytjist heim - skaffi það ekki framleiðslustörf.
Þó einhver fjöldi tæknimanna fái líklega störf við viðhald tækja. Og það verði þörf fyrir einhvern fjölda forritara að auki.

  • Fyrir utan er önnur sjálfvirk framleiðslutækni í vexti.
  • Ofangreint eru einungis áætluð áhrif af frekari útbreiðslu þrívíddar prenttækni.

--En útbreiðsla róbótískrar framleiðslutækni, en róbótar geta verið margt annað en 3-víddar prentarar, muni fylgja sambærileg áhrif - að færa framleiðsluna heim, að draga úr heims viðskiptum.
--Þessi tækni muni augljóslega breyta heiminum mikið, og langt í frá eru allar þær breytingar auðfyrirsjáanlegar.

 

Niðurstaða

Eins og ég hef áður bent á, þá sé afstaða Trumparanna í Hvítahúsinu einfaldlega úrelt. Framtíðartækni sé hvort sem er á næstu árum að færa framleiðsluna heim. Að smá þurrka út viðskiptahalla. En án þess að við það skapist þau framleiðslustörf sem Trumparinn hefur lofað.

Ég hugsa að megin áhrif brambolts Trumps verði þau að flýta fyrir þessari þróun.
Ég meina að ef fyrirtækin setja upp nýjar verksmiðjur í Bandaríkjunum.
Verði þær skv. nýjustu tækni - þ.e. eins róbótískar og mögulegt sé, þegar.

  • En störfin sem hann lofaði verkamönnumum er kusu hann, líklega verði ekki til.
    --Þó framleiðslan færðist að einhverju verulegu leiti til baka.

Það sé hin eiginlega ógn við framleiðslustörf, útbreiðsla framleiðslutækni sem krefjist ekki vinnandi handa.
--Það verði viðfangsefni nk. kynslóða, hvernig á að bregðast við hratt vaxandi atvinnuleysi sem líklega muni verða á nk. áratugum.

Kv.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Borgþór Jónsson

Vil kannski benda á tvennt í þessu sambandi.

.

Það fyra snýr að viðskiftahallanum. að er ekki bara innflutningur sem mun minnka,útflutningurinn mun líka minnka.

Það mun því þurfa meir til til að jafna viðskiftahallann. Bandarískir aðilar eru ekkii einir um hituna þegar kemur að þrívíddarprentun . Ég er ekki einu sinni viss um að þeir séu í fararbroddi þar.

.

Það síðara snýr að innflytjendum. Það er augljóslega engin þörf á að flytja inn fólk frá öðrum heimshlutum til vinnu í Evrópu og Bandaríkjunum. Það mun einungis auka á vandamálin þegar vélmenni af ýmsu tagi yfirtaka störf fólks.

.

En það er augljóslega þörf á nýjum aðferðum við að deila auðæfum milli íbúa ríkja og raunar milli íbúa heimsins. 

Borgþór Jónsson, 30.9.2017 kl. 00:22

2 identicon

Ég dreg í efa að bandaríkin nái halla sínum á næstkomandi árum.  Ein af ástæðum mínum fyrir þessu, er gull ... bandaríkin hafa lifað á stolnu gulli.  Þeir til dæmis frömdu bankarán á Möltu, og rændu Rússa þar ... að sjálfsögðu undir því yfirskini að þessir peningar væru "glæpona" peningar.  En það dregur ekki úr því, að Bandaríkin stálu peningum af öðru ríki ... þeir hafa einnig lifað af "arði" frá olíu og gas sölu með dollar, ásamt þeirri staðreynd að allur vöruflutningur er yfir hafið.  Sem bandaríkin standa yfir eins og sjóræningjar, í dag. 3-D prentun er bara smá partur í öllu þessu, og með silki leiðinni sem Rússar og Kínverjar eru að setja á ... get ég ekki séð að Bandaríkin nái að breita þeirri stöðu.

Almennt gerir fólk sér ekki grein fyrir því, hvað "silkileiðin" er fyrir Evrópu.  Fólk í Evrópu er almennt heilaþvegið, eftir síðari heimstyrjöldina og gerir sér enga grein fyrir þeirr pólitísku stefnu sem er í gagni.  Né heldur að sú stefna sé "and" Evrópsk.  Ef við hlustum á "góða fólkið", endum við eins og mið-austurlönd ... þetta er það sem við þurfum að reyna að forðast.  Og ef við viljum forðast þetta, verðum við að gera okkur grein fyrir því að við værum betur stödd upp á framtíðina með "Hitler" í þýskalandi og "Stalín" í Rússlandi, en með þá framtíð sem Bandaríkin ætla okkur.  Framtiðin sem Bandaríkin ætla okkur, er eins og eftir síðari heimstyrjöldina ... "lán", sem síðan er dregið tilbaka þegar engin Sovétríkin eru til staðar.  Þegar Sovétríkin fóru, fór einnig vinnan í Evrópu og efnahagurinn ... því Bandaríkin höfðu séð til þess að einungis "bleiður" væru í pólitískum stöðum Evrópu.

Ég er hérmeð ekki að mæla Stalín, eða Hitler bót.  Einungis að benda á það, að fyrir "okkur" ... Evrópu, er "bleiðuskapurinn" hættulegur.  Bandaríkin eru raunverulega "óvinir" okkar, eða réttara sagt við erum óvinir þeirra og verðum alltaf.  Rússar, eru aftur á móti Rússar ... við getum ekki reitt okkur á þá. Þeir eru Evrópu búar, en hugsa fyrst og fremst um eigin hag.  Ekkert sem maður getur álasað þá fyrir ... þeir eru alla vega ekki "svikarar" eigin fólks ... sem við hér í Evrópu höfum.

Til að gefa dæmi um "svikin", bendi ég á nýjustu "fréttir" í Svíþjóð. Hér er sagt frá því, að Víkingar hafi klæðst "múslima" fatnaði.  Þetta er sagt í "góðum" tilgangi, til að draga úr hroka manna sem "halda" að þeir séu Víkingr.  En lygi í góðum tilgangi, er alltaf lygi ... við gætum alveg eins sagt, að Rómverjar hafi klæðst "toga" af því þeir væru gyðingar. Í þessu sambandi ætla ég að "ljóstra" því upp, að JHVH eða nafn guðs er JANUS.  Rómverski guðinn ... læt það eftir þér Einar, að "herleiða" hvernig H=N, V=U og seinna H=S. En bendi þér á, að þú þarft að nota fleiri en eitt tungumál til að fá þetta út.  En Biblían var á sínum tíma, bók "heimspekinga" sem vissu þetta meðan almenningur "trúði" sínu bulli ... og gerir enn. En í þessu sambandi vil ég benda á að Rómverjar voru ekki Ítalir, né töluðu þeir "latínu", né voru Hellenar grikkir og bókstafir Hebrea, Grikkja og Rómverja voru blandaðir samhljóðar og sérhljóðar, eins og finnst í Rússnesku.

Lygar "góða" fólksins, er orðið nóg ... tilgangurinn helgar ekki meðalið.  En þessi boðskapur á "góða" fólkið sameiginlegt með Bandaríkjamönnum.  Og þeim aðilum ING sem skrifa þetta, Einar.  Í þeirra augum, mun Bandaríkjunum takast að "hlekkja" Evrópu í þræla-hlekk heimskingja.  Sem munu kaupa "olíu" og "gas" á því verði sem Bandaríkjamenn ákveða, og af þeim sem þeir ákveða.

En við skulum nú ekki gefa Evrópu alveg upp á bátinn ... enn.

Bjarne Örn Hansen (IP-tala skráð) 30.9.2017 kl. 10:42

Bæta við athugasemd

Nauðsynlegt er að skrá sig inn til að setja inn athugasemd.

Um bloggið

Einar Björn Bjarnason

Höfundur

Einar Björn Bjarnason
Einar Björn Bjarnason
Stjórnmála- og Evrópufræðingur. Áhugi á stjórnmálum, Evrópumálum, alþjóðamálum, málefnum Miðausturlanda, trúmálum, vísindum og tækni, og margt fleira.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Eldri færslur

2024

2023

2022

2021

2020

2019

2018

2017

2016

2015

2014

2013

2012

2011

2010

2009

2008

Nýjustu myndir

  • Mynd Trump Fylgi
  • Kína mynd 2
  • Kína mynd 1

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 89
  • Sl. sólarhring: 90
  • Sl. viku: 441
  • Frá upphafi: 847082

Annað

  • Innlit í dag: 84
  • Innlit sl. viku: 418
  • Gestir í dag: 82
  • IP-tölur í dag: 78

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband