Yfir 270.000 Rohingyar hafa flúið Myanmar á tveim vikum - SÞ hefur beðið ríki heims um aðstoð

Um virðist að ræða skipulagðar þjóðernishreinsanir/þjóðarmorð á Rohingya fólkinu frá Rakhine héraði nærri landamærum Bangladesh. Öruggar heimildir sýna að ríkisstjórn Myanmar - hernaðaryfirvöld landsins og embættismenn; eru sjálf að skipuleggja verknaðinn. Herveitir virðast skipulega brenna Rohingya þorp í Rakhine héraði.
--270þúsund er viðbót við þá sem áður höfðu flúið, þíðir að nærri helmingur allra Rohingya eru nú alþjóðlegir flóttamenn.
--Líklega er nú innan við milljón Rohingyar eftir í Myanmar!

  1. Það skiptir engu máli þó að það hafi risið upp skæruhreyfing Rohingya - en miðað við fréttir virðist hún litlu sem engu hafa áorkað - um 6 hermenn eru sagðir hafa fallið; meðan að nokkur hundruð "ARSA" eru sagðir vegnir.
  2. Á sama tíma, er skipulega verið að hreinsa Rohingya íbúa Myanmar á stóru svæði í Rakhine héraði og hrekja úr landi.

--Slíkt teljast ekki, réttmæt viðbrögð skv. alþjóðalögum!
--Ríki hafa rétt til að berja á vopnuðum skæruhópum.
--En skv. alþjóðalögum, ber þeim alltaf að verja óbreytta borgara - algerlega óháð því hvort grunað er að einhver hluti þeirra geti haft samúð með slíkum hóp.

Að hreinsa íbúana sem grunaðir eru um slíka samúð - úr landi. Telst ekki ásættanleg aðferð!

  • En þ.e. algerlega öruggt að mikill fjöldi Rohingya hefur látið lífið.
    --Hugsanlega þúsundir!
  • Þetta er því eins ljótt, og aðfarir ISIS í Írak gegn minnihlutahópum þar.
    --Þ.s. ISIS reyndi skipulega að útrýma minnihlutum er ekki voru Múslimar á sínum svæðum.
  • Skipuleg þjóðarmorð eru ekki ásættanleg.
    --En þetta virðist einmitt slíkur atburður!

Þúsundur Rohingya líklega hafa látið lífið

UN: We lack the resources to handle the Rohingya crisis

U.N. appeals for aid as Myanmar refugee exodus nears 300,000

Einfalt að rökstyðja það - en liðsmenn SÞ-hafa rætt við mikinn fjölda þeirra sem hafa flúið á náðir alþjóðlegra hjálparsamtaka; og sagan virðist alltaf svipuð.
Þ.e. að ráðist sé á þorpið þeirra af hermönnum stjórnvalda Myanmar -- hermenn skjóti hvern þann sem andhæfi, öðrum sé leyft að leggja á flótta. Þorpið sé síðan brennt af hermönnum eða íbúum nærhéraða sem ekki eru Rohingya - sem aðstoða hermennina.
--Fólkið leitar síðan skjóls í hitabeltis frumskóginum á svæðinu, þ.s. það er án matar.
--Heldur síðan humátt í átt til landamæra Bangladesh.

  • Rohingya flóttamenn segjast hafa verið á göngu án matar á bilinu 3-7 daga.

Það er einfalt mál, að slíka göngu ráða ekki aldraðir eða sjúkir við.
Aldraðir og sjúkir hljóta því að bera beinin í frumskóginum á leiðinni.
Ef maður miðar við 270.000 - þá gætu aldraðir og sjúkir hæglega hafa verið 30.000.
--Sem líklega hafa allir látið lífið eða eru smám saman enn að veslast upp og deygja.

UN: We lack the resources to handle the Rohingya crisis

  • Sþ-hefur sent út alþjóðlega hjálparbeiðni.
  • Skv. því ber öllum meðlimalöndum SÞ-að senda aðstoð að því marki sem þau lönd ráða við.

Skv. frásögn starfsmanna SÞ-hafa íbúar Bangladesh hlaupið undir bagga, þar sem í augnablikinu ræður SÞ-ekki við málið, vegna þess að flóttamönnum fjölgar það hratt.
En Bangladesh er fátækt land, og þarf aðstoð til að ráða við málið!
Þess vegna óskar svæðisbundin stjórn flóttamanna-aðstoðar SÞ eftir frekari aðstoð að utan!

 

Það er afskaplega sérstakt að skv. lögum Myanmar eru Rohingya réttlausir algerlega

Rétt fyrir 1980 voru sett lög sem skilgreindu Rohingya - ólöglega aðkomumenn, m.ö.o. ekki íbúa Myanmar. Það þrátt fyrir að vitað sé að Rohingyar hafi lifað þarna á svæðinu í aldir.

Gjarnan þegar yfirvöld í Myanmar ræða krísuna - tala þau um "Bengala vandann" sem hljómar dálitið líkt því er yfirvöld Nasista töluðu um "gyðingavandamálið" á sínum tíma.
--En yfirvöld í Myanmar neita að nefna Rohingya neitt annað en, Bengala.

Vilja meina að Rohingyar séu raunverulega - Bangladeshar.
--Það getur vel verið að - fyrir 200 árum síðan, hafi þetta fólk sest þarna að frá því svæði er þá nefndist Bengal.
--En ef menn fara að leita aftur aldir með þessum hætti, þá t.d. má nefna að nær allir Bandaríkjamenn hafa sest að í Bandaríkjunum á sl. 200 árum.

  1. Þetta þíði að Rohingyar séu réttlausir með öllu skv. lögum Myanmar, m.ö.o. hafa ekki rétt á nokkurri þjónustu frá hinu opinbera - sbr. heilsugæsla, skólar, fá enga lagavernd af nokkru tagi.
  2. Þannig að þegar herforingi sagði að meðferð mála væri í samræmi við lög Myanmar - var það raunverulega líklega rétt, þ.s. ekkert skv. lögum Myanmar í strangasta skilningi líklega bannar þá meðferð sem Rohingya eru að sæta.

--Þetta er alveg einstakt ástand, eftir því sem ég best veit -- að minnihlutahópur í landi sem lifað hefur í því landi í aldir.
--Sé gersamlega réttlaus skv. lögum þess lands og sé skipulagt ofsóttur af stjórnvöldum þess lands.

  • Síðast þegar þess konar atburður var í gangi, var Rvanda á 10. áratugnum.
    --Er stjórn svokallaðra Hútúa hóf skipulagðar ofsóknir á hóp svokallaðra Tútsa.

Einfalt mál - aðfarir stjórnvalda Myanmar gegn Rohingya hljóta að flokkast sem glæpur gegn mannkyni skv. alþjóðalögum!

 

Niðurstaða

Skipulagðar þjóðernishreinsanir eru eitt af því allra ljótasta sem mannkyn á til að gera. Því miður gerast slíkir atburðir alltaf við og við.
--Þekktur er atburðurinn er varð í Rvanda á 10. áratugnum.
--Síðar kemur skipulagt morð á Bosníumúslima karlmönnum í Bosníustríðinu.
--Ég hef talið líklegt, að gríðarlegur fjölda flótti þ.e. 5-6 milljón manns í Sýrlands stríðinu, bendi til skipulagðra hreinsana.
--Það má einnig nefna þjóðernishreinsanir er framkvæmdar voru á Þjóðverjum undir lok Seinni Styrrjaldar er yfir 10 milljónir voru hraktar frá Austur-Prússlandi og Súdetasvæðinu í Tékklandi.

Það er erfitt að fremja verra brot á eigin þegnum skv. alþjóðalögum, en það að skipulega þjóðernishreinsa hluta þeirra.

Alþjóðlegi stríðsgæpadómstóllinn var stofnaður í kjölfar stríðanna í fyrrum Júgóslavíu, til þess að dæma einmitt um mál af þess konar tagi.
--Mér sýnist að stjórnvöld í Myanmar séu augljóslega sek um glæpi gegn mannkyni skv. skilgreiningum alþjóðalaga.

Það sé þá sjálfsagt að byrja að senda út ákærur.

 

Kv.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Þórhallsson

Er vitað hvar aðal-bækistöðvar illmennana eru?

Er hægt að tala um að það sé einhver "1 ljótur kall" sem að stjórni þessum illverkum?

Jón Þórhallsson, 10.9.2017 kl. 13:11

2 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

--Slíkt teljast ekki, réttmæt viðbrögð skv. alþjóðalögum!

Fjandinn hirði alþjóðalög.  Þetta eru fullkomlega eðlileg viðbrögð við árásum einhvers hóps sem hefur ekki haft fyrir því að aðlagast neinu eða neinum í aldir.  *Aldir* og enn réttlausir.  Ég lít þá hornauga.  Lítur út fyrir mér nákvæmlega eins og frumstætt counter-insurgency.  Meira að segja milt, ef þú vilt fara útí það.  Taktu eftir þvi að þeir eru að reka liðið í burt, ekki myrða það bara þar sem það er.


--Ríki hafa rétt til að berja á vopnuðum skæruhópum.

Sem er einmitt það sem er að gerast.  Með slikihönskum, extra mjúkum.  Og þeir eru að losa sig við þá sem halda skæruliðunum gangandi - infrastructurinn þeirra.  Vegna þess að þetta er *counter insurgency.*  Augljóslega.

--En skv. alþjóðalögum, ber þeim alltaf að verja óbreytta borgara - algerlega óháð því hvort grunað er að einhver hluti þeirra geti haft samúð með slíkum hóp.

Ef þeir verja þessa óbreyttu borgara þá eru þeir beint að verja  skæruliðana sem þeir eru að reyna að berjast við.  Bara þannig vinna hálfvitar sem hafa enga humynd um hvað er í gangi og vinna í samræmi við einhverja draumóra sem eiga frekar heima í kærleiksbangsateiknimynd en raunveruleikanum.

Þetta er *ekkert* líkt Rwanda.  Kannski dáldið líkt Hondúras... en ekki ennþá.  Tala látinna væri til dæmis orðin há.  Fólk væri ekkert að sleppa til Bangladesh.

Ásgrímur Hartmannsson, 10.9.2017 kl. 17:33

3 Smámynd: Einar Björn Bjarnason

Ásgrímur -- Þ.e. algerlega óhugsandi að aðfarirnar séu ekki að kosta mörg þúsund Rohingya lífið.
6-hermenn hafa látist.
--Í staðinn hafa stjv. Myanmar - drepið tugi þúsunda
Rohingya - þ.e. gamalt fólk og börn.
En það að stökkva hundruðum þúsunda á flótta -- án nokkurrar mataraðstoðar.
--Þíðir að þú ert þar með að drepa alla þá sem eru of gamlir - sjúkir eða of litlir til að ráða við það að ganga án matar í nærri viku -- alla leið til landamæra nágrannaríkis.
-----------------
Þ.e. engin leið að þetta hafi ekki kostað mörg þúsund mannslíf.

    • Þú ert þá að meina, að hver fallinn hermaður -- sé jafngildur yfir 1.ooo Rohingya.

    Þ.s. þú segir er svo forkastanlega hræðilegt að ég á ekki frekari orð.
    Þú ert að afsaka glæp gegn mannkyni - þú ert að afsaka þjóðarmorð - þú ert að afsaka þjóðernishreinsanir.

    Kv.

    Einar Björn Bjarnason, 10.9.2017 kl. 18:32

    4 Smámynd: Einar Björn Bjarnason

    Jón, yfirhershöfðingjar landsins - ríkisstjórnin og embættismenn á nærsvæðum; hljóta að bera ábyrgð.
    Sjálfsagt að senda út ákærur til Stríðsglæpadómstóls SÞ.

    Kv.

    Einar Björn Bjarnason, 10.9.2017 kl. 18:34

    5 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

    Ég er ekki að afsaka neitt, ég er að segja þér hvernig þetta er.

    Það er alltaf ástæða fyrir öllu, segi ég.  Út frá gefnum upplýsingum hef eg reiknað út ástæðuna og sent þér, svo þú getir hætt að delera um alþjóðalög og glæpi gegn mannkyni.

    Mér er auðvelt að sjá ástandið frá sjónahóli annarra íbúa Búrma: þarna hafa þeir furðulegan hóp sem vill vera dáldið út af fyrir sig og nokkuð militant.  Ekki vilja Búrmamenn vera myrtir, svo þeir gera ráðstafanir.

    Ég skil vel.

    Ásgrímur Hartmannsson, 10.9.2017 kl. 20:14

    6 identicon

    Ég get ekki einu sinni seð þetta ryhongia neins staðar á korti ... samkvæmt korti tilheyrir héraðið Rakhine, og að þessi rohingy eru ekki einu sinni þjóðflokkur.  Virðist minna eitthvað á baska á spáni, þannig að aðstaða stjórnvalda virðast spurning.  Samkvæmt "stríðst" kortum, eru eftirfarandi gefið upp ...

    "BBC Jonathan Head: 2 Hindus who dressed as Muslims in fake house-burning photos were also presented to us as victims to film n Maungdaw"

    "Arakan Rohingya Salvation Army say they were fighting to protect Muslims but Myanmar gov accuses them of attacking people and burning villages"

    "3pm 9/9/2017: 4 More Rohingya villages in Rathedaung have been set alight by Myanmar army and Rakhine extremists. They are: ChinYwar"

    Hér kemur stór spurning inn í dæmið, hvað sé eiginlega að gerast ... það er enginn reikur án "möks", en maður verður einnig að hafa í huga, að ekkert ríki, ættbálkur eða gera neitt í þessa áttina nema að hafa eitthvert markmið.  Hér er spurningin hvert markmiðið sé, hverjir hagnast á þessu ... svona mál eru aldrei "einföld" í sníðum.

    Bjarne Örn Hansen (IP-tala skráð) 10.9.2017 kl. 20:47

    7 Smámynd: Einar Björn Bjarnason

    Bjarne, þetta land er klofið í margar þjóðir. Þarna voru mörg borgarastríð í gangi um áratugaskeið.
    --Einn möguleiki er að stjórnendur séu að búa til sameiginlegan óvin.
    Það er að segja, taka einn hóp út fyrir sviga, og gera hann að sameiginlegum óvin hinna.
    Það auðvitað mundi einungis virka til skamms tíma -- en þjóðernishreinsanir með þessum hraða ef þær halda áfram verður hópurinn hreinsaður úr landi innan skamms.
    --------------
    Nú ef slíkt sameiginlegt hatur var þá það eina er hélt landinu saman - þá væntanlega hefjast gömlu kryturnar milli hinna hópanna aftur.
    Kv.

    Einar Björn Bjarnason, 11.9.2017 kl. 01:59

    8 Smámynd: Einar Björn Bjarnason

    Ásgrímur, hættu þessu helvítis bulli - þú greinilega þekkir nákvæmlega ekki neitt til þessa lands. Einhverra hluta vegna, ákveður þú að drekka áróður stjv. landsins - sem sannleik væri.
    --En þó er það þekkt að þetta fólk hefur verið skilgreint réttlaust síðan rétt fyrir 1980.
    M.ö.o. hefur það verið ofsótt í áratugi.

    Einhverra hluta vegna finnst þér það greinilega í lagi.
    Og ef nú eftir áratuga ofsóknir, fámenn hreyfing hefur vopnast.
    Þá samþykkir þú blint að það séu öfgamenn og hryðjuverkamenn.
    --Af því að stjv. segja það.

    Svona málflutningur er skammarlegur - ég skammast mín fyrir að vita að þú sért Íslendingur.
    Kv.

    Einar Björn Bjarnason, 11.9.2017 kl. 02:03

    9 Smámynd: Margrét St Hafsteinsdóttir

    Hvernig líst þér á þessa samantekt?  http://www.vedicupasanapeeth.org/news_inter_67774_mya/

    Margrét St Hafsteinsdóttir, 11.9.2017 kl. 04:15

    10 Smámynd: Borgþór Jónsson

    Þorgeir Ljósvetningagoði orðaði þetta ágætlega á sínumm tíma.

     „En nú þykkir mér þat ráð at við látum og eigi þá ráða, er mest vilja í gegn gangast, og miðlum svo mál á milli þeirra, að hvorirtveggju hafi nokkuð síns máls, ok höfum allir ein lög og einn sið. Þat mun verða satt, er vér slítum í sundur lögin, at vér munum slíta ok friðinn“.

    Borgþór Jónsson, 11.9.2017 kl. 11:22

    11 Smámynd: Merry

    Einar , ég hef sagt það áður að þú ert rosaleg muslim sleikari. Ert þú að segja að það er bara ÞÚ sem veit allt um þessa land. Myanmar - Burma , er aðalega Buddhist land. Rohyngja fólk eru að gera eins og alla aðra muslimar - "breeding them out". Þegar Al Qaida typ uppreisnarmenn eru að reyna að taka hlút af þetta land, og hálshöggva munkar og nauðga og drepa konur -  eins og muslima gera út um allt, búddistar eru búinn að fá nóg, og stríða á móti þeim.

    Það sama getur verið sagt um Bosnia stríðinu. 

    Sérðu ekki hvað er igángi með muslimum alls staðar ? Sérþú ekki hvað muslimum alls staðar eru að gera í heiminum ? 

    Merry, 11.9.2017 kl. 11:36

    12 Smámynd: Jósef Smári Ásmundsson

    "Rohyngja fólk eru að gera eins og alla aðra muslimar - "breeding them out" Ertu með einhverjar heimildir fyrir þessu? Ef þú veist svona mikið um Burma og þetta fólk ættirðu ekki að vera í vandræðum með að upplýsa okkur vanvitana.

    Jósef Smári Ásmundsson, 11.9.2017 kl. 12:14

    13 Smámynd: Merry

    "googla" ---      muslims "breeding them out"

    Merry, 11.9.2017 kl. 12:28

    14 Smámynd: Jósef Smári Ásmundsson

    Ekkert minnst á Rohyngja fólkið í þessu gúggli Merry enda er þetta fólk ekki bara múslimar. Meirihlutinn er múslimar en minnihluti hindúar. Þú veist greinilega ekkert hvað þú ert að tala um.

    Jósef Smári Ásmundsson, 11.9.2017 kl. 14:50

    15 Smámynd: Merry

    Ég veit bara að er alltaf talað um þá sem Rohingja muslims, ekki meirihlúta muslim og minnihlúta hindu Rohingja---    

    Merry, 11.9.2017 kl. 17:57

    16 Smámynd: Merry

    Sæll Einar 

    Hvernig líst þér á þessa samantekt?  http://www.vedicupasanapeeth.org/news_inter_67774_mya/

    Margrét St Hafsteinsdóttir, 11.9.2017 kl. 04:15

    Merry, 12.9.2017 kl. 15:14

    17 Smámynd: Merry

    The Rohingyas are a Muslim minority who migrated from Bangladesh and reside in Myanmar. The community procreated in large numbers within a very short period of time without any family planning and considerations to limited resources, because of which the native community in the area has became a minority and deprived of their own lands that were grabbed by increased population of Rohingyans.

    Merry, 12.9.2017 kl. 15:16

    18 Smámynd: Merry

    "Breeding them out"

    Merry, 12.9.2017 kl. 15:17

    Bæta við athugasemd

    Nauðsynlegt er að skrá sig inn til að setja inn athugasemd.

    Um bloggið

    Einar Björn Bjarnason

    Höfundur

    Einar Björn Bjarnason
    Einar Björn Bjarnason
    Stjórnmála- og Evrópufræðingur. Áhugi á stjórnmálum, Evrópumálum, alþjóðamálum, málefnum Miðausturlanda, trúmálum, vísindum og tækni, og margt fleira.
    Apríl 2024
    S M Þ M F F L
      1 2 3 4 5 6
    7 8 9 10 11 12 13
    14 15 16 17 18 19 20
    21 22 23 24 25 26 27
    28 29 30        

    Eldri færslur

    2024

    2023

    2022

    2021

    2020

    2019

    2018

    2017

    2016

    2015

    2014

    2013

    2012

    2011

    2010

    2009

    2008

    Nýjustu myndir

    • Mynd Trump Fylgi
    • Kína mynd 2
    • Kína mynd 1

    Heimsóknir

    Flettingar

    • Í dag (26.4.): 43
    • Sl. sólarhring: 152
    • Sl. viku: 395
    • Frá upphafi: 847036

    Annað

    • Innlit í dag: 39
    • Innlit sl. viku: 373
    • Gestir í dag: 39
    • IP-tölur í dag: 38

    Uppfært á 3 mín. fresti.
    Skýringar

    Innskráning

    Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

    Hafðu samband