Það skrítna er, að ég er í vissum skilningi, feginn að sprengjutilræðið í Tyrklandi beindist gegn meðlimum pólitísks flokks Kúrda - ekki t.d. meðlimum AKB flokksins

Ég þarf auðvitað að útskýra hvað ég á við. Eftir allt saman er þetta hræðilegur glæpur, sjá mjög athyglisvert video sem barst á vefinn sem sýnir ungt fólk haldast í hendur og kyrja í sameiningu - síðan springur fyrri sprengjan: - - Videóið er víst hindrað í að virka af einhverjum kóða, en þið getir klikkað þ.s. stendur "YouTube" í glugganum, þá kemur það.

Sjá að auki fréttir:

Explosions During Peace Rally in Ankara, Turkey’s Capital, Kill Scores

Bombs kill 95 at pro-Kurdish rally in Turkish capital

Twin blasts at Turkish peace rally kill at least 95

 

Málið er, að ég held að þetta tilræði muni mjög styrkja málstað Kúrda innan Tyrklands

Þetta er í annað sinn, sem mannskæð hryðjuverkaárás er gerð á útifund stjórnmálaflokks Kúrda:

4 dögum eftir mannskæða árás - heimila Tyrkir loks notkun flugvalla í Tyrklandi til árása á ISIS.

Í júlí 2015 voru 30 manns - einnig ungmenni, aðgerðasinnar á vegum "Peoples' Democratic Party (HDP)" myrtir í hryðjuverka-árás sem ISIS samtökin stóðu fyrir, í bænum Suruc nærri landamærum Tyrkalnds við Sýrland.
Það unga fólk, hafði í huga að aðstoða Kúrda handan landamæranna, við uppbyggingu og hreinsunarstarf - eftir að tekist hafði að stöðva árás ISIS á Kobani.
En orrustan um Kobani - vakti heimsathygli, og flugher á vegum Bandaríkjanna, beitti loftárásum til að draga máttinn úr árás ISIS, samtímis að vopn voru send til verjenda.
Með þessu samstarfi, tókst Kúrdum í Sýrlandi að stöðva atlögu ISIS, hindra fall Kobani.

Hvað um það, þá virðist sem að ISIS hafi komist á snoðir um útifund HDP í Suruc, og skipulagt það sprengjutilræði.
__________________

Það hefur ekki enn komið í ljós - hvort að ISIS ber ábyrð á hinu mannskæða sprengjutilræði í Ankara, sem einnig beinist gegn - HDP.

 

Höfum í huga, að síðan undir lok ágúst, hefur Tyrkland verið með skipulega atlögu gegn Kúrdum

Það sem þarf að muna í þessu samhengi, er að HDP flokkurinn - er í augum Erdogan hindrun sem þarf að ryðja úr vegi. En í kosningum snemma á þessu ári, þá náði HDP inn á tyrkeneska þingið í fyrsta sinn - - fékk 11%.
Það leiddi til þess, að AKB flokkur Erdogans - missti sinn þingmeirihluta.

Í september þá rauf Erdogan þing, og hóf nýja kosningaherferð.

Mjög sterkar vísbendingar þess efnis eru, að Erdogan sé að reyna -allt- til þess að eyðileggja hinn pólitíska flokk Kúrda: Virðast hafnar nornaveiðar gegn helsta pólitíska flokki Kúrda í Tyrklandi.

  1. Það hefur verið ráðist að flokks skrifstofum HDP, þær brenndar - af múg. Og lögregla ekki skipt sér af.
  2. Það eru í gangi tilraunir til þess að - ákæra formann flokksins fyrir ákaflega vafasamar sakir - augljós pólitísk réttarhöld.

Ég stórfellt efa þó, að Erdogan tengist þessu sprengjutilræði.
Vegna þess - að ég er á því, að það hafi algerlega öfug áhrif.
M.ö.o. sé það ekki Erdogan sem græði á því - hann sé öruggleg nægilega skynugur til að skilja slíkt.

Augljóst grunar mig - ISIS.
Sérstaklega vegna þess að það virðist hafa verið - sjálfsmorðssprengjutilræði.

  1. Eins og flestir ættu að muna, þá hóf Erdogan stríð gegn Verkamannaflokki Kúrdistan undir lok ágúst, og að auki hefur látið flugher landsins - rigna sprengjum á stöðvar hersveita sýrlenskra Kúrda, en sá flokkur sem ræður Kúrdahéröðunum í Tyrklandi, tengist PKK.
  2. Á sama tíma, er hann með áróður uppi um að, HDP pólitískur flokkur Kúrda, séu svikarar við Tyrkland. Vill tengja þann flokk við PKK. Grunur hefur verið uppi, að réttarhöld yfir formanni HDP, sem ekki eru enn hafin - ekki enn ljóst hvort verða. En fjölmiðlar hafa sagt frá rannsókn svæðis saksóknara gegn honum, og þeim - hlægilegu ákærum, sem um er að ræða:
    Turkey opens criminal inquiry on Kurdish political leader: "DHA, Turkey’s main secular news agency, reported late on Wednesday that the state prosecutor in Diyarbakir, the regional capital of Turkey’s predominantly Kurdish populated south-east, had opened an investigation into Mr Demirtas on charges ranging from humiliating the Turkish people to insulting the president and producing propaganda for a terrorist organisation."
  • Marga hefur grunað, að Erdogan hafi hafið stríð gegn PKK, í pólitískum tilgangi.

En það að á svæðum í Kúrdistan, ríki öryggis ástand - inn í suma bæi á svæðum Kúrda er ekki lengur unnt að ferðas, eða fara til eða frá, án sérstakrar heimildar.
Gæti hugsanlega - - hindrað fjölda Kúrda í því að kjósa.

Erdogan sennilega heldur, að fyrst að það að HDP komst inn á þing, batt enda á þingmeirihluta AKB flokksins.
Þá muni sá þingmeirihluti, snúa til baka - ef honum tekst a bola HDP af þingi.


Nú ætti að skiljast hvað ég meina með fyrirsögninni

En ég er að meina, að það ætti að hefjast samúðarbylgja innan tyrknesks samfélags, vegna tilræðisins á laugardag.
Að þetta tilræði, gæti eyðilegt tilraun Erdogan til að - bola HDP af þingi.

  1. En núna virkilega þarf Tyrkland á því að halda.
  2. Að stjórnarskipti verði í landinu.

Það er aldrei að vita, hve langt slík bylgja gæti náð.

 

Niðurstaða

Mig grunar að Erdogan bölvi þeim sannarlega í sand og ösku, er frömdu sprengjutilræðið í Ankara á laugardag. Ekki vegna þess að hann hafi hina minnstu samúð eða meðaumkun með því fólki er lét lífið. Þar sem í hans augum séu þetta allt andstæðingar - eða óvinir, sem er sennilega nær lagi hvernig hann lítur sína andstæðinga í landspólitík.

En hann sennilega skilur mæta vel, hvaða áhrif þetta tilræði sennilega mun hafa.
Að þetta tilræði líklega, snarlega dragi úr líkum þess, að herferð hans gegn HDP pólitísku flokki Kúrda, komi til með að hafa árangur þann sem Erdogan vonast til.

Ég skal ekki taka það af Erdogan, að hann hefur gert góða hluti fyrir Tyrkland. Þá meina ég, að enginn hefur gert meir fyrir efnahag Tyrklands en hann. En seinni ár, hefur hann fyllst stöðugt meiri hroka, og gegnsærri valdafýsn -> Áframhald hans við völd, virðist stórfelld hætta orðin við sjálft lýðræðið í Tyrklandi.

Þannig að það sé lýðræðinu í Tyrklandi nú nauðsynlegt, að hann tapi kosningunum nú í haust, sem hann sjálfur boðaði til.

Þetta tilræði gæti einmitt hugsanlega leitt fram þá útkomu.

 

Kv.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

Ég hugsa: Tyrkneskir þjóðernissinnar, ekki ISIS.

Ásgrímur Hartmannsson, 11.10.2015 kl. 00:41

2 Smámynd: Einar Björn Bjarnason

Ekki óhugsandi, en það væri afar heimst af þeim, síðan er það annað - að það væri alveg nýtt af slíkum hóp, að framkv. sjálfsmorðs árás. Einu hóparnir sem ég hef nokkru sinni heyrt að sprengi sig í loft upp, eru ofsatrúar Múslimar annars vegar og hins vegar þegar borgarastríðið á Srí Lanka stóð yfir - fylgismenn svokallaðra Tamíl Tígra.
Kv.

Einar Björn Bjarnason, 11.10.2015 kl. 11:58

3 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

Veit ekki.  En enginn segir að þetta séu einhverjir spekingar.

Ásgrímur Hartmannsson, 12.10.2015 kl. 00:23

4 Smámynd: Einar Björn Bjarnason

Skv. nýjustu fréttum, segja yfirvöld Tyrklands að 2-karlmenn hafi sprengt sig í loft upp. Þau virðast leggja til að þeir hafi verið á vegum ISIS.
Það finnst mér sjálfum sennilegast - en ISIS var eftir allt saman að baki tilræðinu í Suruc í ágúst.
Látnir kvá vera komnir yfir 120. Einhverjir sem sennilega voru illa slasaðir hafa sennilega ekki haft það af.
En þ.e. alls ekki svo að maður geti ekki trúað ISIS til að drepa 120 + manns með 2-sjálfsmorðssprengjum.
Og sannarlega hefur ISIS ástæðu a.m.k. frá sjónarhóli ISIS, að líta á Kúrda sem óvini.

Markmið gæti verið að sá óvild innan tyrknesks samfélags - því þeir örugglega vita vel af því, hve sterk óvild ríkir milli tyrkneskra kúrda og stjv. þar.
Að margir væru líklegir einmitt til þess - að falla fyrir samsæriskenningu af því tagi, sem þú leggur til.

Það sé einmitt gambýttur ISIS - að margir falli í þá átt, að trúa því að yfirvöld hafi staðið fyrir þessu, eða stuðningsmenn þeirra - - > Þá takist ISIS að skapa þann klofning innan Tyrklands sem ISIS hefur áhuga á að skapa.

Kv.

Einar Björn Bjarnason, 12.10.2015 kl. 01:01

Bæta við athugasemd

Nauðsynlegt er að skrá sig inn til að setja inn athugasemd.

Um bloggið

Einar Björn Bjarnason

Höfundur

Einar Björn Bjarnason
Einar Björn Bjarnason
Stjórnmála- og Evrópufræðingur. Áhugi á stjórnmálum, Evrópumálum, alþjóðamálum, málefnum Miðausturlanda, trúmálum, vísindum og tækni, og margt fleira.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Eldri færslur

2024

2023

2022

2021

2020

2019

2018

2017

2016

2015

2014

2013

2012

2011

2010

2009

2008

Nýjustu myndir

  • Mynd Trump Fylgi
  • Kína mynd 2
  • Kína mynd 1

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.5.): 10
  • Sl. sólarhring: 13
  • Sl. viku: 674
  • Frá upphafi: 849668

Annað

  • Innlit í dag: 10
  • Innlit sl. viku: 623
  • Gestir í dag: 10
  • IP-tölur í dag: 10

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband