Enn ein Grikklandskrísan?

Financial Times sagði frá því að Alþjóða Gjaldeyrissjóðurinn, sé við það að - setja frystingu á frekari greiðslur til Grikklands. Vegna þess að skv. reglum sjóðsins má hann ekki afhenda peninga til lands. Nema það hafi að lágmarki 12 mánaða fjármögnun, þegar það er innan björgunarprógramms. En næsta greiðsla á að fara fram í lok júlí 2013, eftir að endurskoðun gríska prógrammsins sem þá á að fara fram er lokið.

"But under IMF rules, governments must have at least 12 months of financing in place to receive IMF disbursements under any bailout programme."

IMF to suspend aid payments to Greece unless bailout hole plugged

  • Skv. fréttinni hefur komið upp óvænt "fjárlagagat" í Grikklandi upp á 3-4ma.€.
  • Það valdi því, að fjármögnun ríkisstjórnar Grikklands dugi einungis út júlí mánuð 2014. 

Í þetta sinn sé holan ekki ríkisstjórn Grikklands að kenna, heldur því að einstakir meðlimaseðlabankar Seðlabaka Evrópu. Stóðu ekki við samkomulag Seðlabanka Evrópu um það að endurnýja grísk ríkisbréf í þeirra eigu, þegar þau féllu á gjalddaga nýverið.

Fyrir bragðið hafi grísk stjv. í skyndingu orðið, að greiða þau bréf upp - fé sem átti að fara í aðra hluti.

  • Þetta bætist ofan á vandræði ríkisstj. Grikklands, sem neyddist í sl. viku til að hætta við að "leysa upp ríkisfjölmiðil landsins" eins og áður hafði verið ákveðið, þegar grískur dómstóll dæmdi lokunina "ólöglega."
  • Skv. frétt í vikunni, var ekki "per se" ólöglegt að loka ríkisfjölmiðlinum, en eins og lokunin var útfærð, stóðst hún ekki grísk lög skv. dómstólnum.

Ríkisstj. sem lá við að falla vegna málsins, þarf nú að finna aðra leið til að standa við samkomulag við "Þrenninguna" - sem m.a. kveður á um brottrekstur 2000 ríkisstarfsm. fyrir endurskoðunina í júlí.

Að auki, tókst ríkisstjórn Grikklands ekki að selja mikilvægt "veitu" fyrirtæki í eigu gríska ríkisins, sem stóð til að selja. En eini kaupandinn sem var í myndinni "Gasprom" hætti við. Þannig, að það bætist við í ofan-álag, að einkavæðingaráætlunin sem er hluti af björgunarprógramminu. Er enn ekki að skila nokkru. En sjálfsagt - - er ekki mikið af áhugasömum kaupendum!

Ekki liggur fyrir - - hvernig hið nýja óvænta fjárlagagat verður leyst.

En þ.s. þ.e. ekki ríkisstj. Grikklands að kenna, heldur því að einstakir meðlimaseðlabankar Seðlabanka Evrópu stóðu ekki við sinn hluta samkomulagsins, um 3-björgun Grikklands.

Þá væri það með meiru ósanngjarnt - - að ætlast til þess að Grikkir myndu skera enn á ný, meira niður.

Fyrir utan, að það gæti riðið ríkisstj. Grikklands að fullu - - og þá væri erfitt að sjá, hver á að mynda nýja stjórn þarlendis. Kannski þá - aftur þingkosningar?

 

Niðurstaða

Það er spennandi að fylgjast með því, hvort Grikkland lafir fram yfir þingkosningar í Þýskalandi sem fram eiga að fara nk. september eða ekki. En það líklega var alltaf ljóst. Að töluverða heppni þyrfti til svo að 3-björgun Grikklands myndi lafa "heilt ár."

Nú má velta fyrir sér - - hvort dæmið dettur yfir Angelu Merkel fyrir kosningar.

 

Kv.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Nauðsynlegt er að skrá sig inn til að setja inn athugasemd.

Um bloggið

Einar Björn Bjarnason

Höfundur

Einar Björn Bjarnason
Einar Björn Bjarnason
Stjórnmála- og Evrópufræðingur. Áhugi á stjórnmálum, Evrópumálum, alþjóðamálum, málefnum Miðausturlanda, trúmálum, vísindum og tækni, og margt fleira.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Eldri færslur

2024

2023

2022

2021

2020

2019

2018

2017

2016

2015

2014

2013

2012

2011

2010

2009

2008

Nýjustu myndir

  • Mynd Trump Fylgi
  • Kína mynd 2
  • Kína mynd 1

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 88
  • Sl. sólarhring: 101
  • Sl. viku: 440
  • Frá upphafi: 847081

Annað

  • Innlit í dag: 83
  • Innlit sl. viku: 417
  • Gestir í dag: 81
  • IP-tölur í dag: 77

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband