Mun dollarinn tapa stöðu sinni, sem megin varaforða gjaldmiðillinn?

Svissneski UBS bankinn lét nýlega framkvæma áhugaverða skoðanakönnun meðal stjórnenda varaforða hjá seðlabönkum og stórra sparnaðarsjóða á vegum fullvalda ríkja, samtal um 80 aðilar, með yfirráð yfir meir en 8.000ma.$. Ótrúleg upphæð!

Niðurstaðan kom á óvart, því nú telur meirihlutinn að dollarinn muni tapa stöðu sinni innan næstu 25 ára. En þeir eru ekki að spá því að einhver einn annar gjaldmiðill komi í staðinn.

Heldur verði aðilar með blöndu af gjaldmiðlum í sínum forða, jafnvel að gull verði haft þar með.

 

Dollar seen losing global reserve status

  • “Right now there is great concern out there around the financial trajectory that the US is on,” said Larry Hatheway, chief economist at UBS."
  • "Holders of large reserves, most notably China, have been diversifying away from the dollar. In the first four months of this year, three quarters of the $200bn expansion in China’s foreign exchange reserves was invested in non-US dollar assets, Standard Chartered estimates."
  • "Robert Zoellick, president of the World Bank, last year proposed a new monetary system involving a number of major global currencies, including the dollar, euro, yen, pound and renminbi."
  • "The system should also make use of gold, Mr Zoellick added."
  • "Central banks have bought about 151 tonnes of gold so far this year, led by Russia and Mexico, according to the World Gold Council, and are on track to make their largest annual purchases of bullion since the collapse in 1971 of the Bretton Woods system, which pegged the value of the dollar to gold."
  • "The reserve managers predicted that gold would be the best performing asset class over the next year, citing sovereign defaults as the chief risk to the global economy."

 

Það er klárt að enginn einn gjaldmiðill getur tekið við stöðu dollarsins, svo blanda eða viðmiðunar-karfa hljómar mjög rökrétt niðurstaða.

Að auki miðað við núverandi óvissu með stöðu gjaldmiðla, sýnist mér einnig rökrétt að hafa inni í körfunni eða blöndunni viðmið við eitthvert form óforgengilegra verðmæta. Gull er hið klassíska slíkt.

 

Niðurstaða

Sú mikla áhersla Federal Reserve og ríkisstjórnar Bandaríkjanna, á að leysa til skamms tíma heimatilbúinn hagkerfisvanda Bandaríkjanna með stórfelldri peningaprentun, hefur verið ógnun við stöðu dollars sem hnattræns viðmiðs í heimsverslun, og sem megin varaforða gjaldmiðils. 

Það hjálpar þó dollarnum, að enginn annar gjaldmiðill þarna úti, er samt með sterkari stöðu - í reynd eru aðrir veikari á svellinu eða sbr. hið kínv. renminbi að þar flækist fyrir að kínv. stjv. eru enn að stýra flæði þess um markaði, magni þess í alþjóða kerfinu og gengi - með stjórnvalds aðgerðum. 

En, það má vera að það sé að styttast í það, að tekið verði upp einhvers konar formlegt hnattrænt viðmið, sem verði samsett eins og lýst er að ofan. Spurning hvort það verður þá einnig unnt að nýta, sem verðviðmið á mörkuðum.

Það verður tíminn að leiða í ljós!

 

Kv.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Notkun gulls er ekki til góðs, því hér er um að ræða málm, sem ekki er útséð um að verði í janfmikilli eftirspurn.  Þetta er það fyrsta.

Í öðru lagi, þá gleimist það öllum "hagfræðingum" að peningakerfi bandaríkjana byggir á "GDP".  Sem þýðir, að dollar er aðeins hægt að fá skipt út ... með Amerískri vinnu.  Sagt á einfaldan hátt.  Alveg sama hvernig þú veltir dollaranum í kringum fingur þér, og lætur hann fljóta um heiminn ... að lokum er aðeins hægt að fá "ameríska afurð" út á hann.

Það er akkúrat þess vegna, sem margir vilja halda eigin gjaldmiðli ... slíkur gjaldmiðill, verður einungis hægt að skipta út, fyrir atvinnu.  Nema maður leggi eitthvað annað að veði.  Eins og verið er að reyna að "þvinga" Ísland til í dag.

Gull, að mínu mati.  Hefur þá afleiðingu, að fjármagnseigendur geta tengd burt tengingu atvinnulífs og fjármagns.  Þetta til eigin hagræðingar, til að tryggja það fjármagn sem þeir eiga.  Þeir reyna að koma "seðlunum" eða "skuldarviðurkenningunum" á eina hönd, meðan þeir hafa "hámarkaða eignarhlut" í hinni.

Í dag, þarf maður að hafa eitt í huga.  Ég er ekki eini maðurinn í dag, sem sé þetta markmið.  Og, ég er heldur ekki eini maðurinn í heiminum, sem vill "fella" þessa aðila.  Gull, þíðir að vísu erfiðleika, en þíðir einnig að bankakerfið eins og það er, verður sett á hnén.  Gull er ekki sama "markaðsvara" og það var hér áður, og er í dag ... ofmetið.   Afleiðing þessa, verður leiðrétting á gullmatinu og þar af leiðandi ... annað hrun.

Bjarne Örn Hansen (IP-tala skráð) 28.6.2011 kl. 12:01

Bæta við athugasemd

Nauðsynlegt er að skrá sig inn til að setja inn athugasemd.

Um bloggið

Einar Björn Bjarnason

Höfundur

Einar Björn Bjarnason
Einar Björn Bjarnason
Stjórnmála- og Evrópufræðingur. Áhugi á stjórnmálum, Evrópumálum, alþjóðamálum, málefnum Miðausturlanda, trúmálum, vísindum og tækni, og margt fleira.
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Eldri færslur

2024

2023

2022

2021

2020

2019

2018

2017

2016

2015

2014

2013

2012

2011

2010

2009

2008

Nýjustu myndir

  • Mynd Trump Fylgi
  • Kína mynd 2
  • Kína mynd 1

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 40
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 33
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband