Færsluflokkur: Utanríkismál/alþjóðamál
19.5.2020 | 22:48
Græða Bandaríkin yfirhöfuð nokkuð á árás sinni á Huawei risafyrirtækið?
Sannarlega hafa verið ásakanir að kínversk yfirvöld njósni í gegnum Huawei, það hefur manni alltaf virst mögulega hugsanlegt - þó aldrei hafi ég séð sannanir fyrir slíku!
Á móti má nefna, að Snowden sýndi sannarlega fram á fyrir nokkrum árum síðan, að Bandaríkin reka óskaplega víðfeðmar njósnir er virðast ná yfir gervallt heims-internetið, ofurtölvur virðast skima í gegnum það meira eða minna gervallt!
--Hafandi þetta í huga, hefur maður að sjálfsögðu nokkurn varnagla þegar maður heyrir harðar ásakanir um slíkt frá Bandaríkjunum - í seinni tíð.
--Að auki bætist annar varnagli við, að núverandi ríkisstjórn Bandaríkjanna virðist með sérdeilis mikla haturs-stefnu gagnvart Kína - sú virðist hratt versnandi stig af stigi.
- Við skulum segja, ég taki því ekki sjálfvirkt sem heilögum sannleika, ef ég sé ásökun á Kína frá þessari tilteknu ríkisstjórn í Washington.
US surgical attack on Huawei will reshape tech supply chain
Nýjustu árásirnar á Huawei virðist ætlað að skaða fyrirtækið stórfellt!
Það sem Trump ríkisstjórnin virðist hafa nánar tiltekið bannað!
Er að fyrirtæki er framleiða kísil-flögu afleidda örtölvu-kubba, framleiði slíka fyrir Huawei, með notkun bandarísks framleidds tækjabúnaðar!
--Erlend fyrirtæki er eiga þannig búnað, verða að óska sérstaks leyfis, ef þau ætla að framleiða slíka fyrir Huawei -- talið ósennilegt slík verði veitt.
- Any company that wishes to manufacture computer chips to Huaweis designs with US tools now needs to apply for a licence.
- US machines from the likes of Applied Materials and Lam Research are used by about 40 per cent of the worlds chipmakers,...
- ...while software from the likes of Cadence, Synopsis and Mentor is used by 85 per cent,,,
- ...according to Credit Suisse, which said it would be almost impossible to find a fabrication plant, or fab, that could still work with Huawei.
- It will be difficult for any foundry in the world to avoid the impact of this, -- said Chris Hsu, an analyst at Trendforce, the technology research firm.
Bandarísku fyrirtækin virðast enn -- einráð fyrir vélar er framleiða kubba er nota 5 - 7 nanómetra snið!
--Bannið sé því stórfellt vandamál fyrir sérstaklega 5-G neta bissness Huawei, sem þarfnist bestu tækni!
- Bandaríkin virðast hafa - greint veikleika Huawei. Huawei virðist eiga sínar eigin hannanir á kísilkubba-byggðum örtölvum.
- En Kína virðist ekki ráða yfir þeim fullkomnu tækjum - sem beinlínis framleiða slíkar örtölvur af fullkomnustu gerð.
- Þetta er að sjálfsögðu -- tímabundinn vandi!
Mér skilst að þessi tækni að búa til kubba skv. 5-7 nanómetra sniðum sé mjög erfið.
Hafi tekið bandarísku fyrirtækin sjálf mjög kostnaðarsamar rannsóknir til að þróa!
Hinn bóginn, þá má væntanlega reikna með því að Kína hendi nú á næstunni - nær endalausum peningum í þróun slíkra tækja, en jafnvel með endalausum peningum - með ráðningu fólks að utan með sérþekkingu, mun það a.m.k. samt taka einhver árafjöld fyrir Kína að ná valdi á þeirri tækni.
- En auðvitað þaðan í frá þá væri Kína komið yfir þennan hjalla!
- Í besta falli virðist mér að Bandaríkin með þessu, tefji Kína í sínum áætlunum.
--Hugsanlega allt að áratug.
En hvað með lengri tíma afleiðingar fyrir Bandaríkin?
Ég held að aðferð ríkisstjórnar Bandar. - hljóti að gera nær allar stórar þjóðir er ráða yfir hátækni -- hugsi. Með þessu sína Bandar. fram á, að þau skirrast ekki við að beita bönnum í tilraunum til að - vinna hugsanlega raunverulega efnahagslegan skaða á efnahagslegum keppinaut.
--Evrópusambandið er hefur einnig verið í viðskiptadeilu við Trump, hlýtur sérstaklega vera hugsi.
En ríkisstjórn Bandar. hefur verið með í bakhöndinni hótanir um tolla á bifreiðar frá löndum ESB -- rétt að ryfja upp að Viðskiptaráðuneyti Bandar. felldi þann afar sérkennilega úrskurð seint á sl. ári -- að slíkir tollar væru réttlætanlegir því að sá innflutningur skaðaði öryggishagmuni Bandar; hef ekki lesið hvernig menn geta komist að svo sérkennilegri niðurstöðu.
En þetta virðist eðli núverandi ríkisstjórnar Bandaríkjanna!
Hún fullyrðir - það er þá satt - hún telur sig ekki virðist þurfa sanna nokkurt.
--Þess vegna tek ég fullyrðingar frá þeirri ríkisstj. Bandar. með mun meiri fyrirvara en ég var áður vanur í tíð flestra fyrri ríkisstjórna Bandar.
- Útkoman hlýtur að vera sú, að önnur stór öflug lönd - leitist hér með eftir því, að afnema þau tilvik þ.s. þau hugsanlega eru háð einhverri lykil-tækni sem er bandar.
- En ég efa ekki eina sekúndu - Trump væri til í að beita sambærilegum úrræðum, ef hann mundi ákveða að fókusa á Evrópusambandið með sama hætti.
Tortryggni gagnvart Bandaríkjunum - hlýtur að vaxa enn frekar.
Og þó hefur hún vaxið mikið þegar í tíð núverandi ríkisstj. Bandar.
- Þjóðir verða þá væntanlega -- tregari í stað þess vera viljugari en áður, að kaupa mikilvæga tækni frá Bandaríkjunum.
- Alveg öfugt við það sem ef til vill Trump segist vilja, þ.e. auka kaup annarra á bandarísku -- þá hafa aðgerðir af því tagi þau beita Huawei þau áhrif að hvetja aðrar þjóðir til að síður vera háð viðskiptum við Bandar.
En hegðan Banda. hefur sennilega aldrei verið meira - unpredictable - m.ö.o. enginn getur í reynd vitað, hver gæti hugsanlega verið næstur í röðinni, að fá neikvæða athygli Trumps.
--Það virðist alltaf á grunni þess, honum virðist - pólit. hentugt það skiptið í bandar. innanlands pólit. samhengi.
Niðurstaða
Ef menn halda að Bandaríkin drepi bara kínversk fyrirtæki - bendi ég á að fyrir tveim árum, drap núverandi ríkisstj. Bandar. Kanadískan flugvéla-framleiðenda fyrir það eitt - að ætla að veita Boeing samkeppni, hafði þróað nýja flugvél er var betri en sambærileg Boeing.
--Ríkisstj. Bandar. setti toll á þann innflutning, augljóslega ósanngjarn - var síðan dæmdur ólöglegur af dómsferli NAFTA samningsins - en skaðinn var skeður.
Nú eru þau að leitast til við að drepa Huawei, það virðist hluti af hörðum ásökunum gegn Kína er hafa komið upp í seinni tíð - virðist gerð sem hluti af aðgerð til að refsa Kína!
Þó gerði Kína samning við ríkisstj. Bandar. undir lok sl. árs og viðræður um framhald hans voru ekki hættar, hafa ekki verið stöðvaðar - þrátt fyrir allt.
Það var engin vörn fyrir Kanada að eiga gildan viðskipta-samning við Bandar. - né teljast mikilvægt bandalagsríki Bandar. - þau ákváðu samt að drepa mikilvægt kanad. fyrirtæki fyrir það eitt, að veita bandar. fyrirtæki samkeppni.
Mér virðist hegðan Trump stjórnarinnar sýna - að enginn er óhultur.
Að vera - bandamaður - skipti engu máli - að hafa gildan viðskiptasamning, ekki heldur.
--Hef aldrei vitað ruddalegri ríkisstjórn Bandar. nokkru sinni í almennri hegðan.
Kv.
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt 20.5.2020 kl. 11:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Ég held að Steve Bannon þekki Donald Trump manna best:
Steve Bannon: Trumps campaign will be about China, China, China, -- And hopefully the fact that he rebooted the economy.
M.ö.o. því verri sem efnahagurinn er, því harðar keyri Trump á -- illa Kína.
Kenninguna þetta sé allt Kína að kenna.
Að efla sem mest haturs-öldu innan Bandaríkjanna gegn Kína!
Það versta er, að Trump virðist vera að takast þetta - þ.e. að efla til þeirrar hatursöldu, getum notað íslenska orðið -Þórðar-gleði- sem er gamla ísl. orðið yfir -war euphoria.-
En ég hef ekki séð slíka haturs-öldu í skrifum gegn nokkru landi á netinu, tja -- verð að fara aftur til 2003 þegar George W. Bush var að sannfæra Bandaríkjamenn að stríð gegn Saddam Hussain væri málið.
--Þá man ég eftir Þórðargleði hjá mörgum Ameríkönum er tjáðu sig á netinu, fögnuðu því að til stæði að enda fyrir fullt og allt stjórnartíð Saddams Hussain, auðvitað voru allir þeir er á netinu bentu á -- risastóra galla í málflutningi Bush stjórnarinnar úthrópaðir.
Það sama gildir eiginlega í dag, að málflutningus Trump stjórnarinnar hefur risastóra vankanta, sem virðist að Trump ætli að keyra yfir -- með því að efla sem mest til hatursöldu þ.s. tilfinningar keyra yfir alla umræðu, sbr. Þórðargleði.
- Í dag eru yfir 40 milljón atvinnulausir í Bandaríkjunum, rúmlega 35 milljónir hafa bæst við síðan kreppan af völdum CV19 hófst.
- Á sínum tíma, var oft talað að Bush stjórnin hefði leitt hjá sér aðvaranir vegna 9/11 atburðarins svokallaða er al-Qaeda rændi flugvélum flaug þeim á World-Trade-Center turnana og felldi þá, síðan á Pentagon - ein flugvél fór beint í jörðina.
--Þá fékk Bush sannarlega aðvörun frá CIA -- svar hans skv. því sem sagt er, kvá hafa verið: All right, youve covered your ass,... -- síðan ekkert hlustað frekar. - En Trump fékk aragrúa aðvarana - þ.e. fyrst frá Suður-Kóreu og Japan í Janúar, þegar CV19 barst þangað - síðan eftir 20. febrúar er veikin berst til Ítalíu þá þegar ljóst að um meiriháttar faraldur er að ræða þar - þaðan í frá verður fljótt ljóst að veikin er einnig komin víða um V-Evrópu, fyrir lok febrúar er hún klárlega nær alls staðar í V-Evrópu.
Undir lok febrúar fara einstök fylki Bandaríkjanna að tilkynna smit hjá sér, í Mars fjölgar þeim fylkjum hratt er tilkynna faraldur hjá sér.
--Og enn bregst Trump ekki við. - Ekki fyrr en um miðan Mars - Trump lýsir yfir neyðarástandi.
Slík yfirlýsing er mikilvæg, því þá getur alríkið farið að verja fé og tækjum til að aðstoða innanlands í Bandaríkjunum, eftir því sem fylkin óska aðstoðar.
Neyðar-ástand virkjar sem sagt allar björgunar-áætlanir og þann mannskap, ásamt fé er ríkið hefur. Því er mjög mikilvægt að lýsa yfir neið.
--Daginn sem Trump lýsti yfir neyð, höfðu 44 fylki tilkynnt dreifingu smita, því ljóst að sóttin var þá þegar komin um Bandaríkin nær gervöll.
- Deilt er því á Trump - eins og deilt var á George Bush.
- Þ.e. áhugavert að Bush kaus að hefja stríð nokkrum mánuðum síðar gegn Saddam Hussain.
Þó Saddam Hussain hafi í engu komið nærri 9/11 atburðinum.
--En -war euphoria- Þórðargleði leiddi Bush til sigurs í næstu kosningum á eftir. - Í dag keyrir Trump á hatur gagnvart Kína - kenninguna þetta er allt Kína að kenna.
Og það er sannarlega að rísa -war euphoria- eða Þórðargleði að nýju í Bandar.
--Það má alveg halda því fram, þetta sé kosninga-stefna Trumps.
Stríð gegn Saddam Hussain er eitt -- stríð gegn Kína annað!
Stríðið sem Bush hratt af stað, tók miklu lengri tíma en Bush stjórnin gerði ráð fyrir, hafði einnig miklu verri afleiðingar fyrir Bandaríkin - en stjórnin er hún fór af stað gerði ráð fyrir, eiginlega reyndust allar áætlanir Bush stjórnarinnar byggðar á sandi.
--Sannarlega vann Bandaríkjaher hratt sigur á Saddam, en síðan tók hið eiginlega stríð við þ.e. stríðið við afleiðingarnar er skullu yfir - þ.e. borgarastríð í Írak, víðtækt hryðjuverkastríð eftir að stór hluti hers Saddams gekk til liðs við al-Qaeda.
- Og á endanum, græddi Íran mest á niðurstöðunni!
- Heildar-mannfall er mælt í hundruðum þúsunda, ef allt er talið.
- Stríð gegn Kína verður á hinn bóginn miklu mun verra, og í mjög háu margfeldi kostnaðarsamara!
Höfum í huga Kalda-stríðið stóð í áratugi, proxy-stríð voru háð um stóran hluta Jarðar í tugum landa, mörg þeirra höfðu mannfall yfir milljón hvert og eitt -- heildarmannfall ef allt er talið örugglega meir en 20 milljón.
Manntjón langsamlega mest í löndum sem urðu bardagavellir.
Þá íbúar þeirra landa er dóu einna helst. - Kalda-stríðið vannst ekki í einni stórri orustu, heldur vegna þess að hagkerfi Sovétríkjanna var sósíalískt því ekki nærri eins skilvirkt.
Kína á hinn bóginn hefur stærsta kapítalíska framleiðsluhagkerfi heimsins.
Það blasir í engu við að Kína bersýnilega sé verulega minna skilvirkt. - Ég meina, það blasi við enginn augljós endapunktur -- sigur sviðsmynd.
Kalda stríðið var langt -atrition game- er snerist um það hvor mundi endast lengur.
En það blasir ekki við mér að Kína - sé augljóslega þar um veikara.
--Bandaríkin hafa ekki síður veika punkta en Kína.
--Blasir ekki augljóst við, að í mjög löngu -attritium game- hafi Bandar. betur. - Kalda stríðið stóð samt í áratugi -- það tók það langan tíma að hefja USSR niður.
Þó USSR væri minna skilvirkt.
Þ.s. Kína er ekki endilega augljóslega minna skilvirkt.
- Gæti Trump verið að hefja hið eiginlega -- stríð án enda.
Ég meina, það getur líklega ekki endað með öðrum hætti, en framtíðar leiðtogar beggja einhvern tíma þegar öll Þórðargleðin er útbrunnin í hrönnum líka - við er tekin fyrir margt löngu stríðsþreyta; ákveða að binda endi á átök.
--Án þess að annar hvor hafi unnið! - Niðurstaðan verði m.ö.o. án niðurstöðu eða inconclusive.
Það virðist sennilegasta útkoma slíkra átaka.
En milli upphafspunkts og þess enda.
--Gæti verið risastór haugur líka - í fjölda landa lögð í rjúkandi rústir.
Auðvitað má ekki gleyma því að -- barátta gegn hnattrænni hlýnun færi í súginn.
Samtímis og kalt-stríð geisaði, mundi þá einnig -- stjórnlaus hlínun vera að ógna tilvist Jarðarbúa, og líklega leiða á vergang gríðarlegan fjölda fólks ár hvert, ásamt því að valda liklega uppskerubrestum og hungursneyðum.
--Kalt stríð geisandi á sama tíma, mundi þá þíða að þau lönd fengu nær enga hjálp sem byggju við þá neyð, þannig mannfall af völdum þessa -- mundi einnig verða stórfellt liklega meira.
Vegna þess að heimurinn væri undirlagður af Köldu-Stríði tveggja sjálfs-elskra risavelda!
Niðurstaða
Ég er viss um að ef það hefst Kalt-stríð jafn mannskemmandi og það fyrra var, er lagði í rúst fjölda landa og drap kringum 20 milljón manns heiminn vítt.
Og Trump startar því einungis í þeirri von að -war euphoria- eða Þórðargleði byggist upp í Bandar. svo sterk að hún færi honum kosningasigur nk. haust.
Þá mun mannkynssagan ólíklega líta Trump mildari augum en leiðtoga Evrópskra stórvelda er störtuðu óþörfu stríði 1914, er einnig færði með sé neystann fyrir næsta stríð þar á eftir.
Það er sennilega það versta mögulega sem Trump getur gert, til þess að hafa kosningasigur -- að hrinda heiminum í annað kalt stríð, stríð án sýnilegs enda - stríð sem líklega leiði til eyðileggingar fjölda landa og mannfalls íbúa þar, þegar risaveldin takast á.
--En kalt stríð við Kína virkilega virðist mér ekki hafa nokkurn enda annan en hugsanlega þann, að löndin tvö á einhverjum fjarlægjum enda semji frið án þess að annað sé sigurvegari.
Það sé sennilegasta útkoman. En milli þess punkts og nú, geta legið milljóna tugir látina og heilu löndin lögð í rúst.
--Ekki gleyma hnattræn hlýnun líklega hefur mun verri afleiðingar af völdum kalds-stríðs og því stærri mannfelli, því samvinna um að vinna gegn henni þá fer óhjákvæmilega suður, ásamt því að stríð verður líklega mörgum tilvikum í mörgum sömu landa og einnig eru að líða mikið fyrir afleiðingar stjórnlausrar hlýnunar.
Ef Trump startar þessu stríði - í veikri von það leiði fram kosningasigur.
Þá er niðurstaðan sú - þeir sem vöruðu við honum 2016 höfðu rétt fyrir sér.
Kv.
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt 17.5.2020 kl. 12:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
Eins og ég set þetta fram í fyrirsögn er auðvelt að setja málið fram með sláandi hætti.
Hlutföllin eru rétt reiknuð, að hlutfall þeirra er deygja fram til þessa í Svíþjóð er sláandi miklu hærra en í öllum öðrum Norðurlanda!
Svíþjóð
26.322 sýktir
3.225 látnir
Íbúar: 10,23 milljón
Danmörk
10.429 sýktir
529 látnir
Íbúar: 5,80 milljón.
Finnland
5.962 sýktir
267 látnir
Íbúar 5,52 milljón
Noregur
8.099 sýktir
219 látnir
Íbúar: 5,37 milljón
Ísland
1.801
10
Íbúar: 0,36 milljón.
Dánarhlutfall miðað við höfðatölu:
- Svíþjóð dánarhlutfall: 0,031%.
- Danmörk 0,009%.
- Finnland 0,005%
- Noregur 0,004%
- Ísland 0,0027%.
Til gamans:
- Dánarhlutfall Svíþjóðar er 3,4 falt dánarhlutfall Danmerkur.
- 6,2 sinnum dánarhlutfall Finnland.
- 7,75 sinnum dánarhlutfall Noregs.
- 11,5 sinnum dánarhlutfall Íslands!
Annar samanburður væri:
Bretland
219.183 sýktir.
31.855 látnir.
66,65 millj.
- 0,048% dánarhlutfall.
Ítalía
219.070 sýktir.
30.560 látnir.
60,36 millj.
- 0,05% dánarhlutfall.
Spánn
264.663 sýktir.
26.621 látnir.
46,94 millj.
- 0,057% dánarhlutfall.
Frakkl
176.658 sýktir.
26.380 látnir.
66,99 millj.
- 0,039% dánarhlutfall.
Bandaríkin
1.363.126 sýktir.
80.546 látnir.
328,2 millj.
- 0,025%
Þýskal.
171.767 sýktir.
7.557 látnir.
83,02 millj.
- 0,009% dánarhlutfall.
Takið eftir að þetta er miklu hagstæðari samanburður.
Þá blasir ekki við annað en að Svíþjóð sé mitt í grúppunni:
- Spánn 0,057%
- Ítalía 0,05%
- Bretland 0,048%
- Frakkland 0,039%
- Svíþjóð 0,031%
- Bandaríkin 0,025%
- Þýskaland 0,009%
Skv. þessu er Svíþjóð sannarlega að uppskera verulega fleiri látna en Norðurlön.
En miðað við stærri löndin í Evrópu og Bandaríkin, lítur Svíþjóð ekki neitt illa út.
- Líklega færir þetta byr í segl umræðunnar hvort ekki ætti að sleppa öllu lausu í löndum þ.s. veikin er hvort sem er orðin mikið útbreidd.
- Hinn bóginn getur annað átt við í löndum þ.s. almenn stórfelld útbreiðsla hefur verið hindruð.
Niðurstaða
Ef maður getur nálgast heildarniðurstöðu af þessum samanburði þá getur hann verið sá, að hugsanlega sé rétt eins og sænski yfirlæknirinn segir -- að sleppa öllu lausu í löndum þ.s. sjúkdómurinn er þegar búinn að ná mikilli útbreiðslu.
--Á hinn bóginn getur annað átt við í löndum þ.s. yfirvöldum hefur tekist að hindra stórfellda almenna útbreiðslu sjúkdómsins.
Á endanum sé kannski engin algild formúla.
Hinn bóginn má vera að ef heilbrigðis-kerfi séu miklu lélegri en í Svíþjóð.
--Sé það hugsanlega rök fyrir því að viðhalda víðtækum lokunum, þó niðurstaðan sé önnur í Svíalandi, þá getur verið að öflugt heilbrigðis-kerfi ráði miklu um útkomuna þar.
Kv.
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 21:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Frumgögn greiningar frönsku læknanna eru hér: SARS-CoV-2 was already spreading in France in late December 2019. Hlekkurinn er á læknisfræði-tímarit er sérhæfir sig í öndunarfærasjúkdómum.
--Kem ekki auga á að upplýsingarnar séu í nokkru ótrúverðugar!
One sample taken from a 42-year-old unemployed male born in Algeria who had lived in France for many years was positive. His last foreign travel was to Algeria in August 2019. One of his children presented with ILI prior to the onset of his symptoms. His medical history included asthma and type II diabetes mellitus. He presented to the emergency ward on 27 December 2019 with haemoptysis, cough, chest pain, headache and fever, evolving for 4 days. Initial examination was unremarkable and chest computed tomography (CT) imaging revealed bilateral pulmonary ground-glass opacities in the inferior lobes (Fig. 3).
Það sem er áhugavert við þetta, hann hafði ekki ferðast nýlega utan landsteina - hann hafði að virðist sýkst af eigin ættingja hans eigin barni - barnið hefur vart ferðast eitt utan landsteina.
--Þannig veikin var þegar farin að berast innan fransks samfélags í desember.
- M.ö.o. hefur veikin borist til Frakklands -- enn fyrr en des. 27. 2019.
Af hverju grefur þetta undan söguburði ríkisstjórnar Bandaríkjanna gagnvart Kína?
- Fyrsta lagi, brugðust kínversk yfirvöld sjálf við - ekki fyrr en rétt eftir mánaðamót janúar/desember, m.ö.o. þau voru sein til viðbragða.
Wuhan héraði er ekki lokað fyrr en síðar í Janúar.
Læknirinn sem sendi gögn til WHO seint í desember, er ekki handtekinn fyrr en í síðar í janúar.
Stjórnvöld Kína, fara ekki að rang-fullyrða um sjúkdóminn - fyrr en í janúar. - Fyrst að veikin var þegar farin að dreifast innan samfélaga Evrópu í desember.
Þá klárlega gátu ekki - sein viðbrögð kínverskra stjórnvalda hafa skipt nokkru máli.
Þannig þá verður það eiginlega að tómri tjöru - að segja það Kína að kenna að hafa ekki stoppað sjúkdóminn. - Versta sem hægt er þá að ásaka stjv. Kína um -- er sein viðbrög.
Eiginlega sama ásökun og beinist að stjv. Bandaríkjanna sjálfra.
--En Donald Trump lýsir ekki yfir neyðarástandi fyrr en kringum miðan mars 2020.
--Þann dag höfðu 44 fylki Bandar. tilkynnt um sýkingar, veikin greinilega þá þegar komin um Bandar. öll.
- Mjög góðar líkur eru á að veikin hafi borist frá Wuhan -- til Bandaríkjanna einnig í desember, sama á líklega við um Ítalíu - hugsanlega einnig Bretland og Þýskaland.
En skv. upplýsingum læknisins er lak upplýstingum til WHO.
Var veikin fyrst greind í fyrstu viku í des innan Wuhan, síðan fjölgar greiningum hratt - tugir greininga eru komnar í vikunni á eftir - síðan hundruðir vikunni þar á eftir.
--Þ.s. þetta var greinilega einungis toppurinn á ísjakanum sendi hann aðvörun til WHO.
- Af hverju veikin berst strax til Evrópu og líklega Bandar. einnig -- getum við þakkað daglegu flugi til og frá Wuhan héraði þ.s. það hérað er eitt megin efnahagssvæða Kína þ.s. erlend fyrirtæki starfa, enginn vafi að fyrirtækin fljúga með fólk nær daglega milli.
Á Íslandi voru það Íslendingar sjálfir er báru veikina um landið.
Líklegast á sama við, Frakkar - Ítalíar - Bandaríkjamenn, sem eiga í viðskiptaerindum innan Kína, fljúga reglulega á milli.
--Dreifa veikinni til sinna landa á mjög skömmum tíma. - Þetta sé alveg örugglega það sem gerist, og þetta gerist svo hratt vegna þess -- flugin eru örugglega daglega til allra þeirra landa er verða megin dreifingarmiðstöðvar meðal Vesturlanda.
Og svo fljótt gerist þetta, að það dreifing sjúkdómsins hefjist líklega samtímis í Evr. og Bandar. -- áður en stjv. Kína hafa sjálf áttað sig á því þau hafi vandamál.
Þess vegna sé ég ekki að ásökun Bandaríkjastjórnar til Kínastjórnar standist.
Sannarlega voru upphafleg viðbrögð stjv. Kína slæm!
En vegna þess að sjúkdómurinn hafi þegar verið farinn að dreifast erlendis.
Hafi þau viðbrögð líklega engu máli skipt fyrir önnur lönd!
--M.ö.o. hafi þau viðbrögð ólíklega valdið öðrum löndum tjóni.
Niðurstaða
Að mörgu leiti virðist mér viðbrögð Bandaríkjastjórnar seinni daga hugsanlega hættuleg. En Trump virðist skv. nýlegum fréttum íhuga að endurræsa viðskipta-stríðið, í ummælum sem ég sé á spjallsíðum erlendra fjölmiðla - má sjá vaxandi hatur í ummælum bandarískra einstaklinga er taka þátt í þeim umræðum gagnvart Kína.
Ég hef séð slíkt áður, síðast mánuðina á undan stríði Bandar. gegn Saddam Hussain 2003.
Málið er að fylgismenn Bandaríkjastjórnar virðast gagnrýnislaust samþykkja skýringu Trumps, að kenna Kínastjórn um dreifingu sjúkdómsins um heiminn - þannig það gríðarlega manntjón sem Bandaríkin eru að verða fyrir; í dag mun meira manntjón en t.d. í löngu stríði Bandaríkjanna á sínum tíma í Víetnam.
United States Coronavirus Cases: 1,263,243 Deaths: 74,810
Skv. Worldometers er þetta staðan í Bandar. akkúrat núna.
Ef miðað út frá stríðum fá stríð Bandar. nokkru sinni hafa hafa valdið þeim stærra tjóni.
Þetta mikið manntjón á skömmum tíma er auðvitað - trámatískur atburður, veldur sárindum.
--Þess vegna er svo rosalega hugsanlega hættulegt að beina reiðinni út af slíku manntjóni út á við gagnvart tilteknu landi, tiltekinni ríkisstjórn.
- Því þá getur risið stjórnlaus hatursalda - sem enginn síðar fær við ráðið.
Einmitt þ.s. maður skynjar í umræðunni, logandi heitt hatur.
Trump gæti virkilega í vanhugsun vegna þess hann hugsar fyrst um að bjarga sjálfum sér.
Líklega ekki mikið lengra en það.
--Nánast óvart startað 3-heimsstyrrjöldinni.
En það væri í reynd auðvelt að ræsa ekki einungis kalt-stríð.
Heldur hreinlega heitt stríð!
Trump sé með ásökunum virkilega farinn að leika sér að eldi.
En bæði löndin eru kjarnorkuveldi - því má ekki gleima.
Kv.
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 12:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Það hefur verið deila í gangi síðan stofnað var til evrunnar - hvert ætti vera hlutverk seðlabanka og peninga. Þýska módelið fókusar á stöðugleika peninganna sjálfra, túlkar peningastefnu þannig - hún eigi einblína á stöðugleika peninganna á kostnað alls annars.
Hin stefnan, sem má rekja til Seðlabanka Bretlands annars vegar og hins vegar til Seðlabanka Bandaríkjanna - hefur alltaf falið í sér tvískipt hlutverk, m.ö.o. ekki þýska módelið þ.s. hlutverkið er bara eitt - heldur heldur þarf seðlabankinn að mæta tveim þörfum peningastefnu annars vegar og hins vegar efnahagslegs stöðugleika - einhvernveginn í miðju.
--Til þessara seðlabanka má rekja þá vinsælu stefnu, að prenta til stuðnings efnahagnum.
Auk þessa hafa þeir sögulega gætt að skuldum ríkissjóðs, með því að tryggja að ríkissjóðurinn hafi alltaf seljanda af síðustu sort þ.e. seðlabankann.
--Sem þíðir ríkissjóður getur ekki orðið greiðsluþrota.
- Í evrukrísunni milli 2010-2012 var framan-af seðlabankastjóri er fylgdi þýsku stefnunni, sem skírði af hverju -- markaðir keyrðu upp vaxtakostnað einstakra landa -- bendi á að vextir landa sbr. Spánar og Ítalíu voru komnir yfir 6% á tímabili.
Sem klárlega var ekki framreiknað - sjálfbært. - Þegar Mario Draghi kom síðan með aðgerð sem á endanum sannfærði fjárfesta að Seðlabanki Evrópu mundi styðja aðildarlöndin -- þá lækkuðu vextir aðildarlanda í hugsanlegum fjárhagsvanda að nýju.
- Skv. nýju áliti virðist æðsti dómstóll Þýskalands hafa hafnað þeirri stefnu eins og hún leggur sig - á þeim grunni að hún í eðli sínu er inngrip inn í markaði.
Dómararnir sem sagt telja, hvernig aðgerðirnar hafa í reynd hjálpað aðildarríkjum að fjármagna sig.
--Sýni fram á að aðgerðirnar brjóti í reynd lög ESB.
ECB decisions on the Public Sector Purchase Programme exceed EU competences
The PSPP improves the refinancing conditions of the Member States as it allows them to obtain financing on the capital markets at considerably better conditions than would otherwise be the case; it thus has a significant impact on the fiscal policy terms under which the Member States operate.
The volume and duration of the PSPP may render the effects of the programme disproportionate, even where these effects are initially in conformity with primary law.
--Þeir benda ekki með beinum hætti á skýrt lögbrot, heldur ákveða að heildar-áhrif aðgerðannan feli í sér lögbrot sbr. brot á -proportionality- reglu.
**Og með óbeinum hætti lög um Seðlabanka-Evrópu, þó Seðlabankinn hafi ekki með beinum hætti brotið reglurnar -- þá óbeint aðstoði aðgerðir hans ríkin við að fjármagna sig.
**Þetta eru auðvitað túlkanir.
Dómurinn heldur fram að -ECB- hafi brotið reglur sem heitir -proportionality- m.ö.o. aðgerðir hafi ekki tekið nægilegt tillit til vandamála sem þær skapa fyrir margvíslega 3-aðila.
--Þetta er greinilega mat, m.ö.o. ekki augljóslega staðreynd.
The economic policy effects of the PSPP furthermore include its economic and social impact on virtually all citizens, who are at least indirectly affected, inter alia as shareholders, tenants, real estate owners, savers or insurance policy holders.
--Að sjálfsögðu breytir slíkar aðgerðir afleiðingum þ.e. hverjir græða vs. tapa.
Finally, the longer the programme continues and the more its total volume increases, the greater the risk that the Eurosystem becomes dependent on Member State politics as it can no longer simply terminate and undo the programme without jeopardising the stability of the monetary union.
--Auðvitað er sá tími löngu kominn, að tilvist evrusvæðis er háð áframhaldandi prentun ECB.
Augljósa hættan er að Karlsruhe dómurinn hafi myrt evruna!
Bendi fólki á að þetta er mitt í krísu sbr. tengd COVID-19 þ.s. löndin eru í enn dýpri kreppu en milli 2000-2012, ríkissjóðirnir eru að verja hlutfallslega meira til að vernda hagkerfið - gegn frekara hruni.
- Hafið í huga, það eru einmitt aðgerðir - gegn hruni að verjast hruni, sem dómurinn fettir fingur út í, því slíkar aðgerðir eru auðvitað inngrip - breyta útkomu.
- Því annars yrði dýpra hrun - flr. yrðu gjaldþrota - alltaf einhverjir græða á gjaldþrotum kaupa þrota-eignir fyrir slikk.
Þannig aðgerðir er forða dýpra hruni, breyta því hverjir græða/tapa. - Að sjálfsögðu forða þær aðgerðir einnig mun meira atvinnuleysi og stytta lengd kreppu, sem er önnur saga.
Hinn bóginn fyrir þá sem fylgja -- harðlínu markaðs-módeli, eru öll slík grip - anathema.
- Málið er, að dómurinn virðist kollvarpa svarinu sem Mario Draghi gaf 2012 er batt endi á evrukrísuna 2010-2012.
Það svar smám saman batt endi á það trend er þá var til staðar - í átt til fjöldagjaldþrota ríkissjóða Evrusvæðis. - En nú er öllu hent aftur í háa-loft, punkturinn færður aftur fyrir svar það er Draghi gaf.
Og það mitt í ef eitthvað er -- enn verri efnahagskreppu.
Þegar öll hjól öskra á meiri peninga! - Klárlega er stefna sú sem dómararnir halda uppi, klassíska fjórða áratugar módelið.
Ríkissjóðirnir eigi að skera niður útgjöld.
Í stað þess að verja fé til að verja hagkerfin.
Forðast þannig söfnun skulda - hin klassíska íhaldssama hagstjórn.
--Aðgerðir sem auðvitað magna kreppuna eins og hagfræðingar eftir Seinna-stríð sýndu fram á, og tryggðu mjög langa kreppu - einnig þann hættulega pópúlisma er skapaðist.
- Dómararnir gefa Evrópusambandinu 3-mánuði til að koma með svör.
Til að útskýra stefnu ESB - hvernig ESB ætlar að vera -proportional.-
Sannast sagna veit ég ekki hvað ESB ætti að segja við dómarana til að sína þeim fram á.
Að það sé líklega ekki góð hugmynd - beint ofan í COVID-19 kreppuna.
Að kalla aðra jafn slæma fram - beint ofan í hina kreppuna.
Þ.e. sovereign debt krísu - en þessi óvissa sem dómurinn hefur nú skapað.
Hlýtur að kalla fram svipað ástand og maður sá árin milli 2000-2010.
--Að vextir aðildarlanda fóru hratt vaxandi, og stefndi í þrot margra.
Málið er að ég kem ekki auga á hvernig Evran sjálf gæti lifað af.
Svo víðtæka ríkis-gjaldþrota-hrinu!
--Málið er að töpin yrðu svo svakaleg út um allt.
Enginn mundi sleppa heill.
Þýskaland gæti misst alla sína megin-banka.
Sama um Frakkland!
--Krísan gengi þá í gegnum allt evrópska kerfið.
Það gæti allt farið í baklás.
Síðan tæki við -- margra tuga prósenta atvinnu-leysi.
--Og ekki gleima því að sparifé aldraðra í Evrópu sennilega tapaðist nær allt.
- Þetta er sambærilegt við að skilja eftir sig -- sviðna jörð.
Auðvitað byggist e-h upp aftur með tíð og tíma, en það gæti tekið verulegan tíma. - Ekki gleyma því, að í stóraukinni fátækt - tuga prósenta atvinnuleysi mundi pópúlismi rökrétt grassera.
Í Evrópu varð upphaf Nasisma og Fasisma!
__Pópúlisminn snerist upp í brjálæði. - Ekki má heldur leiða hjá sér fasisma ofsaþjóðernishyggju trend er hófst eftir heimskreppan byrjar í Japan, Japan hóf stríð gegn Kína ásamt víðtæku hernámi - stefna er fyrir rest leiddi til stríðs Japans við Bandar.
--Áhugavert að það trend hefst um svipað leiti og nasistar ná völdum í Þýskal. Þó þeir atburðir séu eðli sínu ótengdir. Sé vart tilviljun þetta hefst um svipað leiti mitt í hyldýpi heimskreppunnar.
Það sé því sannarlega ástæða að óttast - hugsanlega þróun í átt að brjálæðislegum pópúlisma.
Ef sambærilega djúpar og langvinnar kreppu-aðstæður ásamt stóraukinni fátækt endurtaka sig.
Dómurinn gæti einnig myrt ESB sjálft!
Einfalt mál í raun og veru, ef nær öll S-Evrópa verður gjaldþrota, einhver lönd í N-Evrópu einnig t.d. Belgía, en öll löndin einnig í N-Evrópu verða fyrir miklu efnahagstjóni.
--Efa ég ekki að S-Evrópa setti skuldina á Þýskaland.
Haturs/reiðialdan yrði hugsanlega slík ESB sjálft entist ekki lengi á eftir.
- Ef ESB hætti að vera til, yrði -new alignment í Evrópu- þ.s. ég hugsa að S-Evrópa leitaði til Tyrklands, en einnig Bandaríkjanna.
- Skandinavía leitaði til Bretlands, og þau samans til Bandaríkjanna.
- Þýskaland, aftur á móti leitaði til Rússlands, og þau samanlagt drottnuðu yfir Mið-Evrópu algerlega, kannski mínus Rúmenía er gæti náð að fylgja S-Evrópubandalaginu.
Mjög slæmt fyrir Pólland, er yrði líklega beygt í duftið, en þjóðernissinnuð ríkisstj. þar er mjög andvíg Rússlandi.
--Hugsanlega mundi þessi hópur að auki vinna með Kína.
- Ef þetta yrði svona, þá mundi Evrópa aftur klofna í fylkingar milli risavelda.
Og aftur mættum við sjá fjölmenna heri í Evrópu, gráa fyrir járnum.
Og vaxandi fjandskap.
--Kannski gæti 3ja styrrjöldin eftir allt saman hafist í Evrópu.
Hver veit ESB og stjórnvöld í Berlín hafa 3-mánuði til að forða þessu.
Kannski tekst þeim það!
Niðurstaða
Það er mögnuð ákvörðun er dómararnir í Karlsruhe virðast hafa tekið, gríðarlegar afleiðingar líklegar ef hún nær fram að ganga -- það alvarlegar að þær gætu skapað að mörgu leiti nýja heims-mynd.
Það hrun sem ég tala um líklega mundi vera stór steinn í átt að köldu stríði.
Friðsama Evrópa væri hugsanlega búin.
En það eru 3 mánuðir til stefnu, sem dómurinn gaf áður en bann hans til Seðlabanka Þýskalands, til þátttöku í nýrri björgunar-áætlun fyrir aðildarríki sambandsins tekur gildi.
En ef Bundesbank fær ekki að taka þátt mun það óhjákvæmilega stórfellt raska möguleikum Seðlabanka Evrópu til að aðstoða aðildarlönd Evrusvæðis, ef hann fær ekki að hjálpa löndum í vanda með sínum óbeina hætti er virkaði síðast -- fæ ég ekki séð hvernig annað getur orðið en ótrúlegt skala hrun; er gæti haft þær byltingakenndu breytingar á okkar heimsmynd í för með sér sem ég nefni.
Ísland mundi auðvitað fylgja Bandar. - Bretl. og Skandinavíu, ásamt S-Evr.
Í þeirri sviðsmynd ég teikna.
Efnahagsbandalag okkar við ESB mundi náttúrlega hverfa, og efnahagstjón okkar yrði einnig mikið eins og margra annarra. Þetta er mun fátækari sviðsmynd fyrir Ísland einnig og íslendinga.
Kv.
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 21:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Þetta hefur ekki vakið mikla athygli - en stefna Donalds Trumps hefur jafnt og þétt fjölgað þeim Bandaríkjamönnum er ekki hafa heilbrigðis-tryggingar, skv. CBO (Congressional Budget Office)voru 27,5 milljón Bandaríkjamenn án slíkra trygginga við upphaf árs 2017, talan komin í 30 milljónir við upphafa þessa árs.
--Ástæða var afnám Trumps á PPACA (Patient Protection and Affordable Care Act)gjarnan uppnefnt Obama Care.
- Mikilvæga atriðið, er afnám Trumps með penna-striki á niðurgreiðslum alríkisins á heilbrigðis-tryggingum til fátækra -- ríkið greiddi allt að helming á móti.
Þetta var tekju-tengt sbr. means-tested. - Um þetta munaði marga, skv. spá CBO var gert ráð fyrir fjölgun fólks án slíkra trygginga í 34 milljónir við árslok 2014 er maður ímyndar sér Trump ljúka öðru kjörtímabili.
Nú hefur gríðarleg atvinnuleysis-bylgja skollið yfir Bandaríkin!
Og allar spár eru því fullkomlega úreltar!
En án vafa detta margir er missa vinnu -- út úr heilbrigðis-tryggingum einnig!
US jobless claims hit 30m on coronavirus lockdowns
Atvinnuleysi í Bandaríkjunum skv. því er nú 12,4%.
Það sem ég velti fyrir mér - er allur sá sjúkrakostnaður er hellist yfir fólk sem ekki hefur heilbrigðis-tryggingar, en þá þarf viðkomandi að greiða allan kostnað!
Ef þú hefur ekki heilsutryggingu getur reynst dýrt að leita eftir aðstoð vegna COVID-19: Total Cost of Her COVID-19 Treatment: $34,927.43. Ca. 5 milljón íslenskar krónur!
--Þetta er dæmi er nokkurra vikna gamalt!
En sýnir hvað ég á við, þeir sem verða alvarlega veikir.
Og hafa ekki tryggingu -- geta fengið á sig svimandi háa reikninga!
Ég velti fyrir mér hvort þetta gæti orðið stórt hitamál nk. haust!
En þá ætti COVID-19 vera búin að fá nægan tíma til að dóla um Bandaríkin.
--Fólk án trygginga, ætti þá vera búið að fá sína reikninga, lögfræðingar kannski komnir í málið ef fólkið getur ekki borgað.
- Atvinnulausum gæti átt eftir að fjölga frekar í Bandaríkjunum.
Spurning hvort atvinnuleysi nær 20%. - Punkturinn er sá, ef maður getur gert ráð fyrir því -- ca. helmingur detti úr heilbrigðis-tryggingum, a.m.k. það.
--Þá gæti fólk án trygginga náð 50 milljón fyrir nk. haust!
Þetta er það fjölmennur hópur!
Að hann ætti að gera ráðið úrslitum forseta-kosninganna!
Þ.s. ég velti fyrir mér -- skellur á svokallað bidding contest?
Trump ætlar sér að vinna, hann mundi örugglega ekki vilja - bjóða minna.
Þá velti ég fyrir mér hvort nk. haust gæti séð.
Dýrustu kosninga-loforðasúpu í sögu Bandaríkjanna!
--Þegar Trump og Biden keppa við að bjóða yfir hvorn annan.
- Þetta gæti orðið virkilega áhugaverð kosninga-barátta.
Kannski er þetta ár breytinga - hver veit.
Niðurstaða
Ég er sem sagt að spá í það hversu margir gætu lent utan heilbrigðis-trygginga í Bandaríkjunum af völdum samhengis stefnu Donalds Trumps og þeirrar atvinnuleysis-bylgju sem skollin er á innan Bandaríkjanna!
Það er sérstaklega slæmt nú er faraldur geisar að þeim fjölgar svo mikið sem ekki hafa heilbrigðis-tryggingar.
Eins og sést á dæminu að ofan reikning upp á ca. 5 millj. ísl.
Þá er þetta virkilegt alvörumál fyrir fólk er missir sínar tryggingar.
--Að þurfa borga allan sjúkra-kostnað.
Mig grunar að heilbrigðis-tryggingavandinn geti verið orðinn að miklu hitamáli nk. haust.
Er hugsanlega getur fjöldi utan trygginga, verið komin jafnvel yfir 50 milljónir.
--Samtímis og veikin líklega enn geisar og fólk án trygginga væri líklega hundelt af lögfræði-hótunum og kröfum um lögtak.
- 50 milljón manns geta hugsanlega ráðið úrslitum kosninganna.
Ef krafa þess hóps yrði eins hávær og mér dettur í hug.
Skellur kannski á -bidding contest- milli Trumps og Biden.
Og engin leið þá að vita hve ofsadýr loforðasúpan gæti orðið.
Trump mundi ekki vilja verða no. 2.
Kv.
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 23:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
27.4.2020 | 13:32
Dánarhlutfall Svíþjóð virðist 12%, í Bandaríkjunum 5,6% á Íslandi 0,56% -- innlegg í umræðuna hvaða nálgun er best gegn COVID-19
Ég hafði ekki áður prófað að reikna dánarhlutfall í Svíþjóð, en áður reglulega reiknað dánarhlutfall í Bandaríkjunum og Íslandi.
--Vara við að mjög mikil óvissa er, hve margir hafa dáið í Svíþjóð og Bandaríkjunum.
--Einnig mikil óvissa hve margir eru sjúkir í Svíþjóð.
Í Bandaríkjunum vegna þess -- að prófanir virðast enn ónógar þrátt fyrir öflugt prófunarferli eftir Donald Trump lýsti yfir hættuástandi um miðjan Mars.
--Og setti ásamt Bandaríkjaþingi öfluga fjármögnun til baráttunnar gegn COVID-19.
Þetta þíðir að enn er ekki líklega nægilega vitað hve margir eru smitaðir.
Þar fyrir utan er líklega ekki verið að fara yfir andlát utan sjúkrastofnana í því skyni að tékka á hvort viðkomandi hugsanlega lést af COVID-19.
Svíþjóð:
Smitaðir: 18,926
Dánir: 2,274
Prósenta: 12,02.
Bandaríkin:
Smitaðir: 987,322.
Látnir: 55,415.
Prósenta: 5,61.
Ísland:
Smitaðir: 1792.
Dánir: 10.
Prósenta: 0,56.
Hvernig Svíþjóð nálgast þetta hefur komið mér á óvart, miðað við 20. aldar sögu Svíþjóðar, er samfélgsleg hugsun virtist lengi ríkjandi í Svíþjóð -- er áhugavert að Svíþjóð skuli fylgja þeirri stefnu er virðist skera sig úr miðað við mörg önnur lönd.
--Þá vísa ég til þess að aðgerðir gegn COVID-19 virðast ganga skemmra.
Það virðist ekki að Svíþjóð stundi það að elta sýkingar í stórum stíl eins og Ísland.
Að auki virðast prófanir gegn sjúkdómnum í miklu mun smærri stíl en á Íslandi.
--En þ.s. áhugavert virðist, smærri stíl en í Bandaríkjunum.
Skv. viðtali við Íslending er býr í Svíþjóð taldi hann líklegt að hann hafi fengið veikina, þ.e. hann hafi veikst af veiki er líktist flensu en var mun verri en nokkur sú flensa hann hafði áður fengið á sinni lífstíð.
--Skv. viðtalinu virtist ekki í boði fyrir þá sem væru veikir heima, að fá prófun - eins og tíðkast á Íslandi, að menn geta mætt á sinni bifreið hringt inn beðið fyrir utan síðan eftir einhvern tíma kemur starfsmaður út gallaður og tekur próf.
- Skv. honum væru einungis prófaðir þeir sem væru lagðir inn á spítala eða mættu í bráðamóttöku.
- Svíþjóð virtist taka mun minni varúð samtímis gagnvart því að fólk mætist utan dyra.
Mörg starfsemi er var um tíma lokuð á Íslandi virtist fá starfa ótrufluð.
Margir sem finnst of langt gengið á Íslandi og mörgum öðrum löndum.
--Hafa því horft til Svíþjóðar sem fyrirmynd!
Spurningin á móti er þó hvort Svíar séu að borga þessa stefnu dýru verði?
Skv. mínum einfalda reikningi: 12,02%
- Tek fram að fyrst Svíar prófa mun minna, samtímis taka mun minni varúð til að hægja á dreifingu sýkinga -- er hlutfall sýktra í Svíþjóð líklega.
Miklu mun hærra en tölur frá Svíþjóð sýna.
Vegna þess hve lítið Svíar virðast prófa -- sé ónákvæmnin í þeim tölum líklega mikil.
Hinn bóginn getum við einungis giskað hve stór hún sé.
Ég ætla að sleppa þeim ágiskunum. - Þetta þíðir að dánarhlutfall er örugglega mun lægra en 12%.
Hinn bóginn, þíði lítt að velta vöngum yfir hvað það raunverulega er.
Hvað sem menn segja þá eru einu tölurnar við höfum.
Þær tölur að Svíþjóð sé með 12% og Bandaríkin með 5,6%.
- Dánarhlutfall á Íslandi er raunverulega lágt þ.e. 0,56%.
Ég reikna með því að einhver athugasemd komi.
Er haldi því fram dánarhlutfall sé svipað í Svíþjóð.
M.ö.o. að aðgerðir skipti engu máli.
En það að aðgerðir séu án tilgangs virðist megin kenning þeirra er vilja.
Öllum aðgerðum sé hætt og þjóðfélagið án tafar -- sett af stað aftur.
Hinn bóginn byggja þeir aðilar klárlega á -- hreinum ágiskunum.
Þó svo ég geti ekki sannað að dánarhlutfall sé hærra raunverulega í Svíþjóð en í Bandaríkjunum -- grunar mig það samt!
Að auki grunar mig að aðgerðir þær er Ísland hefur stundað.
--Hafi haft tilgang, m.ö.o. að þær hafi skilað hinu lága dánarhlutfalli.
- Svíþjóð sé líklega raunverulega verst, með hæst dánarhlutfall.
Þó líklega lægra en 12%. - Bandaríkin komi síðar, með dánarhlutfall 5,6% er líklega sé einnig lægra en það.
Bandar. hafa gert meira en Svíþjóð, en voru seinni til aðgerða an Ísland.
Bandaríkin séu þá grunar mig með hlutfallslega flr. látna en við en færri en Svíþjóð. - Ísland af þessum þrem löndum sé sennilega með hlutfallslega fæsta dána.
Ég tek það fram að ekkert af þessu er hægt að sanna.
Endurtek að einu raunverulegu tölurnar sem til staðar eru.
Eru tölur yfir mælda smitaða vs. þá dána af COVID-19 sem vitað er um.
Þetta séu skárstu tölurnar sem við enn höfum.
--Þó líklega sé veruleg ónákvæmni í þeim - sérstaklega mikil töluleg ónákvæmni í Svíaríki.
- Vegna þess hve tiltölulega margir hafa verið prófaðir á Íslandi, gott eftirlit er með mannslátum -- er ónákvæmni talna sennilega lítil hérlendis.
Þannig grunar mig að dánarhlutfall sé líklega mjög nærri lagi hér.
Niðurstaða
Forðumst stóryrði, en ég ítreka að tölur um dánarhlutfall eru á grunni opinberra talna.
Þetta er einfaldur reikningur en ekkert verri endilega fyrir það.
Opinberar tölur eru líklega mjög ónákvæmar í löndum þ.s. tiltölulega lítt er prófað.
Auk þess ef ekki er tékkað á þeim er látast utan sjúkrahúsa og hjúkrunarheimila, athugað með hvaða hætti þeir létust -- gætu dánartölur einnig haft ónákvæmni.
Ég get því ekki sagt að það sé öruggt að Svíþjóð sé með dánarhlutfall yfir 12%
Eða Bandaríkin að þar sé öruggt dánarhlutfall sé yfir 5%.
- Samt rökrétt séð hækkar það dánarhlutfall að bregðast seint við eins og í Bandar. -- þó ákveðið hafi verið tekið til handa frá miðum mars.
Þakka ég ríkisstj. Bandar. þó fyrir að hafa þó brugðist ákveðið við.
Og þeim fylkjum er berjast við sýkinguna. - Sama tíma, mundi maður ætla að það geti aukið dánarhlutfall enn frekar.
Að grípa til enn hlutfallslega smærri aðgerða en Bandaríkin.
Er virðist lísa málum í Svíþjóð. - Aðgerðir á Íslandi hafa af löndunum þrem, án vafa verið virkastar og hér að auki fóru þær nokkurn veginn strax af stað.
Það ætti að skila lægsta dánarhlutfallinu.
Síðan getum við rifist um það hvort að bregðast við hafi slíka galla í för með sér.
Að öll lönd ættu að fara Svíþjóðarleiðina. En þ.e. krafa þeirra sem draga stórfellt í efa að tiltölulegt aðgerðaleysi í Svíþjóð sé í reynd að valda háu hlutfalli látinna.
- Enn er í slíkum ummælum verið að halda því fram, veikin sé ekkert verri en flensa.
Sænsk upplýsingasíða: FAQ about COVID-19.
Skv. henni er hópatakmörkun 50 -- þar kemur fram að prófanir fara fram á sjúkrahúsum, og fólki sem starfar í heilbrigðis-geiranum og við hjúkrun aldraðra.
--Skv. því virðist Íslendingurinn hafa sagt rétt frá, að til að fá prófun þurfu að mæta veikur á spítala.
- Áhugavert að bera það við Ísl. þ.s. reynt er allan tímann eftir föngum að elta upp alla smitaða, víðtækar prófanir.
Þetta getur ekki annað þítt en að sænsk yfirvöld hafi nánast enga hugmynd um hve margir eru smitaðir í Svíþjóð -- þannig verður að líta dánarhlutfall mjög óvisst.
Pottþétt lægra en tölur virðst sína, samtímis engin leið að vita að hvaða marki lægra.
Kv.
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt 28.4.2020 kl. 03:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Það er veruleg umræða innan Bandaríkjanna um að skella allri sökinni á Kína þegar kemur að því tjóni sem Bandaríkin eru að verða fyrir og hafa orðið fyrir af völdum COVID-19.
- Bandaríkjastjórn er undir ámæli heima fyrir. Enda hefur hún ekki beitt sér eins skynsamlega gagnvart COVID-19 og framast hægt var.
- T.d. dróg Donald Trump það fram í miðjan Mars - að lísa yfir neyðarástandi.
Punkturinn við slíka yfirlýsingu - er að þá getur alríkið beint aðstoðað einstök fylki Bandaríkjanna, þegar þau glíma við vandamál sem er alvarlegt innan einstakra fylkja.
Þess vegna er það mikilvægt atriði - að gefa slíka yfirlýsingu.
Svo alríkið geti beitt öllu sínu afli til aðstoðar. - Samt var veikin greinilega farin að berast um einstök fylki Bandaríkjanna -- nærri mánuði fyrr, er Trump loks lýsir yfir neyð -- höfðu 44 fylki tilkynnt smit meðal íbúa.
Fyrstu smitin meðal íbúa voru kynnt rétt fyrir mánaðamót febrúar/mars - eða skömmu eftir að veikin braust út af krafti á Ítalíu.
- Augljósi punkturinn er sá - ef Trump hefði lýst yfir neyð mánuði fyrr eða a.m.k. þegar fyrstu fylkin lýstu yfir smitum rétt fyrir þau mánaðamót.
--Hefði verið líklega hægt að takmarka verulega tjón Bandaríkjanna.
--Miðað við það tjón er nú blasir við.
Þ.e. manntjón sem og efnahags-tjón.
Að sjálfsögðu veit veröldin að fyrstu viðbrögð Kínastjórnar voru - stinga hausnum í sand, læknir er fyrst varaði við, var settur í varðhald síðar lést sá sjálfur af COVID-19.
Síðan eftir að sjúkdómurinn fór að valda of miklu tjóni, brást Kínastjórn hratt við.
- Enginn getur mögulega vitað, ef Kínastjórn hefði brugðist -- enn fyrr við. Að það hefði bjargað því, að sjúkdómurinn barst út fyrir Kína.
- Bendi fólki á að Wuhan hérað er eitt mikilvægasta efnahagssvæði Kína, þ.s. fjöldi erlendra fyrirtækja starfa -- þ.e. ekki tilviljun veikin berst til Ítalíu, því ítölsk fyritæki t.d. starfa í Wuhan -- sem þíðir að regluleg flug hafa líklega verið milli Ítalíu og þess svæðis í Kína.
Að sjálfsögðu eru þar einnig bandarísk fyrirtæki, og líklega einnig mjög reglulega flogið milli höfuðstöðva þeirra og starfseminnar í Kína.
- Punkturinn á því er sá, þ.e. ekki hægt að fullyrða -- veikin hefði ekki samt getað borist út fyrir Kína, valdið sama usla burséð!
Þ.s. ekki er hægt að útiloka að veiran gæti jafnvel hafa borist til Bandar. og Ítalíu, jafnvel áður en Kína opinberlega viðurkenndi að það væri vandamál.
--Dagleg flug milli Wuhan og Bandar. og Ítalíu, þíði náttúrulega að veiran getur borist á milli á innan við sólarhring.
Ásakanir Pompeo: Pompeo accuses China of destroying coronavirus samples -- Pompeo rips China, WHO for allegedly withholding coronavirus information.
Eitt og annað er klárlega rétt - m.ö.o. Kínastjórn klárlega eftir að hafa tilkynnt veikina til WHO - virtist um hríð vilja tala niður alvarleika sjúkdómsins.
--Coverup eða ekki, þá töluðu talsmenn hennar fyrst í stað á eftir eins og að ósannað væri að veikin bærist milli manna.
Síðan kom fram kenning, að veiran hefði stökkbreyst - aðlagast fólki betur.
Sem er per se ekki útilokað, en þættir þó til staðar gefa ástæðu til að efast að það sé rétt frásögn: Head of Chinas CDC defends countrys response to coronavirus.
Kínverskur sérfræðingur starfsmaður - rannsóknastöðvar í veirufræðum í Wuhan, segir að það sé rétt að Kína hafi ekki afhent eintök af vírusnum -- en vill meina að Kína hafi veitt nægar upplýsingar; með því að birta fullt genamengi vírussins 12. jan: Hunt for origin of coronavirus raises new US-China tensions.
- Fullt genamengi eru auðvitað fullar upplýsingar um vírusinn sem slíkan.
- Þó til þess að framkvæma tilraunir þurfi eintök af sjálfum vírusnum klárlega.
Hinn bóginn barst vírusinn svo fljótt út fyrir Kína - næg tækifæri hafa verið til að rannsaka hegðun hans og hugsanlegar breytingar - síðan.
Þannig góð spurning hvort það skipti nokkru máli að Kína hafi ekki sent eigin eintök af vírusnum.
Pompeo vill fá að senda bandaríska vísindamenn til að taka út rannsóknarstofur í veirufræðum sem til staðar eru í Wuhan - getur hugsast að vinsæl samsæriskenning innan Bandaríkjanna hafi áhrif þar um, m.ö.o. vírusinn sé upprunninn í rannsóknarstofu eða hafi lekið þaðan: Pompeo presses China to allow lab inspections.
Skv. frétt hafi Trump rætt við kínverskan kollega sinn: Pompeo calls for China cooperation amid COVID-19 tensions. Og möguleikar á samvinnu ræddir.
Niðurstaða
Það sem ég hef áhyggjur af - er hve viðkvæmt málið er fyrir hugsanlegri pólitískri misnotkun. En ef menn mundu fara í það fara að kenna Kínastjórn pent um allt það tjón sem hafi orðið í Bandaríkjunum, þannig bandaríkjastjórn lýsti frá sér allri ábyrgð.
--Væri þar með komin fullkomin uppskrift að mjög hörðu köldu-stríði, þ.s. útbreitt fullkomið hatursástand gæti risið fljótt.
Það gæti verið gagnlegt að sjóða saman - nefnd vísindamanna þ.s. kínverskir og bandarískir mundu starfa hlið við hlið að rannsókn uppsprettu veirunnar.
--En hvaðan hún barst er hreinlega óþekkt.
Tek sem dæmi gögn er láku frá Kína:
The first man recorded as dying from the disease came into contact with the market, but his wife who was also hospitalised with the disease did not, according to a paper published by Chinese researchers in The Lancet. Of 41 hospitalised patients confirmed to have contracted the disease by January 2, the study showed only 27 had contact with the market.
Skv. þessu er það ekki á tæru svokallaður -wet market- hafi raun verið sjúkdómsuppruninn.
Þannig að eina sem hægt er að segja sé - uppruninn innan Kína sé á huldu fyrir utan að vitað er að hann brýst fyrst fram í Wuhan.
Kv.
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 14:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
21.4.2020 | 01:25
Bandarísk olíufélög lentu í þeirri einstöku aðstöðu - þurfa borga kaupendum til að taka við olíunni þeirra!
Atburðir mánudagsins í Bandaríkjunum þ.s. nokkur bandarísk olíufyrirtæki virðast hafa lent í því að - þurr-ausa sitt geymslu pláss fyrir olíu - segja fjölmiðlar einstaka í sögu Bandaríkjanna.
--En aldrei áður hafi það gerst að olía hafi gengið kaupum og sölum á -- mínus-verði. M.ö.o. að olíufélögin hafi greitt kaupendum fyrir að taka við olíunni þeirra.
- Vegna skorts á geymslurými fyrir olíu, hafi þau tilteknu fyrirtæki er lentu í þeim geymsluvandræðum, ekki átt annan kost en að selja olíuframleiðslu dagsins jafn óðum -- burtséð frá því hvaða verð fékkst.
- Er Trump frétti af þessu -- lofaði hann því að opna birgða-geymslur bandaríska ríkisins og hersins, svo olíu-fyrirtæki gætu nálgast - frekari geymslu-aðstöðu.
US oil price below zero for first time in history
Nýlega skrifaði ég þennan pistil: Þrátt fyrir 10 milljón fata minnkun heimsframleiðslu olíu, verður líklega aftur svipað ástand eftir mánuð! Líklega var Pútín að bluffa er í sl. viku hann heimtaði Bandaríkin með í samkomulagi!.
- Ég var þá nýlega búinn að lesa pistil á vef Financial-Times þ.s. vakin var athygli á yfirvofandi birgða-geymslu-skorti olíufyrirtækja.
- Þetta er hluti af ástæðunni að ég talaði um -- líkur á fjárhagsvanda fyrir olíufyrirtæki.
En verðið á olíunni er ekki eini vandinn!
Geymslur kosta einnig - ef menn geyma sífellt vaxandi magn olíu.
Þá auðvitað verður sá kostnaður væntanlega tilfinnanlegur - eftir því verðlag olíu lækkar.
- Málið eins og ég benti á, að minnkun sú á framleiðslu sem samdist um milli Saudi-Arabíu og Rússlands -- dugar hvergi nær virðis til þess að mæta þeim offramleiðsluvanda sem olíufyrirtækin búa við þessar stundir.
- Sá offramleiðsluvandi kemur til vegna afar snöggs og afar djúps hnattræns efnahags-hruns, sem hafi komið að öllum olíu-iðnaðinum með buxurnar á hælum.
Málið er að geymslurými er ekki endalaust eins og bandarísku fyrirtækin lentu í.
Skiptir litlu hvort menn tala um -- olíuskip.
Eða olíutanka í landi.
--Bendi á að flr. lönd en Bandaríkin gætu lent í samskonar - birgðavandræðum.
- Þar sem líklega varir kreppan í a.m.k. 2 - ár.
- Þá gæti staða olíufyrirtækja orðið áhugaverð, smám saman.
--Ekki bara í Bandaríkjunum eftir því sem birgðakostnaður hleðst upp.
**En væntanlega eru ekki heldur til endalaus olíutankskip.
M.ö.o. fyrirtæki gætu virkilega farið að tína tölunni.
West Texas Intermediate, the US benchmark, traded as low as -$40.32 a barrel in a day of chaos in oil markets. The settlement price on Monday was -$37.63, compared to $18.27 on Friday. Traders capitulated in the face of limited access to storage capacity across the US, including the countrys main delivery point of Cushing, Oklahoma.
After the price drop, Mr Trump reiterated plans for the US to open the federally-controlled strategic petroleum reserve to store excess oil that cannot find a home in commercial storage facilities.
Trump: We're filling up our national petroleum reserves, the strategic reserves, and we're looking to put as much as 75m barrels into the reserves themselves that would top it out, -- We're going to either ask for permission to buy it, or we'll store it, one way or the other, it will be full.
Kemur fram í frétt bandaríska þingið hafði áður hafnað ósk Trumps að fá fjármögnun þingsins til að kaupa olíu af bandar. olíufyrirtækjunum til að fylla smám saman birgðastöðvar ríkisins.
--Tæknilega mögulegt einnig er að -- bjóða fyrirtækjunum pláss á leigu.
--Þannig ríkið væri ekki að kaupa af þeim.
En það væri ekki sú fjárhagslega björgunaraðgerð sem Trump vill.
Stephen Schork, editor of oil-market newsletter The Schork Report, said he expected access to storage capacity in the US to be exhausted within two weeks and cautioned that the collapse of the countrys oil consumption was accelerating. -- It just gets uglier from here, -- This summer is dead on arrival. The biggest demand months are not going to happen,
- Brent, the international benchmark, lost 8.9 per cent on Monday to fall to $25.57 a barrel, but is less immediately afflicted by storage issues.
Ég velti fyrir mér hvort það var út af vanda olíufyrirtækjanna - sem Trump um daginn óskaði fámennum hópum mótmæla gegn lokunum innan 3-ja fylkja með demókrata sem ríkisstjóra, góðs gengis í því að mótmæla slíkum lokunum?
--An það býður upp á tæknilega mögulega hótun frá Trump.
Ef fylkisstjórar hafna því að hætta lokunum.
Að Trump hvetji fylgismen sína til að standa fyrir mótmælastöðum.
--Krafan um að opna Bandaríkin aftur.
Nýjustu tölur um COVID-19 sýkingar: United States Coronavirus Cases: 792,759 (virkja hlekk til að sjá töluna núna).
Ps: Frekara olíuverðfall hefur orðið þriðjudag:
Brent crude drops below $20 per barrel for first time in 18 years: Brent, the international crude marker, slipped to $18.10, indicating that markets see no immediate let-up to the collapse in oil demand...
Ps2: Brent crude er nú á -- $15.98 a barrel, its lowest point since mid-1999."
International oil prices fall to more than two-decade low
Olíuverð heldur áfram að falla ekki séð fyrir þann enda.
Heims-olíuverð farið niður fyrir 16 Dollara.
Niðurstaða
Það virðist kýrskýrt að bandarísk olíufyrirtæki eru í vanda. Um sl. helgi tók Trump undir kröfu frá fámennum mótmælum andstæðinga - aðgerða gegn COVID-19 innan sinna fylkja, að það eru Demókratar sem eru fylkisstjórar í þeim þrem fylkjum sjálfsagt hrein tilviljun.
Skv. frétt Financial Times um olíuverðhrunið í Bandaríkjunum, þá hefur Trump áður óskað eftir því við bandaríska þingið - ekki fengið til þess heimild, að fá fjármögnun frá þinginu til alríkisins til að kaupa olíu af bandarískum olíufyrirtækjum til að fylla upp birgðastöðvar í eigu alríkisins.
--Nú þegar blasir við að virðist neyðarástand hjá bandarískum olíufyrirtækjum, má væntanlega reikna með - einhverjum snörpum viðbrögðum frá Trump.
Spurning hvort - rígurinn milli flokkanna leiði til þess að enn verði aðgerðir til að bjarga olíufyrirtækjunum, blokkaðar á þinginu.
--Ef svo verður, mundi Trump væntanlega leita hefnda gegn Demókrötum með einhverjum hætti.
Spurning hvort Trump mundi beita fyrir sig fylgismönnum sínum, til að standa fyrir frekari mótmælum innan bandarískra fylkja - með Demókrata sem ríkisstjóra?
- En það gæti skapað mjög áhugavert ástand innan Bandaríkjanna - í því ljósi að COVID-19 klárlega er þar enn í hraðri útbreiðslu.
Stefnir í milljón staðfesta sýkta í nk. viku. - Ef Trump færi að stefna frekar á að efla mótmæli gagnvart - COVID-19 aðgerðum einstakra fylkisstjóra sem eru Demókratar.
Spurning hvað annað Trump gæti hugsanlega gert í hefndarskyni?
En ef aðgerðir gegn COVID-19 verða að -- opinni samfélagsdeilu með slíkum hætti.
--Mundi það að sjálfsögðu hraða enn frekar dreifingu smita.
Spurning hvað þá gerðist með fylgi forsetans?
Kv.
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt 22.4.2020 kl. 10:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Roger Stone var án vafa mikill vinur Trumps, Trump er greinilega afar hlítt til hans -- mikla athygli vakti seint á sl. ári er Trump virtist gefa skipanir á Twitter að málsókn gegn Stone yrði breitt.
Dómsmálaráðherra Bandaríkjanna sem er þekktur fylgismaður Trumps - þá strax í kjölfarið sagði kröfu saksóknar um 7-9 ára fangelsi langt fram úr hófi, ósanngjarna.
--Í kjölfar þeirrar ádrepu, hættu 4 ðstoðar-saksóknarar er þátt tóku í málarekstri fyrir saksókn afskiptum af máli Stone, og krafa saksóknar var færð í kjölfarið niður í ósk eftir skilorðsbundnu varðhaldi, m.ö.o. að Stone færi ekki í fangelsi!
- Eiginlega virðist sem að saksókn hafi þá lagað sig að óskum Stone um málalok.
- Margir vildu meina það stefndi í að -- Stone fengi að ráða eigin dómsniðurstöðu.
Í þessari grein er farið yfir feril Stone: Meet Roger Stone: One of Trump's most loyal supporters who was just sentenced to serve 40 months in federal prison.
Margir vilja meina að Stone hafi meitlað Trump sem pólitíkus.
Skoðanir Trumps og Stone virðast það líkar - nánast eins og þeir séu tvíburar.
--Frægt að Stone er með risastórt tattoo af Richard Nixon á bakinu.
Augu margra voru því á því hvað dómarinn mundi gera í febrúar sl. er dómur yrði birtur:
M.ö.o. fengi Stone einungis skilorð -- eins og saksókn virtist gera skv. fyrirmælum Trumps?
Eða yrði dómur nær því sem asksókn lagði til áður en Trump hóf bein afskipti af málinu?
--Viðurkenni að ég gleymdi að fylgjast með því hver dómurinn var.
- En Stone fékk 40 mánaða dóm, og var áður úrskurðaður sekur um alla ákæruliði.
- Fyrir suma var þetta líka spurning um sjálfstæði dómstóla.
- M.ö.o. hvort dómur fylgdi því er virtust skipanir forseta/framkvæmdavalds.
Hvað sem dómarinn hugsaði öðru leiti, þá gagnrýndi hún Stone harðlega er hún veitti honum 40 mánuði.
Það nýjasta er sem sagt, Stone er neitað um -- ný réttarhöld
Krafa um ný réttarhöld var sett fram á þeim grunni, einn kviðdómenda hafi logið til um sína pólitísku afstöðu og því skort nægilegt hlutleysi í máli Stone.
Stone heldur því fram viðkomandi kviðdómandi hafi logið um sína afstöðu.
Og sagði því niðurstöðu kviðdóms ómarktæka.
Stone er auðvitað niðurstöðunni að hafna beiðni um nýtt réttarhald - reiður.
Trump tekur undir í tvíti sem hefur vakið athygli.
BREAKING: Roger Stone is DENIED a new trial by Obama Judge Amy Berman-Jackson Despite a stacked, partisan jury Despite a rigged, unfair sentencing process He STILL faces prison time while Comey & Clinton walk free This is a disgrace.
RT for a FULL PARDON of Roger Stone!
Skemmtilegt að Trump -- vísar beint í einstakling sem er að vísa í frétt Russia-Today.
Í niðurlagi fréttar hvatning um að krefjast -- náðunar fyrir Stone.
- Það niðurlag hefur auðvitað vakið athygli, menn velta því fyrir sér hvort Trump ætli að náða Stone hugsanlega jafnvel fljótlega.
- Höfnun dómara í neðri - alríkisrétti - virðist á þeim grunni að -- verjandi Stone hafi fengið tækifæri til að gagnspyrja kviðdómendur - við það tækifæri hafi verjandi haft tækifæri til að rannsaka hvern kviðdómanda fyrir sig.
Mikilvæga spurningin að mati dómara sé, hefur eitthvað nýtt komið fram - sem eðlilegt er að ætla að verjandi hafi ekki getað komast að á þeim tíma? - Að mati dómara hafi krafan um nýtt réttarhald ekki sýnt fram á að kviðdómandi hafi logið - en dómari vitnar beint í svör kviðdómanda sem virðist hafa sagt á þeim tíma ekki muna hvort hefði eða ekki sett inn athugasemdir á facebook um Trump, eða mál Stone.
Þá spyr sem sagt dómari á móti -- hver er lýgin?
Þessi frétt inniheldur úrskurð dómara:
Judge denies Roger Stone's motion for new trial. - Dómari hafnar síðan kröfunni um nýtt réttarhald á þeim grunni, að ekki hafi verið -- sannað að um lygar hafi verið að ræða af kviðdómanda, að ekki hafi komið fram neitt nýtt, sem verjandi Stone hafði ekki aðstöðu til að komast að á sínum tíma.
M.ö.o. færslur sem eru á netinu.
- Væntanlega er dómari þá að vísa til athafnar er fer fram undan formlegu réttarhaldi er verjandi og sækjandi fá báðir tækifæri til að taka þátt í vali kviðdóms.
--Við það tækifæri eiga þeir að spyrja þá spjörunum úr, og hafna þeim sem þeir geta sínt fram á að séu - vanhæfir vegna skorts á hlutleysi. - Ég held það sé réttur skilningur á bandarískum hefðum hvað þetta varðar - að eftir þetta líti réttarhaldið svo á að verjandi og saksókn hafi samþykkt kviðdóm.
--Það geti því verið að dómari sé einfaldlega að vísa til þess að verjandi hafi samþykkt kviðdóminn eins og kviðdómurinn hafi verið skipaður.
Ef skilningur minn er réttur - verði krafa um nýtt réttarhald þá að byggja á tvennu:
--Meintum lygum kviðdómanda.
--Að ný gögn hafi komið fram sem verjandi Stone gat ekki vitað á þeim tíma sem val kviðdómanda fór fram.
Dómari telur greinilega hvorugt eiga við!
Trump bemoans 'disgraceful situation' after Roger Stone denied new trial
Roger Stone denied new trial and gag order lifted
--Frétt CNN er greinilega hlutdræg í mati.
Niðurstaða
Ég reikna með því að fljótlega líklega veiti Trump vini sínum Roger Stone náðun. En allan tímann hefur Trump staðið með Stone í gegnum réttarhaldið, sagt málarekstur fáránlegan - Stone saklausan, afstaða sem Trump heldur sig greinilega enn við þó Stone hafi verið dæmdur sekur og síðan fengið dóm.
--Hvað sem segja má um Trump er forseti Bandaríkjanna greinilega vinur vina sinna!
- Ætla ekki að taka afstöðu til sektar/sakleysis Stone.
Það greinilega ætlar að sannast það fornkveðna gott sé að eiga vini í háum embættum.
Meginákærurnar gegn Stone virðast hafa snúist um að hann hafi logið að FBI og haft afskipti af kviðdómendum er þóttu óeðlileg, m.ö.o. beitt þá þrýstingi. Bendi á það er alltaf lögbrot að ljúga að lögreglu, burtséð frá öllu öðru. Og í þeim löndum þ.s. kviðdóms fyrirkomulag er haft á réttarhaldi, er einnig lögbrot að beita kviðdómendur þrýstingi eftir skipun þeirra.
Kv.
Utanríkismál/alþjóðamál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Um bloggið
Einar Björn Bjarnason
Nýjustu færslur
- Sigur Donalds Trumps, stærsti sigur Repúblikana síðan George ...
- Ef marka má nýjustu skoðanakönnun FoxNews - hefur Harris þokk...
- Kamala Harris virðist komin með forskot á Trump í Elector-Col...
- Það að Úkraínuher er farinn að sprengja brýr í Kursk héraði í...
- Úkraínuher hóf innrás í Kursk hérað sl. mánudag! 5 dögum sein...
- Möguleikar Kamölu Harris til hugsanlegs sigurs á Donald Trump...
- Leiðir ris J.D. Vance - til fullkominna yfirráða milljarðamær...
- Er fall bandaríska lýðveldisins yfirvofandi - vegna ákvörðuna...
- Sérfræðingar vaxandi mæli þeirrar skoðunar, 2025 verði lykilá...
- Rússar hafa tekið 8 km. landræmu síðan sl. föstudag í NA-Úkra...
- Rússland getur hugsanlega haldið fram Úkraínustríði, allt að ...
- Rússland ætlar að hætta stuðningi við uppreisnarmenn í Súdan ...
- Gríðarlega mikilvægt að Úkraína fær bráðnauðsynlega hernaðara...
- Ég er eindregið þeirrar skoðunar - Ísrael geti ekki unnið str...
- Trump, hefur viðurkennt að geta ekki greitt - 464 milljón dol...
Eldri færslur
2024
2023
2022
2021
2020
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
Bloggvinir
- eyglohardar
- bjornbjarnason
- ekg
- bjarnihardar
- helgasigrun
- hlini
- neytendatalsmadur
- bogason
- hallasigny
- ludvikjuliusson
- gvald
- thorsteinnhelgi
- thorgud
- smalinn
- addabogga
- agnarbragi
- annabjorghjartardottir
- annamargretb
- arnarholm
- arnorbld
- axelthor
- arnith2
- thjodarsalin
- formosus
- birgitta
- bjarnijonsson
- bjarnimax
- westurfari
- virtualdori
- bookiceland
- gattin
- davpal
- dingli
- doggpals
- egill
- jari
- einarborgari
- einarsmaeli
- erlaei
- ea
- fannarh
- fhg
- lillo
- gesturgudjonsson
- gillimann
- bofs
- mummij
- kallisnae
- gp
- gudmbjo
- hreinn23
- gudrunmagnea
- gmaria
- topplistinn
- skulablogg
- gustafskulason
- hallurmagg
- haddi9001
- harhar33
- hl
- diva73
- himmalingur
- hjaltisig
- keli
- fun
- johanneliasson
- jonsullenberger
- rabelai
- jonl
- jonmagnusson
- jonvalurjensson
- thjodarskutan
- gudspekifelagid
- juliusbearsson
- ksh
- kristbjorg
- kristinnp
- larahanna
- leifurbjorn
- lifsrettur
- wonderwoman
- maggij
- elvira
- olafureliasson
- olinathorv
- omarragnarsson
- ottarfelix
- rafng
- raksig
- redlion
- salvor
- samstada-thjodar
- fullvalda
- fullveldi
- logos
- duddi9
- sigingi
- sjonsson
- sigurjons
- stjornlagathing
- athena
- stefanbogi
- lehamzdr
- summi
- tibsen
- vala
- valdimarjohannesson
- valgeirskagfjord
- vest1
- vignir-ari
- vilhjalmurarnason
- villidenni
- thjodarheidur
- valli57
- tbs
- thorgunnl
- thorsaari
- iceberg
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.11.): 0
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 26
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 23
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar