Færsluflokkur: Utanríkismál/alþjóðamál
25.6.2020 | 20:12
Trump á leið á öskuhauga sögunnar? Ef marka má Financial-Times er Biden á leið í líklegan stórsigur!
Ég var að lesa áætlaða stöðu Trumps gagnvart Biden skv. -election tracker- sem Financial Times rekur, en skv. því er þar kemur fram -
The FT poll tracker is based on data from Real Clear Politics. We calculate poll averages for Biden and Trump in each state using an exponential decay formula, which gives more weight to recent polls. We then use these averages to determine whether a state is solid, leaning, or a toss-up.
States where the difference between the two candidates is more than 10 percentage points are classified as solid, while those with a difference of less than 5 percentage points are classified as toss-up states.
- skv. því þá meta þeir örugg þau fylki þ.s. kandidat hefur meðaltali meira en 10% forskot - líkleg þau fylki þ.s. frambjóðandi hefur forskot milli 10-5% sem líkleg - og fylki þ.s. forskot frambjóðanda er minna en 5% sem - geta farið á hvorn veg!
Hvað segja þær niðurstöður?
Biden með yfir 10% forskot í fylkjum er hafa 197 - electoral votes.
Biden með milli 5-10% forskot í fylkjum með 109 - electoral votes.
--Samanlagt 306.
Trump með yfir 10% forskot í fylkjum með 106 - electoral votes.
Trump með milli 5-10% forskot í fylkjum með 26 - electoral votes.
--Samanlagt 132.
Laus atkvæði -kjörmanna- skv. því 100!
--En 306 er meir en nóg til að sigra í kosningunum.
- Sigur 270 kjörmenn!
Er líklegt Trump snúi þessu við?
Takið eftir 4-mán. í kosningar, Trump þetta rosalega langt að baki.
--Ath. Biden hefur varla stundað kosninga-baráttu!
Þetta virðist því, meir út af óvinsældum Trumps - en vinsældum Bidens.
--Trump þyrfti eiginlega, stóran skandal í herbúðum Biden.
Nægilega stóran til að drekkja annarri umræðu.
Tja ekki óvipað og er - e-mail mál Clinton, drekkti nær allri annarri umræðu síðustu vikur kosningabaráttu 2016.
- Blasir ekki við mér hvaða skandall það ætti að vera!
Á öðrum kosningafundi í Arizona í þétt skipaðri kirkju, sagði Trump!
... Were gonna have a good third quarter, and right when those numbers are announced you have an election, ...
Hann vísar til ársfjórðunguppgjörs í efnahagsmálum, m.ö.o. 3ja fjórðungs.
Texas halts reopening in face of new Covid-19 outbreak
Ríkisstjóri Texas - kynnti í dag, að fylkið mundi -- stöðva tilraunir til að opna hagkerfið, m.ö.o. að losa um.
This temporary pause will help our state corral the spread until we can safely enter the next phase of opening our state for business.
Slæmar fréttir fyrir Trump, sem skv. eigin orðum - treystir á að opnun hagkerfis.
Leiði til þess efnahagslegur viðsnúningur birtist í fyrstu tölum fyrir kosningar!
Upp á síðkastið hefur verið viðsnúningur í staðinn -- í COVID-19.
Tölur fyrir fylki í S-ríkjum Bandar. yfir nýjar sýkingar hafa vaxið hratt sl. vikur!
--Það er við því, Greg Abott ríkisstjóri bregst!
Það er á hinn bóginn í nokkrum fylkjum Bandar. í Suður-hluta þeirra, sem þessi aukni fjölgunar-hraði sýkinga hefur verið að birtast!
--Líkur virðast því á að, ekki einungis Greg Abott muni pása frekari opnun.
- Ef -pása- er ekki nóg, líklega ekki - neyðist G. Abott væntanlega til að herða lokanir að nýju!
Þetta virðist augljóslega minnkar líkur á efnahagslegum viðsnúningi í bráð!
Mitt gísk, að 3ji fjórðungur verði samdráttur - en verulega smærri en 2fj. og 1fj.
--En smár samdráttur, sé vart sú vítamín-sprauta Trump vonar eftir.
Trump virðist m.ö.o. raunverulega í miklum vanda!
Sannarlega var Trump undir í mörgum könnunum um tíma 2016.
--En þá kom seinni rannsókn Director Comey á E-mail máli H. Clinton er stóð loka-vikur kosninga-baráttu hennar, sást vel þá að þær vikur dróst hratt saman með þeim - mjög sennilega var rannsóknin þ.s. gerði gæfumun fyrir Trump.
- Hinn bóginn, blasir ekki við mér -- neitt samskonar risa-mál er gæti óvænt risið upp.
Og skyggt á alla aðra umræðu.
--Gefið Trump annað tækifæri. - En það þarf að vera eitthvað.
Hann vinnur ekki - af því bara, síðast var hann heppinn.
--En hvað ætti að redda honum nú?
Niðurstaða
Eins og staða mála nú lítur út - ef ekki neitt stórt óvænt gerist er kollvarpar öllu, er útlitið greinilega fyrir sannfærandi sigur Joe Biden, er yrði 77 ára elsti forseti í sögu Bandaríkjanna!
Það sérstaka, Biden hefur lítt haft sig frammi - ekki enn búinn að velja varaforsetaefni, né aðra meðframbjóðendur.
--Þannig að fylgis-sveiflan virðist frekar viðbrögð við Trump, en nokkuð sem Biden hefur gert.
M.ö.o. hvernig Trump hefur brugðist við - seríu af atburðum á þessu ári.
Hafi hrundið af honum fylgi.
- Það yrði afar sérkennilegt, ef Biden velur áfram - að lofa Trump að vera einn nánast í kastljósinu.
Ef svo væri, mundi það vera - vegna þess menn telja að Trump sé að smala fyrir Biden.
Kv.
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 21:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)
20.6.2020 | 18:24
Trump gagnrýndur fyrir fyrirhugaðan framboðsfund í Oklahoma State en COVID-19 sýkingum fjölgar hratt einmitt í Oklahoma skv. nýjustu tölum!
Fyrir þessa helgi sína tölur frá Suður-ríkjum Bandaríkjanna að fókus COVID-19 dreifingar hefur færst yfir til Suður-ríkjanna. Ég er með tölur frá því í dag fyrir framan mig, skv. því eru ný tilfelli orðin 16.657 af er í dag -- Florida 4.049, Arizona 3.109, North-Carolina 1.549, South-Carolina 1.155, Virginia 650 -- þá loks New York 621.
--Fjöldi fylkja er síðan með fleiri hundruð tilfelli af er þessum degi:
United States Coronavirus Cases.
Sjá hér áhugavert samanburðargraf Reuters. Sýnir einnig snarpa aukningu í nokkrum fjölda Suður-ríkja Bandaríkjanna þar á meðal Oklahoma.
--Áhugavert skv. á hlekknum má sjá að Alabama hefur séð 2-földun í heildarfj. tilfella í sl. viku. Þar skv. því er hraðinn á hlutfallslegri fjölgun mestur.
--South-Carolina, Oklahoma einmitt og Florida eru næst á eftir í hlutfallslegum fjölgunarhraða, þar af fjölgaði tilfellum 67,9% í Oklahoma í vikunni!
- 2-földunarhraði í Oklahoma skv. því 1,5 vika ca.
Oklahoma voru: 331 til viðbótar í dag heildarfjölda tilfella 10.037.
Þær tölur auðvitað fölna samanborið við New York 410.214.
--Oklahoma hefur ca. helming íbúafjölda New York þannig fljótt á litið er útlitið ekki það svart: Oklahoma Coronavirus Cases.
- Ábending, ef maður skoðar gröf þ.e. ný tilfelli og virk tilfelli.
Eru gröfin snörp til hækkunar, þar með eru súlur Júní mánaðar þær langhæstu til þessa. - Með veikina í hraðri útbreiðslu - virðist ákvörðun fylkisstjóra að draga úr hömlunum til að efla atvinnu-lífið, en fylkisstjórinn virðist vera bandamaður Trumps, ekki endilega góð.
- Málið er að reynslan sýnir í mörgum löngum, þar á meðal innan Bandar. sjálfra -- að hröð útbreiðsla ef ekki stöðvuð þíðir að innan skamms, verður sýking útbreidd og margir veikjast, þar á meðal fjölgar dauðsföllum verulega.
--Ef Oklahoma yrði eins slæmt og New York færu sýkingar þar í 200þ.
- Einhver bendir kannski á dánartölur eru lægri nú en t.d. í apríl, hef enga þekkingu á af hverju það er -- hinn bóginn geta dánartölur laggað eftir ef hröð aukning skv. tölum Júní mánaðar ætti að leiða til þess þær fari upp einnig.
Auðvitað getur verið heilbrigðiskerfið sé betur statt nú.
Trump á fundi með aðdáendum!
Menn benda á að það sé sérstaklega hættulegt við þessar aðstæður að halda fjölmennan kosningafund á lokuðum leikvangi þ.s. áhorfendur munu sitja þett við hvern annan!
This has the potential to be one of those super-spreading events, -- The president, governor and mayor are . . . using the citizens of Oklahoma as guinea pigs. -- sagði Emily Virgin talsmaður Demókrataflokksins í Tulsa City Oklahoma.
- En hún hefur ekki augljóslega rangt fyrir sér.
- En það virðist fullkomlega öruggt, miðað við hraða útbreiðslu - með þúsundir æstra aðdáenda á þétt pökkuðum leik-vangi.
- Þá verði stórfelld dreifing á vírusnum einmitt við þær aðstæður.
Sko, sannarlega hafa mótmæli sl. vikur augljóslega fjölgað tilfellum.
Hinn bóginn, bætir það ekki nokkurn skapaðan hlut - að Trump taki sig til að gera slíkt hið sama!
Bendi á að fundurinn í Tusla City Oklahoma er einungis sá fyrsti í fyrirhugaðri fundarherferð, þ.s. viðburðirnir verða sennilega alltaf lokaðir - alltaf á lokuðum stöðum þ.e. leikvöngum af einhverju tagi þ.s. fólk mun sitja eða standa þétt.
--Það þíðir, að þeir fundir verða nánast - fullkomnar dreifingarstöðvar fyrir COVID-19.
Þ.e. ástæða fyrir því, menn hafa verið að - banna útisamkomur, kvikmyndasýningar - íþróttamót með áhorfendum.
--Því staðir er innihalda fjölmenni pakkað þétt saman, verða óhjákvæmilega massívar dreifingastöðvar fyrir COVID-19.
- Í fullri kaldhæðni, einmitt nú þegar Suður-ríki og mið-ríki Bandar. eru að verða helstu miðstöðvar dreifingar COVID-19.
- Hefst kosninga-herferð Trumps, einmitt um þau ríki.
- Það getur einfaldlega ekki farið með öðrum hætti, en að sú fundarherferð skapi ein og sér umtalsverða viðbótar-dreifingu, þar með þau vandræði er því fylgir - auk hugsanlegra dauðsfalla.
--Sumir tala um það, að aðdáendur Trump séu að taka - Darvins prófið.
En kaldhæðnin er sú, að Trump mun án vafa leiða fram dauða töluverðs fjölda sinna fylgismanna. Sem annars geti verið að hefðu ekki látist.
Niðurstaða
Sá sorglegi sannleikur virðist vera að þungamiðja fjölgunar tilfella COVID-19 virðist kominn til Suður og Mið-ríkja Bandaríkjanna. Mér skilst að nokkur þeirra þar á meðal Oklahoma, hafi dregið úr aðgerðum -- skv. hvatningu m.a. frá ríkisstjórn Bandaríkjanna um að opna hagkerfið.
Það sem tölur sína um fjölgun tilfella, er fjölgunar-hraðinn virðist í aukningu í nær þeim öllum, verst í Alabama þ.s. 2-földunarhraði er tæp vika skv. fjölgun um 116% í sl. viku.
Til samanburðar fjölgaði í Oklahoma um 67,9% er geri ca. eina og hálfa viku 2-földun.
--Það þíði að veikin sé þessa dagana í hraðri útbreiðslu í Oklahoma fylki.
--Einmitt líklega í hraði útbreiðslu í Tulsa City, þ.s. pólitískur fundur Trumps fer fram.
Þannig að það verður algerlega örugglega þannig, að á fundinum verði til staðar margir er beri vírusinn og að þeir muni dreifa honum til margra á þeim fundi, þannig að kosningafundurinn hvetji til enn frekari aukningar tilfella í Oklahoma.
Þetta er einungis fyrsti stóri fundurinn við aðstæður þ.s. fólki verður pakkað þétt saman, þannig skapaðar fullkomnar aðstæður á sérhverjum þeim funda til að dreifa vírusnum frekar -- sem Trump ætlar að halda um Mið- og Suður-ríki Bandaríkjanna, fram að kosningum.
- Skv. þessu, verður hægt vel svo án ósanngyrni að halda því fram, að Trump muni persónulega standa fyrir því - að dreifa veikinni til sem flestra sinna stuðningsmanna.
- Enginn vafi af völdum þess að mæta á þá fundi, muni fjöldi þeirra stuðningsmanna látast af sjúkdómnum, þar fyrir utan muni stærri fjöldi veikjast alvarlega - enn fleiri veikjast síður alvarlega. Enn enn fleiri fá vírusinn, án þess endilega veikjast en samt taka þátt í að dreifa honum frekar.
Skv. þessu verður Trump meðvirkur í því að hámarka fjölda COVID-19 veikra þar með einnig látinna, í einmitt þeim fylkjum - þ.s. hann vonast einna helst eftir atkvæðum fólks.
--Eitthvað við þetta er svo rosalega kaldhæðið.
------------
PS. Trump var með -liability disclaimer- fyrir aðdáendur sem þeir þurftu að undirrita til að fá að fara inn á samkomuna:
By attending the rally, you and any guests voluntarily assume all risks related to exposure to COVID-19 and agree not to hold Donald J. Trump for President, Inc.; BOK Center; ASM Global; or any of their affiliates, directors, officers, employees, agents, contractors, or volunteers liable for any illness or injury,
Til að útiloka fullkomlega að Trump hafi ekki mæta vel skilið hann væri að stofna lífi og limum stuðningsmanna sinna í hættu.
PS.2 - Mun færri virðast hafa mætt á atburðinn í Tulsa en Trump framboðið reiknaði með, en skv. fréttum, reiknuðu borgaryfirvöld með 100þ. manns - leikvangurinn sjálfur tekur 19þ. í sæti en myndir af atburðinum sína að -- einungis ca. 2/3 sætanna voru skipuð. Fyrir utan, virðast einungis hafa verið um 10 manns. Fyrir atburðinn hafði Trump gumað af því, að milljón manns hafi - skrifað upp á að mæta.
Vegna þessa, hætti Trump við að halda fund utan-dyra sem hann hafði fyrirhugað, en búist hafði verið við slíkum hóp - að fjölmenni yrði utan dyra, en í staðinn var þar nánast enginn maður eins og myndir af atburðinum sýndu.
--Skv. þessu virðist start Trumps á fundarherferð sinni ekki ræsast af þeim krafti hann fyrirhugaði.
Kv.
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt 21.6.2020 kl. 03:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Bolton er langt í frá því vera minn uppáhaldsmaður - hann varð mjög ófrægur í tíð George W. Bush, en Bush færði hann frá fyrstu stöðunni Bolton gegndi yfir í embætti sendiherra Bandaríkjanna hjá Sameinuðu-þjóðunum, embætti sem Bolton gegndi síðan eftir það í tíð ríkisstjórnar George W. Bush.
--Mér skilst ástæða tilfærslu úr embætti innan Hvíta-hússins, hafa verið að Bolton var gagnrýndur fyrir meðferð gagna, m.ö.o. leyna gögnum er máli skiptu en sögðu aðra sögu.
Síðan var Bolton sem sendiherra ríkisstjórnar Bandaríkjanna hjá SÞ - í því hlutverki að verja aðgerðir ríkisstjórnar Bandaríkjanna í Írak, árið 2003 og síðan áfram í tíð þeirrar ríkisstjórnar.
--Vegna tilfærslunnar yfir til SÞ, þá auðvitað var Bolton ekki í þeirri aðstöðu þá - að taka lykilákvarðanir, honum hefur örugglega sárnað.
- Það sem Bolton hefur alltaf verið, er haukur fyrir stöðu Bandaríkjanna í heiminum.
- Þannig að Bolton verður sennilega skoðast sem, raunverulegur þjóðernissinni.
- Sama tíma, virðist Bolton alltaf hafa verið sú tegund þjóðernissinna, er alltaf var tilbúinn að -- berja niður skilgreinda andstæðinga Bandaríkjanna.
- Talið er víst, að Bolton hafi viljað að - Bush mundi hefja stríð gegn Íran, en Bush skv. hans eigin æfiminningum stóð fyrir þeirri ákvörðun, og steig ekki það skref.
Ég hef a.m.k. aldrei heyrt af því að Bolton væri tengdur spillingu.
Lygar hans virðast hingað til - ekki tengjast -self enrichment schemes.-
Heldur, má tengja við stefnu Boltons í utanríkismálum, nefnilega þeirri.
--Að jafna um skilgreinda óvini Bandaríkjanna.
Hann sé m.ö.o. raunverulegur stríðs-haukur.
En sé ólíklegur til að - vera í þessu til þess að græða persónulega pening.
--Hann m.ö.o. ekki augljóslega spilltur.
Þó það geri hann ekki að - góðri persónu.
- En punkturinn í þessu er sá.
- Það þarf ekki vera að Bolton sé að ljúga.
En Bolton getur verið raunverulega - reiður yfir því sem hann telur dæmi um spillingu.
Einnig því, sem sannarlega hefur oft virst ekki bara mér, stefnulaust rekald það sem ríkisstjórn Bandaríkjanna undir Trump -- hefur virst mér nær ávalt.
--M.ö.o. þegar Bolton talar um -stefnuleysi- og -hugmyndafæð- þá er það mín sín einnig.
Bolton - Pompeo - Trump í herberginu fræga!
Ásakanir Boltons!
Frægasta ásökunin er auðvitað sú -- hann segir að Trump hafi boðið Xi Jinping!
He then, stunningly, turned the conversation to the coming U.S. presidential election, alluding to China's economic capability to affect the ongoing campaigns, pleading with Xi to ensure he'd win,
Við höfum orð Boltons fyrir þessu. Auðvitað getur þetta verið lýgi.
Bolton m.ö.o. segir Trump hafi komið ráðgjöfum sínum í opna skjöldu - með því að ræða viðskipti ríkjanna í samhengi við kosningar fyrir endurkjör, m.ö.o. á Trump hafa boðið Xi á móti ef Xi samþykkti veruleg kaup Kína á landbúnaðarvarningi frá svæðum þ.s. Trump hefur haft sterka atkvæðastöðu -- að tóna niður gagnrýni ríkisstjórnar Bandaríkjanna á Kína.
M.ö.o. skv. Bolton hafi Trump - boðið viðskipti m.ö.o. transaction.
- Dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna er að gera sitt ítrasta á sama tíma til þess að stöðva/hindra útgáfu - The Room Where It Happened.
Mr Boltons attorney, Charles Cooper ... White House had sought to use national security as a pretext to censor Mr Bolton, in violation of his constitutional right to speak on matters of the utmost public import -- Simon & Schuster fully supports [Mr Bolton's] First Amendment right to tell the story of his time in the White House to the American public,
--Bendi á þetta er útlegging lögmanns John Bolton. - Meðan fullyrðir Trump: If he wrote a book, I can't imagine that he can because that's highly classified information, -- Conversations with me, they're highly classified. I told that to the attorney general before. -- I will consider every conversation with me, as president, highly classified, -- So that would mean that if he wrote a book and if the book gets out, he's broken the law. And I would think that he would have criminal problems. I hope so.
--Trump, Barr styður þá afstöðu, að allt þ.s. hann segir burtséð frá við hvaða tilefni og við hvern, sé skilgreint ríkisleyndarmál -- því fangelsisdómur við því að segja frá því.
--Tek fram, þetta er nýstárleg túlkun, þeir Trump og Barr - leitast við að víkka út vernd forseta, sem þíðir ekki er hægt að lögsækja Trump meðan hann gegnir embætti forseta -- til að einnig merkja, ekki megi vitna beint í Trump - gegn hans vilja.
**Dómsmál gegn Bolton yrði því augljóslega prófmál.
**Það hefði hugsanlega mjög víðtæka merkingu - því ef túlkun Trumps og Barr mundi standast, þá væntanlega gilti hún einnig fyrir forseta framtíðar. - Pompeo bætti síðan við, kallaði Bolton svikara!
John Bolton is spreading a number of lies, fully-spun half-truths and outright falsehoods, -- I was in the room too -- both sad and dangerous that John Boltons final public role is that of a traitor who damaged America by violating his sacred trust with its people.
--Tja, höfum í huga skv. hefðbundinni túlkun laga Bandar. - er það ekki svik við landið endilega að segja frá því - hvað forsetinn hefur sagt.
--M.ö.o. t.d. þ.s. forsetinn sver eið að stjórnarskránni við embættistöku - ber honum að fylgja lögum landsins, skv. því gæti aldrei verið lögbrot/svik við landið - t.d. að segja frá því ef forsetinn sjálfur mundi brjóta lög eða stunda sviksemi við landið.
**Þarna er ég einungis að taka íkt dæmi til að sanna punktinn.
--Málið er að það er ekki endilega sjálfkrafa endilega rangt eða lögbrot, að tala um það hvað forsetinn sagði eða gerði, jafnvel þó forsetinn vildi frekar að ekki væri frá því sagt. - Gott og vel, Trump og Barr halda öðru fram - að ef forsetinn vilji það fari leynt, burtséð frá hvort það væri t.d. klámsögur sem forsetinn segði eða burtséð frá hvað, þá væri það ríkisleyndarmál sjálfkrafa - eingöngu skv. vilja forseta.
--Þá auðvitað fer málið fyrir dóm, og væntanlega allt dæmið fyrir rest fyrir hæstarétt er skilgreini þá það.
--Hvort öll orð/gerðir forseta - geti verið ríkisleyndarmál burtséð frá hvað, ef forsetinn vill að svo sé.
- Tökum samt fram, að í Watergate málinu í tíð Nixon, þá var sannarlega uppljóstrað heilu samræðunum er fóru fram í Hvíta-húsinu.
Greinilega gæti það útilokað Watergate mál framtíðar, ef hæsti-réttur samþykkti slíka kröfu Trumps og Barr, að allt sem forsetinn segir í prívat í Hvíta-húsinu, eigi að vera ríkisleyndarmál -- og að rjúfa slíkan trúnað fái nánast sjálfkrafa harða refsingu.
--M.ö.o. þetta þíðir, jafnvel þó Bolton sé um margt - fullkomlega andstyggðar karakter, gæti mál hans fyrir rétti - sem ríkið sækir, snúist yfir í mjög mikilvægt prófmál um það -- hvort fullt málfrelsi/prentfelsi ríki innan Bandaríkjanna.
--Og einnig um það, hvort yfir höfuð sé unnt að rannsaka ríkið, meðan það starfar. En þá þarf að vera hægt að fá menn til að opna sig. Watergate rannsóknin hefði aldrei getað komist þetta langt sem hún komst, ef enginn hefði getað opnað sig -- vegna ótta við sjálfkrafa handtöku og nánast öruggan langan fangelsisdóm. - M.ö.o. gæti það verulega aukið hættu á spillingu innan ríkisstjórnar Bandaríkjanna til frambúðar -- ef öllu þ.s. þar fer fram, verður haldið frá almenningi -- með slíkum hætti. Tja, þá komast þeir er ríkja þar í framtíð, frekar upp um slæma hluti -- ekki satt?
--Ég er ekki endilega vísa til Trumps - heldur segja málið miklu stærra þar með en snúast einungis um Trump.
Trump auðvitað tjáði sig á Twítinu!
- Punktur, ef bókin er einungis safn lyga -- af hverju er svo mikilvægt að stöðva útgáfu hennar?
- Það eru eiginlega nákvæmlega þau viðbrögð -- baráttan gegn birtingu hennar.
--Og Pompeo nú útnefnir Bolton svikara.
- En útnefningin svikari -- segir eiginlega að bókin birti eitthvað sem sé satt.
Annars hvernig getur hún verið -- svik? - Sama virðist eiginlega baráttan -- gegn birtingu bókarinnar segja.
Hver er tilgangurinn í því að hindra bókin komi fyrir almenning, ef allt í henni eru lygar?
Eiginlega verð ég að segja!
Viðbrögðin bendi einmitt til þess - a.m.k. einhverjar af frásögnum Boltons séu sannar.
Niðurstaða
Sápuóperan í Hvíta-húsinu tekur stöðugt á sig nýjar og nýjar myndir.
Nýjasta sápan - virðist dæmisagan um það; hvernig ekki á að bregðast við nýrri bók.
Fjölmiðla-umfjöllunin, viðbrögð Trumps og Bolton, dómsmál dómsmálaráðherra Bandaríkjanna gegn birtingu -- The Room Where It Happened.
--Sjá um að auglýsa hana rækilega, þannig að nú er nánast öruggt hún seljist.
En því meir sem vakið er á henni athygli, þá auðvitað taka menn samtímis betur eftir því hvað þar er sagt/haldið fram.
--Trump, Pompeo, Barr -- hefðu átt að láta bókina algerlega óáreitta.
Trump hefði getað Twítað - lýgi, en ef önnur viðbrögð hefðu verið engin.
Er alveg möguleiki að sú skoðun á henni hefði getað orðið ofan á.
--En með ýktum viðbrögðum, virðist mér Trump - Pompeo og Barr, nánast hafa tryggt að bókin fái mikla athygli, auk þess að margir taki það fullkomlega alvarlega það sem þar kemur fram.
- Þetta kalla ég að míga í skóinn sinn.
Kv.
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt 20.6.2020 kl. 02:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
17.6.2020 | 01:45
Var Kim Jong Un allan tímann að draga Donald Trump á asnaeyrum? Ljóst virðist ekki verði af kjarnorkuafvopnunarsamkomulagi sem Trump stefndi að!
Ég skal viðurkenna að ég var ætíð mjög efins að Donald Trump mundi takast að ná samkomulagi við Kim Jong Un einræðisherra Norður-Kóreu um það markmið, að afnema með öllu kjarnorkuvopn landsins og þær eldflaugar sem Norður-Kórea ræður enn yfir er geta borið kjarnorkuvopn.
North Korea blows up liaison office in escalation of hostilities with Seoul
Skv. nýlegum fréttum virðist Norður-Kórea kominn aftur í gamla gírinn og áður.
Það er að keyra upp í skrefum spennu á Kóreuskaga!
M.ö.o. virðist mér nákvæmlega ekki neitt hafa lagast.
--Þarna var um táknrænan atburð að ræða, að sprengja í loft upp hús á landamærum er notað var fyrir mikilvæga fundi milli Kóreu-ríkjanna.
--Þessi táknræna athöfn að sprengja það hús, virðist yfirlýsing á þann veg!
Að lágspennuástandinu sé lokið, því er staðið hefur nú yfir um hríð.
Síðan Kim Jong Un ákvað að ræða við Donald Trump, eftir að 2017 Trump fór ákaflega langt í hótunum gegn NK - gekk það langt, að skilja mátti sem hótun um stríð af fyrra bragði.
--Þ.s. Trump sagðist beitingu kjarnavopna ekki fyrirfram útilokaða.
Trump og Kim á öðrum leiðtogafundanna!
Eins og ég benti á í einni gamalli athugasemd: Norður-Kórea fordæmir afstöðu Bandaríkjanna - spurning hvort Kim Jong Un ætlaði sér í raun nokkru sinni að semja um afvopnun?. Þá tókst Kim Jong Un a.m.k. með því að ræða við Trump - að forða þeirri hugsanlegu hernaðarárás sem Trump var að hóta.
--Nú veit engin hvort Trump hefði látið verða af því, en Trump hætti þaðan í frá að hóta nokkru slíku, og spennan minnkaði - úr því sem komið er virðist afar ósennilegt að Trump endurtaki fyrri hótanir, enda nú einungis rúmlega 4-mánuðir til kosninga!
- Ef tilgangur Kim Jon Un, var sá einn að -- þæfa málið fram að kosningum.
- Má vera að Kim hafi tekist nákvæmlega það!
Eins og ég benti á í upphafi, var ég skeptískur að Trump mundi ná fram samningi!
- Komin nálgun á dagsetningu leiðtogafundar Donalds Trumps og Kims Jong Un
- Norður-Kórea fordæmir afstöðu Bandaríkjanna - spurning hvort Kim Jong Un ætlaði sér í raun nokkru sinni að semja um afvopnun?
- Donald Trump segist þekkja Kim Jong Un, vita hvað hann sé fær um - Kim muni ekki koma honum á óvart
- Kim Jong Un leiðtogi Norður Kóreu - gefur Donald Trump frest til ársloka til að koma fram með, ásættanleg samningsmarkmið!
- Norður-Kórea segir: engir frekari leiðtogafundir með Trump - fyrr en Trump sýni honum sé alvara með að semja!
Málið er ég varð þess aldrei var að Kim Jong Un gæfi eftir nokkurt bitastætt.
Kim Jong Un, gaf að virtist aldrei eftir þá kröfu að - Bandaríkin hættu refsiaðgerðum.
Sama tíma, hann virðist aldrei formlega hafa lofað því, að gefa eftir vopnabúnað landsins.
Það voru tveir leiðtogafundir milli Trumps og Kim!
En hvorugur þeirra virtist hafa leitt fram lausn!
Þó í bæði skiptin talaði Trump um fundina sem árangursríka - þrátt fyrir að aldrei hafi ég séð þess merki, að Kim nokkru sinni - lofaði nokkrum sköpuðum hlut er væri bindandi.
- Nú virðist kjörtímabil Trumps nær á enda runnið.
- Tíminn til að ná markmiðinu fram, á enda runninn - þar með.
Ef markmið Kim Jon Un var einungis að - ræða við ríkisstjórn Trumps, á meðan þæfa málið þar til kjörtímabilinu væri lokið.
--Virðist Kim Jong Un hafa náð því markmiði.
Niðurstaða
Ef maður ber saman markmið leiðtoganna tveggja þ.e. Trumps vs. Kim.
Ef maður gefur sér að markmið Kim, hafi verið að gefa ekkert bitastætt eftir.
Samtímis að tryggja öryggi landsins út kjörtímabil Donalds Trumps.
--Fæ ég ekki betur séð en að Kim Jong Un hafi tekist að ná þeim fram.
Á sama tíma, virðist Trump engum markmiða sinna hafa náð fram.
Bnedi á að í samanburði við Bill Clinton er samdi í sinni tíð við Kim þess tíma.
Þá virðist Trump hafa náð mun minni árangri en Bill Clinton.
--Þó talaði Trump á þá leið, að lær þyrfti af þeirri sögu að fyrri forsetar að hans sögn hefðu ekki náð nægilega sannfærandi árangri.
Kv.
Utanríkismál/alþjóðamál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Lengst af kjörtímabil Trumps virtist hann hafa nokkurs konar - teflon húð, það er algerlega sama hvað gekk á, þá einhvern veginn snerist það fyrir rest honum í hag.
--T.d. er sennilegt að hann hafi frekar en hitt grætt fylgislega á tilraun þingdemókrata til að ákæra hann fyrir Bandaríkjaþingi.
Hinn bóginn hefur röð atvika orðið á þessu ári!
Í nýlegum fylgiskönnunum mælist Trump með minna fylgi en Biden.
--39% Bandaríkjamanna virðast nú sáttir við hann skv. nýjustu fylgismælingum.
- Fylgiskannanir eru að hrúgast inn, er virðast sýna viðbrögð Bandaríkjamanna við hegðan Trumps -- þær tvær vikur sem víðtæk mótmæli hafa staðið.
- Niðurstaðan af því virðist sú, Trump hafi tapað umtalsverðu fylgi meðal - óháðra kjósenda þ.e. farið úr forskoti á við Biden, í 10% lakara fylgi en Biden meðal þess hóps.
--Fylgismenn Trumps hafa ekki snúið við honum baki.
En kannanir virðast benda til þess, að sókn Trumps eftir atkvæðum utan þess hóps, verði erfiðari nú -- en leit út fyrir við upphaf þessa árs.
Málið virðist ekki það að einhver svakaleg fylgis-aukning hafi orðið hjá Biden.
Meir þannig að Trump hafi tapað stuðningi - utan við raðir harðs kjarna fylgismanna.
--Kannski þíðir það að Trump eigi enn möguleika á sigri þrátt fyrir allt.
Ný COVID-19 alda?
Trump segist ætla að setja kosningaherferð á full í nk. viku: Donald Trump says campaign rallies will resume next week despite US coronavirus fears.
- Skv. fréttum, þá er farið að bera á aukningu smita í nokkrum ríkjum í Suður hluta Bandaríkjanna, svæðum þ.s. Trump hefur haft mikið fylgi -- sem fyrir nokkrum vikum minnkuðu verulega lokunar-aðgerðir er voru þáttur baráttu gegn COVID-19.
- Ekki ætti að hafa farið framhjá nokkrum manni, að víðtæk mótmæli hafa staðið yfir í 2-vikur í fjölda bandar. borga -- greinilega hefur 2ja metra reglan ekki verið virt af miklum fjölda fólks. Að mótmælin valdi nýrri smitdreifingu virðist því rökrétt.
- Og Trump ætlar að starta fundar-herferðum, sem þíðir að sjálfsögðu að fjölmennar samkundur verða þ.s. Trump þrumar yfir fólki - að sjálfsögðu engin 2ja metra regla virt. Þetta virðist því einnig sennilegt til að skapa fjölgun nýrra smita.
--Það eru nú 5-mánuðir í kosningar!
Ég hef enga trú á að Trump - taki nokkurt tillit til hættu tengda dreifingu smita, nú þegar mælingar sýna hann undir - þannig að væntanlega heldur herferð hans þá áfram að fjölga smitum.
Mér virðist þar af leiðandi flest benda til þess, af ofangreindir þættir eru lagði saman.
Að ný alda smita fari fljótlega að rísa af krafti - að sjálfsögðu hefur það áhrif á kosningabaráttuna!
Sigurmöguleikar Trumps hafa minnkað, ekki öll von úti enn!
Trump virðist nú meðaltali 8% undir í könnunum, með -approval rating- meðaltalis skv. könnunum 39%: Staring down a polling slide and growing unease, Trump campaign enters perilous moment.
Staða Trump er greinilega með þeim hætti -- að sigur er orðin áskorun.
Enginn ætti samt afskrifa Trump, en það er brekka greinilega framundan.
Og ef eins og mig grunar að -- ný alda veikinnar sé framundan!
M.a. honum sjálfum að kenna -- þ.s. fylki í Suður ríkjum hafa tekið áskorun hans að opna.
--Og fundarherferð greinilega kyndir enn frekar undir - fjölgun smita.
- Þá gæti staðan versnað enn frekar á nk. mánuðum!
Ef ég geri ráð fyrir því, að ný stór bylgja CV19 væri honum til trafala.
Útlit er fyrir að fylgislega hafi Trump tapað á framkomu sinni dagana fjöldamótmæli í Bandaríkjunum hafa staðið yfir!
Most Americans sympathise with protests, oppose Trump's response: poll
- 64% studdu mótmælin.
- 27% voru móti þeim.
- 9% voru óviss.
Skv. þessari frétt!
ABC-Ipsos könnun: An ABC News/Ipsos poll.
- 66% Bandaríkjamanna voru ósammála afstöðu Trumps til mótmælanna.
- 60% Bandaríkjamanna nú eru ósáttir við viðbrögð Trumps gagnvart CV19.
- 74% voru sammála því að morðið á George Floid væri merki um alvarlegt samfélagslegt vandamál, því ósammála Trump að það væri - einangrað tilvik.
Miðað við þetta -- gætu kannanir nk. daga litið enn verr út fyrir Trump.
En þær kannanir sem þegar eru komnar út.
- Bent er á að fylgi Trumps sé nú svipað -- fylgi Jimmy Carter 5 mán. fyrir kosningar.
Ég er ekki enn að spá Trump ósigri formlega!
En staðan virðist sannarlega orðin erfið hjá honum!
--Ef spá mín um aðra öldu COVID-19 reynist rétt.
- Gæti sú alda endanlega drekkt sigurmöguleikum hans.
Niðurstaða
Mjög afgerandi breyting hefur orðið til hins verra á möguleikum Trumps til sigur undanfarnar vikur og mánuði -- líkur hans á sigri voru góðar ca. í mars!
En röð atvika - viðbrögð Trumps við þeim atvikum - virðist hafa höggvið skörð í möguleika Trumps til fylgis.
--Og ef spá mín um nýja öldu COVID-19 smita rætist.
Gætu sigurmöguleika Trumps gufað upp!
----------
Ef einhver bendir á að Trump hafi verið undir í könnunum 2016!
- Bendi ég á að lokavikur kosningabaráttu Hillary Clinton - ræsti FBI að nýju rannsókn á E-mail máli hennar, stóð sú glæpa-rannsókn fram á loka-viku kosningabaráttunnar.
- Ég held að öruggt sé, að þetta hafi leitt til þess að Hillary Clinton tapaði.
En Trump vann ekki vegna þess að hann fékk rosalega mikið fylgi.
Hann t.d. fékk færri atvkæði en Romney 2012 er Romney tapaði fyrir Obama.
Það var ekki m.ö.o. vegna þess að rosaleg sveifla hafi orðið til Trumps.
Heldur vegna þess að kjósendur Demókrata sátu heima!
- Ekkert sambærilegt er að gerast núna!
- Frekar að, rás atburða virðist - veikja stöðu Trumps jafnt og þétt.
Í stað þess að 2016 var atburðarás er stöðugt gróf undan fylgi Clintons.
Trump var heppinn 2016 -- nú virðist hann ætla að vera afar afar óheppinn.
Heppnin er virtist gefa Trump viðvarandi teflon húð - virðist hafa nú yfirgefið Trump.
- Mig grunar að það séu nú nokkrar líkur á því að Trump virkilega muni tapa.
Þó sú útkoma geti ekki enn skoðast örugg.
Kv.
Utanríkismál/alþjóðamál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Það sem virðist hafa gerst, veit ekki af hverju það kom hagfræðingum á óvart -- að 3 trilljón Dollara prógrömm sem ríkisstjórn Bandaríkjanna í samvinnu við bandaríska þingið, ákváðu að innleiða séu kannski farin að hafa tilætluð áhrif!
Í athugasemdum við frétt sem ég las, bentu skríbentar er virðist þekkja mál á sérstakt prógramm sem ætlað er að -- styðja við störf hjá smærri fyrirtækjum!
- The Payroll Protection Program expanded to $ 659 Bn by the US Congress on 23 April allows RETROSPECTIVE incentives for rehiring of Workers by Small Businesses to continue qualifying for Payroll loan write-off for the current eight-week eligibility period.
- Workers let go between 15 Feb and 26 April can be rehired by 30 June or their positions filled by new hires by the same date, while continuing to get the benefit of the PPP Program Loan write-off.
- It remains to be seen if/when the current Eight-week eligibility period for PPP Program Payroll loan write-off for small-businesses gets extended further,as it appears very important for sustaining small-business payroll growth.
Eins og lýst af þeim er skrifaði athugasemdina, þá hljómar þetta um sumt líkt aðgerðum á Íslandi -- nema sá áhugaverði punktur, að styðja við endurráðningar.
Miðað við þá peninga sem þarna er talað um, 659 milljarðar Dollara.
--Virðist þetta - smá-fyrirtækja stuðnings prógramm!
--Geta útskýrt hugsanlega alla sveifluna!
Það áhugaverða við Financial-times stundum eru þeir er skrifa undir fréttirnar enn betri en fréttamennirnir sem skrifa fréttina sjálfa: How the jobs report managed to surprise almost everyone.
Skv. frétt --:
- Leisure and hospitality including restaurants clawed back 1.2m jobs after losing more than 8m since the crisis began,
- while retailers brought back 377,000 jobs out of more than 2.3m lost earlier in the year.
Þetta getur vel passað, þó það séu risafyrirtæki í slíkri starfsemi líka.
Þá eins og á Íslandi er einnig mikill fjöldi smárra til örsmárra fyrirtækja þar líka.
Með öðrum orðum, þ.s. aukning starfa útskýrist líklega með aðgerðunum!
Sé líklega ekki enn, eiginlegur efnahagslegur viðsnúningur í gangi!
A.m.k. ekki augljóst að slíkur viðsnúningur sé hafinn enn.
Þó sennilega hleypi sveiflan í atvinnuleysis-tölum vonum upp!
- Ég helda a.m.k. að of snemmt sé sennilega að spá viðsnúningi.
- En ef viðsnúningur í tölum er einungis vegna stuðningsaðgerða við fyrirtæki.
--Þá mundi atvinnuleysi vaxa aftur ef þeim aðgerðum væri hætt.
Niðurstaða
2,5 milljón fækkun í heildar-atvinnuleysi virtist koma hagfræðingum í Bandaríkjunum í opna skjöldu, ef marka má frétt Financial-times um málið. Hinn bóginn þá í ljósi heildar magns stuðnings-aðgerða er hafa verið að tikka inn -- sbr. a.m.k. 3 trilljón Dollar heilt yfir.
Þá kannski ætti maður að vænta þess að slíkur óskaplegur peninga-austur hafi einhver áhrif.
Sem aftur beinir málinu að þeirri hlið, að sennilega sé einungis peninga-austurinn sem sé að færa tölurnar í hagstæðara far.
Kv.
Utanríkismál/alþjóðamál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
4.6.2020 | 19:32
Andstaða virðist hafa risið innan Bandaríkjahers gegn hugsanlegri beitingu landhers Bandaríkjanna innan borga Bandaríkjanna að kröfu Trumps
Skilaboð hersins voru greinilega orðið af núverandi varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, ásamt fjölda áskorana frá hershöfðingjum á eftirlaunum -- sem má segja að hafi tjáð þá sömu afstöðu, að beiting almenns hers innan borga Bandaríkjanna væri ekki studd af hernum!
Varnarmálaráðherra Bandaríkjanna tjáði blaðamönnum afstöðu sína:
I do not support invoking the Insurrection Act, -- The option to use active duty forces in a law enforcement role should only be used as a matter of last resort, -- and only in the most urgent and dire of situations, -- We are not in one of those situations.
Þetta er skýr andstaða við yfirlýsingar Trumps þ.s. hann virtist heimta beitingu landhers Bandaríkjanna innan bandarískra borga!
--Höfum í huga, hvernig Mark Esper orðar þetta, veitir Trump afsökun til að bakka!
En hann segir ekki beint að slíkt geti ekki komið til greina í nokkrum skilningi.
--Hinn bóginn segir skýrt, að staða mála sé ekki með þeim hætti að - hún kalli á nokkurt slíkt.
Það er áhugavert að Mark Esper skuli koma fram með svo skír skilaboð.
Gegn jafn skírri kröfu Donalds Trumps frá sl. helgi.
--Þess vegna velti ég því fyrir mér, hvort Trump hugsanlega rekur Esper síðar.
Hinn bóginn, þá hefur væntanlega krafa Trumps um beitingu almenns landhers innan borga Bandaríkjanna, fengið marga innan hersins til að íhuga sína stöðu - hvar þeir standa.
--Persónulega á ég mjög erfitt með að trúa því nokkur raunverulegur bandarískur þjóðernissinni samþykki slíka hugmynd, þ.e. beitingu almenns landhers innan borga Bandar. til að kveða niður óróa meðal íbúa þeirra borga.
- Ástæðan sé einfaldlega hve miklar líkur væru á að slík beiting landhers.
- Mundi geta leitt til umtalsverðs óþarfs mannfellis meðal íbúa þeirra borga.
Vegna þess sem hefur verið bent á af mörgum, venjulegur landher hefur ekki þjálfun til að stunda lögreglu-störf -- hermenn hafa allt aðra þjálfun, er eiginlega gerir þá mjög óhentuga fyrir þess lags störf.
--M.ö.o. þeir eru þjálfaðir í að sigrast á vopnaðri andstöðu, og því í beitingu vopna.
Meðan lögreglu-sveitir eru þjálfaðar í því, að hafa hemil á íbúum borga -- helst án nokkurs mannfalls meðal borgaranna!
--En her, aftur á móti er yfirleitt ekki gíraður til að lágmarka mannfall þeirra sem viðkomandi her er að fást við hverju sinni.
Sem er aftur á móti þjálfun lögreglusveita!
- Menn þurfa þá að skoða í hvað her er notaður - til að átta sig á hvað væntanlega Mark Esper á við, er hann talar um - að ástandið réttlæti ekki beitingu hers.
Fyrir utan þetta, hefur komið mun harðar orðuð tjáning á andstöðu frá þekktum hermönnum sem komnir eru á eftirlaun!
--Þekktust orð James Mattis - er vægt voru hörð, áhugavert hve hörð í ljósi þess hann var um skeið varnarmálaráðherra í ríkisstjórn Donalds Trumps!
Trump brást að vana harkalega við -- sagðist hafa verið glaður að taka við afsögn Mattis um árið, sagði Mattis ofmetnasta hershöfðingja í sögu Bandar.
Bendi aftur á -- Insurrection Act 1807: Núgildandi form þeirra laga!
§â¯251.Federal aid for State governments
Whenever there is an insurrection in any State against its government, the President may, upon the request of its legislature or of its governor if the legislature cannot be convened, call into Federal service such of the militia of the other States, in the number requested by that State, and use such of the armed forces, as he considers necessary to suppress the insurrection.
§â¯252
Whenever the President considers that unlawful obstructions, combinations, or assemblages, or rebellion against the authority of the United States, make it impracticable to enforce the laws of the United States in any State by the ordinary course of judicial proceedings, he may call into Federal service such of the militia of any State, and use such of the armed forces, as he considers necessary to enforce those laws or to suppress the rebellion.
Eins og sést þarna þá virðist það ekki fullkomlega skírt hvaða regla gildir.
- 251 virðist miða út frá beiðni frá fylki í vandræðum, sbr. þingi viðkomandi fylkis eða fylkisstjóra.
- Hinn bóginn, er hægt að lesa greinilega 252 þannig -- Trump gæti sjálfur ákveðið að safna saman hvaða liðsstyrk hann vill, þess vegna -- sjálfboðaliðum.
Sannast sagna á ég erfitt með að trúa því að Trump gangi gegn -- skírum skilaboðum PENTAGON!
Hver veit, tæknilega hugsanlega virðist sem lagagrein 252 veiti slíka heimild.
Niðurstaða
Mér virðist andstaða sem greinilega kemur frá landher Bandaríkjanna við beitingu landhers innan borga Bandaríkjanna -- gegn mótmæla- og óróaöldu er skollið hefur yfir.
Minnka til muna líkur á því að af því verði að Trump - geri tilraun til þess að gefa formlega skipun um slíka beitingu almenns landhers.
Hinn bóginn, treysti ég mér í engu á ákveða að það sé óhugsandi að Trump ákveði að gefa slíka skipun!
--Þá væru Bandar. hugsanlega komin yfir á ókortlagða slóð.
En ekkert sambærilegt hefur eiginlega gerst síðan Lincoln hóf söfnun liðs gegn hernaðarárásum frá nýstofnuðu svoköllu -- Fedaration eða sambandssríki svokallaðra suðurríkja Bandaríkjanna.
--Höfum í huga, við upphaf þrælastríðsins svokallaða, hófu suðurríkin strax hernaðar-árásir.
Slíkt er að sjálfsögðu í engu sambærilegt við - óróleika í formi við víðtæk mótmæli í bland við óeirðir.
Ps: Skv. nýjustu fréttum hefur Lisa Murkowski þingmaður Repúblikana frá Alaska, líst yfir andstöðu við hugmyndir Trumps um beitingu landhers Bandaríkjanna innan borga Bandar.
--Spurning hvort fleiri Repúblikanar stíga fram.
Ps2: Trump hótar að gera sitt ítrasta til að fella Lisu Markowski næst þegar kosið verði um hennar sæti, segir styðja sérhvern þann er bjóði sig fram gegn henni.
--Greinilega vill Trump girða fyrir að flr. þingmenn Repúblikana taki afstöðu gegn honum.
**Hinn bóginn verður ekki kosið um þingsæti Lisu Murkowski fyrr en 2022.
Kv.
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt 5.6.2020 kl. 03:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Eins og væntanlega allir vita þá hófust fjölda-mótmæli í fjölda bandarískra borga í kjölfar atburðar sem ég - tel rétt að nefna morð lögreglumanns á bandarískum blökkumanni.
Í nokkrum fjölda tilvika hafa óeirðaseggir blandað sér í raðir mótmælenda.
Í tilvikum virðast glæpamenn einnig notfæra sér ástandið til að ræna verslanir.
--Slíkt er því miður ekki sjaldgæft þegar fjöldareiði brýst út í fjöldamótmæli, að þá er lögregla of önnum kafinn til að verja opinbera staði, til þess að gæta öryggis fyrirtækja - þannig glæpamenn sjá sér gjarnan leik á borði!
Trump virðist notfæra sér þá atburðarás, hótar beitingu landhers landsins!
Og að skilgreina þekkta mótmæla-hreyfingu hryðjuverkasamtök!
--Nú er erfitt að vita hvort hann getur grætt eitthvað á slíku.
--En kall hans eftir hörðum aðgerðum virðist a.m.k. höfða til hluta Bandaríkjamanna!
Eins og Trump málar ástandið, sé um að ræða skipulagða tilraun til að grafa undan öryggi borgara landsins -- m.ö.o. er Trump að reifa samsæris-kenningu.
--Segir að þekkta mótmæla-hreyfing standi að baki, hótar að skilgreina þá hreyfingu hryðjuverkasamtök.
- Þetta er eiginlega ekkert betra, en æsi-fréttamennska sem stunduð er af fjölda bandarískra fjölmiðla þessa stundina.
- En óneitanlega sérstakt - hvernig Trump virðist sjá í þessu tækifæri til að, mála skrattann á vegginn - með því að viðra samsæriskenningu af slíku tagi.
--Fullyrðing hans um árás á samfélagið, er þá væntanlega röksemd hans til að beita hernum!
Þá hugsanlega vill hann að herinn beiti sér eins og að um uppreisnartilraun sé að ræða!
M.ö.o. gæti Trump verið að hvetja til blóðbaðs.
Mjög áhugavert Video sem sýnir atburðarás er leiðir til dauða George Floyd. Ath. að hún hefst á því sem er fullkomlega lögleg handtaka út af líklegu lögbroti - hinn látni hefur líklega reitt lögreglumann til reiði með því að streitast á móti. Hinn bóginn, er alveg öruggt að -- halda fæti ofan á hálsi George Floyd í heilar 3 mínútur eftir að hann hættir að sína nokkur viðbrögð, er langt langt ofan við þ.s. geta talist eðlileg viðbrögð!
--Ég sé enga ástæðu að ætla að sú bylgja reiði er hefur brotist út sé ekki -spontant- bylgja af reiði, þannig nokkur ástæða sé að taka trúanlegar ásakanir Trumps - að reiðialdan sé undirbúið hryðjuverk gegn bandarísku samfélagi!
Í þessari færslu Trump er engin leið að sjá annað en Trump -- hvetji til beitingar þekkts bandarísks herfylkis gegn mótmælum í bland við óeirðir, tekur undir orðalag þ.s. þátttakendur eru skilgreindir hryðjuverka-öfl!
--Takið eftir Trump vitnar í annan aðila lýsis sig sammála!
(Takið einnig eftir færsla er ný eða einungis klukkitíma gömul er ég sé hana!)
Það sem starir sérstaklega við mér - er tal um atburðarásina sem hryðjuverk, og því um þá borgara landsins sem taka þátt -- sem hryðjuverkamenn!
--Auðvitað, þú beitir ekki hryðjuverka-öfl vettlingatökum.
Því vart hægt að sjá annað en Trump hvetji til alvarlegrar beitingu ofbeldis er gæti leitt til blóðbaðs í borgum landsins!
ANTIFA er þekkt vinstri-sinnuð andstöðuhreyfing, sem fyrir nokkrum árum stóð fyrir þekktum -- stöðu-mótmælum m.a. í Washington borg, þ.s. mótmælendur tóku sér stöður á þekktum stöðrum þ.s. þeir voru gjarnan fyrir umferð tepptu jafnvel umferð um mikilvægar opinberar byggingar.
--En ég man ekki neitt dæmi þess þau mótmæli hafi verið - óróleg eða hafi valdið skemmdum.
Trump nú hótar að skilgreina þau samtök -- hryðjuverka-samtök.
--Eins og vanalega færir Trump engar sannanir fyrir sínum fullyrðingum.
- Ekkert þvert á móti bendi til annars, en mótmælin í bland við óeirðir -- séu klassískt dæmi um -spontant- mótmæli af völdum reiði-bylgju.
- En Trump greinilega heldur að hann geti notfært sér ástandið - að virðist, til að skilgreina þekkta vinstri-sinnaða andstöðuhreyfingu, hryðjuverkasamtök.
Þó hann færi engar sannanir fyrir því eins og vanalega er hann fullyrðir að þau samtök standi að baki núverandi - reiðiöldu er hefur brotist út í mótmæli og tilvikum óeirðum.
--Því má velta því fyrir sér, hvort Trump sé að telja sjálfum sér trú um þetta, eða þetta sé einungis -- tækifærismennska hjá honum, að nota ástandið sem tækifæri til að bannan þau samtök.
- En ef menn beita hernum, með þá hugmynd að baki -- verið sé að brjóta niður uppreisn eða hryðjuverkastarfsemi!
- Þá sé ég án gríns fyrir mér möguleikann á blóðbaði.
Annað Twít þ.s. Trump hótar beitingu hersins gegn þáttakendum í reiðibylgju á götum borga Bandaríkjanna!
Trump talar greinilega - um ótakmarkað afl hersins.
Og gera það sem -þarf.- Án skilgreiningar hvað akkúrat það sé.
--En -það sem þarf- getur verið orðalag til réttlætingar á blóðbaði!
En þarna getur Trump verið að beita óljósu orðalagi vísvitandi til að viðhalda -deniability.-
Höfum í huga -- hann talar um reiðibylgjuna sem hryðjuverkastarfsemi.
Málar þátttakendur sem -- hryðjuverka-öfl.
--M.ö.o. afar truflandi orðalag!
Gæti orðið Tiananmen square atburður Bandaríkjanna?
Niðustaða
Ég man aldrei áður eftir forseta Bandaríkjanna - að mála víðtæka reiðibylgju í borgum Bandaríkjanna, með þeim hætti -- rás atburða sé einhvers konar skipulagt hryðjuverk gegn borgurum landsins! Að forseti Bandaríkjanna, samþykki orðalag í athugasemdum á hans eigin blogg-síðu þ.s. þeir sem taka þátt í viðtækri reiðibylgju innan borga landsins, séu skilgreindir hryðjuverkamenn!
--Málið er að síðast ég man eftir því víðtæk bylgja sé kölluð hryðjuverkastarfsemi, er þegar Assad forseti Sýrlands skipaði beitingu hers Sýrlands síð sumar 2011 gegn því er þá voru mjög víðtæk götumótmæli í borgum landsins er voru þá búin að vara töluverða hríð.
Í kjölfarið skipaði Assad hernum að skjóta á mótmæli til að kveða þau niður.
En stað þess að það kæmi á - röð og reglu, hófst borgarastríð er leiddi til nær fullkominnar eyðileggingar landsins, og í dag er það enn stórum hluta rjúkandi rústir.
--Ég á ekki endilega von á jafn dramatískri atburðarás í Bandaríkjunum.
En þó, ef hermenn mundu hefja raun -- skothríð á fólk. Er eiginlega ekki gott að sjá algerlega fyrir, hvert slíkt gæti leitt!
--En það er greinilega til staðar í Bandaríkjunum langvarandi uppsöfnun á reiði meðal borgara landsins, því ef maður spáir í það ekki gott að fullyrða hvað gæti hafst af því ef Trump fyrirskipar her Bandaríkjanna -- að binda endi á ótryggt ástand í borgum Bandar með blóðbaði.
PS: Trump heldur ræðu í Rósagarðinum lóð Hvíta-hússins: Mayors and governors must establish an overwhelming law enforcement presence until the violence has been quelled, -- If a city or state refuses to take the actions that are necessary to defend the life and property of their residents, then I will deploy the United States military and quickly solve the problem for them.
--Hann er að tala um, hermenn -- ekki óeirðalögreglu.
PS2: Ég hef heyrt mikið talað um -- Insurrection Act 2007:
An Act authorizing the employment of the land and naval forces of the United States, in cases of insurrections
Be it enacted by the Senate and House of Representatives of the United States of America in Congress assembled, That in all cases of insurrection, or obstruction to the laws, either of the United States, or of any individual state or territory, where it is lawful for the President of the United States to call forth the militia for the purpose of suppressing such insurrection, or of causing the laws to be duly executed, it shall be lawful for him to employ, for the same purposes, such part of the land or naval force of the United States, as shall be judged necessary, having first observed all the pre-requisites of the law in that respect.
APPROVED, March 3, 1807.
-------------
Skv. því þarf Donald Trump - samþykki sameinaðs þings.
Kv.
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt 2.6.2020 kl. 14:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
27.5.2020 | 20:25
Trump með áhugaverðar hótanir gagnvart Twitter - hótaði þeim lögsókn, lagabreytingum beint gegn þeim, jafnvel að loka Twitter!
Það sem olli reiði Trumps - að Twitter fór að hengja hlekk neðan við sumar færslur Trumps.
Þar sem sterklega var íjað að því - að Trump færi með rangfærslur í þeirri færslu sem Twitter hengdi þann hlekk við!
Sést hér á mynd!
Þetta má einnig sjá undir eftirfarandi Tweeti frá Trump!
Donald J. Trump@realDonaldTrump
There is NO WAY (ZERO!) that Mail-In Ballots will be anything less than substantially fraudulent. Mail boxes will be robbed, ballots will be forged & even illegally printed out & fraudulently signed. The Governor of California is sending Ballots to millions of people, anyone.....
Get the facts about mail-in ballots
Varðandi málflutning Trumps gegn sendingum kjörgagna með Pósti!
--Þetta er óvenjuleg aðferð en samtímis fullkomlega lögleg!
- Það er auðvitað margt sem sent er með pósti - t.d. vegabréf, ný kredid- og debitkort, ökuskýrteini.
- Fyrir utan að -- atkvæði greidd erlendis eru alltaf send með pósti.
Þetta hefur auðvitað verið viðhaft lengi!
Það eina sem er óvenjulegt við þetta!
Að sum fylki virðast stefna að því að forseta-kosningar fari beinlíns fram á þessu formi.
M.ö.o. sum fylki hafa sent kjörseðla til allra þegar með pósti.
--Því fylgir full heimild ásamt útskýringu.
Ég kem ekki auga á að það sé óhjákvæmilegt að -- massívt svindl fari fram.
--Þ.e. auðvitað vitað hverjir fengu gögn send.
--Einfalt að tryggja að viðkomandi fái einungis að senda - eitt atkvæði.
- Ég þekki ekki hvernig þessi gögn eru nákvæmlega útfærð.
En eðlilegt væri að sérhver þurfi að undirrita með eigin rithönd með fullu nafni.
--Þ.e. alltaf hægt að rannsaka hvort um sé rithönd viðkomandi að ræða.
--Eða hvort gögn eru að berast með ítrekað sömu rithönd. - Þ.e. alltaf möguleiki á svindli.
En ég sé ekki að -- það sé ómögulegt að láta kosningu fara fram með þeim hætti.
Að útbreitt svindl sé óhjákvæmilegt.
--Trump er auðvitað fullyrðinga-glaður að vana!
--Og að vana, útskýrir hann ekki né rökstyður sínar fullyrðingar.
Bendi á að -- hættulegur skjúkdóms faraldur gefur ástæðu til þessarar óvenjulegu aðferðar.
Það gæti valdið hættulegri sjúkdóms-dreifingu, ef fólk þyrfti að bíða í röðum eins og vanalegt er, eftir því að geta komist að á kjörstað -- til að kjósa með vanalegri aðferð.
Fólk gæti jafnvel farist af þess völdum, að fá sjúkdóminn á ferð sinni til að kjósa.
Reiðiviðbrögð Trumps hafa ekki látið á sér standa!
Og segir að hann sem forseti - muni ekki leyfa þessu að halda áfram!
--Hann hótar að setja öflug lög.
--Eða loka viðkomandi fyrirtæki.
Hann segir óbeint að Twitter fái ekki að komast upp með það sem fyrirtækið sé að gera honum.
Donald J. Trump@realDonaldTrump
--Hvað þetta -big action- skal akkúrat vera, skal ekki sagt.
En sjálfsagt má treysta því að Trump -- geri a.m.k. tilraun til að standa við sínar hótanir.
Niðurstaða
Það má kannski segja - að roka Trumps sé opnun á umræðuna, hvað má/hvað ekki má.
En það hefur verið krafa - menn fái að segja/halda því fram - sem þeir vilja.
--Burtséð frá hvað það er - og hvort það meiðir einhvern/mógðar eða ekki.
--Einnig burtséð frá hvort það sé satt eða logið.
Ég hef veitt því athygli að vefurinn virðist orðin megin leið fyrir marga!
--Til að dreifa lygum og margvíslegum óhróðri.
Þeir sem eru harðastir á frelsi -- segja að frelsi til tjáningar megi undir engum kringumstæðum skerða!
Á móti benda margir á að - dreifingar á lygum/óhróðri - geta valdið miklu samfélagslegu tjóni.
--Um þetta er tekist!
Tek fram, að þeir sem sakaðir eru um að dreifa lygum/óhróðri - gjarnan bera af sér sakir.
Og jafnvel fullyrða að þeir séu ekki sekir um annað en að dreifa sinni meiningu eða jafnvel því sem sé satt!
--Þarna kemur að einum kjarna máls, að tekist er á um hvað sé rétt - hvað sé staðreynd.
Það eru til þeir sem ganga jafnvel svo langt, ekki séu til staðreyndir.
Þetta séu allt skoðanir einhvers m.ö.o. - þannig mótstkoðanir séu full réttlætanlegar!
--Ég er a.m.k. á því, að það sé að sjálfsögðu ekki rétt, að ekki sé til raunverulegur sannleikur, m.ö.o. að -sannleik- megi móta að vild, breyta einfaldlega með því að kynna fram nýja skoðun á því - hvað sé satt!
Dæmi um sögulegar tilraunir til að endurskrifa mannkynssöguna!
Má t.d. nefna tilraunir Nýnasista ekki fyrir mjög mörgum árum, til að draga helförina í efa, jafnvel íja að því að Hitler hafi verið að verja hendur sínar!
--Þarna nefni ég íkta útgáfu sem flestir eru örugglega sammála að er kjaftæði.
- Á hinn bóginn er ég á því, að mikið sé í seinni tíð um tilraunir til að endurskrifa söguna -- með því að búa til pólitíska útgáfu er henti tiltekinni pólitík, frekar en að hún sé -- sönn í einhverjum skilningi.
- Bendi á að kommúnistaríkin í Kalda-stríðinu, vihöfðu alltaf þá aðferð að sagan væri þ.s. haldið væri fram/staðhæft á hverjum tíma. Alltaf var hægt að breyta því hvenær sem er.
- Þ.e. þekkt aðferð að leitast við að gera þekkingu -- tortryggilega.
- Til þess einmitt að koma lygunum að!
Ég er á því að Trump sé ekki að flytja augljóslega sannleikann, er hann staðhæfir að það standi til að framkvæma stórfellt kosninga-svindl í nokkrum fylkjum.
--Og hamast nú gegn því að viðhafa óvenjulega mikið af póst-sendum kjörgögnum.
Einmitt nú þegar kosningar munu fara fram í miðjum sjúkdóms-faraldri.
Kv.
Utanríkismál/alþjóðamál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
22.5.2020 | 23:04
Verið að stíga stór skref í átt að Evrópusambandsríkinu? Hið minnsta risaskref ef ESB fær að slá lán gegnt ábyrgð aðildarríkjanna!
Umræðan er farin að tala um - Hamiltonian moment - vísað til samkomulag er varð í Bandaríkjunum rétt eftir sjálfstæðis-stríðið gegn Bretum, en kjölfar þess stóðu nokkur fylki illa fjárhagslega vegna stríðs-kostnaðar. Hamilton þá einn af áhrifamestu mönnum í Bandaríkjunum, lagði til samkomulag við - state of Virginia - að það samþykkti að höfuðborg mundi rísa í fylkinu gegn því að nýskipaður fyrsti forseti Bandaríkjanna mundi taka yfir verulegan hluta skulda Virginiu fylkis.
Samkomulagið varð í meðförum víðtækara leiddi til þess að nýstofnað - bandarískt ríki fékk heimild til að gefa út skuldir, og tók yfir hlutfall stríðskulda verst settu fylkjanna!
- Tvennt er auðvitað svipað - þ.e. skuldastaða tiltekinna landa í S-Evrópu sérstaklega stefnir í að vera fullkomlega óviðráðanleg.
Þessi lönd þurfa greinilega mikla fjárhagslega aðstoð.
Annars stefna þau væntanlega á næstunni í þrot.
--Skuldirnar eru auðvitað ekki stríðsskuldir. - Vegna þess að dómur Hæsta-réttar Þýskalands nýverið virðist loka á seðla-prentun sem björgunar-aðgerð í þetta sinn fyrir S-Evrópu; voru góð ráð dýr í kjölfar þess dóms.
Stefndi jafnvel í yfirvofandi hrun ekki einungis evrunnar heldur jafnvel sambandsins sjálfs.
--Klárlega þurfti að taka mikilvæga ákvörðun, þessi er líklega í reynd ekki næg til að bjarga S-Evrópu, en a.m.k. góð byrjun.
- En planið má útfæra nánar - það er alltaf hægt að bæta við frekari heimildum til skuldsetningar síðar.
- Menn tala - cheekily - þetta sé einungis neyðar-aðgerð í þetta eina sinn, en menn þurfa vera stórkostlega naívir til að trúa því.
- En þannig verður þessi hugmynd seld á næstunni -- Merkel er í dag ofurvinsæl í Þýskalandi í kjölfar frábærs árangur í glímu við COVID-19.
France and Germany Show the Way Forward in the COVID-19 Crisis
Merkel and Macron Find the Strength for Europe
Why the Merkel-Macron plan could be a very big deal for Europe
Áætlunin frá Ursula Von Der Leyen - Merkel virðir hafa ákveðið að taka þá hugmynd upp áður en hún fundaði með Macron forseta!
Macron var búinn mánuðum saman að karpa í ríkisstjórn Þýskalands að standa fyrir sameiginlegum aðgerðum til að bjarga S-Evrópu; en hugmyndir hans að meðlimaríkin mundu gefa út sameiginleg skuldabréf - fengu ekki áheyrn í Berlín!
Hugmyndin að heimila forseta-embætti ESB svokölluðu að slá lán upp á 500 milljarða Evra, virðist fljótt á litið - áhættuminna væntanlega.
Skv. tillögunni verði megnið af því fé -- styrkir/ekki lán.
Vond Der Leyen berst fyrir að fá auknar tekjur - m.ö.o. vill fá að leggja á tiltekna sameiginlega skatta, t.d. á tiltekna internet starfsemi.
- Þ.s. virðist hafa ýtt við Merkelu, er nýlegur dómur æðsta-dómstóls Þýskalands.
Dómur er virðist útiloka seðlaprentunarleiðina er Mario Draghi leiddi 2012 er bjargaði Evrusvæðinu það ár frá annars nær örugglega líklegu hruni. - Merkel virðist hafa skilið, að stór ákvörðun væri nauðsynleg.
Hún virðist hafa kynnt sér hugmyndir Von Der Leien.
Þær hugmyndir virðast grunnurinn af samkomulagi Merkel við Macron.
Fljótt á litið er 500ma. hvergi nóg - dropi í hafið t.d. sbr. v. vanda Ítalíu.
Þetta er mjög stór ákvörðun þó það væri bara 500 milljarðar, sem það verður að sjálfsögðu ekki!
Fyrsta lagi, þá eru fjárlög ESB hvergi næg til að borga upp 500 milljarða skuld með hraði.
Aðildarlöndin algerlega pottþétt hækka ekki þau framlög að nokkru ráði í kreppunni!
Og Von Der Leyen fær líklega ekki alla þá nýju skatta hún vill.
- Þannig það er algerlega öruggt að skuldinni verður velt áfram - ný skuldabréf gefin út í framtíðinni, eins og hjá hverjum og einum ríkissjóð.
- Það er einmitt punkturinn, ESB fær líklega ríkissjóð.
- Það er stórfelld breyting!
Já - já, það verður stöðugt talað um - þetta sé bara í þetta sinn!
Þannig mun hugmyndin seld á næstunni!
- En það ættu allir að geta séð, mun meira fé mun þurfa til, ef raunverulega á að forða hruni í S-Evrópu!
- Ég á fastlega von á að það komi síðar í ljós.
En fyrst er að fá prinsippið samþykkt af samkundu aðildarríkja ESB - síðan Evrópuþinginu.
Þá verður einungis talað um þetta - bara 500 milljarða, bara í þetta sinn!
En mig grunar þetta sé upphafið af ríkissjóð ESB!
Vegna þess að miklu meira fé augljóslega þarf.
Og þegar hitnar síðar í krísunni í S-Evrópu þrátt fyrir aðstoð.
Grunar mig að það reynist mögulegt að víkka heimildirnar frekar!
--T.d. í 1,5 trilljón evra (miða við bandar. trilljón).
Þá verður Framkvæmdastjórnin - með skuldabréfa-útgáfu reglulega á skala einstakra aðildarríkja, og fær því vegna fjárhagslega valdsins er hún þá hefur, mun verulega aukna vikt.
- Menn munu kannski ekki enn tala um -- U.S.E.
En með slíkri viðbót væri þetta ríkissjóður að öllu leiti er skipti máli, öðru en að fá formlega heitið - ríkissjóður.
M.ö.o. risaskref í átt að Evrópuríkinu!
Niðurstaða
Að sjálfsögðu get ég ekki sannað að mál fari með þeim hætti sem mig grunar - en málið er að ég miða út frá reynslu evrukrísunnar milli 2010-2012, þegar fjölda skipta fór ESB alveg fram á blábrún hruns - á mjög heitum fundum milli pólitíkusa var rætt fram og aftur, einungis er loks pólitíkusar gáfust upp að leita lausna - gat Mario Draghi fengið stuðning fyrir það síðasta er hægt var að gera til að forða hruni sbr. seðlaprentun.
--En æðsti dómstóll Þýskalands hefur nú kippt þeirri leið burt.
Þá eru pólitíkusar ESB skildir eftir berskjaldaðir - þ.s. einungis pólit. lausn getur nú bjargað, m.ö.o. þeir hafa ekkert -- plan B.
--Þetta er einföld spurning, vilja þeir bjarga ESB eða ekki?
Mig grunar að á hólminn er komið, velji þeir að bjarga sambandinu.
Ekki síst vegna þess, að það hrun er yrði - mundi valda það risastórum efnahagslegum búsifjum á öllum aðildarríkjunum, verst í S-Evrópu sannarlega en þetta stórt hrun mundi einnig skekja efnahag Evrópulandanna í N-Evrópu mjög harkalega.
--Beint ofan á COVID-19 kreppuna er slíkt það allra síðasta menn vilja.
Þannig ég reikna með því, Merkel og Macron fái sitt fram.
Og að síðar þegar féð verður ekki nægt, muni takast að auka fjárheimildir - líklega.
--Þannig að þetta verði að raunverulegum ríkissjóð, ekki síður vegna þess að mér finnst stórfellt ólíklegt - að slík fjármögnunar-leið verði ekki margnotuð við önnur tækifæri síðar.
- Einfaldlega of freystandi til þess annað sé sennilegt.
Þannig að við séum sennilega að sjá verða til - raunverulegur ríkissjóður ESB eins og tíðkast hjá ríkjum, þ.e. með eigin skuld-setningar-heimildum.
--Nema auðvitað ESB verður ekki alveg strax kallað ríki, til þess þarf væntanlega frekari útfærslur á sameiginlegu forseta-embætti, m.ö.o. yrði vera kosið í aðildarríkjum.
Kv.
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt 23.5.2020 kl. 01:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Um bloggið
Einar Björn Bjarnason
Nýjustu færslur
- Sigur Donalds Trumps, stærsti sigur Repúblikana síðan George ...
- Ef marka má nýjustu skoðanakönnun FoxNews - hefur Harris þokk...
- Kamala Harris virðist komin með forskot á Trump í Elector-Col...
- Það að Úkraínuher er farinn að sprengja brýr í Kursk héraði í...
- Úkraínuher hóf innrás í Kursk hérað sl. mánudag! 5 dögum sein...
- Möguleikar Kamölu Harris til hugsanlegs sigurs á Donald Trump...
- Leiðir ris J.D. Vance - til fullkominna yfirráða milljarðamær...
- Er fall bandaríska lýðveldisins yfirvofandi - vegna ákvörðuna...
- Sérfræðingar vaxandi mæli þeirrar skoðunar, 2025 verði lykilá...
- Rússar hafa tekið 8 km. landræmu síðan sl. föstudag í NA-Úkra...
- Rússland getur hugsanlega haldið fram Úkraínustríði, allt að ...
- Rússland ætlar að hætta stuðningi við uppreisnarmenn í Súdan ...
- Gríðarlega mikilvægt að Úkraína fær bráðnauðsynlega hernaðara...
- Ég er eindregið þeirrar skoðunar - Ísrael geti ekki unnið str...
- Trump, hefur viðurkennt að geta ekki greitt - 464 milljón dol...
Eldri færslur
2024
2023
2022
2021
2020
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
Bloggvinir
- eyglohardar
- bjornbjarnason
- ekg
- bjarnihardar
- helgasigrun
- hlini
- neytendatalsmadur
- bogason
- hallasigny
- ludvikjuliusson
- gvald
- thorsteinnhelgi
- thorgud
- smalinn
- addabogga
- agnarbragi
- annabjorghjartardottir
- annamargretb
- arnarholm
- arnorbld
- axelthor
- arnith2
- thjodarsalin
- formosus
- birgitta
- bjarnijonsson
- bjarnimax
- westurfari
- virtualdori
- bookiceland
- gattin
- davpal
- dingli
- doggpals
- egill
- jari
- einarborgari
- einarsmaeli
- erlaei
- ea
- fannarh
- fhg
- lillo
- gesturgudjonsson
- gillimann
- bofs
- mummij
- kallisnae
- gp
- gudmbjo
- hreinn23
- gudrunmagnea
- gmaria
- topplistinn
- skulablogg
- gustafskulason
- hallurmagg
- haddi9001
- harhar33
- hl
- diva73
- himmalingur
- hjaltisig
- keli
- fun
- johanneliasson
- jonsullenberger
- rabelai
- jonl
- jonmagnusson
- jonvalurjensson
- thjodarskutan
- gudspekifelagid
- juliusbearsson
- ksh
- kristbjorg
- kristinnp
- larahanna
- leifurbjorn
- lifsrettur
- wonderwoman
- maggij
- elvira
- olafureliasson
- olinathorv
- omarragnarsson
- ottarfelix
- rafng
- raksig
- redlion
- salvor
- samstada-thjodar
- fullvalda
- fullveldi
- logos
- duddi9
- sigingi
- sjonsson
- sigurjons
- stjornlagathing
- athena
- stefanbogi
- lehamzdr
- summi
- tibsen
- vala
- valdimarjohannesson
- valgeirskagfjord
- vest1
- vignir-ari
- vilhjalmurarnason
- villidenni
- thjodarheidur
- valli57
- tbs
- thorgunnl
- thorsaari
- iceberg
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.11.): 0
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 26
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 23
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar