21.12.2014 | 13:05
Gjarnan kvartað yfir fábreyttu atvinnulífi á Íslandi, hvað segir það um stjórnendur Rússlands og Venesúela að svipað ástand ríki þar?
Rússland hefur 143 milljón íbúa, Venesúela 30 milljónir. Bæðir ríkin eru olíuríki - skv. fréttum Vestrænna fjölmiðla sl. 2 vikur. Blasa við áhugaverðar staðreyndir:
- ca. 70% útflutningstekna Rússlands, koma frá olíu og gasi.
- ca. 90% útflutningstekna Venesúela, koma frá olíu og gasi.
Ísland, hefur í dag 3-megin undirstöður, gjaldeyristekjur virðast í dag nokkuð jafnskiptar milli þessara 3-ja greina:
- Sjávarútvegur.
- Orkufrek stóryðja.
- Ferðamennska.
Samanlagt skaffa þessar greinar ca. 90% gjaldeyristekna.
Ólíkt Rússlandi og Venesúela, hefur Ísland - gilda afsökun
Ég er að tala um - smæð Íslands. Að vera einungis 300þ. manns. En það þíðir að ekki er grundvöllur fyrir mikið af starfsemi, sem getur -tæknilega- blómgast í fjölmennum löndum. Vegna þess að -stór heimamarkaður- skapar grundvöll fyrir þá starfsemi.
Þó eru íslenskir stjórnmálamenn gjarnan skammaðir fyrir þá meintu "skammsýni" að atvinnulíf á Íslandi, sé ekki fjölbreyttara en það er.
- Það þarf að horfa á, að Ísland er örrýki - það virkilega þíðir, að afar erfitt er að skapa grundvöll fyrir mikið af framleiðslustarfsemi.
En ég get ekki séð, að Rússland hafi "gilda afsökun" - staða Rússlands, að 70% útfl.tekna komi frá olíu og gasi - - lísir sér í að mörgu leiti sambærilegum óstöðugleika Rúblunnar og hefur verið til staðar, á íslensku krónunni.
- Þessi staða, hlýtur að vera mjög stórfelldur - áfellisdómur á stjórnendur landsins.
- Að þeim skuli ekki hafa takast, að efla fjölbreytni útfl. atvinnuvega landsins.
Rúblan virðist vera að -gengisfalla af sömu ástæðu og krónan oft hefur gengisfellið- sérstaklega á árum áður er -sjávarútvegur var 70% útfl. tekna.- þá fór gengi krónunnar eftir þörfum sjávarútvegs.
Með öðrum orðum, gengi rúblunnar - virðist fara stórum hluta eftir þörfum gas- og olíuvinnslu.
- Síðan hefur verið stefnan, að efla aðrar útflutningsgreinar en sjávarveg.
- Sem hefur skilað þeim árangri, að nú eru 2-viðbótar gjaldeyrisskapandi greinar, sem í dag standa jafnfætis ca. sjávarútvegi. Landið stendur því á 3-súlum. Í stað einnar.
- Þetta mun hafa minnkað gjaldmiðilssóstöðugleika á Íslandi.
En ég get ekki séð merki þess, að stjórnendur Rússlands - hafi alvarlega gert tilraun sl. 20 ár, til þess að draga úr þvi ástandi, hve efnahagsur Rússlands sé háður - > Olíu og gasi.
Með því að efla aðrar gjaldeyrisskapandi greinar.
- Það er ekki fyrr en núna, er Rússland er skollið í alvarlega kreppu.
- Að Pútín, talar um þörf fyrir að "auka fjölbreytni framleiðslu til útflutning."
Ég skal alls ekki segja, að það sé ómögulegt fyrir Rússland að auka fjölbreytni framleiðslu.
Ég get bent á það þegar - Japan hóf uppbyggingu á 6. áratugnum, eða þegar S-Kórea hóf sína á 7. áratugnum, eða er Kina hóf sína á 9. áratugnum.
- Ef við miðum við Kína - þá hefur það tekið landið nærri 30 ár að ná núverandi stöðu.
- Þ.e. ekkert sem fær mig til að trúa því, að það taki Rússland skemmri tíma en 20 ár. Að skapa fjölbreytta framleiðsluatvinnuvegi, á fjölbreyttum hátæknigrunni.
Ég bendi á að Pútín hefur stjórnað í 20 ár.
Ég því eðlilega vantrúaður á þetta átak, þó það sé tæknilega mögulegt, því að -sömu stjórnendur Rússlands- sem hafa svo herfilega klúðrað málum þar, þykjast ætla að gera betur á nk. árum.
Mig grunar frekar, að þessar yfirlýsingar þeirra, séu til þess - að dreifa gagnrýni á þeirra óstjórn árin á undan, frekar en að þeim sé veruleg alvara með það, að hefja slíka uppbyggingu.
--------------------
Venesúela - hefur verið dæmi um aðeins aðra tegund af óstjórn en Rússland. En óstjórn Venesúela hefur verið "vísvitandi" þ.e. sósíalistaflokkur Venesúela hefur -skipulega- lagt í rúst nánast alla aðra starfsemi í landinu, heldur en útflutning á olíu og gasi.
Og þeim atvinnuvegi, er herfilega stjórnað - einnig. Þ.e. of lítið fé lagt í þróun nýtingar þeirrar auðlyndar. Nánast allt fé sem fæst sé lagt til ríkisins.
- Það hefur verið hugsunin, endurdreifa auðnum.
- Án þess að skapa nýjan.
- Í því skyni, hefur nánast allt einka-hagkerfið verið þjóðnýtt, til þess að endurdreifa auðnum.
- Og þau fyrirtæki lögð í hendur flokksdindla, með vafasama þekkingu á rekstri. Það má líkja þessu við stjórnun Robert Mugabe í Zimbabve. Svo slæmt hafi þetta verið.
- Niðurstaðan er sú, að Vensúela hafi nánast ekki neitt hagkerfi annað en, útflutning á olíu og gasi sbr. rúml. 90% gjaldeyristekna.
Niðurstaða
Ég get ekki sagt annað, en að það sé gríðarlegur áfellidsómur á stjórnendur Rússlands og Venesúela, að í Rússlandi séu 70% gjaldeyristekna frá olíu og gasi, og hinsvegar að fyrir Venezúela gildi að þar komi rúmlega 90% gjaldeyristekna frá sömu áttum.
Í samanburði, hafa stjórnendur Íslands - afsökun að atvinnulíf hér sé ekki fjölbreyttara en það er, þ.e. örsmæð landsins.
Sérstaklega er kemur að stjórnendum Rússlands, þ.e. Pútín og co., - sé ég ekki að þeir hafi nokkra gilda afsökun fyrir því, að hafa ekki sl. 20 ár skipulega fylgt þeirri stefnu að efla fjölbreytni atvinnulífs.
En þ.e. ekki eins og ekki hafi blasað við þeim, dæmi um velheppnaða slíka uppbyggingu -hringinn í kringum þá, sömu ár. Þ.e. þeir hafa orðið vitni að uppbyggingu fyrrum A-tjalds ríkja er gengið hafa í náið efnahagssamtarf við Vesturlönd.
Á A-landamærum, hefur við þeim blasað, tilraun Kína sem heppnast hefur vel, við það að byggja upp fjölbreytt og vel heppnað atvinnulíf.
- Þ.e. ekki fyrr en núna, er allt er líklega of seint, þegar landið er dottið í djúpa kreppu.
- Sem sömu stjórnendur er bera ábyrgð á þeirri óstjórn, tala um að auka fjölbreytni atvinnulífs.
Ég verð að segja, að mér finnast þær yfirlísingar skorta trúverðugleika, er þær koma frá þeim sem hefur ráðið landinu í 20 ár - og fram að þessu, augljóslega ekkert gert til þess að efla aðra starfsemi í Rússlandi en olíu og gas.
Grunar að hann sé frekar, að dreifa gagnrýni - en að það beri að taka yfirlísingar nýverið fram komnar, alvarlega.
Þetta er einnig ábending til aðdáenda Pútíns, að hann sé ekki aðdáunarverður stjórnandi, alls ekki snillingur - - heldur sé ástand Rússlands vottur um afar herfilegt klúður af hans hálfu.
Kv.
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 13:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
20.12.2014 | 01:28
Ég hafna því að sjálfsögðu að Vesturlönd og NATO, hafi í gegnum árin verið að gera tilraun til að þrengja að Rússlandi
Það er að sjálfsögðu ekkert nýtt við það, að stjórnvöld í Kreml - ásaki Vesturlönd og NATO fyrir þær sakir. Og nefni það til sönnunar - hve mörg fyrrum A-tjalds ríki hafi gengið í NATO og kosið náið efnahagssamstarf við önnur Vesturlönd.
Það sem hefur vakið athygli allra síðustu ár, er fjölgun stuðningsmanna sjónarmiða rússneskra stjórnvalda á netinu - sem að því er ég best fæ séð, taka upp línu rússneskra stjórnvalda óbjagaða.
Mikið af þessu fólki hefur sjálft íverustað meðal samfélaga Vesturlanda. En velur samt sem áður, að setja sig upp á móti þeim meginsjónarmiðum sem utanríkissstefna Vesturlanda byggist á.
- Sjálfsákvörðunarréttur þjóðríkja, er auðvitað atriði, no. 1.
- Síðan að landamæri þjóðríkja séu almennt séð, heilög.
Kort - NATO
Fjölgun meðlimaríkja Vesturlanda, hefur byggst á fyrsta prinsippinu
Ég tel algerlega órökrétt af Íslendingi, að afneita "sjálfsákvörðunarrétti" þjóðríkja - - þ.e. að þau hafi rétt til þess að ákveða sjálf, hverju þau vilja tilheyra og auðvitað akkúrat á hinn kanntinn - hverju ekki, að sjálfsögðu ekki síst skuli það vera háð þeirra vilja - ekki vilja utanaðkomandi ríkis - með hvaða þjóðum viðkomandi land velur að starfa.
Þegar kemur að Rússlandi, þá einmitt hafna stjórnvöld í Kreml "sjálfsákvörðunarrétti þjóðríkja" þ.e. þau vilja meina - að taka beri tillit til "hagmuna Rússlands" - þ.e. skv. skilgreiningu Kremlverja á þeim hagsmunum.
Þetta sést ekki síst á því - - þegar Pútín segir að "endalok Sovétríkjanna hafi verið eitt af mestu hamförum heimssögunnar og gríðarlegur harmleikur fyrir Rússland."
En þá er hann að segja - - að það að A-tjalds löndin "fengu frelsi" auk þess, að lönd sem áður tilheyrðu Sovétríkjunum öðluðust sjálfstæði; hafi verið hræðilegur atburður.
- Mér finnst því afar merkilegt, þegar Íslendingar styðja slík sjónarmið.
Það sést einnig á hegðan Rússlands gagnvart löndum er áður tilheyrðu Sovétríkjunum, að Rússland á mjög erfitt með að "umbera þeirra sjálfstæði" - - sbr. hótanir og refsiaðgerðir sem Rússland hefur beitt Moldavíu í liðlega heilt ár, þ.e. viðskiptabann á moldavísk vín er áður voru verðmæt viðskiptavara fyrir Moldavíu á Rússlandsmarkað.
Þetta sést einnig á hegðan Rússlands gagnvart Úkraínu, þegar landið stefndi í að ganga í samstarf við hóp ríkja er tilheyra Vesturlöndum, þá beittu Kremlverjar landið efnahagsþvingunum af sambærilegu tagi, síðan stigvaxandi hótunum - uns forseti landsins gaf eftir og samþykkti að gangast inn á framtíðaráætlun Pútíns fyrir Úkraínu, að ganga inn í efnahagssamstarf undir stjórn Rússlands - er hefði bundið endi á efnahagslegt sjálfstæði Úkraínu.
- En þá ákváðu ibúar landsins, að verja sjálfstæði þess - - steyptu ríkisstjórn þess í byltingu, hundruð þúsunda mótmæltu þar til stjórnin hrundi.
- Pútín hefur síðan beitt Úkraínu harkalegum refsingum, fyrir að "dirfast að vilja vera sjálfstæð þjóð" þ.e. "rán Rússlands á Krímskaga" og ekki síst "að vopna hlua af íbúum landins til uppreisnar gegn meirihlutanum."
Það hefur verið undir Pútín - samfellt þema, að Rússland beitir sér gegn sjálfsákvörðunarrétti þeirra þjóðríkja er fengu sjálfstæði við hrun Sovétríkjanna - þegar þær ákvarðanir eru metnar standa gegn hagsmunum Rússlands.
Rússland telur sig sem sagt - eiga að hafa rétt til þess, að ráða verulega yfir þeim þjóðum, sem þær þjóðir eðlilega hafa ekki verið sáttar við.
Það er ekki síst þetta hegðunarferli Rússlands, undir Pútín - sem virðist ágerast frekar en hitt. Sem hrekur þjóð eftir þjóð, á náðir Vesturlanda - í það skjól sem Vesturlönd veita.
Í NATO er ekki ein einasta þjóð - sem ekki gekk í þau samtök, sjálfviljug.
Seinna prinsippið, að landamæri þjóðríkja séu heilög - hafa Vesturlönd stutt ávalt, en þó ekki algerlega án undantekninga
Fyrst þarf að nefna það, að Rússland sjálft - - hefur ávalt talið sig hafa rétt, til þess að brjóta á bak aftur uppreisnir innan landamæra Rússlands.
Stríðið í Téténíu, er auðvitað sá atburður sem mesta athygli hefur vakið, en þegar Pútín barði uppreisn Téténa niður skömmu eftir að hann komst til valda sem forsætisráðherra. Þá var það gert með "óskaplegri grimmd" og "offorsi." Talið að a.m.k. 50.000 hafi farist í Grosný höfuðborg Téténíu, sem barist var um mánuðum saman, og algerlega lögð í rúst. Rússar beittu stórskotaliði, og loftárásum þangað til að nánast var ekki til óskemmt hús í borginni. Áður en rússneski herinn hélt inn í borgina.
Það veit enginn nákvæmlega hve margir féllu - - tölur upp á ca. 10% af þjóðinni, hef ég heyrt þ.e. 100.000 eða jafnvel þar yfir.
Þannig, að þegar Rússland ásakar Vesturlönd - fyrir að vera ekki sjálfum sér samkvæm, þá er Rússland að sjálfsögðu -ekki síst Pútín sjálfur- með grjóthríð úr glerhúsi.
- Þ.e. rétt að muna eftir þessu, þegar menn eru að látast mjög reiðir yfir mannfalli upp á 4.000 manns í A-Úkraínu.
Sú tala telur alla fallna, þ.e. hermenn stjórnarhers Úkraínu, hermenn uppreisnarmanna, sem og fallna almenna borgara. Þ.s. stjórnarherinn hefur tapað ca. 1.000 og ég stórfellt efa að uppreisnarmenn hafi misst færri. Þá þíðir það að fallnir almennir borgarar eru vart flr. en 2.000. Síðan er líklegt, að skothríð beggja herja beri ábyrgð á því mannfalli.
- Eins og sést á þessu, er herför stjórnarhers Úkraínu, mjög mikið minna mannskæð heldur en herför Pútíns sjálfs var - gegn uppreisnarhéraði innan Rússlands.
- Að auki er rétt að árétta, að skv. SÞ eru 500.000 flóttamenn -innan Úkraínu á landsvæði stjórnarhersins- meðan að um 200.000 hafa flúið til Rússlands.
- Það er því röng sú saga sem oft er sögð, að milljón flóttamenn hafi flúið frá Úkraínu til Rússlands -- a.m.k. er það langt frá þeim tölum sem Flóttamannastofnun SÞ gefur út.
------------------------
Þegar Vesturlönd studdu sjálfstæði - Bosníu, Króatíu, Slóveníu, síðan að lokum, Kosovo. Þá snerist það um það atriði - - að binda enda á mjög mannskætt stríð.
Sem hafði kostað meir en 100.000 allt í allt lífið. En Júgóslavía - leystist upp í orðsins fyllstu merkingu.
Því "Pandóruboxi" varð ekki lokað aftur - það var algerlega ljóst. Þegar Slóveníu fyrst tókst að verja sitt landsvæði -gegn stjórnarher Júgóslavíu- síðan Króatíu. Í samhengi Bosníu - - var það "þjóðarmorð á Bosníu-Múslimum" sem varð til þess, að Vesturlönd tóku þá afstöðu að einnig styðja sjálfstæði þess lands.
Þegar kom að Kosovo - - var það óttinn við "annað þjóðarmorð" sem var að baki afstöðu Vesturvelda. En þegar menn tala um serbneska íbúa þess landsvæðis. Þá voru þeir færri en 10% íbúa, þá hefur þurft að halda undir vernd hermanna á vegum SÞ.
- Þegar menn gera tilraun til þess, að líkja atburðarásinni í A-Úkraínu við rás atburða í Kosovo t.d., þá er ekkert sambærilegt þjóðarmorð sem unnt er að styðjast við "sem réttlætingu."
- Og ég endurtek, að Pútín sjálfur, barði niður með miklu blóðbaði, uppreisn héraðs innan Rússlands sjálfs - héraðs sem byggt er fólki sem ekki eru Rússar.
Einu undantekningarnar, þegar Vesturveldi hafa gefið afslátt á prinsippinu að landamæri eru heilög - var þegar:
- Ljóst var að Króatía og Slóvenía voru orðin "de facto" sjálfstæð er þau gátu varist sókn stjórnarhers Júgóslavíu, án utanaðkomandi aðstoðar.
- Síðan, var það þjóðarmorðið í Bosníu. Sem myndaði stuðning við sjálfstæði Bosníu. Til þess að minnka líkur á endurtekningu slíks blóðbaðs.
- Stuðningur v. sjálfstæði Kosovo, var vegna óttans um sambærilega voðaatburði.
Það er ekki neitt á sama tíma, sem bendir til þess að nokkur slík hætta sé til staðar - varðandi stjórnarher Úkraínu.
Enda sést það á mannfallinu, sem er brotabrot af mannfalli því sem stjórnarher Rússlands undir Pútín orsakaði í Téténíu, að stjórnarher Úkraínu er ekki að beita vopnum með þeim hætti - sem má líkja við stríðsglæpi. Hvað þá að sanngjarnt sé að tala um þjóðarmorðs tilraun.
- Ég sá aldrei neina raunverulega málefnalega ástæðu fyrir uppreisn. Og sé ekki enn.
- Enda get ég ekki með nokkrum hætti komið auga á það, að stefna stjv. í Úkraínu að ganga í lið með Vesturveldum - sé neikvæð fyrir íbúa A-héraða Úkraínu.
- Enda kem ég ekki auga á nokkra ástæðu þess, að fríverslun við ESB ætti að hindra viðskipti við Rússland, af hálfu íbúa þar. Enda hefur fríverslun Íslands v. ESB ekki verið nein hindrun okkar Rússlandsviðskiptum. Né hefur aðild að ESB hindrað t.d. Þýskaland að eiga mikil viðskipti við Rússland.
- Viðskipti íbúanna við Rússland - hafi aldrei verið í hættu. Né hafi störf þeirra verið það. Þaðan af síður, áhætta fyrir þeirra efnahag. Frekar en hitt, að þeir væru í bestu stöðu íbúa Úkraínu að græða á fríverslun við ESB. Enda efnahagslega séð, þróðustu héröðin innan Úkraínu.
Uppreisnin hafi verið án nokkurrar skynsamlegrar ástæðu.
Íbúum hefði að sjálfsögðu - - ekki staðið nein hætta af stjórnvöldum í Kíev. Þær sögur sem fóru af fasisma og fasistahættu, hafi verið það fyrst og fremst - söguburður.
Þ.e. ekkert í hegðan stjórnarhersins á svæðum þeim sem hann ræður yfir, sem bendi til hegðunar sem mundi teljast - glæpsamleg.
Það hafa orðið atvik, þó í tengslum við átökin sjálf, þegar stjórnarherinn hefur tekið svæði er áður lutu yfirráðum uppreisnarmanna - sem hafa vakið spurningar. Á móti hafa engar sannanir fundist um það, að fólk hafi verið látið hverfa og ekki komið fram.
Amnesti International hefur vakið athygli á tilvikum, að fólki hafi verið haldið tímabundið, það barið - - en síðan sleppt. Að einhverjum grunuðum um að vinna með uppreisnarmönnum, hafi verið haldið í lengri tíma - áður en þeim var sleppt. Það án þess að með mál þeirra væri farið með formlegum hætti.
- Á hinn bóginn, eru sambærileg brot uppreisnarmanna - miklu mun alvarlegri þ.e. ekki bara handtökur heldur líka aftökur án dóms og laga, síðan "vinnuþrælkun."
- Og ég bendi á það, að skv. SÞ hafa 500.000 A-Úkraínumenn flúið inn á svæði undir stjórn stjórnarhersins - - það segir allt aðra sögu en haldið er fram, en það segir þá sögu að fólk óttist uppreisnarmenn fremur en stjórnarherinn: Half a million displaced in eastern Ukraine as winter looms, warns UN refugee agency.
- Sem er rökrétt, ef haft er í huga, að þeir virðast sekir um til muna alvarlegri brot á mannréttindum.
Þetta auðvitað er í engu samræmi við þann - söguburð sem gengur ljósum logum á netinu.
En þ.e. einmitt málið, að það er - söguburður - ekki sannleikur.
Þó svo að Rússland hafi verið að gera tilraun til þess, að búa til samhengi sem réttlæti stuðning við vopnaða uppreisn í A-Úkraínu, þar á meðal með hermönnum eigin hers, og vopnasendingum - þá stenst það ekki skoðun, að það mál sé sambærilegt við Kosovo málið eða stuðning Vesturvelda við sjálfstæði Bosníu.
Enda séu ásakanir þess efnis, að sambærileg hætta stafi fyrir íbúa A-Úkraínu af stjv. í Kíev, og kom í ljós í Bosníu þegar skipulögð fjöldamorð sannarlega fóru fram - - > Augljóslega ósannar.
Niðurstaða
Ég lít þannig á málið, að Rússland hafi yfir engum hlut að kvarta gagnvart Vesturlöndum, áður en átökin í A-Úkraínu hófust. Aðgerðir Vesturvelda, þ.e. refsiaðgerðirnar séu alls ekki harðari en tilefni sé til - þ.e. þegar aðgerðir stjórnvalda í Kreml eru hafðar í huga. Það er, hvernig þau gerðu tilraun til þess að binda endi á efnahagslegt sjálfstæði Úkraínu. Hvernig Kreml síðan, er úkraínska þjóðin varði sitt sjálfstæði gegn þeirri ásókn, refsaði úkraínsku þjóðinni með ákaflega - freklegum hætti.
Er Rússland gerði innrás á restina af Krímskaga, frá herstöðinni í Sevastopol með rússneskum hermönnum, er voru í einkennisklæðum með allar merkingar afmáðar. Síðan lét framkvæma kosningu - sem var "ófrjáls" þ.e. ekki var heimiluð frjáls kosningabarátta þ.s. öll sjónarmið hefðu rétt til að koma sér á framfæri - - segjum t.d. að "hér væri kosið um aðild að ESB og einungis "Já" baráttan fengi að tjá sig í fjölmiðlum, að koma fram í sjónvarpi og útvarpi, eða birta kosningaáróður. "Nei" - baráttunni væri með öllu bannað að koma fram, koma sjónarmiðum sínum á framfæri, fengi ekki að koma fram í fjölmiðlum." Að sjálfsögðu væri slík kosning ekki marktæk, ef hún færi fram með þeim hætti hérlendis. Og það akkúrat sama gildir um kosninguna sem fór fram á Krímskaga. Að hún er algerlega ómarktæk. Ekki unnt að líta á hana sem rétmæta mælingu á vilja íbúa.
Og ekki síst, þegar Rússland virðist hafa fengið öfgasinnaða þjóðernissinna í A-Úkraínu til uppreisnar, þegar engin sjáanleg málefnaleg ástæða hafi verið fyrir uppreisn. Fullyrðingar um meintar öfgar stjv. í Kíev - virðast söguburður að langsalega stærstum hluta.
Enda sést það á tölum um það -hvert flóttamenn hafa flúið- hvorn herinn íbúar A-Úkraínu óttast meir.
Afar einfalt - - söguburðurinn gegn stjórnvöldum í Kíev, hefur verið nær algerlega hreinar lygar.
Til samanburðar, er enginn vafi á um það, að það fóru raunverulega fram fjöldamorð í Bosníu. Þetta sína dómar Stríðsglæpadómstóls SÞ rækilega fram á.
Kv.
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 21:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
18.12.2014 | 22:30
Mér virðist Rússland stefna í að verða "dóminerað" af Kína
En ég hef veitt því athygli, að eina landið sem virðist græða á deilu Vesturvelda og Rússlands, virðist vera Kína. Það finnst mér afskplega athyglisvert.
En áður en deilur Vesturvelda og Rússlands hófust um Úkraínu, þá stóð fyrir dyrum að dýpka til muna viðskiptasamskipti Vesturvelda og Rússlands, í gegnum fyrirhugaðar viðræður ESB og Rússlands um aukin viðskipti. Er áttu að fara fram, eftir að samningum við Úkraínu milli ESB og Úkraínu væri lokið.
- Takið eftir, að samningar milli Rússlands og Kína, um framtíðar sölu á gasi - voru kláraðir eftir að krísan i samskiptum við Vesturveldi hófst.
- Verð til Kína skv. fréttum virðast mjög hagstæð - sem þíðir óhagstæð fyrir Rússa.
- Kostnaður við nýjar gasleiðslur sem leggja þarf - er áætlaður milli 50-60ma.$.
Refsiaðgerðir Vesturvelda, munu hindra þann möguleika að fjármögnun komi frá fjármálafyrirtækjum á Vesturlöndum.
Það virðist vart annað koma til greina, en að Kínverjar fjármagni þær framkvæmdir - en hafandi í huga að valdaflokkurinn í Kína á alla banka í Kína. Og það má slá því föstu þar af leiðandi, að valdaflokkurinn muni ákveða kjör á þeim lánum, og til hvers er lánað.
Að með því að fjármagna þær framkvæmdir, muni valdaflokkur Kína þar af leiðandi, öðlast umtalsverð efnahagsleg áhrif innan Rússlands.
Mér finnst áhugavert að íhuga þetta - í ljósi ásakana Pútíns!
Putin says Russia economy will be cured, offers no remedy
Vladimir Putin Says Russian Economy Will Rebound
Defiant Vladimir Putin blames west for Russias economic woes
"The West wants the bear to sit around eating honey and berries, not chasing around the forest after piglets..." - They wont leave it alone, because they will always seek to chain it, - Once they manage to chain it, they will rip out the teeth and claws.
Þó þetta sé ekki krystalskýrt endilega - þá liggur þarna að baki ásökun þess efnis að "Vesturlönd séu að umkringja Rússland" sbr. að hlekkja Rússland - síðan að Vesturlönd vilji svipta Rússland kjarnavopnum sínum sbr. að "rífa af birninum klærnar" og síðan að ræna Rússland auðlyndum þess sbr. að "björninn fái bara að éta ber en ekki grísi."
Þessi áhugaverða mynd sýnir mannfjöldadreifingu innan Rússlands
Takið eftir því að héröðin næst Kína eru mjög strjálbýl
Mér finnst þessi ásökun afskaplega kaldhæðin, því ég sé ekki betur en að Pútín sé sjálfur að tryggja að - útlendingar muni ráða yfir auðlyndum Rússlands
Það verði ekki - Vesturlönd, heldur Kína. Ég hef rætt um þetta áður:
Að halla sér að Kína getur verið leikur að eldinum fyrir Rússland
Ég tel þrátt fyrir allt að vesturlönd og Rússland, ættu eigin hagsmuna vegna að vera bandamenn
Megnið af orkuauðlyndum Rússlands - er að finna á strjálbýlu landi Síberíu.
Til þess að fjármagna lagningu gasleiðsla til Kína, þarf -skilst mér- milli 50-60ma.$.
Refsiaðgerðir Vesturvelda, hafa þá hliðarverkan - að hindra að bankar á Vesturlöndum geti tekið þátt í fjármögnun þeirra gasleiðsla.
- Það virðist því blasa við - - að þær verði fjármagnaðar af Kínverjum.
- En, valdaflokkur Kína á alla bankana í Kína, og það mun því vera aðilar innan hans, er munu taka ákvarðanir um þær lánveitingar, vexti o.s.frv.
- Sem þíði, að valdaflokkur Kína eignast þá umtalsverð bein efnahags ítök innan Rússlands.
- Ef eins og líklegt virðist, að rússn. orkufyrirtæki, leiti eftir kínv. fjármögnun fyrir frekari þróun nýtingar auðlynda Rússlands.
- Þá mun það sama eiga við, að í gegnum slíkar lánveitingar muni valdaflokkur Kína, eignast þá enn frekari ítök innan Rússlands.
Slík ítök, mundu þá veita kínv. valdaflokknum, umtalsverð áhrif á ákvarðanatöku innan stjórnkerfis Rússlands.
Í reynd, takmarka sjálfstæði Rússlands, gagnvart Kína.
Gera Rússland - háð Kína.
Ef bætist við að auki, að kínv. verktakafyrirtæki taka að sér að reisa leiðslurnar - jafnvel frekari framkvæmdir við uppbyggingu auðlyndanýtingar innan Rússlands.
Þá mundu brátt fjölmennir hópar kínv. verkamanna starfa á strjálbýlum svæðum Síberíu.
- Ef kínv. aðilar mundu eiga og reka mikið af þeirri starfsemi sem þar fer fram.
- Þá mundi Kína, sennilega, ráða að auki flestu um stjórnun þeirra svæða.
Tök stjórnvalda í Moskvu - á fjarlægum svæðum í A-Síberíu. Gætu þá fjarað út, og "de facto" Kínverjar smám saman - farið að ráða meiru innan þeirra en Rússar.
Ég er algerlega viss um, að hættan fyrir Rússland, er í háu margfeldi af Kína - samanborið við þá hugsanlegu hættu, sem Rússlandi geti stafað frá Vesturveldum.
Ég velti því fyrir mér, þ.s. mér virðist ákvarðanir Rússa síðan Úkraínu krísan hófst, spila inn á hagsmuni Kína - - hvort að Kínverjar séu þegar farnir að hafa mikil áhrif á ákvarðanatöku í Kreml.
Niðurstaða
Pútín hélt því fram í ræðu sinni, að kreppan í Rússlandi mundi standa í 2-ár. Hann kenndi lækkun olíuverðs og refsiaðgerðum Vesturvelda - um þá kreppu. Með öðrum orðum, að stefnu Pútíns væri ekku þar um að kenna. Hann ásakaði Vesturvöld fyrir að standa fyrir árás á Rússland.
Skv. þessu, einnig líkingu Pútíns sem ég vitna í að ofan, þá virðist mér Pútín vera að - - höfða til þjóðerniskenndar Rússa. En einnig að hann sé að leitast við að efla andúð á Vesturveldum.
Á meðan hafa fjölmiðlar í Rússlandi, rætt mjög vinsamlega um Kína í seinni tíð. Þar er tiðrætt um möguleika á samstarfi Rússlands og Kína.
Eitt er ég þó viss um, að "samstarf" er ekki "rétta orðið" heldur sé annað - allt annað í gangi. Nefnilega það, að Rússland sé að færast yfir á umráðasvæði Kína.
Mér finnst það ekki síður merkilegt, að fjölmiðlar í Rússlandi - virðast "þjónka hagsmunum Kínverja" eins og mér virðist "ákvarðanir Kremlverja þegar þjónka hagsmunum Kínverja."
Þess vegna er ég virkilega farinn að gruna, að Kína hafi þegar gert samkomulag við elítuna sem stjórnar Rússlandi - - þ.e. keypt hana.
Hún sé ekki sérlega fjölmenn, því geti það verið praktískt af Kína. Að kaupa þá tiltölulega fáu einstaklinga - til þess að það komist í framkvæmd að Kína nái yfirráðum yfir auðlyndum Rússlands.
Kv.
Utanríkismál/alþjóðamál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
17.12.2014 | 20:52
Fögnum stjórnmálasambandi Kúbu og Bandaríkjanna
Þetta mál virðist hafa komið nánast öllum í opna skjöldu, en skv. tilkynningu Obama og Raul Castro, hafa Bandaríkin og Kúpa að nýju tekið upp stjórnmálasamband - - að auki fylgir með í pakkanum þær aðgerðir sem Obama er kleyft að grípa til "án þess að Bandaríkjaþing þurfi að samþykkja."
Obama Announces U.S. and Cuba Will Resume Relations
U.S., Cuba to restore ties after 50 years of hostility
Obama- We will end an outdated approach that for decades has failed to advance our interests and instead we will begin to normalize relations between our two countries,
Raul Castro - We have been able to make headway in the solution of some topics of mutual interest for both nations, - President Obamas decision deserves the respect and acknowledgment of our people.
Þessi aðgerð afnemur þó ekki viðskiptabannið
- "Officials said they would re-establish an embassy in Havana and carry out high-level exchanges and visits between the two governments within months. Mr. Obama will send an assistant secretary of state to Havana next month for talks on Cuban-American migration and will attend a Summit of the Americas along with Mr. Castro. The United States will begin working with Cuba on issues like counternarcotics, environmental protection and human trafficking."
- "The United States will also ease travel restrictions across all 12 categories currently envisioned under limited circumstances in American law, including family visits, official visits, journalistic, professional, educational and religious activities, and public performances, officials said. Ordinary tourism, however, will remain prohibited."
- "Mr. Obama will also allow greater banking ties, making it possible to use debit cards in Cuba, and raise the level of remittances allowed to be sent to Cuban nationals to $2,000 every three months from the current limit of $500. Intermediaries forwarding remittances will no longer require a specific license from the government."
- "American travelers will also be allowed to import up to $400 worth of goods from Cuba, including up to $100 in tobacco and alcohol products."
Þessar aðgerðir munu þó auka - efnahagsáhrif Bandaríkjanna á Kúbu, sbr. að Kúbumenn í Bandaríkjunum mega nú senda hærri upphæð en áður til fjölskylda sinna - þó að almennur túrismi hefjist ekki strax þá a.m.k. mun fjölga verulega heimsóknum Bandaríkjamanna til Kúbu og þeir mega kaupa aukið magn af kúpönskum varningi en áður.
Þetta er samt sem áður - ekki nema, smávegis leki í bannið.
- Einn möguleiki sem ég sé í þessu, sbr. að til stendur m.a. að ræða um "Cuban-American migration" að þessar breytingar gætu stuðlað að því, að Kúbanir komi til Bandaríkjanna - - til að vinna; án þess að setjast beinlínis formlega að í Bandaríkjunum.
- Og notfæra sér þá víkkuðu heimild, að senda fé til sinna fjölskylda á Kúbu.
En ég er algerlega viss um það, að leiðin til að stuðla að breyttu stjórnarfari á Kúbu - liggi í gegnum aukin samskipti, ekki það frost samskipta sem verið hefur í áratugi.
Það frost hafi þvert á móti gert Bandaríkin nánast áhrifalaus á innanlandsmál Kúbu.
Ef straumur farandverkamanna milli Kúbu og Bandaríkjanna, mundi verða til - þá mundi það skila stöðugum bandarískum áhrifum inn i kúbanskt samfélag.
Og auðvitað, auknu fjárstreymi inn í landið.
- En þ.s. þarf er að endurreisa túrisma milli Bandar. og Kúbu.
- Jafnvel þó að viðskiptabannið mundi ekki hætta alfarið í mörg ár, að ef það næðist fram - að heimila almennan túrisma.
Þá mundi það skila enn frekari fjármagni inn í landið, Kúbu - skapa störf.
En ekki bara það, þau bandar. fyrirtæki er mundu auðgast á slíkum viðskiptum, mundu verða Bandamenn þeirra - sem mundu vilja losa um viðskiptabannið frekar.
Og í Bandar. er það einmitt fjármagn sem "blífur."
Baráttan um að losa um viðskiptabannið - er alls ekki búin.
En það hefur a.m.k. náðst mikilvægur áfangi.
Niðurstaða
Þó að stjórnmálasambandi bindi ekki endi á viðskiptabann Bandaríkjanna gagnvart Kúpu. Þá gerir upptaka beinna samskipta það mögulegt fyrir Bandaríkin og Kúbu, að hefja formlega samvinnu í margvíslegum málum.
Í gegnum slíka samvinnu, getur Kúba öðlast "góðvilja" innan Bandaríkjanna. Þó almennur túrismi sé ekki enn heimilaður, virðist þó ljóst að ferðalög milli landanna munu stór vaxa.
Ég er ávalt þeirrar skoðunar, að samskipti séu líklegri til að skila áhrifum - - en stöðvun samskipta.
Þannig hef ég ávalt verið ósammála þeirri hugsun, að engin samskipti skuli hafa við mikilvægar þjóðir - - sem beita eigin þegna mannréttindabrotum.
Án samskipta, sé þess alls engin von, að hafa áhrif á afstöðu slíkra þjóða.
Með samskiptum, sé a.m.k. einhver von til staðar. Hið minnsta, þá skili samskipti áhrifunm, engin samskipti - þíði áhrifaleysi.
Kv.
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 21:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.12.2014 | 21:57
Af hverju ætli að Rússland sé við hruns dyr?
Fljótt á litið virðist þetta dularfullt svo meir sé ekki sagt - - en grunnt á litið er staða Rússlands góð; eins og hinir og þessir hafa bent mér á sbr. "lágar ríkisskuldir" - "digur gjaldeyrisvarasjóður þ.e. ca. 416ma.$" og "nægar auðlyndir."
- Mér hefur verið sagt að samanborið við stöðu Evrópu, væri staða Rússlands allt önnur og svo miklu betri.
- En þá auðvitað virðist þessi "hrun staða" óútskýranleg.
Málið er sjálfsagt auðvitað það - - að staða ríkisins sem slíks.
Sagði langt í frá alla sólarsöguna!
Áhuga vekur "bankrun" sl. þriðjudag, þegar almennir viðskiptavinir hópuðust í banka til að kaupa gjaldeyri!
"Some Russian bank branches were left short of foreign currency as ordinary citizens rushed to convert money from roubles to dollars and euros in a move that bankers and trades say has been a major driver of the Russian currencys plunge." - "...Galina, a retiree, explained that she was waiting to change her pension into dollars. None of us know whats happening. Were all worried that the currency will keep falling, she said."
- Sumir vilja kenna þessu óvænta fjárútstreymi á þriðjudag um Rúblufallið er varð þann dag.
- En þ.e. til önnur kenning.
Skv. Sergei Guriev - "What seems to have triggered the chaos was an unusual deal involving the bonds of Russias biggest oil company, Rosneft." - "Last year, in the era of three-digit oil prices, the state-owned group borrowed about $40bn from leading international and Russian banks to acquire its former competitor, Moscow-based joint venture TNK-BP." - "Given low oil prices and the impact of western sanctions in response to Russias actions in Ukraine, it is no longer clear how this debt will be repaid or refinanced." - "This is why Rosneft has asked several times this year to borrow $40bn from Russias sovereign wealth fund." - "But, since the money was unavailable, at the end of last week Rosneft issued rouble-denominated bonds worth $11bn." - "The speculation is that these were bought by the largest state banks." - "The interest that investors are charging Rosneft on these bonds is substantially below even that of Russian sovereign debt of similar maturity which is unprecedented for a company, especially one under international sanctions." - "Coincidentally, the buyers of these bonds were then permitted by the central bank to use them as collateral to borrow directly from the bank itself."
Þarna hafi Igor Sechin komið sér úr vanda sem hann var með, eftir yfirtöku Rosneft á sl. ári - - en ef Sergei Guriev hefur rétt fyrir sér, þá tókst Sechin að afla sér fjár beint út úr gjaldeyrisforða Rússlands.
En bankarnir umræddu, allir ríkisbankar, væru þarna í hlutverki - milliliða.
- Málið sé, að innan Rússlands undir Pútín - - hafi sannarlega spilltum ólígörkum verið skipt út, er fjöldi fyrirtækja sem höfðu verið einkavædd á undirverði voru yfirtekin.
- En síðan séu þau undir yfirráðum -einkavina Pútíns- sem hegði sér að engu betur, en spilltu ólígarkarnir sem fyrirtækin voru tekin af - - þ.e. þeir fari með þau sem sína eign.
- Sechin hafi gert samkomulag, við þá -einkavini Pútíns- sem væru með umráð yfir þeim tilteknu ríkisbönkum. Fengið þá til að kaupa þessa nefndu skuldabréfaútgáfu Rosneft.
- Þeir síðan, taki á móti út fé beint úr gjaldeyrisvarasjóði Rússlands.
Við þetta hafi - - forðinn minnkað í einu vettvangi um 11ma.$.
Sem Sergei Guriev, telur skýra gengisfall Rúblunnar þriðjudag og mánudag.
"Boris Y. Nemtsov, a former deputy prime minister who is now in the political opposition, wrote on his Facebook page. The central bank started the printing press to help the Sechin-Putin business, and gave Rosneft 625 billion newly printed rubles. The money immediately appeared on the currency market, and the rate collapsed."
Skv. þessari athugasemd, virðist aðgerð Rosneft vera á vitorði margra.
Akkílesarhæll Rússlands getur legið einmitt í stöðu ríkisfyrirtækja, banka sem orkufyrirtækja!
En ég hef heyrt því haldið fram, að fyrirtæki í orkugeiranum og ríkisbankar, skuldi samanlagt 600ma.$ í gjaldeyri.
- Punkturinn er sá, að hræðslan á markaði, risa fall Rúbblunnar, skýrist fullkomlega.
- Ef gjaldeyrisstaða Rússlands, er -neikvæð- ekki -jákvæð.
Þá er þetta hegðan algerlega í takt við hegðan mála, sem við Íslendingar höfum oft upplifað - - þ.e. ef gjaldeyrissjóðir eru við það að tæmast.
Þá verður verulegt gengisfall! Rússland sem og Ísland, er auðlyndahagkerfi, háð fáum en stórum uppsprettum gjaldeyris - til að fjármagna innflutning.
Að sögn blaðamanna, var það áberandi að verslanir er seldu erlendan varning, voru að gera áberandi mikil viðskipti á þriðjudag - - en sú hegðan, bendi til þess að almenningur óttist frekara verðfall Rúblunnar.
Þetta er einnig hegðan sem við könnumst við héðan.
- Ef það er rétt, að ríkisfyrirtæki rekin af -einkavinum Pútíns- skulda samanlagt 600ma.$.
- Þá er gjaldeyrisstaða Rússlands í reynd, neikvæð sem nemur tæpum 200ma.$.
Það er við þær aðstæður, að refsiaðgerðir Vesturvelda bitna harkalega á Rússlandi!
En refsiaðgerðir Vesturvelda, beinast einmitt að fyrirtækjum í ríkiseigu í Rússlandi - - undir stjórn vildarvina Pútíns.
- Þær aðgerðir gera þeim fyrirtækum ómögulegt, að endurfjármagna lán í dollurum eða evrum.
- Heldur verða þau fyrirtæki að greiða lán upp á gjalddaga.
Ég held að Pútín sé ekki það fífl, að hafa hafið deilur við Vesturveldi -- út af Úkraínu. Ef hann hefði haft vitneskju um þessa stöðu ríkisfyrirtækjanna.
Það hafi verið í krafti þess, að hann hafi talið að Rússland gæti haldið út refisaðgerðir í nokkur ár, sem sú ákvörðun hafi verið tekin - - að ganga svo hart fram gegn Úkraínu, sem gert hafi verið, í kjölfar byltingarinnar í Kíev.
Sennilega hafa -einkavinirnir- ekki sagt honum satt um stöðu fyrirtækjanna, undir þeirra umráðum.
- Í staðinn virðist Rússland, stöðu ríkisfyrirtækjanna vegna, vera í alvarlegri klemmu.
- Það liggur klárt fyrir, hverjar kröfur Vesturvelda eru - - þ.e. "skila Krím-skaga" og "hætta stuðningi við uppreisnarmenn í A-Úkraínu."
- Nú þegar - veikleiki stöðu Rússlands blasir við. Virðist afar ólíklegt, að Vesturveldi slaki á klónni. Enda virðist þeim, þau hafa pálmann í höndum.
- Á sama tíma, sé sennilega Pútín sjálfur búinn að segja of mikið, framkvæma of mikið - - til þess að hann sjálfur geti bakkað.
Þannig að mál stefna sennilega í "uppgjör" á nk. ári.
En líkur virðast að þá standi Rússland fyrir fullkomnum stormi, þ.e. hratt minnkandi gjaldeyrisforða - - og gjaldmiðli sem haldi áfram að síga eftir því sem forðinn minnkar.
Sem mér finnst sennilegt að muni leiða fram - óánægjuöldu Rússa sjálfra. Er sjá þá fram á sambærilega kreppu við þá, er var í Rússlandi 1998.
Niðurstaða
Hvað er að gerast í Rússlandi, er algerlega rökrétt. Ef hin raunverulega gjaldeyrisstaða er "neikvæð" ekki jákvæð. Þá verður allt sem er í gangi fullkomlega eðlilegt - - hratt gengisfall, stöðugt gjaldeyrisútstreymi, að Rússar séu farnir að fjárfesta í varningi og jafnvel óforgengilegum verðmætum. Þá fer staðan að líkjast afskaplega mikið, stöðu Rússlands rétt fyrir hrun og gjaldþrot 1998.
Málið með "lága skuldastöðu ríkisins" virðist hafa verið, að hún hafi raunverulega verið villandi.
En skuldir ríkisfyrirtækja, falla alltaf á ríkið, ef ríkisfyrirtækið lendir í vandræðum.
Það að ríkisfyrirtæki í orkugeira og í bankastarfsemi, skulda yfir 600ma.$ meðan gjaldeyrisforðinn er ca. 416ma.$ þíði þá í reynd - - að gjaldeyris-skuldir ríkisins séu 600ma.$ hærri en uppgefið hafi verið í bókhaldi ríksins.
Þ.e. algengur ósiður, að telja ekki með ríkisskuldum, skuldir fyrirtækja - í sjálfstæðum rekstri. Í eigu ríkisins.
- Útkoman virðist sýna fram á, að refsiaðgerðir Vesturvelda - hafi verið rétt saman settar.
- Menn hafi komið auga á það, hver veikleiki Rússlands væri.
Refsiaðgerðirnar tryggi, að ríkisábyrgð ríkissjóðs Rússlands - - sé virkjuð þannig að þessir 600ma.$ lendi að verulegu leiti sannarlega á ríkinu.
Þá verður allt rökrétt sem er að gerast - - og Rússland er þá í allt annarri stöðu en margir hafa haldið. Þ.e. "ekki með digra sjóði fjár" heldur "stóran mínus."
--------------------------
Ég held að Rússland sé það land - sem allir þurfi að fylgjast með á nk. ári.
En eitthvert stórt uppgjör sé sennilega framundan.
Pútín muni verða að taka einhverja stóra róttæka ákvörðun.
Kv.
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt 17.12.2014 kl. 08:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
16.12.2014 | 00:32
Rússneska rúbblan búin að falla tæp 50% - rúbblan féll 10% í kjölfar spár seðlabanka Rússlands um samdrátt 2015
Skv. mínum útreikningum þá er gengisfall rúbblunnar nú orðið 49,3%. Sem er rétt tæp 50%. Sjá: XE Currency Charts (RUB/USD).
Samkvæmt spá Seðlabanka Rússlands, þá stefnir í samdrátt einhvers staðar á milli 4,5-4,7% ef olíuverðlag helst nærri 60$ fatið út 2015.
Eins og sést á myndinni fyrir neðan - hefur þróun rúbblunnar sl. vikur verið afskaplega hröð. Síðan bætist við gengishrap dagsins.
Rouble tumbles on fears for Russian economy
Sjá - - graf fyrir 1 mánuð
Ef einhver man eftir gengishrapi krónunnar 2008
Rúbblan er nú búin að falla mjög nálægt því jafn mikið og krónan gerði.
- Þ.s. er enn áhugaverðara, er að þegar Rússland lenti í efnahagsvandræðum undir lok 10. áratugar, sem endaði í gjaldþroti - - þá féll gengi Rúbblunnar um 50%.
Efnahagshrunið 1998 leiddi Pútín til valda - en það veikti til muna þá aðila er höfðu staðið að baki efnahagsstjórnun Rússlands árin eftir 1991.
Það þarf að hafa í huga, að efnahagshrunið 1998 stóð í tengslum við tímabundið lágt olíuverð, tengt Asíu-fjármálakreppunni á sínum tíma.
Efnahagsuppgangur og hrun Rússlands, virðist ávalt tengjast verðlagi á olíu. En uppgangurinn í kjölfar valdatöku Pútíns, hafði alveg örugglega nærri því allt - að gera með það að verðlag á olíu fór samfellt hækkandi árin eftir 1998 alveg fram til þess að efnahagskreppa hófst 2008.
Síðan rétti olíuverð við sér fljótlega að nýju, kreppan í Rússlandi 2008 varð ekki djúp.
En ljóst er, af því hvað er að gerast nú, að sú kreppa sem no vomir yfir - - verður sennilega til muna dýpri.
- Þá er það stóra spurningin - - hvaða áhrif þessi nýja djúpa kreppa, hefur á stuðning almennings í Rússlandi við Pútín?
En munum, að hrunið 1998 leiddi Pútín til valda, þegar stuðningur við fyrri stjórnvöld og þá flokka er stóðu þeim að baki - hrundi.
Ég sé ekki af hverju, slíkt geti ekki endurtekið sig.
Niðurstaða
Ég held að Rússland sé landið sem allir ættu að fylgjast með 2015. En á því ári fer lífskjarahrapið væntanlega að verða verulega tilfinnanlegt fyrir almenning. Og þá ætti að koma í ljós, hvaða áhrif það kjarahrap hefur.
En almenningur hefur aldrei hingað til síðan Pútín komst til valda, upplifað kjarahrap. Skammvinnur samdráttur 2008, stóð of stutt - til þess að hann skilaði tilfinnanlegum neikvæðum áhrifum til almennings.
Það gengishrap sem hefur nú orðið á Rúbblunni - virðist mér stærra, en efni standa til. Ef einungis er litið til ca. 45% lækkunar olíuverðs. Þannig að til staðar séu væntanlega viðbótar áhrif af völdum deilu Pútíns við Vesturlönd út af Úkraínu.
Þar um er auðvitað spurning hverjum Rússar munu um kenna. Pútín og hans fylgismenn, munu að sjálfsögðu benda á Vesturlönd. Á hinn bóginn, má vera að rússneskur almenningur muni að það var Pútín sjálfur - sem hóf þá deilu.
En ég sé möguleika á óróa innan Rússlands - þ.e. mótmælum gegn lífskjarahrapi.
Þá verður mjög forvitnilegt að vita - hver viðbrögð stjv. þá verða við slíkum mótmælum.
En gríðarlega harkaleg viðbrögð, gætu haft svipuð áhrif og þegar lögregla síðasta rússakeisara, réðst með frægum hætti gegn mótmælagöngu þannig að fjöldi manns lá í valnum. En í kjölfarið á þeim atburði - magnaðist mjög upp róttækni í Rússlandi. Og andstaða gegn stjórnvöldum.
Spurning hvort að Pútín endurtaki þau mistök - eða ekki.
----------------------------
PS: Skv. allra nýjustu fréttum, hefur Seðlabanki Rússland ákveðið að hækka stýrivexti í 17%, þetta nálgast þær hæðir sem Seðlabanki Íslands fór með stýrivexti á Íslandi - í kjölfar gengisfalls krónunnar:
Moscow lifts interest rate to 17%
----------------------------
PS2: Rúbblan fór aftur upp um 8% í kjölfar hækkunar vaxta í 8%, eftir að markaðir opnuðu í morgun, það á þó eftir að koma í ljós hvort að hún heldur þeirri stöðu er markaðir loka seinni partinn í dag:
Rouble gains 8% after Russias midnight rate rise
----------------------------
PS.3: Sk. nýjustu fréttum, hefur mikið rót verið á gengi Rúblunnar, fyrstu viðbrögð morgunsins að gengið hækkaði, eins og ég sagði frá, en síðan hefur gengið jó jóað til og frá, og nú skilst mér að gengið hafi fallið aftur og sé staða þess - lægri en í gærkveldi. Þannig að þá er Rúbblan sannarlega fallin þá heil 50%.
----------------------------
PS. 4: Skv. gengisstöðu Rúblu við lok dags, þá hefur hún fallið miðað við hápunkt sl. 12 mánaða um 53,97%.
Rúmlega 50% gengissfhrap virðist staðfest.
Kv.
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 15:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.12.2014 | 15:08
Færsla opinberra stofnana er sennilega versta mögulega leið sem unnt er að fara, til þess að efla starfsemi á Landsbyggðinni
Með þessari færslu árétta ég þ.s. ég skrifaði þann 1.12. sl. þegar ég fjallaði sérstaklega um færslu á Fiskistofu til Akureyrar. En nú hafa komið fram tillögur sérstakrar nefndar ríkisstjórnarinnar fyrir NV-land, þ.s. ef marka má fréttir:
RARIK á Krókinn og Gæslan í Skagafjörð- "Rarik á Sauðárkrók, Gagnaveita á Blönduós og rekstur skipa Landhelgisgæslunnar í Skagafjörð."
Verða 3-viðbótar tilfærslur á starfsemi ríkisins frá höfuðborgarsvæðinu.
- Við ættum að þekkja rifrildið um flutning Fiskistofu - sem langt í frá er búið.
- Ráðherra hefur samþykkt að styrkja starfsmenn til að flytja.
- Þannig að tryggja að ekki þurfi að endurreisa rekstur stofnunarinnar á "0" punkti á hinum nýja stað.
- Sem auðvitað verulega magnar upp kostnað við aðgerð.
Það má að sjálfsögðu reikna með því að -starfsmenn- geri kröfu um sambærilega tilhliðran, ef á að færa Rarik á Sauðárkrók, Gagnaveituna á Blönduós og síðan rekstur skipa Landhelgisgæslu í Skagafjörð.
- Í fréttum hefur komið fram "óánægja sveitastjórnarmanna" á þriðju-svæðum, t.d. Vestfjörðum, en einnig Austurlandi.
- Mér virðist blasa það við, að aðrir landshlutar -utan höfuðborgarsvæðis- geri kröfu um að einnig fá opinberar stofnanir til sín með sambærilegum hætti.
Hafandi í huga að enn er ekki búið að hrinda færslu á rekstri Fiskistofu til Akureyrar í framkvæmd, þá virðist ljóst að það stefni nú í langvarandi rifrildi um opinberan rekstur á landsbyggðinni.
Og ekki síst um flutninga á störfum út á land, með þeirri aðferð að flytja opinberar stofnanir - - sannarlega með ærnum tilkostnaði.
- Höfum í huga að ríkið er með hallarekstur, enn.
- Þó að fjárlög geri ráð fyrir því að vera hallalaus, hefur Hagstofa látið okkur vita, að hagvöxtur sl. 9 mánaða hafi einungis verið 0,5% Landsframleiðslan á 3. ársfjórðungi 2014.
- Sem er miklu mun lakara en reiknað var með - - > Það þíðir að forsendur fjárlaga um tekjur standast sennilega ekki. Þannig að þau séu líklega með halla.
- Svo að, það má þá virkilega velta því fyrir sér, hversu snjallt það er - - að verja hugsanlega milljörðum í flutninga á stofnunum út á land. En ég reikna með því að ef stefni í framkvæmd tillagna Landshlutanefndar fyrir NV-Land.
- Þá rísi fólk á Vestfjörðum, Suðurlandi og á Austurlandi - upp. Og gerir einnig kröfur til ríkisins um störf - og eflingu starfa í þeirra landshlutum.
- Þannig, að ef það lýtur út fyrir að tillögur Landshlutanefndar stefni á framkvæmdastig - - opnist visst Pandórubox.
Það má líkja þessu einnig við - > Leiðréttingu launa kennara.
En sú aðgerð virðist einnig hafa opnað, Pandórubox krafna annarra hópa.
- Ríkisstjórnin er nú í augljósum vandræðum með deilu við lækna.
- Sem krefjast "leiðréttingar" eins og kennarar.
- Nú, ef ríkið samþykkir tuga prósenta hækkanir til lækna, eins 2-ja stafa launahækkanir til kennara voru samþykktar - - > Þá mun hún á útmánuðum nk. árs fá yfir sig deilu við ASÍ - sem hefur lofað eigin félagsmönnum, að taka tillit til samninga sem hafa verið frágengnir 12 mánuðina á undan, þegar ákvörðun verður tekin um kröfugerð.
Það er nefnilega málið með Íslendinga - að við erum ávalt í samanburði hvert við annað.
Það er, hópar launamanna.
En einnig, ef tillögur Landshlutanefndar ná fram að ganga, þá er ég þess fullviss, að þá mun rísa upp alfarið sambærileg deila þ.e. rígur milli landshluta.
Og nú ríkisstjórnin glímir við, í tengslum við stéttafélög launamanna.
- Það mun þá hellast yfir hana, kröfugerðir landsbyggðarfólks, sem mun rífast hvert um annað þveran - - um störf, sem það mun þá heimta að færð verði til þeirra frá ríkinu.
- Sá kostnaður að sjálfsögðu bætist ofan á þann kostnað, sem lendir á ríkinu vegna hækkana launa hópa starfsmanna ríkisins.
Í öllum þessum látum að sjálfsögðu - tínast þá hagsmunir ríkisins.
Og það verður afar fjarri á enda, að fjárlög verði án halla!
Hvernig á þá að aðstoða landsbyggðina? Með skattaúrræðum!
- Ég er að benda á sama lærdóminn, og af samningum á vinnumarkaði. Þann að það gerist ávalt, að önnur stéttafélög krefjast sambærilegra hækkana. Ef þau telja að eitt félag sé að fá meira en þau.
- Þannig, að reynslan er að það þarf að samræma kröfugerð, síðan að sníða úrræði sem geta samtímis nýst sem flestum. Með öðrum orðum, þetta gengur ekki upp - - > Nema allir fái það ca. sama.
- Að þá þurfi að beita svipaðri hugsun þegar kemur að vanda landsbyggðar vs. þéttbýlis. Að ekki gengur að fara eins að og þegar kennarar fengu "leiðréttingu" að "leiðrétta stöðu eins landshluta." Því þá munu aðrir landshlutar fyrir utan höfuðborgarsvæðisins, með sambærilegum hætti. Gera kröfur um það að þeirra staða verði jöfnuð - með þeim hætti að þeir fái sambærilega tilhliðran. Sem þíðir þá að sjálfsögðu að ríkið drukknar undan kostnaðinum við þá kröfugerð. Eins og stefnir í drukknun ríkisins undan kröfugerð Lækna, síðan næstu hópa þar í framhaldi, ef læknar fá sínar kröfur í gegn, eins og kennarar fengu sitt fram.
- Það verði með öðrum orðum --> Að laga stöðu landsbyggðar með einni samræmdri aðgerð. Svo sambærilegi rifrildi við þ.s. ríkið nú glímir við gagnvart hópum launamanna. Sé forðað, þ.e. að landshlutar einstakir fari að togast um opinber störf og fyrir rest drukkni ríkið einnig undir þeirri kröfugerð - einnig.
- Ég er að tala um, lægri tekjuskatt almennings í skilgreindum jaðarsvæðum, sem getur verið - stiglækkandi.
En ég mundi leggja til, að svæði landsins verði greind. Síðan skv. þeirri greiningu, sveitafélögum skipt upp í hópa skv. greinanlegum viðmiðum. Hugmyndin að hópaskipting fari eftir greiningu á - stigversnandi óhagræði, sbr. gæði samganga - smæð vs. stærð atvinnusvæðis - hvort um sé að ræða svokallað "kalt svæði" eða ekki - fjarlægð frá kjarna landsfjórðungs með öðrum orðum hversu afskekkt.
- Ég geri einnig ráð fyrir því, að tekjuskattur fyrirtækja - geti verið lægri, a.m.k. á einhverjum hinna skilgreindu svæða, t.d. köldum svæðum.
- Málið með skattaleg úrræði er einmitt - að þau hafa þau áhrif að "auka það fé sem verður eftir í vösum fólks" sem og "fyrirtækja."
- Það þíðir, að slík úrræði fela það í reynd í hendur hvers og eins, sem og hvers og eins rekstraraðila - - að hagnýta sér þau bættu tækifæri sem úrræðin fela í sér.
- Það er ekki verið - - að sækja úrræðin til ríkisins.
- Eða sækja björgina - - til einhvers "bjargvætts."
Heldur væri þetta, almenn aðgerð, sem einmitt mundi gera þ.s. SDG hefur sjálfur talað um á góðum dögum, skapa jákvæða hvata.
- Með "skattalegum úrræðum" er hægt að mæta því vandamáli, að laun eru ívið lægri almennt á landsbyggðinni en á SA-horninu.
- Að auki er unnt að bæta fólki upp viðbótar galla t.d. á "köldum svæðum" með því að hafa afslátt á tekjuskatti ívið meiri þar.
- Að auki er unnt að hvetja til atvinnu-uppbyggingar á landsbyggðinni með skattalegum úrræðum, hvetja til fjárfestinga þar, og þar með fjölgunar starfa. Sem á endanum mundi einnig bæta lífsskilyrði og laun þar.
Í stað þess að færa einstaka stofnanir - - með miklu rifrildi í hvert sinn.
Væri málið leyst með einum rykk - - í almennri aðgerð. Og í leiðinni, efling atvinnulífs sett í hendur fólksins sjálfs sem býr úti á landi.
Ég held að það sé vel unnt að fá samþykki fyrir því að skattalegt umhverfi komi til móts við landsbyggðina - - ef málið er sett fram með nægilega sannfærandi hætti.
Þá meina ég, eftir greiningarvinnu, þ.s. sýnt væri fram á tiltekin mælanleg einkenni, sem unnt væri að hafa sem -óumdeild viðmið.-
Skiptingu einstakra sveitafélaga milli skilgreindra "hópa" væri unnt að láta sæta endurskoðun t.d. einu sinni per áratug, eða einu sinni annan hvern áratug.
Niðurstaða
Mér líst afar illa á þá leið sem virðist stefna, að efla atvinnulíf á landsbyggðinni með tilfærslu starfa. Það virðist mér ákaflega skilvirk leið til þess að framkalla ríg, rífrildi og leiðindi. Það er við starfsmenn ríkisins og milli einstakra landshluta. Rifrildi milli þeirra um opinber störf. Þeir eru líklegir að heimta að sinn hlutur sé réttur ef þeim virðist annar landshluti vera að fá meira.
Þetta auðvitað bætist ofan á deilur þær sem ríkið þegar stendur í við einstaka hópa um kaup og kjör - - sbr. læknadeiluna, er ríkið virðist standa nánast ráðalaust gagnvart. Og er alveg fyrirfram vitað, að ef ríkið samþykkir þær kröfur, að þá koma næstu hópar launamanna og heimta einnig stórfelldar prósentu hækkanir.
Ríkið -eins og ég benti á- skóp að verulegu leiti sér þennan vanda, er það samþykkti 2-ja stafa launakröfur til kennara. Svokallaða -leiðréttingu launa þeirra- sem að sjálfsögðu hefur kallað fram kröfur annarra hópa launamanna um sambærilegar hækkanir eða "leiðréttingu."
Ríkið gæti verið við það - - að opna á sambærilegt "Pandórubox" þegar kemur að landshlutaríg, ef farið verður að tillögu Landshlutanefndar.
- Í öllum þessu látum - tínist markmiðið um hallalausan ríkissjóð.
- Ríkið verður að átta sig á því, að eins og með vinnumarkaðinn þá gengur það ekki að "taka eitt svæði út" eins og það gengur ekki að taka einn hóp út fyrir sviga.
- Heldur verður í báðum tilvikum - - að bjóða upp á "samræmd úrræði."
Vanda landsbyggðar verði að leisa með almennum hætti, ekki einungis til að forða því allsherjar rifrildi sem annars verður og þeim kostnaði sem kröfur og gagnkröfur geta leitt á ríkið.
Heldur ekki síst, vegna þess að það sé mun skilvirkara að fela það í hendur hvers og eins einstaklings, eða fyrirtækis - - að leysa vanda síns svæðis. Því að þeir einstaklingar sem búa á hverjum stað, sem og rekstraraðilar starfandi þar - - hafa mun meira vit á því, hvað sé skilvirk fjárfesting þ.s. þeir eru - en ríkið eða pólitíkusar, þó þeir telja sig starfa fyrir viðkomandi svæði.
- Að úrræði til leiðréttingar stöðu svæða, felist fyrst og fremst í skattalegum úrræðum - - þannig að - -> Ríkið sé ekki að ákveða hver fær hvað, þegar kemur að störfum og atvinnu.
- Heldur sjái frjálsir einstaklingar og atvinnulíf, sjálft um það að skapa þau störf.
Ekki síst, er það málið - - að ég er ekki hrifinn af þeirri hugsun, að verið sé að sækja störf til ríkisins, björg til ríkisins - - það bæli sjálsbjargarviðleitni, sú hugsun að ríkið færi okkur björgina.
Ég vil frekar, beita úrræðum - sem efla sjálfsbjargar viðleitni. Sem hvetja til þess, að fólk taki málin í sínar hendur. Hvetja það til þess, að skapa störf á þeim svæðum þar sem það sjálft býr.
- Ég er reyndar smávegis hissa á Framsóknarflokkknum - að vera að einblína á ríkisstörf.
- Ég hefði búist við því frá, VG.
Í stað þess að horfa til skattalegra úrræða, sem mundu hjálpa fólki á svæðum með þeim hætti, að það hafi aukið fé milli handa - - svo það geti sjálft ákveðið hvað skal gera.
Ég hefði talið það standa Framsóknarflokknum nær, að efla sjálfsbjargarviðleitni. Skapa jákvæðar hvatir.
Kv.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
13.12.2014 | 00:21
Hinar miklu olíuverðslækkanir munu líklega leiða til hágengis Bandaríkjadollars, það hágengi gæti hugsanlega startað kreppu í einhverjum nýmarkaðslöndum
Málið er að það stefnir sennilega í verulega aukningu neyslu almennings í Bandaríkjunum, vegna olíuverðs lækkana. Þó að eldsneytisverð sé lægra í Bandaríkjunum en í Evrópu, þá vegur á móti að vegalengdir innan Bandaríkjanna eru verulegar -annars vegar- og -hins vegar- að opinber samgöngukerfi innan Bandaríkjanna eru almennt til muna lakari en í Evrópu.
Svo þrátt fyrir lægra eldsneytisverð - hefur olíuverðlagslækkun sennilega stærri neyslueflandi áhrif innan Bandaríkjanna en innan Evrópu.
"Brent crude...has plunged 45 per cent since mid-June, fell...to $61.73 a barrel."
Eins og sést á tilvitnun að ofan, er olíuverð nú að nálgast 60$ mörkin, miðað við hve hratt það hefur lækkað - - gæti það sigið niður í 50 og eitthvað.
- Þegar eru menn að spá verulegri neyslubylgju í Bandaríkjunum á nk. ári, því verulegum viðbótar hagvexti + ekki síst, verulegri fjölgun starfa í verslunargeiranum.
- Það má einnig reikna með aukinni eftirspurn í eignum almennt, ekki síst fasteignum - og þá því að fasteignaverð fari að rísa - - sem hefur þá viðbótar "auðs áhrif."
- Þess vegna, má fastlega reikna með því sem fullkomlega öruggu nú, að "US Federal Reserve" muni hætta prentun fyrir árslok.
- En ekki einungis það, heldur því má vænta að vextir í Bandaríkjunum fari upp fyrir "0" mun fyrr - - en haldið var t.d. fyrir 6 mánuðum.
Olíuverðlagslækkunin er að breyta verulega myndinni hvað varðar efnahag landa. Þeirra sem kaupa olíu og nota hana. Hún hljóti að efla hagvöxt í heiminum, nema að til komi undirliggjandi veikeikar sem kollvarpi slíkri niðurstöðu.
Það má vænta að gengi dollars muni rísa verulega á nk. ári
Áhugaverð aðvörun kom frá "Bank of International Settlements" á þeim nótum, að hækkun dollars gæti skapað vandræði innan svokallaðra "rísandi hagkerfa" eða "emerging economies."
Sjá: Quarterly Review
Það sem horft er á, er að árin þegar dollarinn hefur verið mjög lár þ.e. 2008-2013, var mjög mikið um það að einkafyrirtæki í "ný-markaðslöndum" eða "rísandi hagkerfum" væru að notfæra sér það að lántökur í dollar voru sérlega hagstæðar þau ár - - meðan að vaxtaumhverfið var mjög lágt þegar prentun Seðlabanka Bandar. var á fullu.
- Sömu ár var gengi dollars einnig sérlega hagstætt - miðað við gjaldmiðla þessara landa.
- En rísandi gengi dollars mun skekkja þá mynd, þ.e. þá hækka dollaralánin í andvirði miðað við andvirði þeirra fyrirtækja í nýmarkaðslöndum er tóku lán í dollar.
- Að auki, verða dollaralánin meira virði miðað við gjaldmiðla þeirra landa.
Íslendingar sáu þetta mjög vel - þegar gengi krónunnar lækkaði mikið í kjölfar bankahrunsins, að þá urðu þeir aðilar er höfðu tekið erlend gjaldeyrislán - - margir fyrir slæmu áfalli.
Þetta er þ.s. "BIS" er að vara við, að hækkun dollara geti skapað vandamál.
"...emerging market borrowers had issued a total of $2.6tn of international debt securities, of which three-quarters were denominated in dollars. International banks cross-border loans to emerging market economies amounted to $3.1tn in mid-2014, mainly in US dollars, the BIS added..."
- Ný lán árin 2008-2013 voru upp á ca. 2.000 milljarða dollara til fyrirtækja í nýmarkaðslöndum skv. þessu.
- Heildarumfang dollaralána sé ca. 3.100 milljarðar dollara.
- Menn hafa áður orðið vitni að því, að stórar sveiflur í gengi dollars, skapi vandamál í öðrum löndum. Gjaldþrot Argentínu 2000 er sennilega með frægari afleiðingum hækkun dollars á seinni hl. 10. áratugarins.
- En frægari er þó Asíufjármálakrísan sem varð á seinni hl. 10. áratugarins, þá í nýmarkaðslöndum Asíu.
BIS getur auðvitað ekkert fullyrt.
En engar upplýsingar liggja fyrir um - dreifingu þessara lána, sem hafa verið tekin af einkaaðilum.
En mörg þeirra voru ekki veitt með "dæmigerðum hætti" heldur með "útgáfu skuldabréfa" sem vestrænir fjárfestar í leit að "rentum" keyptu á markaði að því er virðist, umhugsunarlítið.
Þetta leiðir til þess, að engin leið er að spá fyrir um það - hver hættan er.
Heldur erum við að feta okkur inn í myrkrið, vitum ekki hversu alvarlegt þetta er, eða verður.
Niðurstaða
Bandaríkin munu líklega hafa góðan hagvöxt á nk. ári - þó það gagnist ekki Obama forseta sem á 2-ár eftir. Þá getur þetta gagnast Demókrötum þegar dregur að nk. forsetakosningum. En efnahags uppgangur -jafnvel þó að ríkjandi stjórnvöld séu ekki raunverulega að búa þann hagvöxt til- oftast nær gagnast þeim flokki sem er við völd.
Góður hagvöxtur á nk. ári, batnandi árferði næstu 2-misseri, gæti tryggt Demókrötum næsta forseta Bandaríkjanna. Hvort það verður "frú Clinton" á eftir að koma í ljós.
- Á móti kemur óvissa um hugsanlega neikvæðar afleiðingar hækkandi dollars, en hann mun sannarlega hækka verulega, ef þetta allt rætist - sem mun efla kaupmátt Bandaríkjamanna enn frekar.
- Ef það verður svo, að góður hagvöxtur skellur á í Bandaríkjunum nk. 2 ár.
Það þarf þó ekki að fara svo, að þó að aðvörun "B.I.S" reynist rétt, að kreppa skelli á í einhverjum "nýmarkaðslanda" - > að það leiði til neikvæðra efnahagslegra boðafalla, er mundu ná alla leið til Bandaríkjanna.
Á hinn bóginn, gæti verið þess virði, að fylgjast með Evrópu á sama tímabili - en lækkandi olíuverð þó það ætti einnig að vera að nokkru leiti efnahagslega jákvætt fyrir Evrópu. Getur hugsanlega dugað til að hrinda af stað verðhjöðnun í Evrópu. Þá reynir á viðbrögð Seðlabanka Evrópu - - það virðist loksins stefna flest í þá átt að "ECB" hefji sambærilega seðlaprentun á við þá sem Seðlabanki Bandar. stundaði um árabil. En á sama tíma, er það ekki enn algerlega víst - - of veik viðspyrna gæti leitt til verðhjöðnunarspírals í Evrópu.
Og því óvæntrar kreppuhættu.
Kv.
11.12.2014 | 23:54
Hrun yfirvofandi í Venesúela? Skuldatryggingaálag landsins tæp 38%, á Íslandi fór það hæst í rúmlega 11%
Markaðurinn skv. þessu telur gjaldþrot landsins bersýnilega yfirvofandi, en sennilega var ekkert land í heiminum viðkvæmara fyrir lækkun olíuverðs. Skv. nýjustu fréttum er verð fyrir fat að nálgast 65$, en verðið var ca. 115$ júní 2014.
Sósíalista bylting Hugo Chavez hefur verið ákveðinn kyndilberi fólks með viðhorf langt til vinstri - gríðarlega mikið af fyrirtækjum hafa verið "þjóðnýtt" þ.e. yfirtekin af ríkinu. Þannig hefur sósíalistaflokkur landsins skipulega lagt í rúst, stétt fyrirtækjaeigenda í landinu - hina eiginlegu kapítalista.
Á sama tíma hefur sífellt meiri byrði í formi samfélagslegra útgjalda verið lögð á ríkisolíufyrirtækið, í formi beinna félagslegra styrkja af margvíslegu tagi - allt frá niðurgreiðslum á eldsneyti, yfir í niðurgreiðslur á mat, leigu - lífeyrisgreiðslur.
- Landið var þegar með verulegan fjárhagslegan halla, áður en olíuverð fór að lækka sl. sumar.
- Að auki, virðist ríkissjóður landsins vera staddur í mjög alvarlegri stöðu skuldalega, sérstaklega í formi gjaldeyrisskulda.
Það einfaldlega þíðir - - fullkominn storm. Þegar gjaldeyristekjur landsins skreppa saman, þá sverfur að þeim sem hafa fengið greiðslur meira eða minna beint í gegnum olíutekjur landsins, sem skapar nýja samfélagslega óánægju - - og samtímis minnka þær tekjur er standa undir ríkisskuldum landsins.
Venezúela getur því orðið fyrsta fórnarlamb - olíuverðs lækkana þeirra er hafa átt sér stað undanfarna mánuði.
Venezuelan default protection cost hits record high
Skv. fréttum, er verðbólga yfir 50% nú þegar, mikill og vaxandi skortur er á innfluttum varningi í verslunum, hratt vaxandi örbyrgð hafi skapað glæpabylgju!
- Ástæðan fyrir skortinum - virðast tilraunir Nicolás Maduro núverandi forseta til þess að halda aftur af verðhækkunum.
- En stjórn sósíalista hefur gjarnan gripið til þeirra aðgerða að "banna verðhækkanir" og síðan að - yfirtaka verslanir sem brjóta bannið, þ.e. þjóðnýta.
Þetta breytir ekki þeim grunn efnahagslegu sannindum, að þegar gengi gjaldmiðilsins er að hrynja stórt í tengslum við fall gjaldeyristekna - - að þá er enginn mannlegur máttur sem getur komið í veg fyrir að innfluttar vörur hækki.
Verslanir hætta þá að selja "innfluttar vörur" í hillum sínum sem þíðir væntanlega að verslanir er selja raftæki hafa lítið upp á að bjóða frammi við búðarborðið, sem þá þíðir þess í stað að þær vörur færast yfir á svartan markað - eða eru seldar út um bakdyrnar.
Það verður þá eins og í A-Evrópu eða Sovétríkjunum síðustu árin, að selt er í gegnum bakdyr af lagerum eða í gegnum einhver önnur skúmaskot.
- Það gengur í dag verulegt spillingarorð, af þeim mikla ríkisrekstri sem stundaður er vegna hinna fjömörgu yfirtaka fyrrum einkafyrirtækja af margvíslegu tagi.
- Þannig var það í Sovét einnig - - þ.e. eins og að Chavez hafi reynt að endurtaka sovétríkin, en með fjármögnun af olíutekjum.
Sennilega er það sama að gerast og gerðist í Sovét, að spillingin hleðst upp og óstjórnin - - síðan þarf einhvern "trigger" atburð til að hrunið hefjist.
- Það virðist ekki ólíklegt að sá trigger sé nú að koma í formi yfirvofandi þjóðargjaldþrots, en skuldatryggingaálag í slíkum hæðum, hlýtur að benda til þrots sem sé fremur skammt undan og talið að ríkissjóður eigi litla möguleika til undankomu.
- Spurning hversu slæmt þetta verður? En það virðist a.m.k. hugsanlegt, að það verði borgarastríð - þegar hrunið hefst fyrir alvöru.
En mikill klofningur virðist innan samfélagsins, þ.e. fjölmennir hópar enn styðja stjórnina þrátt fyrir allt - - meðan að andstæðingum hefur þó fjölgað verulega í seinni tíð.
Þegar forsetakosningar fóru fram síðast, þá fór sú kosning mjög nærri 50/50. Landið væri klofið ca. í jafn stórar fylkingar. En það var fyrir olíuverðfallið.
Hratt versnandi kjör - glæpahrynan sem líklega tengist hratt versnandi kjörum. Getur hafa breytt hlutföllunum þannig, að meirihlutinn sé nú loks andvígur stjórninni.
- Þjóðargjaldþrot getur síðan steypt landinu í mjög raunverulega upplausn.
Niðurstaða
Það getur verið stutt í mjög harkalega lendingu í Venezúela, en þjóðargjaldþrot mun leiða til þess að landið mun ekki geta flutt inn erlendan varning nema gegn staðgreiðslu, en þá tapar það öllu "kredit." Það má reyndar vera, að þegar séu seljendur farnir að krefjast fyrirframgreiðslu. Sem getur útskýrt af hverju vöruskortur sé ef til vill að ágerast þessar vikurnar.
En þegar Ísland var með "CDS" eða skuldatryggingaálag yfir 1.000 punktum og það fór aldrei hærra en rúmlega 1.100 punktar, þá var Ísland í því ástandi tímabundið - að það var erfitt með innflutning. Einmitt út af þess konar kröfum um staðgreiðslu. Flugleiðir meira að segja lentu stundum í vandræðum, þegar krafist var fyrirframgreiðslu á eldsneyti.
Venezúela er með "CDS" í 3.776 punktum eða 37,76%. Það þíðir að ef landið fær 100 Dollara að láni, fær það í reynd eingöngu 62,24 Dollara. En skuldar samt 100 Dollara. Restin fer í áhættuþóknun til þess er lánar.
Skuldir landins hljóta þegar vera að seljast gegn hressilegum afföllum.
Kv.
Utanríkismál/alþjóðamál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
10.12.2014 | 23:57
Sennilega er mikilvægasta niðurstaða skýrslu bandaríska þingsins um pyntingar á vegum CIA sú að þær pyntingar hafi ekki skilað nothæfum gögnum
Þetta hefur verið vitað lengi, að fólk sem er pyntað - segir hvað sem er til að losna við þjáninguna. Fer að babbla og spinna. Skv. frétt NYTimes þá kemur fram í skýrslunni, að leitin af Osama Bin Laden - leiddi ekki til niðurstöðu vegna gagna sem aflað var í gegnum pyntingar. Heldur var að þakka, hefðbundnum aðferðum við gagnaöflun - þ.e. að fylgjast með grunsamlegum einstaklingum, leita upplýsinga frá öðrum leyniþjónustum, og ekki síst þegar menn nálguðust sporið að hlera síma þeirra sem taldir voru grunsamlegastir.
Senate Report Rejects Claim on Hunt for Bin Laden
Ef það er einhver ástæða að ætla, að þær pyntingar sem stundaðar voru í tíð Bush forseta verði ekki endurteknar, þá er það sennilega sú niðurstaða að þær séu gagnslausar.
Það er ef til vill kaldhæðið að segja þetta - en mig grunar að þetta sé megin ástæða þess, að pyntingar hafi almennt séð fallið í ónáð; þ.e. ekki vegna þess að þær séu taldar rangar, heldur að þær skili ekki gagnlegum upplýsingum.
Því miður hef ég það dökka sýn á manninn - - að ég tel, að ef annað gilti um, að pyntingar raunverulega virkuðu - - > Þá stunduðu öll ríki heims, pyntingar enn þann dag í dag. Gagnrýnisraddir væri settar til hliðar, ekki á þær hlustað.
Mannréttindalögfræðingar vilja að höfðuð verði dómsmál!
Ég tek algerlega undir það, en að mínum dómi væri það mjög sterkur leikur fyrir Bandaríkin - - sem mundi fara mjög langt með það, að lagfæra þann álitshnekki sem Bandaríkin hafa orðið fyrir síðan Bush forseti tók þá ákvörðun að hefja "ólöglegt" stríð í Írak - og ekki síst er hann heimilaði pyntingar.
En þegar Íran-Contra skandallinn, fór hátt í tíð Reagan, þá lyktaði hann með því, að dómsmál voru höfðuð og þau leiddu til sakfellingar.
CIA torturers should be prosecuted, say human rights groups
Amid Denuciations of Torture, Some Praise for U.S. Openness
Obama hefur ef til vill það sem mætti kalla - lokatækifæri til að sýna að einhver töggur sér í karlinum. Hann þarf ekki að hafa áhyggjur af endurkjöri, þegar 2-ár eru eftir að síðara kjörtímabili.
Hann hefur vel efni á því, að taka slíka ákvörðun - bandaríska þingið eftir allt saman getur ekki orðið honum andsnúnara en það þegar er.
Þó að flestir Repúblikanar virðast gagnrýna skýrsluna, þá vakti athygli að McCain gerði það ekki, heldur þakkaði höfundum fyrir gott verk - - > Enda varð hann sjálfur fyrir pyntingum er hann var flugmaður eftir að hafa verið skotinn niður yfir Víetnam.
- Bandaríkin mega eiga að það er út af fyrir sig - sigur að skýrslan kom fram, fékkst birt.
- Ég skal segja, að ég býð þess með eftirvæntingu að Pútín fyrirskipi sambærilega rannsókn innan Rússlands, á hegðan eigin leyniþjónustu :)
Niðurstaða
Vonandi hefur Obama smávegis hugrekki, til þess að fyrirskipa formlega dómsrannsókn á athæfi starfsmanna CIA. En þ.s. ætti að gera dómsmál möguleg er ekki síst það atriði, að í fjölda tilvika virðast starfsmenn CIA hafa gengið lengra - - en útgefin viðmið Bush stjórnarinnar formlega heimiluðu.
Að hefja dómsrannsókn, væri sennilega besta vítamínssprauta sem Bandaríkin gætu framkvæmt, til að lagfæra þann álitshnekki sem Bandaríkin urðu fyrir í tíð Bush.
Það væri sérdeilis gagnlegt, nú þegar -nýtt Kalt Stríð er líklega að hefjast- fyrir Bandaríkin að nýju, að hækka sig í áliti annarra þjóða.
En Bandaríkin munu þurfa á velvild annarra þjóða að halda, þ.s. þau munu þurfa á samvinnu annarra þjóða að halda, eins og í síðasta "Kalda Stríði."
Kv.
Utanríkismál/alþjóðamál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Einar Björn Bjarnason
Nýjustu færslur
- Er samningur Trumps við Japan - er inniber 550 milljarða$ fjá...
- Hótel-bókanir í sumar, gefa vísbendingar um kjaraskerðingu al...
- Kjarnorkuáætlun Írana hefur líklega beðið stórtjón, fremur en...
- Netanyahu, virðist hafa hafið stríð við Íran - beinlínis til ...
- Trump ákveður að senda, Landgönguliða - til Los-Angeles! Kemu...
- Möguleiki að Úkraína hafi í djarfri árás á flugvelli sumir mö...
- Yfirlýsing Trumps um yfirvofandi 50% tolla á ESB lönd, afhjúp...
- Tollar Bandaríkjanna á Kína - líklega ca: 50%. Kína á Bandarí...
- Að það verður af hráefnasamningi Úkraínu og Bandaríkjanna - v...
- Margt bendi til yfirvofandi kreppu í Bandaríkjunum! Skv. áhug...
- Vaxandi líkur á að Trump, reki: Jerome Powell. Yfirmann Seðla...
- Gideon Rachman hjá Financial Times -- útskýrir af hverju, Ban...
- Trump undanskilur frá tollum á Kína -- snjallsíma, og nánast ...
- Talið af sérfræðingum, verðfall á ríkisskuldabréfum Bandaríkj...
- Viðskiptastríðsyfirlýsing Donalds Trumps gagnvart heiminum li...
Nýjustu athugasemdir
- Er samningur Trumps við Japan - er inniber 550 mil...: Þetta minnir á æsinginn vegna þotunar sem Katarar ætla að gefa ... 7.9.2025
- Er samningur Trumps við Japan - er inniber 550 mil...: Að vera ALGER andstæðingur Trumps er eitt en að komameð svona a... 7.9.2025
- Er samningur Trumps við Japan - er inniber 550 mil...: Þannig að þú heldur að Trump sé mútuþegi eða þjófur á þessu fé?... 6.9.2025
Eldri færslur
2025
2024
2023
2022
2021
2020
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
Bloggvinir
-
eyglohardar
-
bjornbjarnason
-
ekg
-
bjarnihardar
-
helgasigrun
-
hlini
-
neytendatalsmadur
-
bogason
-
hallasigny
-
ludvikjuliusson
-
gvald
-
thorsteinnhelgi
-
thorgud
-
smalinn
-
addabogga
-
agnarbragi
-
annabjorghjartardottir
-
annamargretb
-
arnarholm
-
arnorbld
-
axelthor
-
arnith2
-
thjodarsalin
-
formosus
-
birgitta
-
bjarnijonsson
-
bjarnimax
-
westurfari
-
virtualdori
-
bookiceland
-
gattin
-
davpal
-
dingli
-
doggpals
-
egill
-
jari
-
einarborgari
-
einarsmaeli
-
erlaei
-
ea
-
fannarh
-
fhg
-
lillo
-
gesturgudjonsson
-
gillimann
-
bofs
-
mummij
-
gp
-
gudmbjo
-
hreinn23
-
gudrunmagnea
-
gmaria
-
topplistinn
-
skulablogg
-
gustafskulason
-
hallurmagg
-
haddi9001
-
harhar33
-
hl
-
diva73
-
himmalingur
-
hjaltisig
-
keli
-
fun
-
johanneliasson
-
jonsullenberger
-
rabelai
-
jonl
-
jonmagnusson
-
jonvalurjensson
-
thjodarskutan
-
gudspekifelagid
-
juliusbearsson
-
ksh
-
kristbjorg
-
kristinnp
-
larahanna
-
leifurbjorn
-
lifsrettur
-
wonderwoman
-
maggij
-
elvira
-
olafureliasson
-
olinathorv
-
omarragnarsson
-
ottarfelix
-
rafng
-
raksig
-
redlion
-
salvor
-
samstada-thjodar
-
fullvalda
-
fullveldi
-
logos
-
duddi9
-
sigingi
-
sjonsson
-
sigurjons
-
stjornlagathing
-
athena
-
stefanbogi
-
lehamzdr
-
summi
-
tibsen
-
vala
-
valdimarjohannesson
-
valgeirskagfjord
-
vest1
-
vignir-ari
-
vilhjalmurarnason
-
villidenni
-
thjodarheidur
-
valli57
-
tbs
-
thorgunnl
-
thorsaari
-
iceberg
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (14.9.): 7
- Sl. sólarhring: 7
- Sl. viku: 37
- Frá upphafi: 871090
Annað
- Innlit í dag: 6
- Innlit sl. viku: 30
- Gestir í dag: 6
- IP-tölur í dag: 6
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar