Stjórnmálasamtök Alexei Navalny - flokkuð sem hryðjuverkasamtök í Rússlandi, sett í bann vera meðlimur gert að margra ára fangelsissök. Sýnir Rússland í dag lítt skárra alræðinu í Sovétríkjunum sálugu

Þetta er auðvitað allt fullkomlega absúrd - eðlileg stjórnmálastarfsemi er flokkuð sem undirróðursstarfsemi, eðlilegt stjórnmálastarf sem hættuleg tilraun til að steypa samfélaginu, og það að leitast við að skipuleggja almenn mótmæli er telst sjálfsagður réttur í öllum líðræðisríkjum er flokkað sem hryðjuverk!
--Rússland Pútíns í dag, virðist komið nærri í sama alræðisfyrirkomulag, og gamla Sovétið.

  1. Bendi á að ég hef álitið Pútín -- kommúnista árum saman.
  2. Enda þjóðnýtti hann allan auðlynda-rekstur, sem þíðir að nær öll útflutnings-verðmæti Rússlands, eru rekin af ríkis-rekstri.
    Tja eins og alltaf var í tíð Sovétsíns.
  3. Þar fyrir utan, hefur - meint lýðræði Pútíns - ætíð verið á yfirborðinu eingöngu.
    Andstæðingar einungis umbornir - svo lengi sem þeir voru ekki, ógn.
    Um leið og þeir hafa orðið það, hafa þeir ímist verið drepnir - settir í fangelsi fyrir upplognar sakir, Pútín lét framkv. eins og vitað er morðtilræði gegn Navalny, þar fyrir utan hefur hann áður setið í fangelsi fyrir upplognar sakir, og var aftur settur í fangelsi eins og frægt er -- -- hefur nú árum saman við blasað að ekkert raunverulegt réttarfar tíðkast í Rússlandi.
    --Lögregla sem og dómstólar, einungis valda-tæki.
    --Sama gilti í tíð Sovétsíns.
    --Navalny er í dag, ekkert annað en klassískur andófsmaður, eins og t.d. Sakarov var í tíð Sovétsins.
  4. Og auðvitað, Pútín birtir þær kosninga-tölur sem honum hentar.
    --Þar fyrir utan, ber að varast að taka mark á skoðana-könnunum, þó Pútín hafi lævíslega notað erlend fyrirtæki til að vinna þær kannanir, er þekkt að í alræðir-ríkjum er fólk hrætt, m.ö.o. það segist styðja ríkið þó það geri það ekki endilega; vegna þess að það er hrætt að segja annað gagnvart ókunnugum.
    --Ég er handviss, að margir sem segjast styðja Pútín - gera það einungis því viðkomandi séu hræddir, hann sé miklu minna vinsæll en kannanir hafa sínt í gegnum árin.

Heilt yfir sé einungis um að ræða framhlið - í reynd alræði lítt skárra en Sovétið.

Russia outlaws Alexei Navalny’s organisations as ‘extremist’

  1. FBK and Navalny’s headquarters are recognised as extremist organisations,
  2. As a result, their activities are prohibited on the territory of Russia, and all employees who continue to work for them are threatened with real jail time.
  3. created conditions for destabilising the social and sociopolitical situation under the guise of their liberal slogans . . . taking people to the streets in order to forcibly change the government

    Ha, ha - að vekja athygli á málstað sínum, er sem sagt - undirróður ætlað að grafa undan samfélaginu.
    --Starf sem sérhver stjórnmálahreyfing í lýðræðis-ríki stundar.
    Að standa fyrir mótmælum. Tilraun til valdaráns.
    --Einnig starfsemi er telst eðlileg og sjálfsögð í lýðræðisríkjum.

  4. Prosecutors also said that FBK payments, made to help protesters detained by police with legal fees, should be classed as -- financing of extremist activities

    Eins og sést þarna, hefur verið ákveðið - að skilgreina þátttöku í mótmælum.
    --Sem þátttöku í hryðjuverkum. Sérhver aðstoð við þá sem hafa verið handteknir við mótmæli, sé þá -- fjármögnun hryðjuverka.
    **T.d. ef greitt er fyrir lögfræði-aðstoð.

Auðvitað er það dæmi um hryðjuverka-starfsemi, hvernig hreyfing Navalny hefur verið að afhjúpa ótrúlega spillingu sem telst eðlilegur hlutur af starfsemi ríkisvalds Pútíns.
Í nokkrum fjölda tilvika, hefur flokkur Pútíns breytt lögum, til að banna tiltekna leið sem samtök Navalny beittu, er tiltekin spilling var afhjúpuð - sem sýni að spillingar-dýkinu í Kreml, mislíki slíkar afhjúpanir.
Enda grafa þær undan stuðningi almennings við það spillingarhæli, sem Kreml er í dag.

  • Hversu hart er brugðist, er auðvitað ákveðið hrós til hreyfingar Navalny.
  • Rússlands-stjórn væri ekki að bregðast svo hart við, ef afhjúpanir samtaka Navalny og það fylgi sem samtök Navalny hefur öðlast -- væri engin ógn við alræðið í Kreml.

Auðvitað með þessu: Getur vart verið annað en að flest fólk átti sig á því.
Að Pútín-istan er í reynd alræðis-ríki, lítt skárra Sovétinu gamla.

 

Niðurstaða

Þá er það svo, að keisarinn í Kreml, hefur sínt hramm sinn. Það er ekki nóg að myrða andstæðinga á erlendri grundu - að myrða þá í landinu sjálfu - að gera tilraunir til að myrða andstæðinga þegar þær misheppnast - að fangelsa andstæðinga fyrir upplognar sakir.

Þessar aðferðir greinilega duga keisaranum í Kreml ekki lengur.
Þannig að keisarinn í Kreml, virðist nú loks hafa tekið grímuna niður.

Og bannað formlega stjórnmála-hreyfingu -- fyrir starfsemi, sem í öllum atriðum hélt sig innan ramma sem mundi teljast dæmi um sjálfsagða og eðlilega pólitíska starfsemi í sérhverju raunverulegu líðræðis-ríki.

Héðan í frá getur það ekki verið, að einhver verulegur fjöldi manns.
Virkilega sjái það ekki, að Pútín-istan er í reynd alræði mjög nærri eins slæmt og það er tíðkaðist í Sovét.

--Gamli komminn í Kreml, lætur ekki að sér hæða.

 

Kv.


Bloggfærslur 9. júní 2021

Um bloggið

Einar Björn Bjarnason

Höfundur

Einar Björn Bjarnason
Einar Björn Bjarnason
Stjórnmála- og Evrópufræðingur. Áhugi á stjórnmálum, Evrópumálum, alþjóðamálum, málefnum Miðausturlanda, trúmálum, vísindum og tækni, og margt fleira.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Eldri færslur

2024

2023

2022

2021

2020

2019

2018

2017

2016

2015

2014

2013

2012

2011

2010

2009

2008

Nýjustu myndir

  • Mynd Trump Fylgi
  • Kína mynd 2
  • Kína mynd 1

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 5
  • Sl. sólarhring: 30
  • Sl. viku: 491
  • Frá upphafi: 847146

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 467
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband