Loksins sú skynsama ákvörðun tekin að verja ekki Suðurstrandaveg! Skildi eiginlega aldrei af hverju fólki kom það yfir höfuð til hugar svo bersýnilega fullkomlega ómögulegt!

Veruleikinn loksins hefur komist til skila:

  1. Slík aðgerð mundi aldrei heppnast.
  2. Að hún yrði samtímis afar kostnaðar-söm.

Að slík tilraun yrði miklu muna dýrari var að sjálfsögðu strax ljóst.
Enda svæðið þar sem hraunið nú rennur - miklu mun víðara.
Þar með að garður yrði að vera samsvarandi stærri að lengd.
Þar fyrir utan dugðu ekki 8 metra garðar er prófaðir voru.
--Þannig að spurningin var þá, að gera mun lengri garð samtímis hærri.

Það var fyrirfram ljóst að kostnaður yrði hundruðir milljóna.
Samtímis að nær engar líkur á að garður mundi duga til verks.
--M.ö.o. að hraun mundi án nokkurs minnsta vafa, fara yfir fyrir rest.

Það virðist einnig misskilningur uppi um Heima-Eyjar-Gos.
En þar var hraun-straumur aldrei stöðvaður af mannavöldum.
Það eina sem hraun-kæling gerði var að hraunið rann þykkar og hægar.
--Ástæða þess að það varð redding úr því, að gosið hætti.

  • Annars hefði það hraun runnið áfram fram og yfir allt þ.s. vonir voru til að bjarga.
  1. Maðurinn á sér einfaldlega lítils gegn hraun-straum.
  2. Ef gosið hætti ekki - heldur, heldur stöðugt áfram.
  3. Þ.e. eldstöð bætir stöðugt í, það safnast því upp sífellt meir.
  4. Þannig að enginn veggur - getur mögulega haldið.

Hraunið í Nátthögum - fyrir einum degi síðan! Ekki rosalega langt til sjávar!

Ljósleiðari Mílu í Nátthaga kominn undir hraun | Fréttasafn | Míla ehf

Þetta sagði ég síðast:

Ekki héldu blessuðu stíflurnar lengi er reistar voru ætlað að stoppa að hraun flæddi að Suðurstrandavegi!.

Fréttir:

Hefði kostað hundruð milljóna að verja Suðurstrandarveg

Ekki reynt að stöðva hraunrennsli yfir Suðurstrandarveg

 

Vegna þess jarðfræðingur er spurð um lengd goss!

Mínar hugleiðingar - að benda á atburðarásin hefst í kjölfar, rekhreyfingar á svæðinu þarna undir - m.ö.o. að Reykjanes-rekhriggurinn þarna virkjaðist og í jarðskjálftahrinu, færðist landið til.
--Það er í sundur, eins og við vitum þá rekur Atlantshafsplötu frá Ameríkuplötu.

  1. Ef fólk man aftur allar þær vikur er jarðskjálfar gengu yfir -- vikum saman.
  2. Þá smám saman áttuðu jarðfræðingar sig á, að kvika var farin að streyma undir landinu á svæðinu við Fagradals-fjall.
  3. M.ö.o. að rekhreyfingin rétt á undan, hefði opnað kviku-gang lóðrétt niður í hyldýpi Jarðar, m.ö.o. 20km. niður undir skorpuna.
  • Punkturinn er sá, sennilega þarf aðra rekhreyfingu á sama stað, til að loka aftur.
  • Það getur enginn vitað hve lengi við þurfum að bíða eftir næstu rekhreyfingu á nákvæmlega sama stað.

--En svo lengi grunar mig þetta gos standi, m.ö.o. ár - áratugi - jafnvel meir en 100 ár.
En dæmi er um svo langt dyngju-gos á Reykjanes-skaga sem meir en 100 ára að lengd.
Gæti verið að það hafi verið - Heiðin Há - er gaus það lengi.

  • En punkturinn er sá, að þetta er líklega sígos - er standa mun afar afar lengi.

Það er að sjálfsögðu af hverju algerlega borin von var um að stoppa þau hraun sem frá því streyma, því einfaldlega að eldstöðin hættir ekkert að bæta í.
--Sem þíðir, að hraunið hækkar þá stöðugt baki sérhverjum þeim garði okkur getur komið í hug að reisa, fer síðan óhjákvæmilega yfir.

  • Sem betur fer er þessi tegund gosa afar sjaldgæf á Íslandi, þ.e. síðast 8.000 ár.

Gerfihnattamynd sýnir staðsetningu hrauns miðað við Grindavík!

Gervihnattamynd sýnir hraunstrauminn í Nátthaga

Þetta verður á hinn bóginn líklega hið fullkomna túristagos

Eins og ráða má á mynd - verður það afar sýnilegur atburður frá byggðinni við Grindavík.
Er hraunið nær til sjávar!
Ég reikna með að útsýnisstaðir verði settir upp á ströndinni.
Þannig að fólk dugar í mörgum tilvikum að staldra við í Grindvík út með strönd innan byggðar.
Og horfa á hraunið er það mætir sjó.
En þar rökrétt verða læti og hamagangur stöðugt, ásamt gríðarlegri gufu.

Ef eins og líkum lætur þetta stendur yfir árum saman, jafnvel áratugum.
Þá verður þarna lyfibrauð byggðarinnar mikið þar af.

  • Ég held að menn þurfi ekki að sakna vegarins.

Gosið verður væntanlega eitt megið stopp túrista er fara um Ísland.
Og þeir komi þá við í Grindavík.

 

Niðurstaða

Menn verða auðvitað að halda sig á Jörðinni er kemur að hugmyndum hvað hægt sé að gera.
Mig grunar að hugmyndir er snúa að vörn mannvirkja verði afar erfiðar í framkvæmd.
T.d. er gufuvirkjun í Svartsengi, í lægð.
Mjög erfitt að sjá hvernig sú virkjun yrði varin er hraun streymdi að.
--En greinilega getur garður ekki virkað, er væri settur þver fyrir.

Hugsanlega má ímynda sér - leiðigarð.
Slíkur mundi liggja á halla upp í hraun-straum, og ætlað að leiða hann framhjá mannvirki.
Vandi við slíkan augljóslega sá - menn þurfa að hafa hugmynd um líklega stefnu straums.
--En erfitt að sjá að slíkur garður virki, nema hann liggi rétt á slíkan straum.

En straumur verður þá að - geta greiðlega runnið meðfram.
Garðurinn verði að leiða hann greiðlega framhjá.
--Það líklega þíði, nánast sé óhugsandi að reisa slíkan - nema á síðustu stundu.

Þ.s. hvar gos akkúrat kemur upp, ræður öllu um stefnu hraun-strauma.
-------------

Þetta er augljósi vandinn við hugmyndir um varna-garða fyrir mann-virki.
Að nánast óhugsandi sé að þeir yfir höfuð virki.
--Nema að menn viti nokkurn veginn hvernig straumur liggur er garður er reistur.

Þá sé nánast óhugsandi að reisa garða fyrir-fram sem sennilegt sé að yfir höfuð virki.

 

Kv.


Bloggfærslur 19. júní 2021

Um bloggið

Einar Björn Bjarnason

Höfundur

Einar Björn Bjarnason
Einar Björn Bjarnason
Stjórnmála- og Evrópufræðingur. Áhugi á stjórnmálum, Evrópumálum, alþjóðamálum, málefnum Miðausturlanda, trúmálum, vísindum og tækni, og margt fleira.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Eldri færslur

2024

2023

2022

2021

2020

2019

2018

2017

2016

2015

2014

2013

2012

2011

2010

2009

2008

Nýjustu myndir

  • Mynd Trump Fylgi
  • Kína mynd 2
  • Kína mynd 1

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 28
  • Sl. viku: 488
  • Frá upphafi: 847143

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 464
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband