Spurning hvort Donald Trump hefur beðið ósigur í vegg málinu - í kjölfar samþykkis hans á skammtímasamkomulagi um opnun bandaríska ríkisins

Mér virðist niðurstaðan af deilum undanfarinna vikna sína, samningsstaða Donalds Trumps um hinn umdeilda landamæravegg sé líklega ekki nægilega sterk til þess að hann nái að knýja fjármögnun hans fram.
--Það sé freystandi að túlka útkomuna sem ósigur.

Trump wounded by border wall retreat in deal to end shutdown

Trump signs bill to end US government shutdown

Trump finds himself outplayed over US government shutdown

  1. Það sem virðist hafa gerst, að þingflokkur Repúblikana hafi blikkað.
  2. Þegar það hafi verið ljóst, hafi Trump ekki átt annan valkost en að - undirrita þann gerning sem þing-Repúblikanar og þing-Demókratar voru búnir að sjóða saman.

En um leið og tillaga hefur líklega 2/3 meirihluta, á forseti ekki annan kost en að skrifa undir.
--Sambærileg útkoma varð á sl. ári, er Donald Trump beitti lokun ríkisins eins og nú fyrir sinn vagn, í von um að þvinga fram vegg fjármögnun, og þá einnig fóru mál þannig, að fyrir rest - myndaðist 2/3 meirihluti.
--Hafið í huga, þá fóru Repúblikanar með meirihluta í báðum deildum, nú einungis í annarri.

 

Ástæða þess að Repúblikanar blikka?

Vísbendingar um það - að lokun ríkisins væri farin að valda umtalsverðum truflunum á starfsemi efnahagslífs Bandaríkjanna.
--Væntanlega hafa margir forsvarsmenn fyrirtækja, hring í þá þingmenn sem þeir eiga greiða.

On Friday, flights in the New York area were disrupted because of air traffic controller staffing shortages, underscoring the risks to the country’s transport network. -- Kevin Hassett, the chairman of the president’s Council of Economic Advisers, has acknowledged a continued shutdown for the whole quarter could drive economic growth to zero. 

Mér skilst að afgreiðsla pappíra fyrir innflutning og útflutning, hafi verið farin að tefjast - langar biðraðir á flugvöllum því færri tollverðir voru á vakt -- auðvitað tafir á afgreiðslu pappíra almennt, allt frá heimild til innflutnings - til ferða VISA til útgáfu nýrra passa, auðvitað afgreiðsla leyfa og heimilda af margvíslegu tagi.

Þó margir haldi að ríkið sé ekki að gera neitt - þá sinnir nútímaríki mjög margvíslegri þjónustu sem er hagkerfinu nauðsynleg - og þegar það sinnir ekki þeirri þjónustu, eða það eru miklar tafir á þeirri þjónustu -- þá fara að safnast upp vandamál.

Flestir fjölmiðlar virðast sammála þeirri túlkun.
Að niðurstaðan sé ósigur fyrir Donald Trump.

  • Hann er með hótanir um að endurtaka leikinn eftir 3-vikur, ef niðurstaða samninga milli Repúblikana og Demókrata á þingi, er ekki honum að skapi.
  • Hvað um það, þetta var lengsta lokun ríkisins í sögunni - 35 dagar.

Donald Trump segist ætla halda áfram að berjast fyrir veggnum.
En eftir ósigur í málinu - 2 ár í röð á þingi.
--Er það opin spurning, hvort hann eigi raunhæfa möguleika á að þvinga þingið til að samþykkja þessa vegg-fjármögnun?

 

Niðurstaða

Hvort sem menn eru sammála því hvort útkoma málsins er ósigur Trumps eða ekki, þá fá loks starfsmenn ríkisins - sem þurftu að vinna launa-laust því þeir voru skilgreindir nauðsynlegir, laun sín greidd þó eftir dúk og disk sé.
Hinn bóginn, þeir sem fóru í launalaust frý þ.e. meirihlutinn, væntanlega fá ekkert.

Almenningur í Bandaríkjunum virðist a.m.k. álíta niðurstöðuna ósigur Trumps.
Svokallað "job approval rating" forsetans mælist nú skilst mér milli 30-40%.
Og mældar óvinsældir hans aftur komnar í 58%.
--Ekki það að þorandi sé að afskrifa Trump, þó það styttist í kosningaárið 2020.

 

Kv.


Bloggfærslur 26. janúar 2019

Um bloggið

Einar Björn Bjarnason

Höfundur

Einar Björn Bjarnason
Einar Björn Bjarnason
Stjórnmála- og Evrópufræðingur. Áhugi á stjórnmálum, Evrópumálum, alþjóðamálum, málefnum Miðausturlanda, trúmálum, vísindum og tækni, og margt fleira.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Eldri færslur

2024

2023

2022

2021

2020

2019

2018

2017

2016

2015

2014

2013

2012

2011

2010

2009

2008

Nýjustu myndir

  • Mynd Trump Fylgi
  • Kína mynd 2
  • Kína mynd 1

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 87
  • Sl. sólarhring: 101
  • Sl. viku: 439
  • Frá upphafi: 847080

Annað

  • Innlit í dag: 82
  • Innlit sl. viku: 416
  • Gestir í dag: 80
  • IP-tölur í dag: 76

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband