Trump, lausnin á ofbeldi tengt skotvopnum - fleiri skotvopn auðvitað!

Sjálfsagt gat maður ekki reiknað með öðru frá Trump, en hann legði til sem leið til meintrar lausnar á því vandamáli sem fylgir - óðum byssumönnum, að lausn lægi í því að vopna tilteknar lykilpersónur í skólum!

Hinn bóginn tók Trump undir kröfu um - aukið eftirlit með því, hverjir kaupa skotvopn.
En víða er slíkt eftirlit í algeru skötulíki - þannig að hættulegir einstaklingar virðast alltaf geta útvegað sér mjög öflug skotvopn, án þess að nokkur depli auga.

Og hann leggur til bann við því að breyta hálfsjálfvirkum vopnum í vélbyssur.

Trump brosandi með gamlan framhlaðning!

Image result for trump gun violence

Trump says arming teachers could prevent school massacres

Trump addresses gun violence, vows to be 'very strong on background checks'

Trump orders regulations drawn up to ban bump stocks


Til að hafa allt sanngjarnt, er tvennt af því sem Trump leggur til - til bóta!

Bann á svokölluðum "bump stocks" en um er að ræða - aukahlut sem unnt er að kaupa við sumar hálfsjálfvirkar byssur, sem lætur þær virka sem - sjálfvirkar byssur eða m.ö.o. vélbyssur.
--Þannig hafði einstaklingurinn er drap tugi manna á sl. ári í Las Vegar breytt sínum skotvopnum, er hann lét kúlum rygna yfir gesti útitónleikahátíðar fyrir utan hótelgluggann þ.s. hann sat með skotvopnin sín.

Hálfsjálfvirkir ryfflar eru slæmir - en enn verra er ef unnt er að breyta þeim þannig að þeir skjóti eins og vélbyssa.

Bætt rannsókn á bakgrunni kaupenda er einnig til bóta, og a.m.k. getur hindrað einhver tilvik - enda dæmi um það að einstaklingar með feril sem veitir vísbendingar um að þeir geti verið hættulegir, kaupi skotvopn löglega án þess að athugasemd sé gerð við.

Hinn bóginn, var sá sem drap tugi í Las Vegas ekki á nokkurri skrá sem vandræðamaður.

  1. M.ö.o. sé meginvandinn - hve gríðarlega útbreidd öflug skotvopn eru innan Bandaríkjanna.
  2. Þannig að í nær öllum tilvikum sem mannskæðar skotárásir fara fram, hefur viðkomandi fjárfest í þeim vopnum með löglegum hætti - virðist ekkert vandamál að ferðast um með heilu vopnabúrin í farteskinu.
  3. En þetta þíðir einnig, að vopn eru ekki dýr - á svörtum markaði. Þannig að þó bakgrunns athugun fari fram - vegna þess hve mikið sé um vopn, sé líklega auðvelt að afla sér þeirra samt sem áður.
    --Viðkomandi taki þá áhættu að vopnin geti verið gerð upptæk ef kemst upp að viðkomandi hafi ekki leyfi fyrir þeim.
    --Hinn bóginn, sé ekki endilega mjög líklegt, að gengið sé að viðkomandi og tékkað hafandi í huga hve algengt sé í Bandar. að fólk gangi með skotvopn á almannafæri.

Trump leggur til að vopna og þjálfa kennara -: "If you had a teacher ... who was adept at firearms, it could very well end the attack very quickly,"

  • Tæknilega rétt - hinn bóginn í tilviki nýlegrar árásar, hefði viðkomandi fyrrum nemandi þekkt kennarana - væntanlega skotið kennarann fyrst sem væri nærstaddur.
  • Síðan veitti sá nemendum fyrirsát á göngum skólans - réðst ekki til atlögu inni á skólastofu þ.s. kennari væri staddur.

--Ég sé ekki að slík hugmynd hindri byssumann í því að drepa nemendur - eins og dæmið í Las Vegas sýnir, þá skaut sá maður af tuga metra færi.
--Sá sem beitti skotvopni í nýlegri árás var líklega ekki eins fær, en sá setti brunabjöllu af stað - menn uggðu ekki að sér að það gæti verið váboði, byssumaður sat fyrir nemendum er þustu út á ganga.
--Fyrir utan þetta, virðist mér augljóst að einfalt sé að komast að því hvenær kennslustundir líklega klárast - stundatöflur séu yfirleitt aðgengilegar á neti í dag, fyrrum nemandi ætti sérstaklega að þekkja slíka þætti.
--Flestir byssumenn sem ég man eftir á seinni árum, skutu sjálfa sig að verki loknu. Slíkir ættu ekki endilega að láta það stoppa sig að verið geti að vopnaður kennari mæti fljótt á vettvang eftir að skothríð er hafin -- en með öflugu skotvopni tekur lítinn tíma að fella fjölda manns.

Punkturinn er sá, að verið geti að vopnaður kennari skjóti byssumann - en líklega ekki fyrr en sá hefur þegar skotið nokkra!
Bendi á að þegar vopnaður byssumaður skaut á Ronald Reagan fyrir mörgum árum, Brady varð fyrir skoti og Reagan særðist þó minna - þá tókst það þrátt fyrir fjölda vopnaðra varða.

 

Niðurstaða

Ég er þeirrar skoðunar að eina leiðin til þess að fækka verulega tilvikum þeim að tugir manna séu við og við drepnir í Bandaríkjunum - sé að taka alfarið úr almennri umferð öll hálfsjálfvirk vopn.

Hægt væri að hafa sömu reglu og í Sviss - það að einstaklingur verði að vera meðlimur í byssuklúbbi, skotvopn verði að varðveita í klúbbhúsi - megi ekki fara þaðan. Það gæti verið eina undantekningin fyrir því að heimila eign á hálfsjálfvirku vopni.

--Þetta virðist mér alveg duga til að mæta stjórnarskrá Bandaríkjanna, þ.s. skotvopnaeign er skilgreindur sem réttur.
--En ekkert er að því að samfélag setji slíkum rétti ströng skilyrði, til þess að verja sig.
--Enda var upphafleg hugmynd að baki stjórnarskrárákvæðinu, að verja samfélagið fyrir 200 árum þegar víða bjó fólk á svæðum þar sem ríkið gat lítt verndað borgarana.

En 200 árum síðar, þá er upphafleg ástæða vart lengur fyrir hendi. Í Sviss tryggir þessi leið það að algengt er að karlar séu færir í meðferð vopna. Það dugar mæta vel til að tryggja varaliðs þörf svissneska hersins. Þannig að ég sé ekki annað en að svissneska leiðin ætti að geta virkað mjög vel fyrir Bandaríkin.
--En svissnesk skotvopnalöggjöf er raunverulega gríðarlega ströng.

 

Kv.


Bloggfærslur 22. febrúar 2018

Um bloggið

Einar Björn Bjarnason

Höfundur

Einar Björn Bjarnason
Einar Björn Bjarnason
Stjórnmála- og Evrópufræðingur. Áhugi á stjórnmálum, Evrópumálum, alþjóðamálum, málefnum Miðausturlanda, trúmálum, vísindum og tækni, og margt fleira.
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Eldri færslur

2024

2023

2022

2021

2020

2019

2018

2017

2016

2015

2014

2013

2012

2011

2010

2009

2008

Nýjustu myndir

  • Mynd Trump Fylgi
  • Kína mynd 2
  • Kína mynd 1

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 40
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 33
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband