2.4.2015 | 02:59
Loftárásir Saudi Araba virðast ekki megna að stöðva framsókn bandamanna Írans í Yemen
Það er merkilegt að verða vitni að því - hve veldi Írans fer hratt vaxandi. En í dag er shíta ríkisstjórnin í Íran - raunverulega bandamaður Írans. Ef út í þ.e. farið gerði George Bush Írönum stórfenglegan greiða, með því að leggja í rúst ríkisstjórn Saddams Hussain.
Það sýndi vel hve lítinn skilning hinir svokölluðu -ný íhaldsmenn- höfðu á Mið-Austurlöndum, að þeir virtust ekki hafa nokkurn hinn minnsta skilning á því; hverjar mundu verða líklegar afleiðingar þess - að leggja Bath flokkinn er tryggði áður yfirráð minnihluta Súnní Araba í Írak í rúst.
- En mér virtist þá þegar - sterkar líkur á að ef ríkisstjórn væri valinn í gegnum kosningar.
- Þá mundi það leiða óhjákvæmilega til þess, að flokkar meirihluta Shíta mundu þar með komast til valda.
- Og það virtist rökrétt að það mundi leiða til þess að stjórnvöld Írak yrðu þá vinveitt Íran.
Það var aldrei neinn vottur þess að -ný íhaldsmennirnir- skildu þetta einfalda grunnatriði.
Þetta auðvitað leitti til þess - að valdahlutföll milli Írans og Súnní-araba ríkja, röskuðust.
Alla tíð síðan hefur verið völlur á Írönum - og enn virðast þeir vera að efla áhrif sín!
Bandamenn Írans virðast nú vera við það að taka næst stærstu borg Yemen!
Rebels in Yemen Battle for Control of Strategic Port City
Yemens Houthi and Saleh rebels tighten grip on Aden
"Houthi fighters backed by tanks pushed into the center of Aden on Wednesday and were battling for control of the southern port city, despite a weeklong Saudi military offensive against them." - "Witnesses reported fierce street battles and high civilian casualties in the Yemeni city on Wednesday night, including in the Khormakser district along the coast." - "Local journalists said the Houthis were facing stiff resistance from fighters allied with the exiled president, Abdu Rabbu Mansour Hadi."
- Saudi Arabar ætluðu að nota -Aden- sem 2-höfuðborg landsins, en fyrir rúmum mánuði færðu þeir sendiráð sitt þangað, og það gerðu einnig Sameinuðu Arabísku Furstadæmin.
- Ég geri ráð fyrir að þeim sendiráðum hafi nú verið lokað - en skv. fréttum standa nú yfir harðir bardagar um borgina.
- Liðssveitir þess sem var forseti landsins, þar til Houthi menn tóku höfuðborgina seint á sl. ári - - verjast enn innan Aden. Ef marka má þessar fréttir.
Það er rökrétt að leitast sé eftir því, að sækja fram meðfram ströndinni. Því eðlilega vill stjórnin í Sana -undir stjórn Houthi manna- ná hafnarmannvirkjum Aden borgar.
En ef þau falla til þeirra, þá er þar með fallin eina djúpsjávar höfnin í landinu.
Það þíðir að þar með loka væntanlega Houthi menn á þann möguleika - að nýstofnaður sameinaður herafli arabaríkja undir stjórn Saudi Arabíu - - geti sent lið til Yemen með þeirri þægilegu aðferð, að skipa liðinu á land þar sem til staðar eru nægilega umfangsmikil hafnarmannvirki, og legupláss fyrir stór skip.
Það væri sennilega umtalsverður -strategískur- sigur fyrir hin nýju stjórnvöld í Yemen.
En með falli Aden - þá verður væntanlega til mikilla muna erfiðara fyrir Saudi Araba og bandalagsríki Saudi Araba að velta stjórninni í Sana úr sessi.
- En þá væntanlega þarf að safna liðinu saman - annars staðar.
- Þar sem þessi lönd ráða ekki yfir tækjum til að gera innrás af hafi!
- Þá er vart um annað að ræða, en að safna saman her á landamærum Saudi Arabíu og Yemen.
Eins og sést á kortinu að neðan, þá þarf innrásarher sem sækir úr norðri!
Að sækja inn á hálent svæði, ef sá sækir í átt til Sana!
Það væri alls ekki auðvelt mál, að safna nægilegu liði - til þess að sækja síðan Suður yfir landamærin, síðan inn á fjall-lendið í átt til höfuðborgar Yemen.
En reikna má með því að - lið verði til varnar.
Ég eiginlega hallast gegn því, að bandalag Sauda leggi í slíkt verkefni. Þess í stað verði loftárásum líklega haldið áfram - samtímis fari Saudar og flóa Arabar í þann gýr sem þeir þekkja í Sýrlandi - - að fjármagna innlenda óvini hinnar nýju ríkisstjórnar Yemen, ásamt því að senda þeim hópum vopn.
Ahuga vekur að, Al-Qaeda, er ákaflega virk í Yemen. Og hefur haldið uppi árásum á Houthi menn, þar á meðal beitt sjálfsmorðsárásum innan Sana borgar.
Spurning hvort að Saudar - - þori að magna upp jihadistan, rétt Sunnan við eigin landamæri.
Niðurstaða
Það er nefnilega málið, að ef Saudar fara í þann gýr að efla sem mest upplausn á svæðum í Yemen, sem ekki lúta hinni nýju stjórn í Sana. Þá er langt í frá loku fyrir skotið. Að -jihadista hópar- gætu reynst stjórnvöldum í Saudi Arabíu sjálfum skeinuhættir, innan Saudi Arabíu. Í þeirri útkomu væri ef til vill - ákveðið skáldlegt réttlæti.
Kv.
Utanríkismál/alþjóðamál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.4.2015 | 03:05
Sterk staða Írans - virðist koma fram í ákvörðun Obama, að færa frestinn til að ljúka viðræðum milli Írans og 6 veldanna, til nk. þriðjudags
Mér virðist flest benda til þess að samkomulag verði á endanum náð fram - en að það muni fela í sér mjög mikla eftirgjöf gagnvart Íran! Miðað við þá afstöðu til samninga sem Vesturveldi lögðu af stað með í upphafi.
- En þá átti að tryggja að Íran geti ekki smíðað kjarnavopn.
- En það atriði virðist vera búið að gefa eftir, en skv. því hvernig ramminn lítur úr miðað við fréttir - þá er miðað við það að Íran þurfi a.m.k. 1-ár til að smíða sprengju.
- Það sem síðan gerðist um daginn, og hefur valdið vandræðum í viðræðum síðustu dagana. Er að Íranar hafa bakkað frá hugmyndum um að samþykkja að - - auðgað úran verði sent úr landi.
- Nú vilja þeir halda í landinu, þeim birgðum auðgaðs úrans sem munu safnast!
Það auðvitað þíðir! Fyrst að Íran má halda getu til að auðga nægilegt magn úrans - þannig að Íran þurfi ca. 1-ár til að smíða sprengju. Að tæknilega gæti þá Íran á 10 árum þeim sem samningurinn á að gilda, auðgað nægilegt magn úrans til að smíða 10 sprengjur.
- Það verður sennilega komið á fyrirkomulagi þar sem auðgaða úranið verður varðveitt í sérstökum hyrslum innsigluðum - og það verði reglulegt eftirlit með því að það sé ósnert.
- Eðlilega mundi slíkt eftirlit ekki gilda nema meðan samningurinn heldur gildi.
- Það áhugavrerða við það atriði - - er að með þessu getur það verið, að Íran skapi sér -öfluga hvatningu- fyrir Bandaríkin - að standa við samninginn fyrir sitt leiti.
- Jafnvel þó næsti forseti væri andvígur honum.
- Því ef honum væri sagt upp einhliða - mundu Íranar væntanlega rjúfa innsiglin og reka eftirlitsmenn úr landi.
Það sem þetta sýni - ef til vill!
Er að Íranar hafa meir en í fullu té við samningamenn Vesturvelda!
As Nuclear Talks Drag on, U.S. and Iran Find It Harder to Hear Each Other
Iran Nuclear Talks Extended to Wednesday, Negotiators Say
Magnificent Iranian negotiators haggle down to the wire
"The Iranians are magnificent negotiators, says Mark Fitzpatrick, head of non-proliferation and disarmament programme at the think-tank IISS, and the US state departments former nuclear chief. They are tactically brilliant. But the problem is sometimes that tactical brilliance can get in the way of achieving the preferred strategic outcome."
"The Iranian team in Lausanne...are playing a smart game says Mr Fitzpatrick, but if they dont agree to the compromises they are going to miss the opportunity . . . the opportunity of a lifetime. This deal isnt coming around again."
- Sjálfsagt er það rétt hjá Fitzpatrick að Vesturveldi hafa einhver rauð strik!
- Hinn bóginn, er smávegis óljóst hvar þau eru - þ.s. Vesturveldi hafa að því er best verður séð, bakkað frá því sem þau sögðu í upphafi að þau væru.
Íranar virðast aftur á móti vera að leitast við að kalla fram -sem mesta eftirgjöf Vesturvelda- samtímis og þeir lágmarka þær fórnir sem þeir færa fram!
Þeim virðist miða afskaplega vel!
Niðurstaða
Hvernig Vesturveldi fara að því er best verður séð, halloka fyrir Íran við samningaborðið. Er sennilega birtingarmynd þess - hve valdastöðu Vesturvelda fer hratt hnignandi. En þ.e. alveg ljóst að Vesturveldi ætla ekki í stríð við Íran. Þó svo að Saudi Arabía og bandamenn þeirra í furstadæmunum við Persaflóa - hafi nýverið formgert formlegt bandalag gegn Íran. Ásamt því að það arababandalag hefur hafið formleg átök við bandamenn Írana í Yemen - þ.s. þeir írönsku bandamenn á sl. ári náðu völdum. Útkoma sem virðist vera að leiða til - nýrrar stigmögnunar átaka Írans og bandalags þess sem Saudi Arabar stjórna.
- Það virðast bara 2-útkomur í boði, að Vesturveldi geri samkomulag við Íran, um frið!
- Eða að Íran sennilega hallar sér að Kína!
Það að Íran sennilega hefur þann valkost, sennilega er ástæða þess hve sterk staða Írans er við samningaborðið.
Vesturveldi hafi enga góða hótun!
Kv.
Utanríkismál/alþjóðamál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
31.3.2015 | 02:06
Alexis Tsipras fer í opinbera heimsókn til Rússlands þann 8. apríl nk.
Það áhygaverða er að 9. apríl á gríska ríkið að greiða af láni AGS frá 1-björgunarprógrammi Grikklands, sem stóð yfir frá 2010 til 2012. En greiðslur eru hafnar af AGS hluta lána frá fyrsta björgunarprógrammi Grikklands.
Þetta kemur fram í frétt NYTimes: Greece Looks to Russia as Deal With Europe Stumbles.
Það veit enginn hvað Tsipras ætlar að ræða við Pútín!
Þetta er heimsókn sem þegar var fyrirhuguð - en skv. fréttinni var henni flýtt fyrir 2-vikum. Að auki þá endaði mánudagsfundur grískra stjórnvalda við fulltrúa aðildarríkja evrusvæðis með þeim hætti - að tillögur grísku ríkisstjórnarinnar voru kafskotnar eina ferðina enn.
Þannig að staða Grikklands er enn sú sama og hún var fyrir helgi - þ.e. ekkert samkomulag. Og á sama tíma virðist ríkisstjóður Grikklands stefna i þrot þann 9/4 nk.
"Mr. Tsiprass visit to Moscow is being billed by Athens as a routine meeting to strengthen the relationship between the countries, which have longstanding political and religious ties."
Þetta getur bent til þess, að Pútín hafi ekki lofað Tsipras neinu sérstöku - mig grunar sjálfan að Rússar séu líklegir til að bíða eftir því að Grikkland er orðið greiðsluþrota. Áður en það komi einhvers konar líflína - kannski.
En hver veit - á sama tíma, fær Tsipras að hitta Pútín rétt áður en gríska ríkið stefnir í að lenda í raunverulegum greiðsluvandræðum - - en ekki er talið ólíklegt að AGS sé til í að bíða einhverja daga umfram gjald-daginn, ef AGS telur peninga væntanlega í mjög náinni framtíð.
- Eins og sést á kortinu af Balkan-svæðinu, þá er Búlgaría á N-landamærum Grikklands, annað fátækt land sem er talið vinveitt Rússlandi, og þar er einnig svokölluð "Rétttrúnaðarkirkja ráðandi" eins og í Rússlandi. Tengingin í gegnum trúna er sterk.
- Svo er Serbía nokkru fyrir Norðan. Annað land talið vinveitt Rússlandi - einnig tenging í gegnum trúna.
- Tæknilega virðist mér mögulegt fyrir Rússland, ef Rússland hefur fjárhagslega burði til þess, að mynda nýtt rússn. áhrifasvæði á Balkan-skaga. En þ.e. auðvitað stóra -ef spurningin- hvort Rússland raunverulega hefði burði til þess.
- En í gegnum Búlgaríu og Grikkland, væri þá Rússland komið með örugga tengingu við Miðjarðarhaf. Og mætti reikna með því að þeir mundu vilja flotahafnir í Grikklandi.
- Sem þannig séð - gæti talist "erlend fjárfesting."
Niðurstaða
Ekki fullyrði ég nokkurt um það - hversu líklegt það er að Grikkland hafi það sem raunhæfan möguleika að halla sér að Rússlandi í staðinn. En mér virðist a.m.k. augljóst að sú sýn sem ég teikna upp - höfðar örugglega til Pútíns. Hvort hann hafi raunverulega burði til þess að hrinda henni í framkvæmd - er svo annað mál.
Kv.
Utanríkismál/alþjóðamál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.3.2015 | 14:04
Loftárásir Saudi Araba og bandamanna þeirra á Yemen virðast hafa haldið áfram yfir helgina
Skv. erlendri pressu, þá er staðan í Yemen flóknari en svo að hún snúist eingöngu um framrás svokallaðra Houthi manna sem er Shíta hópur, heldur hafi hluti valdastéttarinnar í landinu og mikikilvægur hluti herafla landsins - gengið í lið með sveitum Houthi manna.
Það skýri öra framrás sveita Houthi manna, og snöggt fall höfuðborgarinnar nánast að því er virðiast án bardaga - seint á sl. ári.
T.d. hafi flugher landsins gengið í lið með Houthi mönnum, og eitt fyrsta skotmark árása flugherja Saudi Araba og flóa Araba hafi verið stöðvar flughers landsins, sem líklega hafi verið eyðilagðar og sennilega einnig orrustuvélar þær sem flugher Yemen réð yfir.
Síðan hafi árásum einnig verið beint að stöðvum hers Yemen - og auðvitað framrásarsveitum þeirra sveita í her Yemen sem styðja nú Houthi menn, og þær hersveitir Houthi mann sem eru nú skv. nýjustu fréttum við útjaðar Aden borgar.
Sjóherir Saudi Arabíu og flóa Araba - virðast hafa sett hafnbann á Yemen.
Fréttir hafa að auki borist af átökum sveita Houthi manna og hers Saudi Arabíu á landamærum Yemen og Saudi Arabíu. Ekki enn vitað hvort að hafin sé atlaga Saudi arabíska hersins að sveitum Houthi manna í N-hluta Yemen. Þá meina ég innrás.
Uppreisnin sem hófst seint á sl. ári virðist mun víðtækari en fyrstu fréttir hafa bent til
Þaví sem má ekki gleyma, er að landið er klofið í ættbálka - og þeir deila innbyrðis. Deilur ráðandi ættbálka meðal Súnní meirihluta landsmanna - virðast a.m.k. að hluta til, að baki því að uppreisn Houthi menn hefur náð þeim gríðarlega árangri sem hún hefur náð síðan seint á sl. ári. Framrás herja undir stjórn stjórnarinnar í Sana - hefur verið hröð.
Það virðist bersýnilegt - - að Saudi Arabía sé að missa tökin á landinu.
En síðan á 9. áratugnum, hafa ríkisstjórnir landsins - - notið stuðnings Saudi Araba og Bandaríkjanna, og verið þeim hliðhollar.
Íranir styðja Houthi menn, samtímis er þó ekki neitt sem bendi til þess, að uppreisnin sé undir stjórn Írans - - þó að hún sé líklega að fá þeirra stuðning.
Yemens former president Ali Abdullah Saleh behind Houthis rise
Houthi Forces Move on Southern Yemen, Raising Specter of Regional Ground War
Ex-Yemeni Leader Urges Truce and Successors Ouster
Houthi rebels clash with Saudi troops on Yemens northern border
Það er augljós hætta á því - að ef sveitir Saudi Araba og flóa Araba leggja gersamlega í rúst her Yemen.
Að þá leiði það til -valdatóms- í landinu, og hugsanlega algerrar upplausnar í kjölfarið.
Það virðist hugsanlegt, að herir bandalags súnní Araba ríkja undir stjórn Saudi Arabíu - gerist formlegt hernáms lið í Yemen.
Það auðvitað gæti orðið þeim afar skeinuhætt þ.s. ef einhver man enn eftir áratugs löngu hernámi Ísraels hers á stórum hluta Lýbanon á 9. áratugnum - að þá óx upp svokallaður Hesbollah flokkur meðan að á því hernámi stóð, er naut stuðnings Írans.
Ég efa ekki, að Íranar mundu styðja öflugt skærustríð Houthi manna og hvers þess sem væri andvígur hernámi Saudi Araba og flóa Araba, kannski með stuðningi hers Egyptalands - en herstjórnin þar sem er fjármögnuð af Saudi Arabíu hefur lofað að senda lið til Yemen ef höfuð Saud fjölskyldunnar í Saudi Arabíu óskar þess.
Það mundi sennilega þíða langvarandi átök í landinu, og sem líklega yrðu mjög blóðug. Og munum að hreyfing Hesbollah varð til undir hernámi Ísraela og elfdist meðan á því stóð, hvað sem sveitir Ísraela rembdust við að brjóta þeirra sveitir á bak aftur - - hersveitir Arabaríkjanna gætu orðið fyrir svipaðri reynslu í Yemen, ef þær fara með málið þetta langt.
Niðurstaða
Mér virðist enn möguleiki á því að einhvers konar samkomulag verði í Yemen. Enda virðist mér ekki blasa við að það yrði góður valkostur fyrir Saudi Araba og þeirra bandamenn meðal Arabaríkja - að hernema landið. En ég sé vart með hvernig öðrum hætti þeir mundu geta tryggt valdastöðu Saudi Arabíu í landinu.
En þ.e. þ.s. þetta snýst um tel ég fullvíst, hvort landið er talið tilheyra yfirráðasvæði Saudi Arabíu, og bandamanna Saudi Arabíu.
Í 30 ár hefur Saudi Arabíu tekist að tryggja að stjórnvöld í Yemen séu vilhöll Saudi Arabíu. En sú uppreisn sem hófst á sl. ári í Yemen - - ógnar þeirri stöðu.
En ég efa að innrás og hernám muni til lengri tíma litið, stuðla að stuðningi íbúa Yemen við valdafjölskylduna í Saudi Arabíu, eða furstana sem ráða í Arabaríkjunum við Persla flóa.
Kv.
Utanríkismál/alþjóðamál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.3.2015 | 02:21
Spurning hvort að ríkisstjórn Grikklands er að undirbúa greiðsluþrot?
En ég sá eftirfarandi á vef Financial Times: Greece to pay pensions . . . for this month. En skv. fréttum er AGS lán frá fyrsta björgunarprógrammi Grikklands frá 2010-2012, á gjalddaga þann 9. apríl nk.
Skv. frétt FT er gríska ríkisstjórnin að rembast við að safna fé:
- "Whatever needs to be paid will be paid on time that means wages, pensions and the subsidy to IKA (Greeces biggest health and social security fund), Dimitris Mardas told the Financial Times."
- "Mr Mardas could not give any assurances about a separate 450m payment to the International Monetary Fund due on April 9, which is overseen by a separate department within the ministry."
- "A new sense of alarm has surrounded Greece as several eurozone officials have come to the conclusion that the new government, led by the leftwing Syriza,..."
- "...does not have enough money to cover both the pension and IMF bills and could soon default."
Þegar þetta er tekið saman!
Dettur mér í hug, að Alexis Tsipras forsætisráðherra, hafi komist að þeirri niðurstöðu. Að hann geti lifað það af pólitískt séð - að gríska ríkið verði greiðsluþrota þann 9/4 nk. gagnvart erlendum skuldbindingum.
En að hann hafi komist samtímis að þeirri niðurstöðu, að hann geti ekki lifað það af í pólitískum skilningi, að ríkissjóður - - verði greiðsluþrota gagnvart innlendum skuldbindingum.
Svo kannski eru virkilega einungis örfáir dagar áður en gríska ríkið fer í þrot gagnvart útlöndum.
Þ.e. erfitt að sjá annað en að gríska ríkisstjórnin verði þá að - tafarlaust setja á fjármagnshöft.
Síðan að framkvæma gjaldmiðilsskipti!
Öllum bönkum og fjármálastofnunum yrði líklega að loka tímabundið - ekki seinna en þann 9/4. Og halda lokuðum, þar til gjaldmiðilsskipti hafa farið fram.
- Síðan mætti líklega fljótt - heimila rafræn viðskipti með endurreista dr0gmu.
- Þó verið geti að einhverja mánuði taki að prenta seðla og slá peninga, og koma þeim í umferð.
Niðurstaða
Ég á erfitt með að ímynda mér að ríkisstjórn Grikklands - geti bakkað. Ég meina að hún sé mjög líklega ekki með neitt blöff. Enda sé ég ekki hvernig stjórnarflokkarnir mundu geta átt nokkra pólitíska framtíð - - ef þeir gefa eftir í deilu sinni við meðlimaríki ESB.
Þeir muni frekar kjósa greiðsluþrot.
Það getur verið að stjórnendur aðildarríkja ESB eins og t.d. frú Merkel - átti sig ekki á því að ríkisstjórn Grikklands sé líklega ekki með neitt blöff.
- En miðað við það hversu klaufalega ríkisstjórn Grikklands hefur höndlað samningaviðræður við aðildarríkin.
- Þá getur verið full ástæða að óttast, að stjórnin klúðri a.m.k. að einhverju leiti rekstri Grikklands yfir það viðkvæma tímabil sem þá fer í hönd, ef engin greiðsla berst frá ríkisstjórn Grikklands til AGS þann 9/4 nk.
Sú ráðstöfun að verða greiðsluþrota - þarf ekki að leiða til efnahagslegs öngþveitis, en léleg stjórnun á viðkvæmu augnabliki sannarlega getur skapað slíkt öngþveiti.
Kv.
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 12:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
27.3.2015 | 00:09
Saudi Arabía og furstadæmin við Persaflóa - hefja formlegt stríð gegn skæruliða sveitum Houthi manna í Yemen
Ég velti fyrir mér nýverið hvort enn eitt -proxy- stríðið milli Írans og bandalagsríkja Saudi Arabíu væri við það að hefjast: Stríð Saudi Araba og Írana, um Yemen að hefjast?. En atburðir fimmtudagsins virðast staðfesta þann ótta - en þá gerði Saudi Arabía og furstadæmin við Persaflóa, umfangsmiklar loftárásir á stöðvar Houthi manna í Yemen.
Hverjir eru Houthi menn? Þeir eru hópur að mörgu leiti sambærilegur við "Hesbollah" í Lýbanon, þ.e. samtök shíta í Yemen.
Seint á sl. ári hófu þeir framrás, sem leiddi til þess að Houthi menn hertóku höfuðborg landsins Sana, stökktu forseta þess á flótta - til Aden.
Sl. vikur hefur framrás Houthi manna haldið áfram, og hafa sveitir þeirra tekið flugvöll einungis 60 km. frá Aden. Sú borg gæti því fallið - þá og þegar.
Það sem bandamenn Saudi Arabíu eru að bregðast við, er yfirtaka bandamanna Írans á landinu Yemen - en það mundi væntanlega leiða til þess að Yemen hætti að vera bandalagsríki Saudi Arabíu, yrði þess í stað - vinveitt Íran!
Þetta sé því liður í -köldu stríði- Saudi Arabíu og Írans - sem skekur Mið-Austurlönd. Síðan borgarastríð skall á í Sýrlandi 2011, hafa þessi átök - tekið flug.
2013 bárust síðan átök yfir til Íraks - sem hefur seinni ár verið vinsamlegt Íran. Eiginlega á áhrifasvæði Írans.
- Þ.e. ekkert leyndarmál - að bandalagsríki Saudi-Arabíu, með stuðningi við margvíslega róttæka skæruliðahópa Súnní Íslam er berjast í Sýrlandi gegn stjórnvöldum í Damascus.
- Hafa verið að leitast við að veikja valdastöðu Írans - en Sýrland hefur um nokkurt skeið verið bandalagsríki Írans.
- Það auðvitað rann um mann grunur á sl. ári, er borgarastríðið barst síðan til Íraks - - þ.s. að Írak hefur einnig seinni ár verið hluti af -bandalagi Írans- að Saudi Arabía væri í leynd að styðja framrás ISIS - - en framrás ISIS hefur sannarlega ógnað stöðu Írans í Írak, og er viðvarandi ógn við stöðu Írans í Sýrlandi.
- Með vissum hætti má því, líta á þ.s. svar Írans við leikjum Saudi Araba og flóa Araba gegn Íran í Sýrlandi og Írak - - að ógna valdastöðu Saudi Arabíu í Yemen.
- Með því að styðja til valda þar, hóp vinveittan Íran.
Skv. þessari frétt, býðst Eyptaland til þess að senda her gegn Houthi mönnum:
Egypt Says It May Send Troops to Yemen to Fight Houthis
Saudi intervention adds heat to regional cold war
Bein hernaðaríhlutun andstæðinga Írans, er alveg ný stigmögnun!
En ég get ekki betur séð en að með -beinni hernaðaríhlutun flóa Araba og Saudi Arabíu- í átök við hóp í bandalagi við Íran. Þá skapist ný stigmögnun í átök öflugasta ríkis Súnníta, þ.e. Saudi Arabíu - megin ríki Shíta, þ.e. Íran.
En hingað til hafa flóa Arabar og Saudar látið sér nægja - að beita sér í gegnum 3-aðila. Þ.e. róttæka hópa sem til eru í að þiggja vopn og peninga, til að berjast.
- Á hinn bóginn - eins og framrás ISIS sýnir, fylgja því margvíslegar hættur, að styrkja róttæka hópa, byggja þá upp með peningum og vopnum.
- Einkum það vandamál, að slíkir hópar geta reynst erfiðir í taumi - og á endanum farið að spila sinn eigin leik. Það er þ.s. mig grunar að hafi gerst með "ISIS" - að upphaflega hafi sá aðili fengið stuðning þ.e. fé og vopn frá Saudi Aröbum og flóa Aröbum, en að á sl. ári hafi "ISIS" farið út fyrir handritið.
- Það getur verið ástæða þess, að Saudar og flóa Arabar kjósa nú - beina íhlutun.
Skv. fréttum er her Saudi Arabíu með vaxandi viðbúnað á landamærum við Yemen - - innrás hers Saudi Arabíu virðist því meira en hugsanleg.
Miðað við tilboð herforingjastjórnarinnar í Egyptalandi - sem fjármögnuð er af Saudi Arabíu. Þá gæti egypski herinn bæst við.
Þá vantar bara að íranski byltingavörðurinn blandi sér í málið, aðstoði Houthi menn - - til þess að stríðið fari að nálgast - > Bein átök milli herja þjóðanna.
Niðurstaða
Hætta á allsherjar átökum Saudi Arabíu, og sveita flóa Araba - - og herja Írans. Virðast fara hratt vaxandi. En formlegt stríð mundi sennilega vera með þáttöku Egypta, flóa Araba, og auðvitað Sauda. Megin-andstæðingur þeirra Íran, á bandamanna í Sýrlandi í formi ríkisstjórnarinnar í Damascus, hinu lýbanska Hesbollah, nú Houthi mönnum, og auðvitað Shítum í Írak.
Við erum því að tala um - trúarbragða stríð.
Raunverulega stórstyrrjöld í Mið-Austurlöndum.
Er getur skollið á að því er virðist, þá og þegar.
Kv.
Utanríkismál/alþjóðamál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.3.2015 | 00:28
Aðildarþjóðir ESB virðast vísvitandi þrengja að möguleikum ríkisstjórnar Grikklands að forða greiðsluþroti
Þetta er auðvitað liður í -"hardball"- samningatækni sem samskiptin milli aðildarþjóðanna og grísku ríkisstjórnarinnar virðast hafa leiðst í. En nýjasta dæmið um þetta er 1,2 milljarðar evra í lausafé sem var staðsett í Seðlabanka Grikklands -í sérstökum sjóði- þar til fyrir skömmu. Þetta var afgangs fé af sjóði sem búinn var til skv. 2-björgun Grikklands, bankabjörgunarsjóður sem nýttur var til þess að "endurfjármagna" gríska bankakerfið fyrir ca. 2-árum síðan. Sá sjóður var upp á litlar 48 milljarða evra.
Bróðurparturinn af peningunum hafði verið nýttur.
Fyrir skömmu gaf -björgunarsjóður evrusvæðis- skipun um að færa þessa 1,2 milljarða aftur til baka - til þeirrar stofnunar.
Þannig að þetta fé er ekki lengur í Aþenu!
- Gríska ríkisstjórnin hafði aftur á móti vonast til þess að nýta þetta fé!
"The Greek government believes the funds were sent back to eurozone authorities in error"..."when, under pressure from Germany, finance ministers agreed all the remaining money in the bank rescue facility should be returned to the eurozones bailout fund."
"But on a conference call between deputy ministers from all 19 eurozone finance ministries, the Greek delegation was told on Wednesday that the 1.2bn was correctly returned and the cash would stay in the bailout fund, known as the European Financial Stability Facility."
- Skv. frétt Financial Times um málið - - getur verið að gríska ríkisstjórnin klári möguleika sína til þess að útvega nýtt fé fyrir 9. apríl nk.
- En þann dag er gjalddagi á láni frá AGS sem tilheyrir 1-björgun Grikklands, prógrammi er stóð frá 2010 til fyrri hl. árs 2012, þegar 2-björgun tók við eftir að hluti skulda gríska ríkisins voru afskrifaðar.
- Það yrði náttúrulega -saga til næsta bæjar- ef það yrði greiðsluþrot á láni frá AGS.
- En mér skilst að það eigi aldrei áður að hafa gerst, að land hafi orðið "default" á lán frá AGS.
Síðan er eins og það sé samtímis í gangi ágreiningur milli aðildarríkjanna og stofnana ESB, um það - hve hart á að ganga gegn Grikkjum.
En samtímis hefur Seðlabanki Evrópu tekið eftirfarandi ákvörðun - - >
"Meanwhile, the ECB raised the threshold of emergency loans the Bank of Greece can provide to the countrys banks by 1.5bn"
Nærri sömu upphæð!
En gríska ríkið hefur verið að láta grísku bankana kaupa skammtíma ríkisbréf - fyrir neyðarfé Seðlabanka Evrópu!
Sem er á afskaplega dökkgráu lagalegu svæði fyrir Seðlabanka Evrópu að umbera þ.s. það stendur í lögum um bankann að hann megi ekki fjármagna aðildarríkin.
- En milli aðildarþjóðanna og stofnana ESB - virðist tekist á um það, hvort óhætt sé að láta gríska rikið verða greiðsluþrota - - > Ef ríkisstj. Syriza bakkar ekki í því "game of chicken" sem nú er í gangi milli aðildarríkjanna og ríkisstjórnar Grikklands.
- En stofnanir ESB virðast meta hættuna sem fylgir slíku þroti meiri heldur en ríkisstjórnir aðildarríkja evrusvæðis.
Sem sjálfsagt skýri ákvörðun Seðlabanka Evrópu - að veita í raun og veru gríska ríkinu fjármögnun bakdyramegin!
Meðan að ríkisstjórnirnar hafa verið að sverfa að gríska ríkinu á framhliðinni.
Niðurstaða
Það virðist í gangi einhvers konar 3-leikur, þ.e. ekki bara milli aðildarríkja evrusvæðis og Grikklands, heldur virðast stofnanir ESB hafa aðra afstöðu heldur en ríkisstjórnir aðildarríkjanna.
Þó Seðlabanki Evrópu -lagatæknilega sé það ekki heimilt- virðist hann þó samt vera að halda gríska ríkinu á floti, svo það verði ekki greiðsluþrota - sem alveg örugglega þíðir að Grikkland verður þá án tafar að yfirgefa evruna.
Mig grunar að það sé ekki síst óttinn við fordæmið sem það mundi skapa - - að skapa þá útkomu að unnt sé að hætta í evrunni. Sem sé að leiða Seðlabanka Evrópu í þá óyndisstöðu, að vera í reynd - vísvitandi lögbrjótur.
Kv.
Utanríkismál/alþjóðamál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.3.2015 | 22:27
Litlar 1.070 milljón í árslaun
Ég rakst þá frétt í FT að forstjóri Renault/Nissan væri að fá launahækkun, upp í litlar 7,2 milljón evra eða 1.070 milljón krónur í árlaun.
Sennilega hærra en hjá nokkrum íslenskum forstjóra.
En þ.e. þó líklega slatti með árslaun yfir 100 milljón.
Þetta minnir mann á klassísku deiluna um það hvort einhver geti verið þetta mikils virði. Hvað Carlos Ghosn varðar þá er rétt að halda á lofti að hann hefur gert Renault/Nissan að sannkölluðu stórveldi á sviði bifreiðaframleiðslu.
Hann varð fyrst forstjóri Renault 1996 en þá var Renault í fjárhagsvandræðum - Gosn framkvæmdi klassískar aðgerðir í formi kostnaðarlækkana, hann einnig endurskipulagði starfsemi fyrirtækisins - tókst að snúa við starfseminni á rúmu ári í smávægilegan hagnað. En síðan hefur Renault fyrirtækið -skilst mér- ekki verið rekið með tapi.
1999 tók hann afdrifaríka ákvörðun þegar Nissan fyrirtækið japanska rambaði á barmi gjaldþrots, og lét Renault kaupa ráðandi hluta eða 36,8%. Þetta var upphafið að sameiningarferli Nissan og Renault.
Þetta var hrein yfirtaka, og tók hann sjálfur yfir stjórn mála á Nissan í Japan. Var þar a.m.k. 2 ár við það verk að endurskipuleggja Nissan.
"When he joined the company, Nissan had a consolidated interest-bearing net automotive debt of more than $20 billion and only three of its 46 models sold in Japan were generating a profit."
Gosn hjó og hjó, axaði þ.s. skilaði tapi, seldi margt annað sem ekki tengdist beint bílaframleiðslu - er sagður hafa haft mjög umtalsverð áhrif á japanskan fyrirtækja kúltúr. Honum tókst að endurtaka verkið með Nissan sem hann vann með Renault - þ.e. að ná Nissan í hagnað á 12 mánuðum, síðan í góðan hagnað á 3.
Í dag er þetta 4-stærsta bílaframleislufyrirtæki í heimi, er framleiðir bifreiðar meira eða minna um allan heim - á t.d. AvtoVAZ sen framleiddi á árum áður Lada bifreiðar í Rússlandi. Nissan bílar eru að auki framleiddir í S-Ameríku og Indlandi, fyrir utan Evrópu og Bandaríkin, ásamt auðvitað Japan. Og auðvitað að Renault bifreiðar eru framleiddar í Evrópu.
- Þetta sé með öðrum orðum, raunverulegur afreksmaður.
- Sennilega er besta nýlega ákvörðun hans, framleiðsla Nissan Leaf og sambærilegra Renault bíla sbr. Renault Zoe og Renault Fluence, sem einnig eru rafbílar.
- Þessi framleiðsla skili hagnaði ólíkt mörgum fyrri tilraunum til að framleiða rafbíla fyrir almenning.
Renault Zoe rafbíll
Renault Fluence rafbíll
Í dag skilst mér að samruni framleiðslu Renault/Nissan sé komin það langt - að algerlega úrelt sé að tala um lélega Reanult og góða Nissan.
Framleiðsluaðferðir hafi verið gersamlega samræmdar - þeir nota sömu vélarnar, sömu undirvagnana, samnýta annað kram!
Sjá t.d. nýjustu jepplingana:
Renault Kadjar
Nissan Qashqai
Mér skilst að þeir séu svo líkir - að tæknilega sé unnt að framleiða þá á sömu framleiðslulínunni, þ.e. sami undirvagn, sömu vélar, sömu festipunktar fyrir hurðir - bretti - stuðara og annað; þannig að unnt sé að bolta mismundandi parta og annð verður Nissan en hitt Renault.
Það er þannig sem framleiðendurnir ná því að skila hagnaði í dag - - að lágmarka fjölda svokallaðra "platforms" sem íslenskast sennilega "undirvagn" - sem og véla enda afskaplega dýrt orðið að þróa þær skv. nýjustu mengunarkröfum - undirvagnar einnig feykilega dýrir vegna krafna um styrk í árekstrum og öryggi farþega, og auðvitað um þætti eins og aksturseiginlega og skort á hávaða innanborðs.
Svo að hámarks nýting náist út úr þeim gríðarlegu fjárfestingum sem liggja að baki nýrri vél eða nýjum undirvagni.
Niðurstaða
Ég sleppi því að ákveða formlega hvort Gosn á það skilið að fá rúman milljarð í árslaun. En segi þó að hann á há laun skilið frekar en margir aðrir. En hvað Renault/Nissan er í dag má nær algerlega færa á hans reikning.
Kv.
Sá þessa frétt í gær, að í sveitastjórnarkosningum hefði bandalag flokks Sarkozy og miðjuflokksins "UDI" fengið 30% fylgi á móti FN eða Front Nationale 25,7%. Sósíalistar Hollande fengu einungis 22%. Urðu því í 3-sæti.
- Þ.e. áhugavert að UMP flokkur Sarkozy neyðist til að slá sér saman með miðjuflokknum UDI, til að fá meira fylgi en FN.
- Og þ.e. áhugavert að Sósíalistar lendi í 3-sæti.
Skv. fréttinni - verður aftur kosið á milli tveggja efstu. Þá gæti komið hugsanlega önnur útkoma.
En þ.e. ekki víst að kjósendur sósíalista - - kjósi hægri flokkana. Enda er Sarkozy víst afar hataður á vinstri væng stjórnmála í Frakklandi.
Sarkozy answers comeback critics with strong local poll result
This is a turning point for Nicolas Sarkozy, said Bruno Cautrès, a researcher in political sciences at SciencesPo. People thought he looked bored, that he was not engaged or not motivated enough. But last night he showed who was the boss. He spoke like a true party leader.
Það áhugaverða er að skoðanakannanir - - hafa sýnt svipaða röð þegar spurt er um það hvern vilja Frakkar fá sem næsta forseta.
Þá viðist blasa við að Hollande lendi í 3-sæti og því ekki í 2-umferð kosninganna.
Og að kosið verði milli Sarkozy og Marine Le Pen.
2017 gæti orðið mjög dramatískt ár fyrir Evrópu, vegna þess að Marine Le Pen hefur lofað að taka Frakkland út úr evrunni.
Þ.e. erfitt að sjá evruna hafa það af.
Að auki hefur hún lofað því að taka um ákaflega þjóðernis-sinnaða atvinnustefnu, þ.e. berjast fyrir hagsmunum "fransk" iðnaðar í samkeppni við iðnað í öðrum löndum.
Og beita genginu til þess að skapa frönskum iðnaði samkeppnis-stöðu á útflutningsmörkuðum.
Niðurstaða
Ég held að það sé full ástæða að fylgjast áfram með franskri pólitík. En þar virðist stefna í að keppnin verði milli tveggja frambjóðenda á hægri væng stjórnmála - - að Hollande falli út í fyrstu umferð, ef marka má skoðanakannanir nú, þegar kosið verður til forseta 2017.
Þ.e. ekki einungis miklir hagsmunir í húfi fyrir Frakkland - heldur fyrir Evrópu alla. Því ef Marine Le Pen mundi verða fyrir kjöri og geta hrint stefnu sinni í framkvæmd. Þá mundi það leiða til jarðskjálfta á pólitíska sviðinu í V-Evrópu allri.
Kv.
Utanríkismál/alþjóðamál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.3.2015 | 18:48
Hótun um hugsanlega beitingu kjarnavopna gegn Danmörku vekur óhug
Sendiherra Rússlands í Danmörku skrifaði lesendagrein Jótlandspóstinn, þar sem sendiherran útskýrði fyrir danskri þjóð, það sem hann telur verða afleiðingar þess, ef dönsk stjórnvöld láta verða alvöru af því, að Danmörk gerist þátttakandi í -eldflaugavarnarkerfi NATO: Russia delivers nuclear warning to Denmark.
If it happens, then Danish warships will be targets for Russias nuclear weapons. Denmark will be part of the threat to Russia, Mikhail Vanin wrote in Jyllands-Posten.
"Martin Lidegaard, foreign minister,...indicated in August that Denmark would fit one or possibly more frigates with a type of radar that would allow the ships to be used in the Nato missile shield."
- En margvísleg ummæli rússneskra embættismanna, sem og stjórnmálamanna - upp á síðkastið, hafa endurvakið áhuga á -eldflaugavarnarkerfi NATO- sem enn þann dag í dag, hefur einungis verið sett upp að afar takmörkuðu leiti.
- Get nefnt dæmi um ummæli Putin frá sl. sunnudag, en þá var sýndur þáttur í rússn. sjónvarpinu er innihélt viðtal við Pútín - - en þá sagði Pútin hafa íhugað að setja kjarnorkuvígbúnað Rússlands í viðbragðsstöðu fyrir hugsanlega beitingu kjarnavopna, vegna átaka í A-Úkraínu og þegar Rússland innlimaði Krím-skaga - -> Ef mál æxluðust á versta hugsanlega veg. Hann lét þó vera að skilgreina akkúrat hvað hann átti við með -versta hugsanlega veg-.
- En punkturinn er sá - - að NATO stendur frammi fyrir skýrri hótun frá Rússlandi - > Um fyrstu árás!
Ekki verður betur séð, en að sú hótun liggi fyrir - í tilviki um hugsanleg hernaðarátök milli Rússlands og NATO í A-Úkraínu.
Jafnvel -þ.s. tilvikin eru óskilgreind- ef NATO færi að vopna Úkraínu, gæti hótunin gilt.
- Augljósa viðbragðið við því, þegar -fyrstu árás er hótað- er að sjálfsögðu - - > Að efla eldflaugavarnarkerfi NATO landa. Sem enn í dag er afar götótt!
- En rökin fyrir því eru þau, að þ.s. eldflaugavarnarkerfi ætti að draga úr skilvirkni kjarnorkuárásar með eldflaugum, þá auki hún líkur þess að nægilega mikið af herafla NATO hafi það af - svo að NATO geti svarað fyrir sig og tryggt eyðileggingu Rússlands.
- Punkturinn með þeirri -varnareldflaugauppbyggingu- er að gera það minna -aðlaðandi- fyrir stjórnendur Rússlands - - að ráðast á NATO með kjarnavopnum, sem hugsanlegt svar Rússlands við beitingu hefðbundins herafla NATO t.d. í A-Úkraínu.
- Og þar með auka athafna frelsi NATO í A-Úkraínu, ef NATO telur sig þurfa að bregðast við atlögu Rússlands gegn Úkraínu -vegna varnarhagsmuna sinna- með hefðbundnum herafla sínum, eða, með því að senda Úkraínuher vopn.
Það virðist að Rússland sé að beita hótun um kjarnorkuárás!
Vegna þess að Rússland veit mæta vel, að rússneski hefðbundni herinn, er veikari en hefðbundinn heildar herafli NATO.
Þetta er -spegilmynd af hótun NATO í Kalda-stríðinu- en þá var staðan þver öfug, Sovétríkin bjuggu yfir 3-földum hefðbundnum herafla að fjölmenni; og NATO taldi sig ekki geta varist Sovétríkjunum með öðrum hætti - en með þeirri hótun að beita hugsanlega kjarnavopnum gegn árás með hefðbundnum vopnum.
- Höfum þó í huga, að NATO var þá að hóta því sem viðbragði, við -innrás herja Sovétríkjanna inn fyrir landamæri NATO lands.
- Það liggur fyrir engin hótun NATO um beitingu hefðbundins herafla NATO innan landamæra Rússlands.
Heldur er sá hugsanlegi möguleiki til staðar að NATO beiti sér innan landamæra Úkraínu -að sjálfsögðu skv. heimild ríkisstjórnar landsins- eða með öðrum orðum, í sjálfstæðu fullvalda landi sem alls ekki er viðurkennt af NATO að tilheyri einhverju áhrifasvæði Rússlands.
- Þ.e. alveg nýtt að hóta notkun kjarnavopna vegna stríðs í 3-landi.
- T.d. lá sú hótun aldrei fyrir vegna átaka i Víetnam, þó voru þar á tímabili allt í senn - fjölmennir herir á vegum a.m.k. sumra NATO landa + fjölmennur her frá Sovétríkjunum + fjölmennar liðssveitir frá Kína - > allt á sama tíma, þegar mest gekk á.
- Þ.e. langt í að átök í Úkraínu færist á sambærilegt stig!
Niðurstaða
Eins og ég rökstuddi sl. mánudag, þá er Pútín sennilega ekki brjálaður: Hræðsluáróður Pútíns. Heldur sé hann og embætissmen á vegum stjórnar hans að beita linnulausum hræðsluáróðri. Í von um að hræðslan ein dugi til þess að lama mótstöðuafl lýðræðiskjörinna stjórnvalda í Evrópu og Ameríku.
Það sé afar ólíklegt að hann raunverulega sé að íhuga beitingu kjarnavopna - t.d. gegn dönskum skipum, eða í A-Úkraínu.
Að sjálfsögðu á að klára eldflaugavarnarkerfi NATO - en uppbygging þess hefur legið niðri síðan 2012 er svokölluð evrukrísa var í hámarki og Evrópulönd ákváðu að skera niður í hermálum, m.a. hluta sem voru skornir niður.
Ég reikna fastlega með því að yfirlýsing sendiherra Rússlands í Danmörku hafi fullkomlega öfug áhrif - hvetji Dani til dáða um að stíga ef eitthvað er stærri skref til þátttöku í þessu varnarkerfi.
- En þ.e. einmitt þ.s. það er, engin möguleiki að nota það til árásar á annað land.
- Þ.e. einungis ógn við þann aðila, sem íhugar beitingu eldflauga er bera kjarnasprengjur gegn þeim löndum er njóta þeirrar verndar.
Kv.
Utanríkismál/alþjóðamál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Um bloggið
Einar Björn Bjarnason
Nýjustu færslur
- Er samningur Trumps við Japan - er inniber 550 milljarða$ fjá...
- Hótel-bókanir í sumar, gefa vísbendingar um kjaraskerðingu al...
- Kjarnorkuáætlun Írana hefur líklega beðið stórtjón, fremur en...
- Netanyahu, virðist hafa hafið stríð við Íran - beinlínis til ...
- Trump ákveður að senda, Landgönguliða - til Los-Angeles! Kemu...
- Möguleiki að Úkraína hafi í djarfri árás á flugvelli sumir mö...
- Yfirlýsing Trumps um yfirvofandi 50% tolla á ESB lönd, afhjúp...
- Tollar Bandaríkjanna á Kína - líklega ca: 50%. Kína á Bandarí...
- Að það verður af hráefnasamningi Úkraínu og Bandaríkjanna - v...
- Margt bendi til yfirvofandi kreppu í Bandaríkjunum! Skv. áhug...
- Vaxandi líkur á að Trump, reki: Jerome Powell. Yfirmann Seðla...
- Gideon Rachman hjá Financial Times -- útskýrir af hverju, Ban...
- Trump undanskilur frá tollum á Kína -- snjallsíma, og nánast ...
- Talið af sérfræðingum, verðfall á ríkisskuldabréfum Bandaríkj...
- Viðskiptastríðsyfirlýsing Donalds Trumps gagnvart heiminum li...
Nýjustu athugasemdir
- Er samningur Trumps við Japan - er inniber 550 mil...: Þetta minnir á æsinginn vegna þotunar sem Katarar ætla að gefa ... 7.9.2025
- Er samningur Trumps við Japan - er inniber 550 mil...: Að vera ALGER andstæðingur Trumps er eitt en að komameð svona a... 7.9.2025
- Er samningur Trumps við Japan - er inniber 550 mil...: Þannig að þú heldur að Trump sé mútuþegi eða þjófur á þessu fé?... 6.9.2025
Eldri færslur
2025
2024
2023
2022
2021
2020
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
Bloggvinir
-
eyglohardar
-
bjornbjarnason
-
ekg
-
bjarnihardar
-
helgasigrun
-
hlini
-
neytendatalsmadur
-
bogason
-
hallasigny
-
ludvikjuliusson
-
gvald
-
thorsteinnhelgi
-
thorgud
-
smalinn
-
addabogga
-
agnarbragi
-
annabjorghjartardottir
-
annamargretb
-
arnarholm
-
arnorbld
-
axelthor
-
arnith2
-
thjodarsalin
-
formosus
-
birgitta
-
bjarnijonsson
-
bjarnimax
-
westurfari
-
virtualdori
-
bookiceland
-
gattin
-
davpal
-
dingli
-
doggpals
-
egill
-
jari
-
einarborgari
-
einarsmaeli
-
erlaei
-
ea
-
fannarh
-
fhg
-
lillo
-
gesturgudjonsson
-
gillimann
-
bofs
-
mummij
-
gp
-
gudmbjo
-
hreinn23
-
gudrunmagnea
-
gmaria
-
topplistinn
-
skulablogg
-
gustafskulason
-
hallurmagg
-
haddi9001
-
harhar33
-
hl
-
diva73
-
himmalingur
-
hjaltisig
-
keli
-
fun
-
johanneliasson
-
jonsullenberger
-
rabelai
-
jonl
-
jonmagnusson
-
jonvalurjensson
-
thjodarskutan
-
gudspekifelagid
-
juliusbearsson
-
ksh
-
kristbjorg
-
kristinnp
-
larahanna
-
leifurbjorn
-
lifsrettur
-
wonderwoman
-
maggij
-
elvira
-
olafureliasson
-
olinathorv
-
omarragnarsson
-
ottarfelix
-
rafng
-
raksig
-
redlion
-
salvor
-
samstada-thjodar
-
fullvalda
-
fullveldi
-
logos
-
duddi9
-
sigingi
-
sjonsson
-
sigurjons
-
stjornlagathing
-
athena
-
stefanbogi
-
lehamzdr
-
summi
-
tibsen
-
vala
-
valdimarjohannesson
-
valgeirskagfjord
-
vest1
-
vignir-ari
-
vilhjalmurarnason
-
villidenni
-
thjodarheidur
-
valli57
-
tbs
-
thorgunnl
-
thorsaari
-
iceberg
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (13.9.): 6
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 169
- Frá upphafi: 871083
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 151
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar