15.1.2016 | 19:56
Íran segist geta aukið olíuframleiðslu um helming á 6 mánuðum <-> Rússneska lífeyriskerfið er í alvarlegum sjálfbærnisvanda!
Þessar 2-sögur tengjast, því ef það er rétt - sem Íranar segja.
Mun fjármögnunarvandi ríkissjóðs Rússlands bersýnilega - vaxa!
Skv. fréttum, féll olíuverð á mörkuðum, Brent crude, í 29,46$/fatið.
Þetta þíðir að "Brent Crude" hefur fallið 21% það sem af er þessu ári.
- Ef frásögn íranskra olíu-yfirvalda eru réttar, að þeir auka framleiðslu um 500þ. tunnur á dag, þegar frá fyrsta degi sem viðskiptabanns aðgerðir falla af Íran.
- Síðan muni Íran auka framleiðslu sína um helming, á nk. 6-7 mánuðum.
- Þá blasir við olíuverð á bilinu 20-30$ fatið, sennilega a.m.k. út þetta ár.
Slík útkoma er mjög góð fyrir þjóðir - sem kaupa olíuvörur, eru neytendur.
En slæm fyrir framleiðsluþjóðir, sbr. Rússland - Venesúela og Saudi Arabíu o.flr.
Bandaríkin eru reyndar orðin stærsta olíuframleiðsluþjóðin - samt er olíuverðslækkun líklega nettó séð jákvæðar fréttir fyrir bandaríska hagkerfið.
Oil plunges below $29 on prospects of more Iranian crude, China worries
Iran oil headed for India, Europe, with sanctions lifting
Russias pensioners squeezed as recession bites
Það sem er farið að gerast í Rússlandi - er að rússneskir lífeyrisþegar koma að tómum kofanum, er þeir vilja sækja sinn lífeyri!
Vandamálið er að olíutekjur Rússlands - - hafa skerst á bilinu 30-40% sl. 6 mánuði.
En hún hækkaði um tíma, upp í rúmlega 50$ fatið um mitt sl. ár - - síðan hófst nýtt lækkunarferli, sem enn stendur yfir - og ekki enn sér í neinn enda á.
Þessar olíutekjur - mynda um helming af fjárlagagrunni rússneska ríkisins.
Þannig, að það munar um þá tekjuskerðingu - sem hefur nú dunið yfir.
21% lækkun, bara frá 1. janúar 2016.
"The elderly residents who arrived last weekend at a Novosibirsk post office to collect their regular social security benefits were in for a nasty surprise." - Due to underfunding, read a statement pasted to the buildings front door, allowance payments and monthly cash payments for January 2016 will not be made until cash flow is restored.
Sennilega - vegna tekjuhruns, er Fjármálaráðuneytið - í vandræðum með að senda til héraðs yfirvalda það fé sem til þarf, svo lífeyrisgreiðslur verði inntar af hendi.
- Það auðvitað er hluti af vandanaum, ákvörðun Pútíns -- að vísitölutengja lífeyri.
- En verðbólga var 16% á sl. ári, þannig að þeim Rúbblum sem ríkið þarf að greiða til lífeyrisþega, hefur fjölgað um 16% <--> Samtímis, sem að fjárlagatekjur hafa skerst sennilega um 10-15% - ef olíuverð er helmingur tekna þess, og olíuverð hefur lækkað um 20-30% sl. 6 mánuði.
- Þá auðvitað - verður rökrétt til myndarlegt gat.
- Sem bitnar m.a. á ellilífeyrisþegum í Novosibirsk.
Ástæða þess að Pútín - vísitölutengdi ellilífeyri.
Hefur sennilega að gera með það - að stuðningur við hann er mestur meðal aldraðra Rússa.
Hann hefur því -að því er virðist- viljað halda öldruðum góðum.
- En þegar hann leitast við að forða því, að kjör aldraðra dragist saman - - samtímis því að tekjur rússn. ríkisins lækka stöðugt.
- Þá óhjákvæmilega stækkar hlutfall fjárlaga rússlands, sem fara í gegnumstreymisgreiðslur til lífeyrisþega - einnig stöðugt.
"The amount of funds allocated to social expenditure has risen from 9.1 per cent of gross domestic product in 2008 to 14.3 per cent last year."
Eitthvað verður undan að láta - ef rússneska ríkið heldur áfram að verða fyrir tekjuskerðingum.
- Nýlega í fréttum, kom fram fyrirskipun frá Pútín - að skerða ríkisútgjöld um 10%.
- Án þess að snerta lífeyrisgreiðslur eða hernaðarútgjöld.
Það auðvitað þíðir -- að lífeyrisgreiðslur halda þá áfram að vaxa að hlutfalli útgjalda rússn. ríkisins.
- Það verður áhugavert að sjá - hvað gerist á þessu ári, ef olíuverð lækkar frekar.
- Ef fullyrðingar Írana standast - gæti viðbótar lækkun orðið umtalsverð.
Spurning hvort að rússn. stjv. - eiga enn eftir að bölva Írönum!
Niðurstaða
Hriktir í stoðum rússn. lífeyriskerfisins - eftir því sem olíutekjur Rússlands skreppa saman. Ákvörðun Pútíns á sl. ári að vísitölutengja lífeyri - þíðir auðvitað að lífeyrisgreiðslur munu halda áfram að hafa ruðnings áhrif á önnur fjárlagaútgjöld. Þannig að lífeyrisútgjöld -ef lækkun olíuverðs heldur áfram, vegna aukningar framleiðsl Írana- halda þá áfram að stækka að hlutfalli rússn. ríkisútgjalda.
Það verður forvitnilegt að fylgjast með málum í Rússlandi - en ef Pútín stendur við að samtímis skerða ekki kostnað við hermál, og kostnað við lífeyrisgreiðslur.
Mun rússn. ríkið, þurfa að draga mjög mikið úr starfsmannahaldi - loka stofnunum, minnka almenna þjónustu - við aðra en lífeyrisþega. Og ekki síst, margir opinberir starfsmenn verða atvinnulausir.
Og auðvitað, í hvert sinn sem olían lækkar frekar - lækkar gengi Rúbblu. Sem viðheldur þá verðbólgu, og áframhaldandi kjaraskerðingu annarra en lífeyrisþega.
- Það eiginlega hlýtur vera farin að myndast óánægja meðal almennra launþega með kjör sín, og auðvitað - atvinnumissi.
- Og rökrétt magnast sú óánægja áfram, ef fullyrðingar Írana standast - að framleiðsla Írans á olíu muni aukast um helming nk. 6-7 mánuði.
Það gæti því orðið áhugavert að fylgjast með innri málefnum Rússlands - seinni part þessa árs.
Kv.
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt 16.1.2016 kl. 11:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.1.2016 | 20:19
Snögg úrlausn atburðar er varð sl. þriðjudag - sýnir hve samskipti Bandaríkjanna og Írans hafa batnað, og það heilmikið!
Þegar áhafnir tveggja bandarískra hraðbáta voru handteknar á þríðjudag af íranska byltingarverðinum - innan lögsögu Írans, í grennd við Farsi eyju í miðjum Persaflóa.
Þá hófst atburðarás - er án nokkurs vafa, hefði leitt til harðrar deilu milli landanna tveggja, og tekið margar vikur a.m.k. að semja um úrlausn á.
- Skv. fréttum, hringdi John Kerry í starfsbróður sinn Mohammad Javad Zarif.
- Þeir ræddu síðan málið, og að því er best verður séð - þá beitti Mohammad Javad Zarif sér fyrir snöggri lausn mála innan stofnana íranska lýðveldisins.
Myndir sem birtar voru af handtökunni, voru nokkuð stuðandi - sýndu fjölda hraðbáta íranska byltingarvarðarins, umkringja bátana tvo - síðan áhafnir þeirra, krjúpa með hendur fyrir aftan höfuð, meðan að vopnum var miðað á þá og skilríki voru skoðuð.
Iran frees U.S. sailors swiftly as diplomacy smoothes waters
Irans moderates ensure swift release of US sailors
Það sem er merkilegt við þessa atburðarás!
- Fyrsta er auðvitað - þessi persónulegu samskipti á ráðherrastigi, milli landanna tveggja. Slík "high level" bein samskipti, voru algerlega óhugsandi t.d. í embættistíð Bush forseta. En í reynd hefðu þau einnig verið mjög ósennileg í tíð Clintons - eða tíð fyrirrennara Clintons, Bush forseta - föður Bush forseta hins síðari.
- Það er algerlega öruggt -tel ég- að í tíð Bush yngri, hefði slíkum atburði - fylgt vikur af gagnkvæmum ásökunum, og harðri opinberri umræðu - meðan að lágt settir embættismenn, hefðu reynt að semja um málið -- það tekið langan tíma.
- Ríkisstjórn Clintons hefði verið dyplómatískari - en vegna skorts á sambærilegum beinum samskiptum á hæstu stöðum, hefði úrlausn af sambærilegu tagi - einnig tekið umtalsverðan tíma.
Það er ekki síst áhugavert - hve snögglega íranski byltingavörðurinn brást við, skv. fréttatilkynningu frá honum:
"Our technical investigations showed the two U.S. Navy boats entered Iranian territorial waters inadvertently," ... "They were released in international waters after they apologized,"
Þetta er vísbending um batnandi samskipti - vegna þess að það er enginn vafi á að áður fyrr, hefði byltingavörðuinn, haldið þeim í vikur - meðan að byltingarvörðuinn mundi hafa sagst vera að rannsaka málið.
En nú, er málið afgreitt á einum sólarhring - og strax gefin yfirlýsing, sem samþykkir að því er best verður séð -vífillengjulaust- frásögn sjóliðanna, að um mistök hafi verið að ræða.
- Miðað við hraðann í afgreiðslu málsins.
- Hafa írönsk stjórnvöld, sjálf - lagt sig í líma við að sem minnst verði úr málinu.
- Eftir snögga úrlausn mála - þakkaði Kerry írönum fyrir.
Samskiptin öll á kurteisu nótunum.
Niðurstaða
Mér finnst eiginlega tónninn í orðaræðu stjórnvalda Írans og í Bandaríkjunum, ásamt snöggri úrlausn máls er áður fyrr án vafa hefði leitt til harðrar deilu og harkalegs árekstrar - - gefa skýra vísbendingu um það að samskipti Írans og Bandaríkjanna, hafi ekki einungis batnað - heldur að þau hafi batnað heilmikið.
Eiginlega gefi þetta mál - byr í segl þeirra vona, að neikvæð samskipti Írans og Bandaríkjanna - séu senn á enda.
Stjórnvöld í Ryadt hljóta að hafa áhyggjur af þeirri þróun - því að mörgu leiti hefur Íran upp á miklu mun meira að bjóða fyrir Bandaríkin og Vesturveldi almennt; heldur en Saudi Arabía.
Kv.
Utanríkismál/alþjóðamál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.1.2016 | 23:57
Rússnesk stjórnvöld hafa fyrirskipað harkalegan útgjaldaniðurskurð í ljósi verðþróunar olíuverðs á mörkuðum
Skv. nýjustu fréttum af mörkuðum, þá féll olíuverð á þriðjudag um skamma hríð niður fyrir 30 dollara fatið, en áður en markaðir lokuðu þann daginn - var endastaðan 30,44$/fatið.
Skv. frétt Financial Times - miðuðust rússnesk fjárlög við þá áætluðu verðþróun að olíuverð mundi rétta við sér á þessu ári, og vera að meðaltali þetta ár í ca. 50$/fatið.
Sú verðþróun er alls ekki að ganga eftir -- heldur blasir við hætta á frekara verðfalli.
- Í ljósi þess að olía er ca. 50% þeirra tekna sem fjárlög Rússlands nota.
- Þá leiðir þetta til nýrrar niðurskurðarþarfar útgjalda rússn. ríkissjóðsins.
- Að auki, bendir flest til þess, að áætlanir Fjármálaráðuneytis Rússlands - að rússneska hagkerfið muni ná jafnvægi fyrir árslok, gangi ekki heldur eftir.
- Heldur er nú reiknað með samdrætti í ár - þó enn séu ekki komnar tölur frá Fjármálaráðuneytinu, sem spá í það hve mikill sá samdráttur líklega verður. Seðlabanki Rússlands, var þó búinn að vinna slíka spá - þ.e. samdráttur yrði rýflega 3% af þjóðarframleiðslu; ef olíuverð héldist í rúmlega 30$/fatið - í stað þess að hækka í 50$/fatið.
Russia to cut expenditure by 10%
Tumbling oil trades below $30 a barrel for first time in 12 years
- Skv. frétt, verður ekki skorið niður í hermálum.
- Og ekki heldur til ellilífeyrisþega - en sá hópur kvá vera einn besti stuðningshópur Pútíns.
- Niðurskurður á að fókusa á - fyrirhugaðar framkvæmdir.
- Og fækkun starfsliðs stofnana og ráðuneyta.
Til þess að ná 10% af heildarfjárlögum - virðist ljóst.
Að stefnir í harkalegan niðurskurð opinberra framkvæmda.
Sem og mjög umtalsverðan niðurskurð starfsliðs.
Þ.e. ef markmið eiga að nást fram - án niðurskurðar í hermálum.
Þetta sýnir vel þann stórfellda galla sem það er fyrir Rússland - að hafa einvíddar hagkerfi!
Það er eiginlega stórfelldur áfellisdómur á 20 ára stjórnartíð Pútíns.
Að enn sé olía/gas ca. sama hlutfall útflutnings og í stjórnartíð Jeltsíns.
Það bendi til þess - að Pútín hafi sóað góðærinu frá 2003-2013, þegar olíuverð var í 100$/fatið og þar yfir.
En ef menn íhuga málið - þá tekur Pútín við 2000, eftir hrunið 1998. Það hrun varð vegna verðhruns á olíumörkuðum, af völdum "Dot.com" bólunnar svokölluðu.
Síðan rís hagkerfi Rússlands hratt - í kjölfar innrásar Bush í Írak, sem leiddi til hins gríðarlega háa olíuverðs.
Og mikill hagvöxtur hélst síðan í Rússlandi - meðan að olíuverð hélst í 100$/fatið og þar yfir, þangað til að olíuverðfallið mikla hefst fyrir tæpum tveim árum.
Síðan þá hefur verið kreppa í Rússlandi - gjaldmiðillinn er rúmlega 50% neðan við gengisstöðu þá er hann hafði við evru og dollar, fyrir verðfall.
Það er rökrétt útkoma - fyrst að olía/gas er nærri 70% gjaldeyristekna Rússlands.
- Þetta er nánast eins og að Rússland - sé 3. heims hagkerfi.
- Ekki 1. heims.
En 1. heims hagkerfi, þá miða ég við hagkerfi þ.s. búa tugir milljóna upp í yfir 100, eins og í Rússlandi ---> Hafa oftast nær miklu mun fjölbreyttari útflutning en Rússland.
Sem leiðir til mikilla muna stöðugara gengis.
En umtalsverður gengis-óstöðugleiki --> Er algengur í 3-heims hagkerfum, og einnig í svokölluðum, ný-iðnvæðandi hagkerfum.
Vegna þess, að þau hagkerfi -- eru gjarnan háð útflutningi á hrávörum, eins og Rússland er.
- Pútín - hefur augljóslega algerlega mistekist, að byggja upp aukna fjölbreytni í útflutning Rússa, meðan góðærið stóð yfir.
- Og það er augljós áfellisdómur yfir hans hagstjórn, að hafa sjáanlega ekki neitt gert - til þess að auka fjölbreytni rússn. atvinnulífs. Og þar með einnig, skjóta fleiri stoðum undir lífskjör þjóðarinnar.
Niðurstaða
Öfugt við aðdáendur Pútíns - þá tel ég hann hafa verið sekan um mörg alvarleg mistök í hagstjórn. Sennilega er það alvarlegasta, að hafa ekki skotið fleiri fótum undir rússneska hagkerfið - þau rúmu 20 ár sem hann hefur stjórnað.
Það leiðir til þess, að rússneska rúbblan hefur fallið nú rúmlega 50% - eins og hún á sínum tíma einnig féll rúmlega 50% 1998.
Þetta sýnir að óstöðugleiki rússn. hagkerfisins - er í engu minni en í tíð Jeltsín.
Það getur verið mjög þungur róður framundan í Rússlandi -- ef svartsýnustu spár um olíuverð rætast. En nú eru menn farnir að spá því að olíuverð fari í 20$/fatið, hugsanlega.
Það byggist á því - að eftirspurn þ.e. innflutningur hrávara til Kína, haldi áfram að dala, þ.e. að hagþróun þar verði verri en kínv. stjv. nú vilja kannast við sem líklega.
Ef kínverska hagkerfið fer í kreppu - þó hún yrði ekki djúp. Er algerlega öruggt, að nýtt verðhrun á hrávöru mörkuðum mundi eiga sér stað, þar á meðal á olíuvarningi.
Jafnvel þó það gerist ekki - sé fátt sem bendi til verðhækkana á næstunni. Þvert á móti gætu áform Írana, að auka framleiðslu sína um 50% á nk. árum - þrýst verðlagi á olíu enn frekar niður, eða til vara - tryggt það að olíuverð hækki ekki neitt í eitthvert árabil.
Slík útkoma, yrði einnig gríðarlegt áfall fyrir Rússland - því það mundi viðhalda djúpu kreppuástandi í nokkur ár samfellt. Sem gæti orðið mjög þungt fyrir rússnesk stjv.
Gæti þá mjög reynt á þolinmæði rússn. almennings.
Kv.
Utanríkismál/alþjóðamál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.1.2016 | 23:29
Svissnesk kantóna - óskar eftir því að íbúar, borgi skatta -seint- því seinna, því betra!
Þetta er svo sérstök beiðni, að hún vakti athygli heimsfjölmiðla - sem vanalega veita kantónunni Zug litla sem enga athygli: Swiss canton tells taxpayers to delay settling bills.
Ástæðan fyrir þessu - liggur í því óvenjulega ástandi, að seðlabanka-vextir í Sviss - eru neikvæðir, sem leiðir til "ultra" lágra vaxta í hagkerfinu.
Seðlabanka-vextir hafa nú verið neikvæðir í eitt ár - eða síðan að Seðlabanki Evrópu hóf seðlaprentun!
Tilgangur að forða því að svissneski frankinn, hækki enn meir.
En enn þrátt fyrir að evrukrísan hafi dalað mikið sl. 2 ár - þá vill fé enn leita til Sviss.
Og það aðstreymi - ógnar þeirri gengisstöðu, sem Svisslendingar vilja hafa gagnvart evru.
M.ö.o. vilja þeir vernda sína framleiðslu, sem gæti orðið ósamkeppnisfær, ef frankinn hækkar frekar en hann hefur þó gert.
- Considering the long lasting phase of low interest rates in Switzerland and the negative interest rates which have to be paid, the canton has no incentive to motivate taxpayers to make early payments, - "Zug authorities said in a statement." - On the contrary, the canton has an interest in receiving money as late as possible so it pays less negative interest.
- The canton calculates that the move will save SFr2.5m ($2.5m) a year."
- "...interest rate charged on overdue Zug tax liabilities has also been cut to zero..."
Þetta er auðvitað - lúxus vandamál!
Peningar eru fyrir bragðið, svakalega ódýrir í Sviss - þessi misserin.
Það má auðvitað velta því fyrir sér - hvort það ástand smám saman leiði fram vandamál með tíð og tíma, vegna þess að ástandið - skekki verðmætamat einstaklinga.
En menn geti vart treyst á að þetta ástand vari um aldur og æfi.
Niðurstaða
Aðgerð Zug kantónunnar, veltir upp vangaveltum um það, hvort aðrar kantónur fylgi þessu fordæmi; en Zug sé ekki eina kantónan sem glími við -ofurlága vexti- þessa dagana, og þar með þann möguleika að lenda í því - að greiða neikvæða vexti á fé sem liggi á reikningum.
Kv.
Utanríkismál/alþjóðamál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.1.2016 | 15:45
Það er algengur misskilningur að til staðar sé viðskiptabann á Rússland
Hið rétta er, að það er Pútín sjálfur sem viðhefur viðskiptabann á margvísleg NATO aðildarlönd.
Aðgerðir þær sem beinast gegn aðilum sem standa nærri stjórnvöldum Rússlands, eru ekki einungis sameiginlegar aðgerðir allra NATO landa, heldur taka þátt í aðgerðum að auki Japan og Ástralía -> þannig að réttara væri að nefna þetta, aðgerðir Vesturlanda gegn stjórnvöldum Rússlands.
En aðgerðirnar beinast ekki gegn Rússlandi - sem slíku.
Heldur, stjórnvöldum Rússlands - sérstaklega.
Eða nánar tiltekið, fjölda auðugra einstaklinga, sem standa þeim nærri.
Þess vegna - er ekkert útflutningsbann á Rússland.
Rússland má enn selja óhindrað, allar sínar afurðir.
Það eru engar - alls engar, viðskiptahindranir á Rússlands - af hálfu Vesturlanda fyrir utan vopnasölubann, og bann á að selja tækni sem nýtist til vopnasmíði.
- Eins og ég sagði - ekkert almennt viðskiptabann á Rússland!
- Samt virðast mjög margir - halda annað!
Í hverju felast þá þær aðgerðir, sem Pútín bregst við með viðskiptabanni?
EU restrictive measures in response to the crisis in Ukraine
"149 persons and 37 entities are subject to an asset freeze and a travel ban over their responsibility for actions which undermine or threaten the territorial integrity, sovereignty and independence of Ukraine. This includes 6 persons with close links to the Russian president."
- Síðan - er 5 stórUM ríkisfyrirtækjUM í eigu rússn. stjórnvalda, bannað að selja hlutafé á markaði í Evrópu - bannað að taka ný lán í Evrum, þannig að þau þurfa þá að greiða eldri evrulán upp á gjalddaga, geta ekki framlengt eða tekið ný.
- Að auki, er bann á sölu vopna til Rússlands, sem og tækni sem nota má til vopnasmíði.
Þetta er allt og sumt!
Eins og ég sagði - ekkert almennt viðskiptabann, nema hvað tengist sölu vopna eða tækni sem má nota til vopnasmíði.
----------------------
- Nú segir kannski einhver - - en fyrst að þetta hefur þær afleiðingar þátttaka Íslands í þessum aðgerðum að það kostar Ísland máski 6ma.króna árlega í tapaðri sölu til Rússlands.
- Að þá sé ekki réttlætanlegt að taka þátt í þessu.
Þá þurfa menn að muna eftir því - að réttur Íslands til þeirra miða sem eru í kringum landið.
Byggist einungis á því, að sá réttur sé almennt viðurkenndur af alþjóðasamfélaginu.
Það sama gildir um alþjóðalög og önnur almenn lög - að þau eru einungis virt.
Ef það er einhver til staðar til að - framfylgja þeim!
- Þegar Rússland, ákvað að ræna landið Úkraínu - hluta af sínu landi, þá einnig svipti Rússland landið Úkraínu, þeim auðlindum sem finna má undir hafsbotninum á því hafsvæði, sem tilheyrir þeirri lögsögu á Svartahafi sem tilheyrir Krímskaga.
Rétt að benda á, að Rúmenía hefur um nokkurra ára skeið, stundað olíu- og gasleit innan sinnar lögsögu. Mörg olíufélög telja að olíu og gas sé undir Svartahafi.
Stjv. Úkraínu voru í viðræðum við fj. olíufélaga, um leit og skiptingu lögsögu í leitarsvæði. Nú hefur Rússland tekið þetta yfir! - Þetta fól í sér, brot á miklum fjölda alþjóða-regla - regla sem fela það í sér, að lönd hafi rétt til sinna alþjóðlega virtu landamæra, þeirra landsvæða sem alþjóðlega viðurkennt er að tilheyri þeim, og þeirra auðlinda sem finna má á þeim svæðum.
- Að auki, hefur Rússland elft upp stríð gegn Úkraínu, Pútín fékk að því er virðist fámennan hóp öfgamanna til að rísa upp, gegn loforðum um stuðning og loforðum þess efnis að þeir fengju að stjórna landsvæðum - síðan sendi hann þeim þúsundir málaliða frá Rússlandi, og gnægð vopna -- þessi her er undir stjórn Pútíns, þ.s hann greiðir þeirra laun og tryggir þeim vopn, er sá her bersýnilega hans -- þannig að m.ö.o. stjórnar Pútín þeim svæðum í A-Úkraínu sem sá her hefur náð að taka. Þannig hefur Pútín í reynd hernumið svæði innan Úkraínu, og hefur þar með rænt Úkraínu enn frekar sínu landi og að auki auðlindum sínum - auk þess að þetta stríð sem Pútín hóf hefur valdið gríðarlegri eyðileggingu og manntjóni rúmlega 8þ. Þetta sé í reynd innrás og yfirtaka á landi! Þó Pútín beiti málaliðaher ásamt aðilum er hafa verið keyptir til verka, innan A-Úkraínu.
- Vesturlönd eru í reynd að taka að sér hlutverk - - lögreglu.
Sumir hér á landi átta sig ef til vill ekki á því - hversu gríðarlega miklir hagsmunir eru í húfi fyrir Ísland!
En ég ítreka að, eign okkar á okkar auðlindum í kringum landið - byggist eingöngu á því, að alþjóðareglur af því tagi, sem Rússland er að þverbrjóta --> Séu virtar!
- Staða Íslands getur orðið ákaflega erfið, ef alþjóðareglur sbr. - að landamæri skuli virt!
- Að eignarréttur lands á sínum auðlindum - skuli virtur.
- Verða að innantómu orðastagli --> Vegna þess, að þegar á reynir, er enginn til staðar til að tryggja - að þær reglur séu virtar.
Hvernig er unnt að leggja - - verðmæta mat á mikilvægi þess, að réttur smáríkja sé virtur?
Sjálfstæði dvergríkis, sem ekki getur varið sig sjálft, er ákaflega mikið háð því að alþjóðareglur séu virtar!
Hvernig getum við -- sett verðmætamat á okkar sjálfstæði?
- Í alþjóðasamfélagi - þ.s. einungis réttur hinna sterku gildir.
- Þá á dvergríki sem Ísland - alls enga möguleika á raunverulega sjálfstæðri tilvist.
- Það getur einungis -- hallað sér að einhverjum ríkja hóp.
- Eða einhverju stóru fjölmennu ríki -- sem hefur vilja til að verja það!
En í slíku alþjóða-samfélagi, þ.s. réttur ríkja til þess er þau eiga væri enginn!
Þá væri slíkt dverg ríki, einnig algerlega ofurselt vilja þeirra landa - eða lands, sem það með slíkum hætti hallaði sér að.
Það hefði einungis stöðu --> Leppríkis.
Ég held að það geti ekki verið nokkur vafi um - að fá lönd eiga meir í húfi, meir undir því --> Að alþjóðalög, um vernd landamæra - sem tryggja eignarétt á auðlindum.
Að þær alþjóðareglur - séu virtar!
_________________________
Þetta er ef til vill samhengi sem þeir sem gagnrýna þátttöku Íslands í aðgerðum gegn stjórnvöldum Rússlands -- átta sig ekki á!
Það er, að fyrir Ísland, er miklu meira í húfi -- en bara 6 ma.per ár viðskipti við Rússland.
- Vesturlönd, eru með aðgerðum sínum - - - hvorki meira né minna, en að leitast við að verja það alþjóðasamfélag, sem Vesturlönd hafa skapað.
- Og það alþjóða-reglusamfélag, vill Pútín eyðileggja - ef hann getur.
- Ég er frekar viss - að þetta er einungis fyrsta atlaga Pútíns að því. Að ef hann kemst upp með atlöguna gegn Úkraínu, muni hann beina sjónum að næsta landi og svo koll af kolli, þar til að honum hafi tekist ætlunarverk sitt - að jarða alþjóða-reglusamfélag Vesturlanda!
- En Pútín virðist halda - virkilega - að Rússland geti grætt á því ástandi, að hin forna regla -réttur hins sterka- gildi að nýju.
- M.ö.o. að hann virðist halda að Rússland sé nægilega sterkt, til að geta drottnað yfir rétti þjóða nærri sér - í slíku samhengi, eða m.ö.o. að ekki sé hætta á að Rússland lendi í sambærilegri aðstöðu, að yfir rétti þess væri drottnað af annarri enn sterkari þjóð.
- Ég á hinn bóginn, tel að Pútín - - sé ekki nægilega hræddur við Kína, sem sé 10 falt fjölmennara, og Rússl. á 3000km. landamæri að, og er mun meira en 10-falt auðugra hagkerfi, með gríðarlega mikið peningavald þar með.
En þetta þíðir -- að það þarf að stöðva Pútín.
Og að, það séu mjög miklir hagsmunir Íslands, af því að Pútín verði stöðvaður.
Niðurstaða
Misskilningur margra virðist byggjast á því - að það sem mestu máli skipti fyrir Ísland, sé það 6ma.kr. tap per ár af Rússlands viðskiptum, sem Ísland verður fyrir - ef það áfram styður aðgerðir Vesturlanda gegn stjórnvöldum Rússlands!
Það sem þeir viðkomandi virðast ekki átta sig á, er að Pútín er hvorki meira né minna en að leggja í atlögu við gervallt reglukerfi Vesturlanda, það alþjóðareglukerfi sem Vesturlönd hafa skapað á sl. áratugum.
M.ö.o. reglur um virðingu fyrir landamærum ríkja.
Reglur um virðingu fyrir eignarrétti einstakra landa á sínum auðlindum.
Eignarréttur Íslands á auðlindum hafsins hringinn í kringum landið, er varinn af þessu alþjóðlega reglukerfi.
Og þær reglur hafa þann sama galla og önnur lög, að til þess að virðing sé fyrir þeim borin - þarf að vera til staðar einhver lögga; sem refsar þeim sem brýtur þær reglur.
Ef að löggan ræður ekki við sitt hlutverk, ef hún getur ekki varið reglurnar - - þá tekur við kaos!
Kaos í skilningi alþjóðasamfélagsins - væri að aftur mundi gilda, réttur hins sterka.
Að það væru engar formlegar reglur virtar - um virðingu fyrir eingarrétti á landi. Eða um eignarrétt lands á eigin auðlindum.
Hvert land yrði að hafa styrk til að verja sitt - með eigin her!
Eins og var á öldum áður!
Pútín virðist vilja snúa aftur til gamla tímans - því hann haldi að Rússland sé sterkt!
Því haldi Pútín, að Rússland mundi græða á þeirri útkomu, að -anarkí- mundi aftur ríkja í alþjóðasamfélaginu.
En fá lönd mundu tapa meir á slíkri útkomu en einmitt Ísland!
Vegna þess að alþjóðareglusamfélagið - er hvorki meira né minna en sjálf forsenda þess, að Ísland geti haft ástand sem nálgast raunverulegt sjálfstæði.
- Punkturinn er sá - að með því að leitast við að verja Úkraínu gegn ásælni Rússlands, í úkraínskt landsvæði og auðlindir Úkraínu.
- Séum við samtímis að verja rétt Íslands til sjálfstæðrar tilvistar, og eignarrétt Íslands á auðlindum Íslands.
- M.ö.o. að við eigum allt undir því að alþjóða-reglusamfélagið sé varið.
- Að lögregluaðgerðir Vesturlanda gegn Rússlandi, haldi!
Þess vegna væri ákflega skammsýnt af okkar hálfu!
Að vera fyrsta landið sem mundi rjúfa samstöðu Vesturlanda, sem er órofa samstaða fram að þessu, um þær aðgerðir er beinast að stjv. Rússlands!
Það væri virkilega að - kasta krónunni, til að verja aurinn!
Eiginlega hefur Gunnar Bragi fullkomlega rétt fyrir sér, er hann segist ekki geta sett verðmiða á sjálft sjálfstæði Íslands!
Sumir segja Gunnar Braga ekki skilja málið - en ég held að hann skilji það miklu mun betur en hans gagnrýnendur gera!
Kv.
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt 11.1.2016 kl. 00:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
8.1.2016 | 23:46
Áhugaverð afstaða eins auðugasta fjármagnara bandarískra stjórnmála -> telur hugmyndir Trumps, brjálaðar
Það sem er merkilegt við þetta, er að um er að ræða - Charles Koch. En Koch bræður eru án nokkurs vafa, stærstu og auðugustu - veitendur fjármagns inn í kosningasjóði stjórnmálamanna í Bandaríkjunum í dag.
Ekki þekki ég auðæfi Koch bræðra - en við erum ekki að tala, um bara örfáa milljarða dollara.
Í gamalli frétt, má sjá eftirfarandi fyrirsögn: Koch Brothers Worth $100 Billion.
- Bræðurnir eru þekktir hægri menn í Bandaríkjunum.
- Og þeir styðja lægri skatta fyrir fyrirtæki og auðmenn, sem og lægri ríkisframlög almennt.
- Fyrir það eru þeir ekki vel liðnir af flestum Demókrötum.
Financial Times var með viðtal við - Charles Koch.
Og það eru ummæli í því sem vekja athygli!
Charles Koch attacks Republican hopefuls Trump and Cruz
Það bendir ekki til þess - að hægri hugmyndir Koch bræðra séu mjöf þröngsýnar.
- Charles Koch - "said Mr Trumps idea for registering and banning the entry of Muslims would destroy our free society.
Ég get ekki verið meira sammála þessum tilteknu ummælum. Fyrir utan að tillaga Trumps er augljóst - stjórnarskrárbrot.
- Charles Koch - Mr Koch argued that military interventions in Iraq and Afghanistan had failed to make the US safer. Referring to the number of countries hosting the worlds 1.6bn Muslim population, he added: What are we going to do: go bomb each one of them?"
Þetta bendir ekki til þess - að stofnun Koch bræðra, muni hvetja þá áfram meðal Repúblikana, sem tala í dag - um að senda herlið til Miðausturlanda.
- Charles Koch - Who is it that said, If you want to defend your liberty, the first thing you have got to do is defend the liberty of people you like the least?
Þetta vísar til ummæla Donald Trumps - gegn bandarískum Múslimum, og hugmynda Trumps um að - takmarka þegnréttindi þeirra.
- Charles Koch - I have studied revolutionaries a lot, ... Mao said that the people are the sea in which the revolutionary swims. Not that we dont need to defend ourselves and have better intelligence and all that, but how do we create an unfriendly sea for the terrorists in the Muslim communities. We havent done a good job of that.
Þessi spurning - - er algert kjarna-atriði.
En sá vandi sem er til staðar í Mið-austurlöndum, er án mikils vafa - því að kenna, hvernig stjórnendur landanna í N-Afríku og fyrir botni Miðjarðarhafs.
Hafa gersamlega í flestum tilvikum - mistekist að byggja sín lönd upp, efnahagslega.
Þetta þíðir - að í flestum löndum N-Afríku og í löndunum fyrir botni Miðjarðarhafs, eru atvinnutækifæri af mjög skornum skammti - atvinnuleysi miklu mun meira t.d. en meðaltal Evrópu, og fátækt mjög útbreitt vandamál.
Að auki, hafa flest þeirra landa, verið mjög ólýðfrjáls - stjórnun ósanngjörn, mjög oft ákaflega spillt að auki.
Það leiðir auðvitað til þess - þegar við er bætt í sarpinn, litla möguleika á vinnu.
Að útbreidd vantrú er til staðar í þessum löndum - á eigin samfélagsuppbyggingu.
Lögregluríki, síðan gjarnan - - takmarka möguleika fólks, til að ræða samfélags vanda á opinberum vettvangi.
Þannig - að útkoman er gjarnan, að öfgahópar - sem boða byltingu í samfélögunum.
Fá mikla áheyrn!
Þetta er auðvitað ábending um að - að sú stefna að styðja, einræðis stjórnir - sem hafa flestum tilvikum ekkert gert til uppbyggingar eigin landa - gjarnan safnað gríðarlegum auði að fámennum hópum útvaldra --> Er mjög sennilega hluti af vandamálinu að auki.
Þar sem einmitt er full ástæða að ætla - að sú staðreynd að dauð hönd slíkra stjórnvalda hefur lengi hangið yfir þessum löndum.
Sé stór ástæða þess vandamáls - - sem Mið-Austurlönd eru í dag.
Það sé þvert á móti sennilegra - að það þurfi að losna við þessar einræðis stjórnir.
Ef nokkur von á að vera til þess - að þetta svæði lagist.
Auðvitað gjósa upp vandamál - þegar ósanngjarnar og oft mjög hataðar stjórnir, falla frá.
En það séu - vandamál sem þær stjórnir hafi búið til á sínum valdatíma.
Það sé því ekki lausn - að halda slíkum stjórnum við völd.
Því - þær séu einmitt sennilega, þeir smiðir - sem hafi búið til þau uppsöfnuðu vandamál, sem upp gjósa.
Lykilatriðið - hljóti að vera.
Efnahagsuppbygging svæðisins.
Þá sé lykilforsenda - að fá skilvirkari stjórnendur.
Annars viðhaldist vandamálið - og sennilegra að það versni áfram, en að það batni.
- Charles Koch - He added that Mr Trump was not the only one thats saying a lot of things that we disagree with . . . If we only supported organisations and politicians that we agreed with 100 per cent, we wouldnt support anybody.
Þrátt fyrir þessi ummæli - virðist manni að ummæli Charles Koch, bendi heilt yfir ekki til þess að Koch bræður séu líklegir til að - styðja framboð Trumps.
Niðurstaða
Það er áhugavert að þegar annar Koch bræðra, sennilega auðugustu fjárveitendur kosningasjóða Repúblikana fyrir næstu forsetakosningar - - virðist beinlínis segja, hugmyndir Donalds Trumps - þess frambjóðanda Repúblikana er hefur mest fylgi, brjálaðar!
Það eru dálítið sérstakar aðstæður í Bandaríkjunum - því að 2010 kom úrskurður frá Hæstarétti Bandaríkjanna, sem óhætt er að segja að hafi lokað á möguleika til að - takmarka fjárframlög einstakra aðila til kosningasjóða einstakra frambjóðenda.
Þannig að nú má hver frambjóðandi fyrir kosningarnar 2017, verja eins miklu af sínu persónulega fé - eða fé einhvers annars, og sá vill.
Þetta auðvitað - gerir viðhorf Koch bræðra áhugaverðari til muna en annars væri!
Þ.s. 2017 gæti verið fyrsta sinn - sem frambjóðandi eða mjög auðugur fjáraflamaður, raunverulega á tækifæri til að - kaupa sig inn í Hvíta húsið eða eignast eitt stykki forseta Bandaríkjanna.
Þá skipta allt í einu - viðhorf fjáraflamannanna, mun meira máli en áður.
Kv.
Utanríkismál/alþjóðamál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
7.1.2016 | 22:29
Kína virðist helsta hættan fyrir heimshagkerfið
Eins og fram hefur komið í fréttum - þá hefur Sjanghæ hlutabréfamarkaðurinn fallið um 12% á 4 dögum þessarar viku, og markaðinum var lokað á fimmtudag eftir 7% fall, þann dag.
Ég hef ekki séð enn neinar fregnir af því hvort markaðurinn verður opinn á föstudag.
Chinese Stock Plunge Forces a Trading Halt, and Global Markets Shudder
Það virðist enn svo - að sérfræðingar utan Kína, sem innan Kína - virðast lítið í reynd vita hvað er í gangi. Vegna þess að sjálfsögðu, að engin leið er að vita, hversu mikið traust er raunverulega unnt að setja á opinberar tölur.
China suspends market circuit breaker mechanism after stock market rout
Yfirvöld í Kína - virðast auðsjáanlega sjálf, vera að þreifa fyrir sér.
Og virka þar með sjálf - töluvert ráðvillt.
Það er náttúrulega vegna þess hvað allt er risastórt innan Kína - alveg sama hvaða tölur eru skoðaðar.
Síðan, hefur Kína ekki enn, þessi ca. 40 ár sem Kína hefur verið að rísa hratt efnahagslega - haft klassíska kreppu.
Fyrir utanaðkomandi - virðist það algerlega ljóst, að ekkert land forðast kreppu fyrir rest.
Að fylgjast með kínverskum yfirvöldum - virðist manni vera það að horfa á aðila, sem sé að glíma við afl - sem manni grunar að viðkomandi aðila þ.e. kínv. yfirvöldum muni líklega ekki megna á endanum að glíma við með vel heppnuðum hætti.
- Ef má treysta opinberum tölum, þá er að hægja smám saman á hagvexti í Kína úr í kringum 8% þegar mest var, í ca. 6-6,5%.
- Það virðist ekki svo voðalegt - - á hinn bóginn, þá hefur Kína síðan 2008 aukið þjóðarskuldir sínar um meir en 100% af þjóðarframleiðslu, jafnvel um tölur sem nálgast 200%; samtímis og hægt hefur á hagvexti - smám saman.
- Í allra strangasta skilningi er þetta ekki aukning skulda kínv. ríkisins - heldur er þarna um aukningu skulda ríkisfyrirtækja í bland við einka-aðila. Ég þekki ekki hlutfallið þarna á milli.
- En þetta samt setur spurningarmerki við það - að hvaða marki hagvöxtur hefur verið búinn til með þessari skulda-aukningu.
- Og þar með, að hvaða marki þær fjárfestingar sem hafa verið í gangi á þessu tímabili - eru efnahagslega sjálfbærar.
En þ.e. alltaf hætta þegar - lánsfé er veitt í gríð og erg.
Og litlar gætur hafðar á - gæðum þeirra fjárfestinga.
Að þá sé sennilegt að of mikið hafi verið fjárfest í geirum sem hafa verið í vexti þau ár.
- Punkturinn er auðvitað sá - að ef mikið hefur verið af mjög hæpnum fjárfestingum.
- Þá gæti það dugað til - að framkalla gjaldþrota-hrinu, það eitt að það hægi á hagvexti.
Það sé þá spurning - hve miklar efnahags afleiðingar gjaldþrots hrina margra sem hafa offjárfest -> verða?
Um það er engin leið að spá!
En -eins og ég hef áður sagt- þá grunar mig að kreppa sé framundan í Kína!
Niðurstaða
Þegar ég segist eiga von á kreppu - er ég ekki að spá einhverjum ragnarrökum. Ég bendi á að þegar Bandaríkin voru í um sumt sambærilegu hagvaxtarskeiði frá ca. 1850- ca. 1890.
Þá urðu nokkrar mis stórar kreppur í Bandaríkjunum á því tímabili.
Það sé ef til vill visst hól til kínv. hagstjórnenda að þeim hafi fram að þessu tekist að forðast kreppu.
En ég virkilega held að þeim verði það ekki mögulegt fyrir rest.
_________________
Kreppa í Kína þarf ekki að þíða - að hagvöxtur verði neikvæður.
Það er alveg hugsanlegt - jafnvel líklegt - að kínv. valdaflokkurinn hefji enn eina framkvæmdasyrpuna, til að halda hagkerfinu uppi.
Það getur verið allt í lagi að stjv. Kína einmitt stundi slíkt.
Þegar leiðréttingar-atburður sennilega gengur í gegnum einka-hagkerfið.
Það heldur þá niðri atvinnuleysi á meðan.
Og -svo fremi sem framkvæmdir eru á sviðum sem gagn verður af til framtíðar- þá væri aáð fé sem í væri lagt; alls ekki tapað fé.
Og -svo fremi að fé sé varið í gagnlega hluti- þá gæti slík eyðsla stytt þá kreppu sem mundi fara í hönd, með því að viðhalda eftirspurn innan hagkerfisins - þannig tryggja að hún falli minna en annars.
Ég reikna fastlega með því, að kínv. einkahagkerfið - mundi rétta við sér innan ekki langs tíma, hvort sem er.
Þ.e. kreppa yrði stutt - eða svipaðar þeim kreppum sem Bandar. urðu fyrir á 19. öld.
Afleiðingarnar fyrir heiminn yrðu ekki neitt hræðilegar. Kína nálgast að vera ca. 18% af heimshagkerfinu - - sem er að sjálfsögðu mikið. En Indland ætti að haldast í hagvexti - Bandaríkin ættu einnig; og ég held að Evrópa sökkvi ekkert mikið niður.
Svo mundi heimshagkerfið rétta aftur við sér um leið og kreppan í Kína væri búin.
Helsta hættan væri fyrir svokölluð -vaxandi hagkerfi- önnur en Kína og Indland.
En sum þeirra gætu lent í djúpri kreppu, t.d. Brasilía þegar í þungri kreppu, án þess að Kína hafi gert meira en að draga úr hagvexti.
Ef kínv. hagkerfið mundi lenda í kreppu - er mjög sennilegt að -vaxandi eða rísandi hagkerfum í kreppu- mundi fjölga.
En ég hugsa samt að heilt yfir þá haldist heims hagkerfið rétt ofan við "0" í krafti þess að ég held að Bandaríkin haldist í hagvexti og það geri Indland einnig.
Höfum í huga, að í þessari sviðsmynd mundi olíuverð lækka sennilega enn frekar - sem mundi gefa innspýtingu í hagvöxt bæði á Indlandi og í Bandaríkjunum, og einnig létta undir Evrópu vegna áfallsins frá Kína - kannski duga til þess að Evr. fari einungis niður í ca. 0 vöxt.
Mjög lágt olíuverð í nokkur ár - gæti hjálpað heims hagkerfinu í þeim sennilega skammvinnu erfiðleikum sem það mundi ganga í gegnum, meðan að kínv. hagkerfið gengur í gegnum klassískan leiðréttingar atburð.
Kv.
Utanríkismál/alþjóðamál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.1.2016 | 14:33
Verður Kóreuskaginn - hættulegri en Mið-Austurlönd, á nk. árum?
En á sama tíma virðist afar ósennilegt að fullyrðingar N-kóreanskra stjórnvalda, að um vetnisprengju hafi verið að ræða, að þær fullyrðingar standist.
Ástæðan er sú, að vetnis-sprengjur eru miklu mun flóknari vopn, en kjarnorkusprengjur er fá orku sína frá - kjarnaklofnun.
En vetnissprengjur, kalla fram -kjarnasamruna- og hafa mun meira afl.
Í því liggur punkturinn - því skv. jarðskjálftamálum í S-Kóreu, mælast jarðhræringar svipaðar að styrkleika, og síðast er N-Kórea sprengdi kjarnorkusprengju.
North Korea says successfully conducts first H-bomb test :"The device had a yield of about 6 kilotones, according to the office of a South Korean lawmaker on the parliamentary intelligence committee - roughly the same size as the North's last test, which was equivalent to 6-7 kilotones of TNT."
Vanalega mælist sprengikraftur vetnis-kjarnasamrunasprengja, í svokölluðum Megatonnum.
Einn möguleiki virðist að N-Kórea, sé að gera tilraun til að auka sprengikraft kjarna-klofnunarsprengju, með --> þrívetni
North Korea Says It Has Detonated Its First Hydrogen Bomb
- "But some also said that although North Korea did not yet have H-bomb capability, it might be developing and preparing to test a boosted fission bomb, more powerful than a traditional nuclear weapon."
- "Weapon designers can easily boost the destructive power of an atom bomb by putting at its core a small amount of tritium, a radioactive form of hydrogen."
Ég skal láta vera að skilgreina, hvernig það virkar - að koma 3-vetni fyrir í kjarna-klofnunarsprengju.
En þ.e. að sjálfsögðu ekki hvað -almennt er átt við um- þegar talað er um vetnissprengjur.
- Það getur verið, að N-Kórea, sé að leyfa sér - að kalla slíka "hybrid" kjarna-klofnunarsprengju --> Vetnissprengju.
- En þ.s. menn eiga almennt við, þegar talað er um vetnissprengjur --> Eru sprengjur, sem kalla fram, kjarna-samruna. M.ö.o. kjarnasamruna-sprengjur.
Sérfræðingar virðast almennt sammála því - að sprengiafl það sem N-Kórea hafi sýnt fram á, þ.e. rúm 6 kílótonn, sé alltof lítið.
Raunveruleg kjarnasamruna-sprengja væri miklu mun öflugri en þetta.
- Ef tilgáta sérfræðinganna er rétt.
- Getur vel verið, að það sé rétt - að N-Kórea hafi náð fram árangri í, að smækka þá sprengju, sem landið getur smíðað.
- En það getur vel verið, að þó hún mælist svipað öflug og síðast -- að þá hafi vísindamenn N-Kóreu -- náð fram ca. sama afli, með minna heildar magn af plútoni.
- Með því að hafa 3-vetni í litlu magni með.
- En þ.e. lykilatriði fyrir N-Kóreu að framleiða smærri sprengjur, sem skila þó sama afli.
- Ef þeir ætla að geta smíðað "warhead" þ.e. sprengju sem koma má fyrir sem sprengju-oddi á eldflaug.
- Einnig gæti smærri sprengja verið nægilega meðfærileg fyrir - - orrustuvél til að bera, vél sem ætti mun meiri möguleika á að komast á leiðarenda með sinn farm.
Það sé því alveg möguleiki - - að N-Kóreu hafi, mwð þeim hætti, tekist að framleiða mun hættulegri sprengjur en áður.
Þó þeim hafi ekki tekist að smíða raunverulegar -- samrunasprengjur.
Nú ef þessar vangaveltur eru réttar <--> Er herafli N-Kóreu að verða mun hættulegri en áður
En N-Kórea á fjölda fremur skammdrægra eldflauga, er gætu hugsanlega borið kjarna-sprengju, ef N-Kóreu hefur nú tekist að smækka þær niður í viðráðanlega stærð fyrir slíkar eldflaugar.
Þannig að þær vegi t.d. nokkur hundruð kíló, í stað þess að vega langt yfir tonn.
Punkturinn er sá - að viðvörunartími fyrir S-Kóreu væri þá nánast enginn.
Þar sem flugtími slíkra eldflauga á milli, væri svo skammur.
- Stríðshætta mundi því - margfaldast. Því, að S-Kórea mundi lenda í gríðarlegum þrýstingi, næst þegar skapast spenna - að ráðast að getu N-Kóreu til að breyta S-Kóreu í - kjarnorkueyðimörk.
- Og ekki síst, líklega skapast mjög mikill þrýstingur á S-Kóreu sjálfa, að smíða sín eigin kjarnavopn. (Japan gæti einnig fundið fyrir þeim sama þrýstingi, þ.s. N-Kórea á einnig flugar sem draga til japönsku eyjanna)
- S-Kórea yrði að auki, efla stórfellt sína getu - til að skjóta niður eldflaugar N-Kóreu á flugi, áður en þær mundu geta losa sinn kjarna-odd. Það mundi einnig auka hugsanlega stríðshættu - því að t.d. fjölda æfing N-Kóreu hers, gæti leitt til þess að S-Kórea mundi beita slíkum - gagnflaugavopnum - af ótta við það að N-Kórea sé í þann mund að hefja árás, sem gæti eitt og sér leitt fram stríð.
Báðir aðilar <--> Rökrétt séð, verða því til mikilla muna meir --> "Trigger happy."
Kóreu-skaginn, gæti því á nk. árum -- tekið yfir þann sess frá Mið-Austurlöndum.
Að vera, hættulegasta svæði Jarðar!
Því má ekki að auki gleyma <--> Að Kóreustríðinu lauk einungis með vopnahléi.
Niðurstaða
Kóreuskaginn gæti - ef álykanir mínar eru nærri lagi. Orðið til mikilla muna hættulegri, en hann þó hefur verið til þessa. Stríðshætta þar gæti orðið þar ca. álíka og milli Ísraels og Hamas hreyfingarinnar á Gaza.
En höfum í huga, að til samanburðar - þá er Hamas ekki búið kjarnorkuvopnum.
En N-Kórea virðist algerlega óútreiknanleg - með þetta stórskrítna fjölskylduveldi.
3-kynslóð Kimma við völd.
Kv.
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 14:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
5.1.2016 | 02:56
Er sagan að endurtaka sig? Á millistríðsárunum, árunum milli heimsstyrrjaldanna, var flestum löndum A-Evrópu stjórnað af fasistastjórnum
Á millistríðsárunum, var fyrst Ítalía Mussolinis - fyrirmynd. En áratug síðar, urðu þýskir nasistar áhrifameiri.
Í dag, virðist Pútín að einhverju leiti vera fyrirmynd af svipuðu tagi.
Þó að hin afar hægri sinnaða ríkisstjórn Póllands - sé sannast sagna, ef eitthvað er, harðar á móti Pútín -- á hinn bóginn, þá stendur það sennilega í tengslum við eflingu pólskrar þjóðernishyggju, en þegar skoðuð eru afar þjóðernislega-íhaldsöm viðhorf hinnar nýlegur þjóðernis hægristjórnar Póllands - til samfélagsþátta, þá virðast forsvarsmenn hinnar nýju þjóðernissinnuðu hægri stjórnar Póllands, um margt hafa skoðanir er svipar til skoðana stuðningsmanna Pútíns þegar kemur að hugmyndum um samfélagið.
Um nokkurra ára skeið, hefur Evrópa haft, afar þjóðernis-sinnaða hægri stjórn, með umtalsverðan halla í átt til þjóðernis-fasisma í Ungverjalandi. Sú ríkisstjórn, virðist aftur á móti, mun vinsamlegri ríkisstjórn Pútíns en á við núverandi landstjórnendur í Póllandi.
Brussels to review Polands media crackdown
Polands democratic progress is under threat
Sú aðgerð sem vekur einna mestan ugg um framtíð Póllands!
- Er vafalítið - ákvörðun ríkisstjórnar Póllands.
- Að afnema sjálfstæði æðsta dómstóls Póllands.
- En sú ákvörðun, hvorki meira né minna, en afnemur hina hefðbundnu 3-skiptingu valds, sem er sjálfur grundvöllur vestrænnar lýðræðishefðar.
Ríkisstjórnin - er þá með dómsvaldið, í reynd undir sinni stjórn.
Þetta er augljós ógn við lýðræðið í landinu - minnir um sumt á valdatöku nasista í Þýskalandi, þegar þeir skipulega - afnámu alla aðra valdapóla í landinu, en ríkisstjórnina.
En þ.e. leið til að koma á einræði, að leggja af velli - þau tékk á vald stjórnvalda, sem byggð eru inn í grunn stofnanakerfi landsins.
Nýjasta útspil stjórnarinnar, virðist vera - afnám sjálfstæðis ríkisfjölmiðla landsins. Að sögn flokksmanna, nauðsynleg aðgerð til að - stoppa "ósanngjarna gagnrýni."
Vandi er sá, að -róttækir flokkar, gjarnan þola enga gagnrýni- og þetta virðist afsökun, til þess að gera ríkis-miðlana, að - - valdatæki ríkisstjórnarinnar.
Ríkisstjórnin - virðist nú, stjórna með - "decree" - því sem á Íslandi nefnast, bráðabirgðalög. Það þíðir einfaldlega, að ríkistjórnin - gefur fyrirskipanir um breytingar með krafti laga og veit væntanlega að hennar þingmenn er hafa hreinan meirihluta, mundu hvort sem er - samþykkja allt sem fyrir þá væri lagt.
Eftir að stjórnin, afnám sjálfstæði æðsta dómstóls landsins - þá þíði það sennilega, að það stefni hratt í að --> Að í landinu sé einungis einn valdapóll.
Það verður merkilegt að fylgjast með því, hvernig ESB bregst við þessu:
- En ef ESB t.d. afnemur ekki atkvæðarétt Póllands.
- Verður lítið að marka yfirlýsingar ESB þess efnis, að vera - verndari lýðræðis.
En innan lagaramma ESB - fyrirfinnst regla, sem heimilar að atkvæðaréttur ríkis, sé afnuminn - ef sannast á það land, alvarleg brot á grunnreglum sambandsins.
Það er eiginlega erfitt að horfa framhjá því - að skipulögð tilraun nýs valdaflokks, til afnáms lýðræðis í eigin landi, telst einmitt - grundvallar brot á stofnsáttmálum sambandsins.
Ekki er unnt að --> Reka land úr ESB.
En án atkvæðaréttar --> Væri viðvist Póllands, óþægileg - svo meir sé ekki sagt.
- Aðildarríkjum er sjálfum heimilt - skv. Maastricht sáttmálanum, að yfirgefa ESB.
Það gæti farið svo - að Pólland yrði hvatt til að fara!
Það gæti orðið upphaf að fækkun landa innan ESB, en erfitt væri síðan að horfa ekki til Ungverjalands, ef Pólland fengi þessa tilteknu meðferð - útilokun.
Það væru einnig skilaboð til kjósenda í aðildarlöndum - að það að kjósa yfir sig fasista, væri líklega samtímis ákvörðun um að yfirgefa sambandið.
- Að sjálfsögðu hafa Pólverjar rétt til þess, að velja fasisma.
- En málið er, að það væri alvarlegt grundvallarbrot á stofnsáttmálum ESB, að umbera það að eitt meðlimalanda - þróist yfir í fasisma.
Ef ESB setur ekki fótinn niður - þá væri það algerlega dauður bókstafur, sú grunnregla að aðildarlönd verði að viðhafa vestrænt lýðræðis-fyrirkomulag.
Að Pólland verði fasistaríki, mun ekki ógna NATO aðild þeirra - enda NATO ekki með neina formlega lýðræðisreglu. Og fordæmi t.d. í tilviki Grikklands á 8. áratugnum, og auðvitað tilviki Tyrklands - að einstök aðildarlönd viðhafi einræðis-fyrirkomulag.
Niðurstaða
Það er óneitanlega sérstakt að horfa upp á þetta, að ekki er lengra síðan en 1989 að Pólverjar börðust hugrakkri baráttu fyrir lýðræði. Var Pólland fyrsta A-Evrópu landið, sem tók upp það fyrirkomulag - kyndilberi lýðræðisþróunar í A-Evrópu.
Nú stefni ef til vill í að Pólland, verði kyndilberi aðrar þróunar, þ.e. þróunar yfir í hreinan þjóðernis-sinnaðan fasisma, eða þjóðernisfasisma, með afnámi raunverulegs lýðræðis.
Sennilega verða áfram kosningar í Póllandi - - en eins og Pútín hefur gert skipulega eftir 2003, að þá hefur hann smám saman veikt svo aðrar valdastofnanir landsins, og safnað samtímis völdum að sinni persónu - að hann er orðin raun og sanni, einræðisherra.
Þó enn séu haldnar kosningar - sé ekki raunverulegt val í boði til kjósenda. Allir helstu fjölmiðlar undir stjórn ríkisstjórnarinnar, og þeim beitt sem hreinum valdatækjum stjórnvalda.
Svipuð þróun getur verið framundan í Póllandi - þ.e. kosningar halda áfram, en jafnframt muni stjórnvöld - stokka upp spilin með svo óhagstæðum hætti fyrir stjórnarandstöðu, að hún eigi - litla möguleika!
Væntanlega er framundan í Póllandi - skipulögð aðför að fjölmiðlum landsins, svo að fjölmiðlun verði - eins og í Rússlandi, valdatæki stjórnvalda!
Með þingið stimpilpúða eins og í Pútínistan.
Og dómsvaldið gert - vanmáttugt.
- Fátt virðist geta stöðvað þessa öfugþróun.
Merkilegt að verða vitni að því.
Hve hratt er unnt að afnema lýðræði í lýðræðisríki.
Endurtekning 3-áratugarins.
____________
Mér verður eiginlega hugsi - guð sé lof fyrir íslensku stjórnarskrána.
En þ.e. afar góð vörn falin í reglunni, að stjórnarskrárbreytingar taki einungis gildi eftir þingkosningar - og staðfestingu nýkjörins þings á breytingu.
Mun betri, en ef miðað er við lönd, þ.s. einungis þarf 2/3 þingmeirihluta, sem þíðir þá að ef slíkur meirihluti næst fram, getur ríkisstjórn breytt öllu að vild.
- Flokkur er vildi afnema lýðræði á Íslandi.
- Sennilega yrði fyrst, með einhverjum hætti, að takast að afnema núgildandi stjórnarskrá - án þess að önnur mundi strax taka gildi.
- Það gæti verið hluti af undirbúningi slíkrar tilraunar - málflutningur sem skipulega er ætlað að draga úr virðingu fyrir gildandi stjórnlögum landsins.
Set þetta fram - til varnaðar.
En fólk verður að muna - þó núgildandi stjórnarskrá sé ekki án galla.
Þá bæði skilgreinir hún og ver öll mannréttindi, þar á meðal þau er tengjast lýðræði.
Það má ekki afnema stjórnlög - án þess að önnur sem séu a.m.k. ekki síðri, taki jafnharðan strax gildi.
Kv.
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 12:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
4.1.2016 | 00:48
Maður veltir fyrir sér hvað Saudum gekk til, að taka af lífi þekktan Shíta klerk - mál sem hefur valdið nýrri stigmagnandi deilu við Íran
Það áhugaverða er - að allir þeir 47 sem teknir voru af lífi í Saudi Arabíu; höfðu allir með tölu verið í haldi árum saman. Að sögn yfirvalda í Saudi Arabíu, voru 43 Al-Qaeda meðlimir, er handteknir voru fyrir - áratug. 3-einstaklingar voru Shítar er voru handteknir í tengslum við óeirðir 2011, þar á meðal klerkurinn, Sheikh Nimr al-Nimr.
- Eina ástæða sem ég kem auga á - eru pólitísks eðlis.
Það virðist aftur vera, vaxandi ógn af Al-Qaeda í ríki Sauda, sem gæti vel skýrt - þessa skyndilegu ákvörðun, að taka 43 Al-Qaeda meðlimi af lífi.
- En þá lendir maður í pínu vandræðum með að skíra aftöku, Nimr al-Nimr - sem var shíta klerkur, í engum tengslum við Al-Qaeda, sem eru öfga Súnní Íslamistar.
Einn möguleikinn - er að yfirvöld í Saudi Arabíu, hafi hreinlega gert mistök.
Ef svo væri - þá líklega mundu þau aldrei viðurkenna slíkt.
- Skv. nýjustu fréttum, var sendiráð Saudi Arabíu í Teheran, brennt af æstum múg - sem mótmælti aftöku Nimr al-Nimr. Sagt þó hafa verið mannlaust.
- Viðbrögð Sauda að sjálfsögðu fyrirsjáanleg - þau hafa sagt sendiherra Írans í Riyadh að hypja sig, gefið honum 48kls.
Saudi Arabia cuts ties with Iran as row over cleric's death escalates
Saudi Arabia Cuts Ties With Iran Amid Fallout From Clerics Execution
Manni virðist samt líklegast að þetta mál hafi ekki frekari umtalsverðar afleiðingar
Þó æðsti leiðtoginn, Ayatollah Ali Khamenei, hefði lofað - guðlegri hefnd.
Hafa yfirvöld í Íran, handtekið 40 manns er tóku þátt í árásinni á sendiráð Sauda - og Rouhani forseti, sagði árásina hafa skaðað orðstír Írans.
Bandamenn Írana voru einnig mjög hvassir - eins og leiðtogi íranskra klerka, þ.e. Moqtada al-Sadr í Írak og leiðtogi Hesbollah í Sýrlandi.
Íranski byltingavörðurinn - virtist fylgja hinni harðari línu.
En vafasamt er að sjá að bæði ríkin -- sjái tilgang í að láta æsingar ganga lengra.
En líklega verða formleg dyplómatísk samskipti lokuð - a.m.k. einhverja hríð á eftir.
- Írönsk yfirvöld verða að standa sig betur í því, að verja sendiráð erlendra ríkja í landinu.
Niðurstaða
Eitt af vandamálum við -einræðisríki- er að nær ómögulegt getur verið að átta sig á því, hvað liggur að baki tiltekinni ákvörðun.
Engin opinber skýring virðist til staðar í Riyadh - Saudar hafa lesið formlegar ásakanir á hendur þeim sem voru aflífaðir, þar á meðal Nimr al-Nimr.
En engin sönnunargögn hafa verið gerð opinber.
Svo er það - af hverju núna?
En ekki árum - fyrr?
Þetta er nánast eins og "Sovietology."
Kv.
Utanríkismál/alþjóðamál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Um bloggið
Einar Björn Bjarnason
Nýjustu færslur
- Er samningur Trumps við Japan - er inniber 550 milljarða$ fjá...
- Hótel-bókanir í sumar, gefa vísbendingar um kjaraskerðingu al...
- Kjarnorkuáætlun Írana hefur líklega beðið stórtjón, fremur en...
- Netanyahu, virðist hafa hafið stríð við Íran - beinlínis til ...
- Trump ákveður að senda, Landgönguliða - til Los-Angeles! Kemu...
- Möguleiki að Úkraína hafi í djarfri árás á flugvelli sumir mö...
- Yfirlýsing Trumps um yfirvofandi 50% tolla á ESB lönd, afhjúp...
- Tollar Bandaríkjanna á Kína - líklega ca: 50%. Kína á Bandarí...
- Að það verður af hráefnasamningi Úkraínu og Bandaríkjanna - v...
- Margt bendi til yfirvofandi kreppu í Bandaríkjunum! Skv. áhug...
- Vaxandi líkur á að Trump, reki: Jerome Powell. Yfirmann Seðla...
- Gideon Rachman hjá Financial Times -- útskýrir af hverju, Ban...
- Trump undanskilur frá tollum á Kína -- snjallsíma, og nánast ...
- Talið af sérfræðingum, verðfall á ríkisskuldabréfum Bandaríkj...
- Viðskiptastríðsyfirlýsing Donalds Trumps gagnvart heiminum li...
Nýjustu athugasemdir
- Er samningur Trumps við Japan - er inniber 550 mil...: Þetta minnir á æsinginn vegna þotunar sem Katarar ætla að gefa ... 7.9.2025
- Er samningur Trumps við Japan - er inniber 550 mil...: Að vera ALGER andstæðingur Trumps er eitt en að komameð svona a... 7.9.2025
- Er samningur Trumps við Japan - er inniber 550 mil...: Þannig að þú heldur að Trump sé mútuþegi eða þjófur á þessu fé?... 6.9.2025
Eldri færslur
2025
2024
2023
2022
2021
2020
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
Bloggvinir
-
eyglohardar
-
bjornbjarnason
-
ekg
-
bjarnihardar
-
helgasigrun
-
hlini
-
neytendatalsmadur
-
bogason
-
hallasigny
-
ludvikjuliusson
-
gvald
-
thorsteinnhelgi
-
thorgud
-
smalinn
-
addabogga
-
agnarbragi
-
annabjorghjartardottir
-
annamargretb
-
arnarholm
-
arnorbld
-
axelthor
-
arnith2
-
thjodarsalin
-
formosus
-
birgitta
-
bjarnijonsson
-
bjarnimax
-
westurfari
-
virtualdori
-
bookiceland
-
gattin
-
davpal
-
dingli
-
doggpals
-
egill
-
jari
-
einarborgari
-
einarsmaeli
-
erlaei
-
ea
-
fannarh
-
fhg
-
lillo
-
gesturgudjonsson
-
gillimann
-
bofs
-
mummij
-
gp
-
gudmbjo
-
hreinn23
-
gudrunmagnea
-
gmaria
-
topplistinn
-
skulablogg
-
gustafskulason
-
hallurmagg
-
haddi9001
-
harhar33
-
hl
-
diva73
-
himmalingur
-
hjaltisig
-
keli
-
fun
-
johanneliasson
-
jonsullenberger
-
rabelai
-
jonl
-
jonmagnusson
-
jonvalurjensson
-
thjodarskutan
-
gudspekifelagid
-
juliusbearsson
-
ksh
-
kristbjorg
-
kristinnp
-
larahanna
-
leifurbjorn
-
lifsrettur
-
wonderwoman
-
maggij
-
elvira
-
olafureliasson
-
olinathorv
-
omarragnarsson
-
ottarfelix
-
rafng
-
raksig
-
redlion
-
salvor
-
samstada-thjodar
-
fullvalda
-
fullveldi
-
logos
-
duddi9
-
sigingi
-
sjonsson
-
sigurjons
-
stjornlagathing
-
athena
-
stefanbogi
-
lehamzdr
-
summi
-
tibsen
-
vala
-
valdimarjohannesson
-
valgeirskagfjord
-
vest1
-
vignir-ari
-
vilhjalmurarnason
-
villidenni
-
thjodarheidur
-
valli57
-
tbs
-
thorgunnl
-
thorsaari
-
iceberg
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (13.9.): 4
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 167
- Frá upphafi: 871081
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 150
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar