Pólitíkusar treysta á ráðgjöf sérfræðinga - svo pólitíkusar geti tekið þekkingar-byggðar ákvarðanir.
Við höfum gott dæmi um þetta á Íslandi, er ríkisstjórn Íslands - ítrekað leitar ráða þeirra sérfræðinga í sjúkdóma-vörnum sem Ísland ræður yfir.
--Er kemur að ákvörðunum um sjúkdómavarnir.
Þó barátta gegn COVID sé ekki sami hluturinn.
Er prinsippið er kemur að Biden vs. Afghanistan það sama.
--Þ.e. ný ríkisstjórn Bandar. treystir á þekkingu PENTAGON og CIA.
- Það verður þá alvarlegt vandamál, ef báðar stofnanirnar samtímis - alvarlega vanmeta stöðuna.
- Við getum ímyndað okkur í samanburði - ef okkar helsti sérfræðingur í sjúkdóms-vörnum, hefði stórfellt rangmetið COVID --> Er hefði þá líklega leitt fram rangar pólitískar ákvarðanir í tengslum við baráttuna við kófið.
- Biden var sannarlega varaður af PENTAGON við því að kveða liðið heim.
- En það virðist hafa verið almenn aðvörun, að heim-kvaðning líklega þíddi fall ríkisstjórnar Afghanistan; á tímaramma -- sem hafi verið metinn mun lengri en örfáar vikur.
Fólk er eðlilega reitt yfir því er Bandaríkin standa með buxurnar á hnjánum.
Með brottflutning fólks, er virðist umtalsvert háður -- góðvilja Talibana!
--Sú útkoma er að sjálfsögðu auðmýkjandi, sbr. humiliating.
En þó svo að bandarískur her gæti flugvallarins við Kabúl, með ca. 6000 manna liðsstyrk.
Þá eru það í dag Talibanar er ráða Kabúl - upp á þá komið, hvort fólki er hleypt til flugvallarins yfir höfuð!
Það er greinilega ekki þ.s. menn gerðu ráð fyrir er ákvörðun um heimkvaðningu var tekin!
En greinilega virðist, að enginn hafi talið það taka skemmri tíma en mánuði.
Fyrir hrun ríkisstjórnar og stjórnar-hers Afghanistan að eiga sér stað!
- Enginn þarf að efast um reiði og pyrring Biden, er hann undrast að herinn leggi niður vopn í stað þess að þétta liðið í nær héröðum Kabúl, til að verja borgina til síðasta blóðdropa.
- Punkturinn er sá, að hvorki PENTAGON né CIA -- virðast hafa átt von á því, að herinn gæfist upp upp til hópa - í stað þess að berjast.
Þess í stað, þrátt fyrir marga veikleika, virðast PENTAGON og CIA hafa talið að herinn mundi a.m.k. endast einhverja mánuði!
--Þarna kem ég aftur að því, hvaða kröfur menn gera til pólitíkusa.
Ef menn samþykkja prinsippið, að pólitíkusar byggi á mati sinna sérfræðinga.
Þá liggur sökin á röngu stöðumati - klárlega hjá PENTAGON og CIA, frekar en Biden.
--Biden hefur auðvitað hina almennu pólitísku ábyrgð.
En þ.e. ekki hægt að segja, hann hefði átt að vita betur - eða hann hafi vitað betur.
En hugmyndir um brot í starfi, verða að byggjast á - hann með sanngjörnum hætti hefði átt að vita betur, eða að hann sannarlega hafi vitað betur en breytt gegn betri vitund!
--Er ljóst er að vanmat CIA og PENTAGON var þetta stórfellt, lít ég á að sökin sé þeirra.
Hvet fólk til að lesa þessa grein: This Is Actually Happening.
Hún segir vel söguna af því stöðulega vanmati er átti sér stað.
Ekki um augljós brot í starfi, einfaldlega menn voru - clueless.
Austin hershöfðingi viðurkennir Bandar. voru sigruð: Austin contradicts Biden.
Áhugaverð frásögn og íhuganir hermanns: What America Didnt Understand About Its Longest War.
Hans helsta ábending virðist sú, Talibanar hafi haft sterka sannfæringu meðan að her og lögregla hafi haft veika - fyrst og fremst starfað út á launin, mun síður tilbúnir til að láta líf.
Önnur áhugaverð skoðun: Why Afghan Forces So Quickly Laid Down Their Arms.
Þessi telur að Bandaríkin hafi í reynd - aldrei almennilega skilið hvernig Afganistan virkar.
Hann bendir á klofning landsins í marga hópa - óformleg samskipti hópanna.
Hvernig þeir gera stöðugt tímabundið samkomulag - gjarnan svæðisbundið.
Hann vill meina að Bandaríkin hafi aldrei almennilega skilið, hvernig óformleg samskipti af því tagi virka í Afghanistan -- þetta gæti verið stór útskýring!
- Eftir allt saman, þ.s. virðist hafa gerst, að Talibanar ræða við -tribal- leiðtoga, og semja beint við þá -- framhjá ríkisstjórn landsins.
- Í Afganistan virðist -tribal loyalty- sterkar en -loyalty- til lands og ríkisstjórnar.
- Það gæti verið -af hverju- Talibanar gátu - grafið sterkt undan her og ríkisstjórn.
- En það má vera, að sama gildi um hermenn og aðra Afghani - að ef þeirra -tribal- leiðtogi segir eitthvað, þá gildi það í þeirra augum meir -- en boð ríkisstjórnar eða yfirmanns í hernum.
- Það geti verið, að -tribal- leiðtogi -- hafi haft vald til að kalla heim, þá hermenn og lögreglumennn - er tilheyrðu hans -tribe- eftir að sá gerði samkomulag við Talibana.
- Og er Talibanar gera sambærilegt samkomulag við alla -tribal- leiðtoga.
Þá geti það - þar með - hugsanlega fullkomlega skýrt hið -óvænta- hraða hrun.
Eins og greinarhöfndur bendir á, þá er óvíst að CIA né PENTAGON hafi nokkurt beint aðgengi að samskiptum -tribal- leiðtoga sín á milli - eða við Talibana.
--Eftir allt saman, mundu þeir rökrétt vilja halda þeim leyndum.
- Þar með hafi myndast líklega gríðarleg gjá í vitneskju þeirra stofnana.
Kort er sýnir íbúaskiptingu Afghanistan og Pakistan
- Eins og sést er Pashtun hópurinn beggja vegna landamæra - Afghanistan og Pakistan.
- Það tel ég skýra af hverju Bandaríkin gátu ekki unnið.
- Því Talibanar hafi alltaf getað leitað yfir landamærin - til frænda sinna meðal Pashtúna í fjöllum Pakistan nærri landamærunum, er þeir voru beittir þrýstingi - þeir höfðu víst einnig þjálfunar-búðir þeim megin landamæranna sem Bandar. gátu ekki ráðist gegn.
- Þar sem Bandaríkin hafi ekki viljað hætta á stríð við Pakistan.
- Hafi þar með verið ómögulegt fyrir Bandaríkin að sigrast á Talibönum.
Ég vil ekki meina að þetta sýni -incompetence- frekar það að þetta hafi verið ómögulegt.
Af hverju voru menn þá samt svo lengi? Góð spurning!
--Stofnunin PENTAGON, gæti einfaldlega hafa verið treg til að samþykkja ósigur.
- Það gæti verið stofnunar-kúltúr því að kenna.
Heildar manntjón og kostnaður af stríðinu í Afghanistan
The war in Afghanistan by the numbers
Mannfall Afghana!
- Talibanar: 51.191
- Her og lögregla: 66þ.
- Almennir borgarar: 47.245
- Samtals: 164.436
Mannfall Bandaríkjanna og NATO!
- Bandar. hermenn 2.442
- Bandar.menn starfandi í landinu 3.846
- Annað NATO: 1.144
- Samtals: 7.432
Annað mannfall:
- Hjálparst og óháð alþj.samt.: 444.
- Blaðamenn: 72
- Bandar. almennir borgarar: 6.
Kostnaður Bandar. og NATO:
- Bandaríkin: 2,2Tn.$ (bandar. trilljón)
- Kostnaður annarra NATO landa vantar samantekt, en Bretl. eitt hafði varið a.m.k. 21 milljarði punda skv. yfirliti gefið út 2014 - engar tölur verið gefnar út síðan.
--Líklega samanlagt vörðu önnur NATO ríki a.m.k. einhverjum hundruðum milljarða Dollara.
Eins og sést af þessum tölum, þá er megin-mannfallið Afgana sjálfra!
Sem ekki ætti að koma nokkrum manni á óvart!
Masshoud yngri
Er raunveruleg andstaða að byggjast upp gegn Talibönum?
Ahmad Massoud, son of assassinated anti-Taliban fighter, calls for support
Anti-Taliban Forces Retake Three Northern Afghan Districts
- Algerlega óþekkt hve mikið er að marka þetta.
--Bendi þó á, Ahmad Massoud fer fyrir Tajikum.
--Sem er næst fjölmennasti hópurinn í Afghanistan. - Bendi fólki á að skoða kortið af Afghanistan.
--Þá sérstaklega hvar lönd Tajika eru. - Það þíðir -- sagan um 3-héröð yfirtekin.
Gæti verið sönn!
--Skoðið hvernig lönd Tajika einangra svæðin að landamærum Kína. - Vert að nefna, að síðast -- sigruðu Talibanar aldrei Tajika.
Sem vörðust í Panshjir dal, allan liðlangan tímann.
Meðan Talibanar voru við völd.
--Þeir einnig héldu Pansjhir dal, gegn Sovétríkjunum.
--Þ.e. pabbi Ahmad var hetjan mikla er varðist ofureflinu ítrekað.
Og pápi Masshoud var síðan myrtur af Talibönum! - Styrkur Tajika á þessum punkti er óþekktur.
En þ.e. a.m.k. ekki útilokað að einhverjar leyfar stjórnarhersins.
Hafi gengið þeim á hönd!
Gæti Afganistan aftur orðið bitbein risavelda?
Ég velti fram þeim möguleika:
- Töluvert af liði spáir því að Kína - geri samninga við Talibana, og fjármagni þá síðan gegn því að fá að nýta hráefni í landinu og reisa vegi!
- Augljóslega, væri þá Vesturveldum í lóf lagi að hindra það, með því að fjármagna og vopna Masshoud.
Nema Masshoud, sé eftir -- stórum peningum.
Hinn bóginn, hafandi í huga talibanar myrtu föður hans -- er líklega ekki ástæða að efa hatur hans.
- En Masshoud er greinilega afar vel staðsettur, til að hindra hugsanlega Kína drauma!
Þetta sjá menn - ef þeir horfa á kortið að ofan og skoða hvar lönd Tajika eru.
Niðurstaða
Eftir að hafa fylgst með Afganistan fréttum í viku, er niðurstaða mín - að kenna um stórfelldum upplýsinga-göllum hjá þeim stofnunum Bandaríkjanna er áttu að vita!
M.ö.o. hafi hvorki PENTAGON né CIA.
Virst hafa nokkra hina minnstu vitneskju um fundi Talibana með -tribal- leiðtogum.
Sem líklega leiddu fram samkomulag við -tribal- militia.
Vitneskja um slíkt samkomulag, gæti hafa sannfært yfirmenn stjórnarhersins, að einnig semja.
Það greinilega kom upplýsinga-stofnunum Bandaríkjanna fullkomlega í opna skjöldu.
Að her Afganistan gæfist upp - bardagalítið síðustu vikurnar tvær til þrjár.
--Menn hafi gefið sér að tímin væri a.m.k. nokkrir mánuðir.
- Því nægur tími að skipuleggja heimkvaðningu.
Það hafi ekki verið fyrr en á 11-stundu er Talibanar voru komnir í nær-héröð Kabúl.
Að fyrirskipun um að senda herlið til Kabúl, hafi verið hrint í framkvæmd.
--En þá hafi þegar verið orðið of seint, að tryggja algerlega öryggi fólks.
Niðurstaðan sé sú auðmýkjandi staða, að Talibanar ráði miklu um það.
--Hverjir fái að fara úr landi!
Bandaríkin geti ekki pikkað fólk að vild, eins og þær ætluðu sér.
- Reykna samt með að mikilvægasta fólkið hafi náð til flugvallarins.
Áður en Talibanar voru búnir að taka alla borgina.
- Vissulega ber ráðandi pólitíkus pólitíska ábyrgð.
- Hinn bóginn er aldrei krafa - pólitíkusar séu sérfræðingar.
Heldur er hin Vestræna venja, þeir séu fulltrúar kjörnir án slíkra krafna.
Og þess í stað njóti ráðgjafar sérfræðinga!
- Að sjálfsögðu er það mjög mikilvægt atriði, hvort ráð sérfræðinganna eru góð eða slæm.
Ég hugsa að það sé ekki sanngjarnt að krefjast þess, að Biden hefði átt að vita betur.
Er það virðist að allir helstu sérfræðingar Bandaríkjanna hafi brugðist fullkomlega.
--------------
Þetta er sennilega magnaðasti -intelligence failure- sem ég hef orðið vitni um.
- Hvað annað varðar, þá eins og sést að ofan er mannfall Afgana sjálfra 164þ. á 20 árum.
- Mér virðist á tæru að Bandaríkin hafi aldrei verið í aðstöðu til að hafa sigur í þessu stríði.
- Opin spurning hvað yfirlýsing - Ahmad Masshoud junior þíðir, myndir virðast teknar í höfuðvígi Takjika í Panshjir dal, þaðan sem Takjikar hafa alltaf varist öllum þeim er að þeim hafa sókt -- hvort það virkar nú sem áður er auðvitað óþekkt.
En hatur hans á Talibönum er persónulegt, er faðir hans var myrtur af Talibönum.
--Bendi fólki á að skoða kort af Afganistan er sýni landsvæði mismunandi hópa.
Mér virðist fljótt á litið, að ef Vesturlönd styðja Masshoud, þá gætu þau hindrað alla hugsanlega -- Taliban - Kína drauma.
--Masshoud kallar eftir stuðningi Vesturvelda.
Ekki vitað enn hvort hann fær slíkan stuðning.
Þar fyrir utan, ekki útilokað hann hafi fengið einhverjar leyfar stjórnarhers Afganistan sér til liðs.
Kv.
Flokkur: Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt 23.8.2021 kl. 03:48 | Facebook
Um bloggið
Einar Björn Bjarnason
Nýjustu færslur
- Mögnuð atburðarás hefur leitt til falls, Bashar al-Assads, fo...
- Þorgerður Katrín í oddaaðstöðu! Hún líklega algerlega ræður h...
- Sigur Donalds Trumps, stærsti sigur Repúblikana síðan George ...
- Ef marka má nýjustu skoðanakönnun FoxNews - hefur Harris þokk...
- Kamala Harris virðist komin með forskot á Trump í Elector-Col...
- Það að Úkraínuher er farinn að sprengja brýr í Kursk héraði í...
- Úkraínuher hóf innrás í Kursk hérað sl. mánudag! 5 dögum sein...
- Möguleikar Kamölu Harris til hugsanlegs sigurs á Donald Trump...
- Leiðir ris J.D. Vance - til fullkominna yfirráða milljarðamær...
- Er fall bandaríska lýðveldisins yfirvofandi - vegna ákvörðuna...
- Sérfræðingar vaxandi mæli þeirrar skoðunar, 2025 verði lykilá...
- Rússar hafa tekið 8 km. landræmu síðan sl. föstudag í NA-Úkra...
- Rússland getur hugsanlega haldið fram Úkraínustríði, allt að ...
- Rússland ætlar að hætta stuðningi við uppreisnarmenn í Súdan ...
- Gríðarlega mikilvægt að Úkraína fær bráðnauðsynlega hernaðara...
Nýjustu athugasemdir
- Mögnuð atburðarás hefur leitt til falls, Bashar al...: Margar þjóðir eru tibúnar að hjálpa til við uppbygginguna en sú... 9.12.2024
- Mögnuð atburðarás hefur leitt til falls, Bashar al...: Grímur Kjartansson , Sýrland er efnahagslega rjúkandi rúst - ei... 9.12.2024
- Mögnuð atburðarás hefur leitt til falls, Bashar al...: Mér skilst að al-Jilani hafi keypt sér liðveislu USA með því a... 9.12.2024
Eldri færslur
2024
2023
2022
2021
2020
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
Bloggvinir
- eyglohardar
- bjornbjarnason
- ekg
- bjarnihardar
- helgasigrun
- hlini
- neytendatalsmadur
- bogason
- hallasigny
- ludvikjuliusson
- gvald
- thorsteinnhelgi
- thorgud
- smalinn
- addabogga
- agnarbragi
- annabjorghjartardottir
- annamargretb
- arnarholm
- arnorbld
- axelthor
- arnith2
- thjodarsalin
- formosus
- birgitta
- bjarnijonsson
- bjarnimax
- westurfari
- virtualdori
- bookiceland
- gattin
- davpal
- dingli
- doggpals
- egill
- jari
- einarborgari
- einarsmaeli
- erlaei
- ea
- fannarh
- fhg
- lillo
- gesturgudjonsson
- gillimann
- bofs
- mummij
- kallisnae
- gp
- gudmbjo
- hreinn23
- gudrunmagnea
- gmaria
- topplistinn
- skulablogg
- gustafskulason
- hallurmagg
- haddi9001
- harhar33
- hl
- diva73
- himmalingur
- hjaltisig
- keli
- fun
- johanneliasson
- jonsullenberger
- rabelai
- jonl
- jonmagnusson
- jonvalurjensson
- thjodarskutan
- gudspekifelagid
- juliusbearsson
- ksh
- kristbjorg
- kristinnp
- larahanna
- leifurbjorn
- lifsrettur
- wonderwoman
- maggij
- elvira
- olafureliasson
- olinathorv
- omarragnarsson
- ottarfelix
- rafng
- raksig
- redlion
- salvor
- samstada-thjodar
- fullvalda
- fullveldi
- logos
- duddi9
- sigingi
- sjonsson
- sigurjons
- stjornlagathing
- athena
- stefanbogi
- lehamzdr
- summi
- tibsen
- vala
- valdimarjohannesson
- valgeirskagfjord
- vest1
- vignir-ari
- vilhjalmurarnason
- villidenni
- thjodarheidur
- valli57
- tbs
- thorgunnl
- thorsaari
- iceberg
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.12.): 4
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 35
- Frá upphafi: 857482
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 30
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Ef matið byggðist á bardagagetu var það rangt mat, því það sem brást var ekki getan heldur bardagaviljinn, en hann reyndist lítill sem enginn þegar á reyndi.
Guðmundur Ásgeirsson, 22.8.2021 kl. 15:12
Fróðlegt. Þarna virðast vera margt sem gæti farið vel. Við vonum það besta. Góð samantekt.
Egilsstaðir, 22.08.2021 Jónas Gunnlaugsson
Jónas Gunnlaugsson, 22.8.2021 kl. 17:43
Vantar ekki í þessa greiningu hjá þér hvers vegna Afganir voru óánægðir með ríkisstjórnina, töldu hana ekki vera gera neitt fyrir sig og því hljómaði áróður Talíbana bara vel
Sá grein á SVT.se þar sem því er haldið fram að Afganistan sé að þorna upp og sé 6. viðkvæmasta landið í heiminum fyrir gróðurhúsaáhrifunum þetta veldur því að smábændur (voru 60% fólksins) flosna upp í miklum mæli og flytja í bæinn en hafa litla möguleika á að framfleyta sér í atvinnuleysinu þar
Analys: Klimatkrisen hjälpte talibanerna ta makten | SVT Nyheter
Grímur Kjartansson, 22.8.2021 kl. 22:31
Grímur Kjartansson, mjög erfitt að tala um -vilja- Afghana, eftir allt saman samsafn þjóða í landi - þarna er Shíta hópur Hazara, afar afturhaldssamt trúarlega séð Súnní samfélag Pasthun, þar fyrir utan nokkrir fleiri hópar. Einungis heyrt að þetta ár hafi verið slæmt - kannski það hafi verið þurrkum að kenna; SÞ hefur varað við hættu á hungurs-neyð. Hinn bóginn, get ég vart ímyndað mér að Hazari t.d. vilji Shíta hatara Talibana til valda. Það gæti vel verið veikur stuðningur við fyrri stjórn - vegna ekki síst spillingar. Það þíði ekki endilega menn vilji frekar -- heittrúar Súnní í staðinn.
Kv.
Einar Björn Bjarnason, 23.8.2021 kl. 03:46
Guðmundur Ásgeirsson, ekki alltaf mikill munur á því tvennu.
Kv.
Einar Björn Bjarnason, 23.8.2021 kl. 03:47
Gjörsamlega rangt mat þitt á stöðu Bindens og það að varpa ábyrgðinni yfir á Pentagon og CIA. Allir vöruðu hann við og starfsfólk sendiráðsins í Kabúl lagði starf sitt að veði þegar það varaði karlinn við. Ég er beinlínis hissa að þú reynist vera harðari í afstöðu en Chuck Schumer sem gagnrýnir Biden og reyndar er leitun að Bandaríkjamanni sem er ánægður og telur Biden hafa sýnt leiðtogahæfileika. Ég þori að veðja við þig að ef repúblikanar taka Fulltrúadeildina á næsta ári, að hann verði ákærður fyrir embættis afglöp ef Kamala hefur þá ekki hrifsað til sín völdin fyrir þann tíma. Menn óar við hann við stjórnvölinn næstu þrjú árin. Segjum bjórkippu?
Birgir Loftsson, 27.8.2021 kl. 14:05
Öll mistök sem mögulega hefði verið hægt að gera í brotthvarfinu, voru gerð og ómöguleik bætt við!!!! Allt í boði Bidens. Talað er um að best væri að hann færi fyrir herrétt fyrir afhroð sitt sem yfirmaður herafla Bandaríkjanna en nyti ekki þeirra forréttinda að vera ákærður fyrir embættisaflöp sem forseti.
https://www.foxnews.com/politics/biden-presidency-afghanistan-kabul-investigations
Birgir Loftsson, 27.8.2021 kl. 14:17
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Þú ert innskráð(ur) sem .
Innskráning