4.12.2017 | 03:38
Trump greinilega bálreiður yfir vitnisburði Michael Flynn á föstudag, en í kjölfarið hefur snjóað Twítum frá Trump
Það fyrsta var eftirfarandi, þann 2. des:
Þetta þótti mörgum benda til þess, Trump væri að viðurkenna hafa vitað að Flynn hefði logið að FBI er hann rak Flynn.
Síðar daginn eftir bætti Trump við eftirfarandi:
Og síðan nokkrum mínútum síðar:
Bendi á að skv. niðurstöðu FBI-sem Comey kynnti 2016 eða fyrir forsetakosningarnar það ár; var það niðurstaða FBI að fjöldi eyddra meila væri í takt við eðlilega notkun - sjá gamla færslu: 30.000 e-mailar Clintons - stormur út af engu!
En hafið í huga að FBI - lét rannsaka alla diskana sem notaðir voru af Clinton. Með hátæknileiðum er unnt að framkalla eydda maila að nýju. Þær ræddu við þá sem sendu Clinton maila og fengu að líta á tölvur þeirra og þjóna. Skv. lýsingu Comey var þetta mjög ítarleg rannsókn.
Þannig að án vafa komst FBI að því, yfir hvaða tímabil mailum var eytt - sem sé af hverju matið sé að - um hafi verið að ræða, eðlilega noktun.
M.ö.o. eyði allir mailum, því annars fyllist allt af lesnum mailum. Ef viðkomandi fær mikinn fjölda meila dag hvern -- sé rökrétt að fjöldi daglegra eyddra meila sé töluverður.
- 30.000 mailar eru ekki nema: 90 eyddir mailar per dag, ef miðað væri við 1 ár.
--Og Clinton var lengur en eitt heilt ár, utanríkisráðherra.
M.ö.o. hefur þetta "controversy" um 30.000 eyddu mailana -- alltaf verið pólitísk froða.
Trump sé með pólitíska froðu er hann fullyrði að miklum fjölda maila hafi verið eytt - allt í einu - að um "coverup" sé að ræða.
--Engar vísbendingar um slíkt séu til staðar.
Trump sendi frá sér síðan eftirfarandi á sunnudag:
Næsti kom skömmu síðar:
Og hann bætti síðan um betur:
Sannast sagna kem ég ekki auga á nokkra skynsama ástæðu að efast um niðurstöðu FBI sem Comey kynnti 2016 - en eins og ég benti á að ofan; er fjöldi eyddra meila ekkert ótrúlegur - þegar mið er tekið af líklegum fjölda maila sem streymt hafa um þjóninn.
Megin spurningin sem FBI rannsakaði, var hvort unnt væri að sýna fram á tjón Bandaríkjanna - m.ö.o. það að Clinton rak meilana á þjóni í hennar einka-eign, hafi orsakað leka á leyndargögnum af vefþjóninum.
Svar Comey var einfaldlega að - FBI hefði ekki tekist að færa sönnur á slíkt.
Skv. lögum væri það smávægilegt brot - að hafa vistað mail gögn á einka-vefþjóni.
--En ef leyndargögn hefðu lekið með sannarlegum hætti, hefði það orðið að dómsmáli.
Comey taldi það líklegt að leyndargögn hefðu lekið - en þ.s. FBI þyrfti að sanna sekt, væri það mat Comey og stofnunarinnar að málið væri ekki hæft til dómtöku.
M.ö.o. hafi Clinton sloppið með skrekkinn.
--Ekkert bendi til þess að Clinton hafi persónulega með nokkrum hætti grætt á þessu.
- Ástæður þess að Trump talar þarna um "dishonest agent" er frásögn Comey af fundi sem hann átti með Trump í Hvíta-húsinu þ.s. einungis þeir tveir voru viðstaddir og því til frásagnar.
- Comey sagði Trump hafa óskað eftir því að Comey hætti að rannsaka Flynn.
Þess vegna vakti það svo mikla athygli -- er það virtist að Trump væri að ofan að viðurkenna að hafa vitað að Flynn hefði logið að FBI --> Er hann átti það samtal í Hvíta-húsinu við Comey.
Menn hafa sagt "obstruction of justice" þ.e. með þessu hafi Trump viðurkennt tilraun til að hindra framgang réttvísinnar - með því að vita Flynn hafa verið staðinn að "Federal crime" og hafa þá óskað eftir því við þáverandi yfirmann FBI að rannsókn FBI á Flynn væri hætt.
- Greinilega tekur lögfræðingur Trumps þetta alvarlega, því hann sagði á Sunnudag að það hefði verið hann, en ekki Trump, er hefði skrifað fyrsta Twítið umrædda; og baðst afsökunar á klaufaskap sínum við að semja textann.
- Margir líklega gruna að hann sé þarna að bjarga Trump úr klemmu. Því engin leið sé líklega þar með að sanna - að Trump hafi skrifað það tiltekna Twít.
Trump tweets about Russia probe spark warnings from lawmakers: "Trumps attorney, John Dowd, told Reuters in an interview on Sunday that he had drafted the Saturday tweet and made a mistake when he composed it."
Margir líklega munu trúa því mjög hóflega að Dowd hafi raunverulega samið það Twít.
Niðurstaða
Endurtek að ég sé enga ástæðu að ætla að rannsókn FBI á mail máli Clintons hafi með nokkrum hætti farið óeðlilega fram. Þvert á móti virðist mér Comey hafa sýnt með því að hefja aftur rannsókn einungis 11 dögum fyrir kosningar - sem augljóslega kom Clinton afar illa. Að Comey var ekkert í því að gera Clinton greiða. Rétt að muna að Trump lofaði þá mjög Comey fyrir að hafa opnað rannsóknina að nýju. En síðan var henni aftur lokað rétt fyrir fyrir kosningar. Þá er líklegt að Clinton hafi ekki átt raunhæfa möguleika á að laga skaðann fylgislega séð.
Hinn bóginn var það ákaflega greinilegt að Trump vildi að rannsókn FBI héldi áfram, og henni lyktaði með dómsmáli -- Comey hafi þá aftur auðsýnt með því að loka málinu að nýju.
Að hann lét ekki heldur Trump þrýsta honum til að gera þ.s. hann taldi ekki rétt.
Mér virðist þar með þvert á móti, málið allt sýna að Comey hafi hagað málinu án tillits til póltísks þrýstings - hvort sem er frá Demókrötum eða Repúblikönum.
Comey virðist mér einmitt sjaldgæft dæmi um embættismann með raunverulegt "integrity."
Aftur á móti hefur Trump mjög lengi verið þekktur fyrir að fara mjög frjálslega með sannleikann -- twítin hans sýna einnig vel fram á það, m.ö.o. röflið að 30þ. mailum hafi allt í einu verið eytt eftir að þingið hefði óskað eftir þeim.
Það sé fullyrðing sem hann hafi nákvæmlega ekki neitt fyrir sér um - sérstaklega á sama tíma eftir að FBI hafði tjáð allt aðra niðurstöðu úr sinni rannsókn.
Ég trúi miklu mun fremur Comey en Trump.
- Mér virðist hegðan Trumps um helgina honum sjálfum bersýnilega til minnkunar.
Kv.
Flokkur: Utanríkismál/alþjóðamál | Facebook
Um bloggið
Einar Björn Bjarnason
Nýjustu færslur
- Sigur Donalds Trumps, stærsti sigur Repúblikana síðan George ...
- Ef marka má nýjustu skoðanakönnun FoxNews - hefur Harris þokk...
- Kamala Harris virðist komin með forskot á Trump í Elector-Col...
- Það að Úkraínuher er farinn að sprengja brýr í Kursk héraði í...
- Úkraínuher hóf innrás í Kursk hérað sl. mánudag! 5 dögum sein...
- Möguleikar Kamölu Harris til hugsanlegs sigurs á Donald Trump...
- Leiðir ris J.D. Vance - til fullkominna yfirráða milljarðamær...
- Er fall bandaríska lýðveldisins yfirvofandi - vegna ákvörðuna...
- Sérfræðingar vaxandi mæli þeirrar skoðunar, 2025 verði lykilá...
- Rússar hafa tekið 8 km. landræmu síðan sl. föstudag í NA-Úkra...
- Rússland getur hugsanlega haldið fram Úkraínustríði, allt að ...
- Rússland ætlar að hætta stuðningi við uppreisnarmenn í Súdan ...
- Gríðarlega mikilvægt að Úkraína fær bráðnauðsynlega hernaðara...
- Ég er eindregið þeirrar skoðunar - Ísrael geti ekki unnið str...
- Trump, hefur viðurkennt að geta ekki greitt - 464 milljón dol...
Eldri færslur
2024
2023
2022
2021
2020
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
Bloggvinir
- eyglohardar
- bjornbjarnason
- ekg
- bjarnihardar
- helgasigrun
- hlini
- neytendatalsmadur
- bogason
- hallasigny
- ludvikjuliusson
- gvald
- thorsteinnhelgi
- thorgud
- smalinn
- addabogga
- agnarbragi
- annabjorghjartardottir
- annamargretb
- arnarholm
- arnorbld
- axelthor
- arnith2
- thjodarsalin
- formosus
- birgitta
- bjarnijonsson
- bjarnimax
- westurfari
- virtualdori
- bookiceland
- gattin
- davpal
- dingli
- doggpals
- egill
- jari
- einarborgari
- einarsmaeli
- erlaei
- ea
- fannarh
- fhg
- lillo
- gesturgudjonsson
- gillimann
- bofs
- mummij
- kallisnae
- gp
- gudmbjo
- hreinn23
- gudrunmagnea
- gmaria
- topplistinn
- skulablogg
- gustafskulason
- hallurmagg
- haddi9001
- harhar33
- hl
- diva73
- himmalingur
- hjaltisig
- keli
- fun
- johanneliasson
- jonsullenberger
- rabelai
- jonl
- jonmagnusson
- jonvalurjensson
- thjodarskutan
- gudspekifelagid
- juliusbearsson
- ksh
- kristbjorg
- kristinnp
- larahanna
- leifurbjorn
- lifsrettur
- wonderwoman
- maggij
- elvira
- olafureliasson
- olinathorv
- omarragnarsson
- ottarfelix
- rafng
- raksig
- redlion
- salvor
- samstada-thjodar
- fullvalda
- fullveldi
- logos
- duddi9
- sigingi
- sjonsson
- sigurjons
- stjornlagathing
- athena
- stefanbogi
- lehamzdr
- summi
- tibsen
- vala
- valdimarjohannesson
- valgeirskagfjord
- vest1
- vignir-ari
- vilhjalmurarnason
- villidenni
- thjodarheidur
- valli57
- tbs
- thorgunnl
- thorsaari
- iceberg
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.11.): 0
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 26
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 23
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Þið Trump hatarar megið ekki reiða ykkur á FBI...http://www.foxnews.com/opinion/2017/12/03/new-documents-reveal-fbis-clinton-cover-up.html
Guðmundur Böðvarsson, 4.12.2017 kl. 04:23
Guðmundur, og ég mun aldrei taka mark á Fox. Fox sé alltof pólit. fjölmiðill og þar með hlutdrægur í túlkunum, síðan hafa margir "commenterar" verið staðnir að hreinum skáldskap.
Þetta snýst ekki um - Trump hatur. Það er útúrsnúningur fylgismanna Trumps. Heldur einfaldlega - skilningi á því hvers konar persóna Trump er. Enda hefur Trump lengi verið þekktur maður.
Það hafi legið lengi fyrir, hvernig Trump er. Hann var þekktur árum áður en hann ákvað að fara í framboð. Hann hefur nákvæmlega ekki neitt batnað í samanburðinum við fyrri hegðan.
**Ég vissi - er hann lýsti yfir framboði - hvernig hann væri.
**Ég vissi það einnig - er umtal um það að hann væri að íhuga framboð - var hafið.
M.ö.o. rúmlega ári fyrir forsetakosningarnar 2016.
--Hann hefur verið nákvæmlega eins og ég bjóst við.
--Hann hefur ekki reynst vera þ.s. bjartsýnismenn héldu fram að hann mundi verða, þ.e. reynast forsetalegur er á reyndi - þvert á móti nákvæmlega sami durgurinn og hann var í viðskiptum og í gegnum árin á undan.
Karlinn mun ekkert breytast. Hann hafði hræðilega "repuation" í viðskiptum sem viðskiptaböðull, og hann er að hegða sér mjög svipað í embætti forseta og hann hagaði sér í viðskiptum.
Þeir sem héldur því fram hann mundi laga sig í embætti, hafa reynst vera "naive."
Það var m.ö.o. fyrirfram ljóst hann væri ómögulegur.
Og ekkert þar um hefur komið á óvart, þ.e. hann er nákvæmlega eins ómögulegur hann virtist ári fyrir kosningar.
--------------------
Þ.e. ekkert Clinton cover up til staðar -- þarna er verið að spinna upp sögu vegna þess að Clinton hitti dómsmálaráðherra Bandar. að máli.
Það á að hafa skipt máli í því samhengi, að rannsókn var hætt nokkrum dögum síðar.
--Lesendur eiga að draga það andlega "leap of faith" að þarna sé samhengi.
Þó FBI sé sjálfstæð stofnun. Þarna einfaldlega skyrrast "commenterar" Fox sig ekki við að leitast við að gera tilraun til að ófrægja mikilvægustu óháðu rannsóknarstofnun Bandar -- í pólitískum tilgangi.
--Ég sé ekkert í þessu sem kemur við rökum Comey fyrir því að rannsaka ekki Clinton áfram.
Það eina sem mundi máli skipta, er ef þeir gætu sýnt fram á að - FBI væri að leynda gögnum sbr. að FBI hefði raunverulega komist á snoðir um gagnaleka á leyndargögnum.
--Hinn bóginn hefur ekkert slíkt komið fram.
Ég kem ekki auga á að það hafi verið augljóslega óeðlilegt að hætta þeirri rannsókn, eftir að sbr. Comey sjálfan - FBI hafði ekki fundið eftir nákvæma rannsókn sannanir um slíkan gagnaleka.
Þessi umfjöllun er afskaplega augljóslega pólitísk - sbr. að lesendur eiga að gera greinilega ráð fyrir því, að þeirra pólit. andstæðingar -- við það eitt að hittast að máli, hafi verið að plotta óhreint. Þó ekkert beint bendi til þess að slíkt hafi gerst á þeim fundi.
------------------------------Í samanburði við lýsingu Comey er ekkert "contest:"
Director Comey Full Remarks Clinton Probe: https://www.washingtonpost.com/news/post-nation/wp/2016/07/05/fbi-director-comeys-full-remarks-on-clinton-email-probe/?utm_term=.152e870018b2
Kv.
Einar Björn Bjarnason, 4.12.2017 kl. 10:50
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Þú ert innskráð(ur) sem .
Innskráning