28.7.2016 | 23:59
Xi Jinping leiðtogi Kína -- fyrirmynd Erdogans?
Ég velti þessu fyrir mér - er ég veitti athygli hvert sjónum Erdogans hefur nýjast verið beint, í þeim hreinsunum sem eru í gangi innan Tyrklands. En síðan Xi Jinping komst til valda innan Kína, hefur hann einmitt stundað umfangsmiklar hreinsanir -- í því formi að fjöldi aðila tengdir keppinautum innan valdaflokksins, hafa verið ákærðir fyrir spillingu.
--Þetta væri ekki grunsamlegt, ef það virtist ekki svo - að línan sé á þann veg, að þetta hendi eingöngu aðila sem hafa stutt þá fylkingu innan valdaflokksins er var á undan við völd, eða aðila er virðast hafa orðið undir í valdabaráttunni innan flokksins.
- En punkturinn í þessu tilviki - snýr að þrýstingi sem markaðs-greinendur innan Kína urðu fyrir - fyrir nokkrum mánuðum; er víðtæk hræðsla var til staðar þess efnis að skammt væri í bólusprengingu innan efnahagslífsins innan Kína.
- Þá virtist sem að - hver sá sem birti fréttir eða greiningar á markaðnum innan Kína, sem túlkaðar voru af aðilum nærri Xi Jinping - sem neikvæðar; ættu það á hættu að verða handteknir.
Recep Tayyip Erdogans purge extends from soldiers to a stock analyst
En skv. nýjustu fréttum, er Erdogan einmitt að beita markaðsgreinendur þrýstingi og hótunum um lögsókn!
- "Mert Ulker, head of research at Ak Investment, the brokerage arm of Turkeys second-biggest bank, was stripped of his licence by the Capital Markets Board over a research report he issued to investors after the July 15 putsch."
- "Mr Ulkers report featured the standard predictions for the lira, the stock exchange and other economic indicators."
- "It also offered his analysis of the coups potential political impact and theories behind the perpetrators."
- "In punishing Mr Ulker...the board...cited laws against insulting the institution of the presidency."
- Other Turkish brokerage houses say they have also been asked to hand over copies of their client research in what one official said was an attempt to determine whether they had damaged the countrys market credibility."
En, ef menn virkilega vilja vera ósanngjarnir - geta þeir ákveðið að mistúlka sérhverja efasemd í greiningum greinenda um framtíðarhorfur í efnahagsmálum Tyrklands -- sem tilraun til að skaða hagsmuni landsins -- sem gæti t.d. hugsanlega flokkast undir landráð.
Og samtímis, sérhverja tilraun til að greina áhrifin af valdaránstilrauninni og þeim hreinsunum sem eru í gangi - á efnahag Tyrklands; sem árás á forsetann.
- Þ.e. ein klassísk aðferð í einræðislöndum - að hafa t.d. lög um landráð, óljóst orðuð -> Þannig að því sé haldið afskaplega opnu, hvað geti talist slíkt.
- Innan Tyrklands virðist meiðyrðalöggjöfin gagnvart embætti forseta - orðin afskaplega opin með sambærilegum hætti, þannig að unnt sé að túlka nánast hvaða skrif sem er, sem ekki fela í sér lof um forsetann; sem brot á þeim.
______Ég sé ekki endilega í þessum hreinsunum sannanir þess efnis, að Erdogan sé á leiðinni að gera Tyrkland að -- klerkaveldi.
_____Eiginlega svipar þessum hreinsunum til þess sem oft hefur áður gerst - einfaldlega í einræðislöndum, sbr. hvernig þeim um sumt svipar til hreinsana Xi Jinping.
En hann hefur beitt dómskerfinu í Kína -- að því er best verður séð, óspart til að klekkja á pólitískum andstæðingum, og sérhverjum þeim sem honum er í nöp við - nánast óháð tilefni að því er best verður séð.
Niðurstaða
Er Erdogan að breyta Tyrklandi í einræðisíki? Vísbendingum í þá átt fer hratt fjölgandi.
Á hinn bóginn, hafandi í huga að nálgun hans svipar til nálgunar einræðisherra almennt, sem og hegðunar - flokkseinræðislanda.
--Þá bendi þetta ekki endilega til þess að hann fyrirhugi klerkaveldi, eins og sumir halda fram.
Kv.
Flokkur: Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt 29.7.2016 kl. 03:23 | Facebook
Um bloggið
Einar Björn Bjarnason
Nýjustu færslur
- Sigur Donalds Trumps, stærsti sigur Repúblikana síðan George ...
- Ef marka má nýjustu skoðanakönnun FoxNews - hefur Harris þokk...
- Kamala Harris virðist komin með forskot á Trump í Elector-Col...
- Það að Úkraínuher er farinn að sprengja brýr í Kursk héraði í...
- Úkraínuher hóf innrás í Kursk hérað sl. mánudag! 5 dögum sein...
- Möguleikar Kamölu Harris til hugsanlegs sigurs á Donald Trump...
- Leiðir ris J.D. Vance - til fullkominna yfirráða milljarðamær...
- Er fall bandaríska lýðveldisins yfirvofandi - vegna ákvörðuna...
- Sérfræðingar vaxandi mæli þeirrar skoðunar, 2025 verði lykilá...
- Rússar hafa tekið 8 km. landræmu síðan sl. föstudag í NA-Úkra...
- Rússland getur hugsanlega haldið fram Úkraínustríði, allt að ...
- Rússland ætlar að hætta stuðningi við uppreisnarmenn í Súdan ...
- Gríðarlega mikilvægt að Úkraína fær bráðnauðsynlega hernaðara...
- Ég er eindregið þeirrar skoðunar - Ísrael geti ekki unnið str...
- Trump, hefur viðurkennt að geta ekki greitt - 464 milljón dol...
Eldri færslur
2024
2023
2022
2021
2020
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
Bloggvinir
- eyglohardar
- bjornbjarnason
- ekg
- bjarnihardar
- helgasigrun
- hlini
- neytendatalsmadur
- bogason
- hallasigny
- ludvikjuliusson
- gvald
- thorsteinnhelgi
- thorgud
- smalinn
- addabogga
- agnarbragi
- annabjorghjartardottir
- annamargretb
- arnarholm
- arnorbld
- axelthor
- arnith2
- thjodarsalin
- formosus
- birgitta
- bjarnijonsson
- bjarnimax
- westurfari
- virtualdori
- bookiceland
- gattin
- davpal
- dingli
- doggpals
- egill
- jari
- einarborgari
- einarsmaeli
- erlaei
- ea
- fannarh
- fhg
- lillo
- gesturgudjonsson
- gillimann
- bofs
- mummij
- kallisnae
- gp
- gudmbjo
- hreinn23
- gudrunmagnea
- gmaria
- topplistinn
- skulablogg
- gustafskulason
- hallurmagg
- haddi9001
- harhar33
- hl
- diva73
- himmalingur
- hjaltisig
- keli
- fun
- johanneliasson
- jonsullenberger
- rabelai
- jonl
- jonmagnusson
- jonvalurjensson
- thjodarskutan
- gudspekifelagid
- juliusbearsson
- ksh
- kristbjorg
- kristinnp
- larahanna
- leifurbjorn
- lifsrettur
- wonderwoman
- maggij
- elvira
- olafureliasson
- olinathorv
- omarragnarsson
- ottarfelix
- rafng
- raksig
- redlion
- salvor
- samstada-thjodar
- fullvalda
- fullveldi
- logos
- duddi9
- sigingi
- sjonsson
- sigurjons
- stjornlagathing
- athena
- stefanbogi
- lehamzdr
- summi
- tibsen
- vala
- valdimarjohannesson
- valgeirskagfjord
- vest1
- vignir-ari
- vilhjalmurarnason
- villidenni
- thjodarheidur
- valli57
- tbs
- thorgunnl
- thorsaari
- iceberg
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring: 7
- Sl. viku: 29
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 29
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Erdogan er einkennilega óstöðugur stjórnandi.
Nú er svo komið að Tyrkland á ekki landamæri að neinu vinveittu ríki og auk þess er Erdogan búinn að koma sér út úr húsi hjá Bandaríkjamönnum ,ESB og Rússlandi,allt ríki sem eru óhemju mikilvæg fyrir Tyrkland.
Erdogan virðist álíta að uppreisnin hafi verið á vegum Bandaríkjastjórnar sem á væntanlega eftir að gera útaf við NATO aðild Tyrklands.
Ef Erdogan trúir þessu einlæglega sé ég ekki hverniig er hægt að lækna þau sár,eða hvernig Bandaríjamenn geta treyst honum í þessari stöðu.
.
Tyrkir eru núna að reyna að bæta samskiftin við Rússa sem er algert lífsspursmál fyrir þá ,en það ergir hinsvegar Bandaríikjamenn enn frekar.
Ég skil alls ekki hvernig hann ætlar að losna úr þessari klemmu. Halli hann sér aftur að Bandaríkjamönnum munu Rússar ekkert flýta sér að koma samskiftunum aftur í lag.Þá er afsökunarbeiðnin góða til lítils gagns.
.
Nú berast þær fréttir að Erdogan ætli að náða alla sem hafa "móðgað forsetaembættið".
Þetta er augljóslega gert til að milda ESB sem hefur gagnrýnt þessa dóma harðlega. Einnig mun þetta væntanlega draga eitthvað úr gagnrýninnii innanlands.
Einnig hefur hann tilkynnt vilja sinn til að taka upp eðlileg samskifti við stjórn Assads.
Einhvernveginn hefur maður á tilfinningunni að hann vilji gera Tyrkland að hlutlausu ríki ,eftir ótrúleg gönuhlaup á síðastliðnum misserum.
Ég er ekki viss um að honum verði kápan úr því klæðinu ,af því að nú eru Bandaríkjamenn og Rússar báðir komnir í þann ham ,að þú ert annað hvort á móti þeim eða með þeim.
Það eru ekki góðir tímar framundan hjá þessum vesalings manni.
.
Þessi stjórninarstíll er eitthvað sem má búast við af Donald Trump ,þó að aðstæður séu aðrar og Donald er ekki líklegur til að hegða sér með sama hætti innanlands.
Það sem mér finnst þeir eiga sameiginlegt er að þeir ofmeta báðir stórlega völd eigin ríkja og lenda því báðir í ógöngur á alþjóða vettvangi.
Erdogan greinilega ofmat stórlega áhrif sín innan NATO og taldi sig geta hagað sér að vild í skjóli þess.
Þegar á reyndi hafði hann ekkii stuðninginn sem hann taldi sig hafa og lenti í ógöngum.
.
Að sama skapi virðist Trump ekki átta sig á að dagar Bandarískra heimsyfirráða eru liðnir,það eru komin önnur ríki sem krefjast þess að hafa áhrif á gang mála og að það sé tekið tillit til þeirra.
Þetta mun Trump fljótlega reka sig á eftir að hann hefur hitt XI Ping og Putin. Tímarnir eru breyttir.
Mér finnst augljóst að hann á eftir að lenda í svipuðum ógöngum og Erdogan ef hann kemst til valda.
Kosturinn við Trump er að ég er að vonast til að hann muni reyna að semja í staðinn fyrir að drepa fólk í stórum stíl eins og Frú Clinton mun örugglega gera ,í ljósi fyrri frammistöðu.
Þess vegna finst mér Trump vera skárri kostur en Clinton.
Við höfum allavega einhvern sjens með Trump. Clinton er hinsvegar örugg ávísun á endalaus manndráp,hún hefur ekkert breyst og getur ekki breyst.
Borgþór Jónsson, 30.7.2016 kl. 00:50
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Þú ert innskráð(ur) sem .
Innskráning