10.10.2015 | 00:46
ISIS leggur undir sig ný svæði í Norður héröðum Sýrlands
Skv. fréttum erlendra fjölmiðla, hefur ISIS brugðist við ástandi mála með sínum hætti - en ef marka má fréttir, hafa Rússar beint megin þunga árása sinna, gegn öðrum uppreisnarmönnum.
Þeir sem fylgjast vel með átökum innan Sýrlands -> Vita að ISIS fram að þessu, mun oftar ræðst að uppreisnarmönnum, en hermönnum Sýrlandshers.
- Það virðist svo sem, að ISIS fylgist náið með því, þegar hörð átök geysa milli annarra uppreisnarhópa - - og hersveita sem berjast til varnar stjórnvöldum í Damascus.
- Síðan leggi ISIS til atlögu - - þegar ISIS metur mestar líkur á landvinningum.
- Oftast nær, virðist ISIS velja - að leggja til atlögu við aðra uppreisnarmenn, og þrengja frekar að þeirra svæðum.
Þannig hafa uppreisnarmenn - - verið milli 2-ja elda síðan 2013, er ISIS lét á sér kræla innan Sýrlands, þ.e. milli árása ISIS og árása hersveita er styðja stjórnina í Damascus.
- Og það virðist nú endurtaka sig eina ferðina enn.
- Að ISIS notfærir sér átök uppreisnarmana og liðsmanna hersveita er styðja stjórnvöld í Damaskus.
Islamic State closes in on Syrian city of Aleppo; U.S. abandons rebel training effort
ISIS Makes Gains in Syrian Area Bombed by Russia
As Russia steps up Syria bombardment, Isis gains ground
Það er kaldhæðið, að ISIS vinni ný lönd í Sýrlandi - samtímis og hafin er atlaga af hálfu Rússa, sem Pútín segir beint gegn ISIS
- Skv. fréttum - hefur ISIS hafið hraða framrás í átt að borginni, Aleppo. Tekið 6 þorp er voru á valdi uppreisnarmanna.
- Höfum í huga - önnur stærsta borg Sýrlands.
- Fall hennar í hendur ISIS, væri svakalegt áfall.
- Skv. fréttum, féll þekktur íranskur hershöfðingi í grennd við Aleppo, að sögn Írana var hann drepinn, í árás liðsmanna ISIS - en ekki sagt akkúrat hvernig það atvikaðist.
- Þetta bendi til þess, að ISIS liðar - séu samtímis að ráðast að uppreisnarmönnum; og hersveitum sem styðja stjórnina í Damascus. Það að íranskur hershöfðingi féll, bendi til þessa.
Það væri virkilega - - kaldhæðið, ef sú hreyfing sem fyrst og fremst græði á harðnandi átökum milli uppreisnarmanna, og fylkinga er styðja stjv. í Damascus - - > Verði einmitt ISIS.
Ef ISIS nær öllu Halab héraði - - sennilega mundi ISIS meir en 2-falda þann mannfjölda sem ISIS stjórnar. En það hérað er, þéttbýlt. Eins og ég sagði, Aleppo næst stærsta borgin.
---------------------------
"The intense fighting in the area also claimed the life of Irans most senior commander in Syria, Brigadier General Hossein Hamedani a linchpin figure in the war effort of President Bashar al-Assad."
- "According to Rami Abdulrahman, head of the Syrian Observatory for Human Rights, a monitoring group, the bombings this week have facilitated Isis advances.
- "[They] are now around 7km away from the outskirts of [Aleppo]. And close to the industrial zone, he said."
"Isis said its forces had overrun the Aleppo Infantry Academy, a key military base north-east of the city, on Thursday evening."
"It puts Isis in striking distance of supply routes north to Turkey through the nearby towns of Tal Rifaat and Azaz. It also opens up a southern front for rebel forces defending the town of Marea to the north, a key staging post on the same supply line."
---------------------------
Skv. þessu, eru flutningaleiðir milli Tyrklands og svæða innan Sýrlands á valdi uppreisnarmanna - - í hættu.
En ef vopnasendingar komast ekki lengur til þeirra, þá gæti ISIS -hugsanlega- gersigrað uppreisnarmenn, og náð öllum þeim svæðum er þeir stjórna.
- Það mundi hugsanlega henta Rússum, ef ISIS mundi - sigrast á uppreisnarmönnum.
- Og verða eina fylkingin er eftir stæði, sem væri að berjast við herlið Írana - Rússa og leyfarnar af stjórnarher Sýrlands.
- En slík staða, gæti - - veikt mjög mikið, andstöðu út á við, gagnvart aðgerðum Rússa. Og styrkt fylgi við þá söguskýringu - að stjórnin í Damascus sé nauðsynlegur tálmi gagnvart ISIS.
- Samtímis, að ISIS - - væri mjög líklega að skapi, að verða eina aflið í boði, fyrir þá sem hata Assad nægilega mikið - til að vera tilbúnir í að berjast með hverjum sem er, ef það þíðir að sú blóðhemd sem viðkomandi dreymi uum gegn Assad eða stuðningsmönnum Assads, geti náðst fram.
Þetta gæti varpað nýju ljósi á það - af hverju Rússar, virðast nær eingöngu beina árásum sínum gegn öðrum uppreisnarmönnum.
Þó rússn. fjölmiðlar og rússn. stjv. - tali eins og að sérhver árás, sé gerð á ISIS.
Það virðist einfaldlega vera - áróður. Eða - spinn.
Niðurstaða
Átök í Sýrlandi taka nýja stefnu, nú þegar ISIS virðist hafa hafið stórsókn í átt að 2-stærstu borg Sýrlands. En þó svo að ISIS ráði stórum landsvæðum innan Sýrlands.
Hefur ISIS ekki enn náð neinum af þéttbýlustu svæðum Sýrlands.
En Halab hérað er einmitt eitt af þeim þéttbýlu svæðum, sem ISIS dreymir um að ná á sitt vald. Fall þess héraðs -ef það fellur í krumlur ISIS liða- mundi sennilega 2-falda þann fólksfjölda, sem lútir stjórn ISIS innan Sýrlands.
- Sókn ISIS virðist beint samtímis gegn - verjendum Damascus stjórnarinnar.
- Og uppreisnarmönnum.
M.ö.o. sé ISIS að færa sér í nyt, átök þeirra aðila - er veikja báðar fylkingar samtímis.
Bersýnilega ætlar ISIS að ganga milli bols og höfuðs -líklega í fyllstu merkingu þess orðalags- á fylkingum beggja aðila, í Halab héraði.
Virkilega kaldhæðið ef ISIS er sá aðili sem einna helst græðir nú, á fókus árása Rússar - og auknum bardögum hersveita er styðja stjv. í Damascus, og herliðs uppeisnarmanna.
Kv.
Flokkur: Utanríkismál/alþjóðamál | Facebook
Um bloggið
Einar Björn Bjarnason
Nýjustu færslur
- Sigur Donalds Trumps, stærsti sigur Repúblikana síðan George ...
- Ef marka má nýjustu skoðanakönnun FoxNews - hefur Harris þokk...
- Kamala Harris virðist komin með forskot á Trump í Elector-Col...
- Það að Úkraínuher er farinn að sprengja brýr í Kursk héraði í...
- Úkraínuher hóf innrás í Kursk hérað sl. mánudag! 5 dögum sein...
- Möguleikar Kamölu Harris til hugsanlegs sigurs á Donald Trump...
- Leiðir ris J.D. Vance - til fullkominna yfirráða milljarðamær...
- Er fall bandaríska lýðveldisins yfirvofandi - vegna ákvörðuna...
- Sérfræðingar vaxandi mæli þeirrar skoðunar, 2025 verði lykilá...
- Rússar hafa tekið 8 km. landræmu síðan sl. föstudag í NA-Úkra...
- Rússland getur hugsanlega haldið fram Úkraínustríði, allt að ...
- Rússland ætlar að hætta stuðningi við uppreisnarmenn í Súdan ...
- Gríðarlega mikilvægt að Úkraína fær bráðnauðsynlega hernaðara...
- Ég er eindregið þeirrar skoðunar - Ísrael geti ekki unnið str...
- Trump, hefur viðurkennt að geta ekki greitt - 464 milljón dol...
Eldri færslur
2024
2023
2022
2021
2020
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
Bloggvinir
- eyglohardar
- bjornbjarnason
- ekg
- bjarnihardar
- helgasigrun
- hlini
- neytendatalsmadur
- bogason
- hallasigny
- ludvikjuliusson
- gvald
- thorsteinnhelgi
- thorgud
- smalinn
- addabogga
- agnarbragi
- annabjorghjartardottir
- annamargretb
- arnarholm
- arnorbld
- axelthor
- arnith2
- thjodarsalin
- formosus
- birgitta
- bjarnijonsson
- bjarnimax
- westurfari
- virtualdori
- bookiceland
- gattin
- davpal
- dingli
- doggpals
- egill
- jari
- einarborgari
- einarsmaeli
- erlaei
- ea
- fannarh
- fhg
- lillo
- gesturgudjonsson
- gillimann
- bofs
- mummij
- kallisnae
- gp
- gudmbjo
- hreinn23
- gudrunmagnea
- gmaria
- topplistinn
- skulablogg
- gustafskulason
- hallurmagg
- haddi9001
- harhar33
- hl
- diva73
- himmalingur
- hjaltisig
- keli
- fun
- johanneliasson
- jonsullenberger
- rabelai
- jonl
- jonmagnusson
- jonvalurjensson
- thjodarskutan
- gudspekifelagid
- juliusbearsson
- ksh
- kristbjorg
- kristinnp
- larahanna
- leifurbjorn
- lifsrettur
- wonderwoman
- maggij
- elvira
- olafureliasson
- olinathorv
- omarragnarsson
- ottarfelix
- rafng
- raksig
- redlion
- salvor
- samstada-thjodar
- fullvalda
- fullveldi
- logos
- duddi9
- sigingi
- sjonsson
- sigurjons
- stjornlagathing
- athena
- stefanbogi
- lehamzdr
- summi
- tibsen
- vala
- valdimarjohannesson
- valgeirskagfjord
- vest1
- vignir-ari
- vilhjalmurarnason
- villidenni
- thjodarheidur
- valli57
- tbs
- thorgunnl
- thorsaari
- iceberg
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 0
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 24
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 22
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Þú ert innskráð(ur) sem .
Innskráning