8.5.2019 | 23:26
Bandaríkin og Íran á leið inn í stríð?
Vandamálið við ríkisstjórn Donalds Trumps er að í dag - eru engir sem hvetja til varfærni þar lengur til staðar; heldur eru það Pompeo og Bolton - sem báðir tveir hafa í fortíðinni hvatt til stríðs gagnvart Íran.
--Trump sjálfur hefur ekki skafað af því, kallað Íran miðju hins illa í Mið-Austurlöndum, það gengur svo langt aftur sem til - kosningabaráttunnar 2016 er Trump þá þegar, fór að hamra gegn Íran, styðja sjónarmið í þá átt - að Íran væri orsök alls slæms í Mið-Austurlöndum.
--Tilraunir til að kenna Íran um allt sem miður hefur farið á því landsvæði, eru að sjálfsögðu ekkert annað en -- tilraun til sögufölsunar.
- Hinn bóginn, ef einungis er horft á málið út frá sjónarmiðum landa eins - Saudi-Arabíu og Sameinuðu-arabísku-furstadæmanna; þá er smávegis til í þessu.
- Að hvernig áhrif Írans hafa vaxið, hvernig Íran hefur unnið margvíslega sigra í -proxy- stríðum milli þeirra fjenda; hefur auðvitað verið á þeirra kostnað.
--En þ.e. einungis hægt að túlka Íran sem miðju hins illa, ef málið er einungis skoðað út frá, óförum fjenda Írans sbr. Saudi-Arabíu, sem sannarlega hefur ekki gengið vel í proxi stríði sínu við Íran hér og þar um Mið-Austurlönd.
--Og, enginn forseti Bandar. í seinni tíð er eins mikill vinur SA - og einmitt Trump.
Tal Trumps um Íran - hlýtur að hafa komið sem himnasending fyrir krónprins SA.
Í kosningabaráttunni 2016 - kvartaði Trump sáran undir skorti á stuðningi Bandaríkjanna við sína stuðningsmenn innan Mið-Austurlands í forsetatíð Obama.
--Enda var enginn vinskapur milli Sauda og Obama.
--Má segja, Trump hafi bætt um heldur betur ef miðað er frá hagsmunum SA og UAE.
Iran nuclear deal: what has Tehran said and what happens next?
Trumps Iran policy is making war more likely
Trumps Iran Policy Is Becoming Dangerous
Iran-US tensions escalate as Trump imposes new sanctions
Mynd sem sýnir vel hve fjalllent Íran er!
Ríkisstjórn Bandaríkjanna er greinilega á hættulegri siglingu!
Ekki enn ástæða til að fullyrða að stríð sé á næsta leiti - rétt að ryfja upp, að Trump virtist ganga mjög langt fram á brúnina 2017 gagnvart Norður-Kóreu, áður en leiðtogi þess lands -- blikkaði a.m.k. að einhverju leiti, og viðræður hófust milli Bandar. og NK.
Það er enn möguleiki, að Trump sé einfaldlega að spila sama leikritið - að láta líta svo út, að stríð geti verið á næsta leiti, að allt sé mögulegt - bendi á að Bolton um daginn fyrirskipaði að flugmóðurskip ásamt fylgdarskipum mundi sigla inn á Persaflóa.
Trump skv. nýjustu fréttum, fyrirskipaði nýjar refsiaðgerðir á Íran - ofan á þær fyrri; nú er sjónum beint að málmiðnaði Írans - sem sé næst mesti útflutningur Írans í verðmætum eftir útflutningi á olíu. Nú skal gera allt til að loka á íranska hagkerfið.
Og Hassan Rouhani - tilkynnti, að Íran mundi næstu mánuði í skrefum draga sig til baka frá kjarnorkusamningnum -- Rouhani kynnti fyrstu skrefin sem:
- Íran hætti að flytja út þungt vatn.
- Og auðgað úran sem áskotnast úr ferli sem Íran hefur verið heimilað að stunda, þ.e. auðgun fyrir notkun í kjarnorkuverum -- það lág-auðgaða úran sem er þá umfram notkun, safnast þá fyrir.
--Síðar gæti það verið notað, sett í þar til gerðar skilvindur, til að auðga það enn frekar. - Skv. Rouhani, verður það gert eftir 60 daga, þ.e. Íran fer þá að fullu að auðga úran að nýju.
Rouhani sagði, að innan þeirra 6o daga - hefði Evrópa tíma, til að koma fram með útspil.
France calls Iran to respect nuclear deal, warns of escalation
Utanríkisráðherrar Bretlands og Frakklands skoruðu á Íran, að halda sig við samninginn.
- Íran hefur með þessu útspili fyrir sitt leiti - hert á sínum spilum.
En eðli sínu skv. vill Evrópa ekki að Íran verði að kjarnorkuveldi. En Íran ræður þegar yfir eldflaugum er geta tæknilega borið kjarnasprengjur - og draga til Evrópu. - Það var auðvitað vegna þeirra hagsmuna Evrópu, að ESB tók virkan þátt í kjarnorkusamningnum.
--Bandaríkin hinn bóginn eiga ekkert á hættu, enda íranskar eldflaugar ekki með drægi þvert yfir hnöttinn.
--Það sennilega er þáttur í því að Bandar. eru til í að labba frá kjarnorkusamningnum, síðan taka þá áhættu - að Íran ákveði að gerast kjarnorkuveldi.
--Íran ætlar sem sagt, að nota kjarnorkusamninginn sem svipu á Evrópu.
--Í von um að, sá þrýstingur leiði til þess að ESB komi með mun betra tilboð til Írans.
- Höfum í huga hugsanlegt stríð við Íran er miklu umfangsmeiri atburður en innrásin 2003 eða átökin í Sýrlandi, eða stríðið gegn ISIS.
- Þ.s. að Hesbollah án vafa tekur fullan þátt, þ.s. Íran hefur herlið í Sýrlandi, þ.s. mikið er að svokölluðum -militias- í Írak sem styðja Íran og eru vopnaðar, og munu án vafa taka þátt í átökum með Íran.
- Þar með mundi stríð við Íran - draga Írak, Sýrland og Lýbanon - alveg örugglega inn í átökin - öll löndin í einu.
- Fyrir Evrópu er augljósa hættan -- flóttamanna-bylgja á skala, er gæti tekið langt um fram, bylgjunni er skall á Evrópu vegna borgarastríðsins í Sýrlandi.
- Hafandi í huga, hve katastrófísk áhrif slík risabylgja gæti haft á evrópskt samfélag - sem þegar er orðið nokkuð andsnúið flóttamönnum frá Mið-Austurlöndum.
- Þá klárlega hefur Evrópa og þar með - ESB, mikla hagsmuni af því - að koma í veg fyrir átök.
--Þannig, að Hassan Rouhani er ekki að tala í einhverri heimsku, er hann talar til ESB.
--Og fer fram á að ESB geri meira, mun meira - til þess að aðstoða Íran.
- Það er sennilega of stuttur tími til þess að búa til - nýtt prógramm.
- En ríkisstjórnir ESB landa, gætu ákveðið að sjálfar kaupa olíu í stór-auknum mæli frá Íran.
Vandinn í dag, eru að evr. einka-fyrirtæki þora ekki að versla við Íran, vegna refsiaðgerða Bandaríkjanna sem í dag eru orðnar mjög harðar - beinast einnig gegn viðskiptum annarra.
Ríkisstjórnir ESB landa - aftur á móti - gætu sjálfar tekið þá áhættu.
--Ef þær það gerðu, mundi það stórfellt pyrra ríkisstjórn Trumps.
--En ég á ekki von á að það mundi hafa það alvarlegar afleiðingar, að það sé samt ekki heilt yfir betra fyrir ESB - að kaupa í auknum mæli íranska olíu, ef það mundi duga til þess að forða þeim stríðsátökum sem annars geta verið yfirvofandi.
En það virðist hugsanlegt að með þá Bolton og Pompeo í brúnni við hlið Trumps - sé ríkisstjórn Bandaríkjanna, hafin leit að tylli-ástæðu.
Eins og kemur fram í þessari umfjöllun, virðist Bolton vera að leika gamlan leik - að spila með upplýsingar um sjálfstæða shíta herflokka sem starfa í Írak og Sýrlandi, sem sannarlega eru ekki vinir Bandar. - en voru í samstarfi þó við þau í átökum við ISIS: The Flash Point Between America and Iran Could Be Iraq's Militias. Þeir hati samt Bandaríkin, og möguleiki á átökum við bandar. hermenn að sjálfsögðu fer vaxandi, vegna þess hve Bandar. skref fyrir skref sverfa að Íran. Bolton hefur látið flugmóðurskiptadeild sigla átt til Persaflóa.
--Bolton var auðvitað staðinn að því að spila með gögn, fyrir íraksstríðið 2003.
Niðurstaða
Ég hef hingað til ekki talið stríð Bandar. við Íran sennilegt - vegna nær óhjákvæmilegs umfangs þess. Meira að segja George W. Bush lét gera skýrslu um það hvað væri unnt að gera gagnvart Íran - hopaði undan frekar en að láta til skarar skíða. En umfang þess gæti hlaupið upp í ca. svipað og umfang átaka Bandar. í Kalda-stríðinu í SA-Asíu. Ef Íraks-stríðið var fyrir rest óvinsælt innan Bandar, og sannarlega stríðið í - Nam. Þá geti vart farið með öðrum hætti, ef ríkisstj. Bandar. hæfi sambærilegan skala stríð við Íran og bandamenn þess.
Það er líka það að Donald Trump vill hafa sigur í kosningum 2020 - óvinsælt stríð gæti skaðað þá möguleika. Hann fór eftir allt saman ekki í stríð við Norður-Kóreu. Hann vill draga Bandar. út úr Afganistan. M.ö.o. hefur Trump ekki virst stríðsmaður.
Hinn bóginn, virðist lítil ástæða að efa - þeir félagar Pompeo og Bolton, eru líklegir að gera sitt besta til að - æsa leika.
--Þeir gætu þannig séð - teymt Trump inn í stríð, jafnvel án þess að hann ætlaði sér slíkt.
En ég er á því að Trump hafi ekki gert vel er hann valdi þá tvo félaga saman inn í sína ríkisstjórn - þeir myndi þar stórvarasamt teymi.
--Stríð gæti raunverulega leitt Trump til taps í kosningum 2020.
En áhugi bandarísks almennings á stríðsþátttöku virðist mun minni í dag en oftast áður.
Kv.
Utanríkismál/alþjóðamál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Bloggfærslur 8. maí 2019
Um bloggið
Einar Björn Bjarnason
Nýjustu færslur
- Kjarnorkuáætlun Írana hefur líklega beðið stórtjón, fremur en...
- Netanyahu, virðist hafa hafið stríð við Íran - beinlínis til ...
- Trump ákveður að senda, Landgönguliða - til Los-Angeles! Kemu...
- Möguleiki að Úkraína hafi í djarfri árás á flugvelli sumir mö...
- Yfirlýsing Trumps um yfirvofandi 50% tolla á ESB lönd, afhjúp...
- Tollar Bandaríkjanna á Kína - líklega ca: 50%. Kína á Bandarí...
- Að það verður af hráefnasamningi Úkraínu og Bandaríkjanna - v...
- Margt bendi til yfirvofandi kreppu í Bandaríkjunum! Skv. áhug...
- Vaxandi líkur á að Trump, reki: Jerome Powell. Yfirmann Seðla...
- Gideon Rachman hjá Financial Times -- útskýrir af hverju, Ban...
- Trump undanskilur frá tollum á Kína -- snjallsíma, og nánast ...
- Talið af sérfræðingum, verðfall á ríkisskuldabréfum Bandaríkj...
- Viðskiptastríðsyfirlýsing Donalds Trumps gagnvart heiminum li...
- Stríðið í Úkraínu getur verið að þróast aftur í pattstöðu - s...
- Friedrich Merz, virðist ætla að takast að stórfellt auka hern...
Nýjustu athugasemdir
- Netanyahu, virðist hafa hafið stríð við Íran - bei...: Mér finnst þetta fróðleg grein. Þetta er aukþess stórhættulegur... 17.6.2025
- Netanyahu, virðist hafa hafið stríð við Íran - bei...: Grímur Kjartansson , ég held að engar líkur séu á að Íran - hæt... 16.6.2025
- Netanyahu, virðist hafa hafið stríð við Íran - bei...: Annar óvissuþáttur er stuðningur Írans við hryðjuverkahópa láti... 16.6.2025
Eldri færslur
2025
2024
2023
2022
2021
2020
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
Bloggvinir
-
eyglohardar
-
bjornbjarnason
-
ekg
-
bjarnihardar
-
helgasigrun
-
hlini
-
neytendatalsmadur
-
bogason
-
hallasigny
-
ludvikjuliusson
-
gvald
-
thorsteinnhelgi
-
thorgud
-
smalinn
-
addabogga
-
agnarbragi
-
annabjorghjartardottir
-
annamargretb
-
arnarholm
-
arnorbld
-
axelthor
-
arnith2
-
thjodarsalin
-
formosus
-
birgitta
-
bjarnijonsson
-
bjarnimax
-
westurfari
-
virtualdori
-
bookiceland
-
gattin
-
davpal
-
dingli
-
doggpals
-
egill
-
jari
-
einarborgari
-
einarsmaeli
-
erlaei
-
ea
-
fannarh
-
fhg
-
lillo
-
gesturgudjonsson
-
gillimann
-
bofs
-
mummij
-
gp
-
gudmbjo
-
hreinn23
-
gudrunmagnea
-
gmaria
-
topplistinn
-
skulablogg
-
gustafskulason
-
hallurmagg
-
haddi9001
-
harhar33
-
hl
-
diva73
-
himmalingur
-
hjaltisig
-
keli
-
fun
-
johanneliasson
-
jonsullenberger
-
rabelai
-
jonl
-
jonmagnusson
-
jonvalurjensson
-
thjodarskutan
-
gudspekifelagid
-
juliusbearsson
-
ksh
-
kristbjorg
-
kristinnp
-
larahanna
-
leifurbjorn
-
lifsrettur
-
wonderwoman
-
maggij
-
elvira
-
olafureliasson
-
olinathorv
-
omarragnarsson
-
ottarfelix
-
rafng
-
raksig
-
redlion
-
salvor
-
samstada-thjodar
-
fullvalda
-
fullveldi
-
logos
-
duddi9
-
sigingi
-
sjonsson
-
sigurjons
-
stjornlagathing
-
athena
-
stefanbogi
-
lehamzdr
-
summi
-
tibsen
-
vala
-
valdimarjohannesson
-
valgeirskagfjord
-
vest1
-
vignir-ari
-
vilhjalmurarnason
-
villidenni
-
thjodarheidur
-
valli57
-
tbs
-
thorgunnl
-
thorsaari
-
iceberg
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (27.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 448
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 400
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar