Datt inn í þessa umræðu vegna þess, að VG-lýsti yfir því að rétt væri að kenna "kynjafræði" í grunnskólum. Tek fram að ég hef ekki kynnt mér kenningar svokallaðra kynjafræðinga, einungis heyrt samfélagsumræðu sem á sér stað öðru hvoru, þegar einstaklingar rísa upp og tala um baráttu fyrir jafnrétti - en stundum virðist gjósa upp sú hugsun að á eldri tíð, hafi konum skipulega verið haldið niðri.
Ég vil meina að baki þeirri hugmynd, að sú staðreynd að í flestum samfélögum eldri tíðar, voru konur mjög sjaldan í valdamiklum embættum, þíði að um skipulegt misrétti hafi verið að ræða.
Sé byggð á grundvallarmisskilningi - jafnvel þekkingarskorti.
Mig grunar að margir sem hafa alist upp við nútímaþægindi, geri sér enga grein fyrir því hvernig var að lifa, í samfélögum fyrri tíðar.
Ég er með allt aðra kenningu um ástæðu þess, að hin hefðbundna verkaskipting karla og kvenna var til staðar á árum áður!
Málið var að barnadauði var gríðarlega mikið meiri fyrir tilkomu sýklalyfja, en þekkist í dag.
Sem dæmi, missti fjölskylda föður míns 2 börn, úr sjúkdómum sem í dag eru auðlæknanlegir.
Þó var sú fjölskylda vel stæð, með vinnufólk. En sjúkdómar fóru ekki í manngreinarálit. Börn ríkra sem fátækra dóu, þegar "pestirnar" gengu.
Það var algengt, að fjölmennar fjölskyldur misstu hluta barna sinna, úr umgangspestum.
Stundum gengu skæðari afbrigði þeirra pesta, sem jafnvel leiddu til þess að dæmi eru um að fjölmenn fjölskylda missti öll sín börn í einu.
Það er kannski erfitt fyrir fólk að skilja, hvernig fólk gat lifað við þetta. En svona hafði þetta þá alltaf verið.
Að auki, voru ekki til staðar þau heimilistæki sem auðvelda heimilisstörf - föt voru handþvegin. Sem var miklu mun tímafrekari athöfn, en að þvo í þvottavél.
Útistörf voru einnig tímafrekari, ekki einungis vegna þess að ekki voru til staðar vélar til að létta þau störf, heldur einnig vegna þess að fólk varð að vinna lengur - því tekjur per vinnustund voru mun lægri.
Þetta virkaði þannig:
- Vegna þess, að það var mikill barnadauði, varð hver gift kona öllu að jafnaði, að eignast eins mörg börn og hún heilsu sinnar vegna var fær um.
- Einnig vegna þess að heilsugæsla var lakari, var það ekki íkja sjaldgæft að konur létust í tengslum við barnsburði.
- Að auki, vegna þess að börn voru að jafnaði fleiri per heimili svo nokkurn veginn væri tryggt að eitthvert þeirra lifði, og vegna þess að heimilistæki voru ekki til staðar - - tóku heimilisstörf nærri allan tíma þess sem vann heimar fyrir. Eðlilega var það konan, en líkur eru miklar á að kona við heimilisstörf á fyrri tíð sé ófrísk og að auki með barn á brjósti.
- Á sama tíma, vann sá sem vann úti fyrir einnig myrkranna á milli, því fyrir flr. var að sjá og samtímis, voru tekjur mun lakari per vinnustund en þekkist í dag.
- Þannig var þetta í öllum samfélögum heims - lífsbaráttan var hörð.
- Því alls staðar var mikill barnadauði.
- Alls staðar skorti heimilistæki og tæki til að auðvelda vinnu úti fyrir.
- Öll samfélög voru miklu mun fátækari en í dag.
Hin hefðbundna vinnuskipting, stafaði ekki af því, að það hafi verið eitthvert heimssamsæri um að halda konum niðri, heldur af því að það var samfélagsleg nauðsyn - að konur ættu mörg börn.
Og því að eiga mörg börn, fylgdi gríðarleg vinna.
Karlarnir unnu útistörfin - að jafnaði. Synirnir komu með, þegar þeir urðu stálpaðir. Meðan dæturnar aðstoðuðu móður sína inni fyrir.
Jafnrétti verður í reynd mögulegt á 20. öld!
Það gerist þannig, að fyrst koma fram sérstaklega eftir Seinna Stríð, byltingarkennd sýklalyf sem stórfellt minnka barnadauða.
Það tekur einhvern tíma fyrir samfélögin, að átta sig á því að það hefur orðið byltingarkennd breyting.
Breytingin byrjar í reynd á réttum tíma, eftir að þessi byltingarkennda breyting á sér stað, þ.e. með börnum þeirra sem voru foreldrar rétt eftir að Seinna Stríði var lokið, og síðan hefur næsta kynslóð á eftir ávallt tekið mál lengra
Um svipað leiti, koma einnig byltingarkennd heimilistæki þ.e. ísskápar, ryksugur, þvottavélar. Samtímis því, að framleiðslutækni er einnig að batna. Útistörfin samtímis verða auðveldari, og einnig minna tímafrek.
Þetta þíðir að bæði kynin hafa meiri tíma en áður, sérstaklega á þetta við konur.
Það síðan þíðir, ásamt því að tæknin hefur leitt til meiri auðs í samfélögum vesturlanda, lífskjör fara batnandi.
Að hin hefðbundna verkaskipting smám saman hverfur - þegar konur skynja að hin hefðbundnu gildi, eru orðin óþörf. Gera sína uppreisn, og komast upp með það.
Enda, með þeim breytingum sem hafa átt sér stað þ.e. tæknibreytingum og byltingarkenndum lyfjum, var hefðbundna verkaskiptingin orðin óþörf.
Það er einmitt punkturinn - - hennar var þörf á öldum áður.
En í dag, fyrir tilstuðlan lyfja sem stórfellt hafa bætt lífslíkur fólks, og tækni sem skapar öllum mun meiri tíma fyrir sjálfa sig en áður; þá verður jafnrétti í reynd mögulegt.
Ekki bara það - - í reynd, er jafnrétti "samfélagsleg nauðsyn" í dag.
Það kemur til af því, að með því að konum er mögulegt, að gera fjöldamargt annað en að eiga og ala önn fyrir börnum, þá leysist mikill kraftur úr læðingi. Ég er að tala um viðbótar vinnandi hendur, og auðvitað flr. að skapa og hugsa, en áður.
Þetta er örugglega hluti af því, af hverju þróun í öllu er jafnvel enn hraðari í dag en fyrir tja, 30 árum.
Niðurstaða
Það er ef til vill margir sem átta sig ekki á samhengi jafnréttis við þær tækniframfarir sem áttu sér stað í heiminum á 20. öld. Punkturinn er einmitt sá, að þær framfarir hvort sem við erum að tala um framfarir í læknisvísindum eða tækni - hefur í reynd gert jafnrétti mögulegt. Er það áður var það ekki.
Það að í öllum samfélögum heims var til staðar hefðbundin verkaskipting á öldum áður, er ekki sönnun þess að það hafi verið skipuleg kvennakúgun áður fyrr.
Heldur, sýnir þetta að slík verkaskipting rýkti alls staðar, að um samfélagslega nauðsyn var að ræða.
Það er auðvitað gríðarlega mikilvæg breyting, að tæknin skuli hafa losað konur úr þeim viðjum "samfélagslegrar nauðsynjar" sem áður fyrr hélt þeim niðri.
Sá aukni kraftur sem hefur verið í samfélögum vesturlanda sl. 30-50 ár, er örugglega a.m.k. að stórum hluta því að þakka að jafnrétti varð mögulegt.
Sjálfsagt ein af mikilvægustu breytingum allra tíma.
Kv.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 4.11.2012 kl. 13:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Bloggfærslur 3. nóvember 2012
Um bloggið
Einar Björn Bjarnason
Nýjustu færslur
- Kjarnorkuáætlun Írana hefur líklega beðið stórtjón, fremur en...
- Netanyahu, virðist hafa hafið stríð við Íran - beinlínis til ...
- Trump ákveður að senda, Landgönguliða - til Los-Angeles! Kemu...
- Möguleiki að Úkraína hafi í djarfri árás á flugvelli sumir mö...
- Yfirlýsing Trumps um yfirvofandi 50% tolla á ESB lönd, afhjúp...
- Tollar Bandaríkjanna á Kína - líklega ca: 50%. Kína á Bandarí...
- Að það verður af hráefnasamningi Úkraínu og Bandaríkjanna - v...
- Margt bendi til yfirvofandi kreppu í Bandaríkjunum! Skv. áhug...
- Vaxandi líkur á að Trump, reki: Jerome Powell. Yfirmann Seðla...
- Gideon Rachman hjá Financial Times -- útskýrir af hverju, Ban...
- Trump undanskilur frá tollum á Kína -- snjallsíma, og nánast ...
- Talið af sérfræðingum, verðfall á ríkisskuldabréfum Bandaríkj...
- Viðskiptastríðsyfirlýsing Donalds Trumps gagnvart heiminum li...
- Stríðið í Úkraínu getur verið að þróast aftur í pattstöðu - s...
- Friedrich Merz, virðist ætla að takast að stórfellt auka hern...
Eldri færslur
2025
2024
2023
2022
2021
2020
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
Bloggvinir
-
eyglohardar
-
bjornbjarnason
-
ekg
-
bjarnihardar
-
helgasigrun
-
hlini
-
neytendatalsmadur
-
bogason
-
hallasigny
-
ludvikjuliusson
-
gvald
-
thorsteinnhelgi
-
thorgud
-
smalinn
-
addabogga
-
agnarbragi
-
annabjorghjartardottir
-
annamargretb
-
arnarholm
-
arnorbld
-
axelthor
-
arnith2
-
thjodarsalin
-
formosus
-
birgitta
-
bjarnijonsson
-
bjarnimax
-
westurfari
-
virtualdori
-
bookiceland
-
gattin
-
davpal
-
dingli
-
doggpals
-
egill
-
jari
-
einarborgari
-
einarsmaeli
-
erlaei
-
ea
-
fannarh
-
fhg
-
lillo
-
gesturgudjonsson
-
gillimann
-
bofs
-
mummij
-
gp
-
gudmbjo
-
hreinn23
-
gudrunmagnea
-
gmaria
-
topplistinn
-
skulablogg
-
gustafskulason
-
hallurmagg
-
haddi9001
-
harhar33
-
hl
-
diva73
-
himmalingur
-
hjaltisig
-
keli
-
fun
-
johanneliasson
-
jonsullenberger
-
rabelai
-
jonl
-
jonmagnusson
-
jonvalurjensson
-
thjodarskutan
-
gudspekifelagid
-
juliusbearsson
-
ksh
-
kristbjorg
-
kristinnp
-
larahanna
-
leifurbjorn
-
lifsrettur
-
wonderwoman
-
maggij
-
elvira
-
olafureliasson
-
olinathorv
-
omarragnarsson
-
ottarfelix
-
rafng
-
raksig
-
redlion
-
salvor
-
samstada-thjodar
-
fullvalda
-
fullveldi
-
logos
-
duddi9
-
sigingi
-
sjonsson
-
sigurjons
-
stjornlagathing
-
athena
-
stefanbogi
-
lehamzdr
-
summi
-
tibsen
-
vala
-
valdimarjohannesson
-
valgeirskagfjord
-
vest1
-
vignir-ari
-
vilhjalmurarnason
-
villidenni
-
thjodarheidur
-
valli57
-
tbs
-
thorgunnl
-
thorsaari
-
iceberg
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (12.7.): 10
- Sl. sólarhring: 10
- Sl. viku: 30
- Frá upphafi: 869832
Annað
- Innlit í dag: 9
- Innlit sl. viku: 24
- Gestir í dag: 9
- IP-tölur í dag: 8
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar