4.10.2009 | 04:09
Snúum kreppuna niður, látum skynsemina ráða!
Einhvern veginn, þurfum við að færa okkur úr "negative feedback" yfir í "positive feedback" - en, þá á ég við, að færa okkur frá efnahags aðgerðum sem draga þrótt úr hagkerfinu, yfir í aðgerðir sem gera það þveröfuga.
-------------------------
Aðgerðir sem draga úr:
*Háir vextir og vaxtahækkanir.
*Skattahækkanir.*
*Niðurskurður ríkisútgjalda.*
*Verðhjöðnun.*
*Aukning bindisskyldu banka.*
*Auka kröfu til banka um eiginfjárhlutfall.*
-----------------
Þetta var einfaldlega listi yfir klassískar samdráttar aðgerðir, cirka hagfr. 101.
Ég held að ég þurfi ekki að útskýra, hvers vegna, hver og ein þeirra, stuðlar að samdrætti, en stundum eru slíkar aðgerðir nauðsynlegar.
Dæmi um tímabil, þ.s. samdráttar-aðgerðir voru nauðsynlegar, en ekki var til þeirra gripið, voru náttúrulega árin við upphaf þessarar aldar. En, nákvæmlega vegna þess, að ekki var stigið á bremsurnar, skapaðist klassískt bóluhagkerfi.
Ekkert af því sem gerðist, er undarlegt ef maður hefur lágmarksþekkingu, á sögu hagkerfa. En, ef maður þekkir ekki söguna, þá dæmir maður sig til að endurtaka hana, er oft endurtekinn frasi, en mjög sannur í okkar tilviki, því ísl. bólan er mjög langt frá því að vera sú fyrsta er sögur fara af, heldur eru þær reglulegt fyrirbæri í hagsögunni, og einmitt mikill skaði, að ekki voru til staðar einstaklingar - sérstaklega í Seðlabankanum, er voru menntaðir í hagsögu.
-------------------------
Hvernig breytum við samdrætti í hagvöxt?
*Byrjum á því að hætta AGS prógramminu, og lækkum vexti þegar í stað, með lagasetningu, því ljóst er að núverandi Seðlabankastjóri - höfundur hávaxtastefnunnar, mun ekki sjá sig um hönd. Sennilega er ráðning hans, ef eitthvað er, enn verri ráðstöfun en ráðning DO.*
*Hættum að bæta á okkur skuldum, einfaldlega "full stop". Einungis, ef hagstæðari lán bjóðast, sem skipta út óhagstæðari, þ.e. vaxtagjöld lækka, er lántaka réttlætanleg, annars vegar, og einnig, hins vegar, í tilviki er lán er komið á enda, en ekki er enn til fjármagn til að greiða það upp.*
*Með því að sleppa að mestu planlögðum lántökum, lækka um leið vaxtagjöld og afborganir, sem áætlanir gera ráð fyrir. Einnig, vegna minni skulda, er niðurskurðarþörf ekki eins brín, en hin hraða planlagða lækkun tekur mið af þeirri skuldabyrði sem áætluð er að verði til staðar. Sama má segja um áætlaða tekjuþörf ríkisins. Með öðrum orðum, minni niðurskurður dreifður yfir lengra tímabil og einnig, minni skattahækkanir.
*Með þessu, dregur stórlega úr samdráttaraukandi áhrifum nauðsynlegra efnahags aðgerða, sem veldur því að hagkerfið hefur viðsnúning fyrr en nú er útlit fyrir. Þ.e. einmitt, þ.s. mest er um vert, að ná fram, því þá getur núverandi niðurspírall tekjutaps sem stöðugt er að ganga yfir hagkerfið numið staðar, sem þá um leið fækkar þeim sem ella lenda í skuldavandræðum. Vart er hægt að hugsa sér öflugari velferðar aðgerð, heldur en að stöðva kreppuna eins hratt og mögulegt er.
*Með lægri vöxtum, hefur fólk allt í einu efni á nýjum lánum, þ.e. stöðug innlána aukning ríkisbankanna getur stöðvast, en hún getur ekki annað en leitt til gjaldþrots þeirra ef hún stöðvast ekki, þ.s. innlán eru hreinn kostnaður fyrir banka, en innlána aukning sem slík er í gangi hefur verið, er sterk vísbending þess að mál séu ekki í lagi, þ.s. ljóst er að bankarnir eru ekki að ná að umbreyta innlánum í útlán, en útlána er þörf ef á að vera hægt að standa undir innlánum bankanna. Ergo, án útlána á móti, fara þeir á hausinn. Hávaxtastefnan, miðað við núverandi efnahags ástand, getur ekki leitt til annarrar útkomu, en nýs hruns bankanna.
*Síðast en ekki síst, þ.s. gengi gjaldmiðils hefur mest að gera með tiltrú á gengi viðkomandi hagkerfis, þá munu þessar aðgerðir leiða til hækkunar krónunnar á ný, ekki með hraði, heldur smám saman eftir því sem hagkerfið braggast. Þó sennilega aldrei aftur, upp í bóluvyrðið.
Kv.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Um bloggið
Einar Björn Bjarnason
Nýjustu færslur
- Sigur Donalds Trumps, stærsti sigur Repúblikana síðan George ...
- Ef marka má nýjustu skoðanakönnun FoxNews - hefur Harris þokk...
- Kamala Harris virðist komin með forskot á Trump í Elector-Col...
- Það að Úkraínuher er farinn að sprengja brýr í Kursk héraði í...
- Úkraínuher hóf innrás í Kursk hérað sl. mánudag! 5 dögum sein...
- Möguleikar Kamölu Harris til hugsanlegs sigurs á Donald Trump...
- Leiðir ris J.D. Vance - til fullkominna yfirráða milljarðamær...
- Er fall bandaríska lýðveldisins yfirvofandi - vegna ákvörðuna...
- Sérfræðingar vaxandi mæli þeirrar skoðunar, 2025 verði lykilá...
- Rússar hafa tekið 8 km. landræmu síðan sl. föstudag í NA-Úkra...
- Rússland getur hugsanlega haldið fram Úkraínustríði, allt að ...
- Rússland ætlar að hætta stuðningi við uppreisnarmenn í Súdan ...
- Gríðarlega mikilvægt að Úkraína fær bráðnauðsynlega hernaðara...
- Ég er eindregið þeirrar skoðunar - Ísrael geti ekki unnið str...
- Trump, hefur viðurkennt að geta ekki greitt - 464 milljón dol...
Eldri færslur
2024
2023
2022
2021
2020
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
Bloggvinir
- eyglohardar
- bjornbjarnason
- ekg
- bjarnihardar
- helgasigrun
- hlini
- neytendatalsmadur
- bogason
- hallasigny
- ludvikjuliusson
- gvald
- thorsteinnhelgi
- thorgud
- smalinn
- addabogga
- agnarbragi
- annabjorghjartardottir
- annamargretb
- arnarholm
- arnorbld
- axelthor
- arnith2
- thjodarsalin
- formosus
- birgitta
- bjarnijonsson
- bjarnimax
- westurfari
- virtualdori
- bookiceland
- gattin
- davpal
- dingli
- doggpals
- egill
- jari
- einarborgari
- einarsmaeli
- erlaei
- ea
- fannarh
- fhg
- lillo
- gesturgudjonsson
- gillimann
- bofs
- mummij
- kallisnae
- gp
- gudmbjo
- hreinn23
- gudrunmagnea
- gmaria
- topplistinn
- skulablogg
- gustafskulason
- hallurmagg
- haddi9001
- harhar33
- hl
- diva73
- himmalingur
- hjaltisig
- keli
- fun
- johanneliasson
- jonsullenberger
- rabelai
- jonl
- jonmagnusson
- jonvalurjensson
- thjodarskutan
- gudspekifelagid
- juliusbearsson
- ksh
- kristbjorg
- kristinnp
- larahanna
- leifurbjorn
- lifsrettur
- wonderwoman
- maggij
- elvira
- olafureliasson
- olinathorv
- omarragnarsson
- ottarfelix
- rafng
- raksig
- redlion
- salvor
- samstada-thjodar
- fullvalda
- fullveldi
- logos
- duddi9
- sigingi
- sjonsson
- sigurjons
- stjornlagathing
- athena
- stefanbogi
- lehamzdr
- summi
- tibsen
- vala
- valdimarjohannesson
- valgeirskagfjord
- vest1
- vignir-ari
- vilhjalmurarnason
- villidenni
- thjodarheidur
- valli57
- tbs
- thorgunnl
- thorsaari
- iceberg
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 6
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 35
- Frá upphafi: 856024
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 33
- Gestir í dag: 4
- IP-tölur í dag: 4
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Ég geri ráð fyrir að ríkisfyrirtæki sem landsvirkjun megi þó endurfjármagna sig með lántöku þrátt fyrir þínar hugmyndir.
Annars eru þetta mjög sensible hugmyndir þótt ég sé nú ekki með hagfræðimenntun.
Björn Halldór Björnsson, 4.10.2009 kl. 11:25
"Hættum að bæta á okkur skuldum, einfaldlega "full stop"."
Mikið rosalega er ég sammála þér.
"Með því að sleppa að mestu planlögðum lántökum, lækka um leið vaxtagjöld og afborganir, sem áætlanir gera ráð fyrir."
Sem er nákvæmlega það sem ég er búinn að vera að reyna að troða inn í hausinn á fólki. Mikið er ég feginn að vita að ég sé ekki einn þessar skoðunar. Það er eins og alltof of margir (sérstaklega forystumenn í þjóðmálunum) séu orðnir heilaþvegnir af því að eina leiðin til hagvaxtar sé skuldsetning. Það er ekki hagfræði 101 heldur meira svona eins og "flugeldahagfræði 666" að mínu mati.
Guðmundur Ásgeirsson, 5.10.2009 kl. 01:39
Svo má við þetta bæta, að besta leiðin til að borga niður skuldir er að framleiða meira. Og þá er ég að tala um fiskimiðin. Kenningar fiskifræðinga hafa hingað til ekki gengið eftir og skynsamlegast væri við núverandi aðstæður að auka veiðar, bæði til að fá meiri gjaldeyri og ekki síður til að kanna áhrif þess á stofnstærðir fiskistofnanna. Það er ekki eðlilegt ástand að Íslendingar séu núna að veiða einn þriðja af meðalþorskafla áranna 1952-1972.
Sigurður Jón Hreinsson, 5.10.2009 kl. 10:09
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.