Leiðir ris J.D. Vance - til fullkominna yfirráða milljarðamæringa yfir forsetaembætti Bandaríkjanna? Þvert á Donald Trump, sjálfstæður milljarðamæringur -- hefur karríer Vance verið nærri 80-90% fjármagnaður af, Peter Thiel!

Sumarið og haustið 2016 - ég er að tala um kosninga-baráttur Donalds Trumps sjálfs, var hann gjarnan afar gagnrýninn á pólitíska andstæðinga; fyrir að vera að hans sögn - stjórnað af milljarðamæringum!

  1. Rök Trumps, a.m.k. voru ekki út í hött; en skv. þeim, þ.s. hann sjálfur er milljarðamæringur - hefði hann til muna, betri samningsaðstöðu gagnvart þeim!
  2. Hann vildi meina, að lítið væri að marka orð keppinauta - hvort sem um væri að ræða, innan Repúblikana-flokksins, er hann barðist fyrir útnefningu þess flokks; eða síðar eftir útnefningu sem forseta-efni þess flokks, gegn megin-andstæðingi hans, Hillary Clinton.
  • Ég er ekki endilega að segja, að ég sé 100% sammála Trump þarna.
  • Einungis, að ég taldi ekki þau rök - út í hött.

Val Trumps á James David Vance, sem varaforsetaefni, þvert á hans eigin rök!
Thiel - Vance - Trump!

How Peter Thiel and Silicon Valley funded the sudden rise of JD Vance

Vance hitti Thiel fyrsta sinn, þegar Vance var við háskóla-laganám í Yale - er Thiel hélt ræðu, sem Vance síðar sagði að hefði fyllt hann af hugljóman - þ.s. Thiel gagnrýndi nútíma samfélag, og skort á flæði nýunga hvers konar frá bandarísku viðskiptalífi: Peter Thiel and JD Vance.
Vance eftir nám hóf störf við eitt fyrirtækja Thiel, Palanthir: 2019 hinn bóginn, með 100 milljóna Dollara framlagi frá Thiel, og hluta til hagnaði af sölu bókar sinna Hillbilly Elegy, stofnaði Vance -sitt- fjárfestingar-fyrirtæki: Narya.
--Hinn bóginn, eigandi langsamlega stærsta einstaka hlutarins, er Thiel greinilega eigandi þess.
--Þó Thiel hafi virst leyfa Vance, að stjórna því - a.m.k. opinberlega.

Narya was backed with about $100mn from Thiel and a cadre of his acquaintances,including former Google chief executive Eric Schmidt and prominent venture capitalists Marc Andreessen and Scott Dorsey.

Einhverra hluta vegna, gekk Vance í augu Thiel - hvernig akkúrat, veit enginn annar en þeir tveir: How Peter Thiel and Silicon Valley funded the sudden rise of JD Vance.

  1. Hvað sem akkúrat leiddi til þess að, Thiel tók Vance að sér -- fjármagnaði ekki einungis með eigin peningum, heldur kom honum í sambönd við flr. ríka aðila, er einnig virðast gauka að peningum.
  2. Þá a.m.k. virðist ljóst, að Thiel - a.m.k. fram að þessu - virðist kjarna bakhjarl Vance.

T.d. fjármagnaði hann, stórum hluta - kosningabaráttu Vance til Öldungar-deildar-Bandaríkjaþings, fyrir Ohio-fylki.

A mole hunt, a secret website and Peter Thiel’s big risk: How J.D. Vance won his primary

Peter Thiel and JD Vance: How PayPal founder boosted VP candidate's political career

Eins og kemur fram, voru keppinautar Vance - enn betur fjármagnaðir.
Hinn bóginn umbyltir það ekki þeirri mynd - að Vance á Thiel, algerlega að þakka - þingsæti sitt.

 

Musk er auðugari en Trump og Thiel, þó auður þeirra væri lagður saman!

Elon Musk - Simple English Wikipedia, the free encyclopedia
Elon Musk, virðist nýlega genginn í lið fjárfesta, er styðja Vance í Hvíta-Húsið; Musk virðist nú byrjaður að fjármagna kosningu Trumps og Vance, um 45millj.dali per mánuð!

Elon Musk Has Said He Is Committing Around $45 Million a Month to a New Pro-Trump Super PAC

Skv. VallStreetJournal, hóf Musk formlega stuðning við framboð Trumps og Vance, í kjölfar skotárásar á Trump -- hinn bóginn, hafa reglulegar fregnir verið í fjölmiðlum, um áform Trumps til slíks stuðnings.
Ef marka má VLJ, berst fyrsta framlagið nk. mánaðamót.

Musk plans to give $45 mln a month to new pro-Trump PAC, WSJ reports
Frétt Reuters, fjallar um -- fyrirhugaðan stuðning Elon Musk.
Musk brást e-h illa við þeirri frétt, uppnefndi hana - fake news.
En virðist skv. VLJ, búinn að ákveða að fjármagna um - rausnarlegar 50 millur á mánuði.

 

Vanity Fair fékk viðtal við Vance, er hann var á ráðstefnu 2022!
Í ljósi þess, Vance getur orðið forseti - vekja skoðanirnar athygli!

Skoðanir Vance: Vance virðist hluti af skoðanahópi, er nefna sig -New Right- með þær hugmyndir að nútímasamfélag sé fullkomlega ósjálfært - annaðhvort hrynji, er víst kvá vinsæl kenning í hópnum, þá þyrfti fólk með betri hugmyndir að stíga fram, hópurinn væntanlega, og bjarga því sem bjarga sé hægt úr rústunum -- eða, hin kenningin, að þörf sé fyrir einræðisherra, sem taki sér öll völd svo unnt sé að gera, að mati hópsins, nauðsynlegar breytingar.
--Pieter Thiel, virðist mikilvægur fjármagnari og áhrifa-valdur meðal þessarar hreyfingar.

  • Eins og ég skil þetta:
    Skilgreina þeir nærri allt samfélagið, vinstri.
    Ekki síst, stofnana-kerfi þess - þeir virðast afar andvígir, neti stofnana og þeirra hugmynda er fylgja þeim stofnunum -- einnig þeim hugmyndum, er virðast ráðandi á netinu.

    En netið hefur greinilega sett samfélags-breytingar á Túrbó.
    Hvernig netið leiðir til þess hugmyndir flæða um allt, alls staðar frá - ógnar auðvitað, öllum hugmynda-kerfum, sem vilja með einhverjum hætti: takmarka-hraða-þeirra-breytinga.

    Mig grunar, að þetta - Nýja-Hægri - sé ef e-h er, enn frekar byrtingar-mynd við þá breytinga-bylgju er fylgi netinu sjálfu; það er áhugavert - að inn í þetta Nýja-Hægri fléttast trúar-hópar frá Biblíu-belti Bandar. þ.s. er ekki undarlegt, að trúar-hópar líti á þær hröðu samfélags-breytingar, sem vaxandi ógn.

    Thiel, sjálfur - gerðist Kaþólikki, og tók upp andstöðu við fóstureyðingar, sem og tortryggni gagnvar getnaðar-vörnum, er fylgir afstöðu Kaþólikka.
    Vance sjálfur, hugsanlega vegna áhrifa frá Thiel - og þeim hópi hann síðan gekk í; gerðist sjálfur trúaður; m.ö.o. tók upp andstöðu við fóstureyðingar og tortryggni gagnvart getnaðarvörnum að auki.

    Þ.e. því afar freystandi -- að túlka þetta einfaldlega sem!
    Andstöðu trúar-hópa innan Bandaríkjanna, við hraðar samfélags-breytingar er fylgdu netinu.
    Vegna þess að þeir virðast átta sig á að, samfélagið sé ekki líklegt til að -- styðja byltingu gegn þeim breytingum er þegar orðið hafa, sem og þeim sem líklega verða.
    Skýri, líklega af hverju - Vance aðhyllist hugmyndir um, afnám lýðveldisins.

    Ég bý það ekki til -- Vance segir þetta sjálfur, í viðtalinu frá 2022!

Einkaviðtal við Vance - 2022!
Inside the New Right, Where Peter Thiel Is Placing His Biggest Bets

Vance described two possibilities that many on the New Right imagine—that our system will either fall apart naturally, or that a great leader will assume semi-dictatorial powers.

  • So there’s this guy Curtis Yarvin, who has written about some of these things, - So one [option] is to basically accept that this entire thing is going to fall in on itself, - And so the task of conservatives right now is to preserve as much as can be preserved, waiting for the inevitable collapse of the current order.
  • I tend to think that we should seize the institutions of the left, - And turn them against the left. We need like a de-Baathification program, a de-woke-ification program.
  • I think Trump is going to run again in 2024, ... I think that what Trump should do, if I was giving him one piece of advice: Fire every single midlevel bureaucrat, every civil servant in the administrative state, replace them with our people.
  • And when the courts stop you, ... stand before the country, and say, the chief justice has made his ruling. Now let him enforce it.
  • We are in a late republican period, ... If we’re going to push back against it, we’re going to have to get pretty wild, and pretty far out there, and go in directions that a lot of conservatives right now are uncomfortable with.
  • Indeed, ... Among some of my circle, the phrase ‘extra-constitutional’ has come up quite a bit.

Þegar blaðamaður spurði hann -- hvort hann meinti; einræði?

  • I think the cultural world you operate in is incredibly biased, ... the leaders of it, like me in particular. - That impulse, ... is fundamentally in service of something that is far worse than anything, in your wildest nightmares, than what you see here.
    [Hann greinilega er að tala um nútíma-samfélagið sjálft, the MATRIX eins og sumir þeirra nefna það - e-h svo fullkomlega hræðilegt, að þeir eiga í vandræðum með að lísa því með nægilega slæmum orðum. M.ö.o. eru þeir á móti nútíma-samfélaginu sjálfu.]
  • ....it will mean that my son grows up in a world where his masculinity—his support of his family and his community, his love of his community—is more important than whether it works for fucking McKinsey.
    [Þ.s. hann talar um soninn sem fyrirvinnu -- virðist hann lýsa endurupptöku gamla samfélagsins, þ.s. konan vann heima, karlinn var fyrirvinna. Auk þessa, er honum greinilega í nöp við það - að fólk hafi status vegna þess fyrir hverja það vinnur.]

Skv. þessu virðast þetta hugmyndir fólks -- er starir í baksýnis-spegilinn.
Það þarf að, vinda ofan af nútíma-samfélaginu.
Taka aftur upp, gamla hætti - nútíma-samfélagið hefur afskrifað í áratugi.

  1. Hinn bóginn, er það augljóslega ómögulegt -- að snúa til baka um 60 ár.
  2. Þessar hugmyndir eru ekkert minna en snar-geggjaðar.

Vert þó að varpa ljósi á geggjan Vance - því hann gæti orðið forseti Bandaríkjanna.
Augljóslega er ómögulegt að vinda samfélaginu til baka um 60 ár!
--Sem þíði ekki, að ef hann næði að verða forseti, gæti hann ekki hafið slíka tilraun.

Hinn bóginn, mundi samfélagið nær gervallt líklega standa á móti svo róttæku afturhaldi.

 

Niðurstaða
Athygli vakir gríðarleg róttækni Vance - sem ég verð eiginlega líkja við, Vladimir Lenin.
Vegna þess, að Lenin - vildi umbylta öllu samfélags-forminu. Það vill Vance einnig.
--Þó svo breytingar þær Vance vill, séu aðrar. Virðist Vance, síst minna róttækur.

Elon Musk, er yfirlýstur - stjórnleysingi, af hægra litrófinu. Sem þíðir, hann vill smætta ríkið eins mikið og hægt er. Minnka skatta eins mikið og hægt er. Afnema regluverk um fyrirtæki, eins mikið og hægt er. Sama tíma, er hann algerlega andvígur verkalýðshreyfingum hvers konar.

Peter Thiel, sem er einn lykilfjármagnara - svokallaðs: Nýs-Hægris. Virðist blanda inn í þessa, trúarlegum hugmyndum, sem líklega liggur að baki andstöðu við -- nútíma samfélagið, eins og það hefur þróast.
--Hann hefur verið patron Vance, frá upphafi.

Líklega ná milljarðamæringarnir saman, um skattalegar hugmyndir - um takmörkun regluverks - líklega, mig grunar, einnig er hann andvígur verkalýðshreyfingum.
--Musk, hinn bóginn, er ekki nærri eins trúaður.

  1. Punkturinn í þessu er auðvitað sú, að baki liggur veðmál um Vance, sem framtíðar forseta.
  2. Til samans, hafa þeir fullkomlega nægilegt fjármagn, til að fjármagna kosninga-baráttuna, algerlega úr eigin vasa; þá núverandi og hugsanlega síðar meir fyrir Vance.

Þá blasir það við - ef Vance næði síðar meir kjöri, eða Trump deyr síðar eftir hafa náð kjöri.
Umráð milljarða-mæringa yfir forseta-embættinu, geta þar með orðið alger!

  • Hafandi í huga orð, Trumps sjálfs frá 2016.

Eru orð Vance, algerlega ómarktæk.
Nema um þau atriði, sem unnt er í að ráða -- að milljarðamæringarnir hafa vilja til.

--------------------

  1. Augljóslega hljóta Demókratar að leggjast á Vance!
  2. Þar um, hafa þeir - nægan sjóð af eldri ummælum Vance.
  • Og auðvitað, sjóð ummæla Trumps frá 2016.

Augljós róttækni Vance, efasemdir um nánast gervallt samfélagið eins og það er.
Hugmyndir í þá átt, að samfélagið eins og það er -- sé fullkomlega hræðilegt.
--Verður auðvitað einnig, kjöt á beini þegar gagnrýnin á Vance hefst fyrir alvöru.

 

Kv.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Peter Thiel er einn af slímugustu útlimum fenjaskrímslisins sem Trump kallar djúpríkið.

"If you can't beat them, join them..."?

Guðmundur Ásgeirsson, 21.7.2024 kl. 20:36

2 Smámynd: Ingólfur Sigurðsson

Aðkoma Peter Thiel sýnir kannski að áhyggjur þeirra að nútímasamfélagið sé að fara að hrynja eru ekki úr lausu lofti gripnar, virðist raunverulegar ástæður til að halda að það geti gerzt. Djúpríkið vill því bjarga sér úr rústunum og eiga þátt í þessu sem Trump og félagar reyna að gera.

Engu að síður rétt sem Einar Björn skrifar að ekki hægt að færa samfélagið 60 ár aftur í tímann með einu pennastriki. Einhver millilausn verður að finnast.

Gæti vel trúað að þetta kosti enn meiri klofning í bandarísku samfélagi, kannski líka evrópsku. Stór hluti fólks myndi vilja feðraveldið aftur og hefðbundið heimilislíf eins og var áður. Það myndi þó þýða boð og bönn á það sem við teljum sjálfsagt. Erfitt að sjá að það gangi átakalaust. Þó augljóst að hvatinn er til staðar, og eitthvað hlýtur að gerast af þessu tagi, við vitum ekki hversu mikið.

Trump er ólíkindatól, hann skiptir um skoðun og gerir það sem hentar, fer gegn fyrri sannfæringu jafnvel, þannig að þetta kemur mér ekki mikið á óvart, en áhugavert samt, og sýnir að Djúpríkið gerir sterklega ráð fyrir þeim möguleika að hann komist næst til valda, vilja hluta af kökunni og passa uppá sinn hlut.

Trúi samt ekki algjöru kerfishruni í heiminum, frekar einhverskonar kreppu eins og var 2008.

Já það eru miklar breytingar í farvatninu. Spennandi að fylgjast með. Jafnvel ef Trump sigrar ekki, þá er erfitt að sjá sama stuðning við Úkraínustríðið og Ísrael. 

Ef gjáin á milli Repúblikana og Demókrata minnkar ekki, hvað gerist þá? Bandaríkin í ríkjasambandi sem berjast innbyrðis eins og fyrir þrælastríðið?

Þetta er einn af þessum pistlum Einars Björns sem mér finnst gaman að lesa, fullur af upplýsingum, og gert ráð fyrir ýmsu.

Ingólfur Sigurðsson, 21.7.2024 kl. 22:08

3 Smámynd: Grímur Kjartansson

Ekki datt mér í hug að Vance yrði varaforseti USA þega ég las bókina hans fyrir sléttum 7 árum
Það var mjög klókt af Trump að velja hann og hann mun ekki bara vera til skrauts í kosningabaráttunni heldur mun Trump tefla honum fram í sumum ríkjum þar sem fólk hefur horft upp á verulega hnignun, atvinnuleysi og víkniefnavanda sem er því miður víða 

Grímur Kjartansson, 22.7.2024 kl. 06:43

Bæta við athugasemd

Nauðsynlegt er að skrá sig inn til að setja inn athugasemd.

Um bloggið

Einar Björn Bjarnason

Höfundur

Einar Björn Bjarnason
Einar Björn Bjarnason
Stjórnmála- og Evrópufræðingur. Áhugi á stjórnmálum, Evrópumálum, alþjóðamálum, málefnum Miðausturlanda, trúmálum, vísindum og tækni, og margt fleira.
Sept. 2024
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Eldri færslur

2024

2023

2022

2021

2020

2019

2018

2017

2016

2015

2014

2013

2012

2011

2010

2009

2008

Nýjustu myndir

  • Mynd Trump Fylgi
  • Kína mynd 2
  • Kína mynd 1

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.9.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 45
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 37
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband