Trump kominn með nýjan forsetabíl - Cadillac auðvitað

Dálítið gaman að bera þetta saman við nýjan forsetabíl Pútíns: Ekkert slor nýr Rússnesk smíðaður lúxusbíll Pútíns - sömu helgi og bifreiðasýning var í Moskvu voru aldraðir Rússar að mótmæla.

New GM-built 'Beast' presidential limo makes Trump debut

Here's The New Presidential Beast Limo

This Is President Donald Trump's New Cadillac "Beast" Limo

 

Forsetabíll Pútíns!

Forsetabíll Pútíns hefur greinilegt Rolls Royce "vipe."

 

Forsetabíll Trumps

Meðan að ég fæ ekki séð að forsetabifreið Trumps sé annað en - Cadillac. 

  1. Bifreiðin hans Trumps, meðan hann fer með embætti forseta, kvá vega ca. 9 tonn.
    --Meðan uppgefin þyngd bifreiðar Pútíns er ca. 6,5 tonn.
  2. Ekkert hefur verið gefið upp um aflvél nýrrar bifreiðar embættis Bandar. forseta.
    --En bifreið Pútíns kvá hafa 8 sýlindra vél með forþjöppu og 600hö.
  3. Það sem vitað er um nýjan forsetabíl Trumps - að:
    --Hann er með sömu sætisskipan og sá fyrri: 2 - 3 - 2.
    --Hann er byggður á trukka-undirvagni, ekki fólksbíls-undirvagni. Og sá undirvagn af sterkustu gerð sem GM hefur yfir að ráða. En mjög styrktur samt þar fyrir utan.
    --Þannig boddýið er þá eiginlega - klætt í líkingu fólks-bifreiðar, frekar en að vera slík í raun og veru.
    --Það er að sjálfsögðu öflug brynvörn væntanlega til allra átta, neðan frá einnig.
    --Bifreiðin innanfrá er varin frá hvers konar formi hugsanlegra árása með gasvopni eða eiturvopni af öðru tagi. M.ö.o. er með algerlega lokað eigið umhverfiskerfi meðan henni er ekið.
    --Og hún er búin mjög öflugum samskiptakerfum, væntanlega kerfum sem eru varin með þeirri bestu tækni sem Bandaríkin ráða yfir, gegn hugsanlegum innbrotum eða njósnum.
  • Síðasta bifreið kostaði 1,5milljón.$ stykkið, en embættið átti 15 stykki af þeirri.
    --Verðmiðinn á þessari er ekki enn kominn.
  • En einhvern veginn grunar mig, að forsetabifreið Pútíns - kosti í háu margfeldi miklu meira.

Það kemur til af því, að Bandaríkin byggja á grunni sérsmíðaðra bifreiða sem þó eru framleiddar á grunni þess sem til er fyrir.
Meðan að bifreið Rússlands-forseta virðist á engum grunni sem fyrir var, þó hún sé smíðuð innan Rússlands - heldur var búinn til ný framleiðsla ofurlúxusbifreiða sem ekki var til áður, þ.e. allt þróað nýtt frá grunni - vél, annað kram, innréttingar, undirvagn, o.s.frv.
--Kostnaðurinn hlýtur að hafa verið óhugnanlegur!

Það sé algerlega óhugsandi að framleiðsla ofurlúxusbifreiða í líklega fáeinum eintökum per ár, seld til rússn. plútókrata og hugsanlegra einhverra erlendra plútókrata með tengsl við Rússland -- komi til með að skila nema mjög litlu brotaboti af þeim kostnaði til baka.

Í samanburði sé bifreiðin hans Trumps líklega - fjárhagslega séð, skítur og kanell.

 

Niðurstaða

Verð að viðurkenna enn fullkomlega hneykslaður á því verkefni sem liggur að baki bifreið Pútíns, því ákveðið var greinilega - allt yrði vera smíðað í Rússlandi. Þó það þíddi sennilega verja til þess tugum milljarða dollara a.m.k. til að búa til það framleiðslubatterý sem gat smíðað og þróað frá grunni - allt það sem fer í bifreið skv. ströngustu kröfum.

Meðan býr Bandaríkjaforseti við það að þar í landi eru til framleiðendur með 100 ára sögu, og er ráða yfir miklum fjölda nýtilegra hluta og undirvagna, véla og annars krams - fyrir utan að hafa að auki langa reynslu af því að smíða "limousines." Þá sparast að sjálfsögðu mjög mikið fé, því unnt er að ganga í þær smiðjur - nota þ.s. til er sem grunn.

--En einhvern veginn, finnst mér að Pútín hefði frekar átt að fjármagna bætt heilsufar eigin landa -- en enn er meðalaldur karlmanna þar innan við 70 ár.
--Ég meina, það er engin alvöru afsökun til staðar, af hverju þetta er enn þannig eftir meir en 20 ár við völd!
--Tugir milljarða dollara hefðu örugglega haft veruleg áhrif þar um.

Mér finnst þetta eiginlega sýna hvaða tillit stjórnar-elítan í Kreml tekur til síns eigin fólks, nákvæmlega ekki neitt.

 

Kv.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Böðvarsson

Þú ert svo bilaður. Svo kanntu ekki einu sinni að stafa Cadillac..

Guðmundur Böðvarsson, 25.9.2018 kl. 03:29

2 Smámynd: Einar Björn Bjarnason

Guðmundur Böðvarsson, lítið hægt að segja við þann er útskýrir ekki nokkurn hlut.
Kv.

Einar Björn Bjarnason, 25.9.2018 kl. 04:29

3 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Hvernig telur þú að eigi að rita heitið Cadillac, Guðmundur? 

Ómar Ragnarsson, 25.9.2018 kl. 20:29

4 Smámynd: Þorsteinn Briem

Kádiljákur. cool

Þorsteinn Briem, 25.9.2018 kl. 22:32

5 Smámynd: Borgþór Jónsson

Af því að Einar á til að fara svolítið frjálslega með tölur er rétt að upplýsa að hönnun bílsins kostaði 184 milljónir dollara. Hlutur ríkisins í þessu voru 55 milljónir dollara.

Þetta er fullt af peningum,en nokuð langt frá að vera tugir milljarðar dollara. Þarna skeikar aðeins tugum milljarða dollara.

Borgþór Jónsson, 26.9.2018 kl. 20:01

6 Smámynd: Einar Björn Bjarnason

Borgþór Jónsson, það er engin möguleiki að það sé rétt - en verksmiðjan ein sem setur bílinn mundi hafa kostað meir. Þá er eftir - að áætla fjármagn sem færi í að reisa verksmiðjur sem smíða íhlutina t.d. gírkassa - allt dótið sem raðað er saman í samsetningarverksmiðjunni en hvern hlut þarf að framleiða einhvers staðar og ef Rússland ákvað að allt sé þar framleitt - þurfti að reisa einhvera smiðju fyrir hvern  þátt fyrir sig, auðvitað þá sem framleiða innréttingar, og þann lúxusbúnað sem þar er að finna - það eru sér-staðir fyrir hvern þátt að auki.
--Þetta er heilt framleiðsluprógramm, sem búið er til úr engu.
Þarna er ég búinn að telja upp nokkra milljarða dollara í líklegum kostnaði.

Þá er eftir að áætla - þróunarkostnað, því allan búnaðinn þarf ekki bara að hanna - heldur fer allur nýr búnaður í gegnum prófunarferli - því lengra sem búnaður er flóknari. Og auðvitað, þarf að prófa hvern íhlut fyrir sig - sannreyna að sá hlutur virki, og sé áreiðanlegur. Á einhverjum punkti, eru búnir til prófunarbílar - þ.e. tilrauna-eintök þ.s. prófað er áreiðanleiki búnaðar sem vinnandi heild; gjarnan er slíkum eintökum ekið hundruð þúsundir km. Og yfirleitt eru fj. prófunar-eintaka. Þetta ferli tekur yfirleitt verulegan tíma, nokkur ár. Þetta ferli er yfirleitt gríðarlega kostnaðarsamt.
--Oftast nær er þetta dýrasti hluti ferlisins, þær löngu prófanir sem þarf að ganga í gegnum.

T.d. kostaði núverandi kynslóð af Honda Civic milli 3-4 ma.dollara í þróun. Rússn. ferlið hefur kostað mun meira en það, vegna þess að allt er gert nýtt frá grunni, þ.e. ekkert af því sem er í þeim bifreiðum var áður til í rússn. framleiðslu - og að alla framleiðslulínuna þurfti að einnig að smíða frá grunni - og þjálfa nýtt fólk.

Þetta gæti því vel hafa kostað ca. 10 falt þ.s. Honda varði til þróunar á núverandi kynslóð af Honda Civic.

Kv.

Einar Björn Bjarnason, 26.9.2018 kl. 22:07

7 Smámynd: Borgþór Jónsson

 Samkvæmt ársskýrslu var allur rannsóknar og þróunarkostnaður Mercedes samstæðunnar 6,5 milljarðar evra árið 2015.

Allar deildir meðtaldar, Fóklsbílar ,jeppar,sendiferðabílar og vörubílar.

Fyrir fólksbíla sérstaklega var talan 4 milljarðar evra.

Mercedes er nokkuð stór í bransanum ,og þeir framleiða meðal annars limosínur.

Borgþór Jónsson, 27.9.2018 kl. 00:15

8 Smámynd: Borgþór Jónsson

Vil kannski bæta því við að það voru ekki reystar verksmiðjur til að búa til íhlutina. þeir eru búnir til í verksmiðjum í Rússlandi sem framleiða íhluti í bíla,meðal annars í Ford í Rússlandi.

Af því að þú virðist hafa misst úr tuttugu ár af einhverjum ástæðum,tel ég skyldu mína að upplýsa þig um að það eru framleiddar margar gerðir bíla í Rússlandi í dag. Meðal annars Mercedes í einni nýtískulegustu verksmiðju samstæðunnar. Hún er staðsett rétt hjá Moskvu. Mercedes er líka með verksmiðjur þar  sem framleiða íhluti.

Bíllinn er heldur ekki settur saman í verksmiðju,hann er handunninn. Kannski 50 milljón króna húskofi , nokkrir skiftilyklar og bónklútar til að klára dæmið.

Nokkrar bílalyftur,handknúinn vagn og gömul kelling sem skúrar gólfið í sífellu.

Hér er stutt myndskeið sem sýnir inn í samsetningarsalinn.

 https://youtu.be/ykb8agaCyi4?t=425

Borgþór Jónsson, 27.9.2018 kl. 01:02

Bæta við athugasemd

Nauðsynlegt er að skrá sig inn til að setja inn athugasemd.

Um bloggið

Einar Björn Bjarnason

Höfundur

Einar Björn Bjarnason
Einar Björn Bjarnason
Stjórnmála- og Evrópufræðingur. Áhugi á stjórnmálum, Evrópumálum, alþjóðamálum, málefnum Miðausturlanda, trúmálum, vísindum og tækni, og margt fleira.
Des. 2024
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31        

Eldri færslur

2024

2023

2022

2021

2020

2019

2018

2017

2016

2015

2014

2013

2012

2011

2010

2009

2008

Nýjustu myndir

  • Mynd Trump Fylgi
  • Kína mynd 2
  • Kína mynd 1

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.12.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 31
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 28
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband