1.5.2018 | 22:51
Gaman að ryfja upp fullyrðingar 9-11 samsærissinna, að engir skýjakljúfar hafi hrunið vegna elds!
Ástæða þess ég nefni þetta að ég rakst einmitt á frétt þess efnis að turnbygging hafi hrunið í Sao Paulo eftir að hafa orðið alelda. Í því að ég googlaði þá frétt, rakst ég á aðra þess efnis að önnur turnbygging hafi skíðlogað fyrr á þessu ári í Teheran og einnig hrunið til grunna!
Blazing building collapses in Sao Paulo
Sao Paulo building collapses in huge blaze
More than 20 firefighters dead' in Tehran building collapse
Sao Paulo bruninn
Sao Paulo, bygging hrunin
Teheran fyrr á árinu
Teheran, bygging hrunin
Þetta eru eða voru mun smærri turnbyggingar en World Trade Center turnarnir, hinn bóginn ætti stærðin "per se" ekki að skipta máli - þegar maður íhugar þá ítrekuðu fullyrðingu sem ég heyrði í fjölda skipta -- að engin turnbygging hafi brunnið og hrunið, nokkru sinni.
Auðvitað, var það ekki bara bruni í tilviki turnanna tveggja - heldur mjög harður árekstur flugvélar í hvort sinn!
Fyrri árekstur - Norður Turn, eina myndskeiðið til!
Seinni árekstur, Suður Turn, fjöldi myndkeiða til - en þetta er gott!
Málið með myndskeiðin - að þau sýna mæta vel, báðar vélarnar fljúga beint inn í bygginguna - síðan að í bæði skiptin, verður risastór sprenging er sprengir alveg í gegn.
--Enginn veit í hvert tjónið akkúrat var af þeim árekstrum.
--Vegna þess að turnarnir hrundu eftir allt saman!
Hrun Norður Turns
Hrun Suður Turns
- Það sem mér hefur alltaf fundist mest sannfærandi er sú staðreynd, sem sést vel ef myndböndin af hrunum turnanna í sitt hvoru lagi eru skoðuð.
- Að þ.e. algerlega greinilegt að í báðum tilvikum - hefst hrunið á því svæði þ.s. greinilegt að árekstur flugvélar og turns átti sér stað.
- En það er auðvelt að þekkja það svæði á myndum af atburðinum, að árekrarnir skildu eftir sig mjög sjáanlegt tjón á turnunum - og að eldurinn var sýnilega mestur á því svæði.
- Þið getið einnig skoðað vel myndirnar af árekstrunum sjálfum!
Þetta var auðvitað afar sorglegt - ekki einungis vegna þess tjóns er varð þann dag.
Heldur einnig vegna þess - með hvaða hætti ríkisstjórn George Bush forseta síðan, notaði atburðinn.
Hinn bóginn séu vísbendingar nægilega skýrar að atburðurinn líklega varð með þeim hætti, að flugvél flaug á turn - orsakaði tjón líklega á strúktúr byggingar á þeim punkti, sem skýri af hverju hrun hefjist í hvort sinn nokkurn veginn þ.s. árekstur varð.
Að líklega samverkandi áhrif þess tjóns, og eldhafsins - en sannað er að eldhaf veiki styrkleika stálgrinda, hafi leitt til þess hruns sem heimurinn allur varð vitnis.
--Þó að Bush forseti hafi síðan notað atburðinn, sé líklegast að hann hafi gripið tækifærið.
--Ekki vísbending þess, að Bandaríkin sjálf hafi skipulagt verknaðinn.
Bendi á að farþegaflugvélar eru ekki - orrustuvélar sem taka beyjur á punktinum.
Það er gjarnan vindasamt nærri stórum skýjakljúfum - sem þíði, að líklega sé ómögulegt að miða með nákvæmni á einhvern tiltekinn punkt - heldur einfaldlega sé miðað á bygginguna.
--Sem þíði, að það sé ómögulegt sennilegast að vita akkúrat hvar vél mundi hitta!
--Augljóslega, veiki það atriði hugmyndir um - skipulagða röð sprenginga, svo allt líti rétt út!
--Fyrir utan stærð sprenginganna sjálfra sem sjáanlega verða er hvor vél um sig rekst á, m.ö.o. hvernig gætu menn vitað að búnaður með viðkvæmum elektrónískum móttökubúnaði, gæti þolað slíkt?
--Auk þess hitinn af eldhafinu, en ég hef ekki frétt af nokkrum kísilkubbum er þola nær þúsund gráða hita, en vitað er að hitinn af eldhafinu var líklega mjög mikill - enda vélarnar fullar af flugvélaeldsneyti.
Niðurstaða
Það er merkilegt fyrirbæri þegar fólk tekur ástfóstri við samsæriskenningu og síðan ver kenninguna eiginlega hvað sem á dynur. Fyrir mér virðist einfalda skýringin blasa við - en klárlega hafa turnar hrunið í eldi, og við höfum að auki risastóra árekstra við flugvélar sem líklega orsökuðu umtalsvert tjón.
Auðvitað síðan er hrunið sjálft hefst, er rétt að árétta að í hvort sinn eru einhverjar hæðir fyrir ofan þann punkt - þ.s. hrunið hefst; þannig að fallþunginn ofan á hæðina fyrir neðan, er þunginn af hæðunum fyrir ofan sem falla þar ofan á í margfeldi við fallhraðann!
--Það geri óskaplegt högg! En hver hæð var mjög stór að flatarmáli, hver um sig örugglega meir en hundrað tonn - fleiri hundruð hljómar sennilegt, plúsa það með fjölda hæða og maður væri fljótt kominn langt yfir þúsund tonn, síðan margfalda þá tölu með fallhraða - til að fá fallorku.
--Ég efa að sennilegt sé að við hönnum hafi verið gert ráð fyrir slíkum styrk, en sennilega þyrftu þá öll háhýsi vera byggð eins og - pýramýdar í lögun!
Ef einhver bendi á að gert hafi verið ráð fyrir árekstrum flugvéla, þá bendi ég aftur á -- að horfa á myndskeið af hruni hvors turns um sig.
En þó menn hafi gert slíka tilraun, er það langt síðan þær byggingar voru reistar, að menn hafa ekki framkvæmt tölvumódel - örugglega var aldrei prófað hvort turnarnir þyldu slíkan árekstur.
Þannig að óhætt sé að segja, að sú tilraun að hanna inn þol gegn árekstri við flugvél - hafi þá einfaldlega ekki heppnast!
--Fyrir utan að sennilegast hafi verið miðað við slys smáflugvélar eða þyrlu á lítilli ferð.
Kv.
Flokkur: Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt 2.5.2018 kl. 23:08 | Facebook
Um bloggið
Einar Björn Bjarnason
Nýjustu færslur
- Mögnuð atburðarás hefur leitt til falls, Bashar al-Assads, fo...
- Þorgerður Katrín í oddaaðstöðu! Hún líklega algerlega ræður h...
- Sigur Donalds Trumps, stærsti sigur Repúblikana síðan George ...
- Ef marka má nýjustu skoðanakönnun FoxNews - hefur Harris þokk...
- Kamala Harris virðist komin með forskot á Trump í Elector-Col...
- Það að Úkraínuher er farinn að sprengja brýr í Kursk héraði í...
- Úkraínuher hóf innrás í Kursk hérað sl. mánudag! 5 dögum sein...
- Möguleikar Kamölu Harris til hugsanlegs sigurs á Donald Trump...
- Leiðir ris J.D. Vance - til fullkominna yfirráða milljarðamær...
- Er fall bandaríska lýðveldisins yfirvofandi - vegna ákvörðuna...
- Sérfræðingar vaxandi mæli þeirrar skoðunar, 2025 verði lykilá...
- Rússar hafa tekið 8 km. landræmu síðan sl. föstudag í NA-Úkra...
- Rússland getur hugsanlega haldið fram Úkraínustríði, allt að ...
- Rússland ætlar að hætta stuðningi við uppreisnarmenn í Súdan ...
- Gríðarlega mikilvægt að Úkraína fær bráðnauðsynlega hernaðara...
Nýjustu athugasemdir
- Mögnuð atburðarás hefur leitt til falls, Bashar al...: Margar þjóðir eru tibúnar að hjálpa til við uppbygginguna en sú... 9.12.2024
- Mögnuð atburðarás hefur leitt til falls, Bashar al...: Grímur Kjartansson , Sýrland er efnahagslega rjúkandi rúst - ei... 9.12.2024
- Mögnuð atburðarás hefur leitt til falls, Bashar al...: Mér skilst að al-Jilani hafi keypt sér liðveislu USA með því a... 9.12.2024
- Þorgerður Katrín í oddaaðstöðu! Hún líklega algerl...: Ásgrímur Hartmannsson , grímur -- Viðreisn er hægri flokkur. Ha... 8.12.2024
Eldri færslur
2024
2023
2022
2021
2020
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
Bloggvinir
- eyglohardar
- bjornbjarnason
- ekg
- bjarnihardar
- helgasigrun
- hlini
- neytendatalsmadur
- bogason
- hallasigny
- ludvikjuliusson
- gvald
- thorsteinnhelgi
- thorgud
- smalinn
- addabogga
- agnarbragi
- annabjorghjartardottir
- annamargretb
- arnarholm
- arnorbld
- axelthor
- arnith2
- thjodarsalin
- formosus
- birgitta
- bjarnijonsson
- bjarnimax
- westurfari
- virtualdori
- bookiceland
- gattin
- davpal
- dingli
- doggpals
- egill
- jari
- einarborgari
- einarsmaeli
- erlaei
- ea
- fannarh
- fhg
- lillo
- gesturgudjonsson
- gillimann
- bofs
- mummij
- kallisnae
- gp
- gudmbjo
- hreinn23
- gudrunmagnea
- gmaria
- topplistinn
- skulablogg
- gustafskulason
- hallurmagg
- haddi9001
- harhar33
- hl
- diva73
- himmalingur
- hjaltisig
- keli
- fun
- johanneliasson
- jonsullenberger
- rabelai
- jonl
- jonmagnusson
- jonvalurjensson
- thjodarskutan
- gudspekifelagid
- juliusbearsson
- ksh
- kristbjorg
- kristinnp
- larahanna
- leifurbjorn
- lifsrettur
- wonderwoman
- maggij
- elvira
- olafureliasson
- olinathorv
- omarragnarsson
- ottarfelix
- rafng
- raksig
- redlion
- salvor
- samstada-thjodar
- fullvalda
- fullveldi
- logos
- duddi9
- sigingi
- sjonsson
- sigurjons
- stjornlagathing
- athena
- stefanbogi
- lehamzdr
- summi
- tibsen
- vala
- valdimarjohannesson
- valgeirskagfjord
- vest1
- vignir-ari
- vilhjalmurarnason
- villidenni
- thjodarheidur
- valli57
- tbs
- thorgunnl
- thorsaari
- iceberg
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.12.): 0
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 31
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 28
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Ertu að halda því fram, að tvíbura turnarnir í NY hafi verið byggðir með sama "regluverk" og byggingar í Teheran eða Sao Paulo?
Kenningar "samsæris" sinna, eru þær ... að "EF" (og það er þetta stóra EF) tvíburarnir voru byggðir samkvæmt regluverki ... gátu þeir ekki hrunið á þann hátt sem staðreynd varð. Því byggingarnar hrundu nánast í "free fall". Það gerði hvorki Sao Paulo, né Teheran.
Það var brú í Kína, sem hrundi við það að vörubíll keirði yfir hana.
Þessir staðir, Teheran, Sao Paulo og Kína ... hafa ekki sömu "kröfur" og Evrópa og Bandaríkin hvað varðar byggingar. Stálið í byggingunum, getur ekki hafa bráðnað við Kerasin bruna eins og um ræðir, því hitastigið við bruna í Kerasin er ekki nægilegt. Nema þá að byggingin hafi verið byggð með Kínverskum, Suður Amerískum ... eða Írönskum "stöðlum".
OG HANA Nú ... eins og hænan sagði.
Örn Einar Hansen, 3.5.2018 kl. 12:11
Einar ég tel þetta rétt hjá þér en það myndast funnel efect við svona bruna svo hitinn margfaldast gífurlega en skýringar Bjarne fyrir einhverju mánuðum eða ári þá fór ég að hugsa og ef það hefir verið rétt þá var þar ekta Deep state skemmdar verk.
Það eru hinsvegar margar samsæriskenningar eins og með pentagon þar sem ein vél kemur neðarlega inn í bygginguna svo er sagt að ekkert hafi skeð þar.
Munum alltaf að þessir flugmenn sem voru innflytjendur voru Terroristar og ekkert tengdir ISIS heldur nokkuð sjálfstæðir og að mestu vitað hverjir fjármögnuðu þá.
Valdimar Samúelsson, 3.5.2018 kl. 15:23
Valdimar Samúelsson, það fórst fjöldi manns í Pentagon byggingunni - en hún er ekki einn turn, heldur liggur í 6-hliða hring eins og nafnið bendir til -- einungis hluti byggingarinnar eyðilagðist, meðan megnið stóð heilt eftir.
Kv.
Einar Björn Bjarnason, 4.5.2018 kl. 02:08
Bjarne Örn Hansen, hættu þessu rugli - stálstrúktúrar sem hrynja í eldi, hrynja ekki vegna þess að stálið nær bræðslumarki - enda ná engvir húseldar slíkum hita; heldur vegna hitaþenslu -- en þú ættir að vita að hitaþensla skekkir stálstrúktúr, því meir sem strúktúrinn hitnar meira.
--Ef þú bætir við skemmdum vegna áreksturs.
--Er óþarfi að leita frekari skýringa, þ.e. tjón vegna áreksturs flugvélar og hitaálag af eldi, sé til samans - fullkomlega trúverðug skýring.
Að turnarnir falli með fallhraða sé ekki furðulegt. Heldur algerlega rökrétt.
Kv.
Einar Björn Bjarnason, 4.5.2018 kl. 02:11
Já Einar er alveg sammála þér og þessari skýringu sem númer eitt orsök og undarlegt hvað þessir menn gátu framið án þess að nokkur tæki í taumana. Þeir lærðu flug í Florida rétt fyrir sunnan Capecanaveral
Valdimar Samúelsson, 4.5.2018 kl. 11:41
Mér finnst það vera mjög aðdáunarvert að taka sér fyrir hendur að slást við samsæriskenningasmiði. Það hefði Don Kíkóti líka gert hefði hann verið uppi nú á tímum, enda nútímavindmyllur of háreistar til að hægt sé að slást við þær af neinu viti.
Þorsteinn Siglaugsson, 4.5.2018 kl. 19:37
Einar Björn - Þú hefur greinilega séð of mikið að myndum og upplýsingum frá þessi innra hryðjuverki Bandaríkjanna og gleymt að skoða staðreyndir. - Það er ekki nóg að sleikja kökuna, þú verður að bíta í hana. Þá geturðu sagt hvernig hún er á bragðið. - Það vita allir með eitthvað vit á milli eyrnanna að þetta gengur ekki upp eins og ÞÚ VILT að þetta gangi upp. - "Samsæriskenninga-bullið" hjá Þorsteini Sigurlaugs dæmir sig sjálft. Staðreyndir tala. - Valdimar fer mjúkum orðum um lygina og hefur rétt fyrir sér. - Hvílík grunnhyggni, Einar. Nú er tækifæri til að hugsa upp á nýtt, fara yfir aftur og lesa með ópólitískum gleraugum...ef þú getur.
Már Elíson, 5.5.2018 kl. 07:57
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Þú ert innskráð(ur) sem .
Innskráning