12.8.2017 | 12:27
Donald Trump virtist hóta Venezúela hugsanlegri innrás, eða a.m.k. hernaðarárás af einhverju tagi
Eins og allir vita, hefur virst í gangi ákveðin keppni í hótunum í formi hvassra orða milli Donalds Trumps og Kim Jong Un einvalds Norður Kóreu.
En glænýjar hótanir Donalds Trumps - koma eins og skrattinn úr sauðahúsi.
--Þó það verði að viðurkennast, að ástand mála í Venezúela virðist á hraðri niðurleið.
Og það er vissulega satt, að íbúar landsins séu hungraðir, sbr. tölulegar upplýsingar frá sl. ári, að 75% aðspurðra í útbreiddri könnun, töldu sig hafa léttst milli 8,5-9kg.
--Sama hlutfall, sagðist þurfa að sleppa úr einni máltíð per dag, vegna fjárskorts.
En margir telja að orð Trumps séu vatn á mylli einræðisherra Venezúela, Nicolas Maduro.
--Um það má þó sannalega rífast á hinn bóginn!
- Rétt að hafa í huga, að síðast fóru Bandaríkin inn í S-Ameríkuland, í aðgerð gegn stjórnvöldum á Haiti árið 1994-1995, sem steypti herstjórn er þar hafði ráðið eftir byltingu hersins þar 1991.
--Síðan þá hefur Haiti verið undir umsjón Sameinuðu Þjóðanna, sem hefur haft þar þúsundir friðargæsluliða og hjálparstarfsmanna. - Þar á undan, aðgerð gegn forseta og þáverandi einræðisherra Panama - General Manuel Noriega sem er nýlega látinn í bandarísku fangelsi, sú innrás fór fram 1989.
--Hef ekki fylgst með stjórnarfari í Panama síðan, nema að þar hafa farið fram kosningar með eðlilegum millibilum, síðan. En þekki ekki hversu lýðræðislegar þær eru - raunverulega.
Trump threatens Venezuela with unspecified 'military option'
Trump will not rule out military option in Venezuela
- Donald Trump: Forseti Bandaríkjanna var að svara spurningum blaðamanna - We have many options for Venezuela. And by the way Im not going to rule out a military option, - This is our neighbour. You know we are all over the world, and we have troops all over the world in places that are very far away. Venezuela is not very far away and the people are suffering and they are dying, - A military option is certainly something that we could pursue.
--M.ö.o. formlegt svar verði gefið út á sunnudag. , varnarmálaráðherra Venezúela: "It is an act of craziness. It is an act of supreme extremism. There is an extremist elite that rules the United States." - "As a soldier, I stand with the Venezuelan armed forces, and with the people. I am sure that we will all be on the front lines of defending the interests and sovereignty of this beloved Venezuela," - "The diplomatic corps is summoned to the foreign ministry for tomorrow, when it will release a communiqué addressing the imperial threat to Venezuela." - Pentagon: "...insinuations by Caracas of a planned U.S. invasion were "baseless."
--Pentagon hafnar því að undirbúningur fyrir innrás sé í gangi, eða sé hafinn. - Senator Ben Sasse of Nebraska, a member of the Senate Armed Services Committee: "Congress obviously isn't authorizing war in Venezuela," - "Nicolas Maduro is a horrible human being, but Congress doesnt vote to spill Nebraskans' blood based on who the Executive lashes out at today."
- Mark Feierstein, was senior aide on Venezuela matters to former U.S. president Barack Obama: "Maduro must be thrilled right now," - "It's hard to imagine a more damaging thing for Trump to say."
Græðir Nicolas Maduro á orðum Donalds Trumps?
Örugglega - hann hefur margsinnis haldið því fram, að Venezúela sé undir samfelldri árás -- m.ö.o. hans meinta "economic war" sem hann kennir um efnahagslegum óförum stjórnar hans.
--En þær hamfarir, eru nærri algerlega útskýranlegar með fullkomlega fáránlega slæmum ákvörðunum landstjórnanda Venezúela - fyrir utan lækkun olíuverðs. En málið er, að Venezúela er að koma þetta herfilega illa út úr olíukreppunni, vegna langrar raðar rangra stjórnvalds ákvarðana.
--Ástandið þarf ekki að vera nærri þetta slæmt -- ég meina, 75% landsmanna vannærður, í alvöru.
Orð Trumps - passa þá í þá söguskýringu Maduros, sem hann væntanlega túlkar í því samhengi - að árásir Bandaríkjanna á Venezúela - sem að sögn Maduro hafa nú staðið árum saman og smám saman undið upp á sig; séu nú að færast á það sem mætti kalla, næsta stig.
--En greinilega hafa Bandaríkin stjórnað öllu slæmu sem hefur komið fyrir Venezúela.
--En Maduro hefur notað Bandaríkin, sem klassískan blóraböggul.
- Það sem ég er að segja er - að orð Donalds Trumps, líklega fjölga þeim í Venezúela er trúa skýringum Maduro, um "economic warfare."
- Þannig gætu orð Trumps, haft þau megin áhrif -- að þjappa auknum fjölda íbúa í kringum Maduro.
--Þrátt fyrir hörmungarnar í landinu. - Og gera það með stjórnarandstöðu erfiðar fyrir.
--En ef stjórnarandstaðan fordæmir ekki strax harkalega orð Trumps, gæti Maduro beitt sér gegn henni, sem nokkurs konar "5. herdeild" svikara. Ég efa ekki eina sekúndu, að hann mundi nota einhvern trega til að fordæma orð Trumps.
--Þrátt fyrir óskaplegar óvinsældir stjórnarinnar í Caracas -- en kannanir benda til nærri 80% landsmanna í andstöðu við Maduro.
--Væri mjög sennilegt að þjóðernishyggja blossaði upp, og almenningur mundi kjósa að verjast hernaðarinnrás.
- Hernaðaraðgerð gegn Venezúela, eða greinilegur undirbúningur undir slíkt, jafnvel einungis tal um slíkt frá Washington -- sé líklega vatn á myllu stjórnvalda í Caracas.
- Þannig að það besta sem Trump gæti nú gert!
--Væri að gefa nýja yfirlýsingu helst strax á sunnudag - þ.s. hann tekur til baka orð sín um hugsanlega hernaðaraðgerð gegn Venezúela - segir þess í stað, að ekkert slíkt sé fyrirhugað og að ekki nokkurt slíkt komi til greina.
Niðurstaða
Mín skoðun er sú, að orð sem Donald Trump lét falla á golf setri sínu í New Jersey, séu afar óskynsöm. Og muni fyrst og fremst vera skaðleg fyrir baráttu íbúa Venezúela gegn stjórnvöldum í Caracas. En þau séu líkleg til að notfæra sér orð Trumps - til þess að ófrægja andstöðuna sem einhvers konar bandaríska 5. herdeild gegn stjórnvöldum.
--M.ö.o. gætu orð Trumps verið notuð af Maduro sem afsökun, til að réttlæta enn harðari aðgerðir gegn stjórnarandstöðunni.
--En Maduro hefur nú skipað stofnun með ótakmörkuð völd, svokallað "stjórnlagaþing" - sú stofnun virðist ætla að nota svokallað "sannleiksráð" er virðist hafa starfað í nokkur ár án mikillar athygli -- sem dómstól til að dæma þá sem Maduro er í nöp við. Það sé þó ekki vitað, hve umfangsmiklar slíkar aðgerðir yrðu.
En Trump gæti hafa veitt Maduro þægilega afsökun - til að hefja sýndarréttarhöldin - sjá eldra blogg: Innbrot í herstöð, stuldur vopna, getur bent til óróa innan hers Venezúela.
- Ég á því von á því, að stjórnarandstaðan í Venezúela -- muni á nk. dögum, fordæma orð Trumps. Ef þó ekki til annars, en til að afsanna líklegar ásakanir Maduro!
--Stjórnarandstaðan gæti líka lofað því, að taka þátt í vörn landsins gegn hugsanlegri innrás.
--Það væri ódýrt loforð og auðvelt að veita, því ég er eiginlega algerlega viss að engin slík innrás muni fara fram! Á því fremur von á að það verði líklega veitt af stjórnarandstöðunni.
En ég á ekki raunverulega von á því að nokkrar umtalsverðar líkur séu á bandarískri hernaðaraðgerð gagnvart Venezúela í formi innrásar, þrátt fyrir orð Trumps - en slík aðgerð mundi þurfa margra mánaða undirbúning, og því herliði þyrfti að safna einhvers staðar á landi innan nágrannalands Venezúela.
Þannig að það mundi ekki geta farið leynt, ef slíkur undirbúningur færi fram!
Fjölmiðlar hafa ekki orðið varir við nokkurt slíkt.
Þannig að það sé alveg klárt, a.m.k. sé enginn slíkur undirbúningur hafinn.
--Og það væri líklega ákaflega slæm hugmynd fyrir Bandaríkin, að fara með fjölmennan her þangað inn.
- Ef Bandaríkin vilja styðja stjórnarandstöðuna -- eiga þau að gera það með algerri leynd.
Kv.
Flokkur: Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt 13.8.2017 kl. 01:01 | Facebook
Um bloggið
Einar Björn Bjarnason
Nýjustu færslur
- Trump þarf ekki að kaupa eða taka yfir Grænland til að nýta m...
- Ætla að spá, Úkraínustríð standi enn yfir við lok 2025! Mér v...
- Jólakveðjur til allra, ósk um velfarnað fyrir nýja ríkisstjór...
- Mögnuð atburðarás hefur leitt til falls, Bashar al-Assads, fo...
- Þorgerður Katrín í oddaaðstöðu! Hún líklega algerlega ræður h...
- Sigur Donalds Trumps, stærsti sigur Repúblikana síðan George ...
- Ef marka má nýjustu skoðanakönnun FoxNews - hefur Harris þokk...
- Kamala Harris virðist komin með forskot á Trump í Elector-Col...
- Það að Úkraínuher er farinn að sprengja brýr í Kursk héraði í...
- Úkraínuher hóf innrás í Kursk hérað sl. mánudag! 5 dögum sein...
- Möguleikar Kamölu Harris til hugsanlegs sigurs á Donald Trump...
- Leiðir ris J.D. Vance - til fullkominna yfirráða milljarðamær...
- Er fall bandaríska lýðveldisins yfirvofandi - vegna ákvörðuna...
- Sérfræðingar vaxandi mæli þeirrar skoðunar, 2025 verði lykilá...
- Rússar hafa tekið 8 km. landræmu síðan sl. föstudag í NA-Úkra...
Eldri færslur
2025
2024
2023
2022
2021
2020
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
Bloggvinir
- eyglohardar
- bjornbjarnason
- ekg
- bjarnihardar
- helgasigrun
- hlini
- neytendatalsmadur
- bogason
- hallasigny
- ludvikjuliusson
- gvald
- thorsteinnhelgi
- thorgud
- smalinn
- addabogga
- agnarbragi
- annabjorghjartardottir
- annamargretb
- arnarholm
- arnorbld
- axelthor
- arnith2
- thjodarsalin
- formosus
- birgitta
- bjarnijonsson
- bjarnimax
- westurfari
- virtualdori
- bookiceland
- gattin
- davpal
- dingli
- doggpals
- egill
- jari
- einarborgari
- einarsmaeli
- erlaei
- ea
- fannarh
- fhg
- lillo
- gesturgudjonsson
- gillimann
- bofs
- mummij
- kallisnae
- gp
- gudmbjo
- hreinn23
- gudrunmagnea
- gmaria
- topplistinn
- skulablogg
- gustafskulason
- hallurmagg
- haddi9001
- harhar33
- hl
- diva73
- himmalingur
- hjaltisig
- keli
- fun
- johanneliasson
- jonsullenberger
- rabelai
- jonl
- jonmagnusson
- jonvalurjensson
- thjodarskutan
- gudspekifelagid
- juliusbearsson
- ksh
- kristbjorg
- kristinnp
- larahanna
- leifurbjorn
- lifsrettur
- wonderwoman
- maggij
- elvira
- olafureliasson
- olinathorv
- omarragnarsson
- ottarfelix
- rafng
- raksig
- redlion
- salvor
- samstada-thjodar
- fullvalda
- fullveldi
- logos
- duddi9
- sigingi
- sjonsson
- sigurjons
- stjornlagathing
- athena
- stefanbogi
- lehamzdr
- summi
- tibsen
- vala
- valdimarjohannesson
- valgeirskagfjord
- vest1
- vignir-ari
- vilhjalmurarnason
- villidenni
- thjodarheidur
- valli57
- tbs
- thorgunnl
- thorsaari
- iceberg
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.1.): 0
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 35
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 34
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Þú ert innskráð(ur) sem .
Innskráning