Mótmælendur á G20 fundinum í Hamborg, brjálaðir -- að sögn Araba aðkomumanna í Hamborg, er að sögn skildu ekki þessa hegðan

Skv. fréttum sl. 3 daga í Hamborg - meiddust fleiri en 200 lögreglumenn, 143 voru handteknir af þeim 122 haldið í varðhaldi; vegna óspekta og skemmarverka á almannafæri.
--Verulegur fjöldi bifreiða var brenndur, rúður brotnar í fjölda verslana og nokkur fjöldi þeirra rændur: Scuffles, water cannon at final anti-G20 march in Hamburg -- Hamburg's G-20 Security Failure

Mótmælendur fyrir aftan logandi götuvígi!

Image result for riots hamburg

Verslun er hefur fengið fyrir ferðina

Image result for riots hamburg

Logandi bifreiðar

Related image

Áhugaverð viðbrögð Araba í Hamborg, en þar hafa Arabar margir hverjir einungis búið, örfá ár eða skemur!

Óhætt að segja þau viðbrögð setji í jákvæðara samhengi þann menningarmun sem er til staðar!

Hamburg's G20 rioters are 'crazy' in the eyes of Arab refugees

G20 Summit: Refugees call Hamburg rioters 'crazy' after third night of violence

  1. ""If people did this in Egypt they would be shot," said Ibrahim Ali, a 29-year-old Egyptian who came here in 2011."
  2. "The state provides everything: housing, unemployment benefits and education. Yet those people are not happy. I don't get it."

Áhugaverð viðbrögð - en ég held það sé klárlega rétt að egypska lögreglan mundi beita skotvopnum, í sambærilegu tilviki, og ekkert hika við það.
Klárlega er stuðningskerfi ríkisins í Þýskalandi allt annað en í Egyptalandi.

Sjálfsagt ekki undarlegt að egypti frá draumalandi Sisi hershöfðingja komi atferli mótmælenda um helgina - undarlega fyrir sjónir.

  1. ""They are crazy. I can't believe my eyes," said Mohammad Halabi, 32, a Syrian who arrived in Germany as a refugee some 18 months ago."
  2. "They have such a beautiful country and they're destroying it."
  3. "When he was not serving falafel, Halabi ran toward the square where rioters had set barricades on fire, and took pictures of police firing water cannon."
  4. ""This is nothing. I'm not scared," he said, sharing pictures with family members living in Turkey. "Bombs falling on your neighborhood, that's scary.""

Síðan er það Sýrlendingurinn, að vinna við götusölu í Hamborg, sem óx ekki í augum að fylgjast með látunum í Hamborg um helgina - eftir að hafa upplifað sprengjuregnið í Sýrlandi.
Einnig hann skilur ekki hvernig fólk, sem honum finnst hafa allt, kemur til huga að láta með þeim hætti sem mótmælendur létu um helgina í Hamborg.

Óeirðalögregla að störfum!

Image result for riots hamburg

Mér finnst þetta í reynd góður punktur um umburðarlyndi lögreglu frá Egyptanum!

En þetta er einn megin munurinn á lögreglu í lýðræðislöndum og í einræðislöndum - að í lýðræðislöndum kemst fólk upp með miklu mun meira andóf - en fólk á möguleika til í einræðislandi.

Raunveruleg lýðræðislönd verja réttindi borgara til þess að mótmæla.
En ekki til að fremja skemmdarverk - þess vegna eru sérstakar lögreglusveitir til að fást við óeirðir, búnar með þeim hætti er menn sjá í myndum.
--Og fólk er handtekið fyrir eignaspjöll!

En í því liggur einn megin munur á lögreglu aðgerðum gegn mótmælum í lýðræðisríkjum, að í lýðræðrislöndum er -- réttur lögreglu til beitingar skotvopna takmarkaðri.
Lögregla mun síður líkleg til valdbeitingar af slíku tagi!

  • Enginn virðist t.d. hafa verið drepinn af lögreglunni yfir helgina í Hamborg!
    --Þrátt fyrir allt sem gekk á, og meiðsl yfir 200 lögreglumanna, fyrir utan verulegar skemmdir að virðist á eignum við þær götur þ.s. óeirðir helgarinnar fóru fram.

 

Niðurstaða

Varðandi niðurstöðu G20 fundarins - er skýrt af niðurstöðu þess fundar að gjá er milli stjórnvalda í Washington og annarra meðlimalanda G20 um nokkur mikilvæg mál. Það er alveg nýtt að Washington sé á fundinum að virðist - alfarið sér á parti með afstöðu í stórum málum: U.S. isolated on climate at summit of world leaders - - Was the G-20 Summit Really Worth It?

Það virðist að gerast það sem mér virtist líklegt.
Að önnur stór lönd mundu halda sig við sína grunn afstöðu til stórra mála.
M.ö.o. að ríkisstjórn Trumps verði einangruð um þau mál.

  • Sennilegast að hin löndin ætli sér einfaldlega að bíða í 3 ár í von um að annar og mun þægilegri í samskiptum einstaklingur - verði forseti Bandaríkjanna næst.

--Á ekki von á því að stórfellt rask verði í samskiptum Bandaríkjanna við önnur lönd.
--Frekar að 4-ár Donalds Trump verði 4-tínd ár!
--Svo fremi að Trump fremji ekki eitthvert risastórt axarskaft er hleypi öllu upp.
En vísbendingar í Washington virðast um að hann sé að mestu "contained."
Stjórnmál í Washington virðast það klofin, ásamt því að sjálf ríkisstjórnin einnig virðist það, að líklegast verði afar afar litlu komið í verk. Þannig að ríki heims, líklegast geti einfaldlega beðið Trump af sér, uns væntanlega einhver annar verði forseti er 4 ár Trumps verða liðin.

 

Kv.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Ég hef ekki séð neitt um þennan G20 fund nema handaband Trumps og Putins. Ég sáð aðeins minnst á mótmælendurna og að þeir væru að mótmæla alþjóðavæðingu annað ekki. Þessu er haldið leyndu enda óþægilegt að það sé verið að mótmæla alþjóðavæðingu á G20 fundi.

Valdimar Samúelsson, 9.7.2017 kl. 21:54

2 Smámynd: Einar Björn Bjarnason

Valdimar, veit ekki hvað þú átt við með leynd. Spurning hvort þú fylgist með réttu fjölmiðlunum.
Kv.

Einar Björn Bjarnason, 10.7.2017 kl. 03:51

3 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Einar ég hef ekki verið að grafa upp rétta fjölmiðla en RÚV, BBC og Guardian segja ekkert.

Vera Illugadóttir átti að fræða okkur í morgun en en sagði lítið meira en að gera grín af Trump.

Í einlægni.: Hvar finn ég einhvað um fundin sjálfan.???  

Valdimar Samúelsson, 10.7.2017 kl. 09:18

4 Smámynd: Einar Björn Bjarnason

Einfaldast er að nota Google.com -- mögulegur strengur getur verið "g20 merkel trump" eða ef þú vilt umfjöllun minna fókusaða á þau tvö getur þú notað leitarstreng sbr. "g20 2017."
--Fullt af fjölmiðlum fjölluðu um fundinn.

Kv.

Einar Björn Bjarnason, 10.7.2017 kl. 11:04

5 Smámynd: Einar Björn Bjarnason

Það hefur verið búin til Wikipedia síða um fundinn: https://en.wikipedia.org/wiki/2017_G20_Hamburg_summit

Kv.

Einar Björn Bjarnason, 10.7.2017 kl. 11:06

6 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Þakka Einar

Valdimar Samúelsson, 11.7.2017 kl. 18:19

Bæta við athugasemd

Nauðsynlegt er að skrá sig inn til að setja inn athugasemd.

Um bloggið

Einar Björn Bjarnason

Höfundur

Einar Björn Bjarnason
Einar Björn Bjarnason
Stjórnmála- og Evrópufræðingur. Áhugi á stjórnmálum, Evrópumálum, alþjóðamálum, málefnum Miðausturlanda, trúmálum, vísindum og tækni, og margt fleira.
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Eldri færslur

2024

2023

2022

2021

2020

2019

2018

2017

2016

2015

2014

2013

2012

2011

2010

2009

2008

Nýjustu myndir

  • Mynd Trump Fylgi
  • Kína mynd 2
  • Kína mynd 1

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.11.): 8
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 35
  • Frá upphafi: 856018

Annað

  • Innlit í dag: 8
  • Innlit sl. viku: 33
  • Gestir í dag: 8
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband