6.2.2017 | 23:17
Trump og ríkisstjórn hans, einangruð í afstöðu sinni til Írans
Það þurfti ekki mikla spáspeki til að spá því - að fáir mundu elta nýja afstöðu ríkisstjórnar Trumps, þar sem virðist að stefnt sé að því að sveigja stefnuna til baka að þeirri fjandsamlegu stefnu gagnvart Íran sem til staðar var - í forsetatíð George Bush.
Pútín hefur fullkomlega öfuga afstöðu til Írans!
Það átti engum að koma á óvart, að stefnan gagnvart Íran sé með allt öðrum hætti í Rússlandi.
Kremlin says it disagrees with Trump's assessment of Iran
- "The Kremlin said on Monday it did not agree with U.S. President Donald Trump's assessment of Iran as "the number one terrorist state""
- Dmitry Peskov - "Russia has friendly partner-like relations with Iran, we cooperate on a wide range of issues, value our trade ties, and hope to develop them further,"
- "It's no secret for anyone that Moscow and Washington hold diametrically opposed views on many international issues,"
- Sergei Ryabkov - "...urged Washington not to try to reopen the Iran nuclear deal..." - "Don't try to fix what isn't broken," - "It would be an undesirable and negative turn of events that would only serve to pour oil on the flames in the Middle East."
Það verður áhugavert að sjá, hvernig það gengur upp fyrir Trump -- að ætla að bæta samskipti við Rússland; samtímis og Trump ætlar að vega að "strategic partner" Rússlands í Mið-austurlöndum.
Síðan er greinilega Teresa May ekki sammála Trump um Íran!
Israel's Netanyahu urges Britain to join Iran sanctions
- "May's spokeswoman..." - "The prime minister made clear that we support the deal on nuclear that was agreed,"
- "What happens now is that (the nuclear deal) needs to be properly enforced, and we also need to be alert to Iran's pattern of destabilizing activity in the region."
Skv. þessu, styður ríkisstjórn Bretlands - 6-velda kjarnorkusamkomulagið við Íran, m.ö.o. styður ekki umkvartanir Donalds Trump þess efnis, að það samkomulag sé hræðilegt og að það einhliða gagnist Íran.
--Litlar líkur séu á að Bretland hefji nýjar refsiaðgerðir gegn Íran.
Kína mótmælir nýjum refsiaðgerðum Trumps gegn Íran
China protests U.S. sanction list on Iran that hits Chinese firms
- Lu Kang - "Beijing had lodged a protest with Washington, and that such sanctions, particularly when they harmed the interests of a third party, were "not helpful" in promoting mutual trust."
- "Executives of two Chinese companies included on the list said on Sunday they had only exported "normal" goods to the Middle Eastern country and didn't consider they had done anything wrong."
M.ö.o. að refsiaðgerðirnar skaði kínverska einka-aðila í viðskiptum við Íran.
Með svipuðum hætti og Rússland - hafi Kína vinsamleg samskipti við Íran.
Og samtímis margvísleg efnahags tengsl - þó án vafa séu efnahags tengsl Kína við Íran, mun umfangsmeiri.
--Kína sé að auki eitt af löndunum sem stóð að kjarnorku-samkomulaginu við Íran, og ólíklegt einnig að styðja - endurupptöku þess.
Niðurstaða
Fyrir utan Saudi Arabíu - sem stendur í kalda-stríðs átökum við Íran, og aðra óvini Írans sbr. furstadæmin við Persaflóa, auk Ísraels.
--Virðist ólíklegt að Trump finni mörg önnur ríki sem taka undir hina nýju stefnu stjórnvalda í Washington.
En Trump, án nokkurra sannana, fullyrði blákalt að Íran sé það ríki sem mest ógn stafar af í Mið-austurlöndum, tekur þar með að fullu undir málflutning Ísraels - Saudi Araba og flóa furstadæmanna.
Að auki heldur hann því einnig fram, jafn blákalt, að Íran haldi uppi hryðjuverkasveitum út um heim - einnig án þess að vísa til nokkurra sannana, að því er ég best fæ séð heldur.
Það virðist augljóst að ekkert annað af 6-veldunum svokölluðu, muni hafa áhuga á endur-opnun kjarnorkusamkomulagsins. Að auki virðist afar ósennilegt, að þau lönd muni styðja nýjar refsiaðgerðir gegn Íran.
--Sennilegar að þau muni mæla einni röddu í hvatningu til Trumps, að rugga ekki bátnum.
Kína er það land sem sennilegast einna helst -- græðir á því, ef Trump leitast við að einangra Íran efnahagslega!
- Trump getur gert erlendum fyrirtækjum það - að velja milli Bandaríkjanna og Írans með viðskipti.
- Trump getur gert Íran nær ómögulegt að eiga í viðskiptum með dollar.
--Tæknilega getur Evrópa samt sem áður, átt í viðskiptum við Íran - með evrum.
--Sama getur Kína, með eigin gjaldmiðli.
Hinn bóginn, grunar mig sterklega, að Kína muni álíta refsiaðgerðir Trumps -tækifæri fyrir Kína- þ.s. að í augum Kína - er Íran að sjálfsögðu ríkt af auðlyndum sérstaklega olíu, auk þess staðsett við Persaflóa -- sem veiti Kína augljóst tækifæri til áhrifa, ef samskipti Kína og Írans mundu fara í verulega dýpkun í kjölfarið, þ.e. ekki einungis viðskiptasviði - heldur grunar mig að Kína mundi vera til í að selja Íran hátæknivopn til að endurnýja úreltan vopnabúnað herafla landsins.
--Íran gæti þá smám saman orðið að -strategic partner- fyrir Kína við Persaflóa.
Útkoma sem yrði verulega Bandaríkjunum til tjóns!
--Þ.e. með stuðningi Kína, gæti Íran elfst mun hraðar.
Og það á kostnað - bandalagsríkja Bandaríkjanna meðal arabalanda.
- Það blasi ekki endilega við - að Íran velji slíkan farveg --> Ef Trump hættir við slíka stefnu.
--Eins og ég hef áður sagt, sé hin nýja stefna Trump -lose lose- fyrir Bandaríkin.
Kv.
Flokkur: Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 23:18 | Facebook
Um bloggið
Einar Björn Bjarnason
Nýjustu færslur
- Sigur Donalds Trumps, stærsti sigur Repúblikana síðan George ...
- Ef marka má nýjustu skoðanakönnun FoxNews - hefur Harris þokk...
- Kamala Harris virðist komin með forskot á Trump í Elector-Col...
- Það að Úkraínuher er farinn að sprengja brýr í Kursk héraði í...
- Úkraínuher hóf innrás í Kursk hérað sl. mánudag! 5 dögum sein...
- Möguleikar Kamölu Harris til hugsanlegs sigurs á Donald Trump...
- Leiðir ris J.D. Vance - til fullkominna yfirráða milljarðamær...
- Er fall bandaríska lýðveldisins yfirvofandi - vegna ákvörðuna...
- Sérfræðingar vaxandi mæli þeirrar skoðunar, 2025 verði lykilá...
- Rússar hafa tekið 8 km. landræmu síðan sl. föstudag í NA-Úkra...
- Rússland getur hugsanlega haldið fram Úkraínustríði, allt að ...
- Rússland ætlar að hætta stuðningi við uppreisnarmenn í Súdan ...
- Gríðarlega mikilvægt að Úkraína fær bráðnauðsynlega hernaðara...
- Ég er eindregið þeirrar skoðunar - Ísrael geti ekki unnið str...
- Trump, hefur viðurkennt að geta ekki greitt - 464 milljón dol...
Eldri færslur
2024
2023
2022
2021
2020
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
Bloggvinir
- eyglohardar
- bjornbjarnason
- ekg
- bjarnihardar
- helgasigrun
- hlini
- neytendatalsmadur
- bogason
- hallasigny
- ludvikjuliusson
- gvald
- thorsteinnhelgi
- thorgud
- smalinn
- addabogga
- agnarbragi
- annabjorghjartardottir
- annamargretb
- arnarholm
- arnorbld
- axelthor
- arnith2
- thjodarsalin
- formosus
- birgitta
- bjarnijonsson
- bjarnimax
- westurfari
- virtualdori
- bookiceland
- gattin
- davpal
- dingli
- doggpals
- egill
- jari
- einarborgari
- einarsmaeli
- erlaei
- ea
- fannarh
- fhg
- lillo
- gesturgudjonsson
- gillimann
- bofs
- mummij
- kallisnae
- gp
- gudmbjo
- hreinn23
- gudrunmagnea
- gmaria
- topplistinn
- skulablogg
- gustafskulason
- hallurmagg
- haddi9001
- harhar33
- hl
- diva73
- himmalingur
- hjaltisig
- keli
- fun
- johanneliasson
- jonsullenberger
- rabelai
- jonl
- jonmagnusson
- jonvalurjensson
- thjodarskutan
- gudspekifelagid
- juliusbearsson
- ksh
- kristbjorg
- kristinnp
- larahanna
- leifurbjorn
- lifsrettur
- wonderwoman
- maggij
- elvira
- olafureliasson
- olinathorv
- omarragnarsson
- ottarfelix
- rafng
- raksig
- redlion
- salvor
- samstada-thjodar
- fullvalda
- fullveldi
- logos
- duddi9
- sigingi
- sjonsson
- sigurjons
- stjornlagathing
- athena
- stefanbogi
- lehamzdr
- summi
- tibsen
- vala
- valdimarjohannesson
- valgeirskagfjord
- vest1
- vignir-ari
- vilhjalmurarnason
- villidenni
- thjodarheidur
- valli57
- tbs
- thorgunnl
- thorsaari
- iceberg
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 6
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 35
- Frá upphafi: 856024
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 33
- Gestir í dag: 4
- IP-tölur í dag: 4
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Allir heimsins þjóðernissinnar sjá í gegnum öfga'fjölmenningar faránlegu stefnuna. Soros deilir peningum hann hefur greinilega gaman að vera með fíflin í strengjum hoppandi og skrækjandi,við þekkjum það hérna heima.
Ég las hraðlestur að þessu sinni,dettur þér eða nokkrum í hug að Trump fari að tala svo opinskátt um alla sínar áætlanir að menn geti reitt sig á það.Það eru alltaf 2 og fleiri leiðir skoðaðar eftir því hvernig ríkin bregast við. Líklega eru heit yaltaráðstefnunnar á Krímskaga 1945 útþynnt eftir öll þessi ár og allt annað upp á teningnum í dag. Trump er sá sem við treystum á,en hann verður að standa af sér allan óhróðurinn.
Helga Kristjánsdóttir, 7.2.2017 kl. 04:16
Ég held að sagan kenni það, að Banaríkjamönnum gengur vanalega illa í átökum ef þeir standa einir. En það virðist ljóst að þeir ætla í stríð, þeir eru bara þannig innstilltir núna, sérstaklega með Steve Bannon þarna innan borðs. Þeir ætla í stríð og eru að leita að einhverjum til að berjast við, búa til tilefni, byggja upp spennu og láta svo til skarar skríða.
Sveinn R. Pálsson, 7.2.2017 kl. 08:42
Ef þeir fara í átök við Kínverja, þá gætu þeir lent gegn ofjarli sínum, því Kínverjar eru afar öflugir í tölvuhernaði.
Sveinn R. Pálsson, 7.2.2017 kl. 08:49
Ég vona að það sé rangt að Trump og Bannon ætli í stríð:
--Höfum til viðbótar í huga, að Íran er ákaflega fjalllent land -- samtímis fjölmennara en Írak.
--Ef það er ekki nóg, er íbúasamsetning Írans -- óhagstæðari -- þ.e. nærri allir íbúar Írans séu Persar eða Íranar, þ.e. ólíkt Írak sem má sannarlega segja skipt í 3-þjóðir.
--Alveg viss, að Íranar mundu standa saman -- gegn sérhverri innrás.
**Þess vegna hef ég aldrei haft raunverulegar áhyggur um -- að innrás væri sennileg í Íran.
--Vegna þess hversu brjálæðislega vitlaus aðgerð það væri.
Takið eftir hve miklu mun fjalllendara Íran er -- heldur en Írak.
--Nema það væri, að hefja bein stríðsátök við Rússland.
Kína er þó einnig -- kjarnorkuveldi.
Þannig að stríðsátök -- þó kjarnorkuátök þeirra í milli líklega endi ekki allt líf á Jörðinni.
Gæti þó kjarnorkustríð milli þeirra þ.e. Kína og Bandaríkjanna -- leitt fram mikla fækkun mannkyns, hringinn í kringum jarðkringluna.
--Óhætt að segja að Trump yrði ekki -- mikils metinn af mannkynssögunni í framtíðinni, ef hann hæfi átök af þannig tagi við Kína.
Kv.
Einar Björn Bjarnason, 7.2.2017 kl. 22:33
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Þú ert innskráð(ur) sem .
Innskráning