Skv. úrslitum í Mecklenburg-Vorpommern:
- Social Democratic Party of Germany "SPD" 30,2% í stað 35,6% 2011.
- Alternative for Germany (AfD) 21,9%.
- Christian Democrats (CDU) 19% í stað 23% 2011. Versta útkoma flokks Angelu Merkel í héraðinu - nokkru sinni.
- Linke eða "Left Party" 12,7% í stað 18,4% 2011.
- Græningjar 4,9% í stað 8,7% 2011.
German anti-immigrant party beats Merkel in her home district:"Despite losing support, the SPD (26 seats) and the CDU (16) won enough seats to be able to continue their coalition in Mecklenburg-Vorpommern, with the AfD as the second-largest bloc in the 71-seat state assembly with 18 seats. The SPD, which could also form a coalition with the Left Party, said it was leaving its options open."
Þetta er augljóslega slæm niðurstaða fyrir Merkel!
Þrátt fyrir allt, þarf alls ekki vera að þetta bendi til - yfirvofandi falls Merkel, sem hefur nú stuðning 45% kjósenda ca. í stað 67% fyrir ári.
--En Mecklenburg-Vorpommern er einnig hvar þingsæti hennar er!
Á hinn bóginn var ekki fylgissveifla flokks hennar stór þ.e. 4%.
--Þýskir kratar - þýskir græningjar og Vinstri-flokkurinn -- misstu svipað fylgi.
Sem raunverulega gerir sveifluna áhugaverða!
--En það getur þítt, að AfD hafi tekið fylgi - af öllum flokkum ca. jafnt.
- Þetta samt augljóslega setur aukinn þrýsting á Merkel.
- En samtímis, sé sá þrýstingur ekki endilega á Merkel - eingöngu.
- Heldur deilt á flokkana sem fyrir voru!
Varðandi flóttamannavandann -- þá sé ég enga raunverulega lausn á þeim vanda!
Það virðist ljóst af fylgissveiflunni er nær yfir alla flokka -- þ.e. frá öllum flokkum yfir á AfD. Að óttinn við flóttamannabylgjuna sem skollin er á Evrópu; nái þvert yfir venjulegar pólitískar línur!
--Þ.e. þetta sé ekki endilega - hægri vs. vinstri mál, í dæmigerðum skilningi.
Það sé þó ljóst að átakalínan liggur milli þeirra:
- Sem vilja mun harðari stefnu gegn flóttamönnum, er m.a. mundi fela í sér verulega skerðingu réttinda þeirra - t.d. þegar kemur að málsmeðferð, og til stuðnings meðan á málsmeðferð stendur -- einnig áhersla á þrengingu réttinda flóttamanna til búsetu í Evrópulöndum.
- Síðan má setja alla aðra undir ca. einn hatt, sem nær þá yfir þá sem - jafnvel vilja stíga skref í hina áttina, yfir til þeirra - sem vilja sem minnsta stefnubreytingu þ.e. ca. status quo.
Þetta gangi þvert á hefðbundið hægri eða vinstri, þ.s. til eru vinstri menn sem eru harðir andstæðingar frekari aðflutnings flóttamanna, samtímis því að það eru til staðar hægri menn - svipaðrar skoðunar.
Og svo má segja það sama í spegli, að til eru vinstri menn og hægri menn, er standa á hinni línunni.
- Það aftur á móti getur bent til þess - að margir þeirra sem kjósa AfD þessa stundina!
--Eigi ef til vill fátt sameiginlegt annað, en vilja stefnubreytingu í málefnum flóttamanna.
- Spurning hvort það geti myndast -- 2. flokkakerfi.
- Þ.e. að málefni flóttamanna geti með tíð og tíma, orðið að nýjum klofnings ás; þannig að það geti verið til staðar -- hægri - vinstri - miðju-sinnaðir andstöðuflokkar gegn frekari aðflutningi flóttamanna.
- Þannig að heildar útkoman gæti orðið sú, að stuðla að fjölgun flokka -- stóru flokkunum hnignaði; og hugsanlega verði erfiðar að mynda ríkisstjórnir í framtíðinni.
En ástæðan að ég segi þetta, sé sú -- að ég sé enga lausn á flóttamannavandanum!
M.ö.o. að sá vandi sé kominn til með að vera!
Bendi t.d. á hvernig það streymdu 5.500 flóttamenn alla leið til Noregs frá Mið-austurlöndum, árið 2015 eftir langa leið í gegnum Rússland: Noregur að setja upp mannhelda girðingu á landamærum við Rússland!.
--Þetta sýni að flóttamenn eru til í að leggja mikið á sig!
--Höfum einnig í huga, að fólk sem leita til Evrópu alla leið frá Afríku, hefur margt hvert ofan á að taka á sig hættuför yfir Miðjarðarhaf, lagt á sig hættuför að auki yfir Sahara þ.s. margir farast árt hvert til viðbótar við þá sem drukkna í Miðjarðarhafi.
- Málið er að ég held að vandinn þróist svipað og gert hefur í Bandaríkjunum, en þar er mikið talað um 11 millj. sem Trump vill vísa úr landi, en í raun má víkka þá tölu upp í 30 milljón.
--En þessir 11 millj. búa ólöglega í Bandaríkjunum, og án allra réttinda -- þ.e. fá engan félagslegan stuðning, svo ég viti til - nema einstök sveitafélög ákveði annað.
--Þeir eiga alltaf á hættu að vera sendir úr landi - geta þá ekki leitað til yfirvalda. - Þetta hefur samt ekki stöðvað bylgju aðkomumanna til Bandaríkjanna -- að Bandaríkin hafi girðingu á landamærum, ásamt eftirliti.
--Þá reglu að ólöglegir innflytjendur séu án réttinda.
--Hafi engan rétt til opinbers stuðnings.
--Og það sé ólöglegt að veita þeim vinnu. - En þeir streyma samt að, því þeir fá samt vinnu.
--Það hefur aldrei tekist að hindra að þeir fái vinnu.
Jafnvel þó það séu viðurlög - hvort tveggja í senn fyrir vinnuveitanda og þá sem eru ólöglegir.
Það sem þá gerist sé --> Að ólöglegir aðkomumenn, verða að stétt vinnandi fólks, án allra réttinda!
- Hafið í huga -- að það virkilega fælir ekki veitendur vinnu - frá, að veita vinnu.
- Það sé sérstaklega -- svarti geirinn sem græðir á þessu.
- Ekki síst -- glæpasamtök!
Ég held að það sé engin tilviljun að skipulagðar glæpahreyfingar séu mjög virkar og öflugar í landamærahéröðum Bandaríkjanna <--> Beggja vegna landamæranna!
- En þær hafi einfaldlega -- stöðugan aðgang að vinnuafli, sem geti ekki leitað til yfirvalda!
- Glæpahreyfingar --tel ég-- einnig að ástundi það, að hvetja fólk frá fátækum löndum Sunnan við Bandaríkin, til að leita til Bandaríkjanna --> Með því að reka svokallaðar "ráðningastofur" í þeim löndum, sem séu ekkert annað en - glæpafyrirtæki, er plata fátækt fólk til að leita, Norður.
- En glæpaflokkarnir græði gríðarlega mikið á því, að hafa stöðugan aðgang að -- rosalega ódýru vinnuafli, sem eigi engan möguleika á að leita til yfirvalda.
Margir vilja meina, að harneskjuleg stefna -- stöðvi flóttann til Evrópu
En ég held að dæmi Bandaríkjanna, sýni að það sé ekki rétt!
- En innan Bandaríkjanna, virðist mér sú stefna -- að gera ólöglega vinnuleitendur réttindalausa; fyrst og fremst hafa leitt til eflingu glæpasamtaka.
- En aðkomufólk án allra réttinda, og sem ef leitar til yfirvalda er strax rekið úr landi --> Er að sjálfsögðu, hið fullkomna vinnuafl glæpasamtaka.
- Það sé svo gróðavænlegt fyrir glæpasamtök, að fá áfram ofur ódýrt vinnuafl sem sé fullkomlega réttlaust því algerlega öfurselt slíkum samtökum --> Að glæpasamtök ástundi dreifingu lygaáróðurs með gylliboðum til fátækra íbúa fátækra landa, til að hvetja slíka einstaklinga til að halda áfram að leita til ríku landanna --> Þrátt fyrir að opinberir aðilar, tjái þeim annað! Þá sé gjarnan í fátækum löndum sem gjarnan eru rekin af spilltum stjórnvöldum, gjarnan mikil tortryggni gagnvart stjórnvöldum --> Því líkur á að upplýsingum dreift þaðan, sé ekki trúað.
Í evrópsku samhengi -- mundi þá líklega áframhaldandi aðstreymi fátækra réttindalausra atvinnu-leitenda.
Ef maður gefur sér, að sú stefna verði ofan á, að svipta slíkt fólk öllum réttindum -- ef þeir smygla sér samt - eða er smyglað, inn fyrir landamæri Evrópu.
--Þá leiða til eflingu skipulagðra glæpasamtaka, sérstaklega í S-Evrópu --> Sem mundu eins og mér virðist hafa gerst í Bandaríkjunum, eflast einkum í löndum nærri Suður landamærum Evrópu.
Öflugri glæpasamtök, leiða náttúrulega til -- eflingu glæpa almennt!
Þá alls þess sem skipulögð glæpasamtök stunda!
- Deilan um ólöglegt aðkomufólk -- verður þá líklega lifandi deila í pólitíkinni í Evrópu, ekki ósvipað og að deilur um ólöglega innflytjendur gjósa alltaf reglulega upp í Bandaríkjunum -- undanfarna áratugi.
Niðurstaða
Ég held að mjög sennilega, ekki ósvipað og innan Bandaríkjanna, muni deilur um ólöglega innflytjendur halda áfram á komandi áratugum - það málefni mjög sennilega að auki og ekki ósvipað er samanborið við Bandaríkin; verði þá líklega mis áberandi í pólitísku umræðinni eftir árum - meir áberandi sum árin, minna sum önnur árin.
Ris og hnig innan umræðunnar, virðist ekki endilega í bandarísku samhengi fara eftir því hve fjöldi aðkomumanna er mikill per ár -- heldur frekar efnahags ástandi innan Bandaríkjanna.
Svipað gæti gerst í Evrópu, að ef framboð starfa innan Evrópu skánar, þá dragi úr andstöðu við ólöglegt aðkomufólk -- en ef útbreitt atvinnuleysi heldur áfram að vera viðvarandi ástand; að þá haldi andstaða við ólöglega innflytjendur - jafnvel áfram að eflast.
- Ég á aftur á móti ekki von á því, að fylgismenn harðneskjulegrar stefnu, muni sjá þann árangur af sinni stefnu -- að slík stefna bindi endi á aðstreymi ólöglegra aðkomumanna í atvinnuleit.
- Líklegra sé, að því harðari sem stefnan sé, því líklegra sé að ólöglegir aðkomumenn séu að starfa fyrir -- skipulögð glæpasamtök!
--Það kaldhæðnislega er, að það geti vel farið svo að skipulögð glæpasamtök styðji slíka harða stefnu, til þess að tryggja að ólöglegt aðkomufólk eigi sem minnsta möguleika á að leita til yfirvalda!--Vegna þess að slík stefna verði þeim einmitt hagfelld. Vegna þess hve mikið þau græði á því, að hafa stöðugan aðgang að fólki sem eigi engan möguleika á að leita til yfirvalda -- þá muni þau gera sitt ýtrasta til að aðstoða flóttafólk að komast framhjá landamæraeftirliti. Samtímis og þau að auki -- dreifi áróðri í fátækum löndum í formi falskra gylliboða, til að viðhalda aðstreyminu.
Nettó útkoman verði -- efling skipulagðra glæpahópa!
--Harðneskjuleg stefna gegn innflytjendum geti að einhverju verulegu leiti, haft svipuð áhrif og vínbannið fræga á 3-áratugnum hafði á eflingu glæpasamtaka.
- Það mun að sjálfsögðu efla þá neikvæði ímynd af ólöglegu aðkomufólki.
--Að það stuðli að eflingu glæpa!
--Sem að sjálfsögðu mun hjálpa við að viðhalda stuðningi við harða stefnu gegn ólöglegu aðkomufólki.
Líklega viðhaldist varanleg samfélags deila um þessi mál!
Kv.
Flokkur: Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 23:57 | Facebook
Um bloggið
Einar Björn Bjarnason
Nýjustu færslur
- Stríðið í Úkraínu getur verið að þróast aftur í pattstöðu - s...
- Friedrich Merz, virðist ætla að takast að stórfellt auka hern...
- Kreppuhætta í Bandaríkjunum getur verið stærri en margir hald...
- Trump líklega græddi: 350mn.$ á Trump-Coin, á einungis 18 dögum!
- Ríkisstjórn Donalds Trumps, sbr. JD. Vance, alítur aðstreymi ...
- Úkraína og Donald Trump, virðast nærri samkomulagi um hernaða...
- Vekur undrun varðandi ákvörðun Trumps forseta um viðskiptastr...
- Trump þarf ekki að kaupa eða taka yfir Grænland til að nýta m...
- Ætla að spá, Úkraínustríð standi enn yfir við lok 2025! Mér v...
- Jólakveðjur til allra, ósk um velfarnað fyrir nýja ríkisstjór...
- Mögnuð atburðarás hefur leitt til falls, Bashar al-Assads, fo...
- Þorgerður Katrín í oddaaðstöðu! Hún líklega algerlega ræður h...
- Sigur Donalds Trumps, stærsti sigur Repúblikana síðan George ...
- Ef marka má nýjustu skoðanakönnun FoxNews - hefur Harris þokk...
- Kamala Harris virðist komin með forskot á Trump í Elector-Col...
Eldri færslur
2025
2024
2023
2022
2021
2020
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
Bloggvinir
-
eyglohardar
-
bjornbjarnason
-
ekg
-
bjarnihardar
-
helgasigrun
-
hlini
-
neytendatalsmadur
-
bogason
-
hallasigny
-
ludvikjuliusson
-
gvald
-
thorsteinnhelgi
-
thorgud
-
smalinn
-
addabogga
-
agnarbragi
-
annabjorghjartardottir
-
annamargretb
-
arnarholm
-
arnorbld
-
axelthor
-
arnith2
-
thjodarsalin
-
formosus
-
birgitta
-
bjarnijonsson
-
bjarnimax
-
westurfari
-
virtualdori
-
bookiceland
-
gattin
-
davpal
-
dingli
-
doggpals
-
egill
-
jari
-
einarborgari
-
einarsmaeli
-
erlaei
-
ea
-
fannarh
-
fhg
-
lillo
-
gesturgudjonsson
-
gillimann
-
bofs
-
mummij
-
kallisnae
-
gp
-
gudmbjo
-
hreinn23
-
gudrunmagnea
-
gmaria
-
topplistinn
-
skulablogg
-
gustafskulason
-
hallurmagg
-
haddi9001
-
harhar33
-
hl
-
diva73
-
himmalingur
-
hjaltisig
-
keli
-
fun
-
johanneliasson
-
jonsullenberger
-
rabelai
-
jonl
-
jonmagnusson
-
jonvalurjensson
-
thjodarskutan
-
gudspekifelagid
-
juliusbearsson
-
ksh
-
kristbjorg
-
kristinnp
-
larahanna
-
leifurbjorn
-
lifsrettur
-
wonderwoman
-
maggij
-
elvira
-
olafureliasson
-
olinathorv
-
omarragnarsson
-
ottarfelix
-
rafng
-
raksig
-
redlion
-
salvor
-
samstada-thjodar
-
fullvalda
-
fullveldi
-
logos
-
duddi9
-
sigingi
-
sjonsson
-
sigurjons
-
stjornlagathing
-
athena
-
stefanbogi
-
lehamzdr
-
summi
-
tibsen
-
vala
-
valdimarjohannesson
-
valgeirskagfjord
-
vest1
-
vignir-ari
-
vilhjalmurarnason
-
villidenni
-
thjodarheidur
-
valli57
-
tbs
-
thorgunnl
-
thorsaari
-
iceberg
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (31.3.): 10
- Sl. sólarhring: 10
- Sl. viku: 89
- Frá upphafi: 863660
Annað
- Innlit í dag: 9
- Innlit sl. viku: 85
- Gestir í dag: 8
- IP-tölur í dag: 8
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Þú ert innskráð(ur) sem .
Innskráning