3.7.2016 | 05:02
Það væri einkar óviðeigandi ef íslensk stjórnvöld færu að skipta sér af málefnum þeim sem tilheyra stjórnvöldum Bretlands!
Þorsteinn Pálsson hefur skrifað 2-pistla þar sem hann skorar á íslensk stjórnvöld að skipa sér í raðir stjórnvalda sem hafa tjáð sína eindregnu skoðun á því - hvað þau telja að Bretland skuli gera þegar kemur að BREXIT:
Ísland á að fylgja Norðurlöndum
Þeir unnu kosningarnar en hafa týnt röksemdunum
Þorsteinn setur þetta þannig fram - að það séu 2-lið, þ.e. ábyrgð lönd sem mælast eindregið fyrir því að Bretland hætti við Brexit, og einhver ónefnd önnur lönd sem séu óábyrg.
- Með því að setja einungis fram 2-valkosti.
- Þá lítur hann hjá 3-valkostinum.
- Sem sé sá, að sína Bretum þá kurteisi, að vera ekki að skipta sér af!
Mín persónulega skoðun á BREXIT -- t.d. er ekki fyrir hendi, þ.e. mér er slétt sama hvort að BRETLAND yfirgefur ESB, eða ekki!
Augljóslega hefur Þorsteinn Pálsson sterka skoðun á BREXIT, þ.e. hann er eindregið andvígur BREXIT.
- Mín skoðun er einföld -- að þetta sé ákvörðun Breta eingöngu.
--Enginn annar eigi með réttu að skipta sér af þeirri grundvallarákvörðun.
Það sem mér finnst áhugavert við orð Þorsteins er eftirfarandi!
"Ætla þeir að skipa Íslandi í fylkingu með þeim sem vilja nota úrslitin í Bretlandi til að fá fleiri ríki til að yfirgefa innri markaðinn og stuðla að upplausn Evrópusambandsins? Eða er ríkisstjórnin fús til að standa með þeim hófsömu og ábyrgu öflum í Evrópu sem ætla að standa vörð um innri markaðinn og um leið Evrópusambandið?"
- En þetta er í fyrsta sinn sem ég sé hann tala með þeim hætti - að skín í gegn, að hann óttast að upplausn ESB geti verið yfirvofandi.
- Og kannski er það einmitt ótti við slíka útkomu, sem hefur rekið nokkrar ríkisstjórnir í Evrópulöndum -- til að hefja upp raust sína.
Málið með mig -- að ég er einnig hlutlaus gagnvart tilvist ESB.
--Það er, mín vegna má það vera til, en mín vegna má það einnig farast!
En augljóslega er Þorsteinn það ekki :)
- Málið með þessa afstöðu mína er það --> Að mitt megið prinsipp er, sjálfsákvörðunarréttur þjóða!
- Sem þíðir það, að ég virði frjálsar ákvarðanir sem þjóðir taka um sína framtíð -- hver sem sú ákvörðun er.
--M.ö.o. að ef þjóð sannarlega tekur frjálsa ákvörðun um ESB aðild, virði ég það!
--Sem þíðir, að það þveröfuga einnig gildir, að ef þjóð neitar aðild, eða í þessu tilviki, vill fara út -- þá einnig virði ég það!
_______Þetta er auðvitað hvers vegna, ég hef brugðist svo harkalega við afskiptum Rússlands að málefnum Úkraínu --> Þ.e. tilraunum Pútíns að ákveða framtíð þess lands, gegn augljósum vilja meirihluta íbúa þess lands, um annað!
--Mér er algerlega sama hvort að draumur Úkraínumanna sé um ESB aðild, einhverntíma í framtíðinni --> Fyrir mér eigi alltaf að virða frjálsan vilja þjóðar!
- Þ.e. engin tvískinnungur hjá mér þegar kemur að Krím-skaga, því að kosningin sem þar fór fram --> Var ekki lýðræðisleg! Heldur með, sovéskri aðferð!
--Þannig að sú kosning geti ekki talist réttmæt mæling á vilja íbúa þar!
--Sá vilji verði að teljast, óþekktur!
*Einhverjar skoðanakannanir, gerðar án þess að íbúar hafi tækifæri á að fá að vita sannleikann, séu einskis virði.*
--Það mætti hugsa sér að þar færu fram nýjar kosningar -- með lýðræðislegri aðferð, þ.s. tryggt væri að íbúar væru nægilega upplýstir um allar hliðar málsins --> Í stað þess sem var, að - að þeim var ýtt einhliða heilaþvotti, skipulögð lygaherferð.
Niðurstaða
Ég vona að stjórnvöld Íslands haldi áfram að sleppa afskiptum af ákvörðun Bretlands um sína framtíð. Sýni þannig rétti Bretlands, og bresku þjóðarinnar - til að taka ákvörðun um sína framtíð - fulla tilhlýðilega virðingu.
Jafnvel þó það megi halda því fram að það geti verið betra út frá hagsmunum Íslands, að Bretland haldi sér innan ESB -- þá væru afskipti af því tagi sem Þorsteinn Pálsson hvetur til að mínu mati - fullkomlega óviðeigandi.
Kv.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:04 | Facebook
Um bloggið
Einar Björn Bjarnason
Nýjustu færslur
- Sigur Donalds Trumps, stærsti sigur Repúblikana síðan George ...
- Ef marka má nýjustu skoðanakönnun FoxNews - hefur Harris þokk...
- Kamala Harris virðist komin með forskot á Trump í Elector-Col...
- Það að Úkraínuher er farinn að sprengja brýr í Kursk héraði í...
- Úkraínuher hóf innrás í Kursk hérað sl. mánudag! 5 dögum sein...
- Möguleikar Kamölu Harris til hugsanlegs sigurs á Donald Trump...
- Leiðir ris J.D. Vance - til fullkominna yfirráða milljarðamær...
- Er fall bandaríska lýðveldisins yfirvofandi - vegna ákvörðuna...
- Sérfræðingar vaxandi mæli þeirrar skoðunar, 2025 verði lykilá...
- Rússar hafa tekið 8 km. landræmu síðan sl. föstudag í NA-Úkra...
- Rússland getur hugsanlega haldið fram Úkraínustríði, allt að ...
- Rússland ætlar að hætta stuðningi við uppreisnarmenn í Súdan ...
- Gríðarlega mikilvægt að Úkraína fær bráðnauðsynlega hernaðara...
- Ég er eindregið þeirrar skoðunar - Ísrael geti ekki unnið str...
- Trump, hefur viðurkennt að geta ekki greitt - 464 milljón dol...
Eldri færslur
2024
2023
2022
2021
2020
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
Bloggvinir
- eyglohardar
- bjornbjarnason
- ekg
- bjarnihardar
- helgasigrun
- hlini
- neytendatalsmadur
- bogason
- hallasigny
- ludvikjuliusson
- gvald
- thorsteinnhelgi
- thorgud
- smalinn
- addabogga
- agnarbragi
- annabjorghjartardottir
- annamargretb
- arnarholm
- arnorbld
- axelthor
- arnith2
- thjodarsalin
- formosus
- birgitta
- bjarnijonsson
- bjarnimax
- westurfari
- virtualdori
- bookiceland
- gattin
- davpal
- dingli
- doggpals
- egill
- jari
- einarborgari
- einarsmaeli
- erlaei
- ea
- fannarh
- fhg
- lillo
- gesturgudjonsson
- gillimann
- bofs
- mummij
- kallisnae
- gp
- gudmbjo
- hreinn23
- gudrunmagnea
- gmaria
- topplistinn
- skulablogg
- gustafskulason
- hallurmagg
- haddi9001
- harhar33
- hl
- diva73
- himmalingur
- hjaltisig
- keli
- fun
- johanneliasson
- jonsullenberger
- rabelai
- jonl
- jonmagnusson
- jonvalurjensson
- thjodarskutan
- gudspekifelagid
- juliusbearsson
- ksh
- kristbjorg
- kristinnp
- larahanna
- leifurbjorn
- lifsrettur
- wonderwoman
- maggij
- elvira
- olafureliasson
- olinathorv
- omarragnarsson
- ottarfelix
- rafng
- raksig
- redlion
- salvor
- samstada-thjodar
- fullvalda
- fullveldi
- logos
- duddi9
- sigingi
- sjonsson
- sigurjons
- stjornlagathing
- athena
- stefanbogi
- lehamzdr
- summi
- tibsen
- vala
- valdimarjohannesson
- valgeirskagfjord
- vest1
- vignir-ari
- vilhjalmurarnason
- villidenni
- thjodarheidur
- valli57
- tbs
- thorgunnl
- thorsaari
- iceberg
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring: 7
- Sl. viku: 29
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 29
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Ég er þér hjartanlega sammála, það kemur okkur ekkert við hvað Bretar ákveða að gera í þessu málum, þetta er bara frekja og yfirgangur í honum Þorsteini að ætla okkar stjórnvöldum að skipta sér af þeim bresku. Ég verð að viðurkenna að ég skil ekki afhverju nokkur veita birti pistla eftir þennan mann og yfirhöfuð hvernig nokkur maður nennir að lesa þá þar sem hann talar oftast út um óæðriendan á sér
Halldór Björgvin Jóhannsson, 3.7.2016 kl. 11:46
Bull er thetta, ef Englendingar mega skipta sér af Íslenskum stjórnmálum eins og their hafa gert í gegnum árin og aldirnar, ásamt ödrum tjódum. Thá mega Íslendingar skipta sér af breskum málum.
Bjarne Örn Hansen (IP-tala skráð) 3.7.2016 kl. 19:34
Eins og komið hefur fram er ég sammála þér að Íslendingar eiga ekki að skifta sér af hvernig Bretar haga sínum innanríkismálum.
.
Hinsvegar ertu ennþá ráfandi eftir þínum venjulegu villigötum þegar kemur að Krímskaga.
Ég bara skil ekki þennan hroka þinn að halda að þú vitir betur en Krímverjar sjálfir hvernig málum er best fyrir komið á þeim aumingja skaga.
Krímverjar hafa aldrei viljað tilheyra Úkrainu á nokkrum tímapunkti og hafa kosið um það tvisvar áður 1991 og 1995.
1995 var send það sem Kiev kallaði "Love train" til að leiðrétta íbúa Krímskaga. Það var ekki mikill ást í þeirri lest,heldur öfgafullir þjóðernissinnar með járnrör.
Nú hafa Krímverjar enn og aftur kosið að skilja við Úkrainu og að þessu sinni undir vernd ,svo það var ekki hægt í þetta skifti að leiðrétta kosninguna með járnrörum eða byssustingjum.
.
Við Íslendingar fengum okkar sjálfstæði undir svipuðum kringumstæðum ,svo það stendur okkur næst að gleðjast með þessu fólki.
.
Nú skaltu reyna að ná áttum með því að horfa á þetta fallega myndband þar sem Krímverjar fagna þessum ánægjulega áfanga.
Söngurinn er fallegur ,sjóvið flott og fullt af glöðu fólki.
https://www.youtube.com/watch?v=h9RwYPsVpfM
Borgþór Jónsson, 4.7.2016 kl. 00:29
Boggi - það skiptir engu máli hve oft rússnesk kosning er framkvæmd -- hún er jafn ólýðræðisleg þó hún sé framkvæmd 3-svar eins og ef hún er framkvæmd einu sinni.
Ef slík framkvæmd telst mæling á vilja íbúa -- þá er Kína lýðræðisríki, það var ríki Stalíns einnig - og vilji kjósenda í þeim löndum kom raunverulega fram.
Rússnesk kosning hefur ekkert með vilja kjósenda að gera -- heldur er einungis valda tæki stjórnvalda sem vilja halda á uppi -- leiktjöldum lýðræðis, án raunverulegs innihalds.
Síðan halda einhverjir kjánar -- að leiktjöldin séu raunveruleiki.
Kv.
Einar Björn Bjarnason, 4.7.2016 kl. 02:05
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Þú ert innskráð(ur) sem .
Innskráning