8.9.2015 | 21:21
Samningur Írana og Bandaríkjanna - er nú öruggur
Skv. frétt Reuters hefur Obama nú fengið næg atkvæði í Öldungadeild Bandar.þings til að "Filibuster" eins og þ.e. kallað, tillögu Repúblikana um að - hafna samningnum við Íran.
Obama musters key 41 Senate votes for Iran nuclear deal
Þetta þíðir m.ö.o. að Obama hefur tryggt sér nægan fjölda atkvæða - til þess að ekki þarf að koma til beitingar Obama á neitunarvaldi.
41 atkvæði - dugi til þess að hindra framgöngu tillögu Repúblikana.
- Þetta þíðir m.ö.o. - - > Að samningur Bandaríkjanna við Íran, er kominn í örugga höfn.
- M.ö.o. hann mun komast til framkvæmda.
Þegar hefur legið fyrir að alþjóðlegar refsiaðgerðir á Íran, falla niður
Þannig að ef Repúblikönum hefði tekist að -hindra þátttöku Bandar. í samkomulagi svokallaðra 6-velda við Íran. Hefði það ekki leitt til þess, að önnur þeirra 6-velda mundu hætta við að aflétta sínum refsiaðgerðum.
Að auki var orðið ljóst -að önnur hinna svokölluðu 6-valda, mundu hafna því að endurreisa alþjóðlegar refsiaðgerðir.
- Það hefði þítt að Bandar. hefðu nánast ein staðið að aðgerðum gegn Íran.
- Sem sennilega hefði haft þau megináhrif að viðhalda slæmum samskiptum við Íran.
- En hefði ekki -hindrað að neinu ráði, nýja efnahagsuppbyggingu Írans.
- Nú geta a.m.k. bandar. fyrirtæki -tekið þátt í þeirri uppbyggingu.
-----------------
Warm welcome awaits Great Satan in Iran
Skv. nýlegri könnun í Íran -njóta bandarískar vörur og fyrirtæki verulegrar hylli meðal Írana, ásamt evrópskum vörum og fyrirtækjum -einkum þýskum.
"By a huge margin, Iranians would prefer to work for a US company than one from any other country, with 83 per cent of those surveyed interested in working for a US company, way ahead of second-placed Germany on 40 per cent."
Íranar virðast skv. þeirri könnun -bera verulega virðingu fyrir bandar. þjóðinni, þó það nái ekki endilega til bandar. stjv.
"The US is also the country they would most like to visit, ahead of Italy, France and Spain." - "Germany in particular was cited as a source of good quality products, with an approval rating of 87 per cent, closely followed by the US, Japan, the UK and France."
Sú könnun virðist benda til þess, að Vestrænar vörur eigi upp á pallborð hjá Írönum.
Skv. þeirri könnun, virtust indverskar vörur og kínv. njóta mun minni virðingar í skv. þessari neytendakönnun í Íran.
"Just 18 per cent of the survey respondents said China produced good quality products, with India lower still at 16 per cent..."
Þetta getur bent til þess, að viðsk. milli Írans og Vesturvelda, geti aukist verulega mikið á nk. árum. Auk þess að Vestrænir orkurisar hafa gríðarlegan áhuga nú á Íran. Ekki einungis þeir, Peugeot franski bifreiðasmiðurinn -hefur kynnt að Íran verði eitt af framtíðar vaxtarsvæðum þess fyrirtækis.
Íran er auðvitað mjög aðlaðandi land út frá landfræðilegum sjónarhóli
Hef bent á þetta áður, með 2-strandlengjur við hafssvæði þ.s. finna má olíu og gas í grennd.
- Turkmenistan, Uzbekistan og Azerbaijan við Kaspíahaf eru olíu- og gasauðug lönd. Íran getur verið flutningaleið fyrir olíu og gas frá þeim löndum, í gegnum eigin hafnir við Kaspíahaf - og leiðslu yfir land, til útflutningshafna við Persaflóa.
- Síðan hefur Íran sjálft lindir nærri Persaflóa, og hyggst auka útflutt magn á nk. 5 árum í 5 milljón föt per dag.
- Ekki má heldur gleyma því að Íran framleiðir sl. 10 ár ca. að jafnaði um milljón bifreiða per ár - 2 megin framleiðendur, annar tengdur Peugeot. Hinn virðist seinni ár einkum í samstarfi v. S-kóreanska framleiðendur.
Ég er mjög bjartsýnn fyrir Írans hönd.
Að vandamál þeirra verði að mestu úr sögunni á nk. árum.
Íranar voru á öldum áður oft viðskiptaveldi, og geta orðið það að nýju. Sennilega þó ekki, heimsveldi - eins og stundum í fyrndinni.
Sjá 2-áhugaverðar umfjallanir NyTimes:
Cheney hefur bersýnilega ekkert lært - Dick Cheney Denounces Nuclear Deal With Iran as Madness
Mjög forvitnilegur vinkill á samninginn við Íran um kjarnorkumál - Plutonium Is Unsung Concession in Iran Nuclear Deal
Niðurstaða
Mig grunar að í framtíðinni, verði samningurinn við Íran eitt af mikilvægari breytingum í utanríkisstefnu Vesturvelda. En hann gerir a.m.k. mögulegt að samskipti Vesturvelda og Írans, batni stórfellt. Þó að það endi ekki endilega með vinskap, þá er það a.m.k. ekki lengur ómögulegt. En framundan eru mjög sennilega stórfelldar fjárfestingar vestrænna orkufyrirtækja í Íran - þær fjárfestingar koma sennilega í stað þeirra er áður voru fyrirhugaðar í samtarfi við Rússland, áður en núverandi deilur við Rússland spruttu upp.
Að vissu leiti má segja, eins dauði er annars brauð - að Íran geti að miklu leiti eða jafnvel að öllu, komið í stað Rússlands fyrir Vesturveldi. Í gegnum Íran, sé yfrið næga orku að fá -hvort sem sjónum er beint að aðgengi Írans að Kaspíahafi eða eigin lindum Írana sjálfra.Mig grunar að á nk. árum, verði Íran til mikilla muna öflugara hagkerfi en Rússland, og ekki ósennilega töluvert einnig öflugara sem herveldi. En vaxandi auð, fylgir gjarnan einnig aukin geta á hernaðarsviðinu eða a.m.k. að land sem safnar auðæfum hefur efni á stærri herafla en áður.
Samningurinn við Íran - geti átt eftir að reynast mjög mikilvægt strategískt skref fyrir Vesturveldi.
Íran sennilega tekur aftur fyrri stöðu - sem mikilvægasta ríkið við Persaflóa.
Kv.
Flokkur: Utanríkismál/alþjóðamál | Facebook
Um bloggið
Einar Björn Bjarnason
Nýjustu færslur
- Ætla að spá, Úkraínustríð standi enn yfir við lok 2025! Mér v...
- Jólakveðjur til allra, ósk um velfarnað fyrir nýja ríkisstjór...
- Mögnuð atburðarás hefur leitt til falls, Bashar al-Assads, fo...
- Þorgerður Katrín í oddaaðstöðu! Hún líklega algerlega ræður h...
- Sigur Donalds Trumps, stærsti sigur Repúblikana síðan George ...
- Ef marka má nýjustu skoðanakönnun FoxNews - hefur Harris þokk...
- Kamala Harris virðist komin með forskot á Trump í Elector-Col...
- Það að Úkraínuher er farinn að sprengja brýr í Kursk héraði í...
- Úkraínuher hóf innrás í Kursk hérað sl. mánudag! 5 dögum sein...
- Möguleikar Kamölu Harris til hugsanlegs sigurs á Donald Trump...
- Leiðir ris J.D. Vance - til fullkominna yfirráða milljarðamær...
- Er fall bandaríska lýðveldisins yfirvofandi - vegna ákvörðuna...
- Sérfræðingar vaxandi mæli þeirrar skoðunar, 2025 verði lykilá...
- Rússar hafa tekið 8 km. landræmu síðan sl. föstudag í NA-Úkra...
- Rússland getur hugsanlega haldið fram Úkraínustríði, allt að ...
Nýjustu athugasemdir
- Ætla að spá, Úkraínustríð standi enn yfir við lok ...: Ásgrímur - Evr. hefur hingað til fjármagnað stríðið að stærstum... 2.1.2025
- Ætla að spá, Úkraínustríð standi enn yfir við lok ...: Grímur Kjartansson , þess vegna mun NATO krefjast trygginga af ... 2.1.2025
- Ætla að spá, Úkraínustríð standi enn yfir við lok ...: https://www.youtube.com/watch?v=rkA7Fd8XNyQ Það sem líklega ger... 1.1.2025
- Ætla að spá, Úkraínustríð standi enn yfir við lok ...: Ég fylgist nokkuð með fréttum frá nýjasta NATO ríkinu Svíþjóð o... 1.1.2025
- Ætla að spá, Úkraínustríð standi enn yfir við lok ...: Grímur Kjartansson , meir en næg orka annars staðar frá. Frekar... 1.1.2025
- Ætla að spá, Úkraínustríð standi enn yfir við lok ...: En það gæti nú orðið ESB sem þvingar Selenski loks að samningar... 1.1.2025
Eldri færslur
2024
2023
2022
2021
2020
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
Bloggvinir
- eyglohardar
- bjornbjarnason
- ekg
- bjarnihardar
- helgasigrun
- hlini
- neytendatalsmadur
- bogason
- hallasigny
- ludvikjuliusson
- gvald
- thorsteinnhelgi
- thorgud
- smalinn
- addabogga
- agnarbragi
- annabjorghjartardottir
- annamargretb
- arnarholm
- arnorbld
- axelthor
- arnith2
- thjodarsalin
- formosus
- birgitta
- bjarnijonsson
- bjarnimax
- westurfari
- virtualdori
- bookiceland
- gattin
- davpal
- dingli
- doggpals
- egill
- jari
- einarborgari
- einarsmaeli
- erlaei
- ea
- fannarh
- fhg
- lillo
- gesturgudjonsson
- gillimann
- bofs
- mummij
- kallisnae
- gp
- gudmbjo
- hreinn23
- gudrunmagnea
- gmaria
- topplistinn
- skulablogg
- gustafskulason
- hallurmagg
- haddi9001
- harhar33
- hl
- diva73
- himmalingur
- hjaltisig
- keli
- fun
- johanneliasson
- jonsullenberger
- rabelai
- jonl
- jonmagnusson
- jonvalurjensson
- thjodarskutan
- gudspekifelagid
- juliusbearsson
- ksh
- kristbjorg
- kristinnp
- larahanna
- leifurbjorn
- lifsrettur
- wonderwoman
- maggij
- elvira
- olafureliasson
- olinathorv
- omarragnarsson
- ottarfelix
- rafng
- raksig
- redlion
- salvor
- samstada-thjodar
- fullvalda
- fullveldi
- logos
- duddi9
- sigingi
- sjonsson
- sigurjons
- stjornlagathing
- athena
- stefanbogi
- lehamzdr
- summi
- tibsen
- vala
- valdimarjohannesson
- valgeirskagfjord
- vest1
- vignir-ari
- vilhjalmurarnason
- villidenni
- thjodarheidur
- valli57
- tbs
- thorgunnl
- thorsaari
- iceberg
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (11.1.): 7
- Sl. sólarhring: 14
- Sl. viku: 100
- Frá upphafi: 858810
Annað
- Innlit í dag: 6
- Innlit sl. viku: 86
- Gestir í dag: 5
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Eins og svo oft áður hjá þeir Einar, þvílíkt endemis bull og skammsýni.
Bjarne Örn Hansen (IP-tala skráð) 9.9.2015 kl. 07:45
Einlægir aðdáendur Pútíns auðvitað hafa áhyggjur.
Kv.
Einar Björn Bjarnason, 9.9.2015 kl. 08:29
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Þú ert innskráð(ur) sem .
Innskráning