Þetta er skv. greiningu Sergei Guriev: Russias Indefensible Military Budget. Það sem prófessor Guriev bendir á -séu vísbendingar um umtalsvert yfirskot á fjárlögum rússneska ríkisins, þegar kemur að kostnaðarliðnum -hernaðarmál. Á hersýningu þann 9. maí, sýndi rússneski herinn sitt nýjasta vopn:
Prófessor Guriev -segir að Rússland hafi ekki efni á þeim hernaðarútgjöldum sem þegar hafi verið -samþykkt.
Ekki þegar olían kostar 66 Dollara fatið.
- "According to just-published budget data, during the first three months of 2015, non-defense spending amounted to 16.5% of quarterly GDP, as planned; but military expenditure exceeded 9% of quarterly GDP more than double the budgeted amount."
- "In other words, Russia has already spent more than half of its total military budget for 2015. At this rate, its reserve fund will be emptied before the end of the year."
Skv. samþykktum ráðgerðum útgjöldum - átti hallinn á ríkisútgjöldum að vera, 3,7% af þjóðarframeleiðslu.
Sem skv. mati Guriev, þíddi að -varasjóður ríkisins mundi endast í ca. 2 ár.
- "With the (reserve)fund amounting to only about 6% of GDP, Russia can maintain a 3.7% deficit for less than two years before it either has to withdraw from Ukraine to gain relief from Western sanctions, or undertake a major and, for Putin, politically dangerous fiscal adjustment."
En með -hressilegu yfirskoti á sviði hermála- þá dugi varasjóðurinn jafnvel ekki út þetta ár.
- Próf. Guriev veit ekki -af hverju kostnaður við hermál reynist 2-falt meiri en ráð var fyrir gert.
- En stingur upp á þeim möguleika, að um sé að ræða -kostnað við það að fjármagna svokallaðan "uppreisnarher í A-Úkraínu" og kostnað við fjárhagslegt uppihald svæða undir stjórn "svokallaðra uppreisnarmanna" í A-Úkraínu.
Sá kostnaður sé þá að -sliga rússnesku fjárlögin.
Niðurstaða
Þetta þíðir ekki -ríkisþrot. Þar sem um er að ræða -rúbblukostnað. Heldur það, að þegar ríkið hefur tæmt sinn varasjóð. Þá þarf það að finna aðrar leiðir til að -fjármagna hallann á ríkisrekstrinum. Ef það ætlar að viðhalda hallanum.
- Tæknilega gæti ríkið fjármagnað sig með útgáfu skuldabréfa, sem það tæknilega getur -þvingað innlenda aðila til að kaupa. Það væri "financial repression." Á endanum gæti sú aðferð, þurrkað úr -auð stórs hluta elítunnar í landinu. Það væri ósennilegt að hún mundi ekki beita sér gegn þessum valkosti.
- Tæknileg leið 2, væri að fjármagna hallann með prentun. Það mundi þó án nokkurs vafa kynda undir verðbólgu, og á enda leiða til óðaverðbólgu. Því að verðbólga er þegar ca. 16%. Við slíkar aðstæður er engin leið að fjármögnun með prentun, mundi ekki kynda undir verðbólgunni og halda síðan stöðugt áfram að hita undir henni svo lengi sem fjármögnun með prentun væri fram haldið.
- Eða eins og próf. Guriev nefndi, ríkisstjórnin gæti -skorið útgjöld niður. Ef hernaðarútgjöldin væru þá ekki skorin -mundi það bitna á félagslegum útgjöldum af mikilli hörku. Er væri afar líklegt til þess að kynda undir óánægju meðal almennings.
Pútín stendur þó klárt frammi fyrir erfiðum valkostum.
Kv.
Flokkur: Utanríkismál/alþjóðamál | Facebook
Um bloggið
Einar Björn Bjarnason
Nýjustu færslur
- Ríkisstjórn Donalds Trumps, sbr. JD. Vance, alítur aðstreymi ...
- Úkraína og Donald Trump, virðast nærri samkomulagi um hernaða...
- Vekur undrun varðandi ákvörðun Trumps forseta um viðskiptastr...
- Trump þarf ekki að kaupa eða taka yfir Grænland til að nýta m...
- Ætla að spá, Úkraínustríð standi enn yfir við lok 2025! Mér v...
- Jólakveðjur til allra, ósk um velfarnað fyrir nýja ríkisstjór...
- Mögnuð atburðarás hefur leitt til falls, Bashar al-Assads, fo...
- Þorgerður Katrín í oddaaðstöðu! Hún líklega algerlega ræður h...
- Sigur Donalds Trumps, stærsti sigur Repúblikana síðan George ...
- Ef marka má nýjustu skoðanakönnun FoxNews - hefur Harris þokk...
- Kamala Harris virðist komin með forskot á Trump í Elector-Col...
- Það að Úkraínuher er farinn að sprengja brýr í Kursk héraði í...
- Úkraínuher hóf innrás í Kursk hérað sl. mánudag! 5 dögum sein...
- Möguleikar Kamölu Harris til hugsanlegs sigurs á Donald Trump...
- Leiðir ris J.D. Vance - til fullkominna yfirráða milljarðamær...
Nýjustu athugasemdir
- Ríkisstjórn Donalds Trumps, sbr. JD. Vance, alítur...: Þó ég muni ekki fyrir hvað Obama fékk friðarverðlaun Nóbels Þá ... 18.2.2025
- Ríkisstjórn Donalds Trumps, sbr. JD. Vance, alítur...: Huh? Nei, flóttamannastraumurinn er hluti af Cloward-Piven plan... 17.2.2025
- Ríkisstjórn Donalds Trumps, sbr. JD. Vance, alítur...: Grímur Kjartansson , - það hefur verið sannað að HAMAS hirti dr... 17.2.2025
- Ríkisstjórn Donalds Trumps, sbr. JD. Vance, alítur...: USAID gat á engan hátt gert grein fyrir hvert allir þessir fjár... 17.2.2025
Eldri færslur
2025
2024
2023
2022
2021
2020
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
Bloggvinir
-
eyglohardar
-
bjornbjarnason
-
ekg
-
bjarnihardar
-
helgasigrun
-
hlini
-
neytendatalsmadur
-
bogason
-
hallasigny
-
ludvikjuliusson
-
gvald
-
thorsteinnhelgi
-
thorgud
-
smalinn
-
addabogga
-
agnarbragi
-
annabjorghjartardottir
-
annamargretb
-
arnarholm
-
arnorbld
-
axelthor
-
arnith2
-
thjodarsalin
-
formosus
-
birgitta
-
bjarnijonsson
-
bjarnimax
-
westurfari
-
virtualdori
-
bookiceland
-
gattin
-
davpal
-
dingli
-
doggpals
-
egill
-
jari
-
einarborgari
-
einarsmaeli
-
erlaei
-
ea
-
fannarh
-
fhg
-
lillo
-
gesturgudjonsson
-
gillimann
-
bofs
-
mummij
-
kallisnae
-
gp
-
gudmbjo
-
hreinn23
-
gudrunmagnea
-
gmaria
-
topplistinn
-
skulablogg
-
gustafskulason
-
hallurmagg
-
haddi9001
-
harhar33
-
hl
-
diva73
-
himmalingur
-
hjaltisig
-
keli
-
fun
-
johanneliasson
-
jonsullenberger
-
rabelai
-
jonl
-
jonmagnusson
-
jonvalurjensson
-
thjodarskutan
-
gudspekifelagid
-
juliusbearsson
-
ksh
-
kristbjorg
-
kristinnp
-
larahanna
-
leifurbjorn
-
lifsrettur
-
wonderwoman
-
maggij
-
elvira
-
olafureliasson
-
olinathorv
-
omarragnarsson
-
ottarfelix
-
rafng
-
raksig
-
redlion
-
salvor
-
samstada-thjodar
-
fullvalda
-
fullveldi
-
logos
-
duddi9
-
sigingi
-
sjonsson
-
sigurjons
-
stjornlagathing
-
athena
-
stefanbogi
-
lehamzdr
-
summi
-
tibsen
-
vala
-
valdimarjohannesson
-
valgeirskagfjord
-
vest1
-
vignir-ari
-
vilhjalmurarnason
-
villidenni
-
thjodarheidur
-
valli57
-
tbs
-
thorgunnl
-
thorsaari
-
iceberg
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.2.): 1
- Sl. sólarhring: 8
- Sl. viku: 517
- Frá upphafi: 860912
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 465
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Sæll Einar.
Stundum finnst mér þú ekki nógu jákvæður gagnvart rússum.
Bloomberg telur að varasjóðir rússneska ríkisins endist í ca 3 ár ef enkkert annað gerist á tímabilinu,enginn sparnaður og engin frekari áföll.
Ég held að þetta sé nokkuð rétt,en það sem menn virðast oft gleyma er að varasjóðirnir eru tveir. Þeir eru því ekki 88 milljarðar dollara eins menn tala oftast um ,heldur 120 milljarðar dollara eða jafngildi þess í rúblum.
Einnig virðast menn ekki reikna með innstreymi í sjóðina ,en þó það hafi lækkað um sennilega 40% frá meðaltali fyrri ára er það ennþá verulegt.
Sjóðirnir gætu því jafnvel enst meira enn 3 ár.
Varðandi lántökur rússneska ríkisins held ég að þú vaðir heiftarlega í villu og svima.
Þú gefur þér að skuldabréfakaup af rússneska ríkinu sé glatað fé.
Fátt er fjær sanni.
Fyrst er að telja að rússneska ríkið er mjög lítið skuldsett
Næst er að telja að rússneka ríkið á óvenjulega mikið af eignum sem eru auðveldar í sölu.
Þriðja sem hægt er að horfa til að skattar eru mjög lágir í Rússlandi. 13% tekjuskattur 18 % söluskattur og 20% fyrirtækjaskattur.
Lítilsháttar breytingar á þessum sköttum eru miklar fjárhæðir.
Ég er þess fullviss að ef rússneska ríkið hæfi skuldabréfaútgáfu mundu þau bréf renna út eins og heitar lummur og engin þörf á "arm twisting" að hætti Obama í því samhengi.
.
Í fljótu bragði sýnist mér að það væri áhættulaust að skuldsetja rússneska ríkið um ca 600 milljarða dollara,rússneski ríkissjóðurinn væri samt skuldlítill miðað við flest önnur vestræn lönd.
Þetta ætti að duga til að fjármagna núverandi hallarekstur í um áratug ár eða meira.
Staðreyndin er sú að Rússland er mjög fjárhagslega sterkt fjárhagslega aðförin að því hefur algerlega mistekist.
Þessa dagana erum við svo að sjá að pólitíska aðförin er að renna út í sandinn.
Spurningin er bara sú hvort Bandaríkin grípa til lokaúrræðisins sem alltaf er notað þegar þarf að kúga aðrar þjóðir,sem er hernaður.
.
Borgþór Jónsson, 19.5.2015 kl. 20:05
Mjög einfeldningslegar túlkanir eins og oft áður - - > En eina ferðina enn, að þá "á rússn. ríkið ekki gríðarlega gjaldeyrisvarasjóði" því þegar tekið er tillit til "skulda ríkisfyrirtækja" þá skulda þau mun hærri upphæðir í gjaldeyri en ríkið á í formið fjársjóða - - > Og þ.e. rangt að ríkisskuldir Rússl. séu bara um 13% þó það séu opinberar tölur, en rétt tala er nær 50% -vegna gjaldeyrisskulda risastórra ríkisfyrirtækja sem skulda verulega hærri upphæðir í gjaldeyri samanlagt en rússn. ríkið.
Gjaldeyris-staða Rússlands - - er m.ö.o. neikvæð /ekki jákvæð.
Þess vegna erum menn að tala um, líkur á gjaldþroti Rússlands.
Pútín getur auðveldlega komið sér úr þessari klemmu.
Með því að semja við Vesturveldi.
Pútín kom sér sjálfur í þennan vanda - - hann veit vel hvernig hann getur komið sér úr honum; þ.e. gefa eftir uppreisnina í A-Úkraínu.
Samþykkja m.ö.o. að fram fari kosningar í A-Úkraínu, áður en samkomulag um nýja valdaskiptingu taki gildi. Svo þar verði annað fólk þar við völd en vinir Pútíns.
Pútín -geri sínum stuðningsmönnum í A-Úkraínu ljóst- að Rússland verði að hugsa um sjálft sig; þeir njóti ekki frekar stuðnings.
Kv.
Einar Björn Bjarnason, 19.5.2015 kl. 23:08
Ég bara skil ekki af hverju þú ert ekki að ná þessu,þetta er ekki flókið og flestir eru búnir að átta sig á þessu.
Vandi Rússlands er ekki skuldavandi heldur óþægilega há greiðslubyrgði. Bæði Rússneski ríkissjóðurinn og Rússland í heild eru mjög lítið skuldsett miðað við önnur ríki á Vesturlöndum.
.
Ef við berum saman Rússland og Frakkland sem eru álíka stór hagkerfi ,Frakkland verandi aðeins stærra,þá áttarðu þig kannski um hvað er að ræða.
Frakkland er með skuldsetningu á ríkissjóði upp á 96%,sennilega aðeins hærra af því að hann er rekinn með tapi sem er fjármagnað með lántöku
Rússland er með 13% skuldsetningu,örugglega lægra í dag vegna þess að þeir hafa þurft að borga erlendar skuldir og fjármagna hallann enn sem komið er með eigin sjóðum.
.
Erlendar heildarskuldir Rússlands eru 559 milljarðar dollara.
Erlendar heildarskuldir Frakklands eru 5378 milljarðar dollara ,eða tæplega tífaldar skuldir Rússlands.
.
ViðskiftaHALLI Frakklands verður 60.000 milljónir dollara á þessu ári ef heldur áfram eins og fyrsti ársfjórðungur.
Jákvæður viðskiftajöfnuður Rússlands verður 156.000 milljónir dollara ef heldur áfram eins og fyrsti ársfjórðungur.
.
Allar skuldir Frakklands eru ca 185% af þjóðarframleiðslu
Allar skuldir Rússlands eru ca 27% af þjóðarframl.
Staða Frakklands er frekar dæmigerð fyrir V Evrópu,sum ríki eru verr sett en önnur betur.
Hvort heldur þú að fjárhagsstaða Frakklands eða Rússlands sé betri ?
Hvort fyrirtækið mundir þú heldur vilja eiga ?
Hvoru fyrirtækinu mundir þú frekar lána pening ?
.
Bollaleggingar þínar um að heildarskuldbindingar Rússneska ríkissjóðsins séu 50% eiga ekki við neinar staðreyndir að styðjast,þar sem heildar skuldir landsins eru innan við 27% og þar af er einhver hluti sem hefur engin tengsl við Rússneska ríkið.
Þar má telja skudir einstaklinga og einkafyrirtækaj og skuldir fyrirtækaj é erlendri eigu.
Þú virðist einhvern veginn vera fastur í að skuldir rússa hafi verið gjaldfelldar,en svo er ekki ,hluti þeirra er bara ekki endurnýjaður þegar þær gjaldfalla.
Hluti þessara skulda er vegna erlendra fyrirtæja sem koma til með að endurnýja þau lán eftir þörfum,þau hafa engan áhuga á ða láta dótturfyrirtækin lenda í kröggum.
Hluti þessara lána er vegna fyrirtækja sem hafa engin tengsl við ríkið og hluta þeirra er hægt að endurnýja ,vegan þess að þau eru ekki háð viðskiftaþvingunum.
Einhver hluti þessara lána er í eigu banka í löndum sem eru ekki að beita rússa viðskiftaþvíngunum.
Hluti þessara lána er til allt að 7 ára.
.
Niðurstaðan er sú ,að af 120 milljörðum sem gjaldfalla á þessu ári koma senilega um 80 milljarðar til greiðslu þar af hafa 38 milljarðar þegar verið greiddir á fyrsta ársfjórðungi.
.
Þegar horft er til þessara hluta er ekki hægt að horfa algerlega framhjá meira en 100 milljarða gjaldeyrisafgangi af viðskiftum,ef menn vilja á annað borð fá rétta útkomu.
Sama gildir um varasjóði rússneska ríkisins,það er ekki hægt að horfa framhjá innstreymi í sjóðina þó það hafi minnkað er það samt sem áður verulegt.
Þessir sjóðir voru stofnaðir 2008 og hefur innstreymið verið að meðaltali um 20 milljarðar dollara á ári frá stofnun í þessa tvo sjóði.
Þetta hefur væntanlega lækkað í 12 milljónir dollara ,en það er ekki hægt að horfa fram hjá þeim ef menn vilja fá rétt útkomu.
Ef menn vilja ekki fá rétta útkomu geta menn náttúrlega bara skáldað tölur af vild.
.
En fátt er svo með öllu illt að ei boði gott.
Ef það má vera þér einhver fróun það hefur hagur fátækastas fólksins í Rússlandi versnað verulega og um 20% landsmanna eiga í í miklum erfiðleikum við aðná endum saman.
Borgþór Jónsson, 20.5.2015 kl. 11:34
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Þú ert innskráð(ur) sem .
Innskráning