17.1.2015 | 01:40
Er vopnahléið í A-Úkraínu á enda? Skv. yfirlýsingu "Donetsk People's Republic" hefur her uppreisnarmanna hafið nýja stórsókn gegn her Kíev stjórnarinnar
Fréttir virðast óljósar, en skv. frétt NYTimes, segjast uppreisnarmenn í svokölluðu "Donetsk People's Republic" hafa tekið flugvöll Donetsk borgar, sem hafði fram að þessu verið á valdi hers Kíev stjórnarinnar.
Og ef marka má yfirlísingu Zakharchenko, skipaðs leiðtoga uppreisnarstjórnarinnar á umráðasvæði uppreisnarmanna í Donetsk héraði - - þá er þetta upphafið að nýrri sókn gegn her Kíev stjórnarinnar.
Markmiðið sé að - - hrekja stjórnarherinn út úr héraðinu.
Russian-Backed Rebels Claim to Have Control of Strategic Donetsk Airport
Mr. Zakharchenko - They are on territory which they do not control and will never be under their control, - We will go further, to Slavyansk, to Kramatorsk, and so on,
Fighting rages at airport, new Ukraine peace talks elusive
"They (the separatists) launched a full storm from this morning. We have wounded on our side. There is hot combat going on there and the tension and the situation there is the worst I have seen," - "As night fell, the Kiev military said fighting was still going on and the military situation was constantly changing."
Fox news - Ukraine separatists claim victory in battle for Donetsk airport
"Russian-backed separatists announced Thursday they had captured the shattered remains of the Donetsk airport terminal in eastern Ukraine and plan to claw back more territory,"
Horfið á videó af Donetsk flugvelli og næsta nágrenni, það sýnir gríðarlega eyðileggingu eftir að uppreisnarmenn og stjórnarherinn hafa barist um völlinn - mánuðum saman:
Drone footage shows scale of destruction
Fyrir einhverja sem ekki vilja trúa fréttum vestrænna fjölmiðla - frétt Russia Today: E. Ukrainian rebels say they now control Donetsk airport
Sú frétt heldur fram töluvert annarri sögu -höfð eftir uppreisnarmönnum- að stjórnarherinn hafi hafið átökin og uppreisnarmenn í sjálfsvörn ráðist fram og tekið vallarsvæðið og hrakið stjórnarherinn á flótta.
- Það er ekki sérlega óvenjulegt í átökum að stríðandi fylkingar segi afar ólíkt frá.
Ef þetta er rétt að stríðið sé hafið að nýju
Þá að sjálfsögðu mun sá atburður magna verulega spennuna milli Vesturvelda og Rússlands - - að lágmarki verða refsiaðgerðir líklega hertar.
Spurning hvort að NATO hefji - vopnasendingar til stjórnarhers Úkraínu, sem glýmir við þann vanda - - að hafa eingöngu vopn sem eru frá tíð Sovétríkjanna þ.e. "úrelt."
Það hefur áður komið fram í vestrænni pressu, að uppreisnarmenn - virðast betur vopnaðir en stjórnarherinn síðan - seinni part sl. sumars.
Talið víst að það hafi verið vopnasendingar frá Rússlandi.
Þ.s. engin leið sé að þeir hafi náð betri vopnum frá stjórnarhernum.
- Marga grunar að bílalestir sem að sögn rússneskra stjv. - - fluttu hjálpargögn.
- Hafi flutt uppreisnarmönnum vopn, en það annars er merkileg tilviljun -svo meir sé ekki sagt- að skömmu eftir að þær bílalestir komu til A-Úkraínu, hófu uppreisnarmenn öfluga gagnsókn, sem og virtist þeim allt í einu vegna betur gegn stjórnarhernum - er áður þeir höfðu verið í nauðvörn.
Of merkileg tilviljun - - segi ég. Bílalestirnar hljóta að hafa verið með þau vopn í farteskinu, auk matvæla og annars búnaðar - - en tjöld og viðlegubúnaður, matur - gagnast einnig herjum. Þegar stríðið er á hreyfingu, þurfa hermennirnir eðlilega að nota tjöld, svefnpoka og annan viðlegubúnað - ásamt mat, sárabindum og lyfjum.
Eins og ég benti á -þegar bílalestirnr umræddu voru í umræðunni- þá var ekkert sem blaðamenn sáu er þeir opnuðu nokkra bíla, sem ekki gat verið hluti af sendingu til herja uppreisnarmanna - - þó þeir hafi ekki séð vopn í þeim bílum er þeir opnuðu, opnuðu þeir bara fáa bíla. Vopn er einng unnt að fela í kössum merktir -sárabindi, lyf, viðlegubúnaður.
Niðurstaða
Ef marka má frétt NYTImes og FoxNews hafa uppreisnarmenn í Donetsk, að eigin sögn, hafið nýja sókn gegn stjórnarher Kíev stjórnarinnar í Donetsk héraði með það markmið að hrekja lið stjórnvalda í Kíev út úr Donetsk héraði.
Það væntanlega kemur fram í fréttum á laugardag, hvort þetta er rétt - eða fréttin er röng. En skv. frétt Reuters, eru harðir bardagar í gangi við flugvöll Donetsk, herstaðan sé stöðugt að breytast.
Það getur þítt t.d. að stjórnarherinn sé að hörfa skipulega undan hörðum árásum uppreisnarmanna - getur því alveg verið staðfesting þess, að uppreisnarmenn hafi hafið nýja stórsókn, eins og þeir skv. NYTimes og FoxNews segjast hafa.
---------------------------
PS: Frásagnir uppreisnarmanna í Donetsk virðast hafa verið a.m.k. ýktar, en ef marka má fréttir laugardags, þá standa bardagar enn yfir um flugvöll Donetsk borgar á laugardag; sem passar ekki alveg við fullyrðingar uppreisnarmanna að þeir hafi tekið hann á föstudag.
Á hinn bóginn má vera, að báðir aðilar ráði hluta af svæðinu. Uppreisnarmenn hafi náð vallarsvæðinu að hluta, en stjórnarher verjist síðan enn á öðrum hlutum svæðisins.
Fighting rages anew at Ukraine airport, three soldiers killed
Og umtalsvert ýktari virðist yfirlýsing Zakharchenko leiðtoga uppreisnarmanna í Donetsk, þess efnis - að nú væri hafin framsókn uppreisnarhersins í Donetsk gegn stjórnarher Úkraínu, og stefnt væri að því að hrekja hann úr Donetsk héraði.
Kv.
Flokkur: Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 21:29 | Facebook
Um bloggið
Einar Björn Bjarnason
Nýjustu færslur
- Trump þarf ekki að kaupa eða taka yfir Grænland til að nýta m...
- Ætla að spá, Úkraínustríð standi enn yfir við lok 2025! Mér v...
- Jólakveðjur til allra, ósk um velfarnað fyrir nýja ríkisstjór...
- Mögnuð atburðarás hefur leitt til falls, Bashar al-Assads, fo...
- Þorgerður Katrín í oddaaðstöðu! Hún líklega algerlega ræður h...
- Sigur Donalds Trumps, stærsti sigur Repúblikana síðan George ...
- Ef marka má nýjustu skoðanakönnun FoxNews - hefur Harris þokk...
- Kamala Harris virðist komin með forskot á Trump í Elector-Col...
- Það að Úkraínuher er farinn að sprengja brýr í Kursk héraði í...
- Úkraínuher hóf innrás í Kursk hérað sl. mánudag! 5 dögum sein...
- Möguleikar Kamölu Harris til hugsanlegs sigurs á Donald Trump...
- Leiðir ris J.D. Vance - til fullkominna yfirráða milljarðamær...
- Er fall bandaríska lýðveldisins yfirvofandi - vegna ákvörðuna...
- Sérfræðingar vaxandi mæli þeirrar skoðunar, 2025 verði lykilá...
- Rússar hafa tekið 8 km. landræmu síðan sl. föstudag í NA-Úkra...
Eldri færslur
2025
2024
2023
2022
2021
2020
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
Bloggvinir
- eyglohardar
- bjornbjarnason
- ekg
- bjarnihardar
- helgasigrun
- hlini
- neytendatalsmadur
- bogason
- hallasigny
- ludvikjuliusson
- gvald
- thorsteinnhelgi
- thorgud
- smalinn
- addabogga
- agnarbragi
- annabjorghjartardottir
- annamargretb
- arnarholm
- arnorbld
- axelthor
- arnith2
- thjodarsalin
- formosus
- birgitta
- bjarnijonsson
- bjarnimax
- westurfari
- virtualdori
- bookiceland
- gattin
- davpal
- dingli
- doggpals
- egill
- jari
- einarborgari
- einarsmaeli
- erlaei
- ea
- fannarh
- fhg
- lillo
- gesturgudjonsson
- gillimann
- bofs
- mummij
- kallisnae
- gp
- gudmbjo
- hreinn23
- gudrunmagnea
- gmaria
- topplistinn
- skulablogg
- gustafskulason
- hallurmagg
- haddi9001
- harhar33
- hl
- diva73
- himmalingur
- hjaltisig
- keli
- fun
- johanneliasson
- jonsullenberger
- rabelai
- jonl
- jonmagnusson
- jonvalurjensson
- thjodarskutan
- gudspekifelagid
- juliusbearsson
- ksh
- kristbjorg
- kristinnp
- larahanna
- leifurbjorn
- lifsrettur
- wonderwoman
- maggij
- elvira
- olafureliasson
- olinathorv
- omarragnarsson
- ottarfelix
- rafng
- raksig
- redlion
- salvor
- samstada-thjodar
- fullvalda
- fullveldi
- logos
- duddi9
- sigingi
- sjonsson
- sigurjons
- stjornlagathing
- athena
- stefanbogi
- lehamzdr
- summi
- tibsen
- vala
- valdimarjohannesson
- valgeirskagfjord
- vest1
- vignir-ari
- vilhjalmurarnason
- villidenni
- thjodarheidur
- valli57
- tbs
- thorgunnl
- thorsaari
- iceberg
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 2
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 34
- Frá upphafi: 859313
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 33
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Sæll Einar Björn
Þetta er nú bara áróður frá stjórnvöldum í Kænugarði og Bandaríkjunum hérna hjá þér Einar Björn, því að það eru stjórnvöld í Kænugarði sem eru með þessar árásir, og auk þess hafa ekki viljað fara eftir samkomulaginu sem gert var í Minsk.
Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 17.1.2015 kl. 10:57
LOL, Zakharchenko er þá að ljúga að heiminum? Að ný sókn uppreisnarmanna sé hafin?
Kv.
Einar Björn Bjarnason, 17.1.2015 kl. 14:41
Her Kænugarðs er og hefur verið með nýja og nýja sókn gegn öllum almennum borgurum þarna í Austurhluta Úkraínu, svo og hefur gert fleiri árásir á flugvöllinn þarna og á fólksbíla, og fólk þarna flýr ekki til Kænugarðs eða hvað þá til Úkraínska hersins þarna, heldur til Rússlands, þú???
Ef allt er svona innilega gott á þessum landsvæðum undir stjórn Kænugarðs og/eða ríkisstjórn Úkraínu er svona góða, af hverju flýr ekki allt þetta fólk til landsvæða undir stjórn Kænugarðs, eða af hverju flúðu um 900.000 íbúar Austurhluta Úkraínu yfir til Rússlands???
Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 18.1.2015 kl. 02:14
"Ef allt er svona innilega gott á þessum landsvæðum undir stjórn Kænugarðs og/eða ríkisstjórn Úkraínu er svona góða, af hverju flýr ekki allt þetta fólk til landsvæða undir stjórn Kænugarðs, eða af hverju flúðu um 900.000 íbúar Austurhluta Úkraínu yfir til Rússlands??? "
Þorsteinn, það passar ekki við upplýsingar SÞ, en skv. desember frétt fréttaveitu SÞ, þá eru tölurnar eftirfarandi:
http://www.un.org/apps/news/story.asp?NewsID=49533#.VLwsFkesWAg
Skv. þessu hafa mun fleiri íbúar A-Úkraínu flúið inn á svæði undir stjórn Kíev stjórnarinnar - - heldur en til Rússlands.
A.m.k. rúmlega 2-falt fleiri.
Það segir dálítið aðra sögu ekki satt?
"Her Kænugarðs er og hefur verið með nýja og nýja sókn gegn öllum almennum borgurum þarna í Austurhluta Úkraínu, svo og hefur gert fleiri árásir á flugvöllinn þarna "
Síðan hefur stjórnarherinn haldið Donetsk flugelli - meðan að uppreisnarmenn hafa ítrekað gert tilraun til að taka hann. Og virðast enn einu sinni hafa reynd.
Af hverju ættu stjórnarherinn að vera að ráðast á völl - þ.s. hans eigin liðsmenn ráða?
Eða af hverju annar héldur uppreisnarmenn því fram sjálfir - að þeir hefðu tekið hann sl. föstudag - - ef hann hefur allan tímann verið undir stjórn uppreisnarmanna.
Frásögn þín er ekki í takt við þekktar staðreyndir.
Kv.
Einar Björn Bjarnason, 18.1.2015 kl. 22:01
"The total includes 814,000 Ukrainians now in Russia with various forms of status, as well as compatriots who have fled to Belarus, Moldova, the three Baltic states and European Union, a senior official of the UN High Commissioner for Refugees said.
"It's safe to say you have over a million people now displaced as a result of the conflict, internally and externally together," Vincent Cochetel, director of the UNHCR's bureau for Europe, told reporters in Geneva.
"I mean 260,000 in Ukraine, it's a low estimate, 814,000 in Russia, then you add the rest ... Belarus, Moldova, the European Union."
Of 814,000 Ukrainian nationals who have entered Russia this year, 260,000 have applied for some sort of protective status, he said. The remaining 554,000 have arrived on the basis of a visa-free regime allowing them to stay up to 270 days, he added."http://www.themoscowtimes.com/news/article/un-says-more-than-1-million-ukrainian-refugees-fleeing-conflict-zones/506311.html
Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 19.1.2015 kl. 02:23
Þetta eru úreltar tölur - - ath. þinn hlekkur er frá 2-sept. 2014.
Minn hlekkur er frá 5.des. 2014.
Ég verð að gera ráð fyrir að SÞ hafi komist að því, að fyrri tölur voru "rangar."
Enda er töluvert víð gjá milli niðurstaðnanna þ.e. 200.000 flóttamenn í Rússlandi, eða rúmlega 800.000 flóttamenn í Rússlandi.
Á hinn bóginn hef ég heyrt að sept. tölurnar, hafi verið fengnar frá Rússlandi og SÞ-valið að treysta þeim tölum.
Það geti verið að það hafi tekið SÞ fram í des. 2014 að komast að sannleikanum um það, hver væri raunverulegur fjöldi flóttamanna.
-----------------------
Niðurstaða SÞ - skv. því er ekki sú að það séu 800.000 eða jafnvel milljón flóttamenn í Rússlandi.
Það á að sjálfsögðu að miða við, nýrri tölur SÞ - - ekki tölur frá sept. 2014 sem SÞ metur nú rangar.
Kv.
Einar Björn Bjarnason, 20.1.2015 kl. 01:33
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Þú ert innskráð(ur) sem .
Innskráning