18.9.2014 | 00:46
Það er ekki víst að Skotland verði olíuríki, eins og sjálfstæðissinnar á Skotlandi halda fram!
Ég las um daginn áhugavert blogg Martin Wolf sem er okkur Íslendingum kunnugur. En athugasemd sem hann kom með - vakti sérstaka athygli hjá mér:
What happens after a Yes vote will shock the Scots
- "Alex Salmond, Scotlands first minister and head of the Yes campaign, will say that if the rest of the UK will not grant Scotland a currency union, Scotland will not take on its share of the UK debt."
- "Not so fast: the negotiations launched by that Yes vote will cover everything. The oil, for example, is not Scottish until the UK agrees. If Scotland repudiates its share of the debt, who says it will get its oil?"
Ég held að þarna hafi Martin Wolf - hitt beint á kjarna málsins.
En þetta er alveg rétt hjá honum - Englendingum er enginn akkur af því, að samþykkja að Skotar fái olíuna til eignar.
- Ég held að herra Wolf geti haft rétt fyrir sér - - að skilnaðurinn verði geti orðið fæðing.
- Að hann geti átt eftir að skilja við sig - - biturð og leiðindi.
Það eru nokkrir þættir sem sjálfstæðissinnar hafa "blásið á"
En þ.e. rétt að rifja upp eigi að síður, að þegar bankar léku á reiði skjálfi í Evrópu 2008. Þá "hrundu 3-bankar á Bretlandseyjum. Þar á meðal "Royal Bank of Scotland."
Bresk yfirvöld "tóku fulla stjórn á honum" - "honum var bjargað"
En það kostaði "virkilega skuggalegar upphæðir" - "sem enginn leið er að sjálfstætt Skotland hefði haft efni á."
- Ég er ekki alveg klár á umfangi "Royal Bank of Scotland" miðað við skoska hagkerfið - mig rámar í að það hafi verið einhvers staðar milli "Landsbanka Hf -sáluga-" og "KB banka" þ.e. á bilinu 2 - 5 þjóðarframleiðslur.
Þetta hafa nokkrir fræðimenn bent á, m.a. Wolf - að Skotland hefði líklega lent í sama vanda og Ísland, árið 2008. Að vera með "hrunið bankakerfi." Þurfa "utanaðkomandi aðstoð."
- Enn þann dag í dag, er "Royal Bank of Scotland" gríðarlega stór miðað við "skoska" hagkerfið.
Skotar þurfa því að hugsa sig virkilega vandlega um - hvað þeir ætla að gera í gjaldmiðilsmálum. En ég er alls - alls ekki viss. Að það sé "sérlega snjallt" að ætla að "halda Pundinu."
Einfaldlega vegna þess - að ég sé ekki með hvaða hætti, þeir geta knúið Breta til þess, að veita þeim "fullt" gjaldmiðils-samband, ásamt bakábyrgð "Bank of England."
Tæknilega geta þeir, haldið pundinu "einhliða." En þá þurfa þeir að "safna upp birgðum af pundum" þ.e. sjóðum af því, til að geta ráðið við -sveiflur í peningamagni- til að geta -höndlað tímabundið útstreymi peninga- og til að geta -lánað banka í neyð lausafé.
Þá eru þeir komnir í sama "dilemma" og lönd á Evrusvæði, að "þurfa hugsanlega að slá stór lán" í gjaldmiðli - - sem þeir ekki eiga -- og - - sem þeir hafa ekki stjórn á.
En þeirra vandi er þá í reynd "alvarlegri" því hjá þeim með pund í noktun "einhliða" væri enginn aðili sem unnt væri að leita til, ef skoski ríkissjóðurinn lendir sjálfur í lausafjárvanda.
Sem getur vel gerst í "fjármálakrísu."
- Ég sé því fyrir mér - að Skotar geti verið að koma sér upp ástandi.
- Þ.s. fjármálahrun geti átt sér stað hjá þeim - - með afar litlum fyrirvara.
Risastærð "skoska" fjármálakerfisins - miðað við þjóðarframleiðslu. Gæti reynst vera "akkílesarhæll."
------------------------------
Þetta lítur allt mun skár út, ef þeir "stofna sitt eigið pund" og breyta öllum "innistæðum" í "skosk pund."
- Þá hafa þeir sinn eigin seðlabanka, sem alltaf getur varið "innistæður" (svo lengi sem þær eru í skoskum pundum) og "tryggt bönkum lausafé (í skoskum pundum)."
Þá verður "snöggur fjármunaflótti" og "fjármálahrun" mun minna líklegu útkoma.
Mig grunar að "mjög verulegur popúlismi" sé í loforði "sjálfstæðissinna" til skoskra kjósenda - að, að sjálfsögðu, höldum við pundinu.
Sjálfstæðissinnar -grunar mig- að muni ekki komast hjá því, að kaupa olíuna af Englendingum!
Krafan er í reynd ekki -frámunalega ósanngjörn- þ.e. að Skotland taki á sig, sinn skerf af sameiginlegum skuldum landsins.
Bretland skuldar í dag nærri 90%. Skotland mundi taka á sig "sama hlutfall" og "fá í staðinn uppásrift um" að Skotland eigi olíuna.
- Fyrir þessu eru fordæmi - - t.d. þegar "Sovétríkin liðuðust í sundur."
Skuldir Bretlands hafa farið í uppihald og uppbyggingu í Bretlandi öllu.
Ekki má gleyma björgun "Royal Bank of Scotland" sem örugglega ein og sér, kostaði meir en 100% af þjóðartekjum Skota.
------------------------------
Augljósa hótun Breta er að sjálfsögðu sú -eins og Martin Wolf bendir á- ef sjálfstæðissinnar halda t.d. til streitu kröfunni um "currency union" og hóti að neita að samþykkja að taka hluta af skuldum Bretlands á sig við skilnaðinn.
- Þá hóti Englendingar - að halda olíunni í panti.
- Að Skotar fái hana ekki.
Ef Englendingar hóta þessu, þá kem ég í fljótu bragði ekki auga á neitt það sem Skotar geta gert, en England er eftir allt saman "herveldi" með allt í senn "landher" - "sjóher" og "flugher."
Meðan að nýsjálfstætt Skotland, mundi ekki eiga nokkurn her af nokkru tagi.
Það væri því Englendingum mjög auðveldur leikur, að láta sinn her og flota gæta olíulindanna.
- Eins og ég sagði, ég sé ekki hvernig Skotar komast hjá því, að taka á sig skuldir.
- Og á sama tíma, sé ég enga leið fyrir Skota, að knýja fram "gjaldmiðilssamstarf" ef Englendingar vilja það ekki.
Það mundi þíða -sennilega- að Skotum mundi einungis standa til boða að "halda pundinu" með "miklum afarkostum."
Ég í reynd mæli með því, að "sjálfstætt" Skotland - - taki upp sinn eigin gjaldmiðil, skoskt pund.
Niðurstaða
Þannig er það, að mig grunar að sjálfstætt Skotland endi fljótlega með nýjan gjaldmiðil. Þó svo að sjálfstæðissinnar lofi öllu fögru. Það sé einfaldlega ekki til staðar neitt það sem Skotar hafa í hendi. Til að neyða Englendinga til þess að "ganga að kröfum Skota" um samstarf um pundið, sem væri Skotum hagfellt.
Ég held að það væri á hæsta máta varasöm leið, að ætla að halda pundinu - án stuðnings nokkurs seðlabanka.
Það gæti kallað á hættu á "fjármálahruni" nánast án nokkurs fyrirvara.
Að sama skapi, muni Skotar ekki komast upp með - - að samþykkja ekki að taka á sig "sinn skerf" af skuldum Bretlands.
Englendingar muni þá hóta, að halda olíunni eftir - - og ég sé ekki neitt sem Skotar geta gert á móti, til að laga þá samningsstöðu sér í hag.
Þetta sé ekki beint þ.s. sjálfstæðissinnar séu að lofa.
- Það verður forvitnilegt að sjá hver verður niðurstaða kjósenda í Skotlandi.
Mér virðist því nokkur popúlismi vera í þeim loforðum til kjósenda, að Skotland muni halda pundinu.
-----------------------------------------
Það eru auðvitað nokkur fleiri óvissuatriði, eins og ég benti á um daginn:
Það eru ekki bara Skota sem dreymir um "sjálfstæði"
Kv.
Flokkur: Utanríkismál/alþjóðamál | Facebook
Um bloggið
Einar Björn Bjarnason
Nýjustu færslur
- Trump þarf ekki að kaupa eða taka yfir Grænland til að nýta m...
- Ætla að spá, Úkraínustríð standi enn yfir við lok 2025! Mér v...
- Jólakveðjur til allra, ósk um velfarnað fyrir nýja ríkisstjór...
- Mögnuð atburðarás hefur leitt til falls, Bashar al-Assads, fo...
- Þorgerður Katrín í oddaaðstöðu! Hún líklega algerlega ræður h...
- Sigur Donalds Trumps, stærsti sigur Repúblikana síðan George ...
- Ef marka má nýjustu skoðanakönnun FoxNews - hefur Harris þokk...
- Kamala Harris virðist komin með forskot á Trump í Elector-Col...
- Það að Úkraínuher er farinn að sprengja brýr í Kursk héraði í...
- Úkraínuher hóf innrás í Kursk hérað sl. mánudag! 5 dögum sein...
- Möguleikar Kamölu Harris til hugsanlegs sigurs á Donald Trump...
- Leiðir ris J.D. Vance - til fullkominna yfirráða milljarðamær...
- Er fall bandaríska lýðveldisins yfirvofandi - vegna ákvörðuna...
- Sérfræðingar vaxandi mæli þeirrar skoðunar, 2025 verði lykilá...
- Rússar hafa tekið 8 km. landræmu síðan sl. föstudag í NA-Úkra...
Eldri færslur
2025
2024
2023
2022
2021
2020
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
Bloggvinir
- eyglohardar
- bjornbjarnason
- ekg
- bjarnihardar
- helgasigrun
- hlini
- neytendatalsmadur
- bogason
- hallasigny
- ludvikjuliusson
- gvald
- thorsteinnhelgi
- thorgud
- smalinn
- addabogga
- agnarbragi
- annabjorghjartardottir
- annamargretb
- arnarholm
- arnorbld
- axelthor
- arnith2
- thjodarsalin
- formosus
- birgitta
- bjarnijonsson
- bjarnimax
- westurfari
- virtualdori
- bookiceland
- gattin
- davpal
- dingli
- doggpals
- egill
- jari
- einarborgari
- einarsmaeli
- erlaei
- ea
- fannarh
- fhg
- lillo
- gesturgudjonsson
- gillimann
- bofs
- mummij
- kallisnae
- gp
- gudmbjo
- hreinn23
- gudrunmagnea
- gmaria
- topplistinn
- skulablogg
- gustafskulason
- hallurmagg
- haddi9001
- harhar33
- hl
- diva73
- himmalingur
- hjaltisig
- keli
- fun
- johanneliasson
- jonsullenberger
- rabelai
- jonl
- jonmagnusson
- jonvalurjensson
- thjodarskutan
- gudspekifelagid
- juliusbearsson
- ksh
- kristbjorg
- kristinnp
- larahanna
- leifurbjorn
- lifsrettur
- wonderwoman
- maggij
- elvira
- olafureliasson
- olinathorv
- omarragnarsson
- ottarfelix
- rafng
- raksig
- redlion
- salvor
- samstada-thjodar
- fullvalda
- fullveldi
- logos
- duddi9
- sigingi
- sjonsson
- sigurjons
- stjornlagathing
- athena
- stefanbogi
- lehamzdr
- summi
- tibsen
- vala
- valdimarjohannesson
- valgeirskagfjord
- vest1
- vignir-ari
- vilhjalmurarnason
- villidenni
- thjodarheidur
- valli57
- tbs
- thorgunnl
- thorsaari
- iceberg
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.1.): 0
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 35
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 34
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Þú ert innskráð(ur) sem .
Innskráning