29.5.2014 | 00:49
Líbýa að verða að nýrri Sómalíu?
Líbýa hefur ekki beint verið efst á baugi í heimspressunni síðan Gaddhafi var steypt af stóli. En landið hefur nú í hátt á aðra viku verið í sinni verstu krísu, tja síðan átökin við Gaddhafi stóðu yfir. Núverandi bylgja hófst þegar dularfullur fyrrum hershöfðingi, Khalifa Hifter, hóf þ.s. hann kallaði herferð gegn íslamistum, með aðstoð "militia" sem hann kallar, "þjóðarher Líbýu" eða "Libyan National Army."
Khalifa Hifter, the ex-general leading a revolt in Libya, spent years in exile in Northern Virginia
Hifter virðist hafa átt nokkuð litríka æfi, þ.e. sem ungur liðsmaður hers Líbýu, tók hann virðist þátt í byltingunni er kom Gaddhafi til valda, komst síðar meir alla leið upp í tign hershöfðingja í her hans, gerðist síðar uppreisnarmaður gegn honum, orðrómur sterkur að hann hafi a.m.k. um tíma verið á launum frá CIA, enn síðar dúkkaði hann upp í Bandaríkjunum - er þar einhver ár, og að lokum er uppreisnin gegn Gaddhafi hefst, dúkkar hann að nýju upp í Líbýu, gerist einn af herforingjum uppreisnarinnar; en nú í dag er hann búinn að safna að því er virðist í kringum sig nokkrum hópi vopnaðra liðsveita "militias" sem innihalda einstaklinga "frústreraðir" á ástandinu í landinu.
Vandamál Líbýu virðist vera ástand er stendur afskaplega nærri stjórnleysi
En ein mikilvæg ástæða núverandi "flare-up" gæti þó legið í því, að um nokkurra mánaða skeið virðist vopnuð liðssveit hafa haldið aðal olíuútflutningshöfn landsins í herkví, að mestu stöðvað útflutning olíu. Þar með "þurrkað út að mestu peningalind" ríkisstjórnarinnar.
Það hafi verið mikilvægt atriði, því að stjórnin hafi viðhaft þá taktík, að "múta" sjálfstæðum hersveitum "militias" sem séu út um allt á víð á strái, vel yfir 100 talsins. Sem hafi skapað öryggisástand sem væri mjög vinsamlegt að túlka sem "ótryggt."
Libyan oil at heart of conflict with roots in countrys east
Sá hópur er hafi tekið olíuna þannig séð "trausta taki" standi fyrir hópa af fólki, er telji sig ekki hafa hingað til - séð nægilega mikið af olíutekjum landsins. Má því líkja aðferð hópsins við "gíslatöku" þ.e. "taka olíuna í gíslingu" og síðan að heimta "ransom" eða lausnargjald.
Og skv. fréttinni að ofan, virðist ríkisstj. á endanum hafa samið - - sem geti hugsanlega haft áhugaverðar afleiðingar. Ef flr. "militias" renna á þá lykt, að taka olíuna með þeim hætti í gíslingu. Þetta sýni vel hve ákaflega veik stjórnin sé.
Ríkisstjórn Bandaríkjanna sé orðin afar áhyggjufull, og hefur skipað öllum bandar. borgurum að hafa sig á brott: State Dept. Urges All Americans To Leave, US Sends Ship With 1,000 Marines For Evacuation
"The security situation in Libya remains unpredictable and unstable,... The Libyan government has not been able to adequately build its military and police forces and improve security following the 2011 revolution." ... "Many military-grade weapons remain in the hands of private individuals, including anti-aircraft weapons that may be used against civilian aviation. Crime levels remain high in many parts of the country."
Standoff virðist ríkja í Tripoli milli sveita Hifter og margvíslegra íslamista sveita, er styðja núverandi þing. Áhugaverða, að einstakir þingmenn séu gjarnan einnig - - með eigin "militia."
Libya's parliament approves new government
Libyan premier wins congress backing after ex-general's threats
Libya standoff emerges as premier refuses to yield to successor
Minnir mann dálítið á Ísland á tímum "goðaveldisins" þegar höfðingjarnir mættu á Þingvelli árlega, í föruneyti með sínum liðsmönnum. Nema í dag, bera menn hríðskotariffla - RPG og jafnvel enn þyngri vopn.
- Ríkisstjórnuninni né þinginu virðist ekki hafa tekist síðan 2011 að semja nýja stjórnarskrá.
- Né hafi tekist að endurreisa þjóðarher, sem geti tryggt öryggi innan landsins.
Í staðinn af veikum mætti, múti ríkisstjórnin foringjum hersveita, og nokkur fj. þeirra stærstu og öflugustu, hafi fengið "semi official status" þ.e. teljist formlega á vegum stjv. - - en þó í reynd áfram undir stjórn sinna foringja, ekki nema þegar það hentar hagsmunum viðkomandi foringja, sé farið eftir tilmælum stjórnarinnar.
Við þetta bætist, að það hafi verið töluvert um morð á áhrifamönnum, sérstaklega þeim sem áður störfuðu í tengslum við stjórn Gaddhafi - - menn eins og Hifter, augljóslega mundu sjá þau morð sem ógn. Þau rakin til hinna og þessara íslamista hreyfinga.
- Ég skil vel af hverju Bandar. hvetja sitt fólk að fara, en ástandið virðist sannarlega rétt lýst sem hættulegu, þ.e. þúsundir harðvopnaðra manna í mismunandi liðssveitum, með mismundandi markmið og stefnur, ögrandi hverjum öðrum.
- Vopnuð átök virðast liggja í loftinu, en Hifter hefur skv. áður fram komnum fréttum, heimtað að þingið leysi sig upp, sagt að það hafi tapað öllum trúverðugleika, á meðan sé valdaströggl í gangi innan þes, milli einstaklinga er hafi stuðning mismunandi vopnaðra fylkinga íslamista.
Niðurstaða
Niðurstaðan af því að Evrópuríki, með Frakkland og Ítalíu í broddi fylkingar. Ákváðu að styðja við vopnaða uppreisn gegn Muammar Gaddhafi 2011. Getur verið að Evrópa upplifi það ástand að hafa land í algerri upplausn rétt handan við Miðjarðarhaf. Ástandsins í Líbýu gætir örugglega í straumi margvíslegra bátskrifla og kæna yfir Miðjarðarhaf - margir líklega drukkna á leiðinni.
En ef hinn dularfulli Hifter væri með nægilega öflugar liðssveitir, væri hann líklega þegar að ráðast að andstæðingum sínum. Þess í stað sé "stand-off" sem geti hvenær sem er að því er virðist, leist upp í átök. Þau átök gætu orðið endalok tilraunarinnar til að halda uppi einhvers konar ríkisstjórn fyrir landið. En án þess að nokkur ein fylking rísi upp sem - yfirgnæfandi sterk.
Útkoma upplausn.
Kv.
Flokkur: Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 12:14 | Facebook
Um bloggið
Einar Björn Bjarnason
Nýjustu færslur
- Sigur Donalds Trumps, stærsti sigur Repúblikana síðan George ...
- Ef marka má nýjustu skoðanakönnun FoxNews - hefur Harris þokk...
- Kamala Harris virðist komin með forskot á Trump í Elector-Col...
- Það að Úkraínuher er farinn að sprengja brýr í Kursk héraði í...
- Úkraínuher hóf innrás í Kursk hérað sl. mánudag! 5 dögum sein...
- Möguleikar Kamölu Harris til hugsanlegs sigurs á Donald Trump...
- Leiðir ris J.D. Vance - til fullkominna yfirráða milljarðamær...
- Er fall bandaríska lýðveldisins yfirvofandi - vegna ákvörðuna...
- Sérfræðingar vaxandi mæli þeirrar skoðunar, 2025 verði lykilá...
- Rússar hafa tekið 8 km. landræmu síðan sl. föstudag í NA-Úkra...
- Rússland getur hugsanlega haldið fram Úkraínustríði, allt að ...
- Rússland ætlar að hætta stuðningi við uppreisnarmenn í Súdan ...
- Gríðarlega mikilvægt að Úkraína fær bráðnauðsynlega hernaðara...
- Ég er eindregið þeirrar skoðunar - Ísrael geti ekki unnið str...
- Trump, hefur viðurkennt að geta ekki greitt - 464 milljón dol...
Eldri færslur
2024
2023
2022
2021
2020
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
Bloggvinir
- eyglohardar
- bjornbjarnason
- ekg
- bjarnihardar
- helgasigrun
- hlini
- neytendatalsmadur
- bogason
- hallasigny
- ludvikjuliusson
- gvald
- thorsteinnhelgi
- thorgud
- smalinn
- addabogga
- agnarbragi
- annabjorghjartardottir
- annamargretb
- arnarholm
- arnorbld
- axelthor
- arnith2
- thjodarsalin
- formosus
- birgitta
- bjarnijonsson
- bjarnimax
- westurfari
- virtualdori
- bookiceland
- gattin
- davpal
- dingli
- doggpals
- egill
- jari
- einarborgari
- einarsmaeli
- erlaei
- ea
- fannarh
- fhg
- lillo
- gesturgudjonsson
- gillimann
- bofs
- mummij
- kallisnae
- gp
- gudmbjo
- hreinn23
- gudrunmagnea
- gmaria
- topplistinn
- skulablogg
- gustafskulason
- hallurmagg
- haddi9001
- harhar33
- hl
- diva73
- himmalingur
- hjaltisig
- keli
- fun
- johanneliasson
- jonsullenberger
- rabelai
- jonl
- jonmagnusson
- jonvalurjensson
- thjodarskutan
- gudspekifelagid
- juliusbearsson
- ksh
- kristbjorg
- kristinnp
- larahanna
- leifurbjorn
- lifsrettur
- wonderwoman
- maggij
- elvira
- olafureliasson
- olinathorv
- omarragnarsson
- ottarfelix
- rafng
- raksig
- redlion
- salvor
- samstada-thjodar
- fullvalda
- fullveldi
- logos
- duddi9
- sigingi
- sjonsson
- sigurjons
- stjornlagathing
- athena
- stefanbogi
- lehamzdr
- summi
- tibsen
- vala
- valdimarjohannesson
- valgeirskagfjord
- vest1
- vignir-ari
- vilhjalmurarnason
- villidenni
- thjodarheidur
- valli57
- tbs
- thorgunnl
- thorsaari
- iceberg
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (25.11.): 2
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 28
- Frá upphafi: 856035
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 25
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Ég held, því miður, að þetta sé nokkuð rétt metið hjá þér. Afleiðingarnar af því að ráðast á Líbýu eru ekki bara hryllilegar, heldur voru þær líka fyrirsjáanlegar. Ábyrgðin er þeirra stjórnmálamanna sem ákváðu þetta, og er Össur Skarphéðinsson fulltrúi Íslands í þeim hópi.
Vésteinn Valgarðsson, 29.5.2014 kl. 11:22
Á sínum tíma hafði Sómalía einræðisherra, Habre, sem varð undir er nokkur fj. "tribal leiðtoga" reis upp gegn honum, og á endanum gersigruðu sveitir hans og tóku höfuðborgina. Síðan gátu þær fylkingar ekki komið sér saman um framtíðar stjórn landsins, nokkuð sambærilegt við það ástand er nú er til staðar í Líbýy. Það má að einhverju leiti líkja núverandi stjórn í Líbýu við þá stjórn í Sómalíu, sem komið var á fót fyrir nokkrum árum eftir innrás hers Eþíópíu. En sem eins og stjórnin núverandi innan Líbýu er ófær um að stjórna landinu. Þessi Hifter virðist ekki hafa nægilega öflugar sveitir, til að drottna yfir hinum sveitunum og verða nýr einræðisherra. Þó maður gruni að á endanum muni hann gera tilraun til þess. En þau átök verði þá sennilegar til þess að landið verði hólfað algerlega milli stríðandi fylkginga. Líklega verði einstök hverfi í höfuðborginni undir stjórn sitt hverrar, ekki ósvipað ástandinu er ríkti í Sómalíu eftir fall Habre stjórnarinnar. Það auðvitað blasir við - - endalaus flóttamannastraumur frá Líbýu. Sem þá bitnar á Evrópu á næstu árum jafnvel áratugum.
Kv.
Einar Björn Bjarnason, 29.5.2014 kl. 12:22
Sælir heiðursmenn - Einar Björn og Vésteinn !
Má til - að koma hér að: lítilsháttar leiðréttingu Einar Björn.
Hissene Habre: var fyrrum einvaldur Chad.
Mohamed Ziad Barre: aftur á móti / í Sómalíu á sínum tíma.
Svo - tl haga skyldi haldið ágætu drengir.
Með beztu kveðjum sem oftar - af Suðurlandi /
Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 29.5.2014 kl. 13:17
Sæll Einar Björn
Við könnumst við allar þær lygar sem að vestrænir fjölmiðlar spiluðu og endurtóku hvað eftir annað svo að NATO gæti fengið að ráðast inn í Líbýu (Lies of the Libyan War , Lies, slaughter, capital: The 2011 NATO intervention in Libya, part two og Nato invasion of Libya based on a tissue of lies), rétt eins og þessar lygar um að gjöreyðingarvopn væru þarna einhverstaðar í Írak, eða svo að hægt væri að ráðast og/eða hefja þetta stríð gegn Írak. Þó það sé nú annað mál þá verða örugglega notaða einhverjar svona svipaðar lygar aftur svo að hægt sé að ráðast með fjölþjóðaher inn í Sýrland og Íran, því að það þarf greinilega að uppfylla stefnu neocons (öðru nafni Ziocon) með ráðast inn í þessi lönd og halda upp stríði og hvað eina, eins og hann General Wesley Clark og fleiri hafa uppljóstrað um (sjá https://www.youtube.com/watch?v=m58jF8_KgzI ), ekki satt? Eins og Vésteinn segir hér fyrir ofan, þá liggur ábyrgðin samt sem áður hjá stjórnmálamönnum er ákváðu þetta.
Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 29.5.2014 kl. 18:39
CIA-linked rogue general stirs three-front militia war in Libya
Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 29.5.2014 kl. 18:59
Óskar Helgi Helgason, takk fyrir leiðréttinguna.
Kv.
Einar Björn Bjarnason, 30.5.2014 kl. 02:05
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Þú ert innskráð(ur) sem .
Innskráning