13.4.2014 | 21:23
Borgarastríð að hefjast í Úkraínu?
Haft eftir Reuters, þá stefnir í "hörð" átök á morgun , mánudag 14. apríl, í héröðum Úkraínu á landamærunum við Rússland. En á sunnudag varð nokkur fjöldi af pústrum sem leiddi til dauða a.m.k. eins úr liði úkraínskra öryggissveita. Oleksander Turchinov settur forseti Úkraínu til bráðabirgða, hefur nú sett vopnuðum uppreisnarmönnum í landamærahéröðum "úrslitakosti" að gefast upp, eða sæta hernaðarárás.
"Pro-Russian men stand guard at a barricade near the police headquarters in Slaviansk April 13, 2014. "
Eins og staða mála er, þá bendir margt til þess að bráðabirgðastjórnin í Kíev, njóti mjög lítils stuðning í A-héröðum Úkraínu. Þvert á móti, virðist andstaða við hana útbreidd á þeim svæðum. Fyrir bragðið geti ástand mála á þeim svæðum, verið - - afskaplega eldfimt.
Ukraine gives rebels deadline to disarm or face military operation
Oleksander Turchinov - "The National Security and Defence Council has decided to launch a full-scale anti-terrorist operation involving the armed forces of Ukraine,"
U.N. Security Council meets over Ukraine hours before deadline
"We will not allow Russia to repeat the Crimean scenario in the eastern regions of Ukraine,""Valentyn Nalyvaichenko, head of Ukraine's state security service (SBU), said in a televised interview, "If they open fire, we will annihilate them. There should be no doubt about this,""
Áhugavert orðalag, þ.s. Turchinov kalla þá sem hafa tekið sér stöðu á bæjarskrifstofum, lögreglustöðum, sett upp vegatálma - - hryðjuverkamenn.
Þetta hljómar sem klassískt dæmi um fyrirbæri sem nefnist á ensku "demeaning" - - > Form af áróðri.
Höfum þó eitt í huga, að ef þessi mótmælendur/uppreisnarmenn njóta umtalsverðs fylgis meðal íbúa, í Luhans og Donetsk héruðum, gætu þessi ummæli - skapað reiði og úlfúð, aukið samúð stuðning íbúa með þeim.
- Fram að þessu hefur 1. látið lífið, áður en öryggissveitir gripu til aðgerða, hafði enginn látið lífið - enginn svo vitað séð slasast.
- Sem segir mér, að nafnbótin "hryðjuverkamenn" sé "ósanngjörn" - einmitt hvers vegna, sú orðanotkun gæti virkað öfugt á íbúa þessara héraða.
- Þ.e. þó spurning, þ.s. því er haldið fram af stjórnvöldum í Washington, og í Kíef, að sumir hóparnir séu "þrautskipulagðir" og geti verið "rússn.flugumenn." Það er að sjálfsögðu hugsanlegt, þó það sé rétt að benda einnig á, að þ.e. einnig möguleiki á að um sé að ræða rússn.mælandi Úkraínumenn, sem gegni herskyldu - "sem séu þess vegna með hulin andlit svo þeir þekkist ekki." En í svo klofnu landi, gæti ég vel trúað því til - að hluti af hernum reynist vera klofinn, eins og landið sjálft.
Átökin virðast vera í Luhansk og Donetsk héröðum! Sjá mynd!
Að sjálfsögðu hafa "lögleg" stjórnvöld fullan rétt til gagnaðgerða, til að mæta "ólöglegum mótmælum" en þ.e. þ.s. þessar aðgerðir "réttilega nefnast" þ.e. ólögleg mómæli. Sérstaklega ef "mótmælendur" eru vopnaðir - beita ógnunum. Þá eru þeir komnir nærri því að réttilega teljast "uppreisnarseggir."
- Auðvitað er rétt að nefna, að "réttmæti" núverandi stjórnvalda í Kíev, er ekki beint hafið yfir vafa.
- Síðan hafa Rússar a.m.k. 30þ. manna lið fullbúið vopnum, og að sögn NATO "very very ready for action" - - sumir segja að það sé fjölmennara, nær 50þ.
- En a.m.k. er það miklu sterkara en það herlið sem núverandi stjv. Úkraínu geta beitt.
- Og þ.e. alveg hugsanlegt, að ef það verða blóðug átök á morgun, þ.s. fj. rússn.mælandi borgara í Úkraínu fellur fyrir aðgerðum sveita á vegum núverandi stjórnvalda í Kíev, þá verði það "casus belli" fyrir Pútín. Ef ekki, þá gæti slík aðgerð, æst til frekari uppþota - - jafnvel hugsanlega, almennrar uppreisnar.
- Ég er ekki að segja, að stjórnvöld í Kíev, eigi ekkert að gera. En þau eru stödd úti á óeiginlegu jarðsprengjusvæði, mistök sérstaklega blóðug mistök, geta kosta þau gríðarlega mikið - þ.e. heil héröð geti flosnað upp í almenna uppreisn.
- Auðvitað, ef aðgerðin á morgun heppnast vel, í þeim skilningi að það verður óverulegt eða jafnvel ekkert mannfall, og stjórnvöld ná fullu valdi á stöðunni. Þá mun Oleksander Turchinov hafa lesið stöðuna rétt.
- En ef þetta fer svo, að það verður verulegt mannfall meðal "mótmælenda/uppreisnarmanna" og samtímis, það mistekst að kveða þá uppreisn niður, gæti morgundagurinn - - markað upphaf borgarastríðs í Úkraínu.
Á þessari stundu er ekkert unnt að spá. Eina sem unnt er að gera er að fylgjast áfram með rás atburða.
------------------------------------------------
Skv. nýjustu fréttum, virðast andstæðingar stjórnvalda í Luhans og Donetsk héruðum, vera að mæta úrslitakostum setts forseta Úkraínu, með því að "storka" honum - með frekari aðgerðum:
Ukraine President threatens military operation as unrest grows
- Einn möguleiki er sá, að stjórnvöld í Kíev, lyppist niður þori ekki að beita þeirri hörku, sem þau hótuðu á sunnudag, en þá auðvitað verða líkur yfirgnæfandi á því að héröðin 2-yfirgefi fljótlega Úkraínu.
- Eftir að sýnt hafi verið fram á veikleika Kíev stjórnarinnar. En þ.e. ekki endilega víst, að það rói ástandið, þá gætu andstæðingar Kíev stjórnarinnar gert atlögu að enn flr. héröðum. Þ.s. rússn.mælandi eru ekki í meirihluta í flr. héröðum en Luhansk og Donetsk. Gætum við séð rísa upp, bein átök milli þjóðahópanna í kjölfarið í héröðum þ.s. rússn.mælandi eru a.m.k. fjölmennur minnihluti.
- Ef sá hópur gerir atlögu að því, að taka yfir stjórn mála í þeim héröðum. Þá gætu úkraínsku mælandi, risið upp á móti.
Eins og sést á mynd að ofan, eru rússn.mælandi fjölmennur minnihluti í nokkrum héröðum til viðbótar.
Niðurstaða
Ég virkilega óttast þann möguleika að borgaraátök séu við það að hefjast í Úkraínu. En að mörgu leiti finnst mér atburðarásin líkjast rás atburða í Júgóslavíu. Áður en manndráp hófust að ráði. En það liðu margir mánuðir, meðan að spenna var að hlaðast upp, áður en manndráp hófust. En þegar þau á annað borð voru hafin - var óneitanlega sérstakt hve hratt þau undu upp á sig. Miðað við það hve blönduð mörg héröð eru, gætu borgaraátök í þessu landi, einnig eins og í Júgóslavíu leitt til þjóðernishreinsana. Sem mundi þá þíða flóttamannastraum. Þ.s. þetta er fjölmennt land, þ.e. 2-falt fjölmennara en Sýrland. Gæti sá flóttamannastraumur ef allt fer á versta veg, orðið mjög umtalverður.
Það þarf varla að benda á, að á sama tíma, ef þetta þróast yfir í borgarastríð, og það má þá búast við því að uppreisnarmenn í A-hlutanum muni njóta stuðnings Rússa, og stjórnvöld í Kíev stuðnings Vesturvelda.
Að borgarastríð mun þá skapa frekari spennu í samskiptum Vesturvelda og Rússlands.
Auk þess að sá möguleiki á efnahagstjóni fyrir Evrópu, er sannarlega til staðar ef mál þróast svo herfilega illa.
Kv.
Flokkur: Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt 14.4.2014 kl. 12:59 | Facebook
Um bloggið
Einar Björn Bjarnason
Nýjustu færslur
- Mögnuð atburðarás hefur leitt til falls, Bashar al-Assads, fo...
- Þorgerður Katrín í oddaaðstöðu! Hún líklega algerlega ræður h...
- Sigur Donalds Trumps, stærsti sigur Repúblikana síðan George ...
- Ef marka má nýjustu skoðanakönnun FoxNews - hefur Harris þokk...
- Kamala Harris virðist komin með forskot á Trump í Elector-Col...
- Það að Úkraínuher er farinn að sprengja brýr í Kursk héraði í...
- Úkraínuher hóf innrás í Kursk hérað sl. mánudag! 5 dögum sein...
- Möguleikar Kamölu Harris til hugsanlegs sigurs á Donald Trump...
- Leiðir ris J.D. Vance - til fullkominna yfirráða milljarðamær...
- Er fall bandaríska lýðveldisins yfirvofandi - vegna ákvörðuna...
- Sérfræðingar vaxandi mæli þeirrar skoðunar, 2025 verði lykilá...
- Rússar hafa tekið 8 km. landræmu síðan sl. föstudag í NA-Úkra...
- Rússland getur hugsanlega haldið fram Úkraínustríði, allt að ...
- Rússland ætlar að hætta stuðningi við uppreisnarmenn í Súdan ...
- Gríðarlega mikilvægt að Úkraína fær bráðnauðsynlega hernaðara...
Nýjustu athugasemdir
- Mögnuð atburðarás hefur leitt til falls, Bashar al...: Margar þjóðir eru tibúnar að hjálpa til við uppbygginguna en sú... 9.12.2024
- Mögnuð atburðarás hefur leitt til falls, Bashar al...: Grímur Kjartansson , Sýrland er efnahagslega rjúkandi rúst - ei... 9.12.2024
- Mögnuð atburðarás hefur leitt til falls, Bashar al...: Mér skilst að al-Jilani hafi keypt sér liðveislu USA með því a... 9.12.2024
- Þorgerður Katrín í oddaaðstöðu! Hún líklega algerl...: Ásgrímur Hartmannsson , grímur -- Viðreisn er hægri flokkur. Ha... 8.12.2024
Eldri færslur
2024
2023
2022
2021
2020
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
Bloggvinir
- eyglohardar
- bjornbjarnason
- ekg
- bjarnihardar
- helgasigrun
- hlini
- neytendatalsmadur
- bogason
- hallasigny
- ludvikjuliusson
- gvald
- thorsteinnhelgi
- thorgud
- smalinn
- addabogga
- agnarbragi
- annabjorghjartardottir
- annamargretb
- arnarholm
- arnorbld
- axelthor
- arnith2
- thjodarsalin
- formosus
- birgitta
- bjarnijonsson
- bjarnimax
- westurfari
- virtualdori
- bookiceland
- gattin
- davpal
- dingli
- doggpals
- egill
- jari
- einarborgari
- einarsmaeli
- erlaei
- ea
- fannarh
- fhg
- lillo
- gesturgudjonsson
- gillimann
- bofs
- mummij
- kallisnae
- gp
- gudmbjo
- hreinn23
- gudrunmagnea
- gmaria
- topplistinn
- skulablogg
- gustafskulason
- hallurmagg
- haddi9001
- harhar33
- hl
- diva73
- himmalingur
- hjaltisig
- keli
- fun
- johanneliasson
- jonsullenberger
- rabelai
- jonl
- jonmagnusson
- jonvalurjensson
- thjodarskutan
- gudspekifelagid
- juliusbearsson
- ksh
- kristbjorg
- kristinnp
- larahanna
- leifurbjorn
- lifsrettur
- wonderwoman
- maggij
- elvira
- olafureliasson
- olinathorv
- omarragnarsson
- ottarfelix
- rafng
- raksig
- redlion
- salvor
- samstada-thjodar
- fullvalda
- fullveldi
- logos
- duddi9
- sigingi
- sjonsson
- sigurjons
- stjornlagathing
- athena
- stefanbogi
- lehamzdr
- summi
- tibsen
- vala
- valdimarjohannesson
- valgeirskagfjord
- vest1
- vignir-ari
- vilhjalmurarnason
- villidenni
- thjodarheidur
- valli57
- tbs
- thorgunnl
- thorsaari
- iceberg
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.12.): 0
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 31
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 28
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Sæll Einar, er ekki málið að úkraína liggur á mörkum tveggja ólíkra menningarheima og þjóðfélaginu hefur verið haldið saman með aga líkt og var gert í júgóslavíu meðan Tito var og hét, þegar aginn brestur þá fer hver að hugsa um eigið skinn og nokkuð ljóst að það fólk sem er af Rússneskum uppruna og hefur Rússneskan kúltur því hugnast tæplega að lenda í klónum á ESB.
Kristján B Kristinsson (IP-tala skráð) 14.4.2014 kl. 10:19
Það er örugglega töluvert til í þessu "tveggja menningarheima" V.hl. Úkraínu var lengi undir stjórn Póllands. Á undan tæpar 150 ár á V-svæðinu sjálfstætt ríki, Galicia-Volhynia. Stofnað 1199 - lagt niður 1349. Það var þó "dóminerað" en ekki undir beinni stjórn granna:
"Vassal of Kingdom of Hungary (1214-1232)
Golden Horde (1243-1339)"
"Only in 1349, after the occupation of Galicia–Volhynia by an allied Polish-Hungarian force, the Kingdom of Galicia–Volhynia was finally conquered and incorporated in Poland."
Á miðri 17. öld var þarna nokkurs konar, kósakka ríki, undir eigin stjórn - en einnig dóminerað af nágranna ríkjum, Zaporozhian Host.
En á 18. öld í tíð Katrínar miklu, var svæðið tekið undir beina stjórn Rússlands.
En eins og þessi stutta saga sýnir, hefur V-svæðið lengst af sögunni, verið annaðhvort með verulegt sjálfstæði, eða undir beinni stjórn granna, en þó einungis Rússa síðan 18. öld.
Það þíðir væntanlega að menningarlega, er töluverður munur á V-svæðinu og A-svæðinu. Nægar ástæður til þess, að það sé til staðar "sérstök þjóðernishyggja" á V-svæðinu.
Að fólkið á V-svæðinu virkilega hugsi með öðrum hætti, en fólkið á A-svæðinu.
Kv.
Einar Björn Bjarnason, 14.4.2014 kl. 12:49
Svo er bara spurningin, ef neisti hleypur í þessa púðurtunni og utanaðkomandi afskifti hefjast, hvað gerist þá?
Kristján B Kristinsson (IP-tala skráð) 14.4.2014 kl. 14:32
Sæll Einar Björn
Það er satt að það er eins og þetta séu tveir ólíkir menningarheimar, og ástandið þarna er eins og gefur að skilja hræðilegt.
Nú "..ef neisti hleypur í þessa púðurtunni.." sem að menn hans John Brennan og allt þetta CIA vill koma af stað þá má Guð vita hvað skeður næst, en þetta allt hjá þeim líkist því sem átti sér stað rétt fyrir Líbýu stríðið.
US must explain CIA chief’s Kiev visit: Lavrov http://www.presstv.ir/detail/2014/04/14/358520/us-must-explain-cias-kiev-visit/
Ukraine crisis, US plot to launch nuclear war with Russia: Expert http://www.presstv.ir/detail/2014/04/14/358540/us-seeks-nuclear-war-with-russia/
Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 14.4.2014 kl. 17:18
Former CIA Affiliate Tell All: http://www.globalresearch.ca/former-cia-affiliate-tells-all-the-cia-role-behind-the-anti-government-protests-in-venezuela/5377803
Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 14.4.2014 kl. 20:24
Kristján, þ.e. einmitt þ.s. ég óttast, að ef átökin spinnast af stað, fari þetta í svipað far og í Sýrlandi þ.s. Vesturlönd styðja annan aðilann en Rússland hinn, höfum í huga að fólksfj. er mjög nærri akkúrat 2-faldur sá sem er í Sýrlandi. Ef það fer það illa, gæti þetta orðið mjög stórt vandamál fyrir Evrópu.
Kv.
Einar Björn Bjarnason, 15.4.2014 kl. 01:03
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Þú ert innskráð(ur) sem .
Innskráning