Átti Ísland að veita Snowden hæli?

Sumir setja málið með mjög einföldum hætti fram, að Íslendingar eigi að standa með "réttlæti" - Snowden standi frammi fyrir hættu á dauðarefsingu sem sé mannvonska eða villimennska, hann hafi að auki með gerðum sínum, gert mannkyni öllu greiða þar með okkur. Með því að veita honum hæli, stæðum við með réttlæti gegn ranglæti, gegn mannvonsku - verðlaunuðum að auki hans greiðasemi við alla.

  • En það eru mun fleiri sjónarmið sem máli skipta, eins og hverjar væru afleiðingar þess að veita honum hæli fyrir Ísland og Íslendinga?
  • Íslendingar hafa sannarlega stöku sinnum tekið áhættu í deilum við aðrar þjóðir, en í öllum tilvikum hefur legið undir - barátta fyrir lífskjörum allra landsmanna.

Rétt er að halda til haga, að í deilum við Breta um fiskveiðar við landið, þá er vitað að Bandaríkin héldu aftur af Bretum, þannig að þeir t.d. sökktu ekki varðskipum okkar með sprengikúlnahríð á nokkrum mínútum. Þeir voru beittir þrýstingi Bandaríkjanna, um að beita engum vopnum - sem þeir gerðu ekki. Þannig voru þeir reynd í þorskastríðunum með hendur fyrir aftan bak.

Við höfum aldrei raunverulega deilt við Bandaríkin, ég kalla það ekki deilu þegar þeir kvöddu herinn heim, enda augljóst aldrei á okkar valdi að halda þeim hér er þeir lengur vildu ekki hafa sinn her hérna.

Þau hafa í fjölda tilvika - sýnt okkur velvilja:

  1. Ísland fékk að vera hluti af Marshall áætlun Bandaríkjanna fyrir Evrópu, þó hér hefði ekki verið neitt tjón á landi af völdum stríðsins - - en Ísland var enn ákaflega fátækt á þeim árum og vanþróað á margan hátt. Eiginlega var þetta "þróunaraðstoð."
  2. Eftir að Marshall aðstoð lauk formlega, fengu nokkur ríki aðstoð áfram - þar á meðal Ísland. Ég er að tala um gjaffé ekki lán. T.d. var Sementsverksmiðjan á Akranesi byggð fyrir bandar. gjafpeninga á þeim árum. Þessari aðstoð lauk á 8. áratugnum. Þegar Ísland var ekki lengur talið vera "þróunarland."
  3. Ekki gleyma þeim tilvikum sem þrýstingur hefur verið af hálfu umhverfissamtaka í Bandaríkjunum, um það að setja á Ísland viðskiptabann vegna hvalveiða. Sem alltaf hefur fram að þessu verið hafnað af bandar. stjv.

Við þekkjum þau ríki sem njóta íllvilja Bandaríkjanna:

  1. Íran er þar framarlega í flokki. Ein þyngsta refsingin sem Bandaríkin beita. Er bann við því að fyrirtæki sem starfa í Bandaríkjunum, þar á meðal bankar. Eigi viðskipti við Íran. Hafið í huga, þetta á við fyrirtæki sem starfa innan lögsögu Bandar., þar á meðal fyrirtæki í erlendri eigu.
  2. Það þíðir í reynd, að fyrirtæki sem verslar við Íran, má ekki eiga nokkra starfsemi innan Bandaríkjanna, þar á meðal bankar. Þetta bann nær yfir erlend fyrirtæki, þannig að þeim er þá bannað að eiga í fyrirtækjum sem starfa innan Bandar. eða reka útstöðvar í Bandar., ef þau eiga viðskipti v. Íran.
  3. Það er ekki bara það, heldur er einnig auki er fyrirtækjum starfandi í Bandar. bannað að eiga fyrirtæki sem eiga viðskipti við Íran.
  • Ég get ekki fullyrt að Bandaríkin myndu beita okkur þetta þungu úrræði.
  • En þ.e. möguleiki.
  • Þetta bann er mjög öflugt, því það fælir almennt frá öll stærri alþjóðleg fyrirtæki.
  • Setur land sem beitt er því banni, í djúpfrysti - hvað erlendar fjárfestingar varðar eða viðskipti almennt.
  • Það verður mjög erfitt fyrir það land, að eiga utanríkisviðskipti.

 

Punkturinn er sá að áhættan af því fyrir Íslendinga að heimila Snowden að koma hingað, er gersamlega óútreiknanleg!

Ég er gersamlega viss um það, að það yrði aldrei svo að Bandaríkin gerðu nákvæmlega ekki neitt. Eina spurningin er - hversu harkalegar yrðu aðgerðir þeirra í kjölfarið. Og því, hve mikið yrði tjón á formi lífskjara fyrir Íslendinga. En það þarf vart um að efast - - að ef Snowden kæmi hingað. Myndu þær aðgerðir halda áfram svo lengi sem hann væri hér enn. Einungis ef hann væri afhentur bandar. yfirvöldum, myndu þær hætta. Ef hann t.d. væri sendur til 3-lands. Myndu þær líklega ekki hætta.

Jafnvel þó að Snowden væri síðar meir afhentur, væri líklega um varanlegt tjón á samskiptum við Bandaríkin að ræða.

Þ.e. velviljinn væri líklega varanlega tapaður. Sem myndi örugglega hafa margvíslegar neikvæðar afleiðingar síðar. T.d. næst þegar umhverfissamtök í Bandar. krefjast viðskiptaaðgerða gagnvart Íslandi vegna hvalveiða.

  • Mig grunar að svo harkalega yrðu aðgerðir Bandaríkjanna gagnvart okkur, að um mjög umtalsvert lífskjaratjón yrði að ræða, auk umtalsverðs viðbótar atvinnuleysis.
  • Það myndi líklega leiða landið í greiðsluþrot í stíl við Argentínu.
  • Ekki síst, að líklega myndi engin þjóð koma okkur til aðstoðar - en ég bendi á að ekki stóðu Norðurlandaþjóðir með okkur í Icesave deilunni, þegar Bretar og Hollendingar töfðu afgreiðslu AGS láns þegar gjaldeyrissjóður okkar var þurrausinn í kjölfar bankahruns, þá lögðust þau á árarnar með Hollendingum og Bretum, þegar okkur var í reynd hótað gjaldþroti.
  • Þarna örugglega var um að ræða hreinan hagsmunaútreikning Norðurlandanna, að þau hefðu meiri hagsmuna af góðum samskiptum við Bretland og Holland en við Ísland. Það mun algerlega pottþétt endurtaka sig ef Bandaríkin beita okkur refsiaðgerðum - - að þjóðir munu hugsa um sjálfar sig, sína hagsmuni, og meta að það borgi sig ekki að styggja Bandaríkin.
  • Við stæðum því algerlega ein gagnvart reiði Bandaríkjanna, eins og í dag Snowden sem einstaklingur gerir.


Ég skal ekki fullyrða að Snowden eigi enga samúð skilið!

En honum gat ekki dulist að hann yrði eftirlýstur af Bandaríkjunum, ef hann myndi leka mikilvægum gögnum. Honum gat ekki verið ókunnugt um réttarhöldin yfir Bradley Manning, að Manning væri líklegur að fá ævilangt fangelsi. Eða um það að stofnandi WikiLeeks er hundeltur af Bandaríkjunum, og einangraður í sendiráði Bólivíu í London þaðan sem hann líklega kemst ekki næstu árin.

Þannig séð kom hann sér vísvitandi í þann vanda sem hann er í þessa dagana, enda hefur hann viðurkennt að hafa tekið það starf er hann hafði síðast - til þess að safna gögnum í því skini að leka þeim.

Eins og Julian Assange, þá virðist hann í eigin krossferð gegn leynistofnunum Bandaríkjanna, í baráttu fyrir því að allt sé upplýst - ákveðin hugmyndafræðileg afstaða að leynistarfsemi njósnir almennt sé rangur hlutur.

  • Þarna snýr rétt eða rangt um hugmyndafræðilega afstöðu.
  1. Punkturinn er sá - - að burtséð frá þeirri hugmyndafræðilegu sýn á það hvort njósnir séu rangur hlutur, og söfnun leyndra upplýsinga almennt.
  2. Þá getur það ekki verið réttmætt - - að leggja í svo áhættusama vegferð fyrir heila þjóð, að bjarga einum einstaklingi frá réttvísi eigin þjóðar, þegar um er að ræða öflugustu þjóð heimsins og sú þjóð sem á í hlut á móti er ein af þeim veikustu í heiminum. Getur enga björg sér veitt, ef stórþjóðin beitir sér gegn henni - - sem hún alveg pottþétt mun gera.
  • Það getur ekki verið réttmætt, að tryggja rétt eins einstaklings, þegar það kostar mjög verulegar fórnir fyrir hóp einstaklinga sem telur heila þjóð þó sú þjóð teljist vera smá. 
  • Hópurinn hlýtur að hafa rétt líka - - hagsmunir margra einstaklinga, framtíð næstu kynslóðar þeirra jafnvel næstu kynslóða þeirra; hlýtur að vera mikilvægari á vogarskálunum.

Þannig að þegar við metum hvað telst rétt vs. rangt.

Þá væri það röng aðgerð að veita Snowden hæli á Íslandi.

Fyrir utan að það væri ólíklegt að við gætum varið hann fyrir bandar. flugumönnum, sem myndu vilja ræna honum upp á hvern dag áratugina á eftir þar til hann væri kominn í gröfina.

Og ekkert bendir til þess að fórn Snowden, þó við bætum í púkkið fórn allra Íslendinga á sínum lífskjörum til nútíðar og framtíðar; hefði nokkur hin minnstu áhrif í þeirri baráttu sem þeir sem eru á móti njósnum og söfnun upplýsinga í njósnaskyni - standa fyrir.

 

Niðurstaða

Einstaklinga eiga rétt á að fórna sinni framtíð er þeir berjast fyrir málstað sem þeir trúa á. En allt annað gegnir um það að taka ákvörðun sem myndi leiða til sambærilegrar fórnar fyrir heila þjóð. Það getur ekki talist réttmæt fórn eða sjálfsögð. Jafnvel þó málsstaðurinn væri góður. Ekki síst þegar líkur þess að sú fórn hefði áhrif virðast fjarskalega litlar og í reynd litlar sem engar. Barátta við vindmyllur.

Sannleikurinn er sá, að njósnir munu halda áfram hvað sem hver segir. Internetið er einfaldlega nýr vettvangur fyrir njósnastarfsemi. 

Í ljósi þess að mikið af skipulagðri glæpastarfsemi er til staðar á netinu, auk skipulagðrar hryðjuverkastarfsemi, er það mjög "barnalegt" að ætla að ekki verði njósnað um netiið.

Megin spurningin snýr ekki um að banna upplýsingasöfnun, heldur um notkun þeirra upplýsinga, að það sé nægt eftirlit með slíkri starfsemi af hálfu hvers lands fyrir sig.

Réttmætt er því að þrýsta á þau ríki sem stunda mjög virkar njósnir af þessu tagi, að gæta að því hvernig þeim upplýsingum er beitt. En vitað er að Bandaríkin - Bretland - Frakkland - Kína og örugglega Rússland a.m.k., stunda slíkar njósnir. Örugglega mun fleiri.

Þetta er hlutverk almennings í hverju landi fyrir sig, og auðvitað þurfa ríkin að íhuga áhrifin af sínum njósnum á samskipti sín á milli. Þegar allir njósna um alla að þvi er virðist.

 

Kv.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: hilmar  jónsson

Bla bla bla...... Annað hvort hefurðu samvisku og stendur með henni eða ekki.

Málið er ekkert mikið flóknara.

hilmar jónsson, 5.7.2013 kl. 21:49

2 Smámynd: Jóhann Kristinsson

Margt til í þessum vangaveltum hjá þér Einar Björn.

Gæti kanski verið að einn af okkar HÍ prófessorum,(var hann ekki ráðherra um tíma og varð að hröklast úr þeirri stöðu vegana getuleisis) þessi sem sagði að Ísland yrði að Kúbu Norðursins ef að IceSave væri ekki samþykkt, yrði loksins að ósk sinni?

Af hverju er Kúba svolítið aftarlega á merini í almennum framförum sem vesturlanda og margar austurlanda þjóðir þykir alveg sjálfsagðar?

Aldrei að vita, en auðvitað kæmu hvalveiðarnar til með að vera ástæðan fyrir þvingunum BNA ef af henni yrði.

Og ekki gæti ESB annað en tekið þátt í þeim þvingunum, annars væri ekki tekið mark á einu eða neinu af þeim yfirlýsingum sem þeir hafa haft um hvalveiðar í mörg ár.

Fólk heldur að hlutirnir séu annað hvort hvítir eða svartir, so to speak og gera sér enga grein fyrir afleiðingunum, rétt eins og hilmar jónsson, ef íslendingar veittu Snowden hæli á Íslandi.

Góðar vangaveltur Einar, vonandi lesa sem flestir þennan pistil hjá þér.

Kveðja frá London.

Jóhann Kristinsson, 6.7.2013 kl. 00:02

3 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Gott hjá þér Einar, svo eftir að hafa velt öllum hugsanlegum afleiðingum af því feigðarflani að veita uppljóstranum hæli hér,er rétt að árétta það sem þú segir um réttmæti þess að fórna þjóð sinni fyrir málstað,sem líklega skilaði litlu og hefði nær engin áhrif,því njósnir munu halda áfram.Þær hafa verið stundaðar af öllum stærstu ríkjum heims,en allt í einu eru þær orðnar í hugum nokkura siðlausar,þótt vitað sé að þær eru hluti af vörnum þeirra sem beita þeim. Þeir sömu hafa lítt við það að athuga þótt menn svíkji og brjóti eiðstaf. Ég vil segja að lokum fyrir minn hatt,að Bandaríkin hafa verið aflið sem hefur hvarvetna komið lýðræðisþjóðum til hjálpar á erfiðum stundum.Ef Bandaríkin væru ekki það sem þau eru,væri ólíft á plánetunni,en öfundin er allra kennda hættulegust.

Helga Kristjánsdóttir, 6.7.2013 kl. 04:20

4 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Mjög góð grein. Má ég kopía hana og senda vinum.

Kv v

Valdimar Samúelsson, 6.7.2013 kl. 09:31

5 Smámynd: Guðmundur Jónsson

Mér finnst hrollveljandi í þessu að skuli vera svo miklir kjánar á þingi að þeir ljái máls á þessu.

Ögmundur og aðrir gamlir kommar er klárlega blindir af hatri út í BNA og ekki við öðru að búast frá þeim. En það er eitthvað annað í gangi hjá þingmönnum pírata, eru þeir bara svona innilega heimskir ?

Guðmundur Jónsson, 6.7.2013 kl. 09:56

6 Smámynd: Einar Björn Bjarnason

Allt í lagi - Valdimar. Mátt dreifa þessu ef þú vild.

Guðmundur - taktu eftir fyrstu athugasemd að ofan, þ.e. einmitt afstaða Pírata í hnotskurn.

Fyrir þeim er einungis ein spurning sem máli skiptir. Ef þú svarar henni rétt að þeirra mati. Skipta afleiðingar að því er best verður séð engu máli.

Við værum menn með meiru að taka á því - - gætum þá huggað okkur við það að þeirra mati standa með réttætinu.

Þetta er hugmyndafræði. Þeir eru ekki kommar. Heldur er þetta ný hugmyndafræði, sem snýr að þeirri hugmynd að allt eigi vera opið, njósnir séu rangur hlutur - - að auki leggja þau gríðarlega áherslu á rétt einstaklings.

Það virðist þannig séð að réttur einstaklings sé svo stór að réttur hóps þ.e. þjóðar eigi að víkja. Sem er áhugaverð afstaða.

Getum kallað það "fanatíska einstaklingshyggju."

Kv.

Einar Björn Bjarnason, 6.7.2013 kl. 13:31

7 identicon

Það sem þu gerir þer ekki grein fyrir að astæða þess að island a i slikum örðugleikum sem um getur. Er vegna þess að island setti sig a band mannvonskunar a sinum tima. Stoð með bandarikjamönnum, og klikkaða georg sem dreymdi um að verða striðsforseti eins og rosevelt. Studdu að myrtir væru miljon manns um heiminn. Vegna þess að Obama Bin Laden sprengdi hus i bandarikjunum. Siðan drukku islendingar af veigunum, veltu ser i vellistingum og hlogu að þeim sem minna mattu sin.

Þið uppskaruð, það sem þið höfðuð sað.

Snowden uppljostrar um það hvernig bandarikin lita a alemming i heiminum sem ovini sina. Slikt gerir bandarikin að glæpamönnum, og þrjotum almennt. Og folk, sem þa vill standa þeim við hlið þegar ljost er hvernig þeir hafa hagað ser, mega hafa varuð a framtiðinni.

Hitt er svo annað mal, og það er hvort snowden se holpið a islandi. Landi sem hefur haft jafn mikla samvinnu við kanann og vitni eru um. En það a alltaf að standa með rettlætinu, og syna kjark.

Bjarne Örn Hansen (IP-tala skráð) 6.7.2013 kl. 19:26

8 identicon

Sæll Einar Björn

Svona maður er veit svona mikið um njósnir NSA um allan heiminn og sem hin volduga Elíta (Committee of 300) getur alls ekki treyst lengur verður örugglega reynt að myrða.  Ef um aftöku verður um að ræða þá verður hún  örugglega vel skipulögð eða rétt eins og aðrar vel skipulagðar aftökur sem við höfum áður frétt eitthvað um; Malcom X, Martin Luther King, John Lennon, JFK eða bara eins og hennar Díönu.

Það er eins og fólk hérna vilji alls ekki heyra hvað Snowden hafi að segja um allar þessar víðtæku njósnir NSA, öll áherslan er núna lögð á að réttlæta alla njósnastarfsemi NSA, og svo með því að dæma Snowden svona hart fyrir það eitt að segja frá, að NSA sé og hafi verið að brjóta lög um allan heim.     

Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 6.7.2013 kl. 20:37

10 Smámynd: Einar Björn Bjarnason

Þorsteinn, ég ætla ekki að ræða slíkar samsæriskenningar, en ég tek undir að Snowden þarf 24kl.st. öryggisgæslu. Ég á þó ekki von á að hann yrði líklega drepinn, heldur fremur líklegar rænt. Og komið til Bandar.

Það sé afskaplega ólíklegt að við í reynd ráðum við að tryggja öryggi hans hér. Fyrir utan, að þegar Kanar færu að beita okkur viðskiptaþvingunum - - yrði stórt lífskjarakrass.

Þú getur treyst því að þá myndu mjög margir krefjast þess, að honum yrði skilað til Bandar. Ef á að senda hann eitthvert, þá þarf það að vera land sem ræður við það að búa við viðskiptaþvinganir Kana. Ísland í reynd getur ekki staðist slíkt álag.

Ef menn vilja Snowden vel, á ekki að senda hann hingað. Það væri mikið axarskaft.

Kv.

Einar Björn Bjarnason, 7.7.2013 kl. 01:44

11 Smámynd: Einar Björn Bjarnason

Bjarne - - þú ert kominn langt út fyrir velsæmi í Kanahatri.

Einar Björn Bjarnason, 7.7.2013 kl. 01:45

12 identicon

Sæll aftur Einar Björn

Ef hann á að getað lifað, þarf hann já þessa 24kl. öryggisgæslu, og það er rétt Ísland er kannski ekki heppilegur staður fyrir hann, en hvar er hann óhultur eða öruggur?

Það er mun öruggara fyrir þá að drepa hann í eitt skiptið fyrir öll, heldur en að hann sé svona að opinbera eitthvað meira Snowden unveils NSA Satellite SAURON Program targeting Citizens

Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 7.7.2013 kl. 11:22

13 Smámynd: Guðmundur Jónsson

Þorsteinn Sch

""Það er eins og fólk hérna vilji alls ekki heyra hvað Snowden hafi að segja um allar þessar víðtæku njósnir NSA, öll áherslan er núna lögð á að réttlæta alla njósnastarfsemi NSA, og svo með því að dæma Snowden svona hart fyrir það eitt að segja frá, að NSA sé og hafi verið að brjóta lög um allan heim. ""

Snowden hefur ekkert að segja. Hann er að leka trúnaðarupplýsingum úr sínu starfi, hann er bara venjulegur njósnari fyrir erlent ríki í augum BNA.

Þeir sem er svo grænir að halda að batterí eins og NSA hleri ekki símana hjá þeim ef þeir telj sig þurfa þess eru einfaldlega ekki að skilja heiminn sem þeir búa í.

Guðmundur Jónsson, 7.7.2013 kl. 11:29

14 identicon

Sæll Guðmundur

Eigum við ekki að hlusta á hvað Snowden hefur að segja eða hans hlið á öllu málinu, því að eftir því sem ég get best séð þá er  NSA með allt þetta öfluga njósnakerfi, en ekki hann Snoden karlinn. Það er ekki hægt að segja að Snoden hafi brotið lög um trúnaðarupplýsingar með því að segja frá, þegar að NSA er og hefur verið að brjóta lög með stela og vista ólögllegu efni. Hvernig er það átti hann Snoden bara að leiða þetta allt hjá sér og bara taka þátt í því að stela og vista ólöglegum upplýsingum?       

Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 7.7.2013 kl. 12:39

15 Smámynd: Einar Björn Bjarnason

Þorsteinn, ég held reyndar að Snowden hafi ekki afhjúpað neitt sem ekki stends þjóðaröryggislög Bandaríkjanna, sem sett var í tíð Bush stjórnarinnar. En þá var víst eitt og annað heimilað sem var ekki heimilt áður. Öryggisþjónustum var gefið aukið svigrúm til að leita gagna og nýta þau.

Ég held að Snowden þurfi að leita til lands sem hafi efni á því að glíma við neikvæðar afleiðingar pyrrings Bandaríkjanna, á sama tíma og þau hafa getu til þess að gæta öryggis hans. 

Það eru ekki sérlega mörg lönd sem hvort tveggja geta. Rússland og Kína standa best að vígi hvað þær forsendur varðar, síðan koma lönd eins og Íran - Venesúela kannski, síður lönd eins og Nígaragúa og Bólivía. 

Ef hann færi til Rússa, yrði hann að selja öll gögn sín til rússn. leyniþjónustunnar. Sama ef hann leitaði til Kína.

En þau tvö lönd væru best hæft til að tryggja öryggi hans. En hann myndi þá lenda á sambærilegum stalli eins og njósnarar í kalda stríðinu sem flúðu til Sovét, fengu nýtt nafn - andlit og heimilsfang ásamt því að fá tryggan lífeyri út ævina. En til þess að fá allt það, þyrftu gögnin að vera töluvert gagnleg fyrir rússn. og kínv. leyniþjónusturnar.

Þegar Snowden ákvað að leka gögnum, þá um leið tók hann ákvörðun um að verða hundeltur alla ævina á enda. Bandar.menn munu aldrei hætta að elta hann. Ekki fyrr en hann er í gröfinni.

Kv.

Einar Björn Bjarnason, 7.7.2013 kl. 19:47

16 identicon

Sæll Einar Björn

Það bendir nú eitthvað til þess að Snowen viti eitthvað meira: 

"Snowden Confirms Stuxnet Malware developed by NSA and Israel Together" (http://thehackernews.com/2013/07/Edward-Snowden-Stuxnet-NSA-Israel.html)

Snowden karilinn gæti farið eins og þú segir til Nigaragúa, Bólivíu, Kína nú og svo og Norðr Kóreu er hefur boðið hann velkominn til landsins.

Já það er rétt Snowden segir það beint út, að hann tók þess ákvörðun og hann gerði sér grein fyrir því að hann yrði hundeltur út um allt   http://www.youtube.com/watch?v=kaRvzQ887HM

Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 8.7.2013 kl. 17:02

Bæta við athugasemd

Nauðsynlegt er að skrá sig inn til að setja inn athugasemd.

Um bloggið

Einar Björn Bjarnason

Höfundur

Einar Björn Bjarnason
Einar Björn Bjarnason
Stjórnmála- og Evrópufræðingur. Áhugi á stjórnmálum, Evrópumálum, alþjóðamálum, málefnum Miðausturlanda, trúmálum, vísindum og tækni, og margt fleira.
Des. 2024
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31        

Eldri færslur

2024

2023

2022

2021

2020

2019

2018

2017

2016

2015

2014

2013

2012

2011

2010

2009

2008

Nýjustu myndir

  • Mynd Trump Fylgi
  • Kína mynd 2
  • Kína mynd 1

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.12.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 31
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 28
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband