28.9.2012 | 00:56
Spánn verður að yfirgefa evruna!
Stjórnvöld Spánar gáfu út ný fjárlög á fimmtudag, sem kveða á um 20ma. útgjaldaniðurskurð. Best að nefna, að þetta er í fimmta sinn á þessu ári sem ríkisstjórn Mariano Rajoy gefur út tilskipanir um niðurskurð útgjalda. Þannig að aðgerðir næstu mánaða og næsta árs, koma ofan í harðar aðgerðir sem þegar hefur verið hrint í framkvæmd - og verið er að þvinga í gegn.
Núverandi aðgerðir eru þegar að ógna samfélagsstöðugleika á Spáni, skv. yfirlísingu leiðtoga Katalóníu að efna til nýrra þingkosninga - sem samtímis yrði atkvæðagreiðsla um sjálfstæði.
En ríkisstjórn Spánar er harkan 7 sbr.: "Vice-premier Soraya Sáenz de Santamaría said the government has the means to stop a referendum on self-rule and is willing to use them."
Með öðrum orðum, að ríkisstjórn Spánar geti einfaldlega bannað að atkvæðagreiðslan fari fram - en skv. aðstoðarforsætisráðherranum, þá hafi foringi Katalóníu átt lögum skv. að tilkynna um kosninguna með tilteknum fyrirvara til stjv. Spánar - að hans mati væri atkvæðagreiðslan ólögleg nema stjv. Spánar legðu við henni sína blessun.
Það verður áhugavert að sjá viðbrögð "katalana" við þessu - - en mig grunar að leiðtogi Katalóníu geti notað slíka "valdnýðslu" sem afsökun, til að efna til mjög fjölmennra mótmæla um alla Katalóníu.
Ef það er rétt sem Katalanar sjálfir segja að 1,5 milljón hafi gengið um götur Barselóna fyrir tveim vikum, þá getum við verið að tala um ástand - - sem getur mjög hratt farið gersamlega úr böndum.
- Sérstaklega, ef eins og flest bendir til, að deilan milli aðila "harðnar."
En sú deila getur vart annað en gert það, þegar ríkistj. Spánar gerir sig líklega til að beita ítrustu lagaúrræðum, og lögreglu - til að hindra að atkvæðagreiðslan fari fram.
- Að auki, bæti ný fjárlög með enn frekari niðurskurði frekara salti í þau sár.
Mariano Rajoy var þrjóskan uppmáluð er hann aðspurður sagði "He brushed aside warnings that fiscal overkill at a time when unemployment is already 25pc could push the country into turmoil, saying he would listen only to the silent majority of responsible citizens."
Skv. erlendum fréttaskýrendum, bendir flest til þess að hin nýju fjárlög sem að sögn fjármálaráðherra Spánar eiga að minnka fjárlagahalla Spánar um 40ma. á nk. ári hafi verið samin í nánu samráði ríkisstjórnar Spánar og Framkvæmdastjórnar ESB.
En Ollie Rehn var ekki seinn að leggja fram sína blessun sbr. "Spain is facing important challenges to correct very sizable macroeconomic imbalances which require a comprehensive policy response. The measures announced today are a further important step towards addressing these challenges."
Vart að búast við öðru en að Framkvæmdastjóri efnahagsmála í Brussel, legði blessun sína við fjárlög sem hann hefur sjálfur átt þátt í að semja.
En það virðist vera veðmál í gangi milli Framkvæmdastjórnarinnar og ríkisstjórnar Spánar - - að með því að leggja fram svo hörð niðurskurðarfjárlög, geti Spánn fengið í gegn í samninga við aðildarríki evrusvæðis sérstaklega Þýskaland. Að samþykkt verði að Spánn fái aðgang að kaupum Seðlabanka Evrópu án nokkurra viðbótarskilyrða - sérstaklega, án þess að vera neydd til að afhenda lyklavöld að fjármálaráðuneyti Spánar til björgunarsjóðs evrusvæðis.
Einhvern vegin held ég - að Rajoy of Rehn muni tapa því verðmáli.
En fyrr í vikunni sagði talsmaður Þýskra stjv. að - björgunaráætlun yrði aldrei án skilyrða, hann sagði e-h á þá leið að þú afhendir aldrei peninga án trygginga. Og að ríkisstjórn Spánar yrði formlega að fara á leit um björgun, áður en formleg afstaða ríkisstjórnar Þýskalands geti legið fyrir.
Fyrir þetta fjárhættuspil - er Mariano Rajoy að leggja samfélagslegan stöðugleika Spánar að veði!
Viðbótar niðurskurður, fimmtu niðurskurðaraðgerðirnar í röð, munu að sjálfsögðu framkalla meira atvinnuleysi - og enn frekari samdrátt. Þ.e. af og frá, að aukning atvinnuleysis muni nema staðar þannig að það verði ekki meira á nk. ári. Að auki, alveg af og frá að samdráttur nk. árs verði minni en þessa árs. Miðað við allan viðbótar niðurskurðinn auk útgjaldaaðgerða.
En í þessum áætlunum, virðist gert ráð fyrir að ríkisstjórn Spánar muni geta þvingað héröðin - sem ráða yfir stórum hluta heildarútgjalda hins opinbera á Spáni, að skera niður að því marki sem stjv. Spánar heimta.
Þegar hafa tvö stór héröð þverneitað að spila með þ.e. Valencia og Katalónía - - og stjórn Katalóniu, fjölmennasta héraðsins og að auki það héraðanna sem hefur stærsta efnahaginn af þeim öllum, er komin í beina uppreisn gegn ríkisstjórn Spánar, og er líkleg til að gera allt í sínu valdi, til að spilla fyrir framkv. aðgerða spænskra stjv.
- Það virðist því afskaplega ólíklegt að ríkistjórn Mariano Rajoy takist ætlunarverk sitt.
Nú þegar er sú ríkisstjórn rúin trausti - skv. nýlegri skoðanakönnun sagðist um 80% aðspurðra að vera óánægðir með aðgerðir ríkisstjórnarinnar.
Ef kosningar myndu fara fram í dag ætti sér stað mjög stórt fylgishrun stjórnarflokkanna - eftir um 10 mánuði við stjórn.
Mariano Rajoy virðist komin í stórfellt hættuspil - ekki síst með spænskt samfélag!
En ég reikna með því að deilur ríkisstjórnarinnar og einstakra héraða muni nú stigmagnast!
Deilan við Katalóníu er sérdeilis varasöm, vegna þess að stjórn Katalóníu virðist hafa íbúana í héraðinu með sér.
Það geta því átt sér stað mjög fjölmennar æsingar!
Ég velti fyrir mér hve langt spænsk stjv. eru til í að ganga - - að lýsa yfir herlögum í héraðinu? Senda inn herinn í kjölfarið til að skakka leikinn? Ekki myndi það draga úr andúð fólksins á svæðinu.
Síðan má velta fyrir sér - hvaða hérað næst? Baskaland?
Niðurstaða
Ríkisstjórn Spánar virðist komin út í sannkallaðan háskaleik - með því að ætla sér að gera sitt ítrasta til að þvinga samfélagið á Spáni til hlýðni, þegar það er þegar byrjað að rísa upp. En það voru mjög fjölmennar mótmælaaðgerðir í Madríd, og víða í borgum. Þær geta vart annað en orðið fjölmennari, og haldið áfram. Því örvæntingin knýr þær.
Síðan er það stigmagnandi ástandið sem er deilan milli stjórnarinnar og Katalóníu héraðs. Ekkert bendir til að héraðsyfirvöld séu á þeim buxunum að lyppast niður, með almenning í héraðinu með sér. Má líklega treysta því að fjölmennasta og ríkasta héraðið muni gera sitt ítrasta til að skaða aðgerðaáætlun ríkisstjórnar Spánar. Það eitt gerir hana mjög hæpna. Fyrir utan að annað stórt hérað Valencia hefur einnig neitað að skera niður í samræmi við vilja stjv. Spánar.
Engin leið er að spá fyrir hve alvarleg deilan v. Katalóníu verður, eða getur orðið. En með almenning að baki sér, sýnist mér fullvíst að stjórnarflokkur Katalóníu geti í kjölfar vísbendinga þess efnis, að stjv. Spánar ætli sér að hindra að atkvæðagreiðsla um sjálfstæði héraðsins fari fram - efnt til mjög fjölmennra mótmæla í helstu borgum Katalóníu.
Í reynd ætti héraðsstjórnin að vera vel mögulegt að stöðva nokkurn vegin nær allan efnahag héraðsins, til að hindra að skattar berist þaðan til Spánarstjórnar. Segjum, allsherjar-verkfall með fullum stuðningi héraðsstjórnarinnar.
Ég held að það sé nærri með fullu útilokað að ríkisstjórn Spánar muni geta náð fram yfirlístum markmiðum sínum í hinum nýju fjárlögum:
Spanish budget - as it happened, September 27, 2012
Niðurstaðan er - að það sé ekki þess virði fyrir Spán, að leitast við að halda landinu innan evrunnar, með þeim kostnaði sem nú bendir til að muni vera í formi "samfélagslegrar upplausnar á Spáni."
Eina leiðin til að stöðva það upplausnarferli - sér að taka Spán sem fyrst út úr evrunni.
Kv.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Um bloggið
Einar Björn Bjarnason
Nýjustu færslur
- Trump þarf ekki að kaupa eða taka yfir Grænland til að nýta m...
- Ætla að spá, Úkraínustríð standi enn yfir við lok 2025! Mér v...
- Jólakveðjur til allra, ósk um velfarnað fyrir nýja ríkisstjór...
- Mögnuð atburðarás hefur leitt til falls, Bashar al-Assads, fo...
- Þorgerður Katrín í oddaaðstöðu! Hún líklega algerlega ræður h...
- Sigur Donalds Trumps, stærsti sigur Repúblikana síðan George ...
- Ef marka má nýjustu skoðanakönnun FoxNews - hefur Harris þokk...
- Kamala Harris virðist komin með forskot á Trump í Elector-Col...
- Það að Úkraínuher er farinn að sprengja brýr í Kursk héraði í...
- Úkraínuher hóf innrás í Kursk hérað sl. mánudag! 5 dögum sein...
- Möguleikar Kamölu Harris til hugsanlegs sigurs á Donald Trump...
- Leiðir ris J.D. Vance - til fullkominna yfirráða milljarðamær...
- Er fall bandaríska lýðveldisins yfirvofandi - vegna ákvörðuna...
- Sérfræðingar vaxandi mæli þeirrar skoðunar, 2025 verði lykilá...
- Rússar hafa tekið 8 km. landræmu síðan sl. föstudag í NA-Úkra...
Eldri færslur
2025
2024
2023
2022
2021
2020
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
Bloggvinir
- eyglohardar
- bjornbjarnason
- ekg
- bjarnihardar
- helgasigrun
- hlini
- neytendatalsmadur
- bogason
- hallasigny
- ludvikjuliusson
- gvald
- thorsteinnhelgi
- thorgud
- smalinn
- addabogga
- agnarbragi
- annabjorghjartardottir
- annamargretb
- arnarholm
- arnorbld
- axelthor
- arnith2
- thjodarsalin
- formosus
- birgitta
- bjarnijonsson
- bjarnimax
- westurfari
- virtualdori
- bookiceland
- gattin
- davpal
- dingli
- doggpals
- egill
- jari
- einarborgari
- einarsmaeli
- erlaei
- ea
- fannarh
- fhg
- lillo
- gesturgudjonsson
- gillimann
- bofs
- mummij
- kallisnae
- gp
- gudmbjo
- hreinn23
- gudrunmagnea
- gmaria
- topplistinn
- skulablogg
- gustafskulason
- hallurmagg
- haddi9001
- harhar33
- hl
- diva73
- himmalingur
- hjaltisig
- keli
- fun
- johanneliasson
- jonsullenberger
- rabelai
- jonl
- jonmagnusson
- jonvalurjensson
- thjodarskutan
- gudspekifelagid
- juliusbearsson
- ksh
- kristbjorg
- kristinnp
- larahanna
- leifurbjorn
- lifsrettur
- wonderwoman
- maggij
- elvira
- olafureliasson
- olinathorv
- omarragnarsson
- ottarfelix
- rafng
- raksig
- redlion
- salvor
- samstada-thjodar
- fullvalda
- fullveldi
- logos
- duddi9
- sigingi
- sjonsson
- sigurjons
- stjornlagathing
- athena
- stefanbogi
- lehamzdr
- summi
- tibsen
- vala
- valdimarjohannesson
- valgeirskagfjord
- vest1
- vignir-ari
- vilhjalmurarnason
- villidenni
- thjodarheidur
- valli57
- tbs
- thorgunnl
- thorsaari
- iceberg
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (20.1.): 10
- Sl. sólarhring: 10
- Sl. viku: 65
- Frá upphafi: 859307
Annað
- Innlit í dag: 10
- Innlit sl. viku: 57
- Gestir í dag: 10
- IP-tölur í dag: 10
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Nei.
Jón Frímann Jónsson, 28.9.2012 kl. 01:56
Spánn verður að taka sína hagsmuni fram yfir hagsmuni Evrópusambandsins. Enda eru greinilega Holland - Þýskaland - Finnland, að láta sína sérhagsmuni ráða sbr. ákvörðun frá í gær sbr. "“The ESM can take direct responsibility of problems that occur under the new supervision, but legacy assets should be under the responsibility of national authorities,” said the joint statement, issued by the three finance ministers: Germany’s Wolfgang Schäuble, Finland’s Jutta Urpilainen and the Netherlands’ Jan Kees de Jager."
Það setur samkomulag aðila frá sl. sumri í verulegt uppnám, það samkomulag einmitt að Spánn geti fært kostnað af bankabjörun að verulegu leiti yfir til ESM.
"Solidarity must work both ways."
Vandi Spánar er orðinn of alvarlegur, vísa til hættulegrar þróunar innan samfélagsins, til að það sé þorandi að gera annð - en að taka hagsmuni samfélagsins á Spáni fram yfir hagsmuni ESB.
Það er ekki þess virði, að taka áhættu á nýju borgarastríði á Spáni. Óþarfi að endurtaka söguna frá 4. áratugnum - þegar er verið að endurtaka söguna um "gull standardinn" og "austerity on top of austerity causing unemployment and social dislocation, that grows ever worse" þurfum við að bíða eftir næstu afleiðingu, sprengingu á popúlisma í flr. löndum? Síðan stóru efnahagshruni líklega fyrir rest?
Evran er að halda Evrópu í ferli stöðugrar og að auki stöðugt versandi efnahagskrýsu, eina leiðin reiknað fram virðist frekar niður, frekari vandi innan samfélaganna, stöðugt hættulegra ástand - vaxandi líkur á stóru hruni reiknað fram.
Er það virkilega nauðsynlegt að láta hlutina enda í stórum mannlegum harmleik? Geta menn ekki slitið sig frá trúarbrögðunm um Evruna, þegar hún er greinilega þegar byrjuð að valda slíkum? Þarf sá virkilega, að verða miklu mun alvarlegri? Áður en unnt er að binda enda á þetta brjálæði, sem það er orðið?
Evrópa er greinilega auðsjáanlega í miklu mun verra ferli, vegna tilurðar evrunnar. Án hennar hefði þessi efnahagsvandi aldrei náð að vinda þetta mikið upp á sig. Löndin í S-Evr. væru stödd í hagvaxtarferli, enginn væri að tala um hættu á gjaldþroti. Það er kaldhæðnin, að evran hefur fært Evrópu í reynd "áratugi aftur." En leita þarf áratugi aftur - til að finna dæmi um hættu á að stór lönd væru að sigla í raunverulega gjaldþrotshættu. Þ.e. árangurinn, að færa klukkuna til ekki áfram heldur afturábak.
Kv.
Einar Björn Bjarnason, 28.9.2012 kl. 08:40
Stattu þig Jón Frímann! Þú veist að þjóðin gerir kröfur til þin, að ekki sé nú minnst á Samfylkinguna.
Árni Gunnarsson, 28.9.2012 kl. 12:45
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Þú ert innskráð(ur) sem .
Innskráning